Innlent

Vatns­­­leki í World Class Laugum

Atli Ísleifsson skrifar
Úr World Class Laugum. Myndin er úr safni.
Úr World Class Laugum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna vatnsleka í líkamsræktarstöðinni World Class Laugum í Laugardal í Reykjavík upp úr klukkan sex í morgun.

Samkvæmt upplýsingum lak vatn úr hitablásara í einum sal stöðvarinnar, en útkallið barst klukkan 6:10.

Að sögn var slökkvilið enn að störfum við að skafa upp vatnið um klukkan 6:45.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×