Fleiri fréttir

Úrræðum fyrir börnin ábótavant

Börn með ADHD verða oft á tíðum fyrir fordómum og dregið hefur úr stuðningsúrræðum innan skólanna fyrir börn með hegðunar- og þroskafrávik. Þetta er mat fimm barna- og unglingageðlækna á BUGL, sem Læknablaðið greinir frá.

Ekki skatta á almenningssamgöngur

Fyrirhugaður starfshópur ríkisstjórnarinnar um viðbrögð við verðhækkunum á eldsneyti mun meðal annars skoða eflingu almenningssamgangna í samstarfi við sveitarfélög landsins.

Leitað að bestu blaðaauglýsingunni

Sameinuðu þjóðirnar í Evrópu hleypa af stokkunum í dag, á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, samkeppni um bestu blaðaauglýsinguna til höfuðs ofbeldi gegn konum.

Virði eigna bankans jókst um 135 milljarða

Mat á verði eigna Kaupþings banka jókst um 135 milljarða króna á árinu 2010. Hækkunin nemur 17 prósentum. "Þá hefur verið leiðrétt fyrir áhrifum vegna 12 prósenta styrkingar á gengi krónunnar á tímabilinu,“ segir í tilkynningu skilanefndar bankans.

Listaverk úr snyrtivörum íslenskra kvenna á uppboði

Uppboð stendur yfir á verkum íslenskra listakvenna sem þær unnu úr snyrtivörum sem konur gáfu til gjörningsins Litróf íslenskra kvenna. Allur ágóði af uppboðinu rennur óskiptur til Stígamóta fyrir þolendur mansals og vændis.

Auglýsa þjóðaratkvæðagreiðsluna

Innanríkisráðuneytið hefur birt auglýsingu um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram þann 9. apríl um Icesave-lögin, sem Alþingi samþykkti 16. febrúar síðastliðinn en forseti Íslands vísaði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þann 16. mars.

Fluttur á slysadeild eftir árekstur

Einn ökumaður var fluttur á slysadeild með minniháttar áverka eftir árekstur á Austurvegi á Selfossi, rétt hjá lögreglustöðinni, um klukkan sjö í kvöld.

Maðurinn fundinn

Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í dag er kominn í leitirnar. Í tilkynningu frá lögreglu var óskað eftir því að ná tali af manninum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Afkoma bankanna úr takti við allt annað

Forsvarsmenn viðskiptabankanna þriggja munu mæta á fund viðskiptanefndar Alþingis í fyrramálið til að ræða ársreikninga og afkomu bankanna. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, óskaði eftir því að efnt yrði til fundarins.

Halda alþjóðadag hátíðlegan

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) efnir til hátíðarhalda á morgun í tilefni alþjóðadags kvenna. Hátíðin fer fram á Grand hóteli frá klukkan 17 til 19. Allar konur eru velkomnar ásamt gesti.

Vill að ríkið sendi skýr skilaboð og afnemi ábyrgð á innistæðum

Forseti ASÍ vill að stjórnvöld sendi bönkunum skýr skilaboð vegna ofurlauna og afnemi ríkisábyrgð á innistæðum. Forsætisráðherra segir framferði bankastjóra Arion banka og Íslandsbanka óþolandi ögrun og beina ógn við stöðugleika og frið í samfélaginu.

Óskar eftir vitnum að umferðarslysi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á mótum Arnarhrauns og Smyrlahrauns í Hafnarfirði sl. föstudagsmorgun, 4. mars, rétt fyrir kl. ellefu, eða 10.48. Þar var ekið á gangandi vegfaranda en ökumaðurinn fór strax af vettvangi án þess að skeyta um hinn slasaða.

Keyrði á gangandi vegfaranda og stakk af

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á mótum Arnarhrauns og Smyrlahrauns í Hafnarfirði síðastliðinn föstudagsmorgun klukkan tólf mínútur í ellefu.

Ekki senda afdankaða þingmenn

Varaforseti Evrópuþingsins, Diana Wallis, segir þingið stöðugt sækja í sig veðrið og fulltrúar þar hafi æ meiri pólitíska vikt. Áður loddi við þingið að þangað settust stjórnmálamenn í helgan stein.

Nafn drengsins sem lést

Drengurinn sem lést á sveitabæ á Mýrum í Borgarbyggð í fyrradag hét Kristófer Alexander Konráðsson. Hann var á sjötta aldursári, fæddur 6. júlí árið 2005. Foreldrar Kristófers Alexanders eru Ásrún Harðardóttir og Konráð Halldór Konráðsson. Þau búa að Flétturima 24 í Grafarvogi.

