Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rússar hóta að auka árásir sínar vegna vopnasendinga Bandaríkjamenn eru byrjaðir að senda Bradley bryndreka til Úkraínu en hafa einnig lofað að senda þangað öflugri skriðdreka ásamt nokkrum ríkjum Evrópu. Varnarmálaráðherra Rússlands segir að með þessu séu bandalagsþjóðirnar að reyna að lengja í stríðinu. 7.2.2023 19:50
Ráðherra segir stöðuna alvarlega og heitir aðgerðum Matvælaráðherra segir nýja skýrslu Ríkisendurskoðunar sýna að staðan í allri umgjörð sjókvíaeldis sé alvarleg og gera verði breytingar. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi fagna skýrslunni en hún staðfesti engu að síður brotalamir í stjórnsýslu sjókvíaeldis. 7.2.2023 19:39
Samstaða borgarbúa sé ótrúleg Þúsundir hafa farist eftir öfluga jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi í gær. Íslenskt björgunarsveitarfólk fer til Tyrklands til að aðstoða við björgunaraðgerðir. Samstaða íbúa Tyrklands er aðdáunarverð að mati íslenskrar konur sem býr á skjálftasvæðinu. 7.2.2023 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við ítarlega yfir stöðuna í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og verkfallsaðgerðir sem hófust í dag og atkvæðagreiðslu um víðtækari aðgerðir sem nú er að ljúka. Ríkissáttasemjari hefur óskað liðsinnis sýslumanns til að fá kjörskrá Eflingar afhenta þannig að atkvæðagreiðsla geti farið fram um miðlunartillögu hans. 7.2.2023 17:59
Í kappi við kuldann Björgunarsveitir og aðrir leitaraðilar í Sýrlandi og Tyrklandi vinna nú hörðum höndum að því að ná fólki úr rústum húsa sem hrundu í öflugum jarðskjálftum í gær. Mikið kapp er lagt í að vinna hratt en mikill kuldi er á svæðinu. 7.2.2023 17:51
„Stálhraust feitt fólk hefur verið sett á þessi lyf“ Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrum formaður Samtaka um líkamsvirðingu, segir heimilislækni sinn hafa orðið undrandi þegar hún hafnaði boði hans um að byrja á megrunarlyfi. Hún óttast að aðrir skjólstæðingar læknisins séu ekki jafn upplýstir um skuggahliðar lyfsins. 7.2.2023 16:52
Valbjörg Elsa heiðursiðnaðarmaður ársins Valbjörg Elsa Haraldsdóttir hársnyrtimeistari var um helgina útnefnd heiðursiðnaðarmaður ársins á nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Böðvar Páll Ásgeirsson var gerður að heiðursfélaga en forseti Íslands er verndari hátíðarinnar og afhenti verðlaunin. 7.2.2023 16:39
Dreifing á nektarmyndum af eiginmanni ekki „lostugt athæfi“ Kona var í dag sýknuð af ákæru um að hafa aflað sér og dreift nektarmynd af þáverandi eiginmanni sínum og tveimur nektarmyndum af annarri konu sem maðurinn var í samskiptum við. Samkvæmt dómi telst háttsemin ekki „lostugt athæfi“. 7.2.2023 16:08
Örfáir þingmenn hafi tekið þingið í gíslingu svo dögum skiptir Umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er enn og aftur á dagskrá þingsins í dag en tillaga um að taka málið af dagskrá var felld og tillaga um að lengja þingfund samþykkt. Fjármálaráðherra sagði stjórnarandstöðuna beita sér í grímulausu málþófi undir því yfirskini að greiða fyrir störfum þingsins. 7.2.2023 15:31
Færa gesti á önnur hótel til að ráða við verkföllin Forstjóri Íslandshótela, þar sem Eflingarliðar hafa lagt niður störf, segir að hótelin hafi þurft að færa gesti á önnur hótel. Hann sér ekki fyrir sér að öll sjö hótel Íslandshótela á höfuðborgarsvæðinu geti verið opin ef verkföllin vara í nokkra daga. 7.2.2023 15:28
