Fleiri fréttir

Stefnir í uppsagnarferli hjá grunnskólakennurum

Formaður Félags grunnskólakennara segir margt benda til að það stefni í uppsagnir hjá kennurum, ef ekki semst fljótlega um kjarabætur þeim til handa. Kennarar vilja sex til sjö prósentustiga hækkun launa, en sveitarfélögin bjóða tvö prósent.

Bankarnir hunsuðu Samkeppniseftirlitið

Bankarnir hunsuðu tilmæli Samkeppniseftirlitsins um að auðvelda fólki að skipta um banka og afnema uppgreiðslugjald. Við því liggur engin refsing, segir forstjórinn. Rannsókn eftirlitsins, á kreditkortafyrirtækjum í eigu bankanna, er í fullum gangi en ekki er verið að rannsaka sérstaklega meint samráð banka á öðrum sviðum.

Blaðamannaverðlaun Íslands afhent

Blaðamannaverðlaun Íslands voru veitt í fjórða sinn á Hótel Holti nú rétt í þessu. Jóhannes Kr. Kristjánsson ritstjóri Kompáss hlaut verðlaun fyrir bestu rannsóknarblaðamennsku ársins 2006. Verðlaunin hlýtur hann fyrir afhjúpandi umfjöllun um málefni barnaníðinga og um Byrgið. Auðunn Arnórsson á Fréttablaðinu hlaut verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins fyrir ítarlega og vandaða umfjöllun um Evrópumál og Davíð Logi Sigurðsson á Morgunblaðinu hlaut verðlaunin í flokknum Blaðamannaverðlaun ársins.

Bæjarstjóri eða áldrottning?

Fyrrverandi bæjarstjóri í Garði segir núverandi bæjarstjóra stefna að því að verða áldrottning. Sigurður Jónsson sem nú er sveitarstjóri í Skeiða- og Gnúpverjarhreppi sendir meirihluta bæjarstjórnar í Garði tóninn á bloggsíðu sinni og gagnrýnnir umhverfisstefnu sveitarfélagsins. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.

Kennarar langt á eftir launaþróun annara stétta

Verðbólga og launaþróun hefur verið langt umfram það sem búast mátti við þegar kennarar voru "þvingaðir" til að samþykkja núverandi kjarasamning árið 2004. Þeir eru nú lægst launaðir allra uppeldis- og menntastétta. Þetta segir Ólafur Loftsson formaður Félags grunnskólakennara í yfirlýsingu vegna frétta um að kennurum hafi verið boðin hækkun umfram samninga.

Fékk rúðu í höfuðið

Níu ára stúlka fékk stykki úr rúðu á höfuðið þegar hún gekk niður Laugaveg í dag. Lögreglan fékk tilkynningu um heimilisófrið í húsi við Laugaveg sem endaði með því að tösku var kastað í rúðu með einföldu gleri. Stórt stykki féll úr rúðunni og lenti flatt á höfði stúlkunnar. Hún var með húfu og í góðri úlpu. Hana sakaði því ekki.

Hundur glefsaði í andlit stúlku

Sjö ára gömul stúlka varð fyrir minniháttar meiðslum í andliti í dag þegar hundur glefsaði í hana í Vogahverfi í Reykjavík. Stúlkan var flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum hennar. Hundurinn var ekki í ól og vill vakthafandi læknir á slysadeild brýna fyrir fólki að hafa hunda ekki lausa.

Átta yfirheyrðir vegna umferðarlagabrota

Alls hafa átta manns verið yfirheyrðir af lögreglunni í Reykjavík í vegna umferðarlagabrota frá því seint í gærkvöldi til morguns. Öllum hefur verið sleppt og teljast málin upplýst. Að sögn lögreglu er þetta óvenju mikill fjöldi yfirheyrslna vegna umferðarlagabrota á einum degi.

Tveir ökufantar teknir

Tveir lögreglubílar skemmdust í gærkvöldi og nótt við að elta uppi ökufanta sem keyrðu á ofsahraða til að sleppa undan lögreglu. Báðir stefndu þeir samborgurum sínum í stórhættu.

