Fleiri fréttir Flott án fíknar Flott án fíknar er nýtt og öðruvísi forvarnarverkefni sem kynnt var í Smáralindinni í dag. Verkefnið byggir á því að unglingar ganga í klúbba og samningsbinda sig til að vera reyk- og vímuefnalausir. 17.11.2006 18:30 Hydro ekki að reisa álver Norska fyrirtækið Hydro hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að það sé ekki að fara að reisa álver hér landi heldur muni eingöngu setja hér upp skrifstofu sem eigi að vinna að möguleikum hvað varðar þróun á orkulindum hér á landi. 17.11.2006 18:29 Frítekjumarkið þýðir 6400 krónur í vasann Frítekjumark á atvinnutekjur eldri borgara upp á tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði, sem taka á gildi um áramótin, er hræódýrt fyrir ríkissjóð, segir Einar Árnason, hagfræðingur Landssambands eldri borgara. Stjórnarandstaðan vill þrefalda frítekjumarkið. Varaformaður Samfylkingarinnar telur ríkisstjórnarflokkana hafa þvingað eldri borgara til að samþykkja frítekjumarkið með hótunum. 17.11.2006 17:48 Fasteignaverð lækkaði í okóber Verð á einbýlishúsum lækkaði um 3,2% milli september og október og íbúðir í fjölbýli um 1,7%. Þetta er samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins. Vísitala íbúðarverðs mældist 306,1 stig í október og lækkar um 2,2% frá fyrri mánuði. Hækkunin síðastliðið ár mælist því 7,2% og lækkar skarpt síðan í september þegar hún mældist 10,5%. 17.11.2006 17:11 Öllum fuglum fargað í Húsdýragarðinum Landbúnaðarráðherra hefur fyrirskipað að öllum fuglum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum skuli fargað, vegna hættu á fuglaflensu. Alls eru þetta sextíu og sex fuglar. Tveir fálkar og einn haförn fá þó að halda lífi, enda talið ólíklegt að í þeim finnist smit. 17.11.2006 16:53 Bryndísi Kristjándóttir skipuð skattrannsóknarstjóri ríkisins Fjármálaráðherra hefur skipað Bryndísi Kristjándóttur í embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins frá 1. janúar 2007. Auk Bryndísar voru þrír aðrir umsækendur um embættið. 17.11.2006 16:41 VG krefst frestunar allra framkvæmda í stóriðju Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að ríkisstjórnin lýsi því tafarlaust yfir að öllum frekari stóriðjuframkvæmdum verði frestað. Í ályktun þingflokksins að nú fari fram kapphlaup um byggingu orkuvera fyrir erlendar álbræðslur. Fyrirheit um lágt raforkuverð og ókeypis mengunarkvóta hvetji stórfyrirtæki til að flytja framleiðslu sína til Íslands og loka verksmiðjum í löndum sem gera meiri kröfur um mengunarvarnir og selja orkuna á hærra verði. 17.11.2006 16:12 Þjófur barðist um á hæl og hnakka Þjófur sem starfsmenn gripu í Byko í Breiddinni, eftir hádegi, var svo ósáttur við að hafa verið fangaður að hann barðist um sem óður væri. Þurfti fjóra starfsmenn verslunarinnar til að hafa hemil á honum þartil lögreglan kom á vettvang. 17.11.2006 16:04 Vodafone þéttir net sitt Vodafone hefur lokið við uppfærslu á öllum símstöðvum í kerfi sínu, sem fyrirtækið segir að auki bæði þjónustu og öryggi. 17.11.2006 15:50 Stjórnarandstaðan: Betur má ef duga skal 17.11.2006 12:50 Nætursaltaðar götur í Reykjavík Saltmenn verða á næturvöktum í Reykjavík það sem eftir lifir vetrar og sjá til þess að götur séu auðar þegar fólk mætir til vinnu. Nætursöltunarvaktirnar verða skipaðar fram til 15. apríl, þegar naglatímabilinu lýkur. Þeir salta þó ekki nema þörf krefji en fylgjast með því að alls staðar sé gatan greið. 17.11.2006 12:19 Fötluð börn fá lengda viðveru Eftir áramót eiga öll fötluð börn á aldrinum tíu til sextán ára kost á lengdri viðveru í grunnskólum eftir að kennslu lýkur. Félagsmálaráðherra kynnti samkomulag um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga á ríkisstjórnarfundi í morgun, en deilur um kostnaðarskiptinguna hafa komið í veg fyrir að fatlaðir njóti þessarar þjónustu. 