Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Borð Fischers og Spasskys á leið í ferðalag Skákborðið sem Fischer og Spasský tefldu við árið 1972 verður sent til Þýskalands innan skamms þar sem það fer á viðamikla sýningu sem helguð er skák og stjórnmálum. En áður en borðið leggur í langferð þjónar það í öðru einvígi þar sem Hannes Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson kljást um Íslandsmeistaratitilinn. Það einvígi byrjar klukkan fimm í dag í húsi Orkuveitu Reykjavíkur og er öllum opið. 29.8.2006 10:34
Samfylkingin vill fjölga stúdentaíbúðum Samfylkingin vill að Reykjavíkurborg gangi til viðræðna við byggingafélög námsmanna um uppbyggingu allt að 800 stúdentaíbúða. 29.8.2006 10:29
Alcan í Straumsvík býður þjóðinni í heimsókn Í tilefni af 40 ára afmæli Alcan í Straumsvík verða dyrnar að álverinu opnaðar almenningi sunnudaginn 3. september. 29.8.2006 09:58
Neyðarhjálp úr norðri styrkir elliheimili og grunnskóla í Tékklandi Góðgerðarfélagið "Neyðarhjálp úr norðri" hefur gefið eina milljón króna til elliheimils í bænum Valasske Mexirici og grunnskóla í borginni Vsetin í Tékklandi. Félagið efndi til söfnunar í vor í kjölfar flóða sem urðu í Tékklandi 29.8.2006 09:43
Tafir á umferð Búast má við töfum á umferð í dag og næstu daga frá kl. 7:30-20:00 á Suðurlandsvegi frá Norðlingaholti upp að Litlu Kaffistofu. Tvístefna verður á annari akrein á köflum en umferð handstýrt annarsstaðar. 29.8.2006 09:13
Aurflóð féll inn í kjallara Lítið aurflóð féll inn í kjallara húss á Siglufirði um miðnættið í nótt. Ekki er ljóst hversu miklar skemmdirnar eru. 29.8.2006 09:00
Banaslys á Eiðavegi Ung kona sem lenti í umferðarslysi á Eiðavegi hjá Fossgerði lést í gærkvöldi. Hún var nítján ára. 29.8.2006 08:45
Tap á rekstri Landsvirkjunar Sex komma fimm milljarða króna tap varð af rekstri Landsvirkjunar á fyrri helmingi þessa árs og skýrist það aðallega af veikingu krónunnar og lánum í erlendri mynt. 29.8.2006 08:21
Þorgeir Pálsson til Flugstoða ohf. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri hefur ákveðið að taka boði stjórnar Flugstoða ohf. um að verða forstjóri félagsins. Gengið hefur verið frá starfssamningi milli aðila, sem kveður á um að Þorgeir taki við starfinu 1. janúar 2007. Hann mun fram til þess tíma gegna embætti flugmálastjóra, sem hann var skipaður til árið 1992. 28.8.2006 21:30
Reykjavíkurborg og Strætó BS krefjast skaðabóta Reykjavíkurborg og Strætó bs krefjast skaðabóta frá olíufélögunum upp á 157 milljónir króna vegna samráðs félaganna. Fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, þar sem stefnandi og verjendur kröfðust frestunar á málunum tveimur í þrjár vikur sem þeir hyggjast nota til frekari gagnaöflunar. Olíufélögin sem um ræðir eru Esso, Olís og Skeljungur. 28.8.2006 21:05
Frestun á fyllingu Hálslóns myndi kosta milljarða Frestun á fyllingu Hálslóns, eins og Vinstri grænir leggja til, myndi kosta Landsvirkjun milljarða króna. Steingrímur J. Sigfússon segir það vel sloppið, miðað við milljarðana sem óvandaður undirbúningur hafi kostað. 28.8.2006 21:00
VG vill að Valgerður segi af sér Formaður Vinstri grænna hvetur Valgerði Sverrisdóttur til að segja af sér ráðherradómi í ljósi þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið á þátt hennar í að greinargerð Gríms Björnssonar jarðfræðings var stimpluð sem trúnaðarmál árið 2002. 28.8.2006 20:55
