Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannréttindamál og viðskiptatækifæri Það er misskilningur að það sé endilega mjög kostnaðarsamt að tryggja gott aðgengi á ferðamannastöðum, að sögn verkefnastjóra hjá Ferðamálastofu, sem segir mikinn heiður að stofnunin hafi hlotið Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalagsins á alþjóðadegi fatlaðra í dag. 3.12.2022 20:11
„Fagnaðarefni að Starfsgreinasambandið hafi brotið ísinn með þessum hætti“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld eiga í samræðum varðandi það hvað þau geti lagt af mörkum í kjaraviðræðum. Hún segist vonast til þess að fleiri félög fylgi í kjölfarið nú þegar ísinn hefur verið brotinn. 3.12.2022 19:41
Fyrrum starfsfólk Sigluness tekur höndum saman til að mótmæla lokun Á sjöunda tug fyrrverandi starfsmanna Sigluness hefur tekið höndum saman til að bregðast við ákvörðun borgarráðs um að loka Siglunesi með skyndilegum hætti. Stofnaður hefur verið stuðningshópur og undirskriftalisti þar sem yfir 900 einstaklingar hafa skrifað undir áskorun þess efnis að hætta við lokunina. 3.12.2022 19:08
Bílslys á Hnífsdalsvegi: Allir úr lífshættu Viðbragðsaðilar sem tókust saman á við umferðarslysið sem varð á Hnífsdalsvegi í gærkvöldi komu saman í dag á rýnifundi. 3.12.2022 18:50
Maður féll útbyrðis í Faxaflóa Björgunarsveitir og Landhelgisgæslan leita nú að manni sem féll útbyrðis af fiskiskipi rétt fyrir utan Faxaflóa í dag. 3.12.2022 18:15
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kjaramálin eru vitanlega efst á baugi í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld, en síðdegis í dag var undirritaður kjarasamningur Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins í húsnæði ríkissáttasemjara. 3.12.2022 18:10
„Morgunljóst í mínum huga að það er ekki hægt að ætlast til þess að launafólk axli eitt ábyrgð í íslensku samfélagi“ Vilhjálmur Birgisson segir samningaviðræðurnar hafa verið langar og strangar en hann sé afar stoltur af þeirri niðurstöðu sem komin er í málið. Hann segir samninginn miða að því að hjálpa þeim sem höllustum fæti standa í íslensku samfélagi. 3.12.2022 17:43
Hafa náð samkomulagi um nýjan kjarasamning Nú leggur vöffluangan um húsnæði ríkissáttasemjara í Borgartúni, því þar var verið að skrifa undir kjarasamninga Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins. 3.12.2022 16:39
VR snýr aftur til viðræðna VR, LÍV og samflot iðn- og tæknigreina hafa ákveðið að taka höndum saman í yfirstandandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. 3.12.2022 16:13
Töluverður eldur kviknaði í álþynnuverksmiðju TDK Engin meiðsl urðu á fólki þegar eldur kviknaði í framleiðslutæki í álþynnuverksmiðju TDK á Krossanesi við Eyjafjörð í dag. Tveir voru þó fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús til öryggis vegna mögulegrar reykeitrunar, að sögn slökkviliðs. 3.12.2022 14:48
Skógræktin mun planta sjö milljónum plantna 2023 Skógræktin stefnir á að setja Íslandsmet í gróðursetningu plantna á næsta ári en þá eru ætlunin að gróðursetja um sjö milljónir plantna víðsvegar um landið. 3.12.2022 14:04
Verðlaunuðu Ferðamálastofu fyrir gott aðgengi í ferðaþjónustu Ferðamálastofa hlaut hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka í tilefni af alþjóðlegum degi fatlaðs fólks. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefni um aðgengi fatlaðs fólks í ferðaþjónustu. 3.12.2022 13:56
