Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjögurra ára og hámar í sig súrmat Fjögurra ára strákur á Suðurnesjum er engum líkur þegar kemur að því að borða súrmat því hann elskar ekkert meira en að borða súra lundabagga, hrútspunga, slátur og súran hval. Þá er hann líka sólgin í hákarl og drekkur mysu eins og mjólk. 26.1.2023 20:05
„Mjög mikilvægt að við bregðumst við“ Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að illa hefði getað farið ef krapaflóð sem féll á Patreksfirði hefði fallið tveimur tímum fyrr. Íbúar væru skelkaðir enda ýfi flóðið upp gömul sár. Atvikið minni á mikilvægi ofanflóðavarna sem sárvanti á svæðinu. 26.1.2023 19:48
Jóhann Valgeir kosinn Austfirðingur ársins Jóhann Valgeir Davíðsson íþróttakennari hefur verið kosinn Austfirðingur ársins 2022. Hann segir kjörið mikinn heiður, en Jóhann Valgeir var hlaut kjörið fyrir elju sína við að benda á vandamál í íþróttahúsi Eskifjarðar. 26.1.2023 18:41
Ákvörðun ríkissáttasemjara geti haft alvarlegar afleiðingar Drífa Snædal, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, segir ríkissáttasemjara setja stórhættulegt fordæmi með miðlunartillögu sinni í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Hún segir ákvörðunina geta haft alvarlegar afleiðingar á samskipti á vinnumarkaði til lengri tíma. „Nánast ómögulegt“ sé fyrir félagsmenn að fella slíka tillögu. 26.1.2023 18:12
Hryðjuverkaákæran „hvorki fugl né fiskur“ og rök ákæruvaldsins haldi ekki Verjendur tveggja manna sem eru ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild segja verulega galla í ákærunni. Ef ákæruliðum sem snúa að hryðjuverkabrotum verði ekki vísað frá verði þetta líklega í fyrsta sinn sem ákæra sem sé jafn óljós og almennt orðuð slyppi í gegn. Saksóknari ber fyrir sig að ekki hafi verið hægt að skýra málin betur, sem dómari hefur gagnrýnt. 26.1.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum fjöllum við ítarlega um stöðuna sem upp er komin í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins eftir að ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu í deilunni í dag. 26.1.2023 18:00
Icelandair aflýsir nánast öllu flugi Icelandair hefur aflýst öllu flugi frá Bandaríkjunum í dag, þann 26. janúar, vegna veðurs. Flugi til og frá Evrópu á morgun hefur einnig verið aflýst, að undanskildum flugum til og frá Tenerife og Alicante. Tafir gætu orðið á þeim flugferðum. Innanlandsflugi á morgun hefur jafnframt verið aflýst. 26.1.2023 17:59
Nýtt nafn komið á sameinaða sveitarfélagið Sameinað sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar hlaut nafnið Sveitarfélagið Stykkishólmur á fundi bæjarstjórnar fyrr í dag. Fjórir bæjarfulltrúar kusu með nafnbreytingunni en þrír vildu halda nafninu Stykkishólmsbær. 26.1.2023 17:43
Dæmd í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á amfetamínbasa Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fimmtuga pólska konu í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Konan var sakfelld fyrir að hafa í ágúst síðastliðnum staðið að innflutningi á samtals 3800 ml af amfetamínbasa hingað til lands frá Varsjá í Póllandi. Framburður konunnar fyrir dómi þótti fjarstæðukenndur. 26.1.2023 16:02
Upplifði flóðin fyrir fjörutíu árum síðan: „Þetta ýfir upp gömul sár“ Íbúi á Patreksfirði sem upplifið krapaflóðin fyrir fjörutíu árum síðan segir flóðið í dag hafa ýft upp gömul sár. Bæjarstjórinn segir íbúa vera skelkaða og að hlutirnir hefðu getað farið verr hefði flóðið átt sér stað tveimur klukkutímum áður. 26.1.2023 15:56
