Fleiri fréttir

Styttist í Ólympíuleikanna

Um fjörutíu þúsund manns komu saman í Ólympíuþorpinu í London í gærkvöldi þegar ólympíuleikvangurinn var formlega opnaður en þá voru nákvæmlega 2012 klukkustundir eða 80 dagar þar til að leikarnir hefjast þann 27. júlí næstkomandi.

Bílvelta á Fjallkonuvegi

Bílvelta varð á Fjallkonuvegi á fjórða tímanum í nótt. Ökumaðurinn var einn í bílnum.

Valdaflokkunum í Grikklandi refsað

Útgönguspár í þingkosningunum í Grikklandi benda til þess að tveir helstu flokkar landsins hafi beðið afhroð. Flokkarnir tveir, vinstriflokkurinn Pasok og hægriflokkurinn Nýtt lýðræði, hafa ráðið lögum og lofum í grískum stjórnmálum frá því á áttunda áratugi síðustu aldar þegar lýðræði komst á að nýju í landinu. Flokkarnir tveir hafa verið saman í stjórn frá því í nóvember en almenningur virðist nú hafa fengið nóg af niðurskurði síðustu mánaða og því útlit fyrir algjöra uppstokkun.

Humperdinck: "Held huga mínum hreinum fyrir keppni"

Hjartaknúsarinn Engelbert Humperdinck sem keppir fyrir Bretlands hönd í Eurovision þetta árið veit ekki hvort að Jónsi og Greta Salóme séu sterkir keppinautar - hann kýs frekar að einbeita sér að sínum eigin flutningi.

Umfangsmikil flugslysaæfing á Suðurnesjum

Farþegaflugvél þurfti að nauðlenda á Keflavíkurflugvelli eftir að eldur kom upp í vélinni. Þetta voru skilaboðin sem þátttakendur í flugslysaæfingu á Suðurnesjum fengu í dag.

Vill tengja húsaleigubætur við lágmarks brunavarnir

Slökkviliðsstjóri telur að bæta megi öryggi þeirra sem búa í ósamþykktu íbúðarhúsnæði og annarra á leigumarkaði með því að tengja greiðslur húsaleigubóta við skilyrði um lágmarks brunavarnir.

Tásugjörningur við Ásmundarsafn í dag

Fjölmenni var við Ásmundarsafn í dag en hinn svokallaði "tásu-gjörningur" fór þar fram. Tásugjörningurinn er gömul hefð sem hófst þegar Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari, fékk börn til að hjálpa til við að þvo tærnar á styttunum í garðinum við safni.

Fernanda losnaði af strandstað

Flutningaskipið Fernanda sem strandaði í innsiglingunni í Sandgerði í morgun losnaði af sjálfsdáðum af strandstað fyrir skömmu.

Strand Fernanda í myndum

Þyrla Landhelgisgæslunnar náði þessum myndum af strandstað flutningskipsins Fernanda í innsiglingunni í Sandgerði fyrr í dag.

Mikið um dýrðir í Nexus í dag

Um 500 manns hafa lagt leið sína í afþreyingarbúðina Nexus í dag en alþjóðlega myndasögudeginum er fagnað þar í dag.

Aðgangur að Dyrhólaey takmarkaður

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að takmarka umferð um Dyrhólaey frá og með deginum í dag til 12. maí næstkomandi. Er þetta gert til að vernda fuglalíf á eyjunni.

Reykjavík Shorts & Docs hefst á morgun

Kvikmyndahátíðin Reykjavík Shorts & Docs hefst á morgun og stendur fram á miðvikudagskvöld í Bíó Paradís. Opnunarmyndirnar eru heimildamyndin Town of Runners eftir Jerry Rothwell og stuttmyndin Krass eftir Tómas H. Jóhannesson.

Vill leggja niður skattkortakerfið

Gömlu góðu skattkortin gætu heyrt sögunni til nái hugmyndir ríkisskattstjóra fram að ganga en hann vill leggja skattkortakerfið niður í núverandi mynd. Hann segir það barn síns tíma og ný tækni geti haldið utan um persónuafslátt í framtíðinni.

Skipstjórinn mun reyna að losa skipið

Skipstjóri flutningaskipsins Fernanda/J7AM7 mun sjálfur reyna að ná skipinu af strandstað á háflóði síðar í dag. Áhöfn varðskipsins Þórs hefur nú rætt við áhöfn Fernanda og mun varðskipið vera áfram á staðnum og kemur til aðstoðar ef þörf krefur.

