Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ruslið hleðst upp við Frakkastíg Það er ófögur sjón sem blasir við vegfarendum sem ganga niður Frakkastíginn neðan við Hverfisgötu í Reykjavík. Þar er autt svæði sem ber merki mikils hirðuleysis. 10.7.2012 10:30
Minna þarf að pissa um nætur Staðfest er að náttúruvaran SagaPro sem unnin er úr íslenskri ætihvönn virki vel við næturþvaglátum. Klínísk rannsókn sem gerð var á vörunni og birt í virtu læknatímariti sýnir fram á að varan eykur blöðrurýmd og dregur úr tíðni næturþvagláta. SagaMedica framleiðir vöruna. 10.7.2012 10:00
Magn frjókorna í lofti birt daglega Á vef Náttúrufræðistofnunar má nú nálgast upplýsingar um magn frjókorna í lofti á hverjum virkum degi. Birtar eru tölur frá mælingastöð í Urriðaholti í Garðabæ. 10.7.2012 09:30
Í fyrra entust kjötbirgðirnar fram í janúar Hrafnreyður ehf. hefur uppi áform um að auka enn frekar hrefnuveiðar. Í fyrra voru veiddar um fimmtíu hrefnur en að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar framkvæmdastjóra er stefnt að því að veiða um áttatíu dýr í ár. Markmiðið er að neytendum standi hrefnukjöt til boða allan ársins hring. 10.7.2012 09:00
Ógerilsneyddir ostar leyfðir Leyfilegt er nú að flytja til landsins osta úr ógerilsneyddri mjólk. Samkvæmt nýrri reglugerð sem tók gildi í maímánuði er hverjum ferðalangi nú leyfilegt að flytja til landsins allt að einu kílói af ostum unnum úr ógerilsneyddri mjólk til einkanota. Landbúnaðarráðherra getur heimilað innflutning á meira magni, en aðeins til einkaneyslu. 10.7.2012 08:30
Ferðamenn fyrirferðarmiklir í símkerfunum Sú mikla aukning á fjölda ferðamanna sem orðið hefur hér á landi síðustu tvö ár hefur áhrif víðar í hagkerfinu en hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Eitt dæmi um áhrifin er fjölgun á notendum símkerfa símafyrirtækjanna yfir sumarmánuðina. 10.7.2012 08:00
Mál laumufarþega sagt mjög alvarlegt Isavia mun yfirfara öryggiseftirlit sitt með starfsemi á Keflavíkurflugvelli eftir að tveir menn komust inn á flughlað og upp í vél Icelandair aðfaranótt sunnudags. Í tilkynningu frá Isavia segir að atvikið sé litið mjög alvarlegum augum. 10.7.2012 07:30
Bann við vörubílum í þjóðgarði gagnrýnt Sveitarfélög fyrir austan fjall eru ósátt við nýjar takmarkanir á vöruflutningum um þjóðgarðinn á Þingvöllum. 10.7.2012 07:00
Strandveiðar stöðvaðar Strandveiðar verða stöðvaðar á svæði A frá og með deginum í dag. Um er að ræða landið vestanvert og vestfjarðakjálkann, frá Snæfellsnesi til Súðavíkur. 10.7.2012 06:00
Grunuðum nauðgara sleppt Manninum sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á Bestu útihátíðinni hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi fer með málið. 10.7.2012 05:30
Afnám orlofs húsmæðra rætt Samband íslenskra sveitarfélaga boðar til fundar í næsta mánuði til að ræða kosti þess og galla að afnema lög um húsmæðraorlof. 10.7.2012 05:00
Eignarhald veiðijarða flyst úr héraði Byggðaráð Borgarbyggðar hyggst láta kanna umfang og samfélagsleg áhrif stangveiða í sveitarfélaginu. Efnahagslegt virði laxveiðanna í Borgarbyggð er áætlað 3,2 milljarðar króna. Er þar tekið tillit til beinna, óbeinna og afleiddra áhrifa. 10.7.2012 05:00
Undirrita Landslagssamning Evrópu Ísland hefur undirritað Landslagssamning Evrópu, en fullgilding þess samnings er á meðal markmiða í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 2009. Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra í Frakklandi, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd. 10.7.2012 04:30
Vill beita hrossum gegn sinu Slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar segir hrossabeit eitt besta ráðið til að sporna gegn hættu á gróðureldum. 9.7.2012 22:45
