Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Játaði að hafa myrt Petito áður en hann svipti sig lífi Þegar Brian Laundrie fannst látinn í feni í Flórída fannst skrifblokk nærri honum. Í skrifblokkina hafði hann skrifað að hann hefði myrt Gabrielle Petito, kærustu sína. Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) tilkynnti þetta í gærkvöldi en Laundrie hvarf skömmu eftir að hann sneri einn úr ferðalagi sem þau höfðu bæði farið í í fyrra. 22.1.2022 09:53
Safna fé fyrir bálstofu í Rjúpnadal og vilja sæti í stjórn Kirkjugarðanna Forsvarsmenn Bálfarafélags Íslands mótmæla harðlega nýju frumvarpi sem gerir ráð fyrir að ákvæði um samnefnt félag verði fellt brott úr lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu. 22.1.2022 09:00
Axel Nikulásson látinn Axel Nikulásson, fyrrverandi körfuboltakappi og starfsmaður utanríkisráðuneytisins er látinn, 59 ára að aldri. 22.1.2022 07:50
Ekkert ferðaveður fram á kvöld Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi til klukkan sex í kvöld á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra. 22.1.2022 07:34
Ökumaður sem átti að vera í einangrun gripinn af lögreglu Ökumaður sem átti að vera í einangrun má búast við kæru vegna brots á sóttvarnarlögum eftir að lögregla greip hann glóðvolgan við aksturinn. 22.1.2022 07:22
Mokgræddi á Bitcoin en fyrrverandi sat í súpunni Kona hefur fengið endurákvörðun ríkisskattstjóra um hækkun tekjuskattsstofns hennar um tíu milljónir króna fellda niður af yfirskattanefnd. Ríkisskattstjóri hafði hækkað skattstofn konunnar vegna vanframtalinna tekna fyrrverandi eiginmanns hennar af sölu á rafmyntinni Bitcoin. 22.1.2022 00:02
Leiðindaveður víða um land í nótt og á morgun Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Norð-Vesturhluta landsins sem gilda til klukkan 18 á morgun. Þá eru gular viðvaranir í gildi víða um land. 21.1.2022 22:54
Stefán í Gagnamagninu gengst við að hafa beitt ofbeldi Stefán Hannesson, fyrrverandi meðlimur Daða og Gagnamagnsins hefur gengist við ásökunum um ofbeldi, sem á hann hafa verið bornar síðustu daga. Hann segist hafa tekið ákvörðun um það í fyrra að segja sig úr hljómsveitinni. 21.1.2022 21:53
Aðgerðum gegn fjölmiðlum á Íslandi fari fjölgandi Vefurinn Mannlíf.is lá niðri fram á miðjan dag eftir að brotist var inn á skrifstofur miðilsins í nótt og öllu eytt út af síðunni. Formaður Blaðamannafélags Íslands segir innbrotið eitt alvarlegasta dæmið um atlögu gegn fjölmiðlum hér á landi um nokkra hríð. 21.1.2022 20:45
Aldrei selst fleiri íbúðir en í fyrra og verðið hækkaði mikið Metfjöldi íbúða seldist á síðasta ári og var fjölgunin milli ára töluvert yfir meðaltali fyrri ára á þessari öld og íbúðaverð hækkaði um 18,4 prósent. Fasteignasali reiknar með áframhaldandi skorti á íbúðarhúsnæði á allra næstu misserum. 21.1.2022 20:15
Líkir myndbirtingu Sigurðar G við áður séða þöggunartilburði Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson tekur fyrir að hafa birt mynd af Vítalíu Lazarevu hjá sér á Facebook. Myndina var þó að finna á Facebook-síðu hans í morgun. Talskona Stígamóta segir myndbirtinguna líkjast þöggunartilburðum. 21.1.2022 19:51
Brimbrettakappar lentu í kröppum dansi Þrír brimbrettakappar komu sér í hann krappan þegar þeir voru á brettum sínum norðaustur af Engey í dag vegna vélarbilunar í gúmmíbát þeirra. 21.1.2022 19:31
Þotu snúið við vegna farþega sem neitaði að bera grímu Flugvél American Airlines á leið frá Miami til Lundúna á miðvikudaginn var snúið við eftir tæplega klukkustundar flug vegna farþega sem harðneitaði að bera grímu líkt og allir aðrir. 21.1.2022 19:09
Gæti farið fram á sanngirnisbætur Nefnd um eftirlit með lögreglu segir ekki sitt verksvið að endurskoða rannsóknir sakamála. Nefndin hafi því aðeins úrskurðað að meint brot lögreglu í rannsókn á tveimur bændum sem kærðir voru fyrir nauðgun 1987, væru fyrnd. Lögmaður bendir á að stjórnvöld geti ákveðið sanngirnisbætur þegar allt annað þrýtur. 21.1.2022 18:45
Slys vegna rafskútu hafi verið fyrirsjáanlegt Einstaklingur var fluttur á spítala til aðhlynningar eftir að hafa hjólað á rafhlaupahjól á níunda tímanum í morgun. Formaður Reiðhjólabænda segir slysið hafa verið fyrirsjáanlegt. 21.1.2022 18:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vonir standa til þess að leikmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem eru í einangrun í Búdapest geti spilað á ný á Evrópumótinu í næstu viku. Flestir eru við ágæta heilsu en sex leikmenn hafa greinst með covid-19 og sjúkraþjálfari liðsins er einnig kominn í einangrun. Við verðum í beinni útsendingu frá Búdapest í kvöldfréttum og fjöllum nánar um málið. 21.1.2022 18:01
Þrír lögregluþjónar ákærðir fyrir að skjóta átta ára stúlku til bana Þrír lögregluþjónar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum voru ákærðir fyrir manndráp í vikunni. Það er vegna skothríðar þeirra fyrir utan leikvang framhaldsskóla í bænum Sharon Hill í ágúst þar sem átta ára stúlka varð fyrir skoti og dó. 21.1.2022 17:01
Bjarni Ben kominn heim og skýtur á Samfylkinguna Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra er kominn til landsins eftir frí erlendis þar sem ráðherrann skellti sér meðal annars á skíði. 21.1.2022 16:36
Ætlar sér fyrsta sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í Fjarðabyggð Ragnar Sigurðsson, varaþingmaður og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, gefur kost á sér í 1.sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð í prófkjöri flokksins þann 26. febrúar næstkomandi. 21.1.2022 15:25
Annar eldsvoði ársins í flóttamannabúðum Rohingja Mikill eldsvoði varð í Cox‘s Bazar flóttamannabúðunum í Bangladess síðastliðinn sunnudag. Búðirnar eru heimili þúsunda Rohingja sem flúið hafa ofsóknir og fjöldamorð í nágrannaríkinu Mjanmar. 21.1.2022 14:53
Birta og Kári ætla sér stóra hluti hjá Heimdalli Birta Karen Tryggvadóttir gefur kost á sér til formennsku í Heimdalli, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins sem haldinn verður þann 27. janúar næstkomandi. Kári Freyr Kristinsson gefur kost á sér í embætti varaformanns. 21.1.2022 14:37
Orri vill leiða lista Framsóknar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson, forstjóri Frumherja, gefur kost á sér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor. 21.1.2022 14:36
„Stundum eina réttlætið að segja opinberlega frá kynferðisofbeldinu“ Talskona Stígamóta segir sláandi að sjá umfjöllun um konu sem kærði tvo menn fyrir nauðgun árið 1987. Allt kerfið hafi greinilega algjörlega brugðist á þessum tíma. Það sorglega sé hins vegar að kerfið taki ennþá illa á svona málum og flest séu felld niður. 21.1.2022 13:30
Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. 21.1.2022 13:19
Spyr sóttvarnalækni daglega hvort hægt sé að aflétta Heilbrigðisráðherra segist spyrja sóttvarnalækni daglega hvort hægt sé að fara létta á takmörkunum og telur jákvæð teikn á lofti í faraldrinum. Tæplega 1.500 greindust með veiruna í gær 21.1.2022 13:01
Skrifstofa Mannlífs eftir harðsvírað innbrot: „Ekki menn ruglaðir af dópi, þetta eru útsendarar“ Vefurinn Mannlíf.is lá niðri fram á miðjan dag eftir að brotist var inn á skrifstofur miðilsins í nótt og öllu eytt út af síðunni. Reyni Traustasyni ritstjóra er illa brugðið; honum líður eins og honum hafi verið misþyrmt, stunginn í bakið. Hér sé um verk útsendara að ræða. 21.1.2022 13:00
Vill ekki kannast við myndina sem hann birti af Vítalíu Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segist ekki hafa tekið mynd af Vítalíu Lazarevu og birt í „story“ hjá sér á Facebook. Myndina var þó að finna á Facebook-síðu hans í morgun. Vítalía hefur sakað nafntogaða og þjóðþekkta menn um kynferðisofbeldi. 21.1.2022 11:33
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við framkvæmdastjóra Handknattleikssambands Íslands um baráttu strákanna okkar í Búdapest við veiruna skæðu og aðbúnaðinn á mótinu. 21.1.2022 11:33
Covid gerir hjálparstarf á Tonga flókið Skip sjóhers Nýja-Sjáland kom til hafnar í Tonga-eyjum í morgun. Þar um borð voru 250 þúsund lítrar af drykkjarvatni og öðrum nauðsynlegum birgðum. Um borð í HMNZS Aotearoa er einnig búnaður sem hægt er að nota til að eima sjötíu þúsund lítra af vatni á dag. 21.1.2022 11:27
Hafa þurft að hlaupa uppi nokkra bólusetningasvindlara Enn ber á því að einstaklingar skrái sig í bólusetningu í Laugardalshöll en freisti þess að láta sig hverfa áður en þeir fá sprautuna. Í nokkrum tilfellum hafa lögreglu- og slökkviliðsmenn hlaupið viðkomandi uppi. 21.1.2022 10:36
Stjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn fara versnandi Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir heiminn að mörgu leyti verri síðan hann hóf fyrsta kjörtímabil sitt fyrir fimm árum. Það sé vegna faraldurs kórónuveirunnar, veðurfarsbreytinga og aukinnar spennu ríkja á milli. 21.1.2022 10:23
1.456 greindust innanlands 1.456 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 211 á landamærum. 35 sjúklingar eru inniliggjandi á Landspítalanum og eru þrír á gjörgæslu. 21.1.2022 10:23
UN Women á Íslandi stýrir hliðarviðburði hjá Sameinuðu þjóðunum Fundirnir gegna mikilvægu hlutverki í að stuðla að frekari réttindum kvenna og stúlkna um allan heim. 21.1.2022 09:59
35 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 35 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim því fjölgað um þrjá milli daga. 21.1.2022 09:33
Berglind aðstoðar Svandísi í fjarveru Iðunnar Berglind Häsler, samskipta- og viðburðastjóri Vinstri grænna, mun leysa Iðunni Garðarsdóttur af sem aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Iðunn fer nú í árs barneignarleyfi og hefur Berglind störf 14. febrúar næstkomandi. Kári Gautason er hinn aðstoðarmaður Svandísar. 21.1.2022 09:20
Bein útsending: Óumbeðnar typpamyndir og kynlífsmyndbönd sem lekið er á netið Rights and Equality Foundation (NORDREF) standa fyrir málþingi í dag klukkan 9. Á dagskrá er umræða um stafræn brot gegn kynferðislegri friðhelgi og áhrif þess á mannréttindavernd, lýðræðisþátttöku og menningu. Málþingið stendur til hádegis. 21.1.2022 08:31
Dæmd í níu mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt konu í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa með röngum framburði hjá lögreglu leitast við að koma því til leiðar að maður sem hún hafði átt í sambandi við yrði dæmdur fyrir húsbrot, líkamsárás og frelsissviptingu. 21.1.2022 07:54
Sviðahausapizzur í Hveragerði á bóndadaginn Veitingamaður í Hveragerði ætlar að fara alla leið á bóndadaginn, sem er í dag því hann verður með sviðahausapizzur fyrir þá sem þora. 21.1.2022 07:36
Hiti komst í sautján stig á Austfjörðum í nótt Nóttin var hlý á landinu og komst hitinn þannig í sautján stig á Austfjörðum. Í dag er hins vegar spáð hvassri suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri, en stormi eða roki í kvöld og rigningu eða snjókomu um tíma. 21.1.2022 07:11
Blinken og Lavrov funda í Genf í dag Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, þeir Antony Blinken og Sergei Lavrov, munu hittast síðar í dag í Genf í Sviss til að ræða ástandið í Úkraínu en spennan á svæðinu fer nú vaxandi dag frá degi og óttast vesturlönd að Rússar hyggi á innrás í landið. 21.1.2022 07:07
Óljóst hvort þöggunarsamningar haldi vatni Lögmaður segir ekki ljóst hvort „þöggunarsamningar“ haldi vatni fyrir dómstólum. Samningana þurfi að túlka í hvert skipti en lítið hefur verið fjallað um slíka samninga hér á landi. 21.1.2022 07:00
Vinsældir Kia aukast enn í Evrópu Kia náði hæstu markaðshlutdeild sinni í Evrópu á síðasta ári eða 4,3%. Kia bætti þar með enn árangur sinn á evrópskum mörkuðum frá árinu áður en bílaframleiðandinn var með 3,5% markaðshlutdeild í Evrópu árið 2020. Kia seldi alls 502.677 nýja bíla í Evrópu á síðasta ári sem er aukning um 20,6% frá árinu áður. 21.1.2022 07:00
Í lagi að heita Haffý, Lúgó og Bæssam en ekki Laxdal Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Myrkey, Sólmáni, Haffý, Fjara, Lóley, Lúgó, Jöklar, Brim og Rósmar. Einnig Bæssam, Viola, Chris og Issa. 21.1.2022 06:51
Lögregla ítrekað kölluð út vegna láta og einstaklinga í annarlegu ástandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varði töluverðum tíma í nótt í að sinna útköllum vegna hávaðakvartana og einstaklinga í annarlegu ástandi. 21.1.2022 06:25
Óttast að tugir séu látnir: Flutningabíll og mótorhjól skullu saman Talið er að tugir hafi látist þegar flutningabíll sprakk í loft upp í Gana í Vestur-Afríku fyrr í dag. Í bílnum voru sprengiefni sem nota átti við námugröft. 20.1.2022 23:08