Krummi ekki með berkla: "Þetta gleður mitt hjarta og lungu"

Krummi Björgvinsson, oft kallaður Krummi í Mínus, er ekki með berkla. Hann tjáði vinum sínum á Facebooksíðu sinni á fimmtudag að hann gæti hugsanlega verið með berkla etir að hann fór í fjölmargar rannsóknir vegna verkja í lungunum. Hann var í einangrun þar til hann fékk niðurstöðurnar.

Alþjóðlegi nakti garðyrkjudagurinn er í dag

Alþjóðlegi nakti garðyrkjudagurinn er haldinn hátíðlegur víðsvegar um heim í dag. Þá eru náttúruunnendur og blómabörn hvött til þess að sinna garðinum sínum berrössuð.

Vísindaveisla í Kirkjubæjarklaustri í dag

Háskólalest Háskóla Íslands býður til vísindaveislu í Kirkjubæjarklaustri í dag. Þar geta allir aldurshópar kynnt sér ýmis undir vísindanna og fylgst með mögnuðum sýningum Sprengjugengisins.

Örtröð við Bauhaus

Svissneska byggingavörukeðjan Bauhaus opnaði formlega verslun sína við Vesturlandsveg klukkan átta í morgun.

Erill hjá lögreglunni í nótt

Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fimm ökumenn voru stöðvaður, grunaðir um meinta ölvun við akstur.

Sparibankinn leitar erlends fjármagns

Aðstandendur Sparibankans eiga í viðræðum við erlenda aðila um að koma að fjármögnun bankans. Erfiðlega hefur gengið að ljúka fjármögnun og þurfti bankinn í október að segja upp leigusamningi á Iðuhúsinu við Lækjargötu sem hann hafði tekið á leigu. Enginn tímarammi er til staðar um opnun bankans.

Selja hverja nótu á 100 þúsund

Áhugahópur sem safnar nú fyrir flygli til að koma fyrir í menningarsalnum Hjálmakletti í Menntaskóla Borgarfjarðar hyggst grípa til óhefðbundinnar aðferðar til að fá styrktaraðila til liðs við verkefnið.

Segir Y-listann hafa viljað salta vaxtamál

"Oddviti Y-lista var mótfallinn frekari könnun að svo stöddu og lagði á það áherslu að málið yrði látið liggja þar til niðurstöður stjórnsýsluúttektar lægju fyrir,“ segir Guðríður Arnardóttir spurð um það hvers vegna ekki hafi verið brugðist meira við upplýsingunum um sérkjör sem þáverandi bæjarstjóri hafði notið í fjármálastjórnartíð sinni.

Segir SÞ sýna mikinn veikleika

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gagnrýndi öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fyrir aðgerðaleysi í málefnum Palestínu í opinni umræðu utanríkisráðherra Norðurlandanna um arabíska vorið í Stafangri í Noregi í gærmorgun.

Nýjar stofnanir svar við fjármálakreppu

Nýjar evrópskar eftirlitsstofnanir eiga að fylgjast með fjármálamörkuðum ESB-ríkjanna og tryggja að eftirlitsstofnanir í aðildarríkjunum standi sig. Íslandi ber að samþykkja vald stofnananna yfir íslenskum fjármálamarkaði vegna EES-samningsins, en íslenska stjórnarskráin heimilar það ekki samkvæmt álitsgerð sem unnin var fyrir stjórnvöld.

Lögregla vill bát til eftirlits á Breiðafirði

Lögreglan á Snæfellsnesi vinnur þeirri hugmynd fylgi þessa dagana að tekið verði upp sérstakt eftirlit á Breiðafirði. Um tilraunaverkefni yrði að ræða með aðkomu stjórnvalda og stofnana. Rökin fyrir því að gera út eftirlitsbát eru fjölmörg; eftirlit með strandveiði- og skemmtibátum, náttúruvernd og fleira sem markast af sérstöðu fjarðarins.

Karlar fá 6,6 prósentum hærri laun

Föst laun karla á Íslandi eru 6,6% hærri en föst laun kvenna þegar búið er að taka tillit til helstu áhrifaþátta. Þetta er niðurstaða greiningar PwC á launamun kynjanna.

Frumvarp um kvóta ekki matshæft

Sérfræðingar á vegum þingnefndar segja frumvarp Steingríms J. Sigfússonar um veiðigjald ekki matshæft. Ófært sé að meta áhrif á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja út frá því. Frumvarpið feli í sér tvísköttun.

Færri nota hjálm við hjólreiðar

Hjólreiðamönnum í Reykjavík sem nota hjálm hefur fækkað á milli ára. Samkvæmt talningu VÍS á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudag notuðu 74 prósent hjólreiðamanna hjálm, samanborið við 83 prósent í fyrra. Gerir þetta 11 prósenta fækkun milli ára.

