Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gunnar Andersen bað Ársæl um að senda gögn til DV Ársæll Valfells, lektor við Háskóla Íslands, segir að hann hafi verið milligöngumaður þegar gögn láku frá Landsbankanum en Gunnar Andersen fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins hefur verið kærður til lögreglu vegna þess. Gögnin vörðuðu fjármál Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns. Ársæll segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér að maður nokkur hafi bankað á dyrnar hjá sér og beðið sig um að skila sendingu til Gunnars Andersen. 12.3.2012 16:43
Falsaður þúsundkall í Elko Falsaður þúsund króna seðill fannst við uppgjör í verslun Elko á Leifsstöð um helgina. Að sögn lögreglu virðist um einangrað tilvik vera að ræða. Engu að síður biður lögreglan á Suðurnesjum fólk um að vera vakandi fyrir hugsanlegum "prettum af þessu tagi“ eins og það er orðað. 12.3.2012 16:34
Hamborgaraóðir Íslendingar - 27 þúsund borgarar seldir Það er óhætt að segja Íslendingar séu sjúkir í hamborgara ef marka má eftirspurnina í hamborgara frá veitingastaðnum Metró. Um 24 þúsund hamborgarar hafa selst á vefsíðunni hópkaup.is í dag en þar er hægt að kaupa hamborgara á 99 krónur í staðinn fyrir 350 krónur. Tilboðið gildir í 24 klukkutíma og lýkur á miðnætti. Í október í fyrra var samskonar tilboð í gangi á síðunni og þá seldust yfir 40 þúsund hamborgarar eða um fjögur og hálft tonn á einum sólarhring. 12.3.2012 16:22
Ölvaður túristi stal póstbíl á Leifsstöð Póstbíl var stolið þar sem hann stóð í gangi fyrir utan Flugstöð Leifs Eiríkssonar á laugardagsmorguninn síðastliðinn. Í tilkynningu frá lögreglu segir að bílstjórinn hafi brugðið sér inn í Leifsstöð með dagblöð og þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn. 12.3.2012 16:20
Of seint að minnka bankana 2008 Hafi menn haft áhuga á þvi að minnka íslenskt bankakerfi, þá átti það átti að gerast á seinni hluta ársins 2006 og á árinu 2007. Þetta sagði Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, fyrir Landsdómi í dag. 12.3.2012 15:59
Töldu að Landsbankinn gæti staðið af sér þjóðnýtingu Glitnis Sérfræðingar Landsbankans töldu að bankinn gæti staðið af sér þá lækkun hlutabréfaverðs sem yrði á bankanum ef ríkissjóður tæki yfir 75% hlut í Glitni. Þetta fullyrti Halldór J. Kristjánsson, annar bankastjóra Landsbankans, þegar hann var spurður út í málið í dag. 12.3.2012 15:25
Söngvakeppni í skugga mannréttindabrota Nokkrum mánuðum áður en Aserbaídsjan vann Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva síðastliðið vor flúðu hundruð friðsæmra mótmælenda undan ofbeldi lögreglu í miðborg Bakú, höfuðborg landsins. Í tilkynningu frá Amnesty International segir að 125 milljónir manna fylgist með söngvakeppninni sem fer fram í Bakú í maí næstkomandi en samtökin segja að keppnin fari fram í skugga mannréttindabrota þar sem friðsamir mótmælendur séu handteknir og beittir ofbeldi og blaðamönnum sé hótað og rænt. Amnesty krefst þess að allir samviskufangar í Aserbaídsjan verði tafarlaust leystir úr haldi. 12.3.2012 15:05
Framkvæmdastjóra Lagastoðar enn haldið sofandi Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í hnífaárás yfir viku síðan, er enn óbreytt. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er honum haldið sofandi í öndunarvél og er alvarlega slasaður. 12.3.2012 14:37
"Ótrúlegt að forætisráðherra landsins segi krónuna ónýta" "Orð forsætisráðherra á fundi Samfylkingar um helgina eru með ólíkindum,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Hann var gestur úr útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. 12.3.2012 00:00
Landsdómur: Sjötta samantekt - myndskeið Fréttamennirnir Þorbjörn Þórðarson og Breki Logason fylgjast með framvindu mála í Landsdómi í beinum sjónvarpsútsendingum á Vísi í allan dag. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá síðustu samantekt þeirra þar sem þeir fara yfir stöðuna klukkan 15 og þegar Sigurjón Þ. Árnason mætir í Þjóðmenningarhúsið. 12.3.2012 15:33
