Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
VG gerir fyrirvara við frumvarp Jóns um lögregluna Þingflokkur VG hefur afgreitt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum og sent það til þinglegrar meðferðar. Þingflokkurinn gerði nokkra fyrirvara við frumvarpið, til dæmis hvað varðar heimildir lögreglu til að hafa eftirlit með borgurum. 1.12.2022 13:00
Samfylkingin rifti leigusamningi vegna ónothæfs eldhúss Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Fulltrúaráð Samfylkingarinnar til að greiða Sjónveri ehf. gjaldfallna leigu fyrir einn mánuð en ekki sex eins og upprunalegur leigusamningur kvað á um. 1.12.2022 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjaramálin, ný spá Isavia um fjölda ferðamanna og óvenjuleg hlýindi verða á meðal þess sem fjallað verður í hádegisfréttum Bylgjunnar. 1.12.2022 11:32
Gagnrýndu ferðalög meirihlutans og óskuðu svara um kostnað Borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins voru utanlandsferðir fulltrúa meirihlutans nokkuð hugleiknar á borgarráðsfundi í síðustu viku. Í bókunum segir Flokkur fólksins að margt smátt geri eitt stórt og leggur til að fulltrúar notist við fjarfundabúnað. 1.12.2022 11:03
Ræða hvort nafnlaus tindur í Vatnajökli verði kenndur við Helga jöklafræðing Örnefnanefnd mun síðar í dag taka fyrir tillögu um að nafnlaus fjallstindur í Vatnajökli verði kenndur við Helga Björnsson, helsta jöklafræðing landsins. Í tillögunni er lagt til að Helgi verði heiðraður með þessum hætti, meðal annars vegna kortlagningar hans á botni Vatnajökuls sem sé mikið vísindalegt afrek sem hafi haft „ómetanleg áhrif á þekkingu á jöklafræði á Íslandi og í heiminum.“ 1.12.2022 11:02
Hefja viðgerð á landshring Mílu í Djúpá við birtingu Ekki tókst að hefja viðgerð á ljósleiðarastreng í landshring Mílu við Holt á Mýrum á Suðausturlandi í nótt. Strengurinn er slitinn úti í Djúpá en til stendur að hefjast handa við viðgerðina þegar birtir af degi. 1.12.2022 09:41
Þekktir menn í undirheimunum viti helst hvað komið hafi fyrir Friðfinn „Það er búið að vinna úr öllum ábendingum. Velta öllum steinum. En sorglegu tíðindin eru þau að hann finnst ekki,“ segir Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, faðir Friðfinns Freys Kristinssonar sem hvarf sporlaust þann 10. nóvember síðastliðinn. 1.12.2022 09:01
Engin hitamet þrátt fyrir hlýjasta nóvember á öldinni Nóvembermánuður var sá hlýjasti í Reykjavík og Akureyri á þessari öld. Á hvorugum staðnum var þó slegið met yfir hlýjasta nóvember frá upphafi mælinga. 1.12.2022 08:30
Ísland engan veginn í stakk búið fyrir viðamiklar lyfjarannsóknir Ísland er langt í frá reiðubúið til að taka þátt í umfangsmiklum lyfjarannsóknum, ef marka má umsagnir um þingsályktunartillögu um heimild til rannsókna og notkunar á efninu sílósíbíni (e. psilocybin) í geðlækningum. 1.12.2022 08:11
Þetta eru merkustu sigrar ársins Við erum mætt aftur, fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis, með ítarlega yfirferð yfir árið 2022. Það gerðist allskonar, eins og við munum, en við byrjum hér: á fólkinu sem varð ofan á. Sigurvegurum ársins, í sem víðasta skilningi orðsins. 1.12.2022 07:01
Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2022 Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna mann ársins 2022 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn. 1.12.2022 07:00
Uggur um lífeyrisréttindi heilbrigðisstarfsmanna sem fresta starfslokum „Við viljum alls ekki hafa nein ákvæði um starfslokaaldur í lögum, hvorki hámörk um 67 né 70 ára aldur. Þetta á fyrst og fremst að vera samningsatriði milli þess sem vinnur og þess sem vill hafa fólk í vinnu.“ 1.12.2022 06:59
