Fleiri
Fundar í Sviss um Schengen 25.7.2006 06:45 Uppbygging á Vestfjörðum Ferðamálastofa hefur undirritað undir samning vegna verkefna í uppbyggingu og úrbótum á ferðamannastöðum á Vestfjörðum. Þeir sem koma að samningnum eru klasafyrirtækið Sjávarþorpið Suðureyri og Ísafjarðarbær. Sjávarþorpið Suðureyri fær styrk til uppbyggingar á upplýsingamiðlunartorgi sem staðsett er við innkeyrsluna í bæinn, og Ísafjarðarbær fær styrk til úrbóta á aðstöðu fyrir ferðafólk á Hornströndum. 25.7.2006 06:45 Íslendingar aldrei fleiri Íbúum landsins hefur fjölgað um fjögur þúsund það sem af er árinu en það er mesta fjölgun síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Að sögn Ólafar Garðarsdóttur hjá Hagstofunni er rúmur helmingur fjölgunarinnar til kominn vegna fólks sem flyst til landsins en flestir flytjast frá Póllandi. 25.7.2006 06:45 Segir forsvarsmenn Neyðarlínu rjúfa sátt Stjórnarformaður Atlassíma telur framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar rjúfa sátt með kæru, sem vísað hefur verið frá. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar neitar því. Yfirlýsing milli Atlassíma og Neyðarlínunnar var undirrituð 25. nóvember. 25.7.2006 06:45 Neytendasamtökin óánægð Neytendasamtökin eru óánægð með viðbrögð ráðherra við hugmyndum matvælaverðsnefndar. Þau segja fulla ástæðu til að velta fyrir sér til hvers þessi nefnd hafi yfir höfuð verið skipuð og telja landbúnaðarráðherra standa í vegi fyrir aðgerðum til lækkunar á matvælaverði. 24.7.2006 22:32 Milljónatjón af völdum veggjakrots Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári. 24.7.2006 22:21 Myspace lá niðri Bandaríska heimasíðan Myspace lá niðri og var óaðgengileg í hálfan sólarhring í dag eftir að rafmagnslaust varð í höfuðstöðvum netfyrirtækisins vegna mikillar hitabylgju í Kaliforníu. 24.7.2006 22:20 Íþróttir 18:30 24.7.2006 21:12 Á Kayak hringinn í kringum landið Ísraelsk kona lýkur brátt ferð sinni á Kayak hringinn í kringum landið. Hún kom til Reykjavíkur í dag en þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur rær einn síns í liðs í kringum landið á Kayak . 24.7.2006 20:01 Áttu ekki krónu en keyptu fyrir milljónir Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja átti ekki krónu þegar ákvörðun var tekin um að kaupa Íslensk matvæli fyrir eitthundrað og þrjátíu milljónir. Stofnfjáreigendur félagsins borguðu ekki krónu fyrr en rúmum mánuði seinna og helmingur stofnfjárins skilaði sér aldrei. 24.7.2006 18:57 Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. 24.7.2006 18:45 Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. 24.7.2006 18:45 Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 24.7.2006 18:29 Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. 24.7.2006 17:22 Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. 24.7.2006 16:39 Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. 24.7.2006 15:33 Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. 24.7.2006 15:23 Sjá næstu 50 fréttir
Skattgreiðendur geta nálgast Skattgreiðendur, sem töldu fram til skatts á Netinu, geta nálgast álagningarseðla frá Ríkisskattstjóra rafrænt á þjónustusíðu ríkisskattstjóra; www.rsk.is með veflykli sínum eftir klukkan fjögur í dag. Aðrir munu fá álagningarseðla senda til sín í pósti á föstudaginn kemur og í byrjun næstu viku. Sama dag verður lögð fram skrá með álagningu opinberra gjalda árið 2006. 25.7.2006 12:08
Mikil mengun vegna slyssins Lögreglan á Húsavík og Akureyri lokaði margra ferkílómetra svæði af í Ljósavatnsskarði laust fyrir klukkan níu í morgun vegna sprengihættu, sem skapaðist eftir að fulllestaður bensínflutningabíll valt á þjóðveginum og þúsundir lítra af bensíni runnu úr geymum hans. 25.7.2006 12:00
Framkvæmdum frestað á tónlistar og ráðstefnuhúsi Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hægja á framkvæmdum við tónlistar og ráðstefnuhús í samkomulagi við Reykjavíkurborg og Portus. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að þetta væru skýr skilaboð frá ríkisstjórninni um að hún vildi viðhalda stöðugleikanum. Viðræður verða við Portus á næstu dögum og þá verður endanlega rætt um hvernig staðið verður að framkvæmdunum. 25.7.2006 11:47