Minni stríðshugur meðal þess sem útskýrir lækkandi eldsneytisverð

"Það er nú minni stríðshugur, sem betur fer, en það er þó tvennt sem hefur gerst síðustu daga og vegur þungt, þannig hefur komið í ljós að það var framleidd meiri olíu frá olíuframleiðsluríkjum OPEC en gert var ráð fyrir og svo að það er minni hagvöxtur í Bandaríkjunum,“ útskýrði Magnús Ásgeirsson, eldsneytissérfræðingur N1, sem Reykjavík síðdegis ræddi við í dag til þess að leita skýringa á lækkandi eldsneytisverði í heiminum, og svo auðvitað hér á landi.

Heimavinnandi foreldri ekki með undir 560 þúsund í mánaðarlaun

Heimavinnandi húsmóðir, eða húsfaðir, er ekki með lægri en 560 þúsund í mánaðarlaun samkvæmt útreikningum kjaramálasviðs Eflingar. Reykjavík síðdegis ræddi við Hörpu Ólafsdóttur, forstöðumanns kjarasviðsins, og báðu hana um að reikna mánaðarlaun heimavinnandi foreldra. Þannig voru ýmis störf tekin með í reikninginn sem heimavinnandi foreldri þarf að inna af hendi, svo sem matreiðslu, umönnun og þrif.

Lítill drengur varð fyrir rafmagnslest

Lítill drengur slasaðist fyrir skömmu á fæti eftir að hafa orðið fyrir rafmagnslestinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Verkefnastjóri slysavarna barna og unglinga segir fjölda slysa hafa orðið í garðinum. Nauðsynlegt sé að skilgreina mismunandi starfsemi garðsins.

Ekki verið að fara bakdyraleið að samningum við Nubo

Iðnaðarráðherra segir alls ekki verið að fara bakdyraleið að samningum við Huang Nubo með því að leigja honum land Grímssstaða á Fjöllum. Nubo sjálfur virðist kominn lengra í samningsferlinu en íslensk stjórnvöld, ef marka má yfirlýsingar hans í kínverskum fjölmiðlum í dag.

Leiðrétting

Vegna fréttar okkar í fyrrakvöld um að Umhverfisstofnun hefði rukkað kræklingabónda um 38 þúsund krónur fyrir áminningarbréf og afsökunarbeiðni, skal það leiðrétt að ekki var send rukkun fyrir afsökunarbeiðni. Umræddur reikningur var sendur fyrir mistök og var felldur niður þegar þau uppgötvuðust.

Karlar með 6,6% hærri laun en konur

Föst laun karla á Íslandi eru 6,6% hærri en föst laun kvenna þegar búið er að taka tillit til helstu áhrifaþátta. Þetta er niðurstaða greiningar PwC á launamun kynjanna. Greiningin byggir á ítarlegum gögnum, sem fengin voru úr launakerfum liðlega 70 íslenskra fyrirtækja, yfir launagreiðslur í septembermánuði árið 2011.

Sitja inni í tvo mánuði eftir sérstaklega hættulega líkamsárás

Karl og kona um þrítugt voru dæmd í fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á veitingastaðnum Players í Kópavogi í janúar í fyrra. Fólkið lenti í deilum við mann inni á staðnum en þau voru þar að skemmta sér.

Í fangelsi fyrir fjölmörg brot

Fjórir piltar voru dæmdur í fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir fjölmörg brot víða um land. Brotin voru framin í fyrra og í ár en á meðal þess sem þeir voru sakfelldir fyrir voru þjófnaðir, eignaspjöll og umferðar- og fíkniefnalagabrot. Einn af mönnunum var dæmdur í 2 ára fangelsi, annars í 12 mánaða fangelsi og hinir tveir hlutu skilorðsbundna dóma í fjóra og sex mánuði. Þeir sem hlutu þyngsta og næst þyngsta dóminn voru sviptir ökurétti, annar í tvö ár en hinn ævilangt - sá er tvítugur að aldri.

Viljum koma til móts við venjulega skákáhugamenn

Þeir sem hingað til hafa gripið í tafl á kaffistofum fyrirtækja sér til skemmtunar geta nú sameinast í sveit og keppt fyrir hönd síns fyrirtækis á Firmamótinu í skák þann 9. maí frá 16 til 19 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Mótið er haldið af skákdeild Fjölnis í Grafarvogi. Formaður hennar er Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóla, en einnig vinnur Fjölnismaðurinn Héðinn Steingrímsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák, að framgangi mótsins.

Sjá næstu 50 fréttir