17.11.2006 12:11 Heimsmarkaðsverð á olíu ekki lægra í tæpt ár Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um heil fjögur prósent á einum sólarhring og hefur ekki verið lægra í tæpt ár. Tunnan af hráolíu lækkaði í morgun niður fyrir 56 dollara, en verð á tunnu fór hæst upp í 78 dollara í júlí síðastliðnum. Þetta er því lækkun um heila 22 dollara á tunnu. Samkvæmt þessum tölum ætti að vera komið svigrúm til bensínlækkunar hér á landi. 17.11.2006 12:10 Fiskiðnaður á flótta af höfuðborgarsvæðinu Útlit er fyrir að fiskiðnaður, sem stóriðja, leggist endanlega af í Reykjavík ef KB banki nær meirihluta í HB Granda, eins og bankinn stefnir að. Bankinn er orðinn annar stærsti hluthafi í fyrirtækinu með 30 prósenta hlut. Fiskiðjuver HB Granda, eða Ísbjarnarins eins og það hét, yrði ekki fyrsta fiskiðjuverið í Reykjavík sem viki fyrir annari notkun. 17.11.2006 12:04 Fréttir af framkvæmdum Norsk Hydro "út úr öllum kortum" Iðnaðarráðherra Jóni Sigurðssyni er ekki kunnugt um þær stórfelldu hugmyndir sem fjölmiðlar hafa um framkvæmdir Norsk Hydro á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Þær eru langt fjarri þeim áætlunum sem hingað til hafa verið kynntar og í raun alveg út úr öllum kortum,“ segir um fréttir í fjölmiðlum í tilkynningunni. 17.11.2006 11:50 Kveikt í ruslatunnum Eldur kviknaði í tveimur ruslatunnum við leikskólann Brákarborg í Brákarsundi í kvöld. Slökkvilið kom fljólega á staðinn og greiðlega gekk að slökkva eldinn þrátt fyrir töluverðan vind. Lítið tjón hlaust af eldinum en fyrir utan ruslatunnurnar sem brunnu skemmdist skjólveggur sem þær stóðu við einnig. 16.11.2006 20:56 Endalaus saga í olíusamráðsmáli Þó að fimm ár séu liðin frá því olíusamráðsmálið hófst með innrás lögreglu í olíufyrirtækin þrjú, hefur enginn endi verið bundinn á marga þræði málsins. Fyrir dómstólum eru rekin skaðabótamál gegn félögunum, refisþáttur stjórnenda er enn hjá saksóknara og hálft annað ár getur liðið þar til endanleg niðurstaða verður í sjálfu samráðsmálinu fyrir dómstólum. 16.11.2006 19:39 Lentu í klóm sjóræningja Íslensk hjón á siglingu um Karabíska hafið komust í hann krappann þegar vopnaðir ræningjar réðust um borð í bát þeirra og stálu öllu steini léttara. Þau voru bundin á höndum og fótum og um tíma óttuðust þau um líf sitt. 16.11.2006 19:24 Lögbrot að ráða tengdason biskups Skipan tengdasonar biskups, í embætti sendiráðsprests í Lundúnum, braut gegn jafnréttislögum, samkvæmt dómi Hæstaréttar í dag. Siv Konráðsdóttir, lögmaður konunnar sem stefndi segir þetta áfellisdóm yfir biskupi því hann beri samkvæmt dómnum ábyrgð á lögbrotinu. Gestur Jónsson, lögmaður biskups telur þessa niðurstöðu engan vegin áfellisdóm yfir embættisverkum biskups og raunar þvert á móti. 16.11.2006 19:20 Utanríkisráðherra í þorskastríð Valgerður Sverrisdóttir skar upp herör gegn sjóræningjaveiðum í morgun þegar hún flutti jómfrúarskýrslu sína um utanríkismál. Hún fór vítt og breitt yfir og ræddi einnig að leita þyrfti leiða til að efla samstarf við Evrópusambandið á sviði öryggismála. 16.11.2006 18:40 Óveður á Kjalarnesi Ennþá er óveður á Kjalarnesi en auðir vegir eru á Suður- og Suðvesturlandi. Á Norðurlandi og Austurlandi er víða hríðarveður og jafnvel stórhríð og ófært er yfir Þverárfjall. Varað er við óveðri sunnan Vatnajökuls. 16.11.2006 18:36 Vísitala íbúðaverðs lækkað um 2,2% frá fyrra mánuði Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 306,1 stig í október 2006 (janúar 1994=100) og lækkaði um 2,2% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hefur hún hækkað um 0,8% en undanfarna 6 mánuði hefur hún samt lækkað um 0,5%. Á ársgrundvelli varð þó hækkun upp á 7,2% 16.11.2006 18:18 Dagsbrún sendir frá sér afkomuviðvörun Dagsbrún sendi í dag frá sér afkomuviðvörun vegna níu mánaða uppgjörs. Stjórn fyrirtækisins hefur jafnframt ákveðið að ganga til viðræðna við hugsanlega kaupendur á meirihluta hlutafjár í Daybreak Acquisitions, móðurfélagi Wyndeham press Group PLC, sem er þriðja stærsta prent- og samskiptafyrirtæki Bretlands. 