Fleiri fréttir

Grímuklædd börn slá köttinn úr tunnunni

Öskudegi er fagnað í dag og má því búast við grímuklæddum börnum syngja fyrir nammi um landið allt. Víða er haldið í þann sig að slá köttinn úr tunnunni og verður það gert á Thorsplani í Hafnarfirði þar sem öskudagsskemmtun hefst klukkan eitt. Björgvin Franz Gíslason, sem krökkunum er af góðu kunnur úr Stundinni okkar, verður kynnir á skemmtuninni þar sem meðal annars verður sýnt atriði úr söngleiknum Grease og keppt um flottustu öskupokana. Þá býður Hafnarfjarðardeild Rauða kross Íslands til vöffluveislu í tilefni af 70 ára afmæli sínu í Rauðakrosshúsinu við Thorsplanið.

Íslendingar vilja 16% makrílkvótans

Enn á að reyna að ná samkomulagi um nýtingu makrílstofnsins á fundi, sem hefst í Osló í dag. Himinn og haf ber í milli krafna Íslendinga annarsvegar, og hugmynda Norðmanna og Evrópusambandsins hinsvegar, um hlutdeild Íslendinga í honum. Við viljum 16 til 17 prósent af heildarkvótanum, en Norðmenn og Evrópusambandið hafa boðið okkur liðlega þrjú prósent. Síðast þegar fundað var um málið í nóvember í fyrra, slitnaði upp úr viðræðunum.

Vilja Vaðlaheiðargöng

Stofnfundur nýs félags um gerð jarðganga undir Vaðlaheiði verður haldinn á Akureyri fyrir hádegi. Með tilkomu ganganna myndi leiðin á milli Akureyrar og Húsavíkur styttast um 14 kílómetra og verða liðlega 80 kílómetrar og ekki þyrfti lengur að fara um Víkurskarð, sem oft er farartálmi að vetrarlagi.

Vatnsleki á Akureyri og hjá Hjálpræðishernum

Miklar skemmdir urðu í íbúð í fjölbýlishúsi á Akureyri þegar heitavatnskrani gaf sig og heitt vatn flæddi um alla íbúðina í nótt. Íbúarnir voru fjarverandi og þar sem íbúðin er á jarðhæð varð þessa ekki vart fyrr en mikið vatn hafði lekið út.

Úrslit Íslensku tónlistarverðlaunanna

Bjartmar Guðlaugsson, Jónsi, Jónas Sigurðson og Ólöf Arnalds voru á meðal þeirra sem hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi.

Forseti fær minna en handhafar halda sínu

Launalækkun sem forseti Íslands fór fram á í árslok 2008 nær ekki til staðgengla hans. Forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar þáðu um 1,6 milljónir króna hver á síðasta ári fyrir að gegna starfi handhafa forsetavalds þegar forsetinn var erlendis.

Gunnar í Krossinum fagnar aðkomu lögreglu

Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins, segist fagna því að mál hans sé komið í lögformlegan farveg. Gunnar sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar umfjöllunar um að konurnar sex sem saka hann um kynferðislega áreitni hafi tilkynnt málin til lögreglu.

Segja grasrótarstarfi stefnt í hættu

Leikskólastjórnendur í Reykjavík eru efins um að víðtækar sameiningar stofnana muni koma til með að skila fjárhagslegum ávinningi og segja meiri möguleika felast í samráði við fagfólk.

Þekkir þú þessa styttu?

Lögreglan á Akureyri óskar eftir upplýsingum um eiganda styttu sem að er í óskilum hjá lögreglunni á Akureyri.

Móðir fórnarlambs eineltis: Þetta hefur haft mikil áhrif á hann

"Þetta byrjaði sumarið eftir 2. bekk og hann hefur verið mjög einangraður alltaf,“ segir Berglind Þorvaldsdóttir, móðir ellefu ára gamals drengs í Hveragerði sem hefur ekki treyst sér til að mæta í skólann í heilan mánuð vegna eineltis. Hún segir í viðtali við Ísland í dag að hún sé búin að fá nóg og ætlar að flytja frá bænum.

Þjóðin þarf að þola laun bankastjóranna

Efnahags- og viðskiptaráðherra segir ekki óeðlilegt að bankarnir hagi launum æðstu stjórnenda þannig að almenningur þoli þau, á sama tíma og innistæður bankanna séu tryggðar af ríkinu.