„Það eru 38 milljónir í heiminum með HIV og það er ekki búið að finna lækningu“ HIV-faraldrinum er ekki lokið í heiminum og sjúkdómnum fylgja enn fordómar, segir Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV-samtakanna á Íslandi. 34 hafa komið nýir inn með HIV í þjónustu á göngudeild smitsjúkdóma á þessu ári og Einar gerir ráð fyrir því að fjöldinn nái 40 fyrir árslok. 1.12.2022 06:41
Gestur olli skemmdum á hótelherbergi og hótaði starfsfólki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í miðborginni í gærkvöldi vegna hótelgests sem hafði valdið skemmdum á hótelherbergi sínu og hafði í hótunum við starfsfólk. Málið er í rannsókn, segir í tilkynningu frá lögreglu um verkefni næturinnar. 1.12.2022 06:12
Slit á landshring Mílu á Suðausturlandi Slit hefur orðið á ljósleiðara landshring Mílu á Suðausturlandi, milli Hafnar í Hornafirði og Holts á Mýrum. 30.11.2022 23:09
Búnar að sýna og sanna það að þetta er ekki karlastarf lengur Hún ruddi brautina fyrir íslenskar konur í flugmannastétt sem sú fyrsta sem var ráðin sem atvinnuflugmaður. Í dag var komið að síðustu lendingu Sigríðar Einarsdóttur í flugstjórasætinu hjá Icelandair og hlaut hún heiðursmóttöku á Keflavíkurflugvelli. 30.11.2022 22:30
Eydís nýr skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Eydísi Ásbjörnsdóttur í embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands til fimm ára frá 1. desember. 30.11.2022 21:03
Mikilvægt að ná samningum sem fyrst Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að ná samningum við sérgreinalækna sem fyrst en sumir þeirra hafa hækkað verðskrár sínar vegna skorts á samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Það sé vont að vita til þess að það eigi að rukka allt að tvö hundruð þúsund krónur fyrir aðgerðir sem áður kostuðu mun minna. 30.11.2022 21:00
Vonlaust að úttala sig um krónur og aura fyrr en samningur liggur fyrir Mikill hamagangur var í Karphúsinu í dag þar sem reynt hefur verið til þrautar að landa kjarasamningum. Fundum lauk um klukkan sex í dag og verður þráðurinn tekinn aftur upp á morgun. 30.11.2022 19:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að ná samningum við sérgreinalækna sem fyrst en sumir þeirra hafa hækkað verðskrár sínar vegna skorts á samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Það sé vont að vita til þess að allt að tvö hundruð þúsund krónur eigi að rukka fyrir aðgerðir sem áður kostuðu mun minna. 30.11.2022 18:28
Vitavegur vinnur hönnunarsamkeppni um Grófarhúsið Hönnunarsamkeppni Reykjavíkurborgar um endurhönnun og stækkun á Grófarhúsi, í samstarfi við Arkitektafélag Íslands, er nú lokið. Fimm teymi voru valin til að taka þátt í forvali og sendu inn tillögur að umbreytingu hússins, en teymi frá JVST arkitektum, Inside outside, Hanrath Architect, Kreatíva teiknistofu, VSÓ ráðgjöf og Örugg verkfræðistofu varð hlutskarpast. 30.11.2022 18:25
Rannsaka alvarlegan sjúkdóm sem herjar á hesta Matvælastofnun og tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum rannsaka nú óþekktan sjúkdóm sem kom upp í hópi hrossa í mánuðinum. Sjúkdómurinn er sagður alvarlegur en hann veldur háum hita og miklum bjúg. Hestafólk er hvatt til að vera vakandi fyrir einkennum í hrossum sínum. 30.11.2022 18:01
Réðst á konu með öxi fyrir framan grunnskóla Maður réðst á fyrrverandi konu sína með öxi fyrir framan Dalskóla seinni partinn í gær. Mörg vitni urðu að árásinni, þar á meðal börn. Konan var flutt á spítala, talsvert slösuð en er ekki talin í lífshættu. Lögreglan hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum. 30.11.2022 17:39
