Fleiri fréttir

Nú hljóti félagatalið að nást úr krumlum forystu Eflingar
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins býst við því að þar til bærir embættismenn muni einhenda sér í það verkefni að „ná atkvæðaskránni úr krumlum forystu Eflingar.“

Minnisblaðið um flugvélina hafi komið of seint frá Gæslunni
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Landhelgisgæsluna hafa skilað minnisblaði um mikilvægi þess að fá aukið fjármagn of seint. Minnisblaðið hafi borist þegar þingmenn voru komnir í jólafrí.

Hryðjuverkamálið í uppnámi eftir frávísun í héraðsdómi
Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur hefur vísað frá báðum köflum er lúta að hryðjuverkum í hryðjuverkamálinu svokallaða.

Verkfall Eflingar fær grænt ljós og Sólveig heldur fast í kjörskrána
Félagsdómur fellst ekki á kröfur Samtaka atvinnulífsins að boðað verkfall hjá félagsmönnum Eflingar hafi verið ólögmætt. Verkfallsaðgerðir Eflingar á Íslandshótelum hefjast að óbreyttu á hádegi á morgun. Formaður Eflingar fagnar sigri og ætlar ekki að afhenda sáttasemjara kjörskrá Eflingarfélaga strax.

Halla vill komast í stjórn VR
Halla Gunnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri ASÍ, hefur ákveðið að bjóða stig fram til setu í stjórn stéttarfélagsins VR.

Flutningabíll Eimskips fór út af Suðurlandsvegi
Vöruflutningabíll frá flutningafyrirtækinu Eimskip fór út af Suðurlandsvegi. Að sögn sjónarvotts átti slysið sér stað rétt fyrir ofan Kambana.

Þóra Arnórsdóttir hættir hjá RÚV
Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks hjá Ríkisútvarpinu, hefur sagt upp störfum hjá Ríkisutvarpinu. Hún segist skilja sátt eftir 25 ára starf í fjölmiðlum og ætlar í annan bransa sem þó er leyndarmál fyrst um sinn.

Borgin gefur út enn eitt starfsleyfið fyrir skotsvæðið á Álfsnesi
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að veita Skotveiðifélagi Reykjavíkur nýtt starfsleyfi til tveggja ára á Álfsnesi. Deilur hafa staðið um starfsemina um árabil og segir formaður nefndarinnar að með ákvörðuninni sé verið að reyna að koma til móts við báða aðila. Ljóst sé að skotsvæðið mun á endanum fara.

Héraðsdómur segir Eflingu að afhenda sáttasemjara félagatalið
Ríkissáttasemjari á að fá félagatal Eflingar afhent til að hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu hans í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem úrskurðaði í málinu á öðrum tímanum.

Lagningu Vestmannaeyjastrengs flýtt frá 2027 til 2025
Ákveðið hefur verið að flýta lagningu nýs Vestmannaeyjastrengjar og búið að senda leyfisumsókn þess efnis til Orkustofnunar. Áætlað er að leggja strenginn sumarið 2025 í stað 2027 og verður hann 66 kV og sambærilegur við Vestmannaeyjalínu.

Í beinni: Dómstólar kveða upp dóma sína í kjaradeilunni
Von er á því að bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Félagsdómur komist að niðurstöðu varðandi það annars vegar hvort Efling þurfi að afhenda sáttasemjara félagatal sitt og hins vegar hvort boðað verkfall tæplega þrjú hundruð félagsmanna Eflingar á morgun standist lög.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar þögul sem gröfin um fjögurra ára hrakfarir
Engin svör er að fá hjá bæjarstjórn Reykjanesbæjar vegna rauna ungrar fjölskyldu, sem hefur verið á hrakhólum í fjögur ár eftir að byggingarfulltrúi stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra. Öll leyfi höfðu verið gefin út og framkvæmdir langt komnar þegar þær voru stöðvaðar.