Haldið sofandi eftir bílslys Kona sem lenti í umferðarslysi á Álftanesvegi á föstudaginn er haldið sofandi í öndunarvél. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu er hún alvarlega slösuð. Þrír voru fluttir á slysadeild eftir slysið sem varð um klukkan hálf níu um morguninn. Fimm sjúkrabílar voru sendir á staðinn ásamt tækjabíl frá slökkviliðinu en beita þurfti klippum til að ná konunni út úr bílnum. Lögreglan rannsakar tildrög slyssins. 12.3.2012 15:30
Vinnur að greinargerð um ársreikninga bankanna fyrir hrun Stefán Svavarsson, aðalendurskoðandi Seðlabankans sagði fyrir Landsdómi í dag að orð sín eins og þau koma fram í Rannsóknarskýrslu bankanna hafi verið slitin úr samhengi. Stefán sagði að orð sín um alls kyns sviðsmyndir hefðu farið inn í skýrsluna eins og hann hafi verið að tala um bankana. "Sem mér, satt best að segja, fannst ekki gott.“ 12.3.2012 15:17
Vonuðu að lausafjárkreppan væri að baki Landsdómur hringdi í Halldór J. Kristjánsson, annan af fyrrverandi bankastjórum Landsbankans, á öðrum tímanum í dag. Halldór er í Kanada vegna starfa sinna og átti ekki heimangengt í dóminn. 12.3.2012 15:07
Landsdómur: Fimmta samantekt - myndskeið Fréttamennirnir Þorbjörn Þórðarson og Breki Logason fylgjast með framvindu mála í Landsdómi í beinum sjónvarpsútsendingum á Vísi í allan dag. 12.3.2012 14:49
Halldór: Ekki hægt að verja sameiningu Landsbankans og Glitnis Lausafjárvandi Glitnis á árinu 2008 var miklu meiri en lausafjárvandi Landsbankans. Stjórnendur bankans töldu það því ekki forsvaranlegt að sameina Landsbankann og Glitni nema að til kæmi lausafé í formi langtímaláns frá ríkinu. Þetta kom fram í máli Halldórs J. Kristjánsson fyrir Landsdómi í dag. Halldór er búsettur erlendis. Hann kom ekki til landsins heldur gaf hann skýrslu í gegnum síma. 12.3.2012 14:16
Landsdómur: Fjórða samantekt - myndskeið Fréttamennirnir Þorbjörn Þórðarson og Breki Logason fylgjast með framvindu mála í Landsdómi í beinum sjónvarpsútsendingum á Vísi í allan dag. 12.3.2012 13:30
Ingibjörg um orð Davíðs: "Hann getur ekki hafa verið að tala um mig“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist aldrei hafa lagt til að bönkunum yrði bjargað með því að útvega 30 til 40 milljarða evra líkt og Davíð Oddsson fyrrverandi Seðlabankastjóri sagði fyrir Landsdómi í síðustu viku. 12.3.2012 13:18
Sló annan í höfuðið með strákústi Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás fyrir utan iðnaðarhúsnæði á Selfossi síðasta sumar en hann sló annan mann í höfuðið með strákústi með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut skurð á höfði og brot á handlegg. 12.3.2012 13:17
Vildu fá lán gegn veði í norskum eignum Stjórnendur Glitnis vildu fá lán frá Seðlabanka Íslands gegn veði í eignum sem Glitnir átti í Noregi. Þetta var ástæða þess að Glitnismenn leituðu til Seðlabankans í lok september 2008, áður en ákvörðun var tekin um að taka yfir 75% hlut í bankanum. Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, greindi frá þessu fyrir Landsdómi í dag. 12.3.2012 12:51
Sigurður sór drengskaparheit Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sór eiðstaf að vitnisburði sínum þegar skýrslutöku lauk yfir honum fyrir Landsdómi í dag. Hann er fyrsta vitnið sem sver eiðstaf. Það var Andri Árnason, verjandi Geirs, sem fór fram á að hann myndi gera það. 12.3.2012 12:32
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað mest í Bónus - minnst í Hagkaup ASÍ hefur tekið saman verðbreytingar á vörukörfu sinni frá því í apríl 2008 til byrjun mars á þessu ári. Í ljós kemur að vörukarfan hefur hækkað meira í lágvöruverðsverslunum en í öðrum. Mesta hækkunin er í Bónus, um 55 prósent en minnst er hún í Hagkaup þar sem hækkunin nemur 21 prósenti. 12.3.2012 12:14
