Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Snjór, þrumur og eldingar í nótt Þjóðhátíðardagurinn heilsaði ökumönnum í Svínahrauni með alhvítri jörð og þrumum og eldingum um klukkan eitt í nótt. Þetta kemur frá fréttavefnum Sunnlenska.is. Fimm stiga hiti var á heiðinni í nótt og snjóaði talsvert á litlu svæði. Annars má búast við skúrum suðvestanlands í dag en bjartviðri norðanlands. Hiti verður á bilinu sex til fimmtán stig, hlýjast á suðvesturlandi. 17.6.2012 11:33
Hópslagsmál á Bíladögum Tilkynnt var um hópslagsmál í miðbæ Akureyrar í nótt en þar í bæ fer hátíðin Bíladagar fram. Að sögn lögreglu voru fimm fluttir á slysadeild eftirð hafa lent í slagsmálum í miðbænum en mikill mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan skemmtistaðina eftir lokun. Þrír menn ruddustu inn á heimili í bænum og lömdu húsráðanda. Árásin tengist deilum á milli aðila, segir lögregla en húsráðandi slapp með minniháttar áverka. 17.6.2012 10:05
Svona er dagskráin í dag Þjóðhátíðardagur Íslendinga sautjándi júní verður haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Hátíðarhöld í Reykjavík hefjast með guðsþjónustu í Dómkirkjunni núna klukkan korter yfir tíu og verður hátíðardagskrá á Austurvelli upp úr klukkan ellefu og lýkur með skrúðgöngu að kirkjugarðinum við Suðurgötu þar sem forseti borgarstjórnar mun leggja blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar. 17.6.2012 09:58
Borgarbúar verða að flokka rusl Brátt þurfa allir Reykvíkingar að flokka pappír samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar. Óheimilt verður að setja pappír í sorpílát fyrir blandað sorp. 17.6.2012 06:00
Eldur í Breiðholti Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Dalaseli í Breiðholti á fimmta tímanum í dag. Að sögn varðstjóra kviknaði í húsbúnaði á svölum einnar íbúðarinnar. Stuttan tíma tók að ráða niðurlögum eldsins sem var ekki mikill. Mikið hefur verið að gera hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í dag og hafa slökkviliðsmenn sinnt allskyns útköllum, þar á meðal vatnslekum í íbúðum. 16.6.2012 18:03
OR hefur lagt milljarða í Gagnaveituna Orkuveita Reykjavíkur hefur frá árinu 1999 lagt 13 milljarða í fjarskiptastarfsemi. Þar af hafa 4,7 milljarðar farið beint í Gagnaveitu Reykjavíkur frá stofnun hennar. RÚV greinir frá þessu. 16.6.2012 17:30
Þriðju hverri ferð seinkaði hjá WOW air Þriðju hverri ferð WOW air frá landinu seinkaði á fyrri hluta mánaðarins. Komutímar stóðust hins vegar oftar og í heildina mælist stundvísi fyrirtækisins 69 prósent á tímabilinu. Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is. Fyrsta flug WOW air fór í loftið um mánaðarmótin. 16.6.2012 17:13
Þyrlan verið kölluð út vegna sinubrunans Þyrla landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út til að aðstoða slökkviliðsmenn sem berjast við sinubruna í Ásfjalli í Áslandi í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra er töluvert mikill eldur á svæðinu en þrír slökkviliðsbílar hafa verið kallaðir út sem og sexhjól slökkviliðsins. Mikinn reyk leggur frá svæðinu og sést hann greinilega frá höfuðborgarsvæðinu. Ekki er vitað hvort hús eru í hættu. 16.6.2012 14:57
