Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja frjálsar strandveiðar Stjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýja reglugerð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um strandveiðar á komandi sumri. 13.4.2011 04:00
Tjón á heimilum í Árbæ Heitavatnslagnir innanhús hafa brostið í tengslum við bilunina í vestanverðu Árbæjarhverfinu í kvöld. Enn er heitavatnsvatnslaust um vestanverðan Árbæinn og viðbúið að það standi fram eftir nóttu. 12.4.2011 23:44
Tryggði Haukum Íslandsmeistaratitilinn með ótrúlegri flautukörfu Haukamaðurinn Kári Jónsson, leikmaður í 9. flokki karla, skoraði hreint út sagt ótrúelga flautukörfu og tryggði Haukum Íslandsmeistaratitilinn í 9. flokki karla árið 2011 um síðustu helgi. 12.4.2011 23:38
Yngsta móðir Íslands - Varð ólétt 12 ára Alda Jóhanna Hafnadóttir er yngsta kona sem átt hefur barn á Íslandi í seinni tíð, en hún var aðeins 12 ára þegar hún varð ófrísk. Alda er tvítug í dag og segist hafa farnast vel í móðurhlutverkinu. Nýlega kom svo í ljós að systir Öldu á von á barni í sumar, en hún er 15 ára. 12.4.2011 22:00
Heitavatnslaust í Árbæ Heitavatnslaust er í hluta Árbæjarhverfis eftir að aðalæð við Rofabæ bilaði í kvöld. Vatnsleysið nær til þess hluta hverfisins sem er vestan Fylkisvegar, sem liggur frá Rofabæ að Árbæjarlaug. 12.4.2011 21:51
Framsókn styður vantrauststillöguna - Hreyfingin óákveðin Atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins á ríkisstjórnina fer fram annað kvöld. Formenn þingflokkana funduðu í kvöld með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, þar sem fyrirkomulag umræðunnar var rædd. 12.4.2011 21:06
Hættið að rífast innbyrðis, horfið fram á veginn og verið glöð Forstöðumaður greiningardeildar Danske bank sem varð þekktur fyrir að spá fjárhagslegri kreppu hér á landi árið 2006 segir efnahagslífið nú vera í miklum bata og hvetur Íslendinga til að dvelja ekki í fortíðinni og horfa fram á veginn. 12.4.2011 19:35
Leita samstarfs við Íslendinga vegna siglinga um Norðurskautið Kínverjar sem og ráðamenn fleiri þjóða hafa rætt þann möguleika við íslensk stjórnvöld að á Íslandi verði þjónusta vegna siglinga yfir Norðurskautið. 12.4.2011 19:14
Síðasti naglinn í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi Ríkisstjórnin fer nærri því að reka síðasta naglann í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi, með áformum sínum um að takmarka leigutíma jarðhitaauðlinda við þrjátíu ár. Þetta sagði forstjóri HS Orku á fundi Jarðhitafélags Íslands í dag. 12.4.2011 18:55
Bjarni Ben: Kosningar munu tryggja traust á milli þings og þjóðar Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lagði á Alþingi í dag fram tillögu um vantraust á ríkisstjórnina. Í tillögunni er þess krafist að þing verði rofið 11.maí og boðað til kosninga. Forsætisráðherra fagnaði tillögunni og þakkaði Bjarna fyrir að leggja hana fram. 12.4.2011 18:45
Meðferð barnaníðinga í íslenskum fangelsum er ábótavant Meðferð barnaníðinga sem afplána í íslenskum fangelsum er ábótavant. Þetta segir sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun en barnaníðingur sem lauk nýverið afplánun er nú grunaður um að hafa brotið af sér á meðan hann var á reynslulausn. 12.4.2011 18:42
Íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þvingunum Hollensk stjórnvöld íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þvingunum til að knýja fram efndir í Icesave málinu. Þá ætla Hollendingar einnig beita sér fyrir því að sparifjáreigendur þar í landi fái allt sitt til baka - ekki einungis lágmarkstryggingu. 12.4.2011 18:31