Stefnt að því að ljúka framkæmkvæmdum næsta vor Framkvæmdum við stækkun og breytingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar miðar vel áfram. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdunum fyrir tuttugu ára vígsluafmæli flugstöðvarinnar næsta vor. Lokaáfangi verksins er nú að hejast með enn frekari breytingum á 2. hæð flugstöðvarinnar og verulegri stækkun og breytingu á innritunar- og komusal stöðvarinnar. 25.7.2006 11:22
Óskar eftir samvinnu við almenningi Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir samvinnu við almenning varðandi upplýsingar um fíkniefni. Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að fíkniefni séu oft fylgifiskur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum. Það sé því samfélagsleg skylda hvers og eins og því beinir lögreglan því til almennings að koma upplýsingum til lögreglu varðandi hugsanlegan flutning fíkniefna til Vestmannaeyja. Fullri nafnleynd er heitið en hægt er að hafa beint samband við lögregluna í síma 4811665 eða fíkniefnasíma Ríkislögreglustjóra 800-5005. 25.7.2006 11:05
Með 30.000 lítra af bensíni Bensínflutningabíll með tengivagni með 30 þúsund lítra af bensíni, valt á veginum um Ljósavatnsskarð á milli Akureyrar og Húsavík laust fyrir klukkan níu í morgun. Bílstjórinn er ekki talinn vera alvarlega slasaður, en hann er töluvert lemstraður eftir veltuna, en hann var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Í tilkynningu frá Olíudreifingu segir að verulegt magn af bensíni hafi leikið úr tengivagninum en minna úr tanki bílsins. 25.7.2006 10:51
Búið er að opna veginn um Ljósaskarð Búið er að dæla öllu bensíni úr Bensínflutningabíll sem valt á veginum um Ljósavatnsskarð á milli Akureyrar og Húsavík laust fyrir klukkan níu í morgun og tók bensínið að flæða úr stórum geymi á tengivagni bílsins. 25.7.2006 09:46
Vegurinn um Ljósavatnsskarð lokaður vegna veltu flutningabíls Bensínflutningabíll valt á veginum um Ljósavatnsskarð á milli Akureyrar og Húsavík laust fyrir klukkan níu í morgun. Ökumaður bílsins var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á akureyri en ekki er vitað með meiðsl hans að svo stöddu. Veginum hefur verið lokað en mikið bensín lekur úr tönkum flutningabílsins. 25.7.2006 09:12
Missti ökuskírteinið vegna ölvunaraksturs Menn fagna af minna tilefni en því að endurheimta ökuskírteinið, eftir að hafa misst það vegna ölvunaraksturs. Og það gerði ökumaðurinn sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði við eftirlit í gærkvöldi, en komst þá að því dýrkeyptu, að það er einmitt og akkúrat við svona tækifæri, sem maður á ekki að lyfta glasi og skála fyrir góðum áfanga, því hann missti ökuskírteinið umsvifalaust aftur. 25.7.2006 09:00
Mikið af ferðamönnum til Hornstranda Mikill fjöldi ferðamanna hefur farið á Hornstrandafriðlandið frá Norðurfirði í sumar. Fréttavefurinn Strandir punktur is greinir frá því að hundruðir gesta hafi siglt með bátnum Sædísi sem flytur fólk til Hornstranda. Ferðir eru farnar þrisvar í viku en vegna mikils áhuga ferðamanna á svæðinu þá hefur þurft að bæta við nokkuð af aukaferðum í sumar. 25.7.2006 09:00
Von er á 21 skemmtiferðaskipi til Ísafjarðar í sumar Von er á ríflega tvö þúsund ferðamönnum til Ísafjarðar með skemmtiferðaskipum í vikunni og tæplega þrjú þúsund í vikunni þar á eftir. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að komur skemmtiferðaskipa standa nú sem hæst en von er á fjórum skipum til Ísafjarðar í vikunni. 25.7.2006 08:45
Fyllti fis flugvél sína af bensíni á bensínstöð Lögreglan á Ísafirði veltir nú fyrir sér hvort eða hvaða umferðarlög flugmaðurinn braut, sem lenti fis flugvél sinni á þjóðveginum við Flateyri í gær. Hann ók henni síðan á bensínstöð fyrir bíla, fyllti geyminn, ók henni yfir veginn á ný og út á tún, þar sem flugið var tekið á ný. Fis vélar eru mjög léttar og lúta ekki sömu skráningarákvæðum og venjulegar flugvélar, hvað þá bílar eða bifhjól. 25.7.2006 08:15
