Fleiri fréttir

Mál starfsmannanna einstakt tilvik

Sérstakur saksóknari kærði tvo lögreglumenn sem starfað hafa hjá embættinu um margra ára skeið til Ríkislögreglustjóra fyrir brot á þagnarskyldu í apríl síðastliðnum.

Regndans sunnlenskra bænda bar árangur

Veðurguðirnir brugðust við regndansi sunnlenskra bænda í gær með því að senda þeim úrhellis rigningu með þrumum og eldingum, en langvarndi þurrkar hafa víða hægt á sprettu og þar með seinkað slætti.

Agnarsmár vágestur veldur miklum skaða

Smávaxið fiðrildi, birkikemba, hefur náð undraverðri útbreiðslu á stuttum tíma. Ummerki þessa nýbúa má víða merkja í görðum á höfuðborgarsvæðinu og víðar en skýrasta merkið um heimsókn þess eru sölnuð birkilauf sem víða eru mjög greinileg.

Tölum hreint út um spillingu og þöggun

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi var á persónulegu nótunum þegar hún kynnti framboð sitt á hádegisfundi hjá CCP á Grandagarði. Í stað þess að halda hefðbundnar ræður leggur Herdís áherslu á að setjast niður með fólki og ræða málin. Heitar umræður spunnust um forsetaembættið og framtíðarhorfur landsins yfir gúllassúpunni sem borin var á borð í starfsmannamötuneytinu.

Hæna fóstrar andarunga

Hænan Gulla á Ósbakka í Skeiða og Gnúpverjahreppi fóstrar nú þrjá stokkandarunga eftir að hrafnar réðust á andamömmu fyrir skemmstu. Frá þessu er greint í Bændablaðinu.

Alþingi veitir heimild til láns

Frumvarp Oddnýjar G. Harðardóttur, fjármálaráðherra, um heimild til fjármálaráðherra til að fjármagna göng undir Vaðlaheiði var samþykkt með 29 atkvæðum gegn 13 á Alþingi í gær. Fimm þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna þar af þrír stjórnarþingmenn.

Eldur í plastbát í Hrísey

Eldur kom upp í plastbátnum Guðrúnu EA 58 í Hrísey á Eyjafirði í gær. Slökkvilið var kallað til og réði niðurlögum eldsins á skömmum tíma.

Sumarfríin eru ekki sjálfgefin á Alþingi

„Ef þing verður áfram í sumar er ljóst að einhverjir gætu þurft að fresta hluta af sumarfríinu. En við vitum enn ekki hvernig fyrirkomulagið verður,“ segir Hildur Eva Sigurðardóttir, formaður starfsmannafélags Alþingis, þar sem 120 manns starfa. Hildur segir óvissu um þinglok auka álag á starfsfólk og geta haft áhrif á plön fram í tímann.

Bættar samgöngur hækka fasteignamat

Bættar samgöngur hafa þau áhrif að fasteignamat á sumum stöðum á landsbyggðinni hefur hækkað mikið milli ára. Þetta segir sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Íslensk heimili eru eldgildrur

Byggingafræðingur segir mikið vanta upp á að fólk geti komist út úr íbúðum sínum ef eldur kemur upp hérlendis. Kona slasaðist í nótt þegar hún stökk út um glugga á brennandi húsi í Borgarnesi.

Ögmundur sló í gegn

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fékk fyrstu einkunn frá Magnúsi Birgissyni golfkennara þegar hann sló sitt fyrsta högg með golfkylfu fyrr í dag. Ögmundur setti sig þar í spor þeirra golfara sem ætla í næstu viku að klára það ótrúlega verkefni að leika golfbolta meðfram þjóðvegi 1 hringinn í kringum landið.

Þurftu að bíða í flugvélinni í 40 stiga hita í þrjá tíma

Strandaglópur á vegum Icelandair í Denver segist hafa þurft að sitja í fjörutíu stiga hita í flugvélinn í þrjá tíma áður en honum var vísað frá borði vegna vélarbilunar. Hann telur sig heppinn að hafa fengið pláss á hótelinu sem fólkinu var vísað á.

