Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fleiri handteknir vegna morðrannsóknar Tuttugu og þriggja ára gömlum karlmanni sem yfirheyrður var vegna manndrápsins í Hafnafirði um helgina, var sleppt úr haldi lögreglu nú síðdegis. Fleiri hafa verið handteknir og yfirheyrðir vegna málsins, segir verjandi mannsins. Hann íhugar málsókn á hendur fjölmiðlum sem birt hafa myndir af skjólstæðingi hans. 17.8.2010 18:35
Áður hellt seyruvökva út í náttúruna Fyrirtækið sem losaði seyruvökva úr roþtróm á vatnsverndarsvæðinu á Þingvöllum hefur áður gerst sekt um að leka slíkum vökva út í náttúruna. 17.8.2010 19:21
Norðlingaölduveita talin hagkvæmasti orkukosturinn Landsvirkjun taldi Norðlingaölduveitu á sínum tíma hagkvæmasta kost sinn til orkuöflunar sem hún gæti gripið til með skömmum fyrirvara. Þeim áformum var hins vegar frestað fyrir sex árum. 17.8.2010 18:36
Hjólastígur á Hverfisgötu Starfsmenn Reykjavíkurborgar vinna nú að uppsetningu tímabundins hjólreiðastígs á Hverfisgötu sem tekinn verður í notkun föstudaginn 20. ágúst. Umhverfis- og samgönguráð samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að hleypa þessu tilraunaverkefni af stað til að efla mannlíf í miðborginni og hvetja til aukinna hjólreiða. 17.8.2010 17:37
Fordæmir forkastanleg vinnubrögð fjölmiðla Lögmaður ungs manns sem var handtekinn vegna manndrápsmáls í Hafnarfirði fordæmir vinnubrögð ákveðinna fjölmiðla vegna nafn- og myndbirtingar af skjólstæðingi sínum. 17.8.2010 16:40
Morðið í Hafnarfirði: Manninum sleppt úr haldi Lögreglan leggur ekki fram kröfu um gæsluvarðhald yfir manninum sem handtekinn var í gær og hefur verið í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar á morðinu í Hafnarfirði um helgina. Maðurinn er á þrítugsaldri. Lögreglan heldur rannsókn málsins áfram. 17.8.2010 16:05
Jinky er ekki dóttir Bobbys Fischer Niðurstaða úr DNA greiningu á lífssýnum úr skákmeistaranum Bobby Fischers liggja fyrir. Niðurstöðurnar benda til þess að ekki sé skyldleiki milli Fischers og stúlkunnar sem sögð var vera dóttir hans. 17.8.2010 15:41
Samningafundur boðaður á morgun Samninganefndir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga munu funda hjá Ríkissáttasemjara klukkan hálftvö á morgun. Eins og fram hefur komið hafa slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn verið samningslausir í um það bil eitt ár. Þrjár verkfallslotur hafa gengið yfir í sumar og nú er í gildi yfirvinnubann hjá þeim. 17.8.2010 15:25
Tryggja 190 ungmennum námsvist Félags- og tryggingamálaráðherra mun beita sér fyrir því að fé verði veitt úr Atvinnuleysistryggingarsjóði til þess að mæta viðbótarkostnaði framhaldsskólanna vegna skólavistar fyrir um 190 ungmenni eldri en 18 ára sem nú eru á atvinnuleysisskrá. 17.8.2010 15:01
Fangar fengu gervigrasvöll gefins Fangelsið á Litla Hrauni hefur fengið rúmlega sjö milljóna króna styrk frá Evrópska knattspyrnusambandinu UEFA til að kaupa gervigrasvöll. Í sunnlenska fréttablaðinu Dagskránni kemur fram að völlurinn sé kominn til landsins og bíði nú eftir því að verða settur upp. 17.8.2010 14:11