Sjö ára drengur á meðal þeirra alvarlegu slösuðu Einn þeirra þriggja sem eru alvarlega slasaðir eftir bílslysið á Hnífsdalsvegi í gærkvöldi er sjö ára gamall drengur. Fólkið sem slasaðist alvarlega er úr báðum bílunum. 3.12.2022 13:42
Líðan skjólstæðinganna batnað með sanngirni á þriðju vaktinni Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu um hina svokölluðu þriðju vakt eftir að skoðanagrein á Vísi fór á mikið flug. Fréttastofa fór á stúfana og spurði hver það væri á heimilinu sem helst stæði þriðju vaktina. 3.12.2022 12:24
Bein útsending: Hvatningarverðlaun ÖBÍ afhent Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka verða afhent á Grand hótel í Reykjavík í dag, á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Hægt verður að fylgjast með afhendingunni í beinu streymi hér á Vísi og hefst dagskrá klukkan 11:30. 3.12.2022 11:01
Um þrjátíu heilbrigðisstarfsmenn kallaðir á vakt vegna slyssins Um þrjátíu starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða voru kallaðir til vegna slyssins sem varð á Hnífsdalsvegi í gærkvöldi. Tildrög slyssins eru til rannsóknar. Töluverð hálka var á veginum í gær og þrjú flutt með flugi til Reykjavíkur. Yfirlögregluþjónn segir þau alvarlega slösuð. 3.12.2022 10:43
Verða að bæta undirliggjandi rekstur borgarinnar Bæta verður undirliggjandi rekstur Reykjavíkurborgar til þess að stöðva margmilljarða króna hallarekstur hennar, að sögn Einars Þorsteinssonar, formanns borgarráðs. Hann segir tillögur um að lækka laun borgarfulltrúa popúlisma. 3.12.2022 10:17
Grímuklæddur maður rændi verslun Maður sem rændi verslun í póstnúmeri 108 í Reykjavík í gærkvöldi komst undan á hlaupum. Hann var grímuklæddur og hrifsaði með sér fjármuni í sjóðsvél verslunarinnar. 3.12.2022 08:03
Innlögnum fjölgaði í nóvember og áfram nokkur dauðsföll á mánuði Enn er nokkur fjöldi að greinast með Covid hér á landi og fjölgaði innlögnum nokkuð mikið í nóvember. Þá látast að meðaltali tveir til fjórir á mánuði vegna Covid. Sóttvarnalæknir hvetur fólk til að fara varlega yfir hátíðirnar, fara í örvunarbólusetningu og huga að sóttvörnum. 3.12.2022 08:01
Ráðist á húsráðanda þegar hann opnaði útidyrnar Karlmaður hringdi dyrabjöllu húss í hverfi 103 í Reykjavík og réðst á húsráðanda þegar hann opnaði dyrnar skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði en lögregla telur sig kunna deili á honum. 3.12.2022 07:45
Engin svör um dánarorsök 135 dögum eftir andlát Sólveig Hlynsdóttir var 33 ára þegar hún lést skyndilega í júlí síðastliðnum. Fjölskylda hennar hefur allt frá því að hún lést barist fyrir svörum varðandi það hvað í ósköpunum kom fyrir. Þau segjast ekki geta reynt að jafna sig á áfallinu og lifa með sorginni fyrr en þau fái svör. Ekki eru nema tveir réttarlæknar starfandi hér á landi, þar af annar í aðeins 25 til 30 prósent stöðu. 3.12.2022 07:00
Fundað til miðnættis í kvöld og meira á morgun Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari segir í samtali við fréttastofu að fundarhöld Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins muni standa til um það bil miðnættis í kvöld. 2.12.2022 23:58
Friðfinnur Freyr er látinn Friðfinnur Freyr Kristinsson, maðurinn sem leitað hefur verið að seinustu vikur, er látinn. Þessu greinir bróðir hans frá á Facebook síðu sinni. Hann segir ekkert saknæmt hafa átt sér stað. 2.12.2022 22:36
Fimm slösuðust í árekstri á Hnífsdalsvegi Tveggja bíla árekstur varð á Hnífsdalsvegi fyrr í kvöld. Fimm eru slasaðir og komu inn á sjúkrahús á Ísafirði. Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð. Tvær flugvélar fluttu þrjá af þeim slösuðu suður. Enginn er sagður látinn. 2.12.2022 21:29