Iva klippt út úr myndbandi um gott aðgengi vegna skoðana sinna
Söngkonunni og laganemanum Ivu Marín Adrichem var illa brugðið þegar settur ferðamálastjóri, Elías Bj. Gíslason, tilkynnti henni að brugðið hafi verið á það ráð að taka myndband sem fjallar um bætt aðgengi á ferðamannastöðum úr birtingu og klippa hana út.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Jarðskjálftinn öflugi í Tyrklandi og Sýrlandi verður til umfjöllunar í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Kolsvört skýrsla um fiskeldi og metfjöldi ábendinga
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er í áfalli eftir kynningu ríkisendurskoðanda á skýrslu sinni um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit. Ríkisendurskoðandi hefur aldrei gert jafn margar athugasemdir í skýrslu sinni.

Ekki vitað af Íslendingum á skjálftasvæðum
Utanríkisráðuneytið er ekki meðvitað um að neinn Íslendingur sé á þeim svæðum í suðurhluta Tyrklands eða norðurhluta Sýrlands þar sem ógnarstór jarðskjálfti reið yfir í morgun. Skjálftinn var af stærðinni 7,8 stig og ljóst að mannfall er mikið.

Líklegt að tvö hundruð svín hafi drepist í eldsvoða
Allt tiltækt lið Brunavarna Austur-Húnvetninga var kallað í morgun vegna elds í svínabúi við Skriðuland í Langadal. Talið er að rúmlega tvö hundruð svín hafi drepist í brunanum en þó er útlit fyrir að tekist hafi að bjarga fimm til sex hundruð svínum.

Félagsdómur úrskurðar í dag
Félagsdómur mun klukkan 14:30 í dag úrskurða um lögmæti verkfallsboðunar Eflingarfólks sem starfar hjá Íslandshótelum. Að öllu óbreyttu hefst verkfallið á hádegi á morgun, þriðjudag.

Nanna Kristín aðstoðar Bjarna
Nanna Kristín Tryggvadóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra.

Stífla veldur hækkandi vatnshæð í Norðurá
Vatnshæð hefur farið hækkandi í Norðurá í Borgarfirði í nótt.

Fjórar pestir að grassera og mikið um innlagnir vegna streptókokka
Fyrir helgi lágu þrettán inni á Landspítala með Covid-19, þar af einn á gjörgæsludeild. Kórónuveiran, RS-veiran, inflúensa og streptókokkar eru þeir smitsjúkdómar sem helst eru að grassera í samfélaginu í dag og óvenju margir hafa verið lagðir inn sökum síðastnefnda.

Gatnamótin ljóslaus og vinstri beygjur bannaðar
Umferðarljós á gatnamótum Laugavegs/Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar hafa verið óvirk síðustu daga og verða ekki löguð fyrr en á morgun, í fyrsta lagi. Búið er að loka fyrir vinstri beygjur yfir gatnamótin.

Skjóti skökku við að tefla fram „karlastétt með frekar há laun“
Tíðinda er að vænta í vikunni í kjaradeilu Eflingar en að óbreyttu hefjast verkföll á þriðjudag. Sömuleiðis hefur verkfall verið boðað meðal flutningabílstjóra, sem Samtök atvinnulífsins hafa kallað hálaunastétt. Efnahagsráðgjafi SA stendur við það og segir það skjóta skökku við að hálaunaðri karlastétt sé teflt fram í baráttunni.

Frímerkja- og myntsafnarar slegnir eftir innbrot
Innbrotsþjófar gripu svo gott sem í tómt eftir að hafa brotist inn í húsnæði Landssambands íslenskra frímerkjasafnara og brotið upp peningaskáp. Formaður landssambandsins segir fjárhagslegt tjón ekki svo mikið, en öllu verra sé tilfinningalega tjónið við að ráðist sé inn á mann með þessum hætti.

Á hrakhólum í yfir þrjú ár: „Gríðarlegur kostnaður sem fylgir svona skrípaleik“
Fjölskylda hefur verið á hrakhólum milli húsa í fjögur ár eftir að byggingarfulltrúi í Reykjanesbæ stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra þrátt fyrir að öll leyfi hafi verið gefin út. Kostnaður vegna húss sem þau geta ekki flutt inn hleypur á tugum milljóna króna. Fjölskyldan segir mikilvægt að íbúar geti treyst útgefnum leyfum embættismanna og segja að málið verði ekki svæft, þrátt fyrir tilraunir sveitarfélagsins.

