Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Málinu frestað Dómari ákvað í dag að fresta máli Íslendings sem ákærður er í Bretlandi fyrir kynferðislega misnotkun á fjórtán ára enskri stúlku. 3.8.2006 20:02
Stakk göt á dekk lögreglubíls Stungin voru göt á öll dekk lögreglubíls á Höfn í Hornafirði í síðastliðna nótt, þar sem bíllinn stóð á bílaverkstæði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að um mislukkað skemmdarverk hafi verið að ræða en dekkin hafi verið orðið slitin og til stóð að setja ný dekk undir bílinn. Lögreglan hefur þó í huga að hafa hendur í hári dekkjadólgsins. Lögreglan vill koma því áleiðis að viðkomandi gefi sig fram og þiggi aðstoð í sínum málum, því athæfi sem þetta beri vott um alvarlega hugarbresti. 3.8.2006 18:30
Tekinn fyrir hraðakstur í fimmta sinn á árinu Tæplega þrítugur karlmaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík í gær. Það er vart í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þetta var í fimmta sinn á árinu sem viðkomandi er tekinn fyrir hraðakstur. 3.8.2006 18:08
Búið að veiða 40 á þessu ári Alls hafa 40 hrefnur verið veiddar af 50 dýra kvóta í ár. Á fréttavefnum Dagur.net kemur fram að samkvæmt áætlun megi veiða 200 hrefnur á fjögurra ára tímabili árin 2003 til 2007. Alls hafa 141 hrefna verið veidd. Hrefnur eru veiddar samkvæmt ákveðnu skipulagi á níu svæðum í kringum landið og í hlutfalli við þéttleika hrefnu. Fjögur skip hafa verið á veiðunum en upphaflega var áætlað að veiðunum lyki í dag. Hugsanlega verður því sótt um framlengingu á veiðunum svo hægt sé að veiða þær tíu hrefnur sem eftir standa á næsta ári. 3.8.2006 18:04
Verslunarmannahelgin að bresta á Hátíðahaldarar bjóða upp á skemmtanir af ýmsum meiði um helgina, fyrir unnendur flugs og harmonikku, íþrótta og útivistar og ekki síst tónlistar. Allt er þetta að bresta á og erill verslunarmannahelgarinnar er einnig að hefjast hjá lögregluembættum landsins. 3.8.2006 17:49
Gunnar Snorri Gunnarsson verður sendiherra í Kína Ákveðið hefur verið að Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra hefji störf í Peking sem sendiherra Íslands gagnvart Kína um miðjan september næstkomandi. 3.8.2006 16:48
Heilbrigðisstarfsmenn aðstoðuðu samferðakonu sína Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út fyrir skömmu vegna konu sem fótbrotnaði á leið sinni um Laugaveginn. Sveitarmenn lögðu af stað að sækja konuna, í Jökultungur milli Landmannalauga og Álftavatns, og var búist við þyrfti að bera hana langan veg. Betur fór þó en á horfðist því ferðafélagar hennar komu henni niður í skála við Álftavatn, en bæði læknir og hjúkrunarfræðingur voru með í för. Flugbjörgunarsveitin var því kölluð til baka en einn bíll er á leið í skálann að sækja konuna. 3.8.2006 16:00
Enn og aftur bent á að virða fjárlög Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2005 er enn og aftur bent á mikilvægi þess að ráðuneyti og stofnanir ríkisins virði fjárlög. Í árslok 2005 hafði ríflega fjórðungur fjárlagaliða ráðstafað fjármunum umfram heimildir og á sama tíma áttu tæplega tveir þriðju allra fjárlagaliða inneign hjá ríkissjóði. 3.8.2006 15:19
Mýrin fær 45 milljónir Kvikmyndamiðstöð Íslands tilkynnti í gær hvað kvikmyndir hefðu fengið styrki eða vilyrði fyrir styrk úr sjóð þess. Fjórar kvikmyndir eru nú í tökum eða í lokastigi og fengu þær allar styrk. Mýrin eftir Baltasar Kormák fékk 45 milljónir, Köld Slóð í leikstjórn Björns Brynjólfs Björnssonar fékk 40 milljónir og kvikmynd Gunnars Björns Guðmundssonar, Astrópía, fékk 37 milljónir. Þá fékk framleiðslufyrirtækið Zik Zak sjö og hálfa milljón fyrir þátt sinn í kvikmynd Lars Von Trier, The Boss of it All. 3.8.2006 15:00
