Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Börnum verður ekki boðin bólusetning Heilbrigðisráðherra hefur staðfest og birt reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna kórónuveirunnar. Horft var til leiðbeininga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, en sóttvarnalæknir mun hafa sveigjanleika til að gera breytingar. Börnum verður ekki boðin bólusetning. 28.11.2020 12:55
Kvenfélagskonur nýttu nóttina í að baka Hópur kvenfélagskvenna stendur nú fyrir áheitabakstri eftir að hafa fengið grænt ljós hjá almannavörnum og heilbrigðiseftirlitinu. Bakað er í deilieldhúsinu Eldstæðið í Kópavogi, sem er fullvottað eldhús. Baksturinn hófst klukkan 18:00 í gær og stendur til klukkan 18.:00 í dag. Í takt við tíðarfarið munu Kvenfélagskonur víða um land taka þátt með fjarbakstri heimavið. 28.11.2020 12:19
Átta fermetra svalahurð „ætlaði inn í stofu“ í rokinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti 117 sjúkraflutningum síðasta sólarhringinn. Þar af voru 28 forgangsflutningar og sex svokallaðir covid-flutningar. Þá sinnti slökkviliðið fremur óhefðbundnu verkefni í óveðrinu fyrr í vikunni vegna átta fermetra stórrar svalahurðar sem var til vandræða. 28.11.2020 11:54
Eitt boð ber tölurnar uppi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að stóran hluta dreifingar Covid-19 sem greinst hefur að undanförnu megi rekja til eins fjölskylduboðs. Hann segir tölurnar í dag svipaðar og í gær en þó hafi fleiri verið í sóttkví við greiningu. Það gæti verið til marks um línulegan vöxt. 28.11.2020 11:45
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Tuttugu og einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var um helmingur í sóttkví. Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um þróun faraldursins hér á landi en hann segist hafa miklar áhyggjur af ástandinu. 28.11.2020 11:31
Vísbendingar um smit í samfélaginu sem ekki er búið að finna Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að þar á bæ hafi menn miklar áhyggjur af stöðunni vegna faraldurs Covid-19 hér á landi. Sérstaklega af því hve margir eru að greinast smitaðir utan sóttkvíar. 28.11.2020 11:10
21 greindist með Covid-19 innanlands í gær 21 greindist með covid-19 innanlands í gær. Þá greindust tveir með virkt smit við skimun á landamærum. Af þeim sem greindust innanlands var yfir helmingur í sóttkví eða 13 af 21. Alls eru nú 193 í einangrun með covid-19 hér á landi og 618 eru í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. 28.11.2020 11:00
Einn smitaður og tuttugu í sóttkví á Vestfjörðum Einstaklingur frá Vestfjörðum sem ferðaðist til höfuðborgarsvæðisins í síðustu viku hefur reynst smitaður af Covid-19. Sá fór aftur heim og eru nú tuttugu komnir í sóttkví vegna málsins. Flestir þeirra á norðanverðum Vestfjörðum en sex sunnan Dýrafjarðarganga. 28.11.2020 10:02
Umhleypingar í kortunum Draga mun í dag úr þeirri suðvestanátt sem hefur ráðið ríkjum á Íslandi undanfarna sólarhringa og er von á norðlægri átt á morgun. Áfram verður éljagangur á sunnan- og vestanverðu landinu og hiti í kringum frostmark. 28.11.2020 08:37
Furðulegt að flakið af Goðafossi finnist ekki Í grænum bragga í Garðinum reynir Ásgeir Hjálmarsson skipstjóri að varpa ljósi á það hvar Goðafossi, skipi Eimskipafélagsins, var sökkt í síðari heimsstyrjöld. Hann sýnir líkan af Goðafossi og húsum í Garðinum, sem hann er búinn að smíða, til að fá sem nákvæmasta staðsetningu á atburði, sem reyndist mesti mannskaði Íslendinga í stríðinu. 28.11.2020 08:26