Reyndu að sviðsetja innbrot í Borgarnesi Tveir piltar, 17 og 19 ára, reyndu að sviðsetja innbrot í Shellstöðina við Brúartorg í Borgarnes aðfaranótt mánudags. 12.4.2011 18:06
Úrslit MORFÍS í beinni á netinu í kvöld Úrslit MORFÍS fara fram klukkan 20 í Háskólabíói í kvöld. Í ár eru það Menntaskólinn við Sund og Menntaskólinn í Reykjavík sem munu etja kappi en MS hefur titil að verja eftir að skólinn vann Verzlunarskóla Íslands í úrslitunum í fyrra. 12.4.2011 17:40
Fyrrum einbýlishús Jóhannesar í Bónus til sölu Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sett fyrrum einbýlishús Jóhannesar Jónssonar, kenndur við Bónus, á sölu. Húsið er 427 fermetrar á stærð og er á rúmlega sextán þúsund fermetra lóð á stað sem nefndur er Hrafnabjörg. Útsýni er yfir Eyjafjörðinn og á Akureyri. Það er fasteignasalan Eignamiðlun sem sér um söluna á húsinu en ekki er verð á húsinu gefið upp heldur er óskað eftir tilboðum í húsið. 12.4.2011 17:05
Óvíst hvort framsóknarmenn styðji vantrauststillögu Bjarna Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins fagnaði í dag á þingi framlagningu vantrauststillögu Bjarna Benediktssonar en benti um leið á að hún væri á veikum grunni í ljósi þess að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu flestir sagt já í Icesave málinu. Hann telur alls óvíst hvort framsóknarmenn styðji tillöguna. 12.4.2011 16:17
Ekki sjálfgefið hvort Atli styðji tillögu um vantraust "Það er ekki sjálfgefið að ég muni styðja þessa tillögu, segir Atli Gíslason, fyrrverandi þingmaður VG sem nú er utan þingflokka. Hann segist ekki hafa kynnt sér vantrauststillögu Bjarna Benediktssonar sem hann hyggst leggja fram í dag. 12.4.2011 15:44
Vara við aukinni útfjólublárri geislun á Íslandi Undanfarnar vikur hefur mælst óvenju mikil eyðing ósonlagsins yfir norðurhveli jarðar sem rekja má til óvenjulegra kaldra háloftavinda sem hafa komið í veg fyrir að lofthjúpurinn yfir norðurheimskautinu blandaðist við loft frá suðlægari breiddargráðum. Upplýsingar frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni benda til að um 40% þynningu á ósonlaginu sé að ræða og hefur hún aldrei áður verið svo mikil á norðurhveli jarðar. Búast má við að áhrifa þessara eyðingar ósonlagsins muni gæta hér á landi í vor og í sumar með aukinni útfjólublárri geislun á heiðskírum dögum. Umhverfisstofnun hefur sent frá sér tilkynnigu vegna þessa þar sem því esr sérstaklega beint til útivistarfólks að nota sólvörn og sólgleraugu. Ósonlagið er það svæði í lofthjúp jarðar þar sem þéttleiki ósons er mestur, í 15-35 km hæð yfir jörðu, og verndar lífríki jarðar gegn hættulegum útfjólubláum geislum sólar. Þessi hættulega geislun getur skaðað lífið í sjónum, valdið húðkrabbameini, augnsjúkdómum og bælt ónæmiskerfi líkamans. Losun ósoneyðandi efna var bönnuð með alþjóðlegum samningi, Montrealbókuninni frá 1987, sem verður 25 ára á næsta ári. Hér á landi hefur notkun ósoneyðandi efna minnkað um 98% frá því hún var mest árið 1987. 12.4.2011 15:43
Jóhanna vill flýtimeðferð á vantrauststillögu Jóhanna Sigurðardóttir ætlar að óska eftir því við forseta Alþingis að vantrauststillaga Bjarna Benediktssonar fái flýtimeðferð í þinginu. Óvíst er hvenær tillagan verður tekin fyrir en heimildir fréttastofu herma að það gæti orðið á fimmtudaginn kemur. 12.4.2011 15:28