Þyrla sækir slasaða í annað skiptið á nokkrum klukkustundum Önnur beiðni um útkall barst Landhelgisgæslunni um klukkan hálf átta í kvöld þegar þyrlan var að lenda við Landspítalann eftir bráðaflutning á Hólmavík. Þannig varð tveggja bíla árekstur um klukkan fimm í dag fyrir botni Steingrímsfjarðar á Vestfjörðum. Þá var að minnsta kosti einn talinn slasaður. 9.7.2012 20:53
Enginn ráðherrakapall fyrir kosningar - búist við að Katrín snúi aftur Ekki verður frekari færsla á ráðherraembættum milli stjórnarflokkanna fyrir kosningar. Þingmenn Samfylkingarinnar gera ráð fyrir að Katrín Júlíusdóttir snúi til baka í ríkisstjórn eftir leyfi og verði fjármálaráðherra. Núverandi ráðherra hefur sjálf sagt að hún sé aðeins að halda stólnum heitum fyrir Katrínu. 9.7.2012 20:00
Gert ráð fyrir 1500 íbúðum á yfirgefnum iðnaðarlóðum Borgin gerir ráð fyrir hátt í fimmtánhundruð íbúðum á yfirgefnum iðnaðarlóðum í nýju aðalskipulagi sem nú er á lokametrunum. Varaformaður skipulagsráðs segir ekki bara hægt að bjóða upp á einbýlishúsalóðir fyrir efnaða íbúa. 9.7.2012 19:30
Sveddi tönn var með falsað vegabréf og íslenskt sælgæti "Við lögðum út net og náðum hákarli,“ segir yfirmaður hjá lögreglunni í Rio De Janeiro í Brasilíu um handtöku Sverris Þórs Gunnarssonar þar í landi. Sverri framvísaði fimm daga gömlu vegabréfi, útgefnu á Íslandi, þegar hann var handtekinn. 9.7.2012 19:00
Réðust inn á heimili og héldu manni nauðugum í sex klukkustundir Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, grunaðir um að hafa brotist inn á heimili manns í Reykjavík og haldið honum nauðugum í sex klukkustundir. Þá eru þeir grunaðir um að hafa neytt manninn til að millifæra á reikninga sína verulegar fjárhæðir. 9.7.2012 18:30
Leiðréttu leiðréttinguna - Sigmundur segir ætihvönnina virka "Þetta kom okkur á óvart, við fengum ágætiskynningu á Saga Pro á fimmtudagskvöldinu á RÚV,“ segir Sigmundur Guðbjarnason, fyrrverandi háskólarektor, sem stendur fyrir rannsóknum á Íslenska náttúrulyfinu SagaPro, sem er framleitt úr ætihvönn, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag. 9.7.2012 17:43
Öryggiseftirlit tekið í gegn eftir að laumufarþegar fundust í flugvél Öryggiseftirlit með starfssemi á Keflavíkurflugvelli verður yfirfarið í kjölfar þess að tveir hælisleitendur komust inn á öryggissvæðið og fundust um borð í vél Icelandair um helgina. 9.7.2012 17:00
Réðst inn til manns og neyddi hann til að taka pening úr banka Karlmaður var handtekinn fyrir helgi, grunaður um að hafa sparkað upp hurð í íbúð í Reykjavík á fimmtudaginn, ógnað manni hamri og neytt hann út út íbúð og í banka þar sem hann hafi átt að taka út peninga. Málið virðist tilkomið vegna peningaskuldar. Hinn grunaði var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11. júlí á föstudag og staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð í dag. 9.7.2012 16:50
Óvíst hvort Besta útihátíðin verður aftur Aðstandendur Bestu útihátíðarinnar eru ekki búnir að finna nýtt nafn á útihátíðina. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að hátíðin mætti ekki nefnast "Besta útihátíðin" þar sem ekki væru neinar sannanir fyrir því að hátíðin væri raunverulega best. 9.7.2012 16:38
Drullumölluðu Perluna, eldfjöll, fánann og margt fleira Hin árvissa drullukökukeppni fór fram í skólagörðum Hafnarfjarðar á föstudaginn var. Gríðarleg samkeppni var á fjórum stöðum í bænum þegar börn á aldrinum 6 - 10 ára kepptust um að drullumalla hin ýmsustu form og skreyta á margvíslegan máta. Gjósandi eldfjall, íslenski fáninn, foss og margt fleira leit dagsins ljós þetta föstudagseftirmiðdegi. 9.7.2012 16:02
