Fleiri fréttir

Skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma stríðsátökin í Líbanon

Samtök herstöðvaandstæðinga skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma mannréttindabrot Ísraels í Líbanon og beita sér fyrir því að þau verði stöðvuð tafarlaust. Í tilkyningu frá samtökunum segir að Bandaríkjastjórn hafi komið í veg fyrir að fjölþjóðleg ráðstefna í Róm í gær krefðist þess að tafarlausu vopnahlé yrði komið á, og Bretland og Þýskaland hafi komið í veg fyrir að Evrópusambandið beitti sér í málinu.

Mikill hafís við strendur landsins

Að sögn Þórs Jakobssonar hjá Veðurstofu Íslands er mun meiri hafís við Íslandsstrendur um þessar mundir en mörg undanfarin ár.

Sumarbústaður brann til kaldra kola

Sumarbústaður í landi Galtarholts, norðan við Borgarnes, brann til grunna í gærkvöldi. Bústaðurinn var mannlaus, en einn maður hafði verið í honum fyrr um kvöldið. Slökkviliðið í Borgarnesi kom á vettvang og kom í veg fyrir að verr færi því gaskútar og annar eldsmaðtur voru í grennd við bústaðinn. Nærliggjandi sumarbústaðir voru ekki í hættu.Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá sjónvarpstæki.

Séríslenskt vandamál

Fólk stundar að bragða á vínberjunum áður en það kaupir þau, þetta er að sjálfsögðu ekki leyfilegt en þetta virðist vera séríslenskt vandamál, segir Sigurður Reinaldsson, innkaupastjóri matvöru hjá Hagkaupum.

Lyfið Glivec getur valdið hjartabilun

Nýleg rannsókn hefur leitt í ljós að lyf sem notað er við hvítblæði getur leitt til hjartabilunar. Ekkert er að finna um þetta á íslenskum fylgiseðli lyfsins. Markaðsstjóri Novartis sér ekki ástæðu til að bregðast við að svo stöddu.

SMS-ruslsendingar vandamál

Hanna Charlotta Jónsdóttir hjá Símanum segir að afar erfitt sé fyrir fyrirtækið að fyrirbyggja að SMS-ruslsendingar berist íslenskum farsímanotendum. Hún segir Símann nota búnað til að skynja óeðlilegan fjölda SMS-sendinga frá erlendum símafyrirtækjum.

Evran ekki lausn á hagstjórnarvanda

Viðskiptaráðherra og formaður Samfylkingarinnar segja upptöku evru á Íslandi raunhæfan möguleika sem leysi þó ekki hagstjórnarvandann nú. Fulltrúar Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins eru alfarið á móti upptöku evru.

Ein milljón fer í útflutning

Á yfirstandandi framleiðsluári, sem stendur frá 1. september til 31. ágúst, er greiðslumark mjólkur um 111 milljónir lítra. Þessi tala er það magn sem talið er að fari á innlendan markað.

Þrjátíu þúsund króna hækkun

Gróa Valdimarsdóttir, fyrrverandi formaður nemendaráðs Listaháskóla Íslands, segir skólagjöld LHÍ ekki mega hækka meira, en undanfarin ár hafa þau hækkað um þrjátíu þúsund á milli ára. Gróa segir suma nemendur skólans ekki gera ráð fyrir slíkri hækkun í upphafi náms. Ég var í tónlistarnámi í LHÍ og fyrir utan tæpar tvö hundruð þúsund krónur sem ég greiddi fyrir síðasta skólaár þurfti ég að borga fyrir nótur og hljóðfæri sjálf.

Farið verði eftir tillögunum

„Forsætisráðherra hafnar í raun tillögum sem koma fram í skýrslu formanns nefndar um hátt matvælaverð og ég velti fyrir mér til hvers þessi nefnd var stofnuð,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna.

Tjón metið á um tíu milljónir

Maður um tvítugt kveikti í tveimur BMW-bifreiðum á plani bílasölunnar Bill.is við Malarhöfða í fyrrinótt. Starfsmaður bílasölunnar metur tjónið á ríflega tíu milljónir króna.

Vilja að skoðun Íslands heyrist

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir því að gripið verði til aðgerða til að stöðva það sem í ályktuninni er kallað mannréttindabrot Ísraelshers í Líbanon.

Fasteignasalar stefna eigin eftirlitsnefnd

Félag fasteignasala hefur stefnt eftirlitsnefnd félagsins fyrir dóm vegna þess að því þykir nefndin ekki taka nógu hart á brotum fasteignasala í starfi og að hún hafi ekki sinnt fjölda verkefna sem til hennar hafi verið beint.

Ekkert eftirlit yfir veturinn

Hrafnseyri í Arnarfirði, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar forseta, mun standa mannlaus næstkomandi vetur. Að sögn Valdimars Halldórssonar staðarhaldara verður enginn búsettur á staðnum til að hafa eftirlit yfir vetrarmánuðina. „Hér var áður vetrarmaður, sem passaði rollur fyrir fyrrverandi staðarhaldara, en svo verður ekki næsta vetur,“ segir Valdimar.