Nítján starfsmenn handteknir í húsleitunum

Nítján starfsmenn Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins voru handteknir og færðir til yfirheyrslu í samhliða húsleit ríkislögreglustjóra og Samkeppniseftirlitsins í dag. Lagt var hald á gögn og muni í þágu rannsóknarinnar.

Hætt að slá köttinn úr tunnunni

Nú er svo komið að undanfarin ár hefur þeim krökkum sem mæta á Ráðhústorgið til þess að slá köttinn úr tunnunni fækkað mjög og virðist sem þessi viðburður eigi undir högg að sækja í samkeppninni. Af þessum sökum hefur Norðurorka hf. ákveðið að hætta að slá köttinn úr tunnunni á Ráðhústorgi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurorku.

Bíll Sunnu klár - útrýmum einelti

Nú er bíllinn hennar Sunnu Bjarkar tilbúinn, stífbónaður og fínn eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði en Sunna varð fyrir óskemmtilegri reynslu þegar hún sá sér til mikillar skelfingar að bíllinn hennar, silfurlitaður Nissan Almera árgerð 2001, var ekki ökufær fyrir rúmri viku síðan því skemmdarvargar höfðu í skugga nætur brotið öll ljósin og rúðuþurkurnar. Þá voru kopparnir fjarlægðir, loft tekið úr dekkjum og eggjum grýtt í framrúðu bílsins. Unga fólkið sem gerði þetta gaf sig fram tveimur dögum síðar og baðst afsökunar. Bíllinn var í góðum höndum hjá Ingvari Helgasyni en þar hafa starfsmenn í samvinnu við starfsmenn Vöku og fleiri góðhjartaða menn tekið að sér að laga bílinn eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði þar sem Þór Marteinsson deildarstjóri sýnir endanlegt útlit bílsins. Sunna og fjölskylda hennar hafa gáfu andvirði viðgerðar á bílnum, sem skemmdarvargarnir samþykktu að greiða, óskert til samtaka Regnbogabarna sem hafa það að markmiði að gera börnum kleift að lifa án félagslegs áreitis og ofbeldis.

Bjarni leggst gegn hugmyndum um hátekjuskatt

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki koma til greina af sinni hálfu að samþykkja 70% skatt á hálaunafólk. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á bloggsíðu sinni í dag að hún treysti því að lagt verði fram frumvarp um 70-80% skatt á þá sem eru með yfir 1200 þúsund krónur í laun á mánuði. Eftir ríkisstjórnarfund í morgun sagðist Steingrímur J. Sigfússon ekki útiloka hátekjuskatt á ofurlaunamenn.

Íbúar í 105 og 108 hvattir til að moka frá sorptunnum

Íbúar í Teigunum, Sundunum, Leitunum og Gerðunum í Reykjavík eru beðnir um að moka snjó frá sorptunnum við heimili sín í kvöld ef þeir eiga þess kost. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

KK og Erpur þukla á sér punginn

Mottumars er nú í fullum gangi og safna karlmenn nú yfirskeggi eins og enginn sé morgundagurinn. Á dögunum var opnuð ljósmyndasýning í Kringlunni þar sem nokkrir valinkunnir karlmenn sýna á sér mottuna.

Gleri rigndi yfir háskólafólk

Betur fór en á horfðist þegar glerveggur sprakk á Háskólatorgi í Háskóla Íslands eftir hádegi í dag. Þótt glerinu hafi rignt yfir nærstatt fólk sluppu allir ómeiddir. "Það sat náttúrlega fólk við borð þarna við rúðuna og fékk gler yfir sig en það meiddist enginn," segir Vilhjálmur Pálmason, umsjónarmaður fasteigna, í samtali við Vísi.

Kynin í tölum: Konur í körfubolta en karlar í knattspyrnu

Fleiri konur eru félagar í Sambandi íslenskra listamanna en fleiri karlar eiga verk á Listasafni Reykjavíkur. Laugardalslaug og Árbæjarlaug eru vinsælustu sundlaugarnar í Reykjavík og eru karlmenn í meirihluta meðal sundgesta.

Á annað hundrað lífrænir neytendur á stofnfundi

Vel á annað hundrað manns sóttu stofnfund Samtaka lífrænna neytenda í Norræna húsinu í gærkveldi. Undibúningur að stofnun samtakanna hefur staðið yfir í nokkra mánuði en mikill áhugi vaknaði á stofnun formlegra samtaka eftir að óformleg samtök lífrænna neytenda fengu góðar undirtektir á Facebook.

