Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bensínið hækkar meira Bensínlítrinn er nú sumstaðar kominn yfir 212 krónur í sjálfsafgreiðslu en ekki eru liðnar nema þrjár vikur síðan eldsneytisverð rauf tvö hundruð króna múrinn. 18.3.2010 18:48
Ríkisskattstjóri: Getum ekki staðið í því að vera skattaráðgjafi bankanna Kaupþing banki óskaði ítrekað eftir upplýsingum frá Ríkisskattstjóra um hvernig ætti að skattleggja hagnað vegna afleiðuviðskipta á gjaldeyri en fékk ekki svör. Ríkisskattstjóri segist ekki geta staðið í því að vera einhvers konar skattaráðgjafi bankanna. 18.3.2010 18:43
Frestaði ákvörðun um Magma Nefnd um erlendar fjárfestingar frestaði á fundi sínum í dag, ákvörðun um hvort dótturfélagi kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, væri heimilt að eiga hlut í HS orku. 18.3.2010 17:45
Skjáreinn hættir fréttaútsendingum Skjáreinn ætlar að hætta með útsendingar á fréttatímum í lok mánaðarins. Samkvæmt heimildum Vísis er ástæðan sú að áhorfið hefur ekki verið í takti við það sem vænst var þegar útsendingarnar hófust. 18.3.2010 17:11
Þingmenn Samfylkingarinnar ósammála um ECA Programs Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segist ekki vera sátt við hugmyndir um að fyrirtækið ECA Programs hefji starfsemi á Íslandi. Hugmyndir fyrirtækisins snúast um að leigja þjóðum innan NATO samstarfsins gamlar rússneskar herþotur til heræfinga. 18.3.2010 16:36
Hæstiréttur sýknar lögmann af ákæru um fjársvik Hæstiréttur sýknaði í dag Karl Georg Sigurbjörnsson lögmann sem ákærður var fyrir að hafa blekkt Sigurð Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda til að selja stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar á 25 milljónir hvert í stað 45 milljóna. 18.3.2010 16:30
Fimm þingmenn á leið til Lundúna Sendinefnd á vegum utanríkismálanefndar Alþingis heldur til Lundúna næstkomandi mánudag til viðræðna við breska þingmenn til að ræða samskipti ríkjanna og um Icesave. Fimm þingmenn úr öllum flokkum fara í ferðina. 18.3.2010 16:12
Um 600 skjálftar frá miðnætti Um 600 jarðskjálftar hafa mælst í sjálfvirkri jarðskjálftamælingu Veðurstofunnar frá því á miðnætti. 18.3.2010 15:58
Stýrislausum fiskibáti bjargað Varðstjórar Landhelgisgæslunnar urðu kl. 16:37 varir við óvenjulega siglingu fiskibáts í fjareftirlitskerfum vaktstöðvar siglinga. Var báturinn staðsettur á Skerjafirði samkvæmt tilkynningu frá gæslunni. 18.3.2010 19:27
Sophia Hansen þarf að borga 19 milljónir auk vaxta Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Sophia Hansen greiði Sigurði Pétri Harðarsyni rúmar 19 milljónir auk vaxta, sem hún fékk að láni hjá honum. 18.3.2010 16:30
Grætur sig í svefn á hverri nóttu „Ég er að verða matarlaus. Ég veit ekki hvernig ég á að gefa börnunum mínum að borða“ segir grátklökk einstæð tveggja barna móðir á þrítugsaldri. Hún gagnrýnir að hún þurfi nú að framvísa launaseðlum og reikningum til að geta fengið mataraðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. 18.3.2010 14:29
Hjálpa fólki við að fylla út skattaskýrsluna Laganemar í HR ætla að taka á móti fólki í Nauthólsvík á laugardag sem vill aðstoð við að fylla út skattaframtalið. Margrét Rán Kærnested, framkvæmdastjóri lögfræðiþjónustu Lögréttu, segir að verkefnið sé unnið í samstarfi við Deloitte. 18.3.2010 16:21
Innbrot í söluturna og yfir 20 bíla upplýst Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot í 21 bíl í Árbæ í síðasta mánuði og fjóra söluturna og myndabandaleigur um síðustu helgi, að fram kemur á vef lögreglunnar. Þjófarnir í þessum málum reyndust vera alls sjö, sex piltar og ein stúlka, á aldrinum 17 til 22 ára. 18.3.2010 16:11
Lýst eftir vitnum að íkveikju Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum af því þegar reynt var að kveikja í möstrum vestan við Veðurstofu Íslands við Bústaðaveg í nótt. 18.3.2010 15:51
Bætt aðstaða fyrir börn og ungmenni í austurhluta borgarinnar Borgarráð samþykkti í dag að gengið verði til samninga um aukin afnot af Egilshöll fyrir íþróttafélög í Grafarvogi sem og aðstöðu fyrir frístundastarf ÍTR í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Jafnframt verður gengið til samninga um afnot af svokölluðu Mest-húsi í Norðlingaholti til að koma upp aðstöðu fyrir fimleika, aðrar íþróttir og frístundastarf fyrir börn og unglinga í austurhluta borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra. 18.3.2010 15:34