Hafa nú þegar greitt út tugi milljóna í bætur vegna lekans í Hvassaleiti Tryggingafélagið VÍS hefur nú þegar greitt út alls 45,6 milljónir króna í bætur vegna tjónsins sem varð þegar önnur tveggja stofnlagna vatnsveitu rofnaði í Hvassaleiti í Reykjavík í september síðastliðinn. 2.12.2022 21:00
Fundað fram á kvöld Aðilar vinnumarkaðarins munu funda inn í nóttina en yfir standa kjaraviðræður milli Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins annars vegar og hins vegar milli SA og samflots iðn- og tæknifólks. Góður gangur hefur verið í viðræðum dagsins en staðan er þó viðkvæm. 2.12.2022 20:13
„Miklu flottari“ en ljósin í Tivoli Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er nú uppljómaður í tilefni jólahátíðarinnar. Segja má að skreytingarnar minni á Tivoli skemmtigarðinn í Kaupmannahöfn. 2.12.2022 19:47
„Lítið gert til að skera niður í fínum móttökum í Höfða og ráðhúsinu“ Með hagræðingaaðgerðum Reykjavíkurborgar vegna 11,1 milljarða króna er kroppað í hér og þar, en þær eru máttlausar og huglausar að sögn oddvita Sjálfstæðisflokksins. Í stað þess að skerða leikskólaþjónustu hefði að hennar mati heldur átt að minnka yfirbygginguna. 2.12.2022 19:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Með hagræðingaaðgerðum Reykjavíkurborgar vegna 11,1 milljarða króna er kroppað í hér og þar, en þær eru máttlausar og huglausar að sögn oddvita Sjálfstæðisflokksins. Í stað þess að skerða leikskólaþjónustu hefði að hennar mati heldur átt að minnka yfirbygginguna. 2.12.2022 18:01
„Ekki búið að vera auðvelt ferðalag en í dag varð það algjörlega þess virði“ Jón Baldvin Hannibaldsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni. Landsréttur mat það sem svo að það hafi verið sannað, gegn neitun Jóns, að hann hafi strokið á rassi Carmenar Jóhannsdóttur. Carmen kveðst fagna dóminum, þó hún hafi ekki búist við sakfellingu. 2.12.2022 17:29
Hlýjasti nóvember frá því mælingar hófust Nóvember var sá hlýjasti frá upphafi hitamælinga hér á landi. Meðalhitinn á landsvísu var þremur gráðum hlýrri en að meðallagi og sló naumlega gamla met nóvembermánaðar frá 1945. 2.12.2022 15:54
Aukin heimild til eftirlits nái frumvarpið fram að ganga Nýtt frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum felur í sér að lögregla fái heimild til að viðhafa sérstakt eftirlit með einstaklingum sem hafa tengsl við skipulagða brotastarfsemi, án þess þó að þeir séu grunaðir um afbrot. Frumvarpið felur einnig í sér að eftirlit með störfum lögreglu verður eflt frá núverandi mynd. 2.12.2022 14:44
Jón Baldvin fékk tveggja mánaða dóm fyrir kynferðislega áreitni Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Landsrétti í dag fyrir kynferðislega áreitni á Spáni. Þá var hann dæmdur til að greiða allan sakarkostnað og áfrýjunarkostnað vegna málsins. Verjandi Jóns Baldvins segir að sótt verði um áfrýjunarleyfi í málinu til Hæstaréttar. 2.12.2022 14:09
Ekki vænlegt að segja konum að „slaka bara á“ Hulda Tölgyes, sálfræðingur segir að hin svonefnda þriðja vakt sé streituvaldandi og að of mikil streita til lengri tíma sé afar skaðleg heilsunni. Þyngstu byrðar þriðju vaktarinnar séu vanalega í aðdraganda jóla. Pistill sem Hulda og Þorsteinn V. Einarsson, eiginmaður hennar, skrifuðu hefur vakið gífurlega athygli og er mest lesinn á Vísi þriðja daginn í röð. 2.12.2022 13:54