Konur beita börn oftar ofbeldi en karlmenn

Konur beita börn oftar ofbeldi en karlmenn og eru drengir oftar fórnarlömb líkamlegs ofbeldis en stúlkur. Þær eru hinsvegar oftar beittar andlegu ofbeldi.

"Þú ert drekinn!"

Skafti Þ. Halldórsson, deildarstjóri eldri deildar Álfhólsskóla í Kópavogi, skrifar opið bréf til Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogs, í Fréttablaðið í dag. Tilefnið er leiðrétting á launum bæjarstjórans á dögunum.

Geta dæmt sameiginlega forsjá

Dómarar munu geta dæmt foreldrum sem skilja sameiginlega forsjá, en Alþingi samþykkti frumvarp um breytingar að barnalögum þess efnis á þriðjudag.

Allar líkur á sumarþingi

Ekkert bendir til að saman náist um þinglok og því allar líkur á að sumarþing verði kvatt saman eftir mánaðamótin eftir stutt hlé. Formenn þingflokkanna funduðu í gærkvöldi um framhaldið, og þá afgreiðslu einstakra mála, en fundi var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun.

Segir Öryggisráðið ónýtt tæki

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra vill draga þá sem bera ábyrgð á voðaverkum í Sýrlandi fyrir alþjóðlega dómstóla. Íslendingar styðja tillögu í mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna þess efnis.

Strandveiðar stöðvaðar á einu svæði

Strandveiðar hafa verið stöðvaðar á svæðinu frá Snæfellsnesi inn í Ísafjarðardjúp þar sem kvótinn fyrir júní mánuð á svæðinu er búinn.

2.277 hundar eru skráðir í Reykjavík

Skrá yfir útgefin hundaleyfi í Reykjavík hefur nú verið gerð opinber á netinu. Samkvæmt henni eru nú 2.277 hundar á skrá í borginni. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur óskaði álits Persónuverndar á birtingunni áður en í hana var ráðist.

Styður áheyrnaraðild að Norðurskautsráði

Ísland styður áheyrnaraðild Kína að Norðurskautsráðinu, en það mál er í nokkru uppnámi vegna frosts í samskiptum Noregs og Kína. Fréttablaðið greindi frá því í gær að kínverskir þátttakendur á kínversk-íslensku ljóðaþingi, sem halda átti í Noregi, hefðu ekki fengið leyfi til Noregsfarar. Þá hefur Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, lýst því yfir að Kína fái ekki áheyrnaraðild við núverandi aðstæður.

Bætur fyrir skartgripi 5% af innbústryggingu

Þeir sem eru með innbú tryggt fyrir fimm milljónir króna fá aðeins 250 þúsund krónur í bætur fyrir stolna skartgripi þótt verðmæti þeirra sé miklu meira. Þetta er vegna þess að skartgripir eru ekki tryggðir nema fyrir fimm prósent af heildarvátryggingarupphæð innbús samkvæmt skilmálum tryggingafélaganna.

IPA-styrkir eru óafturkræfir

ESB mun ekki fara fram á endurgreiðslu veittra IPA-styrkja til Íslands ef ekki verður af aðild. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar um hvort finna mætti skriflega staðfestingu á slíku.

Einn stjórnarliði sagði nei

Frumvarpi um fjármögnun Vaðlaheiðarganga var vísað til fjárlaganefndar eftir aðra umræðu í gær. Málið var samþykkt með 31 atkvæði gegn átján, en sex þingmenn sátu hjá.

Málamiðlun sem sögð er ganga of skammt

Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins (ESB) náðu í gær mikilvægu samkomulagi um að brottkasti á fiski innan sambandsins verði hætt og þar með dregið úr ofveiði. Tímasetningar samkomulagsins eru hins vegar gagnrýndar af umhverfisverndarsamtökum sem telja að gildistaka takmarkana við brottkasti einstakra tegunda muni koma of seint.