Vill stríðsskatt á tekjuháa

Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, hefur áhyggjur af því að launamunur á Íslandi stefni í að verða sá sami og varð fyrir bankahrun. Hún vill gera breytingar á hátekjuskatti og setja sérstakan skatt á þá sem eru með meira en milljón í tekjur. Slíkur skattur yrði þá nokkurskonar stríðsskattur.

Tekinn tvisvar í annarlegu ástandi undir stýri

Karl á þrítugsaldri var tekinn í tvígang fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur um helgina. Fyrst var hann stöðvaður í miðborginni um miðnætti á föstudagskvöld og reyndist þá vera í annarlegu ástandi við stýrið. Aðfaranótt sunnudags var maðurinn aftur kominn á stjá og ökuferð hans var stöðvuð í miðborginni vegna þess að hann var ekki í ökuhæfu ástandi. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrsta frávísun í landsdómi

Hvorki verjandi Geirs Haarde né saksóknari Alþingis gera athugasemdir við hæfi þeirra dómara sem skipaðir eru í landsdóm. Landsdómur kom saman í dag vegna deilu um aðgang að upplýsingum úr Þjóðskjalasafni. Í tengslum við það deilumál hafði Héraðsdómur synjað Andra Árnasyni, lögmanni Geirs, um aðild að málinu á rannsóknarstigi.

Hafna ásökunum um verðsamráð

Byggingavöruverslanirnar BYKO og Húsasmiðjan hafna báðar ásökunum um brot á samkeppnislögum. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og Samkeppniseftirlitið gerðu húsleitir hjá báðum þessum aðilum í morgun. Auk þess var húsleit gerð hjá byggingavöruversluninni Úlfurinn. Til skoðunar er meint verðsamráð milli aðila á byggingavörumarkaði.

Ekki hægt að opna í Bláfjöllum

Ekki verður hægt að opna í Bláfjöllum klukkan tvö eins og ráð hafði verið fyrir gert. Þrátt fyrir að nýfallinn snjór sé yfir svæðinu öllu er veðrið ekki hagstætt. Bætt hefur í vind með meiri snjókomu þannig að ekkert verður af opnun í dag.

Þungt hljóð í leikskólastjórum

Talsmaður leikskólastjóra á höfuðborgarsvæðinu segir þungt hljóð hafa verið í fólki á fundi sem haldinn var á menntasviði í morgun. Hópur leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra ætla í meðmælagöngu í hádeginu þar sem mælt er með því að Reykjavíkurborg endurskoði sameiningar- og niðurskurðartillögur.

Lögreglan og Samkeppniseftirlitið gerðu húsleitir

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans og Samkeppniseftirlitið gerðu í dag húsleitir í húsnæði Byko hf., Húsasmiðjunnar hf. og Úlfsins byggingarvörur. Frekari upplýsingar um málið hafa ekki fengist en von er á fréttatilkynningu vegna þess.

Kvenréttindi, skrýtnar stelpur og fjallkona

Í ársbyrjun sameinaðist UNIFEM þremur systurstofnunum innan Sameinuðu þjóðanna. Þessi tímamótastofnun hefur hlotið nafnið UN Women og tók formlega til starfa á alþjóðavísu 24. febrúar síðastliðinn við mikinn stjörnufans í New York

Heimilisfólk á Hrafnistu með hatta og hárkollur

Heimilismenn og starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík slá upp hattaballi á morgun, öskudag, klukkan hálf tvö. Af því tilefni er vinnustofan á 4. hæð með opið verkstæði í dag þar sem heimilismönnum og starfsmönnum gefst kostur á að koma og spreyta sig áfram í hatta- og hárkollugerð fyrir ballið. Dansleikurinn á morgun verður haldinn í miðrýminu á 4. hæð. Fyrir dansi leika Böðvar Magnússon og félagar í Hrafnistubandinu. Fyrir hádegi koma börn frá Ásborg í heimsókn á allar deildir Hrafnistu og syngja fyrir heimilisfólk.

Allt á kafi í snjó í Bláfjöllum

„Hér er púðursnjór yfir öllu og stefnum við á opnun kl. 14-21,“ segir í tilkynningu frá framkvæmdastjóra skíðasvæðisins í Bláfjöllum. Þar hefur snjóað í nótt eins og í borginni því stefnir í frábæran dag í fjöllunum.