Þrjátíu prósent fiskveiðistofna ofveidd Um 30% af fiskveiðistofnum í heiminum eru ofveiddir, samkvæmt nýrri skýrslu sem Matvælaeftirlit Sameinuðu þjóðanna, eða FAO opinberaði í dag. Þetta er örlítil lægra hlutfall en á undanförnum tveimur árum. Tölurnar benda hins vegar eindregið til þess að ofveiði sé vandamál sem nauðsynlegt sé að fást við. Um 57% af fiskveiðistofnunum eru fullnýttir, samkvæmt sömu tölum. Í skýrslunni er varað við ofveiði. Hún geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir umhverfið. Hún geti einnig dregið úr framleiðslu fiskafurða sem leiði til neikvæðra félagslega og efnahagslegra afleiðinga. 9.7.2012 15:52
Hærri skráningargjöld í HÍ munu ekki minnka eftirspurn Skráningargjöld Háskóla Íslands hækka frá og með þessu ári um 15 þúsund krónur, úr 45 þúsundum í 60 þúsund. Það er fyrsta hækkunin á skráningargjaldinu í átta ár. Hækkunin er tímabær að mati Kristínar Ingólfsdóttur, rektors. 9.7.2012 15:42
Með tugi hesta í tamningu "Ég er búin að fá fín viðbrögð, miklu betri en ég bjóst við,“ segir Ragnheiður Ósk Guðmundsdóttir, hestakona í Hrunamannahreppi. Hún var með hest í sinni eigu, Draupni frá Langholtskoti, og Má frá Þjóðólfshaga, sem er í eigu vinkonu hennar, í haga á dögunum þegar hún náði meðfylgjandi mynd. 9.7.2012 14:59
Rán framið í 10-11 Rán var framið í verslun 10-11 í Hjallabrekku í Kópavogi um hálfsjö í gærkvöld. Starfsmenn verslunarinnar mun ekki hafa sakað. Lögreglan rannsakar málið en frekari upplýsingar hafa ekki fengist. 9.7.2012 14:11
Nauðgunarkæra: Sá grunaði laus úr haldi Manninum sem grunaður er um nauðgun á Bestu útihátíðinni hefur verið sleppt úr haldi. Lögreglan rannsakar málið og skýrslur hafa verið teknar af málsaðilum og vitnum. 9.7.2012 12:23
Björn gegnir formennsku í Snorrastofu Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, hefur tekið við stöðu formanns stjórnar Snorrastofu, menningar- og miðaldaseturs í Reykholti. Tekur hann við af Jóni Ólafssyni, aðstoðarrektor við Háskólann á Bifröst, sem gegndi stöðunni í sex ár. Sæti í stjórn Snorrastofu eiga fulltrúar mennta- og menningarmálaráðuneytisins og sveitarfélaga í Borgarfirði, en samkvæmt skipulagsskrá er formaður stjórnar fulltrúi Reykholtskirkju, sem kosinn er á aðalfundi safnaðarins. 9.7.2012 14:18
Björgunarsveit sótti mann sem leiddist Björgunarsveit var ræst út á Skutulsfjörð á Vestfjörðum um helgina vegna manns sem var þar á reki á gúmmíbát. Bjötrgunarsveitamenn fóru á bát og sóttu manninn og bátinn og fluttu hann til hafnar. Maðurinn skýrði hegðun sína þannig að honum hafði leiðst og ætlaði að láta bátinn reka út í Hnífsdal, þangað sem ferðinni var heitið. 9.7.2012 13:42
Illan þef leggur langar leiðir Sumarhúsaeigendur í Bláskógabyggð eru orðnir langþreyttir á að keyra illa þefjandi heimilissorp marga tugi kílómetra þar sem sveitarfélagið hefur ekki sett niður gáma á svæðinu líkt og því ber skylda til. Kærunefnd um hollustu og mengunarvarnir úrskurðaði í júní 2010 að sumarhúsaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi og Bláskógabyggð 9.7.2012 12:17
Með hjartastuðtæki og stungulyf á gistiheimili Par sem hafði dvalið á gistiheimili á Ísafirði á föstudaginn yfirgaf heimilið án þess að greiða fyrir gistinguna. Parið náðist á flugvellinum, þar sem það var að yfirgefa bæinn, en þegar þau voru spurð út í athæfi sitt vísuðu þau á ferðaþjónustuaðila sem ætti að borga brúsann fyrir þau. Þegar verið var að taka til í herberginu eftir þau fannst þar poki með alls kyns læknavörum í s.s. stungulyf, hjartastuðtæki og fleira. Lögreglan á Vestfjörðum biður þann sem kannast við að eiga þennan varning að hafa samband. 9.7.2012 12:04
Strandveiðar að stöðvast á tveimur svæðum Strandveiðar verða stöðvaðar á svæði A frá og með morgundeginum. Um er að ræða landið vestanvert og vestfjarðakjálkann, frá Snæfellsnesi til Súðavíkur. 9.7.2012 11:35