Mikill sinubruni í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú á leið á Ásfjall í Áslandi í Hafnarfirði vegna mikils sinubruna í fjallinu. Að sögn varðstjóra eru tveir slökkviliðsbílar á leiðinni, tankbíll og sexhjól. Verið er að kanna hvort að það þurfi að kalla út þyrlu til að hjálpa til við slökkvistarf. Mikinn reyk leggur frá svæðinu og sést hann greinilega frá höfuðborgarsvæðinu. 16.6.2012 14:31
Kvennahlaupið í dag Kvennahlaupið er í dag og verður hlaupið frá áttatíu stöðum hér á landi og sextán stöðum erlendis en kvennahlaupið er einn fjölmennasti íþróttaviðburður sem fram fer hér á landi ár hvert.. Í Garðabæ hefst hlaupið klukkan tvö en í Mosfellsbæ, Reykjanesbæ og á Akureyri hefst það klukkan ellefu. Upplýsingar um alla hlaupastaði má finna á sjova.is. 16.6.2012 11:46
Reiðubúnir að leggja fram tillögu um að stöðva umræðu Allt kapp var lagt á að ná samkomulagi um þinglok í gær. Þingfundi var frestað ítrekað og þegar Fréttablaðið fór í prentun stóð til að funda klukkan 22. Útkoma fundanna ræður því hvort þing klárast í dag. Ef ekki, er vilji fyrir hendi til að beita ákvæði um að ljúka umræðu með atkvæðagreiðslu. 16.6.2012 09:00
Gefa íslenskum börnum fánann Um 4.500 börn sem luku öðrum bekk grunnskóla nú í júní hafa fengið litlar fánaveifur að gjöf frá Skátahreyfingunni og Eimskip. 16.6.2012 07:00
Efla erlenda fjárfestingu á Íslandi Alþingi hefur samþykkt stefnumörkun um beina erlenda fjárfestingu, en hún var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Samkvæmt tillögunni, sem efnahags- og viðskiptaráðherra lagði fram, skal hann, ásamt iðnaðarráðherra, leggja fram tímasetta áætlun um aðgerðir til að bæta samkeppnisstöðu Íslands. 16.6.2012 06:00
Þingholtin hæst metna hverfið Hækkun fasteignamats er mjög misjafnt eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu. Nýtt fasteignamat fyrir næsta ár var kynnt á fimmtudag. 16.6.2012 05:30
Málskotsrétturinn er ykkar fólksins Ólafur Ragnar Grímsson, forseti og forsetaframbjóðandi, heimsótti Marel á dögunum ásamt Dorrit Moussaieff, eiginkonu sinni. Yfirfullt var í matsal Össurar þegar Ólafur Ragnar kynnti stefnumál sín og útskýrði sýn sína á hlutverk forsetans. 16.6.2012 05:00
Varað við meðferð elds - gróður eins og púðurgeymsla Skógurinn er eins og púðurgeymsla eftir langvarandi þurrka, segir slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, sem segir eldnotkun úti í náttúrunni sérlega hættulega um þessar mundir. Almannavarnir prófa á morgun viðbragðskerfi fyrir Skorradal vegna skógarelda. Um sjöhundruð sumarbústaðir eru í Skorradal en almannavarnir héldu í gærkvöldi fund á Hvanneyri þar 15.6.2012 21:30
Dóttir Þóru þyngst um kíló í kosningabaráttunni "Hún er fjögurra vikna í dag og það hefur gengið ótrúlega vel,“ sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi, þegar hún var spurð í Reykjavík síðdegis í dag hvernig það gengi að standa í kosningabaráttu með kornabarn í fanginu. 15.6.2012 21:00
Sneri á lesblinduna og dúxaði Sem barn taldi hún sig vera heimska og lesblindan háði henni fram á fullorðinsár. Hún var komin á sextugsaldur þegar hún lærði nýja tækni við lestur, og tók stúdentspróf. Guðríður Gyða Halldórsdóttir segir að þá fyrst hafi lífið byrjað. 15.6.2012 20:30
Þyrla Landhelgisgæslunnar leigð í kvikmyndgerð Norðurflug leigði TF-SYN í tvo daga til að ferðast með framleiðendur og tökumenn myndarinnar Oblivion á tökustaði. 15.6.2012 19:30
