Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Einar Sveinbjörnsson aðstoðarmaður Jónínu Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, hefur verði ráðinn aðstoðarmaður Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra og hóf hann störf í ráðuneytinu í dag. 22.6.2006 11:12
Fjarðaáslverkefnið fær verðlaun sem “teymi ársins”. Á árlegri ráðstefnu Bechtel um öryggis-, umhverfis og heislugæslu sem haldin var í Seattle í Bandaríkjunum var Fjarðaálsverkefninu veitt viðurkenning sem “Teymi ársins” á þessu sviði. Starfsmenn verkefnisins voru valdir úr hópi yfir 100 verkefna á vegum Bechtel sem komu til greina víða um heim. 22.6.2006 11:07
Krefjast þess að Tómas Zoega fari aftur í stöðu sína tafarlaust Stjórn Geðlæknafélags Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun yfirstjórnar Landspítala Háskólasjúkrahúss að virða ekki dóm hæstaréttar í máli Tómasar frá 8. júní síðastliðnum, en hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að brottvikning Tómasar úr stöðu yfirlæknis hafi verið ólögmæt. Stjórnin krefst þess að yfirstjórn Landspítala Háskólasjúkrahúss fari að lögum og Tómas Zoega fari aftur í stöðu yfirlæknis á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss án skilyrða 22.6.2006 10:58
Ármann Kr. Ólafsson nýr formaður Strætó Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfullrúi í Kópavogi, var í gær kjörinn nýr formaður Strætó. Alls starfa um 360 manns við leiðarkerfi Strætó. 115 strætisvagnar aka um leiðarkerfið, samtals 9.300.000 kílómetra á ári um sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og milli Reykjavíkur og Akraness. 22.6.2006 10:10
Segist hafa greitt skatta sem nái til þátta í skýrslutöku Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir að hann hafi þegar greitt 66 milljónir króna í skatta sem nái til þeirra þátta sem hann hafi verið boðaður til skýrslutöku vegna hjá ríkislögreglustjóra í lok mánaðarins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Jóni. 22.6.2006 09:30
Ýja að því að fyrirtæki taki mið af verðlagningu hvor annars Kúabændur láta að því liggja á heimasíðu sinni að fóðursölufyrirtækin Lífland og Fóðurblandan taki mið af verðlagningu hvor annars. Þeir benda á að í fyrradag hafi Fóðurblandan hækkað kjarnfóðurverð um fjögur og hálft prósent, eða upp í 37 krónur kílóið, en strax í gær hafi Lífland gert slíkt hið sama og sé verðið nákvæmlega það sama hjá báðum. 22.6.2006 08:45
Hafði afskipti af 14 ára pilti vegna fíkniefnamáls Fjórtán ára piltur var sá yngsti í hópi sex manna sem lögreglan í Kópavogi hafði afskipti af í þremur fíkniefnamálum sem upp komu í bænum í gær. Fimm voru handteknir en vegna aldurs var aðeins haft afskipti af piltinum, sem viðurkenndi neyslu, og fá barnaverndaryfirvöld mál hans til meðferðar. 22.6.2006 08:15
Útilokar ekki að leita til ríkissaksóknara Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra útilokar ekki að hún leiti til ríkissaksóknara vegna málalykta í kæru hennar á hendur fjórum umhverfisverndunarsinnum sem hún taldi hafa hótað sér ofbeldi. Mótmælendurnir báru spjald sem á stóð: „Drekkjum Valgerði, ekki Íslandi“ í göngu Íslandsvina á dögunum. 22.6.2006 08:00
Sex fluttir á sjúkrahús eftir árekstur í Keflavík Sex voru fluttir á sjúkrahúsið í Keflavík til rannsókna eftir harðan þriggja bíla árekstur á gatnamótum Vesturgötu og Hringbrautar í Keflavík í gærkvöldi. Enginn var þó alvarlega slasaður en allir kvörtuðu undan eymslum hér og þar. 22.6.2006 07:30
Friðrik inn fyrir Þórð Má hjá Straumi-Burðarási Átökum á löngum stjórnarfundi í Straumi-Burðarási fjárfestingarbanka lyktaði með því undir miðnætti að meirihluti stjórnar ákvað að reka Þórð Má Jóhannesson, forstjóra bankans, og ráða í hans stað Friðrik Jóhannsson, sem er formaður stjórnar Kauphallar Íslands og var áður forstjóri Burðaráss. 22.6.2006 07:15