Á sjötta tug hornfirskra hrossa slátrað vegna alvarlegs brots Matvælastofnun hefur lagt tímabundið bann við búfjárhaldi á umráðamann búfjár á ótilgreindum bæ í Hornafirði vegna alvarlegs brots á dýravelferðarlögum. Fimmtíu og fimm hrossum var slátrað vegna málsins. 2.12.2022 13:41
„Sýndaraðgerðir“ sýni að meirihlutinn ætli sér ekki að taka á vandanum Borgarstjóri segir verðbólgu og fjórðu bylgju Covid meginástæður þess að rekstrarniðurstaða Reykjavíkurborgar hafi verið neikvæð um 11,1 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að meirihlutinn ætli sér ekki að taka á rekstrarvandanum þar sem hagræðingaraðgerðir séu ekkert nema sýndaraðgerðir. 2.12.2022 13:00
Vill tryggja launahækkanir sem allra fyrst Aðilar vinnumarkaðarins halda áfram að funda í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag en gert var hlé á fundarhöldum í gær svo viðsemjendur gætu farið yfir málin með sínu baklandi. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins segir mikilvægt að ná saman eins fljótt og mögulegt er. 2.12.2022 12:19
Hefði verið frábært ef þetta hefði gengið upp Möguleikinn á starfsemi kísilvers í Helguvík er að öllum líkindum úr sögunni. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ segir meirihluta íbúa anda léttar eftir að þetta varð ljóst, enda hafi margir orðið fyrir mikilum óþægindum. Óljóst er hvað verður um verksmiðjuna sjálfa. 2.12.2022 12:01
Faglærðir starfsmenn Grandaborgar segja upp störfum Verulegur uggur og urgur er meðal foreldra barna í Grandaborg en Helena Jónsdóttir leiksskólastjóri hefur sagt upp störfum. Hún tók við sem leikskólastjóri Grandaborgar árið 2014. 2.12.2022 12:00
Brugðist við hallarekstri borgarinnar: Færri sýningar og boðsmiðar en meiri tími í beðunum Ráðast á í margvíslegar aðgerðir til að bregðast við miklum hallarekstri A-hluta Reykjavíkurborgar. Þar á meðal á að ráðast í 92 hagræðingaraðgerðir sem fela meðal annars í sér færri sýningar á Listasafni Reykjavíkur og færri boðsmiða á safnið. Skoða á mögulega sölu á bílastæðahúsum auk þess sem að útlit er fyrir að unglingar í Vinnuskólanum þurfi að eyða meiri tímum í beðum borgarinnar en fyrri sumur. 2.12.2022 11:58
Bein útsending: Fulltrúar Bankasýslunnar mæta fyrir þingnefnd Fulltrúar Bankasýslu ríkisins mæta á opinn fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis sem fram fer milli klukkan 10:30 og 12 í dag. 2.12.2022 10:00
Leikskólastjórnendur afar gagnrýnir á skóla- og frístundasvið „Samfélagið, stjórnmálafólk verður núna, árið 2022, að skilja mikilvægi þess að hlúa að yngsta fólkinu sem byrjar rúmlega eins árs í leikskóla og dvelur þar að jafnaði 8,5 klukkustundir fimm daga vikunnar.“ 2.12.2022 09:35
Víða hætt við lúmskri hálku sunnan- og vestanlands Víða verður hætt við myndun lúmskrar hálku sunnan- og vestanlands í dag, einkum seinnipartinn og í kvöld eftir að það styttir upp, lægir og léttir til. 2.12.2022 09:17
Rekstarniðurstaða A-hluta neikvæð um 11,1 milljarð króna Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar, sem er að hluta eða öllu leyti fjármagnaður með skatttekjum, var neikvæð um 11,1 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. 2.12.2022 08:45
Fylgi Samfylkingar rúmlega tvöfaldast frá síðustu kosningum Fylgi Samfylkingarinnar hefur rúmlega tvöfaldast frá þingkosningum á síðustu ári samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallúp. Fylgi flokksins mælist nú rúmlega 21 prósent samanborið við 9,9 prósent í þingkosningunum í september 2021 og fengi flokkurinn samkvæmt könnuninni fimmtán þingmenn kjörna. 2.12.2022 07:49