Losuðu hvalshræ úr tógi frá kræklingarækt Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs losaði í dag dauðan hval í Stakksfirði. Sá hafði flækst í botnföstum köðlum sem líklega er, eða var, hluti af kræklingarækt. 26.1.2023 14:30
Hættustigi á Patreksfirði aflýst Búið er að aflýsa hættustigi Almannavarna á Patreksfirði vegna krapaflóðs sem féll þar í morgun. Svæðið verður áfram vaktið en búið er að aflétta lokun á svæðinu. 26.1.2023 13:27
„Hættulegt fordæmi til framtíðar“ Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir miðlunartillögu ríkissáttasemjara vera vonbrigði. Halldór segist óttast að þetta gefi slæmt fordæmi til framtíðar. 26.1.2023 12:34
Gert að greiða samfanga miskabætur eftir árás með trékefli Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt fangann Þorláki Fannari Albertssyni til að greiða samfanga sínum 300 þúsund krónur í miskabætur eftir árás með trékefli inni á Litla-Hrauni á Eyrarbakka í desember 2020. 26.1.2023 12:26
Efling hafnar lögmæti miðlunartillögunnar Efling hafnar lögmæti þeirrar miðlunartillögu sem ríkisáttasemjari hefur lagt fram í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Stéttarfélagið telur miðlunartillöguna fela það í sér að afstöðu SA sé þröngvað upp á Eflingu. 26.1.2023 11:58
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um krapaflóð sem féll á Patreksfirði í morgun, í sama farvegi og mannskætt flóð sem féll í bænum fyrir rétt rúmum fjörutíu árum. Hættustigi hefur verið lýst yfir í bænum. 26.1.2023 11:32
Setur miðlunartillögu í atkvæðagreiðslu Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, hefur lagt fram miðlunartillögu, í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Tillagan felur í sér að félagsmenn Eflingar og aðildarfélög SA munu greiða atkvæði um sams konar samning og gerður var við Starfsgreinasambandið fyrir áramót. 26.1.2023 11:25
Aldrei fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en árið 2022 Lögreglunni á landsvísu bárust 2.374 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila árið 2022. Jafngildir það að meðaltali tæplega 7 slíkum tilkynningum á dag eða 198 tilkynningum á mánuði. Nær 70 prósent heimilisofbeldismála eru gegn maka eða fyrrverandi maka. 26.1.2023 11:10
Tók dæmi af bankaráni til að útskýra ákæruna í hryðjuverkamálinu Saksóknari og verjendur í hryðjuverkamálinu svokallaða takast nú um það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í brotinu. Saksóknari segir ekki unnt að lýsa ætluðum brotum ákærðu með nákvæmari hætti en gert sé í ákærunni. Hann tók sem dæmi ímyndað bankarán til að styðja þá skoðun sína að ákæran ætti að fá efnislega meðferð fyrir dómi. 26.1.2023 11:01
Krapaflóð féll á Patreksfirði Krapaflóð féll á Patreksfirði á tíunda tímanum í dag. Engin hús eða manneskjur urðu fyrir flóðinu en það féll niður sama farveg og flóðið sem féll á Patreksfirði árið 1983. 26.1.2023 11:00
Fengu loksins vistir í fyrsta sinn síðan 15. desember: „Forréttindi að fá að búa á svona stað“ Mæðgur sem búa á austasta býli landsins fengu loksins sendar til sín vistir á mánudag. Þær höfðu ekki fengið sendingu til sín síðan 15. desember síðastliðinn. 26.1.2023 10:55