Ekki heyrt af neinu tjóni þrátt fyrir að spár hafi ræst
Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra, segir að veður hafi víða verið varhugavert í dag líkt og spáð hafði verið. Fólk hafi verið vel undirbúið fyrir veðrið og ekki hafi verið tilkynnt um neitt tjón. Hann segir ekki ólíklegt að veðurviðvörun fyrir þriðjudag verði appelsínugul.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Fjölskylda hefur verið á hrakhólum milli húsa í á fjórða ár ár eftir að byggingarfulltrúi í Reykjanesbæ stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra þrátt fyrir að öll leyfi hafi verið gefin út. Kostnaður vegna húss sem þau geta ekki flutt inn hleypur á tugum milljóna króna. Fjölskyldan segir mikilvægt að íbúar geti treyst útgefnum leyfum embættismanna og segja að málið verði ekki svæft, þrátt fyrir tilraunir sveitarfélagsins.

Féll í höfnina en mundi ekki hvernig
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í morgun kölluð til eftir að maður hafði fallið í höfnina á Miðbakka í miðbæ Reykjavíkur.

Óvissustigi aflétt
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra aflýsir óvissustigi Almannavarna í fyrrgreindum umdæmum, vegna veðurs sem gekk yfir í dag.

Mun áfrýja áður en hún afhendir
Ætla má að tíðindi muni berast á morgun í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins en óhætt er að segja að deilan sé í hnút.

Fagnar því að „ógeðfelld og ljót krafa“ falli frá
Fósturvísum verður ekki eytt sjálfkrafa við skilnað eða andlát ef að frumvarp heilbrigðisráðherra nær fram að ganga. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem hafði lagt fram eigið frumvarp, fagnar málinu og segir þetta ógeðfellt ákvæði. Hún vill þó ganga lengra og telur tilefni til að skoða rýmri heimild fyrir því að gefa fósturvísa.

Grunar að skitið hafi verið á bíl sinn vegna nágrannaerja
Eiganda bíls sem skitið var á í Kópavogi í nótt segist gruna að athæfið tengist langvarandi nágrannaerjum. Hann segist þó ekki skilja fyllilega hvað skilaboðin eigi að fela í sér.

„Það getur verið gott veður en kílómetra lengra er það snarvitlaust“
Óvissustig Almannavarna er í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi vegna veðurs en spár um aftakaveður virðast ætla að ganga eftir. Gert er ráð fyrir hviðum allt að 50 metrum á sekúndu og segir sviðsstjóri Almannavarna nauðsynlegt að fólk haldi sig heima á meðan versta veðrið gengur yfir. Á Vestfjörðum er hætta á ofanflóðum en bæjarstjóri segir þau viðbúin eftir flóðin í janúar.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Óvissustig Almannavarna er í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi vegna veðurs en spár um aftakaveður virðast ætla að ganga eftir. Gert er ráð fyrir hviðum allt að 50 metrum á sekúndu og segir sviðsstjóri Almannavarna nauðsynlegt að fólk haldi sig heima á meðan versta veðrið gengur yfir. Á Vestfjörðum er hætta á ofanflóðum en bæjarstjóri segir þau viðbúin eftir flóðin í janúar.

Kjaramálin og flugvélarsalan sem ekkert verður úr
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra er fyrsti gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi í dag. Nú er um 14 mánuðir síðan hann tók við lyklunum að ráðuneytinu, ástandið árin á undan var furðulegt og áfram eru heilbrigðismálin í brennidepli samfélagsmálanna. Hvert stefnir ráðherrann með þennan viðkvæma málaflokk?

„Vísindamenn læra ekkert um business“
Íslendingar voru tuttugu árum eftir á í að grípa til markvissra aðgerða til að stuðla markvisst að því að vísindamenn kæmu niðurstöðum rannsókna sinna í arðbæran eða hagnýtan farveg, að sögn Einars Mäntylä framkvæmdastjóra Auðnu tæknitorgs, sem stofnað var 2018. Vísindamenn læra að hans sögn „ekkert um business“ - því þarf að kenna hann.