„Mun litlum árangri skila að leggjast í skotgrafir stjórnmálanna“ Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi fagna nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi sem kynnt var í þingnefnd í gær. Samtökin telja niðurstöður úttektarinnar staðfesta það sem samtökin hafi löngum bent á, það er að brotalamir hafi verið á stjórnsýslu sjókvíaeldis og að viðkomandi stjórnvöldum hafi ekki verið tryggð nægjanlega styrk umgjörð og fjármagn til að takast á við aukin umsvif greinarinnar á síðustu árum. 7.2.2023 14:55
Hjólanotkun eykst í Reykjavík Árið 2022 var gott hvað hjólreiðar varðar og hefur hjólandi greinilega fjölgað. 7.2.2023 14:06
Hefur lagt fram aðfararbeiðni hjá sýslumanni til að fá kjörskrána Ríkissáttasemjari segist ekki líta svo á að hann sé vanhæfur um að miðla málum milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins í yfirstandandi kjaradeilu. Efling lýsti í morgun yfir vantrausti á sáttasemjara vegna miðlunartillögunnar se hann hefur sett fram. 7.2.2023 13:52
Segir SA líta svo á að verkafólk eigi hvorki betri laun né líf skilið Starfsmenn Íslandshótela sem hófu verkfall klukkan 12 á hádegi hafa safnast saman í Iðnó á baráttufundi Eflingar. Meðlimur í samninganefnd Eflingar segir Samtök atvinnulífsins ekki vilja ræða málin og líta svo á að félagsmenn Eflingar eigi hvorki betri laun, vinnuaðstöðu né líf skilið. 7.2.2023 13:24
Breski raðnauðgarinn hlaut 36 lífstíðardóma Breski lögreglumaðurinn og raðnauðgarinn hefur hlotið 36 lífstíðardóma eftir að hann játaði að hafa gerst sekur um 49 kynferðisbrot, þar af 24 nauðganir, gegn tólf konum á átján ára tímabili. Hann mun þurfa að afplána að lágmarki þrjátíu ár í fangelsi. 7.2.2023 13:12
Landsbjörg aðstoðar við björgunaraðgerðir sem íbúi segir óskipulagðar Yfir fimm þúsund eru látin eftir harða jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi í gær. Íslenskur hópur sérfræðinga fer til Tyrklands síðar í dag til þess að aðstoða við björgunaraðgerðir. Kona búsett í Gaziantep í Tyrklandi segir björgunarstarf hingað til hafa virst óskipulagt. 7.2.2023 12:46
Verkfall er hafið á Íslandshótelum Verkföll eru hafin hjá Eflingarfélögum á Íslandshótelum. Tæplega þrjú hundruð starfsmenn hótelanna lögðu niður störf klukkan tólf á hádegi og hafa þeir safnast saman í Iðnó. 7.2.2023 12:30
Allt hafi farið tiltölulega vel í hvellinum sem kom og fór hratt Óveðrið sem gekk yfir landið í morgun virðist vera að renna sitt skeið og er reiknað með að óvissustigi almannavarna verði aflétt fljótlega eftir hádegi. Áfram er þungfært á vegum víða um land en flugsamgöngur eru að komast í eðlilegt horf. Almannavarnir þakka fyrir að fáir hafi verið á ferð. 7.2.2023 12:29
Sześć procent lokali należących do państwa jest nieużywanych Państwo posiada około 550 000 metrów kwadratowych pomieszczeń, z czego 30 000, czyli sześć procent, jest nieużywanych. Lokale te są albo puste, albo w trakcie zagospodarowania lub przekształcenia. 7.2.2023 12:18
Islandia wysyła ratowników do Turcji Władze tureckie przyjęły ofertę pomocy Islandii, w związku z trzęsieniami ziemi, które miały miejsce wczoraj rano. 7.2.2023 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og heyrum meðal annars í ríkissáttasemjara og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. 7.2.2023 11:36
Segir kjörskrána ekki vera til Verkfallsaðgerðir hjá félögum Eflingar á Íslandshótelum hefjast á hádegi í dag. Formaður Eflingar segir stemninguna í hópnum vera góða. Hún ætlar ekki að afhenda kjörskrána og segir hana ekki vera til. 7.2.2023 11:27
Landsbjörg sendir sérfræðingahóp til Tyrklands Tyrknesk yfirvöld hafa þegið boð Íslands um aðstoð vegna jarðskjálftanna sem riðu yfir í gærmorgun. 7.2.2023 10:55