16.11.2006 17:49 Njörður. P Njarðvík fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar Í dag var hátíðardagskrá í sal Hjallaskóla í Kópavogi þar sem afhent voru Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2006 og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Þar veitti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra Nirði P. Njarðvík verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2006. 16.11.2006 17:25 Norsk Hydro lýsir áhuga á að reisa álver á Íslandi Norsk Hydro hellti sér í dag af krafti og með formlegum hætti í álverskapphlaupið. Fyrirtækið boðaði til fréttamannafundar þar sem það tilkynnti að það vildi koma að orkunýtingu og áliðnaði á Íslandi í framtíðinni um leið og það opnaði sérstaka skrifstofu í Reykjavík í þeim tilgangi. Skrifstofunni er jafnframt ætlað að leita tækifæra í Grænlandi og Austur-Kanada. 16.11.2006 17:09 Þrjú sveitarfélög undir smásjá Eftirlitsnefndar um fjármál Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Skagafjörður eru nú undir smásjá eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og tíu sveitarfélög þurftu sérstaka fjárhagsaðstoð vegna erfiðleika í fyrra. Forsætisráðherra sendir sveitarfélögum hins vegar pillu fyrir að ganga ekki í takt með ríkisstjórninni í hagsstjórn og kjaramálum opinberra starfsmanna. 16.11.2006 16:59 Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag árs fangelsisdóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot. Maðurinn hlaut dóminn í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars á þessu ári, fyrir að hafa haft samræði eða önnur kynferðismök við konu á meðan hún gat ekki spornað við verknaðinum, sökum ölvunar og svefndrunga. Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða konunni 600.000 krónur í skaðabætur. 16.11.2006 16:56 Gildistöku 300 þúsund króna frítekjumarks flýtt 16.11.2006 16:38 Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að íslenska þjóðkirkjan sé skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests í London. 16.11.2006 16:28 Foreldrar fá bréf um glannaskap barna sinna Lögreglan á Akranesi sendir nú foreldrum ungra ökumanna, sem gerast brotlegir í umferðinni, bréf. Lögreglan segir mikið hafa borið á brotum ungra ökumanna og ekki hafa allir látið sér segjast þrátt fyrir afskipti lögreglunnar. 16.11.2006 15:33 Sótt í heita vatnið í kuldanum Mikil notkun hefur verið á heitu vatni í kuldanum síðustu daga. Eftir hádegið í dag dældi Orkuveita Reykjavíkur um 13.300 tonnum af heitu vatni á klukkustund til notenda á höfuðborgarsvæðinu. 16.11.2006 15:16 35 stiga frost í Reykjavík Það er víða mjög hvasst á landinu og sumstaðar mjög snarpar og hættulegar vindhviður, einkum á Kjalarnesi. „ Þegar ég reikna saman lofthitann í borginni sem er um -6 stig og vindhraða um 13 m/s þá jafngildir vindkælingin því að vera í 35 stiga frosti í logni“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu NFS. 16.11.2006 14:42 Orð umhverfisráðherra kalla á skýra loftlagsstefnu Náttúruverndarsamtök Íslands segja orð umhverfisráðherra, á loftlagsþingi Sameinuðu þjóðanna í morgun, kalla á skýra loftslagsstefnu til langs tíma. Þetta felur meðal annars í sér að setja þarf tímasett markmið um verulegan samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda. 16.11.2006 14:23 Runólfur segir upp störfum á Bifröst Runólfur Ágústsson, rektor Háskólans á Bifröst, hefur sagt upp störfum. Í yfirlýsingu sem Runólfur sendi frá sér í dag, segir hann að ófriðurinn sem ríkt hafi á Bifröst að undanförnu hafi truflað bæði nemendur og starfsfólk og að auki valdið honum sjálfum skaða. 