Nær þrefaldast á þremur árum

Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga árið 2006 nemur 12,2 milljörðum króna og hækkar um liðlega 60 prósent frá síðasta ári. Greiðendur fjármagnstekjuskatts eru tæplega 85 þúsund og fjölgar þeim um nálægt 10 prósent milli ára.

Netsímatæknin veldur titringi

Reikna má með því tækninýjungar er tengjast VoIP (Voice over Internet Protocol) netsímatækni ryðji sér í auknum mæli til rúms á markaði í framtíðinni. Reynslan erlendis bendir til þess að netsímatækni sé komin til að vera.

Aldraðir neyðast til að búa fjarri heimili

Skortur á hjúkrunarrýmum neyðir fjölda eldri borgara til að eyða ævikvöldinu á öldrunarstofnunum fjarri heimabyggð. Vandamálið hefur verið viðvarandi í áratugi. "Ekkert annað en hreppaflutningar," segir fyrrverandi landlæknir.

Samningur upp á 45 milljarða

Iceland America Energy, dótturfélag íslenska orkunýtingarfélagsins Enex hf., gerði á dögunum samning við Pacific Gas & Electric í Kaliforníu um framleiðslu og sölu á 50 megavöttum af raforku.

Segir fyrirtækið Já okra í skjóli einokunarstöðu

Framkvæmdastjóri BM ráðgjafar segir Já neita úthringifyrirtækjum um þjónustu og beita einokunarstöðu sinni til að margfalda verðlagningu. Framkvæmdastjóri Já segir fyrirtækið ekki sjá um úthringiþjónustu.

Svefnpoki á 3.500 krónur

Ekki eru margir hlýir sólarmánuðir á hinu veðurbarða Íslandi en yfir hásumarið ákveða margir að leggja land undir fót í tjaldútilegu yfir helgina til þess að sofa úti í náttúrunni undir berum tjaldhimni. Að mörgu ber að hyggja áður en lagt er í slíka ferð og nokkrir hlutir öðrum fremur sem telja má ómissandi í alvöru útilegu.

Ísland geri tvíhliða samninga

Guðmundur Helgason, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, segir líklegt að í framtíðinni muni Ísland einblína á tvíhliða viðræður um fríverslunarsamninga, þar sem Doha-viðræðum Alþjóða viðskiptastofnunarinnar (WTO) hafi verið frestað um ótiltekinn tíma. Hann telur ólíklegt að landbúnaðartollar á Íslandi verði lækkaðir einhliða, heldur verði það gert sem áður í fríverslunarsamningum við önnur ríki.

Komu niður á þriðja húsið

Starfsmenn Vestmannaeyjabæjar eru nú komnir niður á þriðja húsið sem grafið verður upp í verkefninu Pompei norðursins. Stefnt er að því að grafa upp sjö til tíu hús áður en verkefninu lýkur.

Ótrúlegt að ekki fór verr

Flutningabíll frá Hringrás með brotajárnsfarm lenti út af vegi efst á Bessastaðafjalli í Fljótsdal um miðjan dag í gær. Bremsubúnaður í bílnum gaf sig með þeim afleiðingum að hann rann út af í beygju og flaug 26 metra út fyrir veg. Slysið átti sér stað í efstu beygju á Bessastaðafjalli.

Auglýsir eftir ábendingum

Fyrir viku var brotist inn í íbúðarhús á Hvoli í Saurbæ í Dalasýslu og þaðan stolið verðmætum að andvirði rúmri milljón króna.

Auðveldar samskipti

staðlar Íslenskur staðall um almenna útboðs- og samningsskilmála um verkframkvæmdir hefur verið þýddur á ensku. Er það gert til að auðvelda samskipti þegar íslenskar reglur eru notaðar við framkvæmdir erlendis og eins þegar útlendingar koma að verkefnum á Íslandi.

Hagstjórn fær falleinkunn

„Árangur sjálfstæðrar hagstjórnar er slíkur að við hljótum að líta í kringum okkur eftir öðrum valkostum,“ segir Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Krónan fýsilegri kostur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur æskilegt að halda krónunni að því gefnu að takist að halda verðbólgunni í skefjum.

Vísitala íbúðaverðs hækkar

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði í júní um 0,6 prósent frá því í mánuðinum áður.

Kennaranámið verði fimm ár

Lengja ætti kennaranám á Íslandi úr þremur árum í fimm. Starfshópur á vegum menntamálaráðuneytisins leggur þetta til í nýrri skýrslu sem kynnt var í ríkisstjórn á þriðjudag.

Ekki í ESB að óbreyttu

Friðrik Jón Arngrímsson segir hagstjórn ábótavant og nauðsynlegt sé að spyrja sig hvort hávaxtastefna Seðlabankans sé að skila einhverju, sérstaklega í ljósi þess að gengi krónunnar virðist í auknum mæli háð útgáfu krónubréfa erlendis. „Það er verið að gefa fyrirtækjum í framleiðslu og útflutningi bylmings­högg. Þetta er óskynsamleg hagstjórn, ef hagstjórn er hægt að kalla.“

Verkfræðingar Alcoa hefja rannsóknir

Verkfræðingar Landsvirkjunar og Alcoa vinna að rannsóknum vegna álvers á Húsavík. Ákveðið verður eftir eitt til tvö ár hvort álverið verður reist. Rannsóknirnar eru enn á byrjunarstigi, segir upplýsingafulltrúi Alcoa.