Þriðjungur greindra smita í þriðju bylgju tengist þremur hópsýkingum Um 2.900 manns hafa greinst smitaðir í þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins. Þriðjung smitanna má rekja til þriggja stórra hópsýkinga á höfuðborgarsvæðinu. 28.11.2020 07:00
Katrín og Píratar í hár saman: „Mér er eiginlega algerlega misboðið“ Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra stóð ekki á sama þegar þingmenn Pírata ræddu ummæli hennar um mögulegar heimildir til handa ríkissáttasemjara til að fresta verkföllum í umræðum um atkvæðagreiðslu á þinginu í kvöld. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði þessa hugmynd Katrínar aðför að verkfallsrétti vinnandi fólks. 27.11.2020 23:41
„Fullt af veiru þarna úti“ og mörg smit órakin Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir stöðuna núna líklegast tengjast samkomum síðustu helgar. Fólk sé byrjað að slaka á í ljósi jákvæðra frétta af bóluefnaþróun og reyni að halda í jólahefðirnar, þrátt fyrir að það sé ekki ráðlegt. 27.11.2020 23:00
Eldur kom upp í flutningaskipi milli Færeyja og Íslands Varðskipið Þór var sent til móts við flutningaskip eftir að eldur kom upp á áttunda tímanum í kvöld. Skipið var á leið með laxeldisfóður frá Bretlandseyjum til Þingeyrar og var miðja vegu milli Færeyja og Íslands. 27.11.2020 22:33
Bráðalæknar á nýrri samskiptamiðstöð „í beinni“ við heilbrigðisstarfsfólk út á landi Landspítalinn hefur sett á fót samskiptamiðstöð fjarheilbrigðisþjónustu til að bregðast við því að björgunarflug Landhelgisgæslunnar verður ekki tiltækt um helgina. Læknar í Reykjavík geta aðstoðað heilbrigðisstarfsfólk úti á landi ef bráðatilfelli koma upp. 27.11.2020 21:58
Alþingi samþykkti lög á verkfall flugvirkja Frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra til laga um kjaramál flugvirkja Landhelgisgæslunnar var samþykkt rétt í þessu. Með lögunum er lagt bann við vinnustöðvun flugvirkjanna. 27.11.2020 20:47
Fimm ára heimasæta á Hurðarbaki veit allt um rúning Rúningur stendur nú yfir víða hjá sauðfjárbændum landsins. Bóndinn á bænum Hurðarbaki í Flóa er um eina mínútu að rýja hverja kind. 27.11.2020 19:51
Áhrifa verkfallsins muni gæta næstu mánuði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir vonbrigði að ekki hafi tekist að leysa kjaradeilu flugvirkja hjá stofnuninni með samningum. Hins vegar hafi verið nauðsynlegt að stöðva verkfall þeirra með lögum eins og dómsmálaráðherra ákvað að gera í dag. Áhrifa verkfallsins muni engu að síður gæta fram í febrúar. 27.11.2020 19:20
„Stundum eru bara engin önnur úrræði“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir samstöðu hafa verið innan ríkisstjórnarinnar um að setja lög á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar. Það sé þó alltaf algjört neyðarúrræði að grípa til lagasetningar vegna vinnudeilna. 27.11.2020 19:09
Þórólfur búinn að greiða árgjaldið í World Class Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir tilgátur Björns Leifssonar, eiganda World Class, um að hann hafi fóbíu fyrir líkamsræktarstöðvum vera fjarri lagi. Hann hafi verið viðskiptavinur World Class í mörg ár og sé búinn að greiða árgjaldið í ár, þó hann hafi ekkert æft vegna faraldursins. 27.11.2020 18:42