16.11.2006 13:36 Hydro opnar skrifstofu á Íslandi Fyrirtækið Hydro hefur opnað skrifstofu á Íslandi. Fyrirtækið hyggst þannig leita uppi og þróa ný ný umhverfisvæn viðskiptatækifæri á sviði ál- og orkuframleiðslu. Hydro hefur stundað viðskipti á Íslandi um nokkurra ára skeið bæði í tengslum við áliðnað og orkuvinnslu. 16.11.2006 13:19 Víða slæmt ferðaveður Óveður er á Kjalarnesi við Lómagnúp í Öræfasveit og við Kvísker. Mjög slæmt ferðaveður er á Austurlandi. Þungfært og stórhríð er á Mývatnsöræfum, á Möðrudalsöræfum, á Vopnafjarðarheiði, á Fagradal og í Oddskarði. Þungfært er á Skriðdal, snjóþekja og stórhríð er með ströndinni og lítið ferðaveður. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi. 16.11.2006 13:14 Stefnir í einn kaldasta nóvember í sögunni Verði ekki afgerandi veðurfarsbreytingar það sem eftir lifir mánaðar gæti þessi nóvembermánuður orðið með þeim vindasömustu, köldustu og snjóþyngstu sem komið hafa. Ekki sér fyrir endann á kuldakastinu í lengstu tölvuspám. Hvert stórviðrið hefur rekið annað þar sem minnstu hefur munað að stórtjón hlytist af og nú ríkja vetrarhörkur á landinu. 16.11.2006 13:00 Styrkir fyrir prófkjör ekki hærri en 300 þúsund krónur Styrkir einstaklinga og fyrirtækja til stjórnmálaflokka og frambjóðenda í prófkjörum mega aldrei verða hærri en 300 þúsund krónur, samkvæmt tillögum nefndar um lagalega umgjörð stjórnmálastarfsemi sem lýkur störfum í dag. 16.11.2006 12:30 Greiðir rúma hálfa milljón fyrir umferðarlagabrot Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt mann til að greiða 540 þúsund krónur í sekt fyrir margvísleg og ítrekuð umferðarlagabrot, sem hann framdi víðsvegar um Vestfirði í sumar. Mun þetta vera einhver hæsta sekt fyrir umferðarlagabrot sem um getur. 16.11.2006 12:29 Sveitarfélögum send viðvörun vegna alvarlegrar fjárhagsstöðu Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur á síðustu fjórum árum sent 37 sveitarfélögum viðvörun, þar af þremur á þessu ári, vegna alvarlegrar fjárhagsstöðu. Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna, sem hófst í morgun, kallaði Halldór Halldórsson, nýkjörinn formaður þeirra, eftir því að þau fengju aukna hlutdeild í sköttum hins opinbera og nefndi fjármagnstekjuskattinn sérstaklega. 16.11.2006 12:17 SMS-íska og blog-íska ryðja sér til rúms Hey mar, ammli, lol og hurru eru meðal algengra orða sem unglingar nota í daglegu máli. Breyting á málfari þeirra er að miklu leiti tilkomin vegna SMS skilaboða og notkunar á MSN þar sem hraði og form hafa mikil áhrif. Mest eru þetta styttingar á íslenskum orðum, eins og ammli og hurru, en þó er mikið mikið um skammstafanir úr ensku eins og lol(laughing out loud). 16.11.2006 12:12 Bush og Putin funda George W. Bush Bandaríkjaforseti og Vladimir Putin Rússlandsforseti áttu "ótrúlega góðan" fund í dag. Bush er sem stendur á ferðalagi til Asíu en kom við í Moskvu til þess að fylla á flugvél sína. Putin kom þá við á flugvellinum til þess að heilsa upp á Bush og ræða við hann um væntanlega inngöngu Rússa í Alþjóðaviðskiptaráðið. 15.11.2006 23:10 Bílslys undir Eyjafjöllum Bílslys varð nú í kvöld undir Eyjafjöllum en tveir ungir Englendingar voru þar á ferð. Flughálka var á staðnum og misstu þeir stjórn á bílnum þar sem þeir komu að brúnni yfir Holtsá. Fór bíllinn yfir varnargarð og út í ánna og er hann talinn gjörónýtur. Mennirnir tveir skárust tölvuvert á höfði en annars er líðan þeirra góð eftir atvikum. 15.11.2006 22:44 Breytinga þörf á Akureyrarflugvelli Akureyrarbær og KEA hafa boðist til þess að reiða fram fé til að hægt verði að lengja flugbrautina á Akureyrarflugvelli gegn því að ríkið endurgreiði þeim seinna. 15.11.2006 22:05 Þungfært á Öxnadalsheiði Ófært um Víkurskarð og Öxi og þungfært á Öxnadalsheiði. Á Norður og Norðausturlandi er víðast hvar stórhríð. 15.11.2006 21:43 Sjá næstu 50 fréttir