Sex prósent húsnæðis í eigu ríkisins ekki í notkun Ríkið á um það bil 550 þúsund fermetra af húsnæði en af þeim eru um 30 þúsund, eða sex prósent, ekki notkun. Umræddir fermetrar eru ýmist lausir eða í þróun eða umbreytingu. 7.2.2023 10:53
Segir Eflingu brjóta lög og hagnast á ólögmætu ástandi Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir óboðlegt að Efling hyggist ekki afhenda ríkissáttasemjara kjörskrá sína þrátt fyrir úrskurð héraðsdóms þess efnis. Afhendi Efling hana ekki sé sú staða komin upp að lög gildi ekki í landinu. 7.2.2023 10:46
Vonbrigði að Efling hafi ekki mætt til fundar Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, segir vonbrigði að samninganefnd Eflingar hafi ekki mætt til fundar sem hann boðaði hana á í morgun. Samninganefnd Samtaka atvinnulífsins mætti á fundinn, þar sem atkvæðagreiðsla vegna miðlunartillögu sáttasemjara, var til umræðu. 7.2.2023 10:22
Segja Aðalstein vanhæfan og krefjast þess formlega að hann víki Efling - stéttarfélag sendi í morgun kröfu til embættis ríkissáttasemjara um að Aðalsteinn Leifsson víki sæti sökum vanhæfis í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Er þess krafist að skipaður verði staðgengill hans til að fara með málið. 7.2.2023 10:13
Umsóknir um alþjóðlega vernd aldrei verið fleiri Umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2022 voru 4.518 talsins en árið 2021 voru þær 875. Því er um að ræða rúma fimmföldum á umsóknum. Rúmur helmingur umsókna kom frá fólki á flótta frá Úkraínu í kjölfar innrás Rússa í landið. 7.2.2023 10:05
Eldur í íbúð við Írabakka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út skömmu fyrir klukkan níu í morgun eftir að eldur kom upp í íbúð við Írabakka í Breiðholti í Reykjavík. 7.2.2023 09:17
Óvissa um fundi hjá ríkissáttasemjara Ekki hefur verið hægt að halda fund beggja deiluaðila með ríkissáttasemjara um atkvæðagreiðslu hans um miðlunartillögu. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að tölvusamskipti hafi átt sér stað í gær milli hennar og ríkissáttasemjara um mögulegan fundartíma og síðast rætt að hann gæti orðið klukkan 14. Ekkert formlegt fundarboð hafi hins vegar komið til ríkissáttasemjara. 7.2.2023 08:59
Eldur í gámahúsum á Örfirisey Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í gámahúsi á Örfirisey í Reykjavík um klukkan átta í morgun. Tvær stöðvar voru sendar á staðinn og þrír sjúkrabílar, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 7.2.2023 08:27
20.068 fengu ávísað ADHD lyfjum og notkunin eykst enn Notkun ADHD lyfja jókst um 12,3 prósent milli ára 2021 til 2022 en fyrra árið nam hún 51 dagskammti á hverja 1.000 íbúa en 57 dagskömmtum seinna árið. Þetta er minni aukning en undanfarin ár. 7.2.2023 08:10
Grunuðu allsgáðan ökumann um akstur undir áhrifum eftir tvo árekstra Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út um klukkan 17:30 í gær þegar tilkynnt var árekstur þar sem ökumaður hafði ekið af vettvangi. Fram kemur að ökumaðurinn hafi ekki náðst en stuttu síðar var tilkynnt um sama bíl þar sem að ökumaðurinn hefði ekið á öðru sinni. 7.2.2023 07:06
Tala látinna hækkar stöðugt og 65 lönd senda björgunarlið Opinberar tölur eftir jarðskjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi í fyrrinótt eru nú komnar yfir 4.300 látna og tugþúsundir særðra. 7.2.2023 06:40
Veðurvaktin: Búið að opna Þrengsli og stefnt á opnun Hellisheiðar Appelsínugul viðvörun er í gildi á öllu landinu nú fyrir hádegi, nema á Vestfjörðum þar sem gul viðvörun er í gildi. Veðurstofa spáir skammvinnu ofsaveðri, frá klukkan 6 á suðvesturhorninu en á Norður- og Austurlandi taka viðvaranir gildi frá 7 til 9. 7.2.2023 06:11