Jóhanna segir að Icesave muni leysast á endanum Jóhanna Sigurðardóttir segir að Svíar og Norðmenn hafi lofað áframhaldandi lánveitingum til handa Íslendingum þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave. Hún flutti munnlega skýrslu um málið í dag þar sem þetta kom fram meðal annars. Jóhanna sagði að ríkisstjórnin hafi verið í stöðugu sambandi við alla aðila málsins frá því niðurstaðan varð ljós og sagði hún róið öllum árum að því að skýra málstað Íslendinga. Sagði hún að viðbrögð við þeim skýringum hafi yfirleitt verið yfirveguð og fremur jákvæð. 12.4.2011 14:42
Steingrímur: Glöggt er gests augað „Ísland er ekki í neinum greiðsluvandræðum og verður ekki næstu árin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Hann gaf lítið fyrir orð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem stuttu áður boðaði úr pontu Alþingis að hann myndi leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Steingrímur benti á að sitjandi ríkisstjórn væri að vinna samkvæmt samningum sem síðasta ríkisstjórn átti hluta að, og þar með samningum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði sjálfur unnið að. Steingrímur benti á að Lars Christiansen, forstöðumaður greiningardeildar Danske Banke, segir nú að hagvöxtur sé hafinn á Íslandi á ný og horfur til framtíðar ágætar. Christiansen spáði árið 2006 fyrir um hrun íslenska efnahagsundursins. „Vonandi hefur hann rétt fyrir sér aftur að þessu sinni,“ segir Steingrímur og vitnaði í orðatiltækið: „Glöggt er gests augað.“ 12.4.2011 14:34
Bjarni leggur fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokki ætlar að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Þetta kom fram í máli hans þegar hann svaraði munnlegri skýrslu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um niðurstöður Icesave málsins. 12.4.2011 14:21
Hollendingar segja ESB aðild háða Icesave - ætla að beita sér innan AGS Fjármálaráðherra Hollands, Jan Kees de Jager, sagði í ræðu á hollenska þinginu í dag að aðild Íslendinga að Evrópusambandinu sé háð því að lausn finnist á Icesave-málinu. 12.4.2011 13:51
Jóhanna flytur skýrslu um niðurstöður Icesave og framhald málsins Jóhanna Sigurðardóttir mun í dag flytja munnlega skýrslu um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og framhald Icesave-málsins. Ræða Jóhönnu er fyrsta mál á dagskrá þingfundar sem hefst klukkan tvö. 12.4.2011 13:24
Bensínið hækkar enn - lítrinn kominn í 240 krónur Olíufélögin hækkuðu verð á bensíni enn einu sinni í morgun og er lítrinn kominn í tæpar tvö hundruð og fjörutíu krónur. Hæst er verðið hjá Skeljungi eða 239,8 krónur lítrinn. Þá er dísel lítrinn kominn yfir 242 krónur hjá stóru olíufélögunum þremur. Vart þarf að taka fram að eldsneytisverð hefur aldrei verið eins hátt hér á landi. Þess má þó geta að lægsta verðið á bensíni er nú hjá Orkunni eða rétt rúmar 235 krónur lítrinn. Tíðar bensínhækkanir undanfarnar vikur má rekja til heimsmarkaðsverðs á olíu sem náði hæstu hæðum á tveggja ára tímabili á mörkuðum í New York í síðustu viku. Hins vegar lækkaði verð á tunnu lítillega í gær og endaði undir 110 dollurum tunnan. Þá er þó umtalsvert hærra en verðið hefur verið síðastliðið ár. Hátt olíuverð orsakast aðallega af óeirðunum í Líbíu sem staðið hafa nú í um 6 vikur og hafa neikvæð áhrif á framboð olíu. Alþjóða orkumálastofnunin segir í nýjustu mánaðarskýrslu sinni að hátt olíuverð sé farið að hafa áhrif á eftirspurn eftir olíu og haldist verðið yfir 100 dollurum tunnan gæti það hægt á efnahagsbata í heiminum. 12.4.2011 12:00
Ágúst neitar sök - meint fórnarlamb er 19 ára Ungi maðurinn sem Ágúst Magnússon er grunaður um að hafa misnotað er 19 ára. Ágúst neitar sök en lögregla rannsakar nú tölvugögn hans. 12.4.2011 12:00