Lögreglan hraðamælir í íbúðargötum Einn ökumaður missir ökuréttindi í þrjá mánuði, tveir í tvo mánuði og sautján til viðbótar fá fjársektir, eftir hraðamælingar lögreglunnar í Reykjavík í nokkrum íbúðargötum í gær. Þar er hámarkshraðinn aðeins 30 kílómetrar á klukkustund, enda geta börn verið að leik á þessum götum. Í ljósi þess hversu margir voru bortlegir, ætlar lögregla að halda viðlíka mælingum áfram til að reyna að ná hraðanum niður. 25.7.2006 08:15
Flugumferðarstjórar deila við ríkið um vaktafyrirkomulag Icelandair er að skoða rétt sinn til að krefja ríkið um skaðabætur vegna kostnaðar, sem félagið hefur orðið fyrir vegna mikilla veikinda flugumferðarstjóra. Talsmaður félagsins segir í viðtali við Morgunblaðið að veikindin hafi valdið töfum og þar að auki hafi vélar félagsins ekki fengið að fljúga í hagkvæmustu flughæðum. 25.7.2006 08:09
Stýrir fundi ríkisstjórnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, stýrir ríkisstjórnarfundi í dag. Eftir því sem næst verður komist er það í fyrsta sinn sem kona situr í forsæti ríkisstjórnar Íslands. 25.7.2006 07:45
Hótaði afsögn á fundinum Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, hótaði uppsögn á aðalstjórnarfundi ef ráðningarsamningur nýs framkvæmdastjóra yrði ekki samþykktur. Margir sátu hjá í atkvæðagreiðslunni. 25.7.2006 07:45
Tengsl milli námsárangurs og þyngdar Tengsl eru á milli námsárangurs og þyngdar nemenda í grunnskóla, samkvæmt rannsókn sem Heilsugæslan á Akureyri, Ráðgjafastofan Reynir og Háskólinn á Akureyri hafa gert og greint er frá í Morgunblaðinu. Fram kemur að of þungum nemendum gengur lakar i námi en krökkum í kjörþyngd þótt ekkert bendi til að þeir hafi minni námshæfileika. Þetta vriðist eiga nokkuð jafnt við pilta og stúlkur. 25.7.2006 07:45
Þörf á fleiri úrræðum Tómas Zoega, yfirlæknir geðdeilar Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH), segir að starfsemi geðdeildarinnar þurfi stöðuga umræðu og mikilvægt sé að fjölbreytt meðferðarúrræði standi sjúklingum til boða bæði innan og utan geðdeildar. 25.7.2006 07:30
Dorrit verður Íslendingur Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, verður íslenskur ríkisborgari næstkomandi mánudag, hinn 31. júlí. Umsókn hennar hefur verið afgreidd úr dómsmálaráðuneytinu og mun taka gildi á mánudaginn. Þetta staðfestir Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. 25.7.2006 07:30
Verða feitari og óheilbrigðari Norðurlandabúar verða sífellt feitari og óheilbrigðari en samkvæmt nýlegri skýrslu er fimmta hvert barn of þungt og rúmlega fjörutíu prósent fullorðinna glíma við sama vandamál. 25.7.2006 07:30
Guðjón segir lögbrot hafa verið nauðsyn Guðjón Hjörleifsson segir að það hafi verið nauðsynlegt að brjóta hlutafélagalög til þess að Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja gæti keypt Íslenskar matvörur, sem rak félagið nánast í þrot. Lögmenn segja brotið geta falið í sér refsiábyrgð. 25.7.2006 07:30
Metár í utanlandsferðum Það er ekki logið á ferðagleði landans, eins og kemur skýrast fram hjá íslenskum ferðaskrifstofum þessa dagana. Uppselt er í flestar ferðir til sólarlanda næstu þrjár vikurnar. Þegar allt er talið eru seld hundruð þúsunda sæta á hverju ári í sólina, skíðaferðir, borgarferðir og sérferðir margs konar. Athygli vekur að mikið er spurt um sólarlandaferðir þegar veður er gott hér á landi. 25.7.2006 07:15
Kísilblanda borin á vegkanta Styrkja ætti vegkanta á þjóðvegum landsins með því að bera á þá blöndu úr sandi, sementi og kísilryki. Þetta segir Steingrímur Sigurjónsson, byggingarfræðingur, hópferðabílstjóri og hugvitsmaður, sem lætur sér ekkert óviðkomandi þegar öryggi mannvirkja er annars vegar, hvort heldur það eru vegir eða byggingar. 25.7.2006 07:15
Önnin kostar 236 þúsund Viðskiptaháskólinn á Bifröst er einn þeirra háskóla sem hafa hækkað skólagjöld sín. Aðstoðarrektor segir hækkanir tilkomnar vegna aukinnar þjónustu við nemendur og að málið sé unnið í fullri sátt. 25.7.2006 07:15