Ólafur Ragnar með afgerandi forystu Ólafur Ragnar Grímsson hefur tvöfalt meira fylgi en Þóra Arnórsdóttir í nýjustu skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Þóra toppaði of snemma, segir stjórnmálafræðingur. 15.6.2012 19:00
Nauðgunarmál gegn Agli Einarssyni fellt niður Ríkissaksóknari hefur fellt niður kærumál gegn Agli Einarssyni. Tæpir sjö mánuðir eru Egill var fyrst kærður fyrir nauðgun. 15.6.2012 18:20
Lögreglan kölluð út vegna háværra klósettferða Því miður gengur ekki öllum jafnvel að lifa í sátt og samlyndi við nágranna sína. Þessa dagana er lögreglan annað slagið að sinna útköllum, sem kalla má árstíðabundin. 15.6.2012 17:53
Segir það bull og vitleysu að þingmenn geti keypt sér endurkjör "Aðeins um þetta, ungir sjálfstæðismenn á Akureyri, það er ekki mánuður síðan þeir ályktuðu á allt annan hátt, þá var þeirra skoðun sú að þingmenn sem ekki styddu þetta verkefni ættu að hugsa sinn gang,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um harðorða ályktun Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) þar sem þeir gagnrýndu Kristján Þór og Tryggva Þór Herbertsson, sem báðir eru þingmenn í Norðausturkjördæmi, fyrir að hafa keypt sér endurkjör á næsta kjörtímabili, eins og það er orðað. 15.6.2012 17:37
Vilja allar virkjanahugmyndir á Hellisheiði á ís Fimm náttúruverndarsamtök hvetja til þess að allri frekari jarðvarmavinnslu á Hellisheiði verði frestað uns lausn finnst á þeim mengunarvandamálum sem virkjunum fylgja. Þetta kemur fram í ályktun frá félögunum í tilefni af þeim fregnum að Orkuveitan sjái ekki fram á að standast þau heilsuverndarmörk sem sett hafa verið fyrir árið 2014. 15.6.2012 16:43
Sumargötur í Reykjavík frá 17. júní Frá og með þjóðhátíðardeginum 17. júní taka gildi sumarlokanir á Laugavegi neðan Vatnsstígs og á Skólavörðustíg neðan Bergstaðastrætis. 15.6.2012 14:23
Tóku skóflustungu að nýjum framhaldsskóla í Mosfellsbæ Í dag var fyrsta skóflustungan að byggingu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ við Bjarkarholt tekin. Fyrsti áfangi verkefnisins gerir ráð fyrir fjögur þúsund fermetra byggingu og búist er við að 400 til 500 nemendur sæki skólann. 15.6.2012 14:46
SUS sakar Kristján og Tryggva um að kaupa sér atkvæði Samband ungra sjálfstæðismanna gagnrýnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi harðlega fyrir að hafa samþykkt gerð Vaðlaheiðarganga á þingi í gær. Í ályktuninni er þeim Kristjáni Þór Júlíussyni og Tryggva Þór Herbertssyni óskað til hamingju með að hafa keypt sér endurkjör á næsta kjörtímabili, eins og það er orðað. Ungir sjálfstæðismenn bæta því við að verðið sem þeir greiði fyrir endurkjörið, 8,7 milljarðar, komi reyndar ekki úr þeirra vösum, heldur renni það úr vösum skattgreiðenda. 15.6.2012 13:57
Ók á Leifsstöð Síðdegis í gær varð ökumanni stigabíls sem notaður er á flugstöð Leifs Eiríkssonar á að aka á flugstöðina. Lögregla var kölluð til vegna óhappsins og sagðist ökumaðurinn hafa gleymt því hve hár bíllinn var. Hann ók því undir tengibygginguna og við það rakst bíllinn upp undir. Tjón varð á ytra byrði byggingarinnar og smávægilegt tjón á lyftu stigabílsins. 15.6.2012 13:50
Verðandi biskup prédikar í kvennamessu Verðandi biskup yfir Íslandi, séra Agnes M. Sigurðardóttir mun prédika í kvennamessu sem haldin verður við Þvottalaugarnar í Laugardal á kvenréttindadaginn 19. júní næstkomandi klukkan átta. Kvennakirkjan stendur fyrir guðsþjónustunni í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. 15.6.2012 13:21