Fimm fámennir hópar í forgangi í bólusetningu Tíu hópar eru í forgangi þegar kemur að bólusetningu við Covid-19 hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir því að börn fædd eftir árið 2006 verði bólusett. Af forgangshópunum tíu eru fimm fámennir hópar sem innihalda um tuttugu þúsund einstaklinga í framlínu í baráttu við sjúkdóminn. 27.11.2020 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar förum við ítarlega yfir atburðarás dagsins eftir að dómsmálaráðherra ákvað að leggja fram frumvarp til að stöðva verkfall flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni. 27.11.2020 17:52
Refsingu frestað fyrir mótmæli í flugvél Icelandair Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að fresta refsingu Jórunnar Eddu Helgadóttur og Ragnheiðar Freyju Kristínardóttur og skilorðsbinda til tveggja ára. 27.11.2020 15:12
Nagladekk spila langstærstan þátt í myndun svifryks Greining nýrrar rannsóknar bendir til þess að nagladekkjanotkun spili langstærstan þátt í myndun svifryks frá umferð á höfuðborgarsvæðinu en aðrir áhrifaþættir eru vegyfirborð, umferðarmagn, hraði og þjónusta; söltun og skolun. Ein af niðurstöðum rannsóknarinnar er að draga þurfi verulega úr nagladekkjanotkun. 27.11.2020 15:01
„Þetta lítur bara ekki vel út, því miður“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist hafa miklar áhyggjur af stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi í dag. Hún reiknar með að helgin fari í að ákveða hvort einhverjar breytingar verði gerðar á sóttvarnaraðgerðum þann 2. desember. 27.11.2020 13:51
Ekki talið að andlát ungbarns hafi borið að með saknæmum hætti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma því á framfæri að andlát ungbarns í haust, sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum í vikunni, bar ekki að með saknæmum hætti. 27.11.2020 13:42
Uppfletting landamæravarðar í LÖKE fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur veitt landamæraverði áfrýjunarleyfi sem dæmdur var fyrir að brot í opinberu starfi. Þetta kemur fram á vef Hæstaréttar en rétturinn tekur fyrir minnihluta þeirra mála sem dæmd hafa verið í Landsrétti. Þá helst ef málin hafa fordæmisgildi. 27.11.2020 13:00
Segja ríkið ætla sér það eitt að rjúfa tenginguna Stjórn Flugvirkjafélags Ísland segir ljóst að það eina sem vaki fyrir íslenska ríkinu sé að slíta tengingu samnings flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni vi. Formaður félagsins telur litlar líkur á því að samninganefndir flugvirkja og ríkisins nái saman fyrir 4. janúar. 27.11.2020 12:51
Hefur áhyggjur af veldisvexti og skilar hugsanlega nýjum tillögum til ráðherra Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur miklar áhyggjur af þróun kórónuveirufaraldursins og þeim fjölda sem greinst hefur með veiruna innanlands undanfarna daga. Tuttugu greindust í gær og voru ellefu utan sóttkvíar. Ellefu greindust innanlands í fyrradag og voru átta af þeim ekki í sóttkví. 27.11.2020 11:40
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu dómsmálaráðherra að setja lög á verkfallsaðgerðir flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni. Við ræðum við dómsmálaráðherra í hádegisfréttum okkar á slaginu tólf. 27.11.2020 11:31
Setja lög á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um lög til að binda enda á verkfall flugvirkja hjá Landhelgisgæslu Íslands. 27.11.2020 11:09
Bein útsending: Fjallað um líðan ungmenna á tímum Covid-19 Bein útsending frá hádegisfyrirlestri Háskólans í Reykjavík þar sem Þórhiildur Halldórsdóttir, lektir við sálfræðideild skólans, segir frá rannsókn um áhrif faraldursins á líðan ungmenna. 27.11.2020 11:00
Tuttugu greindust innanlands og af þeim voru ellefu ekki í sóttkví Tuttugu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa jafnmörg smit greinst á einum sólarhring innanlands síðan 10. nóvember. Af þeim tuttugu sem greindust voru níu í sóttkví, en ellefu ekki. 27.11.2020 11:00