Vöruskiptahallinn við útlönd sá mesti í sögunni Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var sá mesti í sögunni og fór tvo og hálfan milljarð yfir metið frá því í júní. Fluttar voru út vörur fyrir 17 milljarða en inn fyrir röska 35 milljarða þannig að hallinn nemur 18,3 milljörðum króna. 3.8.2006 12:49
Avion gerir tilboð í kanadískt fyrirtæki Avion Group hefur gert tilboð í kanadíska fyrirtækið Atlas Cold Storage Income Trust, sem metið er á 37 milljarða íslenskra króna. Avion Group gerir tilboðið fyrir hönd nýstofnaðs dótturfélags, sem heitir Eimskip Atlas Canada. 3.8.2006 12:08
Sérsveitin kölluð að Kvíabryggju Fangelsið að Kvíabryggju var í gjörgæslu víkingarsveitarmanna í gær eftir að utanaðkomandi maður hótaði að koma á staðinn og drepa tiltekinn fanga. Sérsveitin var kölluð til og stóð vakt í fangelsinu fram eftir degi. 3.8.2006 11:48
Ökumaður á áttræðisaldri tekinn fyrir hraðakstur Elsti ökumaðurinn, sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði fyrir hraðakstur í gær, var á áttræðis aldri, en sá yngsti 17 ára og hafði einnig verið stöðvaður fyrir hraðakstur fyrir nokkrum dögum. 3.8.2006 09:11
Þinglýstum kaupsamningum fækkar Þinglýstum kaupsamningum vegna íbúðakaupa á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um tuttugu og tvö og hálft prósent í júlí,miðað við júní mánuð og voru þeir 36 prósentum færri en í júlí í fyrra. 3.8.2006 08:34
Vélhjólamaður missir stjórn Vélhjólamaður slapp nær ómeiddur þegar hann missti stjórn á hjólinu á Hringbraut á móts við BSÍ í gærkvöldi með þeim afleiðingum að maður og hjól féllu í götuna. 3.8.2006 08:26
Mikil gæsla á Kárahnjúkum Sérsveitarmenn Ríkislögreglustjóra og víkingasveitarmenn frá Akureyri eru í hópi þeirra tuttugu lögreglumanna, sem nú halda uppi gæslu á Kárahnjúkasvæðinu vegna mótmæla þar. 3.8.2006 08:10
Vínbúð verður opin lengur Þjónusta ÁTVR hefur ákveðið að Vínbúðin í Vestmannaeyjabæ fái að standa opin til klukkan 16.00 föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi. Áður hefur verslunin verið lokuð frá föstudegi til og með mánudegi um verslunarmannahelgi. 3.8.2006 06:00
Tvöfalt dýrari íbúðalán Algengustu húsnæðislán á Íslandi eru mikið dýrari en algengustu húsnæðislán á evrusvæðinu. Björgvin Sigurðsson segir Íslendinga borga fórnarkostnað fyrir það að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil. 3.8.2006 05:30
Fjórar konur handteknar á Kárahnjúkum Fjórar konur voru handteknar á Kárahnjúkum í kvöld, þar sem þær fóru inn að svæði þar sem gangnaopið sem vatnið mun streyma innum er staðsett. Þær fóru inn á svæðið í leyfisleysi og trufluðu atvinnustarfsemi á vinnusvæðinu. Þeim var gert að dvelja í fangageymslum lögreglu. 2.8.2006 22:35
Minni velta á fasteignamarkaði Nokkuð dró úr veltu á fasteignamarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu í júlí. Þinglýstum kaupsamingum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 22,5% frá júní til júlí. 2.8.2006 22:21
Vilja hefja sölu á lituðu bensínu Forráðamenn Atlantsolíu hafa sent fjármálaráðherra bréf þar sem skorað er á ráðherra að hann beiti sér fyrir því að heimilt verði að hefja sölu á lituðu bensíni. 2.8.2006 22:02
Mikið um að vera víða um land Útihátíð, innihátíð, fjölskylduhátíð og þjóðhátíð; hátíðaglaðir landsmenn hafa ýmsa kosti um komandi Verslunarmannahelgi. 2.8.2006 21:15
Heiðruðu minningu Einars Sigurðssonar Þrír Kanadamenn, sem björguðust úr sjóslysi við Viðey árið 1944, eru nú staddir hér á landi til að heiðra minningu Íslendingsins sem bjargaði þeim, ásamt 195 félögum þeirra, úr sökkvandi skipi. 2.8.2006 20:48
Leitað að karlmanni í Kollafirði Leit stendur yfir að einhverfum manni á þrítugsaldri sem varð viðskila við hóp á göngu um Kollafjörðinn um klukkan fjögur í dag. Búið er að kalla björgunarsveitina Dagrenningu á Hólmavík út og eru björgunarsveitarmenn að hefja leit. 2.8.2006 20:46
