Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útlit fyrir áframhaldandi umhleypinga Reikna má með hvassri sunnanátt eða stormi á austanverðu landinu, hlýindi og rigning suðaustanlands framan af morgni, en lægir síðan, léttir til og kólnar. Annars vestlæg átt með éljum og hita nærri frostmarki. 20.3.2022 07:28
Ók yfir hraðahindrun og endaði í garði Ökumaður sem grunaður er um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna var handtekinn í Hafnarfirði í gærkvöldi. Ökuferð mannsinns endaði í húsagarði eftir eftirför lögreglu. 20.3.2022 07:18
Hildur nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni Lokatölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar voru kynntar á þriðja tímanum í nótt. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi mun leiða listann í kosningunum. 20.3.2022 02:35
Engin ákvörðun tekin um stöðu hvítrússneska ólígarksins Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort hvítrússneski ólígarkinn verði áfram á skrá yfir kjörræðismenn Íslands. Þetta segir utanríkisráðherra sem eftir helgi verður boðaður á fund með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna málsins. 19.3.2022 21:30
Sjálfboðaliðar hafi lyft grettistaki við mótttöku flóttamanna Hátt í þrjúhundruð sjálfboðaliðar halda utan um mötuneyti, hópferðabíla, barnapössun og fleira fyrir flóttafólk frá Úkraínu. Talsmaður hópsins segir ótrúlegt að sjá kraftinn í hópnum meðan Útlendingastofnun dragi lappirnar varðandi ýmsa grunnþjónustu. 19.3.2022 19:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttatíma okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö förum við yfir ástandið í Úkraínu en nú eru um 300 þúsund manns innlyksa í Maríupól á meðan rússneskir hermenn sprengja sjúkrahús, kirkjur og íbúðahús þar. 19.3.2022 18:00
Hildur nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni Lokatölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar voru kynntar á þriðja tímanum í nótt. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi mun leiða listann í kosningunum. 19.3.2022 17:47
Íslensk garðyrkja er á mikilli siglingu Garðyrkjubændur bera sig vel enda hefur staða garðyrkjunnar sjaldan eða aldrei verið eins góð og í dag. Mikið hefur verið byggt af nýjum gróðurhúsum og útflutningur á íslenskum grænmeti er alltaf að verða meiri og meiri. 19.3.2022 14:01
„Vonandi ber rússnesku þjóðinni gæfa til að losa sig við illmennin í Kreml“ Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagðist í yfirlitsræðu hans á flokksþingi Framsóknarþingsins í dag, vona að rússnesku þjóðinni bæri sú gæfa að losa sig við illmennin í Kreml, líkt og hann orðaði það, sem stjórnuðu Rússlandi. 19.3.2022 13:46
Segir utanríkisstefnu Íslands notaða til að skýla auðkýfingum frá efnahagsþvingunum Þingmaður Pírata segir að svo virðist sem utanríkisstefna Íslands hafi verið notuð til þess að skýla hvítrússneskum auðkýfingum frá mikilvægum efnahagsþvingunum. Þingmaðurinn hefur óskað eftir opnum fundi með utanríkisráðherra í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. 19.3.2022 13:12
Björgunarsveitir kallaðar út Björgunarsveitir frá Höfn í Hornafirði og Öræfum voru kallaðar út klukkan hálf ellefu vegna slasaðrar konu í Fremri Veðurárdal austan við Breiðamerkurjökul. 19.3.2022 12:06
Eitt ár frá því að jörðin rifnaði við Fagradalsfjall Eitt ár er í dag liðið frá því að eldgosið við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga hófst. Þrátt fyrir að vera nokkuð lítið og jafnvel ræfill að sumra mati, reyndist gosið það langlífasta á 21. öldinni. 19.3.2022 10:27
Sárt að vera útskúfað af dóttur sinni Örn Svavarsson, sem lengstum hefur verið kenndur við Heilsuhúsið, fordæmir þann heilaþvott sem hann segir viðgangast í Vottum Jehóva og þá útskúfun sem tíðkast í söfnuðinum sem Örn segir grimma aðferð sem ætti ekki að líðast í nútímasamfélagi. Dóttir hans er í Vottunum og hefur lokað á öll samskipti við föður sinn. 19.3.2022 09:37
Verulega hlýtt loft á leiðinni Gul veðurviðvörun er í gildi á Norðurlandi eystra og á Austurlandi að Glettingi. Varað er við töluverðu hvassviðri og snögghlýnun síðar í dag sem getur valdið miklum leysingum. 19.3.2022 07:41
Tekinn tvisvar á 25 mínútum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti í tvígang á 25 mínútna kafla í nótt að hafa afskipti af ökumanni í Hafnarfirði. 19.3.2022 07:33