Umferð gengið hægt en áfallalaust

Segja má að snjónum hafi kyngt niður í nótt og voru víða skaflar. Þetta hafði töluverð áhrif á umferð í morgunsárið og máttu margir sætta sig við að mæta of seint í vinnu sökum þess.

Aukning á notkun stefnuljósa

Mikil aukning varð á notkun stefnuljósa á Korputorgi milli þess sem Umferðarstofa gerði þar kannanir á notkuninni. Engin breyting varð hins vegar á notkun ökumanna við Ánanaust.

Úrskurðað um trúnaðargögn þegar landsdómur kemur saman

Landsdómur mun koma saman í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu klukkan eitt í dag. Þar er annars vegar stefnt að því að flytja kröfu saksóknara Alþingis um að fá aðgang að tölvupóstsamskiptum Geirs Hilmars Haarde meðan hann var forsætisráðherra.

Meðmælaganga leikskólastjórnenda á fund borgarstjóra

Meðmælaganga þar sem mælt er með því að Reykjavíkurborg endurskoði sameiningar- og niðurskurðartillögur á leikskólum verður haldin í dag. Fyrir göngunni standa leikskólastjórnendur og aðstoðarleikskólastjórnendur í borginni sem ganga á fund borgarstjóra í hádeginu.

Ætlar að þvera Ísland á snjódreka - á einum degi

Franski ofurhuginn Jerome Josserand ætlar sér að þvera Ísland á fimmtudaginn kemur á aðeins einum degi. Jerome er atvinnumaður í því að láta stóran flugdreka draga sig eftir mjöllinni, en fyrirbærið er kallað „snowkiting" upp á ensku. Hann á meðal annars heimsmetið í stökki á slíku tæki en hann fór um 450 metra í einu stökki.

Baráttudagur kvenna

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna, 8. mars, er 100 ára í ár. Fjöldi viðburða er víða um land vegna þessa.

Enn hækkar bensínið

Stóru olíufélögin þrjú hafa hækkað verðið á eldsneytislítranum um fimm krónur og kostar lítrinn af 95 oktana bensíni nú yfirleitt það sama hjá þeim öllum, eða 231,90. Dísellítrinn kostar 236,80 hjá sömu aðilum. Hjá Orkunni er lítrinn af 95 oktana bensíni á 225.60 krónur og Atlantsolía rukkar 225.70. Sama gerir ÓB.

Steinþór með lægstu bankastjóralaunin

Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans er launalægstur bankastjóra stóru viðskiptabankanna. Hann hefur tæplega 1,1 milljón króna á mánuði, að því er fram kemur í úrskurði kjararáðs frá því í febrúar á síðasta ári, og er ekki hálfdrættingur við Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, sem er með 2,6 milljónir á mánuði. En hún er hinsvegar liðlega hálfdrættingur við Höskuld Ólafsson, bankastjóra Arion banka, sem er með 4,3 milljónir á mánuði, eða tæplega fjórfalt hærri laun en bankastjóri Landsbankans.

Lögreglan rakti spor þjófsins í snjónum

Þjófar brutust inn í raftækjaverslunina Max í Kauptúni í Garðabæ í morgun og voru á leið út úr versluninni með 32 tommu flatskjá, þegar styggð kom að þeim og þeir skildu fenginn eftir á flóttanum. Þeir komust undan og er nú leitað. Um svipað leiti var brotist inn í Bykó við Fiskislóð og þaðan stolið raftækjum og símbúnaði. Lögregla rakti spor þjófsins , sem fannst á heimili sínu ásamt þýfinu. Hann gistir nú fangageymslur.

Íbúar Breiðholts óánægðir með breytingar í skólakerfinu

Íbúafundur, sem haldinn var í var í Gerðubergi í Breiðholti í gærkvöldi skorar á borgarráð að falla frá fyrirhuguðum sameiningar- og breytingaáformum í leikskólum og grunnskólum hverfisins. Fundarmenn telja að hugmyndirnar séu byggðar á hæpnum og illa ígrunduðum og illa rökstuddum forsendum. Þá telja fundarmenn að skort hafi á samráð við foreldra og starfsmenn og stjórnendur viðkomandi stofnana, við gerð tillagnanna.

Stálprammi á reki út af Snæfellsnesi

Óþekktur prammi úr stáli er á reki út af Dritvík á Snæfellsnesi og stafar sjófarendum mikil hætta af honum þar sem hann marar nánast hálfur í kafi.

Sjá næstu 50 fréttir