Bílastæðum á Hverfisgötu breytt í hjólastíg „Þetta er með því heimskasta sem maður hefur séð lengi," segir Guðjón Pétursson íbúi á Hverfisgötu í Reykjavík. Samþykkt hefur verið í Umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkurborgar að koma fyrir hjólreiðastíg tímabundið í einn mánuð, sunnanmegin í Hverfisgötunni svo að öll bílastæði á götunni munu víkja fyrir hjólastígnum. Íbúum var sent bréf í gær um málið. 17.8.2010 13:13
Dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt pólskan karlmann, Tomasz Burdzan, í þriggja og hálfs árs fangelsi. fyrir nauðgun. 17.8.2010 12:53
Útvarpsstjóri boðar til starfsmannafundar Páll Magnússon, útvarpsstjóri, hefur boðað starfsmenn Ríkisútvarpsins til fundar klukkan eitt. Tilefni fundarins er ástand og horfur í rekstri Ríkisútvarpsins. 17.8.2010 12:21
Kona slasaðist við hellaskoðun í Eldhrauni Björgunarsveitin Kyndill á Kirkjubæjarklaustri er nú á leið að Miklafelli í Eldhrauni til aðstoðar konu sem slasaðist þegar að hún var í hellaskoðun á svæðinu. 17.8.2010 11:58
Jökulsá í miklum ham - Öskjuleið ófær Öskjuleið er ófær eftir að Jökulsá á Fjöllum rauf varnargarð við Herðubreiðarlindir í gærmorgun. Óvíst er að vegurinn opnist á ný þetta sumar. Hálendisfulltrúi Vatnajökulsþjóðgarðs segir að áin hafi verið óvenju vatnsmikil í sumar og telur skýringuna þá að askan úr Eyjafjallajökli valdi meiri snjóbráðnun á jöklum. 17.8.2010 11:45
Biðst afsökunar og hættir starfi yfirmanns kynferðisbrotadeildar Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur óskað eftir því að vera færður úr starfi yfirmanns kynferðisbrotadeildarinnar. 17.8.2010 11:08
Fyrirtökunni frestað - Ragnar segir dómara vanhæfan Fyrirtöku í máli níumenningana svokölluðu sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi var frestað í morgun. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður fjögurra sakborninga í málinu, lagði fram kröfu um að dómarinn í málinu víki sæti vegna vanhæfis og að málinu verði vísað frá. 17.8.2010 09:41
Íbúum fækkaði um 1240 Íbúum á landinu hefur fækkað um 1.240 á einu ári eða um 0,4%, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Þann 1. júlí síðastliðinn voru landsmenn 318.006 en voru 319.246 fyrir ári síðan. 17.8.2010 09:00
Karlmaður í haldi lögreglu vegna manndrápsins Karlmaður er í haldi lögreglunnar vegna manndrápsins í Hafnarfirði á sunnudaginn. 17.8.2010 08:55
Mál níumenninga: „Komið allir inn“ Fyrirtaka fer fram í máli svokallaðra níumenninganna í Héraðsdómi Reykjavíkur þessa stundina en fólkið hefur meðal annars verið ákært fyrir árás á Alþingi í búsáhaldabyltingunni í desember 2008. 17.8.2010 08:36
Brotist inn í líkamsræktarstöð í Reykjavík Tilkynnt var um innbrot í líkamsræktarstöð í austurhluta Reykjavíkur um klukkan fjögur í nótt. Að sögn lögreglu virðist engu hafa verið stolið í innbrotinu en þjófarnir voru búnir að taka nokkra verðmæta hluti til þegar styggð virðist hafa komið að þeim og þeir látið sig hverfa út í myrkrið. Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 17.8.2010 06:59
Þyrlan í þrjú útköll í röð Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hefur haft í nægu að snúast frá því í gærkvöldi en þyrlan hefur farið þrisvar sinnum í útkall frá því klukkan sjö í gærkvöldi. Fyrsta verkefnið var að sækja sjómann um borð í norskan togara en sá var með bólgur í munnholi. Togarinn var staddur um 175 sjómílur norðvestur af Reykjavík og lenti TF-Líf með manninn á Reykjavíkurflugvelli um klukkan hálfellefu. 17.8.2010 06:51