Saksóknurum fjölgað í efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóri ætlar að ráða nýjan saksóknara sem mun starfa við hlið þess sem nú starfar, segir Guðmundur Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá embættinu. 18.3.2010 15:08
Vinningshafar í áfalli - ætla að greiða niður skuldir Íslensku hjónin sem urðu 66,4 milljónum ríkari þegar þau unnu í Víkingalottóinu í gær ætla að borga niður skuldir og taka sér gott sumarfrí. 18.3.2010 15:08
Dagur: Borgin setur 230 milljónir í golfvöll Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sé í kosningaham. Tillaga sem hún lagði fram í borgarráði í dag um að 230 milljónir verði settar í að bæta 9 holum við golfvöllinn á Korpúlfsstöðum sýni það. 18.3.2010 14:44
Líklegt að kaup Magma verði samþykkt Nefnd um erlendar fjárfestingar mun að líkindum samþykkja kaup Magma Energy á hlutum í HS orku. Fundur nefndarinnar hófst klukkan tvö. 18.3.2010 14:16
Myndir af höfninni í Bakkafjöru Þessar myndir voru teknar af starfsmönnum Landhelgisgæslunnar um borð í eftirlits- og björgunarflugvélinni TF-SIF í morgun af höfninni sem nú rís í Bakkafjöru á Landeyjasandi. Myndirnar voru teknar úr 1047 feta hæð. 18.3.2010 14:10
Hald lagt á dóp eftir húsleit í Hafnarfirði Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Um var að ræða um 130 grömm af amfetamíni, á annan tug kannabisplantna og lítilræði af marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á allnokkuð af sterum. 18.3.2010 14:07
Þingmenn Samfylkingarinnar vilja ECA Programs til Íslands Bæði Björgvin G. Sigurðsson og Róbert Marshall, þingmenn Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi, segjast styðja hugmyndir um að fyrirtækið ECA Programs hefji starfsemi á Íslandi. Eftir því sem fréttastofa kemst næst snúast hugmyndir fyrirtækisins að leigja þjóðum innan NATO samstarfsins gamlar rússneksar herþotur til heræfinga. 18.3.2010 14:05
Meirihluti þjóðarinnar vill ríkisstyrktan landbúnað Tæplega helmingur landsmanna er frekar fylgjandi því að ríkið greiði styrki til íslensks landbúnaðar. Samanlagt eru 76,3% frekar eða mjög fylgjandi ríkisstyrkjum til landbúnaðar. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun MMR. 18.3.2010 13:55
Marijúana fannst við húsleit í Kópavogi Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gærkvöld. Um var að ræða um 300 grömm af marijúana. Einn íbúanna, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu, að sögn lögreglu. 18.3.2010 13:53
Kvartað undan reglum um mataraðstoð til Persónuverndar Persónuvernd barst kvörtun fyrr í mánuðinum vegna breyttra reglna Hjálparstarfs kirkjunnar í matarúthlutun samtakanna. Fólk sem sækir sér aðstoð þarf nú að skila inn yfirliti yfir útgjöld og tekjur eftir fyrstu komu. 18.3.2010 12:56
Hjúkrunarheimili Hrafnistu vígt í Kópavogi Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu verður vígt við Boðaþing í Kópavogi á morgun. Rúm átta ár eru síðan nýtt og sérhannað hjúkrunarheimili tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu. 18.3.2010 12:47
Fundur í kjaradeilu flugvirkja Fundur í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair stendur nú yfir. Stuttur var fundur haldinn í gær en hefur lítið þokast í átt að samningum. 18.3.2010 12:08
Lögreglumenn vilja verkfallsrétt Landssamband lögreglumanna vill að lögreglumenn fái verkfallsrétt aftur. Tillaga þess efnis var lögð fram á síðasta fundi lögreglumanna með viðsemjendum sínum. Þetta staðfestir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglunnar, í samtali við fréttastofu. 18.3.2010 11:27
Var með tvö kíló af kókaíni innanklæða Íslenska konan sem handtekin var á flugvellinum í Líma í Perú um síðustu helgi var með tvö kíló af kókaíni innanklæða, að því er þarlendir miðlar greina frá. Fíkniefnin voru í nokkrum pakkningum sem hún hafði límt um sig miðja. Samkvæmt fréttum frá Perú var konan á leið til Noregs. 18.3.2010 11:18
Íslensk kona tekin í Perú með fíkniefni Íslensk kona er í haldi í Perú grunuð um fíkniefnasmygl. Samkvæmt upplýsingum úr utanríkisráðuneytinu var konan handtekin um síðustu helgi. Ráðuneytið hefur verið í sambandi við fjölskyldu konunnar og ræðismann Íslands í Lima, höfuðborg Perú, en konan var handtekin þar. 18.3.2010 10:54