Lundur í minningu fórnarlamba

Gróðurreitur til minningar um þá sem voru myrtir í Ósló og Útey 22. júlí 2011 verður í jaðri friðlandsins í Vatnsmýrinni; í nánd við Norræna húsið og Háskóla Íslands.

Þóra heillaðist af krafti Grindavíkur

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi hélt framboðsfund á Sjómannastofunni Vör í Grindavík á dögunum. Á framboðsfundinum var Þóru gefið orkerað hálsmen, eftir listakonuna Toggu, en hálsmenið ber nafnið Brynja.

Boðar sölu á Landsbankahlut í ár

Til stendur að hefja sölu á hlut ríkisins að því er Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í viðtali við fréttastofuna Reuters. Salan er ekki að öllu í samræmi við framtíðarstefnu Bankasýslu ríkisins frá í mars síðastliðnum, þar sem segir að stofnunin geri ekki ráð fyrir því að leggja til að sala eignarhluta í Arion banka og Landsbankanum geti hafist fyrr en á næsta ári.

Þjórshátíð fer fram næstu helgi

"Missum ekki tökin" er yfirskrift tónlistarhátíðarinnar Þjórshátíð sem fer fram um næstu helgi en markmiðið með henni er að vekja fólk til umhugsunar um náttúruna og afleiðingar óafturkræfra framkvæmda. Hugrún Halldórsdóttir hitti þrjá tónglaða og umhverfissinnaða skipuleggjendur í dag.

Þurfa að gangast undir ítarlega leit fyrir framan eftirlitsmyndavél

Allir starfsmenn íþróttavöruverslunarinnar Sports Direct þurfa að gangast undir ítarlega leit fyrir framan eftirlitsmyndavél þegar þeir yfirgefa vinnustaðinn. Kvartað hefur verið til VR vegna fyrirkomulagsins. Framkvæmdarstjórinn segir sömu reglur gilda í öllum verslunum keðjunnar.

Síbrotamaður í gæsluvarðhald

Síbrotamaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. júlí næstkomandi. Maðurinn var handtekinn fyrir helgi grunaður um fjölmörg afbrot, meðal annars bílaþjófnað, innbrot, og fleira.

Meintum barnaníðingi sleppt úr gæsluvarðhaldi

Karlmaður, sem hefur verið ákærður fyrir að misnota ellefu ára dóttur sína, hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi. Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Vesturlands sem hafnaði því að maðurinn yrði áfram í gæsluvarðhaldi, en hann hefur setið inni síðan hann var handtekinn grunaður um verknaðinn í byrjun desember á síðasta ári.

Óskar Hrafn hættir á Fréttatímanum

Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Fréttatímans, mun láta af störfum á morgun, en hann hefur fylgt Fréttatímanum frá stofnun blaðsins. Jón Kaldal hætti einnig störfum á blaðinu fyrir skömmu en Óskar segir þær hræringar ekkert tengjast sínum starfslokum.

Börnin fá gefins banana á meðan foreldrarnir kaupa í matinn

Yngstu viðskiptavinir Hagkaups geta nú fengið gefins banana á meðan foreldrar eða forráðamenn þeirra kaupa í matinn. Börnunum líður betur í verslunarferðinni og gera má ráð fyrir að sælgætisþörfin minnki segir innkaupastjóri.

Allt stefnir í sumarþing

Við upphaf þingfundar í morgun var hart tekist á um mögulegt sumarþing, en allt stefnir í að það hefjist 2. júlí. Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur gefið út að boðað verði til sumarþings ef ekki náist að afgreiða kvótafrumvarpið.

Færri slys vegna vitundarvakningar ökumanna

Þrjátíu bifhjólamenn slösuðust alvarlega í umferðinni í fyrra miðað við fjörutíu og þrjá árið áður. Fækkunin er meðal annars rakin til vitundavakningar ökumanna.

Sjá næstu 50 fréttir