Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki borga allir jafn mikið fyrir löggæslu Aðstandendur hátíða um verslunarmannahelgi þurfa að taka mismikinn þátt í kostnaði vegna löggæslu. Gert er ráð fyrir að allur kostnaður umfram venjuleg löggæslustörf falli á þann sem fyrir hátíðinni stendur. 5.8.2006 08:45
Segjast ekki safna heldur selja Fjársöfnunarfélagið Fátæk börn á Íslandi fer ekki eftir lögum og reglum um opinberar fjársafnanir. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu barst ábending vegna söfnunar þessa félags í seinustu viku. 5.8.2006 08:45
Þyrla sinnir eftirliti með helgarumferð Minni þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, mun aðstoða lögregluna í Reykjavík við umferðareftirlit um allt land um verslunarmannahelgina. Er þetta samstarfsverkefni Landhelgisgæslunnar, lögreglustjórans í Reykjavík og Ríkislögreglustjóra. 5.8.2006 08:45
Stjórnvöld verða að horfast í augu við rekstrarvandann Einar Oddur Kristjánsson segir nauðsynlegt fyrir stjórnvöld að horfast í augu við raunverulegan rekstrarvanda ríkisvaldsins. Óskynsamir launasamningar eru rót vandans, segir Einar Oddur. Meira en fjórðungur fjárlagaliða fór fram úr heimildum. 5.8.2006 08:30
Segir tekjuójöfnuð vera meiri en áður Tekjuójöfnuður á Íslandi hefur aukist mikið undanfarin ár. Samkvæmt útreikningum hagfræðiprófessors er ójöfnuður í tekjudreifingu á Íslandi langmestur af Norðurlöndunum og með því mesta í Evrópu. 5.8.2006 08:30
Brennuvargur gengur laus Verulegt tjón varð í eldsvoða við og í Síldarverksmiðjunni á Akranesi í gær. Lögregla segir ljóst að um íkveikju hafi verið að ræða og að brennuvargur gangi laus í bænum. 5.8.2006 08:30
Miðar fara í almenna sölu Þeir sem kaupa miða á tónleika Morrisseys næstkomandi laugardag í Laugardalshöll munu hafa forkaupsrétt á miðum á tvenna tónleika Sufjans Stevens í Fríkirkjunni í nóvember. Forsalan mun standa til 14. ágúst, en þá verður opnað fyrir almenna sölu. 5.8.2006 08:15
Norðurlöndin öll utan ESB Lagt er til að öll Norðurlöndin standi utan Evrópusambandsins í ályktun Norræns þjóðfundar sem haldinn var á Íslandi dagana 28. til 30. júlí. 5.8.2006 08:15
Segir stjórnvöld geta sveipað söguna blæju Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni var meinaður aðgangur að gögnum um hleranir dómsmálaráðuneytisins í kalda stríðinu. Hann íhugar að leita til dómstóla með málið. Þjóðskjalavörður segir lög óskýr varðandi aðgang að gögnunum. 5.8.2006 08:15
Tíu fíkniefnamál á Akureyri Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af tíu mönnum vegna fíkniefnamála í fyrrakvöld og fram eftir nóttu. 5.8.2006 08:00
Þjónustu skortir í Hátúninu Búsetuúrræði geðfatlaðra eru úr takt við tímann, að mati Silju Magnúsdóttur, sálfræðings hjá Geðhjálp. „Það er ósk forsvarsmanna Geðhjálpar að búsetuúrræði fyrir geðfatlaða verði í formi lítilla eininga í framtíðinni, en í stórum einingum eins og öryrkjablokkunum í Hátúninu vantar sárlega þjónustu og liðveislu við íbúana. 5.8.2006 08:00
Hafa gripið til skömmtunar Þetta er í fyrsta skipti sem við lendum í því að reyktur lundi selst upp, segir Magnús Bragason, lundasölumaður í Vestmannaeyjum. Hann segir að menn hafi ætíð byrgt sig upp fyrir þjóðhátíð en núna hafi eftirspurnin slegið öll met. 5.8.2006 08:00
