Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir Helga vera að passa upp á vörumerkið Katrín Lóa Kristrúnardóttir, sem sakað hefur Helga Vilhjálmsson, betur þekktan sem Helga í Góu, um kynferðislegt áreiti, segist telja að afsökunarbeiðni Helga sé ætlað að verja vörumerki hans, hann sjái ekki eftir neinu. 15.12.2022 21:55
Blésu af æfingar yngri barna vegna kuldans Knattspyrnuæfingum yngri flokka var aflýst hjá Þrótti í Reykjavík vegna kuldans í dag. Yfirþjálfari segir að búast megi við að gripið verði til frekari slíkra ráðstafana vegna veðurs á morgun. 15.12.2022 21:28
„Það er ekki eðlilegt að það verði svona mörg slys“ Móðir þriggja ára stelpu sem fótbrotnaði í trampólíngarðinum Rush vill að foreldrar séu meðvitaðir um hætturnar sem fylgt geta trampólínhoppi. Dóttir vinkonu hennar fótbrotnaði vikuna áður. 15.12.2022 21:00
Skallaði lögregluþjón Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um mann í annarlegu ástandi í Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Þegar lögregluþjóna bar að garði skallaði maðurinn þó einn þeirra og var hann í kjölfarið handtekinn. 15.12.2022 20:32
Óvenjulegt kuldaskeið hefur víða gríðarleg áhrif Heimilislaus maður vonar að borgin hafi neyðarskýli fyrir heimilislausa opin allan sólarhringinn meðan kuldakastið sem nú er varir. Borgin hefur virkjað neyðaráætlun og ætlar að minnsta kosti hafa skýlin þannig opin á morgun. Ískuldinn sem nú ríkir kemur líka afar illa niður á smáfuglum. 15.12.2022 20:31
Mögulega viðvarandi mengun í borginni Loftmengun var mikil í frosti og hægviðri í höfuðborginni í dag. Spáð er svipuðu veðri áfram og því vara borgaryfirvöld við því að mengunin gæti orðið viðvarandi. Hvetja yfirvöld almenning til þess að draga úr notkun einkabílsins á meðan. 15.12.2022 20:05
Sérfræðingar Europol töldu mennina við það að fremja hryðjuverk Mennirnir sem ákærðir hafa verið fyrir að undirbúa hryðjuverk ræddu sín á milli að keyra trukk í gegnum gleðigönguna. Þeir töluðu einnig um að gera árásir á Alþingi, dómsmálaráðuneytið og lögregluna, auk þess sem þeir töluðu um að myrða nafngreinda einstaklinga. 15.12.2022 19:07
Hundrað milljónirnar fara í almenna styrki til fjölmiðla Menningar- og viðskiptaráðherra segir að hundrað milljónir króna sem meirihluti fjárlaganefndar lagði upphaflega til að rynni til fjölmiðla á landsbyggðinni fari í almennt styrkjakerfi fyrir fjölmiðla. Styrkirnir hækki þannig úr tæpum 400 milljónum í tæpar 500 milljónir á næsta ári. 15.12.2022 19:06
Ríkið geti mætt losunarskuldbindingum með því að nýta heimildir vegna stóriðju Heimild til þess að ríkið geti notað óseldar losunarheimildir vegna stóriðju upp í sínar eigin loftslagsskuldbindingar var bætt inn í fjárlagafrumvarpið fyrir þriðju og síðustu umræðu þess. Ungir umhverfissinnar segja heimildina skapa hættu á að ríkið dragi úr metnaði loftslagsaðgerða sinna. 15.12.2022 18:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heimilislaus maður vonar að borgin hafi neyðarskýli fyrir heimilislausa opin allan sólarhringinn meðan kuldakastið sem nú er varir. Borgin hefur virkjað neyðaráætlun og ætlar að minnsta kosti að hafa skýlin opin á morgun. Við fjöllum ítarlega um hið óvenjulega kuldakast og áhrif þess á höfuðborgarsvæðinu, sem eru margvísleg, í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 15.12.2022 18:00
Íbúar óttaslegnir vegna annarrar sprengjuárásar í Hraunbænum Íbúi sem býr í porti þar sem eldur kom upp á svölum íbúðar við Hraunbæ í Árbæ segir árásina tengda hnífstunguárásinni á Bankastræti Club. Hann segir íbúa í nágrenni við íbúðina vera í ansi miklu sjokki. Einn aðili tengdur árásinni býr í íbúðinni. 15.12.2022 15:30
Tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt pólskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. 15.12.2022 15:10
„Það er ekki hægt að taka nokkurt einasta mark á þessu fólki“ Tekist var á um hinn svokallaða fjárlagabandorm ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag en þingmenn stjórnarandstöðunnar komu hver á fætur öðrum upp í pontu til að gagnrýna áform ríkisstjórnarinnar. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði hækkanir á krónutölugjöldum fram úr öllu hófi en fjármálaráðherra beindi spjótum sínum að sveitarfélögunum. 15.12.2022 14:42
Forsætisráðherra segir engar blekkingar varðandi barnabætur Forsætisráðherra segir engum blekkingum hafa verið beitt í kynningu á hækkun barnabóta í tengslum við nýgerða kjarasamninga eins og þingmenn í stjórnarandstöðu haldi fram. Formaður Samfylkingarinnar segir muna þremur milljörðum á raunveruleikanum og þeim hækkunum sem ríkisstjórnin kynnti. 15.12.2022 14:00
Sakar Helga í Góu um ítrekaða kynferðislega áreitni „Mér finnst bara að fólk eigi að vita hvernig maðurinn er,“ segir Katrín Lóa Kristrúnardóttir sem sakar Helga Vilhjálmsson, betur þekktan sem Helga í Góu, um kynferðislegt áreiti. Helgi segist hafa gert mistök og biðjist afsökunar á því. 15.12.2022 13:39
Bréfið sem leiddi til hundrað milljóna króna styrks birtist ekki fyrir mistök María Björk Ingvadóttir, framkvæmdastjóri N4, lagði til í bréfi sínu til fjárlaganefndar Alþingis að starfsemi RÚV utan höfuðborgarsvæðisins yrði lögð niður. Starfsmenn þeirra stöðva yrðu færðir undir nýja sjónvarpsstöð sem yrði stofnuð á grunni N4. Þetta kemur fram í bréfinu sem loks hefur verið birt á vef Alþingis. 15.12.2022 13:01
Ekki ákjósanlegar horfur fyrir þá sem vilja jólasnjó en getur allt gerst Neyðaráætlun Reykjavíkurborgar vegna heimilislausra hefur verið virkjuð vegna fimbulkulda sem gert hefur vart við sig að undanförnu, en skárra veður er ekki í kortunum. Á morgun getur frostið farið niður í tuttugu stig inn til landsins segir veðurfræðingur. Spurður um hvít eða rauð jól segir hann stöðuna í veðurkerfinu ekki ákjósanlega fyrir þá sem vilja jólasnjó. 15.12.2022 12:00
Almenningur býður parinu samastað Par sem fór illa út úr leka þegar lögn á landi Kópavogsbæjar fór í sundur með þeim afleiðingum að gríðarlegt vatn lak inn til þeirra og skemmdi nær allt innbú, segir að almennir borgarar hafi haft samband og boðið þeim samastað. Tryggingafélag þeirra hafnar bótaskyldu og bíða þau enn eftir svörum frá bænum. 15.12.2022 12:00
Landtenging muni spara 750 tonn af losun gróðurhúsalofttegunda Landtenging flutningaskipa Eimskips við Sundahöfn var tekin í notkun í gær þegar gámaskipið Dettifoss var formlega tengt við rafmagn í Sundahöfn. Um er að ræða tímamótaverkefni á sviði loftlagsmála á Íslandi þar sem unnið er að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengandi efna frá flutningastarfsemi. 15.12.2022 11:48
Hádegisfréttir Bylgjunnar Umræður á þingi verða fyrirferðarmiklar í hádegisfréttum Bylgjunnar. Einnig fjöllum við áfram um vatnstjónið í Kópavoginum í gær og kuldakastið á landinu. 15.12.2022 11:35
Telur fjölmiðlastyrkinn ekki klúður og stendur við tillöguna Formaður fjárlaganefndar lítur ekki svo á að breytingartillaga meirihluta nefndarinnar, um hundrað milljóna króna styrk til fjölmiðla sem sinna sjónvarpsvinnslu á landsbyggðinni, hafi verið klúður. Þingmaður Framsóknarflokksins, sem tengdur er framkvæmdastjóra norðlensku sjónvarpsstöðvarinnar N4 fjölskylduböndum, hafi ekki verið með í ráðum þegar umræðan var tekin innan fjárlaganefndar, þó hann hafi skrifað undir nefndarálitið. 15.12.2022 11:08