Vill rannsaka rassskellingarnar Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, vill að íþróttahreyfingin rannsaki rassskellingar meðal ungra íþróttamanna. Hún hvetur hreyfinguna ennfremur til að fordæma slíka vígslur. 15.6.2012 13:14
Kínverskar silkhænur urðu hundi að bráð Hundur í Keflavík þefaði uppi og drap í gær hænur þegar hann slapp úr pössun. Lögreglu var tilkynnt um málið en þegar hún kom á vettvang hafði hundinum tekist að drepa þrjár kínverskar silkihænur sem voru á baklóð húss í bænum. Hundurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. 15.6.2012 13:12
Fjögur skemmtiferðaskip til borgarinnar sama daginn - 8000 farþegar Ferðamönnum í Reykjavík fjölgar all hressilega á mánudaginn kemur en þá vill svo til að fjögur skemmtiferðaskip leggjast að bryggju í borginni. Um borð eru átta þúsund erlendir ferðamenn en aldrei áður hafa jafnmargir farþegar komið hingað til lands á einum og sama deginum. TVG-Zimsen sér um að þjónusta þrjú þessara skipa og segir Björn Einarsson framkvæmdastjóri ljóst að dagurinn verði mjög annasamur, enda mikið umstang að þjónusta eitt skip, hvað þá þrjú sama daginn. 15.6.2012 13:02
Þarf ekki að vera flókið að stilla til friðar „Eitt af okkar markmiðum er að svara þeirri spurningu hvernig við getum breytt hugarfari múslíma til að haga sér með þeim hætti að það gefi góða og rétta mynd af íslam.“ 15.6.2012 13:00
Rottur sjást oftar á vorin Á þessum tíma árs verða borgarbúar iðulega meira varir við rottugang en á veturna. Ómar F. Dabney, rekstrarfulltrúi hjá meindýravörnum borgarinnar segir ekkert óeðlilegt við það. 15.6.2012 12:58
Hættan á gróðureldum fer vaxandi í þurrkatíðinni Hætta á gróðureldum fer vaxandi dag frá degi vegna langvarandi þurrka. Almannavarnir kynntu í gærkvöldi fólki í Skorradal drög að viðbragðsáætlun við slíkum eldum og verða viðlíka áætlanir gerðar fyrir fleiri svæði víða um land. 15.6.2012 12:55
Eflaust skálað í kampavíni fyrir Vaðlaheiðargöngum Eflaust hafa einhverjir skálað í kampavíni í gær, segir stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf. Framundan eru samningaviðræður við lægstbjóðanda. Enn er ekki hægt að segja til um hvenær framkvæmdir hefjast. Alþingi samþykkti í gær frumvarp sem heimilar fjármálaráðherra að lána félaginu Vaðlaheiðargöng hf. 8,7 milljarða króna til gerðar ganganna. 29 þingmenn samþykktu frumvarpið, 13 voru á móti og fimm sátu hjá, þar af þrír stjórnarliðar. Félagið Vaðlaheiðargöng hf. er í eigu Vegagerðarinnar, sem fer með 51 prósents hlut, og Greiðrar leiðar sem á prósent. Kristín H. Sigurbjörnsdóttir er stjórnarformaður félagsins. Hún segir að framundan séu samningaviðræður við lægstbjóðanda, ÍAV og Marti Contractors Lts frá Sviss sem komu með sameiginlegt tilboð. " Síðan þarf að klára þessa lánasamninga gagnvart fjármálaráðuneytinu og hlutafjáraukninguna. Það er alveg hellingur af verkefnum framundan. Þetta hefur verið á bið þangað til núna og nú bara göngum við í verkefnalistann," segir Kristín. Fundir með fulltrúum ÍAV og Marti eru fyrirhugaðir eftir helgina. Kristín er sannfærð um að framkvæmdin standi undir sér, en greiða á ríkislánið til baka með tekjum af veggjöldum. "Já, miðað við okkar útreikninga þá teljum við svo vera," segir hún. Enn er óljóst hvenær