Háskóladagurinn er í dag

Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt í Háskólabíói, Borgarleikhúsinu og húsnæði Kennaraháskólans milli klukkan ellefu og fjögur en Háskóladagurinn er í dag. Boðið er upp á fimmhundruð námsleiðir í íslenskum háskólum sem eru átta talsins. Háskólanemum hefur fjölgað um fjörutíu prósent á fimm árum og síðustu árin hafa þrjú til fjögur þúsund manns kynnt sér námið á háskóladeginum.

Bankarnir geta boðið miklu betri kjör

Gjaldtaka í íslenska bankakerfinu er með því hæsta sem gerist, segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann segir hlálegt að heyra bankamenn vísa í meingallaða könnun sem sýni að hér séu heimsins lægstu þjónustugjöld. Jóhannes krefst þess að bankarnir bjóði fólki betri kjör.

Sveitarfélögin bjóða kennurum 2 % umframhækkun

Launanefnd sveitarfélaganna hefur boðið grunnskólakennurum tveggja prósenta launahækkun umfram það sem gildandi samningar þeirra við sveitarfélögin kveða á um. Kjarasamningur kennara er í gildi til áramóta en á móti tveggja prósenta viðbótarhækkuninni vilja sveitarfélögin að samningurinn framlengist til vors 2008

Klámstarfsfólk á Gullfoss og Geysi

Borgarstjórinn í Reykjavík telur að fyrirhuguð ráðstefna klámframleiðenda til borgarinnar, geti grafið undan öflugu markaðsstarfi undanfarinna ára, og ímynd landsins sem miðstöðvar heilbrigðs lífernis, lýðræðis og jafnréttis. Meðal þess sem hópur hyggst gera hér á landi er að fara á skíði og skoða Gullfoss og Geysi.

Íbúðaverð á hækkaði um rúm 2 prósent

Verð á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um tvö komma þrjú prósent í janúar, miðað við desember, þar af hækkaði sérbýli um tvö komma tvö prósent og fjölbýli um tvö komma fjögur. Verð á íbúðum hefur sveiflast nokkuð milli mánaða undanfarið til hækkunar eða lækkunar.

Stakk lögreglu í Keflavík af

Sextán ára ökumaður var stöðvaður, grunaður um ölvunarakstur, við reglubundið eftirlit lögreglu í Keflavík um ellefuleytið í gærkvöldi. Drengurinn kom út úr bílnum en þegar hann gekk með lögreglumanni í átt að bíl lögreglunnar tók pilturinn á rás. Lögregla náði ekki að elta hann uppi en fann hann skömmu síðar.

Áhrif stefnumörkunar í loftslagsmálum á efnahag

Ný stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum getur haft mikil áhrif á efnahag landsins, að mati Samtaka atvinnulífsins. Kröfur ríkisstjórnarinnar beinast þó fyrst og fremst að atvinnulífinu en lítið er hugað að því hvað aðrir aðilar geti gert til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda til að mynda, sveitarfélög, ríki og almenningur.

Bjóða kennurum launahækkun umfram samninga

Launanefnd sveitarfélaganna hefur boðið grunnskólakennurum tveggja prósenta launahækkun umfram það sem gildandi samningar þeirra við sveitarfélögin kveða á um. Kjarasamningur kennara er í gildi til maí 2008, en í samningnum var gert ráð fyrir endurskoðun á honum síðast liðið haust. Þar skyldi meðal annars tekið tillit til þróunar efnahagsmála.

Slapp úr snjóflóði á Hrafnseyrarheiði

Maður slapp úr snjóflóði á Hrafnseyrarheiði í dag. Hann var að vinna við að opna veg, sem var ófær vegna snjóþyngsla, þegar snjóflóðið féll. Manninum tókst að handmoka sig út úr tækinu og komast þannig úr flóðinu. Mikil mildi eru að snjóflóðið hreif moksturstækið ekki með sér, því snarbrött hlíð er hinum megin við veginn.

73 prósent Reykvíkinga á einkabíl til vinnu

73 prósent Reykvíkinga aka sjálfir til vinnu eða í skóla. Aðeins fjögur prósent eru farþegar í bíl á leið til vinnu. Af sjö stórum borgum á Norðurlöndunum er langmest bílaeign íbúa í Reykjavík. Þá er fjöldi ferða í einkabíl mestur og fjöldi ekinna kílómetra. Þetta kemur fram í símakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Umhverfissvið Reykjavíkurborgar.