Einungis brot af fénu fundið

Enn hefur ekki tekist að finna nema brot af þeim fjármunum sem sviknir voru út úr virðisaukaskattskerfinu snemma á síðasta ári í einu umfangsmesta fjársvikamáli Íslandssögunnar. Lögreglan rannsakar enn málið, segir Jón HB Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Framkvæmdir gætu hafist með haustinu

Vinna við deiliskipulag lóðar nýja Landspítalans við Hringbraut í Reykjavík er vel á veg komin. Unnið er á grundvelli tillögu Spital-hópsins sem varð hlutskörpust í samkeppni um hönnun spítalans.

Fundu kannabisplöntur og haglabyssu í Þorlákshöfn

Lögreglan á Selfossi gerði húsleit í Þorlákshöfn á föstudag vegna gruns um kannabisræktun. Sú var raunin því lögreglumenn fundu þar á sjötta tug kanabisplantna sem voru í ræktun. Þær voru á mismunandi þroskastigi. Í tilkynningu frá lögreglu segir að hald hafi verið lagt á plönturnar og tilheyrandi búnað.

Lögmaður á skilorð fyrir stórfelldan fjárdrátt

Fimmtug kona hefur verið dæmd í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Konan játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness að hafa í starfi sem héraðsdómslögmaður, dregið sér og einkahlutafélögum sem hún stjórnaði, 12 milljónir króna, sem hún tók við frá forsvarsmanni byggingafélags árið 2006.

Jóhanna: Engin siðleg réttlæting á ofurlaunum bankastjóra

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að engin siðleg rættlæting sé á þeim ofurlaunum sem æðstu stjórnendur Arionbanka og Íslandsbanka hafa fengið á liðnu ári. Framferði þeirra sé óþolandi ögrun og bein ógn við stöðugleika og frið í samfélaginu.

Veist þú hver þetta er?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444-1000.

Stéttarfélög vilja fund með Isavia - óánægja á meðal starfsmanna

Formenn þriggja stéttarfélaga innan vébanda BSRB ætla að fara fram á fund með forstjóra og stjórnarformanni Isavia, ásamt með forsvarsmönnum BSRB, vegna dóms vegna kynferðislegrar áreitni sem upp kom hjá fyrirtækinu á dögunum. Félögin þrjú, Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag íslenskra flugumferðarstjóra og SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu, héldu sameiginlegan fund um málið í síðustu viku og kom þar fram óánægja vegna þessa máls, sem og annarra hjá fyrirtækinu, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu BSRB.

Rottweiler hundur réðst á konu

Rottweiler hundur sem var bundinn við íbúðarhús í Hveragerði réðst á konu á föstudaginn og beit hana í úlnliðinn. Konan var að koma að húsi þar sem hún hugðist heimsækja fólk.

Ekki tekið á yfirgefnum sjókvíum í lögum

Tvö fyrirtæki, Arnarlax og Fjarðalax, vilja heimild fyrir samtals 4.500 tonna laxeldi í Arnarfirði. Vesturbyggð segist í umsögn til Skipulagsstofnunar ekki telja að það eigi að vera háð mati á umhverfisáhrifum.

Hvalfjarðargöngum lokað vegna umferðaróhapps

Umferðaróhapp varð í Hvalfjarðargöngunum nú á tíunda tímanum og hefur göngunum verið lokað um stund. Óhappið varð með þeim hætti flutningabíll rakst utan í kant með þeim afleiðingum að olía lak úr bílnum. Ekki liggur fyrir hvort göngin hafi verið opnuð aftur eða þá hvenær það mun gerast.

500 barnaníðsmál send lögreglu

Nær 500 ábendingar af rúmlega fimm þúsund, sem borist hafa Barnaheillum um myndefni þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt, hafa verið sendar áfram til lögreglu.

Samtök lífrænna neytenda stofnuð í kvöld

Stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda verður haldinn í kvöld. Tilgangur þeirra er að stuðla að aukinni framleiðslu og neyslu vottaðra lífrænna vara á Íslandi með velferð almennings, búfjár og umhverfisins að leiðarljósi.

Ófærð á Norðurlandi

Ófært er á milli Reykjavíkur og Akureyrar þar sem bæði Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði eru ófærar. Nokkur hundruð manns, þeirra á meðal nokkarar rútur með skólakrökkum nýttu sér nýja hjáleið um Héðinsfjarðargöngin og síðan um Laxárdalsheiði, og komust þannig suður í gærkvöldi.