Tilkynnt um fljótandi lík Lögregla bjargaði manni á floti rétt fyrir utan Grafarvog um þrjú leytið í gærnótt. Tilkynnt var að sést hefði lík á floti en þegar lögregla kom á staðinn, á litlum gúmmíbát, var maðurinn á lífi. 25.7.2006 07:00
Mati á eignum RÚV að ljúka Mati á eignum Ríkisútvarpsins lýkur um miðjan ágúst en nefnd fjögurra manna, undir forystu Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda, hefur unnið að matinu. 25.7.2006 07:00
Vegagerðin hafnar vegaskiltum á ensku Sjóvá-Almennar hefur lagt til við Vegagerðina að settar verði merkingar á ensku á þeim stöðum þar sem malarslitlag tekur við af bundnu slitlagi, en malarvegir reynast mörgum erlendum ferðamönnum skeinuhættir. Vegagerðin telur ekki ástæðu til að setja upp merkingar á ensku. 25.7.2006 07:00
Byggja 200 þjónustuíbúðir „Við ræddum undirbúning á byggingu um það bil 200 þjónustuíbúða og fórum svo vítt og breitt yfir allt sem viðkemur þjónustu við þennan hóp,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem sat fyrsta fund samráðsnefndar Reykjavíkurborgar um málefni eldri borgara sem haldinn var í gærdag. 25.7.2006 07:00
Uppbygging á Vestfjörðum Ferðamálastofa hefur undirritað undir samning vegna verkefna í uppbyggingu og úrbótum á ferðamannastöðum á Vestfjörðum. Þeir sem koma að samningnum eru klasafyrirtækið Sjávarþorpið Suðureyri og Ísafjarðarbær. Sjávarþorpið Suðureyri fær styrk til uppbyggingar á upplýsingamiðlunartorgi sem staðsett er við innkeyrsluna í bæinn, og Ísafjarðarbær fær styrk til úrbóta á aðstöðu fyrir ferðafólk á Hornströndum. 25.7.2006 06:45
Íslendingar aldrei fleiri Íbúum landsins hefur fjölgað um fjögur þúsund það sem af er árinu en það er mesta fjölgun síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Að sögn Ólafar Garðarsdóttur hjá Hagstofunni er rúmur helmingur fjölgunarinnar til kominn vegna fólks sem flyst til landsins en flestir flytjast frá Póllandi. 25.7.2006 06:45
Segir forsvarsmenn Neyðarlínu rjúfa sátt Stjórnarformaður Atlassíma telur framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar rjúfa sátt með kæru, sem vísað hefur verið frá. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar neitar því. Yfirlýsing milli Atlassíma og Neyðarlínunnar var undirrituð 25. nóvember. 25.7.2006 06:45
Neytendasamtökin óánægð Neytendasamtökin eru óánægð með viðbrögð ráðherra við hugmyndum matvælaverðsnefndar. Þau segja fulla ástæðu til að velta fyrir sér til hvers þessi nefnd hafi yfir höfuð verið skipuð og telja landbúnaðarráðherra standa í vegi fyrir aðgerðum til lækkunar á matvælaverði. 24.7.2006 22:32
Milljónatjón af völdum veggjakrots Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári. 24.7.2006 22:21
Myspace lá niðri Bandaríska heimasíðan Myspace lá niðri og var óaðgengileg í hálfan sólarhring í dag eftir að rafmagnslaust varð í höfuðstöðvum netfyrirtækisins vegna mikillar hitabylgju í Kaliforníu. 24.7.2006 22:20
Á Kayak hringinn í kringum landið Ísraelsk kona lýkur brátt ferð sinni á Kayak hringinn í kringum landið. Hún kom til Reykjavíkur í dag en þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur rær einn síns í liðs í kringum landið á Kayak . 24.7.2006 20:01
Áttu ekki krónu en keyptu fyrir milljónir Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja átti ekki krónu þegar ákvörðun var tekin um að kaupa Íslensk matvæli fyrir eitthundrað og þrjátíu milljónir. Stofnfjáreigendur félagsins borguðu ekki krónu fyrr en rúmum mánuði seinna og helmingur stofnfjárins skilaði sér aldrei. 24.7.2006 18:57
Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. 24.7.2006 18:45
Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. 24.7.2006 18:45
Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 24.7.2006 18:29
Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. 24.7.2006 17:22
Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. 24.7.2006 16:39
Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. 24.7.2006 15:33
Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. 24.7.2006 15:23