Flott án fíknar Flott án fíknar er nýtt og öðruvísi forvarnarverkefni sem kynnt var í Smáralindinni í dag. Verkefnið byggir á því að unglingar ganga í klúbba og samningsbinda sig til að vera reyk- og vímuefnalausir. 17.11.2006 18:30
Hydro ekki að reisa álver Norska fyrirtækið Hydro hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að það sé ekki að fara að reisa álver hér landi heldur muni eingöngu setja hér upp skrifstofu sem eigi að vinna að möguleikum hvað varðar þróun á orkulindum hér á landi. 17.11.2006 18:29
Frítekjumarkið þýðir 6400 krónur í vasann Frítekjumark á atvinnutekjur eldri borgara upp á tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði, sem taka á gildi um áramótin, er hræódýrt fyrir ríkissjóð, segir Einar Árnason, hagfræðingur Landssambands eldri borgara. Stjórnarandstaðan vill þrefalda frítekjumarkið. Varaformaður Samfylkingarinnar telur ríkisstjórnarflokkana hafa þvingað eldri borgara til að samþykkja frítekjumarkið með hótunum. 17.11.2006 17:48
Fasteignaverð lækkaði í okóber Verð á einbýlishúsum lækkaði um 3,2% milli september og október og íbúðir í fjölbýli um 1,7%. Þetta er samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins. Vísitala íbúðarverðs mældist 306,1 stig í október og lækkar um 2,2% frá fyrri mánuði. Hækkunin síðastliðið ár mælist því 7,2% og lækkar skarpt síðan í september þegar hún mældist 10,5%. 17.11.2006 17:11
Öllum fuglum fargað í Húsdýragarðinum Landbúnaðarráðherra hefur fyrirskipað að öllum fuglum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum skuli fargað, vegna hættu á fuglaflensu. Alls eru þetta sextíu og sex fuglar. Tveir fálkar og einn haförn fá þó að halda lífi, enda talið ólíklegt að í þeim finnist smit. 17.11.2006 16:53
Bryndísi Kristjándóttir skipuð skattrannsóknarstjóri ríkisins Fjármálaráðherra hefur skipað Bryndísi Kristjándóttur í embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins frá 1. janúar 2007. Auk Bryndísar voru þrír aðrir umsækendur um embættið. 17.11.2006 16:41
VG krefst frestunar allra framkvæmda í stóriðju Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að ríkisstjórnin lýsi því tafarlaust yfir að öllum frekari stóriðjuframkvæmdum verði frestað. Í ályktun þingflokksins að nú fari fram kapphlaup um byggingu orkuvera fyrir erlendar álbræðslur. Fyrirheit um lágt raforkuverð og ókeypis mengunarkvóta hvetji stórfyrirtæki til að flytja framleiðslu sína til Íslands og loka verksmiðjum í löndum sem gera meiri kröfur um mengunarvarnir og selja orkuna á hærra verði. 17.11.2006 16:12
Þjófur barðist um á hæl og hnakka Þjófur sem starfsmenn gripu í Byko í Breiddinni, eftir hádegi, var svo ósáttur við að hafa verið fangaður að hann barðist um sem óður væri. Þurfti fjóra starfsmenn verslunarinnar til að hafa hemil á honum þartil lögreglan kom á vettvang. 17.11.2006 16:04
Vodafone þéttir net sitt Vodafone hefur lokið við uppfærslu á öllum símstöðvum í kerfi sínu, sem fyrirtækið segir að auki bæði þjónustu og öryggi. 17.11.2006 15:50
Nætursaltaðar götur í Reykjavík Saltmenn verða á næturvöktum í Reykjavík það sem eftir lifir vetrar og sjá til þess að götur séu auðar þegar fólk mætir til vinnu. Nætursöltunarvaktirnar verða skipaðar fram til 15. apríl, þegar naglatímabilinu lýkur. Þeir salta þó ekki nema þörf krefji en fylgjast með því að alls staðar sé gatan greið. 17.11.2006 12:19
Fötluð börn fá lengda viðveru Eftir áramót eiga öll fötluð börn á aldrinum tíu til sextán ára kost á lengdri viðveru í grunnskólum eftir að kennslu lýkur. Félagsmálaráðherra kynnti samkomulag um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga á ríkisstjórnarfundi í morgun, en deilur um kostnaðarskiptinguna hafa komið í veg fyrir að fatlaðir njóti þessarar þjónustu. 17.11.2006 12:11