Björk fær afar misjafna dóma eftir Hróarskelduhátíðina Söngkonan Björk Guðmundsdóttir fær afar misjafna dóma fyrir frammistöðu sína á nýliðinni Hróarskelduhátíð. hún hélt lokatónleika hátíðarinnar á aðalsviðinu í gær. Gagnrýnandi Berlingske Tidende, Jan Eriksen, gefur Björk eina stjörnu og segir að lagavalið hjá Björk hafi ekki hentað í gær. 9.7.2012 09:35
Tafir og lokanir á Kringlumýrarbraut Þeir sem þurfa að komast leiðar sinnar akandi til eða frá miðborginni í kvöld ættu að velja Sæbrautina og/eða Reykjanesbraut til að keyra. Frá klukkan níu í kvöld verða mikla framkvæmdir og lokanir á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Unnið verður að fræsingu fram eftir nóttu í kvöld og annað kvöld. 9.7.2012 11:50
Loftborin íþróttahöll risin í Hveragerði Harmarshöllin var blásin upp í Hveragerði á laugardaginn. Til stóð að reisa höllina á laugardagsmorguninn. Þá var hins vegar of mikill vindur til verksins. Hins vegar lygndi rétt fyrir miðnætti á laugardaginn og þá var strax tekin ákvörðun um að blása höllina upp. 9.7.2012 09:56
Troðfullur skóli bíður húsnæðis Við vonumst til að geta hafið vorönn 2014 í nýja húsinu og það er mikil tilhlökkun bæði hjá nemendum og starfsfólki.? Þetta segir Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, um nýtt skólahús sem nú er í byggingu í miðbæ Mosfellsbæjar. 9.7.2012 07:00
Búðahnuplari gómaður með loftbyssu í buxnastrengnum Búðahnuplari var gómaður í verslunum Hagkaups í Skeifunni um miðnætti. Sá hafði stolið vörum fyrir rúmar þúsund krónur en við nánari athugun reyndist hann vera með ætluð fíkniefni í fórum sínum og loftbyssu í buxnastrengnum. Loftbyssan óhlaðin og ekki notuð við þjófnaðinn. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku. 9.7.2012 06:27
Óvissa og lítil vinna sligar Þingeyringa ?Við vitum ekkert hvað er að gerast hérna,? segir Sólveig Jónsdóttir, fiskvinnslukona hjá Vísi á Þingeyri, sem hefur verið í vinnslustoppi frá 1. júní. Hún segir að auglýst hafi verið í vinnsluhúsinu að vinna hefjist að nýju þann 3. september næstkomandi en þó sé fólk óöruggt um að sú verði raunin. Um þrjátíu manns vinna hjá fyrirtækinu á Þingeyri. 9.7.2012 05:00
Gamla flugstöðin verður rifin Stjórn Isavia hefur samþykkt að láta rífa tvær byggingar á Keflavíkurflugvelli. Gamla flugstöðin á vellinum verður rifin á næstunni, en hún stendur á verðmætri lóð þar. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að flugstöðin sé ónýt. Upp hafa komið hugmyndir um að byggja þjónustubyggingu fyrir einkaflugvélar þar sem flugstöðin stendur nú. 9.7.2012 05:00
Bændur á Bjargi ósáttir við vinnubrögð Bauhaus: Þakplöturnar hækkuðu um 150 prósent í verði Bændurnir á Bjargi í Hrunamannahreppi, þau Jónína Kristinsdóttir og Karl Jónsson, ræddu við einn starfsmann Bauhaus um kaup á 3,5 metra bárujárnsplötum þegar annar starfsmaður kom aðvífandi og hækkaði verðið á plötunum um 150 prósent. 9.7.2012 04:00
Flúði níu ára fangelsisdóm á Spáni Sverrir Þór Gunnarsson, Sveddi tönn, er með níu ára óafplánaðan fangelsisdóm á bakinu á Spáni fyrir fíkniefnasmygl. Hann lagði á flótta eftir að dómurinn féll og síðan hefur hann verið eftirlýstur af spænskum yfirvöldum. 9.7.2012 04:00
Ferðast á rafhjóli til vinnu allar árstíðir Bjarni Jakob Gíslason, íbúi í Norðlingaholti, hjólar alla daga í og úr vinnu á Háaleitisbraut í Reykjavík. Hann notast við rafmótorknúið hjól sem auðveldar honum ferðina á vetrum þegar þyngra reynist að stíga hjólið áfram. 9.7.2012 03:30
25.000 nýir borgarbúar vestan Elliðaáa Aðalskipulag Reykjavíkur gerir ráð fyrir að borgarbúum fjölgi um að minnsta kosti 25.000 á næstu 18 árum. Reisa á 14.500 íbúðir fyrir árið 2030 til að mæta þeirri fjölgun. Unnið verður að því að þétta byggð og verða þær því allar vestan Elliðaáa. 9.7.2012 02:00