Fjölgun öryrkja vekur furðu Tryggingastofnun ríkisins greiddi 6,8 milljarða í örorkulífeyri árið 2005, rúmum átta prósentum meira en árið 2004.Örorkuþegum fjölgaði um 6,2 prósent milli ára og voru í ársbyrjun 12.755 talsins. Sigríður Lillý Baldursdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar, segir þessar tölur koma á óvart. 5.8.2006 08:00
Á 160 framhjá Smáralindinni Maður á fertugsaldri var mældur á tæplega 160 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Fífuhvammsveg, rétt hjá Smáralindinni í Kópavogi, í fyrradag. Maðurinn var stöðvaður um tíu leytið um morguninn í töluverðri umferð. 5.8.2006 08:00
Færri frjókorn en í meðalári Heildarfjöldi frjókorna í júlí var undir meðallagi í Reykjavík og á Akureyri en frjótími grasa stendur sem hæst um þessar mundir. Nokkrar grastegundir eru enn í blóma eins og vallarfoxgras en frjókorn þess eru skæður ofnæmisvaldur. Uppspretta grasfrjóa er því enn til staðar. 5.8.2006 07:45
Tíu þúsund gestir mættir Tæplega tíu þúsund manns voru saman komnir við setningu Unglingalandsmóts UMFÍ á Laugum í Þingeyjarsveit í gærkvöldi. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpaði landsmótsgesti og sagði mótið bera vott um hið góða starf sem ungmennafélögin vinna. 5.8.2006 07:45
Erfitt að banna öflug hjól Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, segir að hugfar þeirra mótorhjólamanna sem aka á ofsahraða verði að breytast en telur illmögulegt að banna kraftmestu hjólin, líkt og stungið hefur verið upp á. 5.8.2006 07:45
Karlahópurinn á Akureyri Vegna veðurs og samgönguerfiðleika er karlahópur femínistafélagsins ekki í Vestmannaeyjum um helgina eins og til stóð. Þess í stað er karlahópurinn á Akureyri og dreifir þar barmmerkjum, svifdiskum og bæklingum. 5.8.2006 07:30
Bílstjóri komst sjálfur í land Björgunarsveitir voru kallaðar út á fimmtudagskvöldið þegar óttast var um afdrif bílstjóra rútu sem festist í Krossá í Þórsmörk. Bílstjóranum, sem var einn í rútunni, tókst að sparka út rúðu og komast sjálfur í land. Var þá hjálpin afturkölluð. 5.8.2006 07:30
Öryggismyndavél sett upp Lögreglan í Reykjavík hefur komið fyrir eftirlitsmyndavél við gatnamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. 5.8.2006 07:30
Búið að veiða 40 hrefnur sjávarútvegur Búið er að veiða 40 hrefnur í ár af 50 dýra kvóta en hrefnuveiðitímabilinu lýkur 18. ágúst. Tímabilið, sem átti upphaflega að ljúka 4. ágúst, var framlengt sökum þess hve hægt veiðar sóttust framan af. 5.8.2006 07:15
Fjórir teknir með fíkniefni Fjórir karlmenn um þrítugt og fertugt voru handteknir á gistiheimili í Holtunum um fjögur leytið í fyrrinótt þar sem þeir sátu við neyslu fíkniefna. 5.8.2006 07:00
Eldsnöggur að hafa sig á brott Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar var gert viðvart eftir að maður skildi eftir um tuttugu kíló af dínamíti á gámasvæði Sorpstöðvar Selfoss um tvöleytið í gær. 5.8.2006 06:30
Ónýt dekk lögreglubíls skorin Skemmdarvargur stakk göt á öll dekk lögreglubíls á Höfn í Hornafirði í fyrrinótt þar sem bíllinn stóð á verkstæði. Til stóð að setja ný dekk undir bílinn á verkstæðinu þar sem þau gömlu voru orðin slitin og því var um afar mislukkað skemmdarverk að ræða. 5.8.2006 06:15
Eina akrein í hvora átt Aðeins önnur brúin af tveimur á mislægum gatnamótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar fyrir neðan Grafarholtið verður byggð að þessu sinni. Sú síðari er ekki komin á vegaáætlun stjórnvalda. 5.8.2006 06:00