Halda sektinni til streitu og segja stöðukortið falsað Vilberg Rambau Guðnason er niðurbrotinn maður eftir að hafa farið bónleiður til búðar frá Bílastæðasjóði. Vilberg, sem er öryrki, gerði athugasemd við sekt sem hann fékk fyrir að leggja í stæði ætlað hreyfihömluðum. 26.1.2023 10:26
Hvetja 60 ára og eldri til að „láta hendur standa fram úr ermum“ „Við erum bara að reyna að halda fólki vakandi,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, um auglýsingar sem meðal annars má finna á Vísi. 26.1.2023 10:25
Eitt fjölmennasta bridgemót Íslandssögunnar Yfir sjö hundruð manns eru skráðir til þátttöku á Reykjavík Bridgefestival sem hefst í Hörpu í dag. Um er að ræða eitt fjölmennasta bridgemót sem haldið hefur verið á Íslandi. 26.1.2023 10:17
Segja Ísland geta gegnt lykilhlutverki í matvælaöryggi í Evrópu Ísland gæti séð milljónum Evrópubúa fyrir öruggum, sjálfbærum og staðbundið framleiddum próteingjöfum á næstu áratugum. Á sama tíma væri hægt að draga úr losun yfir 700 milljóna tonnum af kolefnisútblæstri. 26.1.2023 09:56
Girðingarnar fjarlægðar en lóðir stækkaðar Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar við Sundlaugartúnið, sem felur í sér lausn á Sundlaugartúnsmálinu svokallaða. Tillagan nær fram að ganga samþykki borgarráð deiliskipulagið. 26.1.2023 09:10
Mótstaða við breytingar ekki vegna eigin hagsmuna heldur faglegs mats Inga Lilý Gunnarsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, segir mótstöðu Lyfjafræðingafélags Íslands við frumvarp um að heimila lausasölu lyfja í almennum verslunum ekki sprottna út frá hagsmunum lyfjafræðinga, heldur faglegum forsendum. 26.1.2023 08:45
Játa aðild en segja þætti sína veigalitla í stóra kókaínmálinu Tveir sakborningar í stóra kókaínmálinu játa aðkomu að málinu en segja sína þætti hafa verið veigalitla. Þeir segjast aðeins hafa haft afmörkuð hlutverk en ekki komið að skipulagningu málsins á neinn hátt. 26.1.2023 07:01
Nokkrir liggja undir grun vegna þjófnaðar úr verslun í gær Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær þar sem tilkynnt var um vinnuslys í Hafnarfirði en þar hafi frosin jarðvegur hrunið ofan í holu, ofan á fót starfsmanns verktakafyrirtækis. 26.1.2023 06:23
Borgin boðar breytingar í Skeifunni: „Auðvitað þarf að laga þetta“ Reykjavíkurborg ætlar að ráðast í breytingar á samgönguleiðum í Skeifunni þar sem allir þvælast fyrir öllum og gangandi vegfarendur eiga erfitt með að komast leiðar sinnar. Varaborgarfulltrúi Viðreisnar segir svæðið eftir að breytast mikið á næstu árum. Vegfarendur eru ekki par sáttir með stöðuna í dag og einn segist beinlínis hata Skeifuna. 25.1.2023 22:44
Segir Sólveigu aldrei tilbúna í samtal Ólöfu Helgu Adolfsdóttur ritara Eflingar líst illa á fyrirhuguð verkföll og vill greiða atkvæði um kjarasamning sambærilegan þeim sem önnur stéttarfélög hafa samþykkt. Hana grunar að öðrum hópi félagsfólks innan Eflingar verði boðið að fara í verkfall hafni starfsfólk Íslandshótela að leggja niður störf. 25.1.2023 20:55
Heimaspítali á Selfossi - Nýjung í heilbrigðiskerfinu Heimaspítali er ný þjónusta fyrir aldraða á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem læknir og hjúkrunarfræðingur heimsækja skjólstæðinga sína með stuðningsmeðferð í heimahúsi. Tilgangurinn er að fækka innlögnum á bráðamóttöku og sjúkrahús. 25.1.2023 20:06
Um óhappatilvik að ræða „Þegar fólk lendir í tjóni þá er um að gera að leita upplýsinga hvort að það sé réttur fyrir hendi eð ekki,“ segir Óðinn Elísson, framkvæmdastjóri Fulltingis og sérfræðingur í skaðabótarétti í viðtali við Reykjavík síðdegis fyrr í dag. 25.1.2023 20:03