Þyrla Trítons sótti tvo slasaða sjómenn Þyrla danska varðskipsins Tríton lenti með tvo menn við Landspítalann í Fossvogi á tíunda tímanum í kvöld. Báðir höfðu slasast á hendi. Annar mannanna var um borð í færeyska togaranum Ran, um 600 sjómílur suðvestur af Reykjanesi, en að sögn Landhelgisgæslunnar missti hann framan af tveimur fingrum. 21.6.2006 22:28
Lítið vald kjörinna fulltrúa, segir bæjarstjórinn á Ísafirði Bæjarstjórinn á Ísafirði segir greinilegt að kjörnir fulltrúar ráði ekki þegar kemur að málefnum ráðuneytanna. Flutningur launagreiðslna heilbrigðisstofnana á Vestfjörðum sé bara lítið dæmi. Sú breyting hefur orðið að launagreiðslur til starfsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar á Ísafirði og Patreksfirði fara nú beint af reikningi fyrir sunnan inná reikninga starfsmannanna. Þannig minnkar velta viðskiptabanka Heilbrigðisstofnananna um hálfan milljarð árlega auk þess sem störfum við launavinnslu fækkar. 21.6.2006 22:00
Ákæra hugsanlega gefin út á morgun vegna Sancy Lögreglustjórinn á Eskifirði mun líklega gefa út ákæru á morgun vegna færeyska togarans Sancy sem skipverjar á Óðni færðu til hafnar á Eskifirði í fyrradag. Skipstjóri og stýrimaður togarans voru í yfirheyrslum fram á kvöld vegna málsins. 21.6.2006 21:52
Sýknaður af ákæru um að hafa stolið matvælum Karlmaður var í dag sýknaður Í Héraðsdómi Norðurlands eystra af ákæru um þjófnað á matvælum. Maðurinn var ákærður í desember á síðasta ári fyrir að stolið fjórum pakkningum af heilum humri, tveimur lambahryggjum og þremur lambaframbógum úr frystigám við verslunina Bónus á Akureyri, en verðmæti þýfisins var rúmar fimmtán þúsund krónur. 21.6.2006 20:47
Snæuglu sleppt á Hólmavík Snæuglu sem dvalið hefur í Húsdýragarðinum í endurhæfingu í 10 mánuði var sleppt í dag. Snæuglan, ungur karlfugl, fannst flækt í gaddavír við Hólmavík í september á síðasta ári. 21.6.2006 20:09
Hafna hugmyndum um að fresta skattalækkunum Málfundafélagið Óðinn, félag launþegar í Sjálfstæðisflokkinum í Reykjavík, hafnar alfarið hugmyndum um að dregið verði úr eða frestað verði boðuðum skattalækkunum af hálfu ríkisstjórnarinnar. 21.6.2006 19:57
SA sögð beita hótunum Samtök atvinnulífsins segja fyrirhugaða vinnustöðvun starfsmanna Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli á sunnudaginn ólögmæta og minna á mögulega bótaskyldu verkalýðsfélaga og starfsmanna. Forsvarsmaður annars verkalýðsfélags starfsmanna segir samtökin beita hótunum. 21.6.2006 19:15
Steinn Eiríksson ráðinn sveitarstjóri á Borgarfirði eystri Steinn Eiríksson, eigandi og framkvæmdastjóri Álfasteins á Borgarfirði eystri, hefur verið ráðinn sveitarstjóri Borgarfjarðarhrepps til áramóta. Fréttavefurinn Austurlandid.is greinir frá því að Steinn hafi verið kjörinn í hreppsnefnd í síðustu sveitastjórnarkosningum en óbundin kosning var á Borgarfirði eystri. Magnús Þorsteinsson, fráfarandi sveitarstjóri, tilkynnti fyrir kosningar að hann myndi ekki gefa kost á sér til starfans áfram. 21.6.2006 19:13
Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir í yfirlýsingu að nýjasta ákæran í Baugsmálinu hafi beðið hnekki þegar dómari málsins óskaði eftir skýringum saksóknara á henni fyrir dómi í dag. 21.6.2006 18:00
Skaðleg smáskilaboð Gífurlegur fjöldi SMS smáskilaboða, jafnvel yfir hundrað þúsund, voru send á íslensk GSM símanúmer um tíu-leytið í morgun. Skilaboðin geymdu upplýsingar um erlenda stefnumótasíðu og ef farið er inn á heimasíðuna mun tölva viðkomandi smitast af skaðlegum tölvuvírus. 21.6.2006 18:00
Vill hefja lóðaúthlutun á Geldinganesi á næsta ári Meirihlutinn í borgarstjórn vill hefja úthlutun lóða á Geldinganesi strax á næsta ári. Borgarfulltrúi Samfylkingar segir þetta róttækt afturhvarf frá fyrri stefnu skipulagsráðs borgarinnar. 21.6.2006 17:45
Nýr samningur gerir ráð fyrir að biðlistar styttist Barna- og unglingageðdeild Landspítala-háskólasjúkrahúss og Miðstöð heilsuverndar barna hafa undirritað samstarfssamning vegna þjónustu við börn með erfiðleika á geð- og hegðunarsviði. Langir biðlistar hafa myndast á Barna- og unglingageðdeild og skortur er á viðeigandi þjónustu við börn með hegðunar-eða geðvanda. Samningurinn miðar að því að draga úr álagi á Barna- og unglingageðdeild og stytta biðtíma barna og fjölskyldna eftir sérhæfðum úrræðum. 21.6.2006 17:45