Norðmenn sinna loftrýmisgæslu við Ísland með öflugustu orrustuflugvélum heims
Áttatíu manna norskt herlið auk fjögurra orustuþota af gerðinni F-35 sinna nú loftrýmisgæslu á Íslandi á vegum Atlandshafsbandalagsins. F-35 eru með öflugustu herflugvélum heims en ein slík kostar á bilinu þrettán til fimmtán milljarða íslenskra króna.

Björguðu kettlingum úr brennandi húsnæði
Slökkviliðið á Höfuðborgarsvæðinu sinnti níu útköllum með dælubílum síðasta sólarhringinn. Eldur kom upp í íbúðarhúsnæði í Garðabæ þar sem íbúar komust út af sjálfsdáðum en slökkvilið bjargaði kettlingum út úr húsnæðinu.

Appelsínugular viðvaranir, óvissustig og samráðsfundir vegna veðurs
Samhæfingarstöð almannavarna verður virkjuð klukkan tíu í dag vegna veðurs. Óvissustigi var í gær lýst yfir á Vestfjörðum vegna ofanflóðahættu en aukin hætta er á votum snjóflóðum, krapaflóðum og skriðuföllum vegna hlýinda og úrkomu. Óvissustigi hefur einnig verið lýst yfir á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra vegna veðurs en appelsínugul viðvörun tekur gildi klukkan ellefu á svæðinu.

Grímuklæddur maður skeit á bíl í Kópavogi
Vægast sagt undarlegt atvik átti sér stað í Kópavogi rétt eftir miðnætti í gærkvöldi. Maður gekk upp að bíl á Álfhólsvegi, virti hann fyrir sér og gekk í burtu. Stuttu síðar kom maðurinn aftur en lét sér þá ekki nægja að skoða bifreiðina, heldur girti hann niður sig og skeit á húddið. Eigandi bílsins birti myndband af athæfinu og velti fyrir sér hvaða skilaboð væri verið að senda.

Eiga von á þríburum eftir að tæknifrjóvgun heppnaðist í fyrstu tilraun
Par úr Árbænum, sem fór í einkar vel heppnaða tæknifrjóvgun í vetur, fékk sláandi fregnir í snemmsónar; eineggja þríburar eru væntanlegir í vor. Þær óraði ekki fyrir því að þríburar væru mögulegir en eru yfir sig spenntar. Þá voru viðbrögð aðstandenda við fréttunum, sem fylgja umfjölluninni, oft ansi skrautleg.

Vilja kanna samstarf vegna uppbyggingar bílastæðahúss við Keflavíkurflugvöll
Forsvarsmenn Isavia vilja kanna samstarf við einkaaðila – verktaka eða fasteignafélög – í tengslum við uppbyggingu á bílastæðahúsi við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gert er ráð fyrir að bílastæðahús muni rísa þar sem skammtímabílastæðin er nú að finna.

Brotist inn verslun í Kópavogi í nótt og mikið um ölvunarakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í nótt. Mikið var um ýmiskonar tilkynningar sem tengdust ölvun, slagsmálum og hávaða. Sex einstaklingar voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og einn undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá var brotist inn í verslun í Kópavogi.

Framvísar launaseðlum olíubílstjóra: „Við erum ekki hálaunuð“
Trúnaðarmaður Eflingar hjá Olíudreifingu hefur safnað saman launaseðlum bílstjóra hjá Olíudreifingu, Samskipum og Skeljungi. Hann segir fullyrðingar framkvæmdastjóra SA um há laun olíubílstjóra ekki standast skoðun.

Ekkert meitlað í stein þó að spáin um krabbameinstilfelli sé sláandi
Eftir tæp tuttugu ár munu um þúsund fleiri greinast með krabbamein samanborið við það sem nú er, ef spár ganga eftir. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að heilbrigðiskerfið sé þegar komið að þolmörkum og bregðast verði við með skýrum aðgerðum. Þó staðan sé þung sé enn svigrúm til að bregðast við.