Heimsmarkaðsverð á olíu ekki lægra í tæpt ár Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um heil fjögur prósent á einum sólarhring og hefur ekki verið lægra í tæpt ár. Tunnan af hráolíu lækkaði í morgun niður fyrir 56 dollara, en verð á tunnu fór hæst upp í 78 dollara í júlí síðastliðnum. Þetta er því lækkun um heila 22 dollara á tunnu. Samkvæmt þessum tölum ætti að vera komið svigrúm til bensínlækkunar hér á landi. 17.11.2006 12:10
Fiskiðnaður á flótta af höfuðborgarsvæðinu Útlit er fyrir að fiskiðnaður, sem stóriðja, leggist endanlega af í Reykjavík ef KB banki nær meirihluta í HB Granda, eins og bankinn stefnir að. Bankinn er orðinn annar stærsti hluthafi í fyrirtækinu með 30 prósenta hlut. Fiskiðjuver HB Granda, eða Ísbjarnarins eins og það hét, yrði ekki fyrsta fiskiðjuverið í Reykjavík sem viki fyrir annari notkun. 17.11.2006 12:04
Fréttir af framkvæmdum Norsk Hydro "út úr öllum kortum" Iðnaðarráðherra Jóni Sigurðssyni er ekki kunnugt um þær stórfelldu hugmyndir sem fjölmiðlar hafa um framkvæmdir Norsk Hydro á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Þær eru langt fjarri þeim áætlunum sem hingað til hafa verið kynntar og í raun alveg út úr öllum kortum,“ segir um fréttir í fjölmiðlum í tilkynningunni. 17.11.2006 11:50
Kveikt í ruslatunnum Eldur kviknaði í tveimur ruslatunnum við leikskólann Brákarborg í Brákarsundi í kvöld. Slökkvilið kom fljólega á staðinn og greiðlega gekk að slökkva eldinn þrátt fyrir töluverðan vind. Lítið tjón hlaust af eldinum en fyrir utan ruslatunnurnar sem brunnu skemmdist skjólveggur sem þær stóðu við einnig. 16.11.2006 20:56
Endalaus saga í olíusamráðsmáli Þó að fimm ár séu liðin frá því olíusamráðsmálið hófst með innrás lögreglu í olíufyrirtækin þrjú, hefur enginn endi verið bundinn á marga þræði málsins. Fyrir dómstólum eru rekin skaðabótamál gegn félögunum, refisþáttur stjórnenda er enn hjá saksóknara og hálft annað ár getur liðið þar til endanleg niðurstaða verður í sjálfu samráðsmálinu fyrir dómstólum. 16.11.2006 19:39
Lentu í klóm sjóræningja Íslensk hjón á siglingu um Karabíska hafið komust í hann krappann þegar vopnaðir ræningjar réðust um borð í bát þeirra og stálu öllu steini léttara. Þau voru bundin á höndum og fótum og um tíma óttuðust þau um líf sitt. 16.11.2006 19:24
Lögbrot að ráða tengdason biskups Skipan tengdasonar biskups, í embætti sendiráðsprests í Lundúnum, braut gegn jafnréttislögum, samkvæmt dómi Hæstaréttar í dag. Siv Konráðsdóttir, lögmaður konunnar sem stefndi segir þetta áfellisdóm yfir biskupi því hann beri samkvæmt dómnum ábyrgð á lögbrotinu. Gestur Jónsson, lögmaður biskups telur þessa niðurstöðu engan vegin áfellisdóm yfir embættisverkum biskups og raunar þvert á móti. 16.11.2006 19:20
Utanríkisráðherra í þorskastríð Valgerður Sverrisdóttir skar upp herör gegn sjóræningjaveiðum í morgun þegar hún flutti jómfrúarskýrslu sína um utanríkismál. Hún fór vítt og breitt yfir og ræddi einnig að leita þyrfti leiða til að efla samstarf við Evrópusambandið á sviði öryggismála. 16.11.2006 18:40
Óveður á Kjalarnesi Ennþá er óveður á Kjalarnesi en auðir vegir eru á Suður- og Suðvesturlandi. Á Norðurlandi og Austurlandi er víða hríðarveður og jafnvel stórhríð og ófært er yfir Þverárfjall. Varað er við óveðri sunnan Vatnajökuls. 16.11.2006 18:36
Vísitala íbúðaverðs lækkað um 2,2% frá fyrra mánuði Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 306,1 stig í október 2006 (janúar 1994=100) og lækkaði um 2,2% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hefur hún hækkað um 0,8% en undanfarna 6 mánuði hefur hún samt lækkað um 0,5%. Á ársgrundvelli varð þó hækkun upp á 7,2% 16.11.2006 18:18