Viðtalið við Ingibjörgu í heild sinni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ræddi við fréttamenn að lokinni skýrslutöku fyrir Landsdómi í morgun. 12.3.2012 12:06
Sigurður: Hávaxtastefna Seðlabankans ein meginástæða hrunsins Það eru fjórar ástæður fyrir því að Kaupþing varð eins illa úti í hruninu og raun bar vitni. Þetta sagði Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, fyrir Landsdómi í dag. 12.3.2012 11:59
Landsdómur: Þriðja samantekt - myndskeið Fréttamennirnir Þorbjörn Þórðarson og Breki Logason fylgjast með framvindu mála í Landsdómi í beinum sjónvarpsútsendingum á Vísi í allan dag. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá síðustu samantekt þeirra félaga sem var í beinni útsendingu á Vísi klukkan 11. 12.3.2012 11:48
Ræktaði kannabis í sumarbústað Lögreglan á Selfossi gerði kannabisræktun upptka við sumarbústað í upsveitum Árnessýslu á laugardaginn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfðu lögreglumenn um tíma verið að leita að kannabisræktun á svæðinu og höfðu fengið vísbendingu um að hana væri að finna í gámi við sumarbústað. Gerð var leit í gámnum og komu þá í ljós tólf kannabisplöntur í ræktun. Kona, sem átti sumarbústaðinn, var handtekin vegna málsins og játaði að bera ábyrgð á ræktuninni. Hún yfir höfði sér kæru vegna málsins. 12.3.2012 11:24
Ingibjörg Sólrún segir Össur fara með rangt mál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, segir það rangt sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi sagt í skýrslutöku hjá Rannsóknarnefnd Alþingis og fyrir Landsdómi að hún sjálf hafi bannað honum að kalla Björgvin G. Sigurðsson til fundar um þjóðnýtingu Glitnis í lok september 2008. 12.3.2012 11:14
Íslenskir unglingar fara ekki á fyllirí jafn snemma og aðrir Íslenskir unglingar byrja ekki að drekka jafnsnemma og unglingar í Evrópu, samkvæmt nýrri rannsókn sem framkvæmd var í sex löndum í Evrópu. Meira en þriðjungur þrettán ára unglinga í Skotlandi hafa farið á "fyllirí“. 12.3.2012 10:59
Banaslys á Eyjafjarðarvegi - sofnaði líklega undir stýri Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið rannsókn sinni á banaslysi sem varð á Eyjafjarðarbraut síðdegis þann 20. janúar í fyrra. Þá lést karlmaður sem var að skokka í vegarkantinum þegar bifreið var ekið á hann. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að bíllinn hafi farið yfir á rangan vegarhelming, líklega vegna þess að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri. 12.3.2012 10:54
Landsdómur: Önnur samantekt - myndskeið Dagurinn er farinn af stað í Landsdómi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, er byrjuð að bera vitni og seinna er von á bankastjórum föllnu bankanna. 12.3.2012 10:30
Ingibjörg: Davíð tók hamskiptum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hafi tekið hamskiptum á upplýsingafundi með ríkisstjórninni 7. febrúar 2008. Davíð var þá nýkominn úr ferð frá London sem hann fór í til þess að ræða stöðu íslenskra banka. 12.3.2012 09:59
Farþegarnir komust úr úr brennandi strætisvagni "Það voru fáir í vagninum og það komust allir út heilir á höldnu," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó. Eldur kom upp í strætisvagni á gatnamótum Bíldshöfða og Breiðhöfða í morgun en eldurinn kom upp í vélarrúmi bílsins. 12.3.2012 09:58
Allir lögðust á eitt við að koma í veg fyrir kaupin á NIBC Áhyggjur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur af bankakerfinu tóku að vaxa um áramótin 2007/2008 vegna fyrirhugaðra kaupa Kaupþings á hollenska bankanum NIBC. Tilkynnt var um fyrirhuguð kaup bankans á árinu 2007 en eftir áramótin var hætt við kaupin. "Þeir sáu að það gat ekki gengið en þeir gátu ekki snúið út úr þessari aðgerð nema fyrir tilstuðlan opinberra aðila,“ sagði Ingibjörg. 12.3.2012 09:48
Landsdómur: Fyrsta samantekt - myndskeið Óhætt er að segja að dagurinn í dag sé stór dagur í Landsdómi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra mun bera vitni ásamt fyrrverandi bankastjórum föllnu bankanna. 12.3.2012 09:19