Ekið á hjólandi vegfaranda Ekið var á hjólandi vegfaranda á horni Miklubrautar og Stakkahlíðar rétt fyrir klukkan fimm í dag. Hjólreiðamaðurinn slasaðist ekki en fékk nokkrar skrámur og var ekki fluttur á slysadeild. Tveir sjúkrabílar komu engu að síður á staðinn og skoðuðu sjúkraliðsmenn manninn. 21.6.2006 17:44
Ráðuneytið skiptir sér ekki af málum Tómasar Zoega Að sögn ráðuneytisstjóra Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins skiptir ráðuneytið sér ekkert af ráðningarmálum Landspítala háskólasjúkrahúss og starfsmannaráðningar er ekki hægt að kæra til ráðuneytisins. Það er því ljóst að Heilbrigðisráðuneytið mun hvorki taka afstöðu né ákvörðun í málum Tómasar Zoega. 21.6.2006 17:38
Nýjar ákærur hugsanlegar í Baugsmálinu Ekki er útilokað að von sé á nýjum ákærum í Baugsmálinu, eftir að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri fyrirtækisins, fékk boð um að mæta í yfirheyrslur hjá Ríkislögreglustjóra í næstu viku. Málflutningur í Baugsmálinu fór fram í Hérðasdómi Reykjavíkur í dag. 21.6.2006 17:34
Mikil vonbrigði með „ábyrgðarleysi ríkisstjórnarinnar" Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands lýsa yfir miklum vonbrigðum með ábyrgðarleysi ríkistjórnarinnar gagnvart mögulegu samkomulagi aðila vinnumarkaðarins þegar forsendur kjarasamninga eru brostnar. 21.6.2006 17:20
Skipstjórinn aftur færður til yfirheyrslu Yfirheyrslu yfir stýrimanni togarans Sancy lauk rétt í þessu en þær hófust í morgun. Lögreglan á Eskifirði gerir ráð fyrir að hefja á ný yfirheyrslu yfir skipstjóra togarans nú síðdegis og að hún muni standa fram eftir kvöldi. Þá er verið að vinna úr gögnum siglingartölvu togarans en fyrstu upplýsingar gefa til kynna að þau 20 tonn af fiski sem voru um borð í togaranum, hafi verið veidd í íslenski lögsögu. 21.6.2006 16:23
Miklar tafir á umferð Sæbrautin er lokuð í báðar áttir frá Kirkjusandi að Laugarnesvegi, en til stóð að opna hana um klukkan fimm. Umferð er mjög hæg um hjáleiðina um Laugarnesveg og tekur leiðin í gegnum hnútinn að minnsta kosti kortér. 21.6.2006 15:59
Orkuveitan verður ekki seld Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ítrekaði það á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur í dag að fyrirtækið yrði ekki selt. Alfreð Þorsteinsson, sem lét af störfum sem stjórnarformaður Orkuveitunnar eftir 12 ára starf, segir hins vegar að góð staða fyrirtækisins gefi borginni færi á að selja hlut sinn í Landsvirkjun. 21.6.2006 15:45
Jón Ásgeir boðaður til yfirheyrslu vegna meintra skattalagabrota Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur verið boðaður til yfirheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra í næstu viku, vegna meintra skattalagabrota. Þetta kom fram í málflutningi Gests Jónssonar, verjanda Jóns Ásgeirs, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 21.6.2006 14:53
Lögreglumaður kærir líkamsárás Lögreglumaður sem fimm pörupiltar réðust á síðustu helgi hefur lagt fram kæru vegna málsins. Ofbeldismönnunum hefur verið sleppt. 21.6.2006 13:26
Munnlegur málflutningur í Baugsmálinu Nú stendur yfir munnlegur málflutningur í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari, hefur í morgun fært rök fyrir því að kaup Baugs á Vöruveltunni, sem átti 10-11 búðirnar, séu tæk til efnislegrar meðferðar fyrir dómi. Verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar segir tugi staðreyndavilla vera í ákæruskjálinu. 21.6.2006 13:15
Rannsókn á tveimur landhelgisbrotum? Ríkissaksóknari ákveður á næstu dögum hvort rannsókn verður haldið áfram á meintu landhelgisbroti færeysks togara, sem Fokkervél Gæslunnar stóð að meintu broti í íslenskri lögsögu í fyrra. Rannsókn á nýju meintu broti annars færeysks togara er fram haldið á Eskifirði í dag. 21.6.2006 13:00