Beit mann í kinnina á veitingastað Lögregla var kölluð til á veitingastað í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan tvö í nótt þar sem kona hafði ráðist á mann og bitið hann. 19.3.2022 07:27
Segir nauðsynlegt að tala ekki aðeins um flóttafólk, heldur líka við það Biskup Íslands segir kirkjuna taka flóttafólki frá Úkraínu fagnandi. Hún segir nauðsynlegt að tala ekki aðeins um flóttafólk, heldur við það. 18.3.2022 22:16
Gerir undanþágu svo flóttafólk geti tekið gæludýr sín með til Íslands Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að veita undanþágu frá gildandi banni við innflutningi gæludýra frá Úkraínu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. 18.3.2022 21:45
Hafa mætt miklum hlýhug hér á landi eftir langt ferðalag frá Úkraínu Mæðgur sem flúðu stríðsátökin segjast hafa mætt miklum hlýhug hér á landi. Móðirin vonast til að dóttir sín komist sem fyrst í skóla og hún í vinnu en hún fari aftur heim um leið og stríðinu lýkur. 18.3.2022 21:01
Börnin og mæðurnar sem urðu eftir í Póllandi nú á leið til Íslands Þær úkraínsku konur og börn þeirra sem voru skilin eftir á flugvellinum í Varsjá, höfuðborg Póllands, í fyrrakvöld eru nú komin upp í flugvél á leið til landsins. 18.3.2022 19:52
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tapa miklu fylgi í Reykjavík Töluverðar breytingar eru á fylgi flokka fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Samfylkingin tapar töluverðu fylgi en Framsóknarflokkurinn er í mikilli sókn ásamt Pírötum. Meirihlutaflokkarnir gætu endurnýjað samstarf sitt. 18.3.2022 19:30
Segir sjaldgæft að rafræn skilríki séu misnotuð Framkvæmdastjóri Auðkennis, sem fer með þjónustu rafrænna skilríkja hér á landi, segir enga ástæðu til að óttast misnotkun á rafrænum skilríkjum í auðgunarskyni. Slík svik séu nokkuð erfið í framkvæmd og fátíðari en annars konar fjármálasvik. 18.3.2022 18:15
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Margt bendir til að Rússar séu byrjaðir að örvænta í innrás sinni í Úkraínu og að þeir séu að undirbúa notkun efnavopna með ásökunum um að slík vopn sé að finna í Úkraínu. Fyrrverandi utanríkisráðherra Rússlands segir Úkraínumenn nú þegar í gagnsókn á sumum stöðum og að Pútín eigi ekki möguleika á að vinna stríðið. 18.3.2022 18:01
Helga Guðmundsdóttir er látin 104 ára Helga Guðmundsdóttir, heiðursborgari Bolungarvíkur og næstelsta kona landsins, er látin 104 ára gömul. Helga lést í nótt á Hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Greint er frá andlátinu á vef Bolungarvíkur. 18.3.2022 16:09
Ásatrúarfólki misboðið vegna samanburðar lögmanns við Zuista Ásatrúarfélagið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málflutnings Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns Einars Ágústssonar. Félagið segist halda úti menningarstarfsemi allan ársins hring en ekki koma einstaka sinnum saman til að drekka bjór eins og Jón hafi haldið fram. 18.3.2022 14:10
Löng bílaröð eftir slys á Holtavörðuheiði Umferð um Holtavörðuheiði var lokað á tíunda tímanum í morgun vegna umferðarslyss. Enn er lokað fyrir umferð nú tveimur klukkustundum síðar en reiknað er með að takist að opna fyrir umferð á allra næstu mínútum. 18.3.2022 12:16
Stjórnvöld sögð vernda einn áhrifamesta auðjöfur Hvíta-Rússlands Íslensk stjórnvöld eru sögð hafa beitt sér ítrekað fyrir því að einn áhrifamesti ólígarki í Hvíta-Rússlandi og kjörræðismaður Íslands þar, sæti ekki refisaðgerðum af hálfu Evrópusambandsins. Ástæðan sé að hann kaupi íslenskan fisk fyrir milljarða, aðgerðir þýddu umtalsvert tap hér. 18.3.2022 12:03
Stúdent lagði Vörð í deilu um bótaupphæð Stúdent sem lenti í bílslysi árið 2018 og átti bara eftir að skila BS-ritgerð til að klára háskólanámið, lagði tryggingafélagið Vörð í héraðsdómi í vikunni. Stúdentinn fór fram á að bætur, sem henni voru greiddar, miðuðust við meðallaun viðskiptafræðinga sem hann var við það að verða. 18.3.2022 11:59
Voru að störfum fram á nótt við að hjálpa ökumönnum á Reykjanesi Björgunarsveitir voru kallaðar út rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi vegna tilkynninga um ökumenn í vandræðum á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi en veður versnaði þar skyndilega upp úr miðnætti þegar fór að hvessa með talsverðri úrkomu. 18.3.2022 11:39
Hóparnir sem ráða miklu um næsta forsetaval Alþýðusambandsins Formaður VR segir tíma til kominn að nýr forseti taki við Alþýðusambandinu (ASÍ). Það hvort VR vilji segja sig úr sambandinu ræðst meðal annars af því hvernig stjórn þess teiknast upp á næsta þingi ASÍ í október. 18.3.2022 11:26