Dagsbrún sendir frá sér afkomuviðvörun Dagsbrún sendi í dag frá sér afkomuviðvörun vegna níu mánaða uppgjörs. Stjórn fyrirtækisins hefur jafnframt ákveðið að ganga til viðræðna við hugsanlega kaupendur á meirihluta hlutafjár í Daybreak Acquisitions, móðurfélagi Wyndeham press Group PLC, sem er þriðja stærsta prent- og samskiptafyrirtæki Bretlands. 16.11.2006 17:49
Njörður. P Njarðvík fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar Í dag var hátíðardagskrá í sal Hjallaskóla í Kópavogi þar sem afhent voru Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2006 og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Þar veitti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra Nirði P. Njarðvík verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2006. 16.11.2006 17:25
Norsk Hydro lýsir áhuga á að reisa álver á Íslandi Norsk Hydro hellti sér í dag af krafti og með formlegum hætti í álverskapphlaupið. Fyrirtækið boðaði til fréttamannafundar þar sem það tilkynnti að það vildi koma að orkunýtingu og áliðnaði á Íslandi í framtíðinni um leið og það opnaði sérstaka skrifstofu í Reykjavík í þeim tilgangi. Skrifstofunni er jafnframt ætlað að leita tækifæra í Grænlandi og Austur-Kanada. 16.11.2006 17:09
Þrjú sveitarfélög undir smásjá Eftirlitsnefndar um fjármál Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Skagafjörður eru nú undir smásjá eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og tíu sveitarfélög þurftu sérstaka fjárhagsaðstoð vegna erfiðleika í fyrra. Forsætisráðherra sendir sveitarfélögum hins vegar pillu fyrir að ganga ekki í takt með ríkisstjórninni í hagsstjórn og kjaramálum opinberra starfsmanna. 16.11.2006 16:59
Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag árs fangelsisdóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot. Maðurinn hlaut dóminn í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars á þessu ári, fyrir að hafa haft samræði eða önnur kynferðismök við konu á meðan hún gat ekki spornað við verknaðinum, sökum ölvunar og svefndrunga. Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða konunni 600.000 krónur í skaðabætur. 16.11.2006 16:56
Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að íslenska þjóðkirkjan sé skaðabótaskyld vegna skipunar sendiráðsprests í London. 16.11.2006 16:28
Foreldrar fá bréf um glannaskap barna sinna Lögreglan á Akranesi sendir nú foreldrum ungra ökumanna, sem gerast brotlegir í umferðinni, bréf. Lögreglan segir mikið hafa borið á brotum ungra ökumanna og ekki hafa allir látið sér segjast þrátt fyrir afskipti lögreglunnar. 16.11.2006 15:33
Sótt í heita vatnið í kuldanum Mikil notkun hefur verið á heitu vatni í kuldanum síðustu daga. Eftir hádegið í dag dældi Orkuveita Reykjavíkur um 13.300 tonnum af heitu vatni á klukkustund til notenda á höfuðborgarsvæðinu. 16.11.2006 15:16
35 stiga frost í Reykjavík Það er víða mjög hvasst á landinu og sumstaðar mjög snarpar og hættulegar vindhviður, einkum á Kjalarnesi. „ Þegar ég reikna saman lofthitann í borginni sem er um -6 stig og vindhraða um 13 m/s þá jafngildir vindkælingin því að vera í 35 stiga frosti í logni“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu NFS. 16.11.2006 14:42
Orð umhverfisráðherra kalla á skýra loftlagsstefnu Náttúruverndarsamtök Íslands segja orð umhverfisráðherra, á loftlagsþingi Sameinuðu þjóðanna í morgun, kalla á skýra loftslagsstefnu til langs tíma. Þetta felur meðal annars í sér að setja þarf tímasett markmið um verulegan samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda. 16.11.2006 14:23
Runólfur segir upp störfum á Bifröst Runólfur Ágústsson, rektor Háskólans á Bifröst, hefur sagt upp störfum. Í yfirlýsingu sem Runólfur sendi frá sér í dag, segir hann að ófriðurinn sem ríkt hafi á Bifröst að undanförnu hafi truflað bæði nemendur og starfsfólk og að auki valdið honum sjálfum skaða. 16.11.2006 13:36