Fiskifingur innkallaðir Aðföng hafa ákveðið að innkalla Euro Shopper fiskifingur (en: fish fingers) í 900 gramma pappaöskjum. Ákvörðun um þetta var tekin í kjölfar tilkynningar frá ICA í Svíþjóð um að staðfest hafi verið að varan innihaldi afurð úr eggjum sem ekki er tilgreind í innihaldslýsingu. Varan var í dreifingu í verslunum Bónus og 10-11, en hefur verið tekin úr sölu á meðan merkingar eru endurbættar. Þar sem egg og afurðir úr þeim eru meðal þekktra ofnæmis- og óþolsvalda eru vörurnar varasamar fyrir ákveðna neytendahópa. Vörurnar eru öruggar og heilnæmar fyrir neytendur sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum og eggjaafurðum eða fiski og hveiti (glúten) sem eru tilgreind í innihaldslýsingu vörunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aðföngum. Aðföng hvetja neytendur sem kunna að eiga vöruna til og hafa ofnæmi fyrir eggjum eða eggjaafurðum að henda henni eða skila við fyrsta tækifæri til næstu verslunar Bónus eða 10-11 gegn fullri endurgreiðslu. Einnig má hafa samband beint við Aðföng í síma 530-5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is. 12.4.2011 11:41
Öll börn fædd 2009 fá leikskólapláss Foreldrar um 1.300 barna, sem fædd eru á árinu 2009 eða fyrr, hafa fengið boð um leikskólavistun eftir sumarleyfi í ágúst. Innritun barna í leikskóla Reykjavíkur stendur nú sem hæst, en eftir er að innrita á bilinu 200 og 300 börn. Stefnt er að því að öll börn fædd 2009 fái boð um leikskólapláss á árinu. Meðal annars er verið að skoða kosti þess að nýta betur húsnæði í eigu borgarinnar svo unnt verði að taka sem best á móti stærsta fæðingarárgangi sögunnar. Nýr leikskóli í Norðlingaholti mun taka til starfa í ársbyrjun 2012 og nokkrir sjálfstætt starfandi leikskólar hafa óskað eftir því að fjölga börnum. Áætlað er að innritun í borgarrekna leikskóla verði lokið í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Leikskólasvið hefur tekið í notkun nýtt innritunar- og innheimtukerfi, en með því skapast betri yfirsýn yfir barnfjölda, útskriftir úr leikskóla og inntökumöguleika í hverju hverfi og í hverjum skóla. Í þessu kerfi innrita leikskólastjórar sjálfir. Kerfið auðveldar þeim að hafa með sér samráð í hverju borgarhverfi, fara sameiginlega yfir umsóknir um leikskólapláss og uppfylla óskir foreldra, svo sem um að systkini dvelji í sama leikskóla. 6.865 börn dvöldu í leikskólum Reykjavíkur í byrjun ársins en gert er ráð fyrir að 7.118 leikskólarými verði í borginni í árslok. Inn í þeirri tölu eru einnig leikskólapláss í sjálfstætt starfandi leikskólum 12.4.2011 10:53
Barnaníðingur í kjördeild í Icesave-kosningunum Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníðingur, sat í kjördeild í Laugardalshöll í Reykjavík í Icesave-kosningunum sem fram fóru um helgina. Kjósendur sem þekktu Ágúst frá fyrri tíð eða af myndum úr fjölmiðlum brá nokkuð þegar það sá hann gæta að því að reglum væri fylgt á kjörstað, merktum kjörstjórninni. Gunnar Eydal, formaður kjörstjórnar í Reykjavík, staðfestir að Ágúst Magnússon hafi þarna átt sæti. "Við vorum alveg grunlaus," segir Gunnar. Hann tekur fram að kjörstjórn krefjist þess ekki að fulltrúar skili inn sakavottorði, og bendir á að kjörstjórn ræður til sín fyrir hverjar kosningar allt að 600 manns, þar af um 400 sem starfa í kjördeildunum sjálfum. "Það er erfitt að ná þessum fjölda," segir hann. Ágúst sat í þessari kjördeild í nokkrum kosningum hér á árum áður og er hefð fyrir því að leitað sé til