Átta milljarða lækkun bréfa Hlutabréf í Straumi-Burðarási hafa lækkað um fimmtung eftir að FL Group keypti fjórðungshlut í félaginu af þeim Kristni Björnssyni og Magnúsi Kristinssyni í lok júní. 5.8.2006 06:00
Í lífshættu eftir umferðarslys Kona á fimmtugsaldri liggur þungt haldin á gjörgæsludeild eftir að ekið var á hana á Suðurlandsbraut í gær. 5.8.2006 05:45
Braut tönn dyravarðar Ungur maður kýldi dyravörð á skemmtistað í Vestmannaeyjum í fyrrinótt með þeim afleiðingum að sauma þurfti í vör dyravarðarins og ein tönn hans reyndist brotin. Maðurinn var handtekinn í kjölfar árásarinnar og látinn gista fangageymslur. Honum var sleppt úr haldi í gær en ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna maðurinn reiddist dyraverðinum svo. 5.8.2006 05:30
Fundað aftur í mánuðinum Áfram var fundað um varnarmál Íslands í Washington í gær. Fjögurra tíma fundi viðræðunefndanna lauk um klukkan eitt að staðartíma, en að sögn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, aðstoðarmanns forsætisráðherra, fékkst ekki niðurstaða á fundinum. 5.8.2006 05:00
Björn ráðinn sveitastjóri Björn Ingimarsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri í Langanesbyggð til næstu fjögurra ára. Gengið var frá ráðningunni á fundi hreppsnefndar í vikunni. Langanesbyggð varð til við sameiningu Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps í vor, en Björn var áður sveitarstjóri Þórshafnarhrepps. 5.8.2006 04:30
Um 3.000 manns á tónleikum Sigur rósar Talið er að um 3.000 manns séu samankomnir í Ásbyrgi á tónleikum Sigur rósar sem hófust fyrr í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Húsavík hefur samkoman farið vel fram, sem og unglingalandsmót UMFÍ á Laugum en talið er að um 7.000 manns séu á mótinu. Umferð hefur sömuleiðis gengið vel um umdæmið í allan dag. 4.8.2006 22:46
Lögreglumenn ánægður með vegfarendur Umferð um þjóðveg númer eitt hefur gengið vel fyrir sig og er mikil ánægja meðal lögreglumanna með upphafið að þessari stærstu ferðahelgi landsmanna. 4.8.2006 22:10
Innipúkahátíðin hafin Innipúkahátíðin er hafin þessa verslunarmannahelgi, en enn er ekki uppselt á hana. Innipúkinn er árleg hátíð um verslunarmannahelgi fyrir fólk sem nennir ekki að þvælast út á land og gista í leku tjaldi til að fara á góða tónleika. Innipúkinn er líka fyrir fólkið sem er fast í bænum vegna vinnu en langar samt að lyfta sér upp á kvöldin. Hátíðin er haldin í fimmta sinn í ár og er á Nasa. 4.8.2006 22:08
Skortur á leiðsögumönnum Skólastjóri Ferðamálaskóla Íslands vill að ríkið veiti auknum fjármunum í ferðaþjónustuna. Mikill skortur er orðinn á leiðsögumönnum hér á landi sem búa yfir ákveðinni tungumálakunnáttu. 4.8.2006 19:30
Ekkert að marka íslensku fjárlögin? Svo virðist sem ekkert sé lengur að marka íslensku fjárlögin því stofnanir ríkisins séu hættar að virða þau. Þetta segir fulltrúi Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd. Flokkurinn hefur óskað eftir fundi í nefndinni vegna gagnrýni ríkisendurskoðunar á framkvæmd fjárlaga. 4.8.2006 18:37
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á konu á sextugsaldri á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Álfheima á sjötta símanum í dag. Konan var flutt á gjörgæslu Landsspítalans í Fossvogi þar sem hún gengst undir rannsóknir. Líðan hennar eftir atvikum. Suðurlandsbrautin er lokuð um tíma vegna vettvangs- og rannsóknarvinna en hefur nú verið opnuð að nýju. 4.8.2006 18:08