Þingmenn fengu körfu hlaðna kræsingum frá Landbúnaðarklasanum „Glæsilegar körfur frá Landbúnaðarklasanum biðu þingflokkanna í dag, fullar af spennandi vörum frá frumkvöðlum unnar úr íslensku hráefni,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Miðflokksins – harla ánægður. 27.11.2020 10:36
Kári segir 20 hafa greinst í gær en nýr stofn sé ekki sjáanlegur Tuttugu greindust með kórónuveiruna í gær. 18 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 2 hjá Sýkla- og veirufræðideild Háskóla Íslands. Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í samtali við fréttastofu. 27.11.2020 10:09
62 nemendur og fjórtán starfsmenn í Öldutúnsskóla í sóttkví Alls eru 62 nemendur og fjórtán starfsmenn Öldutúnsskóla í Hafnarfirði í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp í skólanum. 27.11.2020 10:05
Gæslan segir flugvirkja ekki hafa mætt til vinnu sem hafi átt að mæta Landhelgisgæslan segir að viðhald á TF-GRO, þyrlu Gæslunnar, hafi gengið mun hægar en vonir voru bundnar við vegna þess að ekki hafi allir flugvirkjar, sem Gæslan telur að eigi að vera við vinnu, mætt til að sinna því. 27.11.2020 08:00
Vetrarfærð víðast hvar Vetrarfærð er víðast hvar á landinu og ófært á nokkrum fjallvegum. 27.11.2020 07:28
Sama lægðin stjórnar áfram veðrinu Gular viðvaranir eru enn í gildi á suður- og vesturhelmingi landsins og verða í gildi á flestum svæðum fram á morgundaginn. 27.11.2020 07:22
Lýsti því eins og í dýralífsþætti þegar hún horfði í augun á árásarmanninum Kona sem varð fyrir hnífaárás í íbúð sinni við Langholtsveg í sumar segist viss um að hún hefði látið lífið í árásinni, sem leigjandi hennar til skamms tíma er ákærður fyrir, ef ekki hefði verið fyrir snör viðbrögð af hennar hálfu. Hún lýsir því að hún hafi vikið sér undan ítrekuðum atlögum mannsins og varðist einnig hnífsstungum með þvottakörfu. Atburðarásin hafi verið óraunveruleg og maðurinn ítrekað hótað henni lífláti. 27.11.2020 07:00
Flúði undan árásarmanni inn í blokk í Hafnarfirði Upp úr klukkan hálftvö í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um óeðlilega hegðun í fjölbýlishúsi í Vallarhverfinu í Hafnarfirði. 27.11.2020 06:39
Flugvirkjar buðu þriggja ára samning Samninganefnd Flugvirkjafélag Íslands bauð samninganefnd ríkisins samning með tengingu við aðalkjarasamning félagsins til þriggja ára í kjaradeilu flugvirkja Landhelgisgæslunnar við íslenska ríkið, samkvæmt upplýsingum frá formanni félagsins. 26.11.2020 23:34
Eldingar fylgja éljahryðjunum Íbúar á höfuðborgarsvæðinu urðu margir hverjir varir við eldingu og þrumu á tólfta tímanum í kvöld. 26.11.2020 23:16
Réttartannlæknar saka Rósu Björk um alvarlegar rangfærslur Fjórir réttartannlæknar, sem hafa séð um aldursgreiningar flóttamanna hér á landi frá upphafi, hafa gert harðorðar athugasemdir við frumvarp Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur til breytinga á lögum um útlendinga. Telja þeir frumvarpið auðvelda fullorðnum að smeygja sér í raðir barna til að njóta réttarverndar sem ætluð er börnum. 26.11.2020 22:28
Fara þurfi varlega næstu vikur svo jólin verði ekki undirlögð samfélagssmiti Mikilvægt er að samfélagið vari varlega næstu þrjár vikurnar svo að vikan í kringum jól verði ekki undirlögð af samfélagssmitum, að því að er fram kemur í niðurlagi nýrrar rýni hóps vísindamanna sem stendur að spálíkani um þróun kórónuveirufaraldursins á Íslandi. 26.11.2020 22:00