Börn hætt komin á ís í Garðabæ Síðdegis í dag var tilkynnt um nokkur börn sem voru hætt komin á ís úti á sjö norður af Norðurbrú í Garðabæ. 25.1.2023 18:55
Augljóst að verið sé að hræða starfsfólkið Formaður Eflingar segir reynt að hræða starfsfólk Íslandshótela frá því að fara í verkfall sem hún hafi fulla trú á að félagsmenn samþykki. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að afturvirkar launahækkanir standi starfsfólki Eflingar til boða þar til verkfall skelli á. 25.1.2023 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir ákvörðun Þjóðverja sem loks tóku af skarið í dag um að senda öfluga skriðdreka til Úkraínu. Hann fundaði einnig í dag með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og við heyrum í henni í fréttatímanum. 25.1.2023 17:39
Segir ráðgjafa og eftirlitsaðila axla ábyrgð á lekanum í Fossvogsskóla Reykjavíkurborg hefur nú farið ítarlega yfir lekann sem varð í Fossvogsskóla þann 20.janúar síðastliðinn. Lekinn kom ekki frá þakinu heldur frá stóru rennunum sem eru áfastar þakkanti. Þetta kemur fram í bréfi sem Ámundi Brynjólfsson skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg sendi á foreldra barna og starfsmenn Fossvogsskóla fyrr í dag. 25.1.2023 17:36
Skiljanlegt í ljósi sögunnar að Þjóðverjar hafi tekið sinn tíma Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir skiljanlegt í ljósi sögunnar að Þjóðverjar hafi tekið sér tíma í að ákveða að senda Úkraínumönnum þungavopn. 25.1.2023 16:42
Beint streymi frá fundi Katrínar og Olaf Scholz Olaf Scholz kanslari Þýskalands tilkynnti fyrr í dag að Þjóðverjar ætluðu að útvega Úkraínumönnum Leopard skriðdreka og heimila öðrum þjóðum að gera það einnig. 25.1.2023 14:46
Meirihlutinn segir Íslandsbankamálið á lokametrunum Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, segir að tillaga minnihlutans í nefndinni, þess efnis að vert sé að kalla eftir lögfræðilegu áliti á Íslandsbankasölunni, hafi komið flatt uppá sig. 25.1.2023 14:28
Gul viðvörun vegna storms Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms taka gildi á morgun allt frá Vestfjörðum til Norðurlands eystra. 25.1.2023 14:01
Endurráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands Kolbrún Þ. Pálsdóttir hefur verið endurráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands til næstu fimm ára, eða til 1. júlí 2028. 25.1.2023 13:14
Á von á að rafbyssum verði beitt sjaldnar en tíu sinnum á ári Yfirmaður menntamála lögreglunnar á von á að rafbyssum verði ekki oft beitt hér á landi, eða sjaldnar en tíu sinnum á ári. Mikil þjálfun lögreglumanna sé framundan. 25.1.2023 13:01
Tamoxifen Mylan ófáanlegt að minnsta kosti fram á mitt ár Krabbameinslyfið Tamoxifen Mylan 20 mg. hefur verið ófáanlegt á landinu síðan 25. apríl í fyrra. Lyfið er meðal annars notað við brjóstakrabbameini og til draga úr líkum á endurkomu þess en það er ekki væntanlegt aftur til landsins fyrr en mögulega um mitt ár. 25.1.2023 12:22
66 umsækjendur af 178 sem sögðust börn metnir fullorðnir Frá árinu 2014 hafa 178 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd hér á landi sem fylgdarlaus börn. Eftir gagnaöflun og aldursgreiningu voru 78 metnir sem börn en 66 sem fullorðnir. 25.1.2023 11:57
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent