Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Harðorð í garð Jóns vegna brottvísana og spyr hvort hann hafi komið til Sómalíu Helen Ólafsdóttir, öryggisráðgjafi fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Sómalíu, segir í opnu bréfi sínu til Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra að það sé pólitísk ákvörðun að vísa flóttafólki úr landi. Ráðherra og Útlendingastofnun skýli sér bak við reglugerðir við brottvísanir flóttafólks. 21.5.2022 14:11
Vinir Mosfellsbæjar ekki lengur með í meirihlutaviðræðum Framsóknarflokkurinn hefur formlega slitið meirihlutaviðræðum við Vini Mosfellsbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Dagný Kristinsdóttir, oddviti Vina Mosfellsbæjar, sendi í dag. 21.5.2022 13:45
Eiginkona hins dauðadæmda var fræg söngkona Eiginkona danska mannsins sem hlaut dauðadóm í Nígeríu í gær var þekkt söngkona þar í landi. Málið hefur vakið mikla athygli í Nígeríu. 21.5.2022 13:09
Albanese næsti forsætisráðherra Ástralíu Í dag var fóru fram þingkosningar í Ástralíu þar sem kosið var til setu á neðri deild ástralska þingsins. Verkamannaflokkurinn, leiddur af Anthony Albanese, sigraði kosningarnar. 21.5.2022 12:15
Líst ekki á leiguþak og óttast að of ströng skilyrði geti skaðað framboð Fjármála- og efnahagsráðherra líst ekki á hugmyndir um leiguþak hér á landi líkt og aðrir ráðherrar hafa talað fyrir. Hann óttast að of ströng skilyrði geti orðið til þess að skaða framboð á leigumarkaði. Nauðsynlegt sé þó að bæta stöðu leigjenda og gera umbætur á húsnæðismarkaði, þar sem ofboðslegur vandi blasir við. 21.5.2022 12:05
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum segjum við frá því að fjármála- og efnahagsráðherra líst ekki á hugmyndir um leiguþak hér á landi líkt og aðrir ráðherrar hafa talað fyrir. Hann óttast að of ströng skilyrði muni koma til með að skaða framboð á leigumarkaði. Nauðsynlegt sé þó að bæta stöðu leigjenda og gera umbætur á húsnæðismarkaði. 21.5.2022 11:44
Gekk um með þráðlausan hátalara í botni og angraði íbúa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í morgun afskipti af ölvuðum manni í Reykjavík sem gekk um með þráðlausan hátalara og tónlist í botni. Tónlistin var svo há að hún vakti íbúa hverfisins sem maðurinn gekk um. 21.5.2022 11:44
Kaldar sturtur í Árbæjarlaug eftir innbrot og eignaspjöll Sundlaugargestir sem mættu í Árbæjarlaug við opnun klukkan níu í morgun máttu sætta sig við ískaldar sturtur. Innbrotsþjófur hafði framið þar ýmis eignaspjöll um nóttina, meðal annars farið um tækjakjallara laugarinnar og tekið þar leiðslur í sundur með þeim afleiðingum að ekkert heitt vatn rann í sturturnar. 21.5.2022 11:22
Musk hafnar ásökunum og vill koma á fót málsóknarteymi Ríkasti maður heims, Elon Musk, hafnar þeim ásökunum sem á hann eru bornar um kynferðislega áreitni. Greint var frá því á dögunum að flugfreyja sem starfaði fyrir fyrirtæki hans sakaði hann um að hafa berað sig við konuna, káfað á henni og boðið henni greiðslu fyrir kynlíf. 21.5.2022 11:07
Hjólahvíslarinn lenti á vegg og tekur sér langþráða pásu Bjartmar Leósson, oft kallaður hjólahvíslarinn, hefur undanfarin þrjú ár einbeitt sér að því að koma stolnum hjólum aftur í hendur réttmætra eigenda. Nú ætlar hann þó að taka sér frí um óákveðinn tíma. 21.5.2022 10:13
Á fjórða hundrað skjálfta frá miðnætti „Það hefur verið nokkur virkni í nótt. Það eru komnir rúmlega 330 skjálftar frá miðnætti og um klukkan þrjú urðu nokkrir um þrjá að stærð við Grindavík. Sá stærsti var 3,3.“ 21.5.2022 09:46
Allt að 16 stiga hiti og frábært veður til útiveru Víðáttumikil lægð mjakast austur fyrir landið í dag og gengur því í norðan 5-13 metra á sekúndu með morgninum, hvassast vestantil. Norðanáttinni fylgir rigning eða súld og víða þoka á Norður- og Austurlandi, auk Vestfjarða, en sunnan- og suðvestantil léttir til er líður á daginn. 21.5.2022 09:22
Reykjavíkurbörn í unglingavinnunni fái launahækkun Tillaga um hækkun tímakaups unglinga í vinnuskóla Reykjavíkur var send til borgarráðs í vikunni eftir að hún var samþykkt hjá Umhverfis- og heilbrigðisráði borgarinnar. 21.5.2022 08:23
Verðhækkanir á hrávöru hafa áhrif á íslensk fyrirtæki Heimsmarkaðsverð á fóðri og hráefnum hefur hækkað um 43 prósent á rúmu ári og um 23 prósent síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Framkvæmdastjóri Reykjagarðs segir erfitt vera að gera áætlanir fram í tímann þegar óvissan er allsráðandi. 21.5.2022 08:12
Fengu áður óbirtan ljóðabálk eftir Davíð Stefánsson Nítján erinda ljóðabálkur eftir Davíð Stefánsson er nú kominn í hendurnar á Davíðshúsi sem rekið er af Minjasafninu á Akureyri. Ljóðin voru ort til æskuvinkonu Davíðs. 21.5.2022 07:44
Eldur í vinnuskúr í Elliðaárdal Klukkan rétt rúmlega hálf þrjú í nótt urðu lögreglumenn í eftirlitsferð varir við eld í Elliðaárdal. Í ljós kom að kviknað var í vinnuskúr og komu lögreglumenn að tveimur mönnum sem voru handteknir vegna gruns um íkveikju. Mennirnir voru í annarlegu ástandi og voru vistaðir í fangaklefa. 21.5.2022 07:30
Vaktin: Grafa upp lík rússneskra hermanna Síðustu úkraínsku hermennirnir yfirgáfu Azovstal-stálverið í gær og hafa Rússar lýst yfir sigri í borginni Maríupól. 21.5.2022 07:16
Danskur ríkisborgari dæmdur til dauða í Nígeríu Danskur karlmaður var í dag dæmdur til dauða í Nígeríu fyrir að hafa myrt eiginkonu sína og barn þeirra. Sjö ár eru síðan dauðadómi var framfylgt í landinu. 20.5.2022 23:33
Fjölskylda ráðherra vill byggja á svæði sem aðrir fengu ekki að byggja á Einkahlutafélag sem stofnað var af Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra og eiginkonu hans hefur fest kaup á einbýlishúsi og 3,2 hektara lóð í Garðabæ. Jón gekk úr eigendahóp félagsins daginn fyrir kaupin. 20.5.2022 22:56
Aldís verður sveitarstjóri í Hrunamannahreppi Aldís Hafsteinsdóttir mun taka við sem sveitarstjóri Hrunamannahrepps. Þetta kemur fram í tilkynningu frá D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra. 20.5.2022 21:23
„Fulltrúar erlendu stórfyrirtækjanna tókust bara á loft“ Forseti Íslands segir lífsreynslu útaf fyrir sig að hafa fundað með Apple, Microsoft og Amazon vestanhafs síðustu daga. Helstu sérfræðingar Íslendinga í máltækni eru hluti af sendinefnd, sem á að sannfæra stórfyrirtækin um að bjóða upp á samskipti við símana - á íslensku. 20.5.2022 21:12
Miðflokkurinn gefur Sjálfstæðismönnum sviðið í Grindavík Þrátt fyrir að Miðflokkurinn hafi unnið stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum í Grindavík um seinustu helgi er komið að Sjálfstæðisflokknum í að reyna að mynda meirihluta. Meirihlutaviðræður gengu ekki upp hjá Miðflokksmönnum. 20.5.2022 21:08
Leiðtoginn í höfuðvígi Miðflokksins Grindavík er orðin stærsta vígi Miðflokksins, og jafnframt eitt það síðasta, á sveitarstjórnarstiginu. Oddviti flokksins í bænum átti ekki von á því að flokkurinn ynni slíkan stórsigur - en telur ýmsar ástæður liggja þar að baki. 20.5.2022 20:31
Ætlar ekki að hætta fyrr en öll börn í Laugardalnum eru óhult Maður sem hefur ítrekað berað sig fyrir framan börn í Laugardalnum var í gær hnepptur í gæsluvarðhald. Móðir stelpu sem lenti í manninum segir það vera mikinn létti. 20.5.2022 20:26
Ekkert nema hryllingur bíði hennar í Grikklandi Sómölsk kona, sem vísa á úr landi á næstu dögum, segir brottvísun ógna lífi sínu. Lögmaður hennar gagnrýnir að stjórnvöld hefji nú brottvísanir á ný í stórum stíl, sem hann telur að gætu verið ólögmætar. 20.5.2022 19:00
Enn skelfur jörð á Reykjanesi Jarðskjálfti varð 6,8 kílómetra vestnorðvestur af Reykjanestá klukkan 18:33 í kvöld. Skjálftinn varð á 6,6 kílómetra dýpi og mældist 3,8 að stærð. 20.5.2022 18:58
Fólkið hafi vitað af því að dagsetningin kæmi Dómsmálaráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni ákveðinna hópa um að nú eigi að vísa hælisleitendum úr landi í stórum stíl eftir kórónuveirufaraldurinn en hann bendir á að fólkið sem um ræðir hafi verið hér ólöglega allan þann tíma. 20.5.2022 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir gang meirihlutaviðræðna í Reykjavík eins og undanfarna daga, en ekki síður stöðuna um allt land, þar sem víðast hvar er kominn öllu meiri skriður á viðræður. 20.5.2022 18:14
Gert að greiða rúmlega 36 milljóna króna sekt vegna skattsvika Kona, sem sat í stjórn einkahlutafélagsins Hæ ehf., hefur verið gert að greiða rúmlega 36 milljóna króna sekt til ríkissjóðs fyrir skattalagabrot á árunum 2016 og 2017. 20.5.2022 17:39
Þórdís Sif ekki endurráðin sem sveitarstjóri Þórdís Sif Sigurðardóttir mun ekki halda áfram sem sveitarstjóri Borgarbyggðar. Hún hefur gengt starfinu síðastliðin tvö ár. 20.5.2022 17:24
Gífurleg aukning í tilkynningum um netsvindl Tilkynningum um netárásir hefur fjölgað mikið síðustu ár samkvæmt ársskýrslu CERT-ÍS, netöryggissveitar Fjarskiptasofu. Rúm tvöföldun hefur verið í tilkynningum um netsvindl milli áranna 2020 og 2021 á sama tíma og tölvuþrjótar nota æ þróaðri aðferðir til að herja á lykilorðabanka og viðkvæm gögn. 20.5.2022 16:19
Segir starfsmenn hugsa sér til hreyfings eftir fund um útboð Framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala boðaði starfsfólk öldrunardeildar Landspítalans á Vífilsstöðum á fund og tilkynnti þeim að stæði til að bjóða starfsemina út. Trúnaðarmaður Sameykis á vinnustaðnum segir ráðamenn ekki hafa hugsað málið til enda. 20.5.2022 15:39
Oftast strikað yfir nafn Hannesar í Kópavogi Kjósendur Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi strikuðu alls sjötíu sinnum yfir nafn Hannesar Steindórssonar eða færðu hann neðar á lista í bæjarstjórnarkosninunum um liðna helgi. 20.5.2022 14:34
Bein útsending: „Why don‘t you just marry (an Icelander)?“ Norræna húsið stendur fyrir málstofu sem fjallar um málefni innfluttra listamanna og menningarstarfsmanna frá löndum utan ESB klukkan 15 í dag. Yfirskrift málstofunnar er „Why don‘t you just marry (an Icelander)?“ og verður hún í beinu streymi. 20.5.2022 14:31