Eðlilegra að skerðingin sé í þrepum Formanni vinstri grænna finnst miður að örorkulífeyrir tæplega 2500 öryrkja verði skertur innan þriggja mánaða. Honum finnst eðlilegra að þetta sé gert í þrepum, ef skerðing er á annað borð óumflýjanleg. 2.8.2006 19:13
Pólverji í sjálfheldu Pólskum ferðamanni var bjargað úr sjálfheldu í dag en hann sat fastur í fjallshlíð Gleiðarhjalla, sem liggur fyrir ofan Ísafjörð. 2.8.2006 18:58
Þota frá American Airlines lenti með veikan farþega Boeing 777 breiðþota frá American Airlines lenti á Keflavíkurlfugvelli nú síðdegis en einn farþegi í vélinni var meðvitundarlaus. Farþeginn sem er 15 ára gamall var einn á ferð en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli var talið að hann væri sykursjúkur. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann fékk aðhlynningu. Eftir því sem komist verður næst þá hélt þotan áleiðis til Chicago í Bandaríkjunum stuttu síðar en hún var að koma frá London. 2.8.2006 17:42
Samtök gegn nauðgunum Karlahópur Femínistafélags Íslands og V-dags samtökin hafa tekið höndum saman gegn nauðgunum um Verslunarmannahelgina. 2.8.2006 17:09
Ók 50 km hraða yfir leyfilegum hraða 28 ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík á síðasta sólarhring. Meðal þeirra ökumanna sem stöðvaðir voru, var tvítug stúlka sem ók á rúmlega 100 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetra hraði. Stúlkan á yfir höfði sér sviptingu ökuleyfis í einn mánuð og 50 þúsund króna sekt fyrir athæfið. Þá voru þrír teknir fyrir ölvun við akstur og einn fyrir að aka undir áhdirum lyfja. 2.8.2006 16:45
Mikið eftirlit á Ein með öllu Lögreglan á Akureyri vill ítreka að unglingar inna átján ára aldurs fá ekki aðgang að tjaldstæðum nema í fylgd með forráðamönnum um helgina. Á Akureyri er haldin hátíðin Ein með öllu og á Laugum í Þingeyjarsýslu verður haldið unglingalandsmót UMFÍ, svo lögreglan gerir ráð fyrir miklum fjölda manns á ferð um Norðurlandið næstu daga. Lögreglan vill einnig koma því áleiðis til ferðamanna að þeir sýni aðgát við akstur og gefi sér nægan tíma til ferðalaga. 2.8.2006 16:30
Óásættanlegt að umsóknum sé hafnað Hagsmunaráð framhaldsskólanema og Stúdentaráð Háskóla Íslands telur það óásættanlegt að háskólar landsins hafi þurft að hafna 2.500 umsóknum um háskólanám fyrir komandi skólaár. Jafnvel þótt einn einstaklingur kunni að vera að baki fleiri en einni umsókn, sé ljóst að hlutfall þeirra sem hafnað er sé of hátt. 2.8.2006 16:15
Íbúum af erlendum uppruna fækkar á Vestfjörðum Íbúum á Vestfjörðum með erlent ríkisfang fækkaði um 6,7% frá árinu 2000 til 2005, eða úr 499 í 466. 2.8.2006 15:41
4,1 milljarða hagnaður hjá Sjóvá 4,1 milljarða hagnaður var á rekstri Sjóvá vátrygginga og fjarfestingastarfsemi á fyrstu sex mánuðum ársins fyrir skatta, samanborið við 1,7 milljarða hagnað á fyrstu sex mánuðum síðasta árs. Í tilkynningu frá Sjóvá segir að rekstrarkostnaður fyrirtækisins hafi lækkað um 30%. Halli á vátryggingarekstri félagsins að frádregnum fjárfestingartekjum nam 271 milljón á fyrstu sex mánuðum ársins en nam 1.116 milljónum á sama tímabili í fyrra. 2.8.2006 15:30
Sigur rós spilar á Seyðisfirði Tónleikaferð hljómsveitarinnar Sigur rósar um landið hefur fallið vel í kramið hjá landanum. Hljómsveitin hefur nú upplýst um næstu tónleika hljómsveitarinnar en þeir verða á Miðbæjartorginu á Seyðisfirði annað kvöld og munu hefjast klukkan 20. Þetta verða fimmtu tónleikar hljómsveitarinnar í ferð þeirra um landið en til stendur að þeir verði alls sjö talsins. Það á þó enn eftir að skýrast hvar þeir tveir síðastnefndu verða, en tónleikarnir eru tilkynntir með stuttum fyrirvara. 2.8.2006 15:20