Rúmir 4 milljarðar í lækna sem búa úti

Ríkið hefur greitt að minnsta kosti 4,3 milljarða króna í menntun íslenskra lækna sem nú búa og starfa erlendis. Árlegur kostnaður þess að mennta lækni hér á landi er 1,4 milljónir. Fullt læknanám tekur sex ár og hefur ríkið því borgað um 8,5 milljónir króna fyrir hvern fullmenntaðan lækni. Eru þessar tölur miðaðar við fjárlög ríkisins 2011 til Háskóla Íslands (HÍ), sem þó lækkuðu um 7 prósent frá árinu áður. Því má gera ráð fyrir að kostnaður við menntun lækna hafi áður verið hærri. Er hér einungis verið að tala um beint framlag ríkisins til læknanáms við HÍ, en ekki námslán og aðra framfærslu nema.

Eldingar á höfuðborgarsvæðinu

Eldingar sáust á himni og þrumugnýr heyrðist á höfuðborgarsvæðinu á sjötta tímanum í morgun, en ekki er vitað til að eldingu hafi slegið niður með skaðlegum afleiðingum. Mjög mikil ókyrrð er nú í lofti víða yfir landinu, en við þau skilyrði er hætt við eldingum.

Þrír í haldi á Selfossi grunaðir um kynferðisbrot

Lögreglan á Selfossi handtók í gær þrjá karlmenn, eftir að henni barst kæra um kynferðisbrotamál í gærmorgun. Mennirnir munu enn vera í vörslu lögreglunnar, en yfirheyrslur stóðu fram á nótt.

Klessti bíl í Skuggahverfinu og fór í heimsókn

Ekið var á kyrrstæðan mannlausan bíl í Skuggahverfinu í Reykjavík i nótt og sáu vitni tvær konur hlaupa af vettvangi. Lögreglumenn náðu að rekja spor þeirra í snjónum heim að húsi, þar sem þær reyndust báðar vera gestkomandi, og handtóku konuna, sem talið er að hafi ekið bílnum. Hún gistir nú fangageymslur. Bíll hennar skemmdist mikið og bíllinn sem hún ók á töluvert, að sögn lögreglu.

Gönguskíðamenn komnir til byggða

Björgunarsveitir Landsbjargar komu laust fyrir klukkan sex í morgun til byggða með þrjá skíðagöngumenn, sem þeir björguðu í slæmu veðri af Öræfajökli í nótt. Mennirnir eru heilir á húfi enda voru þeir mjög vel búnir. Þeir óskuðu eftir aðstoð í gærkvöldi og gátu gefið upp staðsetningu. Björgunarsveitarmenn komu að þeim klukkan eitt í nótt. Að sögn björgunarsveitarmanna var afleitt veður á jöklinum í nótt og sóttist ferðin ofan af jöklinum hægt.

Níu af hverjum tíu bændum á móti ESB

Ný skoðanakönnun sýnir að yfir níutíu prósent bænda eru mótfallin inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þetta kom fram á árlegu Búnaðarþingi Bændasamtaka Íslands sem var sett í gær undir yfirskriftinni „Ræktum okkar land“.

Ljóst að fólk missir vinnuna hjá SpKef

Formenn samtaka samtaka sveitarfélaga á Vestfjörðum og Suðurnesjum hafa áhyggjur af yfirtöku Landsbankans á SpKef. Ljóst sé að fólk muni missa vinnuna.

Vítisenglarnir komnir heim

Átta liðsmenn íslensku Vítisenglanna komu til landsins á tólfta tímanum í gærkvöldi frá Osló. Þeir stigu sjálfviljugir upp í flugvél á Gardemoen-flugvelli samkvæmt upplýsingum frá lögmanni þeirra.

Ráðuneyti flytjast til

Breytingar á húsnæðisskipan stjórnarráðsins vegna sameininga ráðuneyta hafa verið ákveðnar og hrint í framkvæmd að hluta. Sameining ráðuneyta heilbrigðis- og félagsmála í velferðarráðuneyti og ráðuneyta samgöngu- og dómsmála í innanríkisráðuneyti kallaði á flutninga.

Beiðnunum er jafnan hafnað

Á árabilinu 2000 til 2010 barst Hæstarétti 41 beiðni um endurupptöku máls sem dómurinn hafði dæmt. Af þeim voru þrjár samþykktar.

Tekið verði tillit til sjónarmiða ungs fólks

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, vill að vegur ungs fólks í samfélaginu verði aukinn og hefur kynnt í ríkisstjórn áform um mótun heildstæðrar stefnu í málefnum þess. Engin slík heildstæð stefna er til þótt eftir henni hafi verið kallað, meðal annars af hálfu þeirra sem starfa að æskulýðsmálum.

Sjá næstu 50 fréttir