TF-LÍF notuð við umferðareftirlit um helgina TF-Líf þyrla Landhelgisgæslunnar verður notuð við umferðareftirlit alla verslunarmannahelgina. Um samstarfsverkefni milli lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar er að ræða, en lögreglumenn verða með þyrluáhöfn um borð. Þyrlunni verður flogið víða um land meðal annars yfir útihátíðarsvæði. 4.8.2006 17:54
Eldur kviknaði í Síldarverksmiðjunni Slökkvilið Akranes var kallað út um klukkan 17 í dag þegar eldur kom upp í Síldarverksmiðjunni á Akranesi. Í fyrstu var eldurinn nokkuð mikill en slökkviliðsmenn náði fljótt slökkva hann að mestu. Þeir eru þó enn á vettvangi en rjúfa þarf veggi til að ráða niðurlögum eldsins að fullu. Eldsupptök eru ókunn. 4.8.2006 17:45
Umferð gengur vel víða um land Umferð hefur gengið vel víða um land en svo virðist sem straumur ferðalanga liggi norður á Akureyri. Búist er við að mörg þúsund manns ætli sér að eyða helginni við skemmtan á hátíðinni Ein með öllu. Mikil umferð hefur verið í bæinn, sem og um bæinn og úr honum. 4.8.2006 15:05
Grunnvatnsstaða enn langt yfir meðallagi hér á landi Víða frá meginlandi Evrópu berast fréttir af miklum þurrkum og nú síðast segir norska dagblaðið Aftenposten frá því að orkuverð til norskra fjölskyldna muni líkast til rjúka upp úr öllu valdi í haust, þegar þarlendar vatnsaflsvirkjanir hafa ekki nægilegt vatn til að knýja rafala. Annað er hins vegar uppi á teningnum hér, og hefur verið síðustu árin. 4.8.2006 13:42
Náðist að bjarga rútu sem barst niður með Krossá Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöld þegar óttast var um afdrif bílstjóra, sem var einn í rútubíl, sem festist í Krossá í Þórsmörk. Bílstjóranum tókst að sparka út rúðu og komast í land og var aðstoð þá afturkölluð. Rútan barst eitthvað undan straumi og um tíma var óttast að hún ylti, en öðrum rútubílstjórum og fleirum, tóks með ærinni fyrirhöfn að ná henni upp úr ánni. 4.8.2006 13:00
Loksins flogið til Eyja Rétt um hádegisbilið rofaði til í þoku og súld í Vestmannaeyjum þannig að hægt var að fljúga þangað á ný. Fyrsta flugvélin fór um hálfeitt og þá tekur við að vinna upp tafir morgunsins. Um 300 manns áttu bókað flug til Vestmannaeyja í dag með Flugfélagi Íslands frá Reykjavík. Þá eru ótaldir þeir sem fljúga með öðrum flugfélögum og frá öðrum stöðum. 4.8.2006 12:44
Flúðu dalinn og gistu í íþróttahúsinu Um 150 mann þurftu að flýja Herjólfsdal í nótt þegar tjöld fóru að fjúka og gista í íþróttahúsinu. Aðrir skelltu sér á húkkaraball og var einn maður handtekinn eftir að hafa barið dyravörð. 4.8.2006 12:33
Bíll festist í Krossá í Þórsmörk Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöld þegar óttast var um afdrif bílstjóra, sem var einn í rútubíl, sem festist í Krossá í Þórsmörk. Bílstjóranum tókst að sparka út rúðu og komast í land og var aðstoð þá afturkölluð. Rútan barst eitthvað undan straumi og um tíma var óttast að hún ylti, en öðrum rútubílstjórum og fleirum, tókst með ærinni fyrirhöfn að ná henni upp úr ánni.- 4.8.2006 12:00
Maður handtekinn í Vestmannaeyjum Ungur maður var handtekinn í Vestmannaeyjum i nótt eftir að hann hafði barið dyravörð á veitingahúsi þannig að hann hlaut nokkurn áverka. 4.8.2006 09:13