Leikskólatíminn í Reykjavík styttist frá og með 15. janúar Dvalartími barna í leikskólum í Reykjavík verður að hámarki 42,5 klukkustundir á viku frá og með 15. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í pósti frá Reykajvíkurborg til foreldra og forráðamanna leikskólabarna í dag. 30.11.2022 16:42
Rannsókn á skipulagningu hryðjuverka lokið og boltinn hjá saksóknara Rannsókn í máli tveggja manna sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka er nú lokið og eru gögnin komin til saksóknara sem ákveður næstu skref og hvort ákæra verði gefin út. Mennirnir hafa verið í gæsluvarðhaldi í tíu vikur og verða þar áfram í hið minnsta fram á næstu viku. 30.11.2022 16:32
Samið við Klíníkina um aðgerðir vegna endómetríósu Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna endómetríósu. Samningurinn kveður á um að þeir sem eru í brýnustu þörfinni njóti forgangs. Með samningnum fjölgar því úrræðum vegna endómetríósu og þjónustan eflist enn frekar. Um stórt skref er að ræða þegar kemur að úrræðum og þjónustu við sjúklinga með endómetríósu. 30.11.2022 15:59
Mikið álag víða: „Ef maður getur bjargað sér sjálfur þá er það alltaf besta ráðið“ Álagið innan heilbrigðiskerfisins hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum en staðan er slæm víða. Ýmsar skýringar eru að baki að sögn forstjóra Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og er unnið að því að finna leiðir til að bæta stöðuna. Fólk er hvatt til að íhuga hvort það geti leyst málin á eigin spýtur áður en leitað er til heilsugæslunnar. 30.11.2022 15:36
Með kynferðislegar myndir af börnum í tölvu og síma Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa, um nokkurt skeið fram til fimmtudagsins 18. júlí 2019, ítrekað skoðað myndir og myndskeið sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt á netinu eða með annarri upplýsinga- eða fjarskiptatækni. 30.11.2022 15:00
Tuttugu og tvær nauðganir tilkynntar á mánuði Alls barst lögreglu 195 tilkynningar um nauðganir á fyrstu níu mánuðum ársins og var því að jafnaði tilkynnt um 22 nauðganir á mánuði. Um er að ræða 26 prósent aukningu frá því í fyrra. Blygðunarsemisbrotum og kynferðisbrotum gagnvart börnum fækkar á sama tíma. 30.11.2022 14:11
Skoða að færa Rokksafnið úr Hljómahöllinni Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ skoða nú hvort færa eigi bókasafn bæjarins í aðstöðu Rokksafnsins í Hljómahöllinni. Hugmyndin er liður í því að Hljómahöll verði menningarhús Reykjanesbæjar til framtíðar. 30.11.2022 13:49
Rétturinn til að gleymast ekki algildur Persónuvernd er sammála niðurstöðu Google LLC um að hagsmunir almennings vegi þyngra en einkalífshagsmunir þjóðþekkts einstaklings í máli þar sem viðkomandi reyndi að fá frétt um meint einelti afmáð af leitarvélum tæknirisans. Forstjóri Persónuverndar segir að á hverju ári leiti til Persónuverndar einstaklingar sem hafa fengið synjun frá Google. 30.11.2022 13:06
„Farið ofan í vasa fólks sem stendur veikt fyrir“ Það er á ábyrgð stjórnvalda að koma í veg fyrir að kostnaðurinn vegna skorts á samningi við sérgreinalækna falli á veikt fólk. Þetta segir þingmaður Samfylkingarinnar og bætir við að margfaldur kostnaður sjúklinga vegna ástandsins sé algjörlega óboðlegur. 30.11.2022 12:31
Fá ekki aftur forræði yfir dætrum sem þau beittu ofbeldi Foreldrar sem dæmdir voru fyrir ofbeldi gegn fjórum dætrum sínum og svipt forræði yfir þeim, mega ekki fá forræðið aftur. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem opinberuð var nýverið og var meðal annars litið til þess að bæði voru dæmd fyrir ofbeldi gegn dætrunum og að þrjár elstur dæturnar sögðust ekkert vilja með þau hafa. 30.11.2022 12:11