Þátturinn Orð skulu standa tekinn af dagskrá í sparnaðarskyni „Okkur er sagt að þetta hafi verið vinsælasti þátturinn á Rás 1 undanfarin ár," segir Karl Th. Birgisson, umsjónarmaður þáttarins Orð skulu standa á Rás 1 hjá Ríkisútvarpinu. Ákveðið hefur verið að taka þáttinn af dagskrá í vetur. 17.8.2010 06:00
Kom að manninum sofandi og margstakk með eggvopni Karlmaður á fertugsaldri sem ráðinn var bani á heimili sínu við Háaberg í Hafnarfirði um helgina fannst liggjandi á gangi að svefnherbergi sínu í einbýlishúsinu sem hann bjó í, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. 17.8.2010 06:00
Krefjast skýringa á ummælum lögreglu Ummæli Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, sem hann lét falla í samtali við DV í gær, hafa sætt mikilli gagnrýni. Segir Björgvin um fjölda nauðgana í landinu að „fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér“. 17.8.2010 06:00
Brugg og smygl eykst með hærri sköttum neytendur Helmingur fólks á aldrinum 18 til 29 ára verður var við meira heimabrugg og smygl á áfengi nú heldur en áður. Meira en helmingur fólks kaupir annaðhvort minna áfengi eða ódýrari tegundir. 17.8.2010 06:00
Sjálfstæðisflokkur fylgir væntingum Væntingavísitalan, sem Capacent Gallup mælir reglulega, virðist samkvæmt samanburði sem sjá má á vef Datamarket haldast þétt í hendur við fylgi Sjálfstæðisflokksins, að minnsta kosti síðustu árin. Stjórnmálafræðingur segir erfitt að svara því hvort um tilviljun sé að ræða eða raunverulega fylgni. 17.8.2010 05:30
Niðurstaða um mánaðamót Nefnd sem fjallar um lögmæti kaupa sænsks dótturfélags kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy á HS Orku hefur fengið frest til að skila niðurstöðum til mánaðamóta. 17.8.2010 05:30
BSRB fagnar frumvarpi BSRB fagnar því að samkvæmt mjólkurfrumvarpi Jóns Bjarnasonar, landbúnaðarráðherra, fá bændur aukið svigrúm til heimavinnslu. BSRB vill þó að heimildirnar verði auknar enn frekar. 17.8.2010 05:00
Ríkið gæti komið út í plús af siglingunum Þrátt fyrir að áætlaður árlegur kostnaður Vegagerðarinnar við siglingar milli lands og Vestmannaeyja aukist með nýrri Landeyjahöfn er ekki loku fyrir það skotið að heildarkostnaður lækki, því ríkisstyrkir vegna áætlanaflugs til Eyja hafa verið aflagðir. 17.8.2010 04:45
Porsche traktor bætist í safnið Appelsínugulur, þýskur Porsche traktor, árgerð 1956, er nýjasti sýningargripur Búvélasafnsins á Grund í Reykhólahreppi. Þetta kemur fram á vefsíðu hreppsins. 17.8.2010 04:30
Dugleg börn fá hærri laun Börn sem eru dugleg að læra á leikskólum eru að jafnaði með hærri laun við 27 ára aldur en börn sem ekki sýna sömu framþróun á leikskólanum. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar vísindamanna við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. 17.8.2010 04:00
Vill skoða niðurskurðarlistann Frekar en að fara í skattahækkanir á að skoða hugmyndir ríkisstjórnarinnar um mögulegan niðurskurð í ríkiskerfinu, segir þingmaður Samfylkingar, Magnús Orri Schram. 17.8.2010 03:15