Sveitarfélögin fá ekkert af fjármagnstekjum og einkahlutafélögum

Fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga ætla að koma fram með hugmyndir um tekjutilfærslu frá ríki til sveitarfélaga fyrir lok næsta mánaðar. Í dag fá sveitarfélögin engar tekjur af einkahlutafélögum og einstaklingum sem eingöngu hafa fjármagnstekjur.

Landsbanki og Landsvirkjun í alþjóðleg orkuviðskipti

Landsbankinn og Landsvirkjun sameinuðust um stofnun alþjóðlegs fjárfestingafélags sem ætlað er að fjárfesta í endurnýjanlegri orkuvinnslu með áherslu á vatnsafl. Hvort fyrirtæki um sig leggur tvo milljarða til hins nýja félags.

Vill banna klámráðstefnu

Talskona Stígamóta telur fullvíst að íslensk stjórnvöld muni banna fyrirhugaða ráðstefnu dreifingaraðila á klámi sem fram á að fara í Reykjavík í byrjun mars. Stígamótakonur segja að tenglar á heimasíðu ráðstefnunnar vísi á efni þar sem ýtt er undir mansal og barnaklám.

Kostnaður óljós við tafir á byggingu nýrrar sundlaugar í Mosfellsbæ

Ekki er vitað hvaða tafir og tæknilegir örðugleikar við byggingu nýrrar sundlaugar í Mosfellsbæ munu kosta, segir forseti bæjarstjórnar. Hann segir þó að ekkert muni koma í veg fyrir að sundlaugin verði opnuð á sumardaginn fyrsta, en til stóð að taka hana í notkun í október síðastliðnum.

Seðlabankinn hefur brugðist

Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið ættu að snúa sér að því að vinna fyrir almenning, segir Guðmundur Ólafsson lektor við Háskóla Íslands, og telur bankana ekkert muna um að bæta vaxtakjör til almennings.

Fer fram á barnaklámrannsókn ráðstefnugesta

Borgarstjóri hefur óskað eftir að lögregla rannsaki hvort þátttakendur á klámráðstefnu kunni að vera framleiðendur barnakláms, eða annars ólögmæts klámefnis. Í yfirlýsingu segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson að rannsóknin yrði til að upplýsa um ólögmæta starfsemi og gæti orðið til að koma í veg fyrir dvöl meintra kynferðisbrotamanna hér á landi.

Yfirheyrslur yfir Tryggva halda áfram á mánudag

Yfirheyrslur yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, verður fram haldið á mánudaginn. Tryggvi sat í dómssal í allan dag og svaraði spurningum um meint bókhaldsbrot.

Neytendasamtökin skoða næstu skref

Neytendasamtökin telja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sigurðar Hreinssonar í dag afar mikilvæga. Samtökin tóku að sér mál Sigurðar og var það hugsað sem prófmál fyrir fleiri neytendur sem þangað höfðu leitað. Samtökin skoða nú næstu skref.

Tilfærslur hjá lögreglunni

Jónmundur Kjartansson yfirlögregluþjónn flyst frá embætti ríkislögreglustjóra til starfa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hinn 1. mars næstkomandi. Þar mun hann sinna innri endurskoðun embættisins.

Skýjaborgir veita engum atvinnu

Eitt mikilvægasta verkefni íslenskra stjórnamálamanna á næstu árum er að finna leiðir til að sætta náttúruverndar- og nýtingarsjónarmið. Þetta sagði Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra á aðalfundi Félags íslenskra stórkaupmanna í dag. Valgerður sagði slíkt hins vegar ekki mega vera á forsendum höfuðborgarsvæðisins.

Kröfur beinast fyrst og fremst að atvinnulífinu

Ný stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum getur að mati Samtaka atvinnulífsins haft mikil áhrif á efnahag landsins. Samtökin segja kröfur ríkisstjórnarinnar beinast fyrst og fremst að atvinnulífinu.

Fært aftur um Hrafnseyrarheiði

Fært er orðið um Hrafnseyrarheiði en hún var lokuð um tíma vegna snjóflóð sem þar féll. Greiðfært er um allt Suður- og Vesturland en þó er hálka sumstaðar á Snæfellsnesi.

Sumarbústaður fuðraði upp

Slökkviliðið er að ljúka slökkvistarfi við sumarbústað við Úlfarsfell sem brann til kaldra kola. Vegfarandi tilkynnti um eld í bústaðnum um eitt leytið og var bústaðurinn alelda þegar slökkvilið kom á svæðið.