Langur dagur í Karphúsinu: „Ekki búið fyrr en þetta er búið“ Gert er ráð fyrir löngum degi í Karphúsinu en Starfsgreinasambandið mætir aftur að samningaborðinu í dag eftir maraþonfund í gær. Formaður SGS segir markmiðið enn vera að ná samningi fyrir mánaðarmót. Ríkissáttasemjari segir að tekin verði ákvörðun í dag um hvort VR verði einnig boðað á fundinn. 30.11.2022 11:52
Fjögur ár fyrir að nauðga eiginkonu sinni Karlmaður var í síðustu viku dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir brot í nánu sambandi, nauðgun, líkamsárásir, eignaspjöll og akstur undir áhrifum. Þá þarf maðurinn að greiða eiginkonu sinni tvær og hálfa milljón króna í skaðabætur. 30.11.2022 11:34
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjaramál, salan á hlutum ríkisins í Íslandsbanka og rétturinn til að gleymast á internetinu verða á meðal þess sem tekið er fyrir í hádegisfréttum Bylgjunnar. 30.11.2022 11:33
Katrín og Lilja þráspurðar um ábyrgð og mögulegt vanhæfi Bjarna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra varði miklum hluta fyrirspurnatíma á fundi með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í að svara fyrir möguleg afglöp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. 30.11.2022 11:13
Landsréttur staðfestir lögmæti smálánastarfsemi ,,Það sem við vissum allan tímann og fullyrtum var rétt. Smálán veitt af dönsku fyrirtæki heyrðu undir dönsk lög og voru lögleg allan tímann á Íslandi eins og annarsstaðar í Evrópu,“ segir Haukur Örn Birgisson lögmaður smálánafyrirtækisins eCommerce. Þann 18. nóvember síðastliðinn staðfesti Landsréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í ágúst síðastliðnum þar sem úrskurður Neytendastofu um meint ólögmæti smálána var felldur úr gildi. 30.11.2022 11:07
Ótrúlegar niðurstöður á augnabliki Ótrúlegar framfarir hafa orðið á texta- og myndgreiningarforritum síðustu misseri, að sögn sérfræðings í gervigreind. Forritin, sem mörg eru opin öllum, eru farin að geta framkallað magnaðar niðurstöður á skömmum tíma. En þau leysa þó ekki mennska listamenn af hólmi í bráð. 30.11.2022 10:01
Borgin bótaskyld eftir að nemandi brenndist í eldgostilraun Reykjavíkurborg var dæmd bótaskyld vegna líkamstjóns unglingsstúlku sem brenndist þegar samnemandi hennar helti eldfimum vökva yfir eldgostilraun í efnafræðitíma. Stúlkan er með ör eftir slysið og örorka hennar metin tíu prósent. 30.11.2022 09:07
Eldur kom upp í íbúð í Garðabæ Eldur kom upp í íbúð í Garðabæ í gær. Einn íbúi var inni í íbúðinni þegar eldurinn kom upp en hann komst út af sjálfsdáðum. 30.11.2022 08:50
Bein útsending: Katrín og Lilja mæta á fund nefndar vegna Íslandsbankasölunnar Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund í dag vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Forsætisráðherra og viðskiptaráðherrra munu þar svara spurningum nefndarmanna. 30.11.2022 08:31
Fréttir um meint einelti þekkts Íslendings hverfa ekki úr Google-leit Persónuvernd hefur úrskurðað að hagsmunir almennings af því að hafa aðgang að upplýsingum um þekktan Íslending í Google-leit vegi þyngra en réttur umrædds manns til að gleymast. 30.11.2022 07:53
Ákærður fyrir að brjóta kynferðislega á konu með andlega fötlun Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðisbrot með því að hafa ítrekað haft samræði eða önnur kynferðismök við konu sem glímdi við andlega fötlun. Talið er að konan hafi hvorki getað spornað við verknaðnum vegna andlegrar fötlunar og né skilið þýðingu hans. 30.11.2022 07:00
Fjöldi umsókna um aðgerðir erlendis tvöfaldast vegna biðlista Sjúkratryggingar Íslands gera ráð fyrir því að um það bil 328 muni sækja um það á þessu ári að fara erlendis í aðgerðir. Um er að ræða tvöföldun á milli ára en í fyrra bárust stofnuninni 164 slíkar umsóknir. 30.11.2022 06:27