Skagfirðingar þurfa á Hofsós til að komast í sund í dag Sundlaugarnar í Varmahlíð og á Sauðárkróki verða lokaðar í dag. Mikið álag hefur verið á hitaveitukerfi Skagafjarðar vegna langvarandi kuldatíðar og er um að ræða fyrirbyggjandi aðgerð til að forgangsraða heitu vatni til heimila. 15.12.2022 10:40
Neyðarskýli í Reykjavík verða opin á morgun Neyðarskýlin í Reykjavík verða öll opin á morgun, föstudag. Neyðarskýlin eru þrjú, tvö fyrir karlmenn, við Grandagarð og á Lindargötu, og eitt fyrir konur, Konukot í Eskihlíð. 15.12.2022 10:27
Tillögu fulltrúa VG í Múlaþingi um fýsileika kjarnorkuvers hafnað Tillögu sveitarstjórnarfulltrúa Vinstri grænna í Múlaþingi um að sveitarfélagið ráðist í gerð fýsileikakönnunar um uppsetningu og rekstur kjarnorkuvers var hafnað á fundi sveitarstjórnar í gær. 15.12.2022 09:56
Viðgerð á Kaldavatnslögn við Kársnesbraut lokið Viðgerð á kaldavatnslögn við Kársnesbraut sem rofnaði í gær lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi og var vatni hleypt aftur á fljótlega eftir það. 15.12.2022 09:41
Fjögur bætast við á lista þeirra sem fá heiðurslaun listamanna Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur lagt til að listamennirnir Hildur Hákonardóttir, Kristín Þorkelsdóttir, Manfreð Vilhjálmsson og Þórhildur Þorleifsdóttir muni bætast á lista yfir þá sem njóta heiðurslaun listamanna. 15.12.2022 08:38
Sturlunarárið á Tenerife Árið 2022 einkenndist einna helst af því að við kvöddum veiruna skæðu og byrjuðum að njóta lífsins, að því er virðist sem aldrei fyrr. Við flykktumst til útlanda, Tenerife nánar tiltekið, og keyptum hjólhýsi í bílförmum. En á meðan svitnaði fólkið í Seðlabankanum. 15.12.2022 07:01
„Ég er búinn að grátbiðja um ákæru“ Karlmaður sem tengdur var við Euromarket-málið hefur enn stöðu sakbornings þrátt fyrir að hafa grátbeðið um niðurstöðu. Fjölmennt lögreglulið hélt blaðamannafund um málið fyrir fimm árum. Héraðssaksóknari segir að málið sé enn í vinnslu. 15.12.2022 07:01
SSF vísar til ríkissáttasemjara og vill prósentuhækkanir Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja hafa vísað viðræðum um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. 15.12.2022 06:53
Vatnsleki í World Class Laugum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna vatnsleka í líkamsræktarstöðinni World Class Laugum í Laugardal í Reykjavík upp úr klukkan sex í morgun. 15.12.2022 06:47
Kallað út vegna elds á svölum íbúðar í Árbæ Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds á svölum íbúðar við Hraunbæ í Reykjavík upp úr klukkan eitt í nótt. 15.12.2022 06:17
Féll niður stiga á veitingahúsi eftir ágreining Maður slasaðist eftir að hafa fallið niður stiga á veitingahúsi í miðborg Reykjavíkur um miðnætti. 15.12.2022 06:10
Hringsóla utan við Alþingishúsið til að mótmæla leigubílafrumvarpi Hópur leigubílstjóra ekur nú bílum sínum í hringi utan við Alþingishúsið til þess að mótmæla leigubílafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem þar er til umræðu. Lögregla bannaði þeim þó að þeyta flautur sínar. 14.12.2022 23:40
Fela ráðherra að endurskoða styrki í ljósi fjölmiðlaumræðu Meirihluti fjárlaganefndar beinir því til ráðherra að endurskoða reglur um rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um ákvörðun nefndarinnar um hundrað milljón króna styrk til framleiðslu sjónvarpsefnis. 14.12.2022 20:53
Hafa ekki í nein hús að venda eftir að íbúðin skemmdist í gríðarlegum leka Par hefur ekki í nein hús að venda eftir að gríðarlegt magn af vatni flæddi inn í íbúð þeirra með þeim afleiðingum að heimilið er óíbúðarhæft. Þau vita ekki hvar þau ætla að verja nóttinni og segja Kópavogsbæ ekkert vilja gera fyrir þau. 14.12.2022 19:45