Ker þarf að greiða bætur vegna olíusamráðs

Ker, sem áður átti Esso, var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmt til að greiða Sigurði Hreinssyni, húsasmiði frá Húsavík, 15.000 krónur í bætur með vöxtum. Sigurður krafði félagið um bætur vegna bensíns sem hann keypti á því tímabili sem meint samráð olíufélaganna stóð yfir.

Alelda sumarbústaður við Úlfarsfell

Slökkvilið berst nú við eld í sumarbústað undir Úlfarsfelli við Vesturlandsveg. Bústaðurinn er alelda. Ekki er vitað til þess að neinn hafi verið inni í bústaðnum.

Miklu fleiri vilja en fá

Ríflega 2700 umsóknir bárust um leyfi til hreindýaveiða áður en umsóknarfrestur rann út á miðnætti. Ljóst er að ekki geta allir veitt sem vilja því hreindýrakvótinn í ár er tæplega 1140 dýr.

Fjölskylda borin röngum sökum í Borgarnesi

Fjölskylda í Borgarnesi hefur leitað ásjár lögreglunnar vegna þess að þar ganga sögur fjöllunum hærra um að lögreglan hafi gert húsleit hjá fjölskyldunni og fundið fíkniefni. Fjölskyldan er sökuð um að stunda fíkniefnasölu og hefur orðið fyrir aðkasti vegna þess.

Árni Johnsen hefur enga aðkomu að samgöngum milli Eyja og lands

Árni Johnsen hefur enga aðkomu að samgöngumálum milli Vestamannaeyja og lands eins og staðan er nú, segir Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra. Hann segir að sérstaka samþykkt þurfi hjá Alþingi til að ráðast í rannsóknir á hagkvæmni jarðganga milli lands og Eyja.

Handrukkurum sleppt úr haldi

Karli og konu á þrítugsaldri, sem voru handtekin í SPRON í gær, var í morgun sleppt úr haldi. Fólkið var handtekið eftir að hafa numið á brott ungan mann af heimili sínu, ógnað honum með hnúum og hnefum og farið með hann nauðugan í SPRON í Skeifunni þar sem hann átti að taka út pening til að borga skuld.

Óvíst hvenær yfirheyrslum yfir Jóni Ásgeiri lýkur

Óvíst er hvenær hægt verður að klára yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni en dómari stöðvaði yfirheyrslur setts saksóknara í gær. Jón Ásgeir er nú farinn af landi brott. Í morgun hefur settur saksóknari yfirheyrt Tryggja Jónsson, fyrrum aðstoðarforstjóra Baugs, vegna fyrstu ákæruatriða í málinu en þau snúa að meintum bókhaldsbrotum Jóns Ásgeirs. Í vitnaleiðslunni var einnig komið að viðbrögðum Baugs eftir fund Hreins Loftssonar með Davíði Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra.

Vilja rétt verð á vefsíður flugfélaga

Neytendasamtökin krefjast þess að Neytendastofa geri flugfélögum að fara eftir settum reglum varðandi verðupplýsingar til neytenda. Þau hafa lengi gagnrýnt framsetningar flugfélaga á verði flugferða á heimasíðum. Á þeim kemur heildarverð ekki fram fyrr en á seinni stigum í bókunarferlinu. Bera þau það saman við að verslanir gæfu upp verð án virðisaukaskatts á verðmerkingum sínum.

Úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um innbrot

Þrír piltar, 15-19 ára, voru á miðvikudag úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Þeir eru grunaðir um allnokkur innbrot á höfuðborgarsvæðinu. Í fórum piltanna fannst þýfi úr nokkrum innbrotum.

Mæðrahús í Níkaragúa fá styrki frá Þróunarsamvinnustofnun

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur gengið frá samningum við heilbrigðisráðuneyti Níkaragúa um stuðning við fimm Casas Maternaseða Mæðrahús á afskekktum svæðum þar sem mæðra- og ungbarnadauði er algengur. Mæðrahúsin eru ein meginstoðin í áætlun stjórnvalda í Níkaragúa í baráttunni við að fækka dauðsföllum mæðra og ungbarna. Um eitt þúsund konur nýta sér þjónustu þessara fimm húsa á ári hverju.

Sjá næstu 50 fréttir