Verkföllum haldið til streitu eftir viðburðaríkan dag Efling mun hefja verkfallsaðgerðir í hádeginu a morgun eftir úrskurð Félagsdóms um að verkfallsboðun félagsins hafi verið lögleg. Fyrr í dag úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að ríkissáttasemjari fái aðgang að kjörskrá Eflingar. 6.2.2023 23:43
„Seinasta sem við viljum er að vera úlfur, úlfur týpan“ Von er á vonskuveðri og almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi á landinu öllu í fyrramálið. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi alls staðar nema á Vestfjörðum í fyrramálið. Fólk er hvatt til þess að fylgjast vel með og reyna eftir fremsta megni að fresta ferðum sínum á meðan veðrið gengur yfir. 6.2.2023 23:10
Úrvinda hermenn búast við enn harðari átökum Úrvinda úkraínskir hermenn kvarta yfir því að eiga við ofurefli að etja í austurhluta Úkraínu, þrátt fyrir að Rússar hafi ekki enn sent alla þá hermenn sem skikkaðir voru til herþjónustu á víglínurnar. Úkraínskir læknar segja mannfall hafa aukist að undanförnu en hart er barist víða á víglínunum í Úkraínu. 6.2.2023 22:41
Hvalkjöt fyrir 2,8 milljarða króna til kaupenda í Japan Um 2.600 tonn af íslensku hvalkjöti eru væntanleg með skipi til Japans um miðja þessa viku og er þetta mesta magn hvalaafurða sem flutt hefur verið út frá Íslandi í 35 ár. Útflutningsverðmætið nemur um 2,8 milljörðum króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. 6.2.2023 21:50
Trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför Formaður Eflingar hefur ritað ríkissáttasemjara bréf vegna fundarboðs hans á morgun. Hann segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, um heimila aðför til þess að fá kjörskrá Eflingar afhenta, óumdeilanlega kæranlega. Efling trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför á grundvelli niðurstöðu lægra dómstigs á meðan beðið er eftir endanlegri niðurstöðu æðri dómstóla. 6.2.2023 20:49
Fjölmörg bílslys seinni partinn Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynningar um fjölmörg bílslys seinni part dags. Þar á meðal var minnst fimm bíla árekstur á Kringlumýrarbraut við Bústaðaveg en mörg slysanna má rekja til mikillar hálku sem myndaðist í dag. 6.2.2023 20:44
Mikil röskun á flugi á morgun Forsvarsmenn Icelandair hafa aflýst öllum flugferðum frá Norður-Ameríku til Íslands í kvöld vegna veðurs á morgun. Það sama er að segja um morgunflug til Evrópu í fyrramálið en því hefur einnig verið aflýst, að undanskildu flugi til Tenerife og Las Palmas sem hefur verið seinkað. 6.2.2023 20:27
„Iðnaðurinn fær að hafa eftirlit með sjálfum sér“ Það er ekki aðeins þingheimur sem er uggandi vegna stöðunnar sem dregin er upp í nýrri svartri skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi því náttúruverndarsinnar sem fréttastofa ræddi við í dag segja það vera ljúfsárt að lesa staðhæfingar í skýrslunni sem þeir sjálfir hafa haldið á lofti árum saman en talað fyrir daufum eyrum. 6.2.2023 20:00
Hvert húsið hrundi á eftir öðru Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur lýst yfir sjö daga þjóðarsorg í kjölfar öflugra jarðskjálfta sem orðið hafa í Tyrklandi og Sýrlandi. Fjölmargir eru dánir en þeim mun líklegast fjölga mikið á næstu dögum. Skjálftarnir ollu gífurlegum skemmdum í báðum löndum. 6.2.2023 20:00
Skora á Eflingu að fresta og áskilja sér rétt til bótakrafna Samtök atvinnulífsins hafa skorað á Eflingu að fresta vinnustöðvun, sem félagið hefur boðað á morgun. Þá segir að samtökin áskilji aðildarfélögum sínum bótarétt vegna alls tjóns sem af ólögmætum aðgerðum Eflingar kunni að hljótast. 6.2.2023 19:55