Hydro opnar skrifstofu á Íslandi Fyrirtækið Hydro hefur opnað skrifstofu á Íslandi. Fyrirtækið hyggst þannig leita uppi og þróa ný ný umhverfisvæn viðskiptatækifæri á sviði ál- og orkuframleiðslu. Hydro hefur stundað viðskipti á Íslandi um nokkurra ára skeið bæði í tengslum við áliðnað og orkuvinnslu. 16.11.2006 13:19
Víða slæmt ferðaveður Óveður er á Kjalarnesi við Lómagnúp í Öræfasveit og við Kvísker. Mjög slæmt ferðaveður er á Austurlandi. Þungfært og stórhríð er á Mývatnsöræfum, á Möðrudalsöræfum, á Vopnafjarðarheiði, á Fagradal og í Oddskarði. Þungfært er á Skriðdal, snjóþekja og stórhríð er með ströndinni og lítið ferðaveður. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi. 16.11.2006 13:14
Stefnir í einn kaldasta nóvember í sögunni Verði ekki afgerandi veðurfarsbreytingar það sem eftir lifir mánaðar gæti þessi nóvembermánuður orðið með þeim vindasömustu, köldustu og snjóþyngstu sem komið hafa. Ekki sér fyrir endann á kuldakastinu í lengstu tölvuspám. Hvert stórviðrið hefur rekið annað þar sem minnstu hefur munað að stórtjón hlytist af og nú ríkja vetrarhörkur á landinu. 16.11.2006 13:00
Styrkir fyrir prófkjör ekki hærri en 300 þúsund krónur Styrkir einstaklinga og fyrirtækja til stjórnmálaflokka og frambjóðenda í prófkjörum mega aldrei verða hærri en 300 þúsund krónur, samkvæmt tillögum nefndar um lagalega umgjörð stjórnmálastarfsemi sem lýkur störfum í dag. 16.11.2006 12:30
Greiðir rúma hálfa milljón fyrir umferðarlagabrot Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt mann til að greiða 540 þúsund krónur í sekt fyrir margvísleg og ítrekuð umferðarlagabrot, sem hann framdi víðsvegar um Vestfirði í sumar. Mun þetta vera einhver hæsta sekt fyrir umferðarlagabrot sem um getur. 16.11.2006 12:29
Sveitarfélögum send viðvörun vegna alvarlegrar fjárhagsstöðu Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur á síðustu fjórum árum sent 37 sveitarfélögum viðvörun, þar af þremur á þessu ári, vegna alvarlegrar fjárhagsstöðu. Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna, sem hófst í morgun, kallaði Halldór Halldórsson, nýkjörinn formaður þeirra, eftir því að þau fengju aukna hlutdeild í sköttum hins opinbera og nefndi fjármagnstekjuskattinn sérstaklega. 16.11.2006 12:17
SMS-íska og blog-íska ryðja sér til rúms Hey mar, ammli, lol og hurru eru meðal algengra orða sem unglingar nota í daglegu máli. Breyting á málfari þeirra er að miklu leiti tilkomin vegna SMS skilaboða og notkunar á MSN þar sem hraði og form hafa mikil áhrif. Mest eru þetta styttingar á íslenskum orðum, eins og ammli og hurru, en þó er mikið mikið um skammstafanir úr ensku eins og lol(laughing out loud). 16.11.2006 12:12
Bush og Putin funda George W. Bush Bandaríkjaforseti og Vladimir Putin Rússlandsforseti áttu "ótrúlega góðan" fund í dag. Bush er sem stendur á ferðalagi til Asíu en kom við í Moskvu til þess að fylla á flugvél sína. Putin kom þá við á flugvellinum til þess að heilsa upp á Bush og ræða við hann um væntanlega inngöngu Rússa í Alþjóðaviðskiptaráðið. 15.11.2006 23:10
Bílslys undir Eyjafjöllum Bílslys varð nú í kvöld undir Eyjafjöllum en tveir ungir Englendingar voru þar á ferð. Flughálka var á staðnum og misstu þeir stjórn á bílnum þar sem þeir komu að brúnni yfir Holtsá. Fór bíllinn yfir varnargarð og út í ánna og er hann talinn gjörónýtur. Mennirnir tveir skárust tölvuvert á höfði en annars er líðan þeirra góð eftir atvikum. 15.11.2006 22:44
Breytinga þörf á Akureyrarflugvelli Akureyrarbær og KEA hafa boðist til þess að reiða fram fé til að hægt verði að lengja flugbrautina á Akureyrarflugvelli gegn því að ríkið endurgreiði þeim seinna. 15.11.2006 22:05
Þungfært á Öxnadalsheiði Ófært um Víkurskarð og Öxi og þungfært á Öxnadalsheiði. Á Norður og Norðausturlandi er víðast hvar stórhríð. 15.11.2006 21:43