fólks sem áður hefur starfað í kjördeildum. Gunnar segist ekki hafa þekkt til fortíðar Ágústs, þegar blaðamaður innti hann eftir því. Hann segir að ef forsvarsmenn kjörstjórnar hefði vitað af því að hann hafi verið dæmdur fyrir barnaníð hefði þurft að skoða sérstaklega hvort honum væri sætt í kjördeildinni. "Við hefðum þá skoðað það en ég get ekki sagt til um hvað hefði komið út úr því," segir hann. Það verður því lagt mat á það nú hvort Ágúst tekur oftar sæti í kjördeild, með hliðsjón af dómum hans og þeim mögulegu óþægindum sem kjósendur verða fyrir að hitta hann á kjörstað. Margdæmdur og á yfir höfði sér nýja ákæru Ágúst er margdæmdur barnaníðingur. Árið 2004 var hann dæmdur fyrir að misnota sex pilta kynferðislega. Árið 2007 gekk hann svo í gildru Kompás þegar hann var enn í afplánun vegna brotanna árið 2004 en þá hélt hann að hann væri að fara hitta 13 ára gamla stúlku. Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi kom síðan fram að Ágúst á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn ungum misþroska manni fyrr á þessu ári. Ágúst var handtekinn á heimili sínu í síðasta mánuði og voru tölvur meðal annars gerðar upptækar á heimili hans. Í Kastljósi kom fram að hann hafi ekið með unga manninn á afskekktan stað og beitt hann kynferðislegri misnotkun. Í janúar í fyrra ákvað Fangelsismálastofnun að framlengja reynslulausn hans um eitt ár vegna þess að hann var talinn vera hættulegur. Ágúst var því á reynslulausn þegar hann braut gegn unga manninum. 12.4.2011 10:22
Stal fullum poka af matvælum Poka fullum af matvælum var stolið af íbúa í Vestmannaeyjum síðasta þriðjudag. Eigandinn var að bera muni úr bifreið sinni upp tröppur sem liggja að íbúð hans á Bárustíg 66. 12.4.2011 09:40
Flestir segja sig úr Þjóðkirkjunni Þann 1. janúar voru fullorðin sóknarbörn í Þjóðkirkjunni (18 ára og eldri) 183.697 eða 77,2% mannfjöldans. Fyrir ári síðan voru fullorðnir félagsmenn Þjóðkirkjunnar 3.000 fleiri og hlutfallið 78,8% af mannfjöldanum. Kaþólska kirkjan er næstfjölmennasta trúfélag landsins með 6.366 félagsmenn 18 ára og eldri. Utan trúfélaga voru 11.868 fullorðnir einstaklingar skráðir 1. janúar 2011, eða 5% mannfjöldans. Á síðasta ári voru8.483 utan trúfélaga, eða 3,6%, og fjölgar því fólki utan trúfélaga á milli ára. Um áramótin voru 14.846 í óskráðu trúfélagi eða með ótilgreinda trúfélagsaðild. Alls voru 6.810 breytingar á trúfélagsaðild skráðar árið 2010. Flestir skráðu sig úr Þjóðkirkjunni, alls 5.092. Það eru rúmlega helmingi fleiri en skráðu sig úr Þjóðkirkjunni árið 2009 (1.982). Flestir þeirra létu skrá sig utan trúfélaga, 3.619, en allnokkrir í einhvern fríkirkjusafnaðanna þriggja (960). Flestar nýskráningar voru utan trúfélaga árið 2010, alls 3.855. Af trúfélögum voru flestar nýskráningar í Kaþólsku kirkjuna (653). Flestir þeirra voru áður í óskráðu trúfélagi eða ótilgreindu (617). 12.4.2011 09:01
Öll börn fædd á árinu bólusett Öll börn fædd á árinu 2011 og síðar verða bólusett gegn pneumókokkasýkingum, og munu bólusetningarnar hefjast síðar í apríl, samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu. 12.4.2011 09:00
Húsráðandi svaf af sér innbrotsþjóf Brotist var inn í íbúð og þaðan stolið tölvum og flatskjá. Virðist sem þjófarnir hafi komist inn um svalahurð. 12.4.2011 08:38
Bruggari handtekinn á Akranesi Lögreglan á Akranesi lagði hald á liðlega 200 lítra af gambra og 17 lítra af landa í vikunni. Vísbendingar höfðu borist um að bruggun stæði yfir í íbúð í bænum. 12.4.2011 08:35