framkvæmdir hefjast og þar með hvenær þeim lýkur, en þetta skýrist allt frekar í þeim viðræðum sem nú fara í gang, að sögn Kristínar. Kristín segir ánægjulegt að óvissunni um fjármögnun ganganna hafi nú verið eytt, enda hafi félagið fyrir átta mánuðum opnað fyrir útboð í þeirri trú að gögnin yrðu að veruleika. Þannig að það var skálað í kampavíni í gær, eða hvað? "Jú, örugglega hafa einhverjir gert það," segir hún. "Það er ánægjulegt að það sé komin niðurstaöa og að núna sé hægt að halda áfram vinnunni." 15.6.2012 12:00
Dæmdur fyrir kannabisræktun Tæplega þrítugur karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 15.6.2012 11:52
Fara með þyrlu að skoða tökustaði Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion eru nú á leið í þyrluflug til þess að skoða væntanlega tökustaði en tökur á henni hefjast norðan heiða á næstu dögum. Stórstjarnan Tom Cruise kom til landsins með einkaþotu fyrr í dag og dvelst nú á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu á Suðurlandsbraut. Samkvæmt heimildum mun hann síðan dvelja í glæsihýsinu Hrafnabjörgum á Vaðlaheiði ásamt fjölskyldu sinni á meðan á tökum stendur. Cruise mun fagna merkum áfanga á meðan hann dvelst hér á landi en hann verður fimmtugur þann 3. júlí næstkomandi. 15.6.2012 11:50
Bjarni segir ýmislegt óeðlilegt á Alþingi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í morgun að margt væri óvanalegt og óeðlilegt á Alþingi í dag. 15.6.2012 11:37
"Ríkisstjórnin er að fara í kosningabaráttu“ Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks VG, segir ábyrgð minnihlutans mikla þar sem hann hefði komið í veg fyrir að Alþingi gæti tekið afstöðu til mikilvægra mála á vorþingi. 15.6.2012 11:35
„Alþingi er í miklum vanda“ "Alþingi er í miklum vanda," sagði Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi í dag. Minnihlutinn á Alþingi hefði lagst gegn mikilvægum málum með málþófi og komið í veg fyrir afgreiðslu þeirra. 15.6.2012 11:12
Tom Cruise lenti á Reykjavíkurflugvelli fyrir stundu Kvikmyndastjarnan Tom Cruise lenti nú fyrir stundu í einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli. Með í för er nokkurt fylgdarlið og fóru allir um borð í bílalest og óku rakleitt á brott. Í gær bárust fregnir af því að stjarnan væri komin til landsins og væri á Hilton Reykjavík Nordica. Þær fréttir virðast ekki hafa verið á rökum reistar. 15.6.2012 10:50
Enn leitað að lottóspilaranum Vinningshafinn í lottóinu síðustu helgi er enn ófundinn. Hann fékk fimm tölur réttar á miða sem hann keypti í Leirunesti á Akureyri og vann 73 milljónir króna. 15.6.2012 10:32
Skólakrakkar fá 4500 fána fyrir þjóðhátíðardaginn Skátahreyfingin og Eimskip hafa dreift litlum íslenskum handfánum ásamt bæklingi um meðferð íslenska fánans til allra grunnskólabarna í landinu sem luku 2. bekk nú í júní. "Um 4.500 börn hafa fengið fánana að gjöf og geta fagnað 17. júní með fánaveifu í hönd,“ segir í tilkynningu. 15.6.2012 10:31
Cruise ætlar í gönguferð á afmælisdaginn Hollywood stórstjarnan Tom Cruise sem nú dvelur á Íslandi við tökur, ætlar í gönguferð á afmælisdaginn sinn. Þetta kemur fram í viðtali við kappann sem birtist í tímaritinu People í dag. Þar ræðir hann um lífið og tilveruna og hvernig það sé að þurfa að vinna á afmælisdaginn, en Cruise verður fimmtugur þann þriðja júlí næstkomandi. 15.6.2012 10:09