Ísland fellur í þriðja sætið á hamingjulistanum Ísland fellur niður í þriðja sætið, úr öðru sætinu, á árlegum lista World Happiness Report þar til tilraun er gerð til að mæla hamingju þjóða. Finnar skipa sem fyrr efsta sæti listans, fimmta árið í röð. 18.3.2022 11:12
Fær 1,3 milljónir í bætur vegna uppsagnar eftir tilkynningu um óléttu Leikskóla í Reykjavík hefur verið gert að greiða leikskólakennara, sem var rekinn átján dögum eftir að hann hóf störf á skólanum, tæpar 1,3 milljónir króna í bætur vegna uppsagnarinnar. 18.3.2022 10:43
Grunnskólakennarar samþykktu nýjan kjarasamning Félagar í Félagi grunnskólakennara hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Um 62 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu samninginn. 18.3.2022 10:31
Rússneska sendiráðið gagnrýnir íslenska fjölmiðla vegna umfjöllunar um Úkraínu Sendiráð Rússlands á Íslandi hefur birt færslu á Facebook þar sem vísað er til þess að íslenskir miðlar hafi fjallað um að Facebook hafi fjarlægt færslur þar sem sendiráðið hélt því fram að Rússar hefðu ekki ráðist á fæðingar- og barnaspítala í Maríupól, heldur hefði verið um að ræða sviðsetningu af hálfu Úkraínumanna. 18.3.2022 09:13
Laxadauða í Dýrafirði megi rekja til ýmissa utanaðkomandi þátta Dauða meira en 2.400 tonna af laxi laxeldisins Arctic Sea Farm í Dýrafirði má rekja til ýmissa utanaðkomandi þátta, þar á meðal stærðar fiskanna, krónískrar hjarta- og vöðvabólgu og lágs sjávarhita. 18.3.2022 08:34
Misnotuðu rafræn skilríki og tæmdu tugi milljóna af reikningum eldri borgara Dæmi eru um að rafræn skilríki eldri borgara hafi verið misnotuð til að tæma bankareikninga og taka lán í þeirra nafni. Skúli Sveinsson lögmaður hefur komið að tveimur slíkum málum á stuttum tíma og segir þau vekja upp spurningar um notkunargildi rafrænna skilríkja. 18.3.2022 08:00
Nefbrotinn eftir líkamsárás í miðbænum Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að maður óskaði eftir aðstoð eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. 18.3.2022 07:45
Líkti Zuism við Ásatrúarfélagið og sagði að gæta þurfi jafnræðis Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir, stofnendur trúfélagsins Zuism, þvertaka fyrir að hafa beitt stjórnvöld blekkingum og stundað stórfelld fjársvik. Þeir hafi allan tímann rekið trúfélagið í góðri trú og viljað láta gott af sér leiða með starfseminni. 18.3.2022 07:00
Kynna lista Framsóknar í Suðurnesjabæ Framboðslisti Framsóknar í Suðurnesjabæ var samþykktur á félagsfundi í kvöld. 17.3.2022 23:17
Ólafur Þór leiðir VG í Kópavogi Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og fyrrverandi Alþingismaður, mun leiða lista Vinstri Grænna í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í vor. 17.3.2022 23:10
Flensan farin á flug Inflúensan hefur látið á sér kræla undanfarið og er farin að greinast í auknum mæli hér á landi. Hún hefur meðal annars áhrif á starfsemi Landspítalans þar sem staðan er erfið fyrir. 17.3.2022 23:01
Nú einungis hægt að fá Parkódín án lyfseðils allt að tíu dögum frá greiningu Fólk sem er með virka Covid-19 sýkingu og hyggst kaupa Parkódín án lyfseðils þarf að framvísa staðfestingu á sýkingu úr Heilsuveru. Samkvæmt nýjum reglum sem kynntar voru í dag má vottorðið ekki vera eldra en tíu daga gamalt. 17.3.2022 22:30
Óttast hvað maðurinn gerir næst og gagnrýnir viðbrögð lögreglu: „Þetta snýst um öryggi kvenna“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið nokkrar tilkynningar vegna grunsamlegs sendibíls í miðbænum en mikil umræða hefur skapast undanfarið á samfélagsmiðlum þar sem ökumaðurinn er sagður hafa reynt að lokka konur upp í bílinn. Ein kona sem hefur tilkynnt manninn óttast hvað hann gerir næst og gagnrýnir harðlega viðbrögð lögreglunnar hingað til. 17.3.2022 21:00
Beyglaði svanurinn lifir tiltölulega eðlilegu lífi Bæklaður svanur hefur vanið komur sínar í tjörnina í Reykjavík. Við kíktum á svaninn, sem margir hafa áhyggjur af, og veltum upp hvað sé að honum með fuglafræðingi. 17.3.2022 21:00
Fær rétt á bílastæði í Þingholtunum eftir baráttu fyrir dómstólum Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í dag eignarrétt eiganda íbúðar að bílastæði við íbúðarhús hans í Þingholtunum í Reykjavík. Ágreiningur í málinu sneri að því hvort umrætt bílastæði væri sameign allra eigenda íbúða í húsinu eða hvort hún fylgdi íbúð mannsins. 17.3.2022 20:48