Eldur logaði í strætisvagni Eldur kom upp í strætisvagni rétt eftir klukkan níu í morgun. Vagninn var á gatnamótum Bílsdshöfða og Breiðhöfða þegar fór að loga í afturhluta bílsins. Slökkviliðið er mætt á staðinn og að sögn vaktstjóra tókst að koma öllum farþegum út úr bílnum. Engum varð meint af. Óljóst er um upptök eldsins. Vagninn er díselknúinn að sögn slökkviliðsins. 12.3.2012 09:18
Hvert sæti setið í Þjóðmenningarhúsinu Það er hvert einasta sæti setið í Þjóðmenningarhúsinu í dag, nú þegar sjötti dagur aðalmeðferðarinnar í Landsdómsmálinu er að hefjast. Hingað er mætt fólk hvaðanæva úr samfélaginu. 12.3.2012 08:56
Ólíklegt að framburður vitna ráði einn niðurstöðunni fyrir Landsdómi Túlkun á því hvort málflutningur vitna fyrir Landsdómi í síðustu viku styðji ákærur á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, vill skiptast í tvö horn eftir persónulegri afstöðu manna. Margir telja þó að málflutningur í byrjun síðustu viku, þegar embættismenn báru vitni, hafi fremur stutt málstað Geirs, meðan aðeins hafi hallað á hann síðar í vikunni. 12.3.2012 08:00
Myrkurgæðin verða mæld og metin Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp um myrkurgæði, en hópnum er ætlað að taka saman upplýsingar um þau lög og reglur sem gilda um ljósmengun á Íslandi og víðar. 12.3.2012 08:00
Loðnuflotinn staddur við Garðskaga Loðnuflotinn er farinn úr Breiðafirði og er nú um það bil tíu sjómílur norðvestur af Garðskaga, eftir að þar fréttist af nýrri loðnugöngu á föstudagskvöldið. 12.3.2012 07:45
Eldur kviknaði í efnalaug Eldur kviknaði í húsi við Hverafold í Grafarvogi laust fyrir miðnætti, en þar eru efnalaug og fataverslun til húsa. 12.3.2012 06:56
Ekki frekara grjóthrun á veginum um Svínhlíð Ekki hefur orðið vart við meira grjóthrun á veginn um Svínahlíð í Grafningi, eftir að hann lokaðist vegna skriðufalla seint á föstudagskvöldið. 12.3.2012 06:53
Ingibjörg Sólrún mætir í Landsdóm í dag Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra mætir fyrst fyrir Landsdómi í dag, en þar hefjast réttarhöld klukkan níu. 12.3.2012 06:41
Greining sýnir veikleika almannavarna Auka þarf viðbúnað í almannavarnakerfinu verulega, er niðurstaða áhættuskoðunar Almannavarna fyrir landið allt. Vinna er þegar hafin vegna atburða sem taldir eru geta haft í för með sér „mikla eða gífurlega áhættu“ og settar voru í fyrsta forgang í greiningu sem staðið hefur yfir árum saman. Þar má nefna hættumat vegna eldgosa á landinu, viðbragðsáætlun vegna gróðurelda, áætlanagerð og æfingar vegna hópslysa bæði í siglingum og í umferðinni. 12.3.2012 06:00
Óvissa ríkir um kostnað Landsvirkjunar Landsvirkjun segir ekki unnt að segja til um á kostnað fyrirtækisins vegna úrskurðar innanríkisráðuneytisins um að meta skuli vatnsréttindi til fasteignamats á þessu stigi. 12.3.2012 06:00
Frumvarpinu sjálfu ekki breytt „Við erum annars vegar að svara spurningum og rökstyðja okkar sýn á stöku ákvæði sem ábendingar komu fram um, og hins vegar nefndum við valkosti við umdeild ákvæði,“ segir Gísli Tryggvason, einn fulltrúa í stjórnlagaráði, í samtali við Fréttablaðið. Ráðið lauk störfum í gær eftir fjögurra daga fund þar sem farið var yfir spurningar frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um ákvæði í frumvarpi til stjórnskipunarlaga. 12.3.2012 05:00
Níu af hverjum tíu hafa nú aðgang að hreinu vatni Meira en tveir milljarðar manna hafa fengið aðgang að hreinu drykkjarvatni frá árinu 1990, sem þýðir að þúsaldarmarkmiði Sameinþjóðanna uðu þjóðanna um aðgengi að hreinu vatni hefur náðst. Frá þessum áfanga var greint á þriðjudag þegar Barnahjálp Sameinuðu (UNICEF) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) kynntu skýrslu um framfarir á sviði vatns og hreinlætis. Bætt aðgengi að drykkjarhæfu vatni þýðir meðal annars að vatnið er í lokuðum leiðslum eða vel birgðum brunnum svo óhreinindi og sýkingar komast ekki í það. 12.3.2012 04:00