Rannsókn hætt á meintri ofbeldishótun Lögreglan í Reykjavík hefur hætt rannsókn á meintri hótun um ofbeldi á hendur Valgerði Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í göngu Íslandsvina í lok maí. 21.6.2006 12:45
Kaupmáttur aðeins aukist um tvö prósent Þrátt fyrir að launavísitalan sýni óvenju miklar launahækkanir síðastliðna tólf mánuði, hefur verðbólgan saxað svo á þær að kaupmáttur hefur aðeins aukist um rúm tvö prósent á tímabilinu. 21.6.2006 12:15
Forsendur fyrir áframhaldandi viðræðum ekki fyrir hendi nú Forsendur fyrir því að halda viðræðum áfram við stjórnvöld í tengslum við endurskoðun kjarasamninga er ekki fyrir hendi eins og staðan er nú, segir aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands. Hann segir boltann hjá ríkisstjórninni og viðbrögð hennar við kröfum ASÍ ráði úrslitum í viðræðunum. 21.6.2006 12:00
Kríuvarp hafið af fullum krafti í Grímsey Þótt kríuvarp viðrist nánast ætla að misfarast víðasthvar á Suður- og Vesturlandi er krían farin að verpa af fullum krafti í Grímsey. Of snemmt er þó að spá um afkomu unganna þar, en talsverður ungadauði varð í eynni í fyrra, sem rakinn er til skorts á sandsíli í hafinu, en síli er aðalfæða kríunnar. 21.6.2006 09:45
Nokkrir hálendisvegir opnaðir á morgun Sprengisandsleið er enn lokuð og verður lokuð út mánuðinn hið minnsta, samkvæmt upplysingum Vegagerðarinnar. Þá er útlit fyrir að Skagafjarðarleilð og Eyjafjarðarleið verði lokaðar enn lengur. Á morgun verða hins vegar nokkrar leiðir opnaðar eins og til dæmis Dómadalsleið og frá Búrfelli í Landmannalaugar. 21.6.2006 09:15
Ísland - dýrast í heimi Norska hagstofan og evrópska hagstofan eru ekki sammála um hvaða ríki er hið ríkasta í heimi, en þær eru einhuga um það að Ísland sé dýrasta land í heimi. Norska hagstofan segir að Lichtenstein sé ríkasta landið en Eurostat segir að Lúxemborg sé það ríkasta. 21.6.2006 09:00
Ekki ákveðið hvort skipstjóri Sancy verði ákærður Skýrslutöku af skipstjóranum á færeyska togaranum Sancy, sem tekinn var af varðskipinu Óðni í fyrrinótt, lauk á áttunda tímanum í gærkvöld. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort skipstjórinn verði ákærður. 21.6.2006 08:30
Tveggja ára fangelsi fyrir stórfellt smygl Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að smygla tæpu kílói af amfetamíni og 3,8 kílóum af kannabis til landsins í bíl með Norrænu í desember síðastliðnum. 21.6.2006 08:00
Útspil ríkistjórnarinnar hafi valdið vonbrigðum Útspil ríkisstjórnarinnar í gær, til samkomulags á vinnumarkaði, olli forystu ASÍ miklum vonbrigðum og telja menn þar á bæ að afturkippur sé kominn í málið. 21.6.2006 07:30
Starfsfólk Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli leggur niður vinnu á sunnudaginn Farþegar geta búist við töluverðri röskun á flugi til og frá landinu á sunnudagsmorguninn ef af vinnustöðvun starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli verður. Trúnaðarmenn starfsfólks hafa staðið í árangurslausum viðræðum við stjórnendur Icelandair í tvo mánuði og upp úr sauð á fundi starfsfólks í gærkvöldi. Framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar segir málið í skoðun. 20.6.2006 22:10
Dyrhólaey lokuð fyrir almennri umferð Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka fyrir almennri umferð inn á Dyrhólaey og Háey til og með 25. júní. Dyrhólaey er friðuð en Umhverfisstofnun mun, í samráði við landeigendur og nytjarétthafa, fylgjast með framgangi varps í eynni. Í framhaldi verður tekin ákvörðun um hvort rétt sé að opna fyrir umferð almennings á Dyrhólaey og Háey. 20.6.2006 22:00
Úttekt verður gerð á jafnréttismálum hjá Reykjavíkurborg Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu Svandísar Svavarsdóttur og Árna Þórs Sigurðssonar, Vinstri grænum, um láta fara fram úttekt á kynjajafnréttismálum hjá Reykjavíkurborg. Tillagan var samþykkt samhljóða en hún gerir ráð fyrir að fela mannréttindanefnd að láta gera úttekt á stöðu kynjajafnréttismála hjá Reykjavíkurborg. 20.6.2006 21:45