Hættan innan viðmiðunarmarka Mannvirki Kárahnjúkavirkjunar standast allar kröfur sem til þeirra eru gerðar og hættan sem af þeim stafar er innan viðmiðunarmarka. Þetta kemur fram í endurskoðuðu áhættumati Landsvirkjunar sem kynnt var á stjórnarfundi í dag. Stjórnarmenn eru þó ekki allir sannfærðir um niðurstöðuna. 28.8.2006 20:54
Smyglaði 300 grömmum af hassi Þrír sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við fíkniefnasmygl fangavarðar á Litla-Hrauni sem handtekinn var á laugardag. Orðrómur er meðal refsifanga á Litla-Hrauni um að fangavörðurinn hafi einnig smyglað farsímum inn í fangelsið. 28.8.2006 18:39
Alvarlegt umferðarslys á Eiðavegi Alvarlegt umferðarslys varð á Eiðavegi við Fossgerði í nágrenni Egilsstaða skömmu fyrir fimm í dag. Tveir bílar skullu saman og er annar ökumaðurinn alvarlega slasaður. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Egilsstöðum. 28.8.2006 17:47
Nýr samningur milli Íslensku óperunnar og ríkisins undirritaður Nýr samningur var undirritaður í dag milli Íslensku óperunnar og ríkisins um óperustarfsemi. Samningurinn er til fjögurra ára og í honum er miðað við óbreytt framlag úr ríkissjóði og tilkekinn fjölda á uppfærslum óperusýninga. Gert er ráð fyrir auknu samstarfi við aðila á sviði óperulistarinnar. Ráðgert er að setja upp átta meðalstórar óperur í vetur auk einnar barnaóperu. Þá mun Íslenska óperan taka þátt í átta samstarfsverkefnum á gildistíma samningsins sem rennur út í árslok árið 2009. 28.8.2006 16:56
Lagabreytingin gjörbreytti fjölmiðlaumhverfinu á Íslandi Þorbjörn Broddasson, prófessor í fjölmiðlafræði, segir að tilkoma einkarekinna sjónvarps- og útvarpsstöðva hafi gjörbreytt fjölmiðlamarkaðinum á Íslandi. Hann talar um Siðaskiptin síðari í sögu Íslendinga. 28.8.2006 16:42
Vilja afrit af bréfi orkumálastjóra til ráðherra Formaður þingflokks VG hefur óskað eftir því við iðnaðarráðherra að fá í hendur afrit af bréfi eða greinargerð orkumálastjóra til ráðherra í kjölfar skýrslu Gríms Björnssonar um Kárahnjúka árið 2002. 28.8.2006 15:55
Staðfestir fyrra mat Stjórn Landsvirkjunar lýsir yfir fyllsta trausti á þá starfsmenn Landsvirkjunar og aðra sem hafa unnið að hönnun og byggingu Kárahnjúkavirkjunar og vill fullvissa landsmenn að alls öryggis hafi verið gætt við hönnun og byggingu mannvirkjanna og að engin hætta steðji að íbúum svæðisins. Stjórnin samþykkti á fundi í dag endurskoðað áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Það staðfestir fyrra mat og verður því haldið áfram með framkvæmdina eins og ráðgert var. 28.8.2006 15:28
Fleiri vilja vinstristjórn 68 prósent þeirra sem þátt taka í nýrri könnun Fréttablaðsins vilja skipta út flokkum í ríkisstjórninni eftir næstu þingkosningar. Fleiri vilja fá vinstristjórn heldur en áframhaldandi hægri stjórn. 28.8.2006 15:06
Stefna borgarinnar og Strætó tekin fyrir Reykjavíkurborg og Strætó bs. hafa stefnt olíufélögunum vegna samráðs þeirra og krefjast skaðabóta upp á samtals 157 milljóna króna. Fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, þar sem stefnandi og verjandur kröfðust frestunar á málunum tveimur í þrjár vikur sem þeir hyggjast nota til frekari gagnaöflunar. 28.8.2006 15:03
Öldruð kona lést eftir að hafa orðið fyrir bíl Kona á áttræðisaldri lést í gær eftir að hafa orðið fyrir bíl í Keflavík í gærdag. Eftir slysið var hún flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en vegna þess hve alvarleg meiðsl hennar voru var hún flutt á slysadeild Landspítalans þar sem hún var síðan úrskurðuð látin. Þetta er sjöunda banaslysið í umferðinni í ágústmánuði og það átjánda á þessu ári. 28.8.2006 15:01