Borgin greiðir ekki fyrir börn alkóhólista Reykjavíkurborg stöðvaði allar greiðslur til SÁÁ um síðustu áramót vegna þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Engar greiðslur hafa komið frá borginni til göngudeildar SÁÁ vegna þessarar þjónustu en stærsti hluti fjárveitingarinnar fór í sálfræðiþjónustu fyrir börn áfengis- og vímuefnasjúklinga sem sýna einkenni um álag og streitu. Þessi börn eru fæst byrjuð að nota vímuefni og eru á aldrinum 8-14 ára. Þau eru í mestri áhættu allra að eiga í erfiðleikum vegna vímuefna í framtíðinni. Þetta kemur fram í frétt á vef SÁÁ en fyrirsögnin þar er: „Reykjavíkurborg hættir að greiða fyrir börn alkóhólista.“ Þar segir að á árunum 2008-2010 var í gildi samstarfssamningur milli Reykjavíkurborgar og SÁÁ um þjónustu fyrir fjölskyldur áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ekkert bólar á nýjum samstarfssamningi eða þjónustusamningi. Forráðamenn SÁÁ bíða og halda úti óskertri þjónustu en nú alfarið á reikning SÁÁ. Fréttin á vef SÁÁ. 12.4.2011 08:35
Garðyrkjumenn gegn ESB Aðalfundur Sambands garðyrkjumanna lýsir andstöðu sinni við aðild Íslands að Evrópusambandinu og stuðningi við stefnu Bændasamtakanna í því máli. 12.4.2011 08:06
Femínistar gagnrýna VG Það er ekki í anda fæðingarorlofslaga að víkja Guðfríði Lilju Grétarsdóttur úr embætti þingflokksformanns þegar hún koma til baka úr fæðingarorlofi og hlýtur að vera á skjön við stefnu Vinstri grænna í jafnréttismálum, segir í ályktun Femínistafélags Íslands. 12.4.2011 08:04
Minnka á magndrykkju Í nýju frumvarpi fjármálaráðherra til breytinga á lögum um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er lagt til að stofnunin verði án stjórnar og heyri beint undir fjármálaráðherra. 12.4.2011 08:00
Vilja lög gegn dýrakynlífi Stjórnmálamenn og dýraverndunarsamtök í Danmörku hafa kallað eftir löggjöf gegn kynlífi með dýrum eftir umdeilda heimildarmynd sem sýnd var nýverið í sjónvarpi. 12.4.2011 08:00
Fréttaskýring: Eftirlitsstofnun bíður svars Íslands við áminningarbréfi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fullyrðir að ESA hafi ekkert sagt um Icesave sem mark sé á takandi. Frumniðurstöður ESA eru þegar komnar fram og eru þvert á fullyrðingar íslenskra stjórnvalda. 12.4.2011 07:00
Jafnmargir hlynntir og andvígir hernaði Svipað hlutfall landsmanna styður hernaðaríhlutun aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Líbíu og er andvígt hernaðinum, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. 12.4.2011 07:00
Óvæntur stormur og eldingum laust niður „Þetta er svolítið vetrarlegt,“ viðurkennir Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, spurður um harðar sviptingar í veðrinu síðustu daga. 12.4.2011 07:00
Nefnd þingmanna móti öryggisstefnu Nefnd tíu þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi verður falið að móta þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland nái þingsályktunartillaga sem utanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi fram að ganga. 12.4.2011 06:00
Hópur fjárfesta kaupir MP Banka „MP Banki er það lítill að hann þarf ekki að fara út í meiri háttar tiltektir. Hann hefur ekki þegið styrki eða fyrirgreiðslu frá hendi ríkisins. Það finnst mér skipta miklu máli,“ segir fjárfestirinn Skúli Mogensen, aðaleigandi MP Banka. 12.4.2011 06:00
Lífeyrissjóðsstjóri átti rétt á að fá gögn Synjun Fjármálaeftirlitsins (FME) um afhendingu umbeðinna gagna til Ingólfs Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga, skorti lagastoð að mati umboðsmanns Alþingis. 12.4.2011 05:00