Fjórir árekstrar á 70 mínútum Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi við Lyngholt í Hvalfjarðarsveit á sunnudagseftirmiðdag. Áreksturinn var eitt fjögurra umferðaróhappa sem voru tilkynnt til lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum á sjötíu mínútna tímabili á sunnudag. 17.8.2010 03:00
Finnst mikil hætta skapast „Mér finnst mikil hætta skapast með því að hefja rannsóknir á einstaklingum án þess að rökstuddur grunur liggi fyrir og færa okkur óþægilega nálægt aðferðum lögregluríkja svokallaðra." 17.8.2010 03:00
Ökumaður slasaðist alvarlega Ökumaður jepplings hálsbrotnaði þegar hann missti stjórn á bílnum og valt ofan í gil við Skaftatunguveg skammt frá bænum Gröf í gær. 17.8.2010 02:45
Gefa stofnfrumur til útlanda „Nú þegar hafa þrír íslenskir blóðgjafar gefið stofnfrumur til óskyldra einstaklinga úti í heimi,“ segir Sveinn Guðmundsson yfirlæknir Blóðbankans. Hann tekur fram að skráðir stofnfrumugjafar um heiminn séu að minnsta kosti tólf milljónir og Íslendingar séu um þúsund þeirra. 17.8.2010 02:00
Útlit fyrir að botninum sé náð í smásöluverslun Velta í dagvöruverslun dróst saman um 2,4 prósent í júlí borið saman við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Þetta kemur fram í nýjum tölum um smásölu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar við Háskólann á Bifröst. Tölurnar benda til þess að botninum sé náð í smávöruverslun. 17.8.2010 02:00
Vilja ráðherra á fund vegna Norðlingaölduveitu Þrír þingmenn úr stjórn og stjórnarandstöðu vilja að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra komi á fund iðnaðarnefndar til að ræða áform um stækkun friðlands í Þjórsárverum. 17.8.2010 01:30
Morðið í Hafnarfirði: Æskuvinur unnustunnar í haldi lögreglu Maðurinn sem er í haldi lögreglu grunaður um aðild að morðinu á Hannesi Helgasyni aðfararnótt sunnudags tengist unnustu Hannesar, að því er heimildir fréttastofu herma. Þau hafa þekkst frá því í æsku. Lögregla ákveður í dag hvort krafist verði gæsluvarðhalds manninum. 17.8.2010 11:44
Vildi ekki hleypa slökkviliðsmönnum að eldsvoða Slökkviliðið í Hafnarfirði var kallað út vegna eldsvoða á geymslusvæði í Hafnarfirði um klukkan sjö í kvöld. Það var vegfarandi sem tilkynnti um þykkan svartan reyk sem lagði frá svæðinu, sem er nálægt Álverinu í Straumsvík. 16.8.2010 22:15
Var stunginn margsinnis í rúminu Áverkar á líki mannsins, sem fannst látinn á heimili sínu í hafnarfirði í gær, benda til þess að hann hafi verið stunginn oftar en einu sinni með eggvopni. 16.8.2010 20:40
Sækja sjómann með bólgur í munnholi Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF Líf, er á leiðinni til Reykjavíkur með veikan sjómann 16.8.2010 22:32
Gefa þyrstum íbúum Akurholts Latabæjarvatn Hafnfirska vatnsfyrirtækið, Nordic Water, hefur gefið Hönnu Björk Kristinsdóttur og fjölskyldu LazyTown Go Water í ljósi vatnsskorts sem fjölskyldan hefur þurft að búa við í Úlfarsfellinu. 16.8.2010 21:02
Hefðu hugsanlega átt að upplýsa fleiri Seðlabanki Íslands telur að hann hefði hugsanlega átt að upplýsa forsætisráðuneytið, fjármálaráðuneytið og Fjármálaeftirlitið um lögfræðiálit sem lögmannsstofan Lex vann fyrir bankann í fyrrasumar og laut að gengistryggingu lána. Þetta kemur fram í svari Seðlabankans til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. 16.8.2010 18:31