Spellvirkin hefðu getað rofið tengslin við umheiminn Fjarskipti við umheiminn hefðu getað lamast að miklu leyti ef búnaður skemmdarvarga hefði virkað að fullu, þegar þeir reyndu að vinna skemmdarverk á fjarskiptamöstrum í grennd við Veðurstofuna við Búsataðaveg í nótt. Lögregla lítur málið mjög alvarlegum augum, því svona spellvirki þykja ganga hryðjuverkum næst. 18.3.2010 10:42
Um 200 erlendir gestir sækja ráðstefnu um nýsköpun Gert er ráð fyrir því að um tvö hundruð erlendir gestir frá yfir þrjátíu löndum sæki alþjóðlega frumkvöðlaráðstefnu í Reykjavík dagana 24. til 26. mars. Ráðstefnan er haldin í samstarfi MIT-háskólans í Boston, Háskólans í Reykjavík og Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs. 18.3.2010 10:32
Fjármálaráðherrar funda í Danmörku Næsta mánudag funda norrænir fjármálaráðherrar í Danmörku og er gert ráð fyrir að Steingrímur J. Sigfússon verði þar á meðal. 18.3.2010 09:37
Stúlkan fundin Elísa Auður sem lýst var eftir í fjölmiðlum í gær er komin í leitirnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi tilkynningu um þetta rétt fyrir miðnætti í gærkvöld. 18.3.2010 09:11
Rafmagn komið á í Holtunum Rafmagni hefur aftur verið komið á í í Holtunum í Reykjavík, nánar tiltekið Brautarholti, Skipholti og þar um kring. 18.3.2010 08:28
Sígarettuþjófar teknir Tveir innbrotsþjófar voru gripnir glóðvolgir við innbrot í verslun í Sundunum í Reykjavík um hálf fjögur leitið í nótt. Vitni varð þeirra var og hringdi á lögreglu. 18.3.2010 07:03
Skemmdir unnar á fjarskiptamöstrum Grunur leikur á að skemmdarverk hafi verið unnin á rafköplum í fjarskiptamöstrum í grennd við Veðurstofuna við Bústaðaveg upp úr klukkan fjögur í nótt. Þar voru rafkaplar sviðnir með þeim afleiðingum að örbylgjusendingar með sjónvarpsefni féllu niður. 18.3.2010 06:59
Útiloka ekki að kveikt hafi verið í Miklar skemmdir urðu á gömlu fiskimjölsverksmiðjunni í Sandgerði í fyrrinótt þegar eldur kom þar upp. Slökkviliðið í Sandgerði var kallað út klukkan fjögur um nóttina og var þá mikill hiti og reykur innan dyra. Kallað var í liðsauka frá Brunavörnum Suðurnesja og var slökkvistarfi lokið á sjötta tímanum. 18.3.2010 06:00
Þingmaður sjálfstæðisflokks lýsir stuðningi en þingmaður VG efast „Ég er með efasemdir um slíka starfsemi á vellinum," segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, spurður um viðhorf hans til þess að E.C.A. Program fái að reka hér starfsemi í tengslum við rekstur orrustuþotna og þátttöku í heræfingum. Hann segist hins vegar ekki hafa skoðað málið og tjáir sig því ekki frekar um það. 18.3.2010 06:00
Fá ekki að skila lyklunum að sinni Ekki stendur til að breyta lögum til að þeir sem eru í skuldavanda vegna íbúðaláns geti einfaldlega skilað inn lyklunum og verið skuldlausir eftir, sagði Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra í gær. 18.3.2010 06:00
Styttist í pólitíska ákvörðun Flugmálastjórn er langt komin við að meta umsókn hollenska fyrirtækisins E.C.A. Program um að skrásetja um 20 óvopnaðar orrustuþotur hér á landi. „Það styttist í að hægt sé að taka pólitíska ákvörðun um hvort ríkisstjórn og Alþingi vilji að undirbúningi málsins verði haldið áfram,“ sagði Ingvar Sverrisson, aðstoðarmaður samgönguráðherra. 18.3.2010 04:00
Segja málaliðaher auvirðilegt fyrirbæri Samtök hernaðarandstæðinga (SHA) telja að einkarekinn flugher hollenska fyrirtækisins E.C.A. með 20 óvopnaðar orrustuþotur, sem leigðar verði til heræfinga, eigi ekkert erindi hér á landi. 18.3.2010 03:45
Ellefu áfram í Gullegginu Ellefu viðskiptaáætlanir hafa verið valdar til að taka þátt í Gullegginu 2010, frumkvöðlakeppni Innovit. 18.3.2010 03:00
Hafa áhyggjur af búfjárbyltingunni Framleiðsla og neysla á kjöti hefur þrefaldast á síðustu þremur áratugum og allt stefnir í að hún tvöfaldist frá því sem nú er til ársins 2050, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem vitnað er í á vefmiðlinum Science Daily. 18.3.2010 02:00
Efnahagslífið enn brothætt efnahagsmál Bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna ákvað á þriðjudag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,25 prósentum. 18.3.2010 02:00