„Ríkið á að auka tækifæri fólks í þessari stöðu en ekki öfugt“ Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði nýverið fram frumvarp til breytinga á löggjöf um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks í kringum tæknifrjóvganir ásamt auknu frelsi og trausti til handa tilvonandi foreldrum sem þurfa að nýta sér tæknifrjóvgun. 20.5.2022 14:27
Skorar á heimildarmanninn að lýsa óþekktum örum eða húðflúrum á líkama Musk Auðjöfurinn Elon Musk þvertekur fyrir að hafa berað sig fyrir framan flugfreyju, líkt og haldið var fram í frétt Business Insider í gær Hann skorar á heimildarmann fjölmiðilsins að stíga fram og lýsa örum eða húðflúrum á líkama Musk sem almenningur veit ekki af. 20.5.2022 13:46
Wozy policyjne uszkodzone w pościgu Samochód specjalnego zespołu policji i radiowóz zostały uszkodzone w pościgu kierowcy pickupa, który nie zatrzymał się na znak policji. 20.5.2022 13:27
Útilokar ekki að apabóla berist hingað til lands Sænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að skilgreina apabólu (e. monkeypox) sem sjúkdóm sem ógn við almannaheill. Frá þessu greindi sænska ríkisstjórnin í morgun, en fyrsta tilfelli apabólu greindist í Svíþjóð í gær. 20.5.2022 13:14
Policja prowadzi śledztwo w sprawie znalezionych zwłok Policja poinformowała, że ciało, które w tym tygodniu znaleziono na plaży przy Eiðsgrandi, w Reykjaviku, należy do kobiety. 20.5.2022 12:56
Nowa propozycja ustawy mieszkaniowej poddana krytyce Sigurður Ingi Jóhannsson, przewodniczący Partii Postępowej, przedstawił w środę projekt ustawy, której celem jest poprawa bezpieczeństwa mieszkaniowego i sytuacji prawnej najemców. Gunnar Smári Egilsson, jeden z głównych przywódców Partii Socjalistycznej, komentuje, że ustawa nie jest tak dobra i nie jest godna zaufania. 20.5.2022 12:48
Kynferðisbrotamenn reyni að nálgast börn í auknum mæli á Snapchat Ábendingum til lögreglu um meinta kynferðisbrotamenn á samskiptaforritinu Snapchat hefur fjölgað á undanförnum árum. Þetta segir lögregla sem telur óvíst hvort lögregla hafi lagalegar heimildir til að loka slíkum reikningum. 20.5.2022 12:07
Íris heldur bæjarstjórastólnum Eyjalistinn og Fyrir Heimaey undirrituðu samkomulag um meirihlutasamstarf í Vestmannaeyjum í morgun. Íris Róbertsdóttir verður áfram bæjarstjóri og Páll Magnússon verður forseti bæjarstjórnar. 20.5.2022 12:02
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um meirihlutaviðræður um allt land. 20.5.2022 11:38
Lögreglubílar skemmdir eftir eftirför Skemmdir urðu á sérsveitarbíl og lögreglubíl eftir eftirför við ökumann pallbíls sem lauk við brúna yfir Reykjanesbraut við Stekkjarbakka í morgun. Eftirför hófst eftir að ökumaður pallbílsins virti ekki stöðvunarskyldu og er hann grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. 20.5.2022 11:33
„Mikill skellur fyrir stóran hóp af fólki“ Lögmaður gagnrýnir harðlega að hefja eigi aftur brottvísanir á hælisleitendum í stórum stíl. Umbjóðendur hans hafi fest hér rætur í faraldrinum. Hann hafnar því sem hann kallar alhæfingu ríkislögreglustjóra, sem segir 250 manns dvelja hér án heimildar eftir að hafa neitað að undirgangast sóttvarnareglur. 20.5.2022 11:31