Með frjáls viðskipti að leiðarljósi

Alþjóðaviðskiptastofnunin, WTO, er alþjóðleg stofnun sem setur reglur fyrir hnattræn viðskipti og leysir ágreiningsmál milli aðildarríkja. Aðildarríkin eru svo bundin um þrettán samningum stofnunarinnar. Höfuðstöðvar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar eru í Genf í Sviss. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar er Pascal Lamy, sem tók við 1. september 2005. Sádi-Arabía gekk í stofnunina í desember í fyrra og þar með eru aðildarríkin orðin 149 talsins. Stofnunin var sett á fót árið 1995 eftir áratuga deilur um stöðu ITO, forvera WTO í heimsviðskiptum.

Skítkast í Hafnarfirði

Lögreglan í Hafnarfirði skoðar nú myndband sem ungir drengir í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði settu á internetið. Á myndbandinu sjást drengirnir kasta mannaskít í skólabyggingu.

Minnir á þjóðarmorðin í Rúanda

Amnesty International skorar á alþjóðasamfélagið að binda enda á stríðsglæpi gegn almennum borgurum í Líbanon og Ísrael. Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty segir viðbrögð alþjóðasamfélagsins minna á viðbrögðin við þjóðarmorðinu í Rúanda.

Atvinnulíf í Grímsey í hættu

Líkur eru á að feðgar í Grímsey selji kvóta sinn úr eynni fyrir tæpa tvo milljarða króna. Þar með færi tæpur helmingur kvótans úr eynni og hafa fleiri auglýst kvóta til sölu. Undirstöður atvinnulífs eru í hættu í eynni og þungt hljóð í heimamönnum.

Lengja á kennaranámið í fimm ár

Lengja á kennaranámið í fimm ár og auka veg og virðingu kennarastarfsins með því að setja á laggirnar svokallað kennsluráð. Þetta er meðal þess kemur fram í skýrslu starfshóps um framtíðarskipan kennaramenntunar sem menntamálaráðherra kynnti ríkisstjórninni í gær.

Lögregla hefur afskipti af mótmælendum

Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar lokuðu fyrir alla umferð um veginn að Ufsastíflu um tíma í dag og hótaði lögreglan á Seyðisfirði þeim handtöku færu þeir ekki burt með góðu. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem slær í brýnu milli mótmælenda og lögreglu.

Landsbanki Íslands tekur sambankalán

Landsbanki Íslands hefur tekið sambankalán upp á 600 milljónir evra eða 55 komma tvo milljarða íslenskra króna. Segir bankinn þetta líklega vera stærstu viðskipti sinnar tegundar sem íslenskt fjármálafyrirtæki hefur tekið þátt í, en 28 fjármálafyrirtæki í 16 löndum, auk Landsbankans taka þátt í láninu.

Hefði komið til rýmingar í þéttbýli

Ef bensínflutningabíll ylti í Reykjavík, eins og gerðist í Ljósavatnsskarði í gær, gæti komið til stórtækrar rýmingar. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir það allt fara eftir ytri aðstæðum svo sem þéttleika byggðar, jarðvegi og veðri.

Segja þjóðvegina slysagildru

Flutningabílstjórar segja þjóðvegina alltof þrönga og dæmi séu um að hliðarspeglar flutningabíla rekist saman þegar þeir mætast.

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Michal Piecychna sem er Pólverji fæddur 1975. Hans er saknað frá því þann 20. júlí sl, en þá sást til hans í Skeifunni í Reykjavík.

Mun færri fá greiddar vaxtabætur í ár en fyrra

Tíu þúsund færri einstaklingar fá greiddar vaxtabætur um næstu mánaðamót, en fengu vaxtabætur í fyrra. Heildar vaxtabótagreiðslur lækka um 700 milljónir króna milli ára, aðallega vegna hækkunar fasteignamats og aukinna tekna einstaklinga.

Mótmælendurnir fluttu sig eftir handtökuhótanir

Hátt í 40 mótmælendur sem lokuðu veginum upp að Hraunaveitu á Eyjabakkasvæðinu hafa nú yfirgefið svæðið eftir að lögregla hótaði þeim með handtöku ef þeir færðu sig ekki með góðu. Um fjörutíu manns settust á veginn um hádegisbil og neituðu að færa sig fyrr en um fjögurleytið eftir afskipti lögreglu. Þetta er í fyrsta sinn sem slær í brýnu milli lögreglu og mótmælenda á Vesturöræfum þetta árið.

Hverfisráð Árbæjar ósátt við botthvarf stofnleiðar

Hverfisráð Árbæjar mótmælir ákvörðun Strætó Bs. að leggja niður akstur á stofnleið S5, hraðleiðinni sem þjónaði Árbænum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi hverfisráðsins í morgun og verður send borgarstjórn. Fulltrúar stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðu í borginni voru sammála í afstöðu sinni.

Sjá næstu 50 fréttir