Snæfellsbæ stefnt BSRB stefndi Snæfellsbæ síðastliðinn föstudag vegna ólögmætra uppsagna sex starfsmanna úr starfi við íþróttahús og sundlaugar bæjarins. 28.8.2006 14:47
Útvarpsstjóri RÚV las fréttir á Bylgjunni í dag Gamlir fréttamenn og útvarpsmenn af Bylgjunni snúa aftur að hljóðnemanum í tilefni af tvítugsafmæli Bylgjunnar, meðal annarra mætti Páll Magnússon útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins í hljóðver og las fréttir klukkan ellefu. Auk Páls Magnússonar munu Elín Hirst, Sigursteinn Másson og fleiri lesa okkur fréttirnar á Bylgjunni í dag. 28.8.2006 12:43
Tveir fangar taldir tengjast fíkniefnasmyglinu Tveir fangar sem afplána dóm á Litla-hrauni hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðahald í tengslum við fíkniefnasmygl fangavarðar á Litla-Hrauni á laugardaginn. Forstöðumaður Litla-Hrauns segir fíkniefnasmygl fangavarðarins mikið áfall. 28.8.2006 12:09
Ræðir nýtt áhættumat Stjórnarfundur Landsvirkjunar hófst klukkan níu í morgun. Á fundinum verður meðal annars lagt fram nýtt áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þar sem nýjar upplýsingar um jarðhita og jarðsprungur hafa komið fram þá var óskað eftir því við Landsvirkjun að lagt yrði fram nýtt áhættumat. 28.8.2006 11:00
Segir árásina morðtilraun Heimilislaus Íslendingur, Haraldur Sigurðsson, sem var kastað fyrir lest í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld, segist lítið muna eftir sekúndunum þegar hann lá undir lestinni. Hann segir árásina ekkert annað en morðtilraun því að á upptökum úr öryggismyndavélum sjáist að árásarmaðurinn bíði á brautarpallinum til að sjá þegar lestin keyri yfir Harald en labbi svo í burtu. 28.8.2006 10:10
Búið að úrskurða fangavörðinn í gæsluvarðahald Héraðsdómur Suðurlands hefur úrskurðað fangavörðinn, sem handtekinn var á laugardaginn fyrir að reyna að smygla inn fíkniefnum á Litla-Hraun, í vikulangt gæsluvarðhald. Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir að mikið hafi verið um fíkniefni í umferð innan veggja fangelsins í sumar. 28.8.2006 09:37
Vill ræða um leyniþjónustu Björn Bjarnason, vill hefja umræður um hvort nauðsynlegt sé að stofna leyniþjónustu hér á landi. Þetta sagði ráðherra í ræðu á fundi Rótarýklúbbs Austurbæjar þar sem hann flutti ræðu um varnarmálin. Ræðuna birtir hann í heild á heimasíðu sinni, www.bjorn.is. 28.8.2006 08:30
Stýrivextir eru háir á Íslandi Stýrivextir á Íslandi skera sig frá stýrivöxtum annarra þjóða. Stýrivextirnir eina tækið sem Seðlabankinn hefur til þess að ná tökum á verðbólgunni. 28.8.2006 08:30
Skiptar skoðanir um nekt barna í sjónvarpi Fjölmiðlar eiga að móta sér stefnu í því hvernig þeir koma fram við börn. Ósmekklegt var að sýna nakið barn í sjónvarpsþættinum Kóngur um stund segir Ingibjörg Þ. Rafnar umboðsmaður barna. 28.8.2006 08:15
68 prósent vilja aðra stjórn Flestir, eða tæplega 36 prósent, vilja vinstri stjórn eftir næstu kosningar, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Rúm 32 prósent vilja hægri stjórn en rúmlega 22 prósent vilja samstarf hægri og vinstri afla. 28.8.2006 08:00
Meirihluti vill Sjálfstæðisflokk í stjórn Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins vilja tæp 54 prósent að Sjálfstæðisflokkur verði í ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Rúm 48 prósent vilja Samfylkingu og 45 prósent vilja að Vinstri græn verði í ríkisstjórn. 28.8.2006 08:00