Dregur saman með Samfylkingunni og Vinstri grænum Heldur dregur saman með Samfylkingunni og Vinstri grænum frá því í síðasta mánuði, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. 2.8.2006 12:53
Spá minni hagnaði Fjármálasérfræðingar bankanna spá almennt minni hagnaði á síðari helmingi ársins, en á fyrri helmingi þess, sem sló öll met. 2.8.2006 12:46
Þingmenn fastir í Svíþjóð Fimm manna sendinefnd á vegum Alþingis hefur setið föst á Arlanda flugvellinum í Stokkhólmi, á annan sólarhring. Björgvin G. Sigurðsson þingmaður segir framkomu Flugleiða slíka að þingið þurfa að endurskoða viðskipti sín við félagið. 2.8.2006 12:30
Um 40 kýr brunnu inni Um það bil fjörutíu kýr brunnu inni þegar eldur kom upp í fjósi og hlöðu á bænum Húsatóftum á Skeiðum á sjöunda tímanum í morgun. Þegar heimafólk varð eldsins vart, logaði hann í þökum beggja bygginganna, sem eru sambyggðar, og varð ekki við neitt ráðið. 2.8.2006 12:00
Úrskurðaður í gæsluvarðhald Maðurinn, sem handtekinn var eftir ránið í skrifstofum Bónusvídeós í Hafnarfirði í fyrradag, var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til áttunda ágúst. 2.8.2006 09:49
Með hass í poka Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn eftir að slatti af hassi fanst í poka í bíl hans , eftir að hann var stöðvaður á Geirsgötu í Reykjavík í nótt. 16 ára unglingur, sem líka var í bílnum, forðaði sér á hlaupum, en lögreglan vissi hver hann er og komu forledrar með hann á stöðina síðar í nótt. Sá eldri gistir fangageymslur, grunaður um að hafa ætlað efnið til sölu, og verður yfirheyrður í dag. 2.8.2006 09:33
Virða ekki hæðatakmarkanir Flutningabílar með háfermi óku sex sinnum á hæðarslár, við brúarbygginguna á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvega frá því um tvö leitið í fyrrinótt þar til um tvö leitið í nótt. Að sögn lögreglu er í nokkrum tilvikum vitað hverjir voru á ferð, en í öðrum ekki. Slárnar skemmdust talsvert, en ökumennirnir náðu að stöðva bíla sína áður en þeir ækju á uppsláttinn undir brúnni sjálfri. Slárnar eru svipaðar þeim, sem eru við Hvalfjarðagöng og hvað eftir annað hefur verið ekið á að undanförnu. 2.8.2006 09:30
Eldur í íbúðarhúsnæði Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði mikinn viðbúnað þegar tilkynnt var um eld í íbúð í húsnæði, sem búið er að breyta í íbúðarhúsnæði, við utanverða Kársnesbraut í Kópavogi í gærkvöldi. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var búið að rýma húsið að hluta, en þegar til kom reyndist lítilsháttar eldur loga í gluggakarmi einnar íbúðarinnar, sem var mannlaus. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í, og verður rannsókn haldið áfram á vettvangi í dag. 2.8.2006 09:26
Börn sem leggja aðra í einelti lenda á glapstigu Börn sem leggja önnur börn í einelti eru líklegri til að lenda á glapstigu. Þetta segir Þorlákur H. Helgason sem vinnur að svokölluðu Olweusar-verkefni hjá Kennaraháskóla Íslands. Rannsókn sem unnin var í efsta bekk grunnskóla í Stokkhólmi sýnir að börn og unglingar sem leggja aðra í einelti eru margfalt líklegri til að fremja afbrot. Einnig eru þau líklegri til að reykja daglega, neyta eiturlyfja og drekka. 1.8.2006 22:15
Mikill verðmunur á nikótínlyfjum Verð á nikótínlyfjum hefur hækkað töluvert frá því í janúar samkvæmt nýlegri könnun Neytendasamtakanna. Veðhækkunin nemur allt að tuttugu og fjórum prósentum í sumum apótekum. 1.8.2006 21:52
Búið að slökkva eldinn Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan átta í kvöld vegna elds í blokk við Kársnesbraut í Kópavogi. Eldurinn hafði kviknað í íbúð á efstu hæð en hún var þá mannlaus. Betur fór en á horfðist í fyrstu en um minniháttar bruna var að ræða og gekk slökkvistarf greiðlega. Ekki er vitað með tjón að svo stöddu en lögregla fer með rannsókn málsins. Líklegt þykir að um íkveikju hafi verið að ræða. 1.8.2006 20:57