Fór hörðum orðum um Ríkisútvarpið og hefur lagt fram kæru Arnþrúður Karlsdóttir eigandi Útvarps Sögu hefur lagt fram kæru á hendur íslenska ríkinu vegna hindrana í samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Hún segir fjölmiðlastyrki hins opinbera vera orðnir að geðþóttaákvörðun stjórnvalda hverju sinni, eins og sýni sig í því að N4 geti fengið fjárlaganefnd til að bæta við 100 milljóna styrk, en að Útvarp Saga fái engan. 14.12.2022 19:31
Sakar stjórnarþingmenn um að kaupa sér velvild eins fjölmiðils Þingmaður Samfylkingarinnar sakar meirihluta fjárlaganefndar um að kaupa sér velvild eins fjölmiðils með hundrað milljón króna styrk sem hún leggur til að verði í fjárlögum næsta árs. Ákvörðun um styrkinn hafi ekki byggt á leikreglum í lögum. 14.12.2022 19:17
Vildi ekki kanna hvort bílnum hefði verið stolið vegna kulda Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um að bíl hefði verið stolið við verslun í Kópavogi. Eigandi bílsins vildi ekki fara út og ganga úr skugga um að bílnum hefði verið stolið vegna þess hve kalt var, samkvæmt dagbók lögreglu. 14.12.2022 18:45
„Mikill fjöldi er að taka smálán“ Töluvert fleiri hafa sótt um jólaaðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar nú fyrir jólin en undanfarin ár. Félagsráðgjafi segir neyðina mikla og erfiða stöðu á húsnæðismarkaði hafa mikið að segja. Þá leiti nú fjölmargir skjólstæðingar hjálparstarfsins í smálán til að reyna að bjarga sér. 14.12.2022 18:40
Vilja tryggja brotaþolum sálfræðistuðning eftir skýrslutöku Dóms- og heilbrigðisráðherra ætla að vinna að því að tryggja brotaþolum kynferðisofbeldis stuðning hjá sálfræðingi að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu. Einnig ætla þeir að auka samvinnu lögreglu og heilbrigðiskerfisins um þjónustu vegna kynferðisofbeldis. 14.12.2022 18:33
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Par hefur ekki í nein hús að venda eftir að gríðarlegur vatnsflaumur flæddi inn í íbúð þeirra með þeim afleiðingum að heimilið er óíbúðarhæft. Þau vita ekki hvar þau ætla að verja nóttinni og segja Kópavogsbæ ekkert vilja gera fyrir þau. Við hittum parið í íbúðinni sem skemmdist í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 14.12.2022 18:19
Jón Ársæll sýknaður í Hæstarétti Hæstiréttur hefur sýknað sjónvarpsmanninn Jón Ársæl af skaðabótakröfum dánarbús konu sem hann tók viðtal við fyrir sjónvarpsþættina Paradísarheimt sem sýndir voru hjá Ríkissjónvarpinu. Landsréttur dæmdi Jón fyrr á árinu til að greiða konunni átta hundrað þúsund krónur í miskabætur og þrjár milljónir í málskostnað. 14.12.2022 18:06
Rafmagnslaust í Garðabæ og Hafnarfirði Rafmagni sló út í hluta Garðabæjar og Hafnarfjarðar á sjötta tímanum nú síðdegis. Það virðist hafa komist á í Garðabæ nú rétt fyrir klukkan 18. 14.12.2022 17:57
Skora á rekstraraðila að loka spilakössum yfir jól og áramót Samtök áhugafólks um spilafíkn skora á rekstraraðila spilakassa að loka spilakössum sínum dagana yfir jólahátíðina og áramót. Samtökin benda á að jól og áramót eru hátíð kærleika, friðar og samveru með fjölskyldu, börnum og ástvinum og að með þessu móti geti allir sameinast um að láta spilakassana ekki spilla hátíðunum. 14.12.2022 17:00
Þingmaður tók þátt í að samþykkja beiðni mágkonu sinnar Þingmaður Framsóknarflokksins stóð að tillögu fjárlaganefndar um hundrað milljóna króna styrk til fjölmiðla á landsbyggðinni. Þingmaðurinn er mágur framkvæmdastjóra N4 sem sendi nefndinni bréf og óskaði eftir styrknum. 14.12.2022 16:27