Gleypti hálft kíló af hassi Par á fertugsaldri með þriggja ára gamalt barn var stöðvað við reglubundið eftirlit tollgæslunnar í Leifsstöð um hádegisbil á fimmtudaginn. Parið var að koma frá Kaupmannahöfn og vöknuðu grunsemdir tollgæslunnar um að maðurinn væri með fíkniefni innvortis. 28.8.2006 07:45
Fáir útlendingar á bótum Lítið er um að erlendir starfsmenn á Íslandi taki sér atvinnuleysisbætur, þrátt fyrir að réttur þeirra til bóta sé sá sami og réttur Íslendinga, telji þeir fram á landinu. Sama gildir um fæðingarorlofsgreiðslur. 28.8.2006 07:45
Beitir blekkingum Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar, segir að Valgerður Sverrisdóttir hafi beitt blekkingum í fjölmiðlum þegar hún hafi verið spurð um það hví hún hafi ekki greint þingmönnum frá innihaldi skýrslu Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings. 28.8.2006 07:30
Hópur sem vill á önnur mið Greinilegt er að hópur kjósenda Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vill ekki halda áfram með ríkisstjórnarsamstarfið. Þetta les Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur úr skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birtist í blaðinu í dag. 28.8.2006 07:30
Samningar eru vandamálið ekki kennitala Vinnumarkaður Skúli Guðmundsson, skrifstofustjóri Þjóðskrár, segir að kennitala sé ekki vandamálið hvað erlenda starfsmenn varðar, vandinn sé sá að vinnuveitendur skili ekki inn ráðningarsamningum. Kennitalan fáist og biðtíminn styttist þegar starfsmenn Þjóðskrár verði allir komnir úr sumarleyfi. 28.8.2006 07:15
Fleiri börn í heilsdagsvistun en áður Vel hefur gengið að manna heilsdagsskóla í Hafnarfirði og í Setbergsskóla bíða engin börn eftir plássi. 28.8.2006 07:15
Hundruð erlendra manna óskráð Þjóðskráin hefur ekki undan að afgreiða umsóknir um kennitölur fyrir erlenda starfsmenn. Fyrirtæki geta ekki staðið skil á skatti meðan kennitölu vantar. Vinnuveitendur skila ekki inn ráðningarsamningi til Vinnumálastofnunar. 28.8.2006 07:15
Fékk laun í uppsagnarfresti VR vann nýlega mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hönd félagsmanns sem var vikið fyrirvaralaust úr starfi í fyrravetur. Í dómnum var verslanakeðju í Reykjavík gert að greiða félagsmanninum rúmlega eina og hálfa milljón króna vegna launa í uppsagnarfresti auk málskostnaðar. 28.8.2006 07:00
Rannsókn heldur áfram í dag „Ég er bara að bíða eftir svörum frá lögreglunni en hún hefur rannsókn á málinu eftir helgi,“ segir Einar B. Gunnlaugsson, verkstjóri Efnamóttökunnar, en mikill eldur braust út í eiturefnamóttökunni í Gufunesi á föstudagskvöldið. 28.8.2006 07:00
Ófaglærðir ráðnir til starfa "Ég fullyrði að slíkt tíðkast hvergi annars staðar í hinum vestræna heimi og er til háborinnar skammar," segir Páll E. Winkel, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna. Mikill skortur er á fagmenntuðum lögreglumönnum, sérstaklega í Reykjavík, og getur nánast hver sem er sótt um starf og fengið án þess að hljóta til þess nokkra menntun. 28.8.2006 06:45
Ánægð með skjót viðbrögð Forsvarsmenn á Keflavíkurflugvelli funda í dag um aðgerðir á flugvellinum um helgina þegar flugvél British Airways nauðlenti vegna gruns um eld í farþegarými. Arngrímur Guðmundsson, deildarstjóri öryggissviðs Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar, segist vera nokkuð ánægður með aðgerðirnar og sérstaklega hvað viðbragðstími hafi verið góður. 28.8.2006 06:45
Vill flýta byggingu á Lýsisreit Niðurrif á húsnæði Lýsis við Grandaveg er langt á veg komið og til stendur að bjóða út byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða með níutíu rýmum fyrir Reykvíkinga og Seltirninga. 28.8.2006 06:30