Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ræningi fjögurra ára stúlku færður í hámarksöryggisfangelsi Karlmaður sem rændi Cleo Smith, fjögurra ára gamalli stúlku, úr tjaldi foreldra hennar fyrir tæpum þremur vikum var færður í hámarksöryggisfangelsi í Perth í Ástralíu í dag. Hann hefur reynt að valda sér skaða í fangelsi. 5.11.2021 11:02
Sextán ára og eldri fái örvunarskammt Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, mælir með því að allir sextán ára og eldri fái þriðja skammt bóluefnis. Veita eigi þann skammt sex mánuðum frá grunnbólusetningu gegn Covid-19. 5.11.2021 10:26
UNICEF: Hafnarfjarðarbær tilnefndur til hvatningaverðlauna Tilkynnt verður um sigurvegara 17. nóvember næstkomandi. 5.11.2021 10:14
Bein útsending: Ríkisstjórnin fundar um tillögur Þórólfs Ríkisstjórnin fundar nú fyrir hádegi í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu og verða nýjustu tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um sóttvarnaaðgerðir til umfjöllunar þar. 5.11.2021 10:05
Telja Kóralrifið mikla geta lifað af hlýnun innan við 1,5 gráður Ástralskir vísindamenn telja að samsetning Kóralrifsins mikla undan ströndum Ástralíu muni breytast ef hnattrænni hlýnun verður haldið innan við 1,5°C en að það gæti lifað af. Verði hlýnunin meiri séu dagar þess og annarra kóralrifja á jörðinni taldir. 5.11.2021 10:02
„Skæðasti náriðill Bretlands“ játaði tvö morð og níð á líkum tuga kvenna og stúlkna Breskur maður játaði í gær að hafa myrt tvær konur árið 1987 og að hafa níðst á tugum líka á undanförnum árum. Hinn 67 ára gamli David Fuller er talinn vera skæðasti náriðillinn í sögu Bretlands. 5.11.2021 09:56
Karl Gauti sækir um embætti héraðsdómara Tíu sóttu um tvö embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og Héraðsdómi Suðurlands. 5.11.2021 09:56
Aldrei fleiri greinst smitaðir á einum sólarhring 167 greindust með kórónuveiruna innanlands hér á landi í gær. Aldrei hafa svo margir greinst með veiruna frá upphafi faraldursins í febrúar 2020. 5.11.2021 09:51
Bretar hefja notkun lyfs sem gæti markað þáttaskil í baráttunni við Covid Bretland er fyrsta ríkið til að heimila notkun veirulyfsins molnupiravir gegn Covid-19 en rannsóknir sýna að notkun þess á fyrstu dögum sýkingar helmingar áhættuna á sjúkrahúsinnlögn og dauða af völdum SARS-CoV-2. 5.11.2021 09:15
Nýr ákærudómstóll skoðar sönnunargögn í máli Trump Saksóknarar í New York hafa kallað saman nýjan ákærudómstól sem á að leggja mat á sönnunargögn í rannsókn á mögulegum brotum fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. 5.11.2021 09:05
Býst við enn fleiri smitum eftir gærdaginn Sóttvarnalæknir segist reikna með að fleiri hafi greinst smitaðir af kórónuveirunni í gær en í fyrradag þegar fjöldi smitaðra á einum degi var sá þriðji hæsti frá upphafi faraldursins. Grípa þurfi til aðgerða hvort sem fólki líkar betur eða verr. 5.11.2021 08:16
Segja ómannúðlegt að vera tekinn af lífi samdægurs Tveir fangar á dauðadeild hafa sótt mál gegn japönskum stjórnvöldum vegna framkvæmdar á dauðarefsingunni. Málið snýst þó ekki um aftökuna sjálfa, þar sem menn eru hengdir, heldur að boðað sé til hennar samdægurs. 5.11.2021 07:57
Andersson tekin við sem formaður af Löfven Magdalena Andersson, fjármálaráðherra Svíþjóðar, var í gær kjörin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins á landsþingi flokksins í Gautaborg. Hún tekur við embættinu af Stefan Löfven sem tók á sínum tíma við stöðunni af Håkan Juholt árið 2012. 5.11.2021 07:48
Ríkisstjórnin fundar fyrir hádegi og ræðir tillögur Þórólfs Ríkisstjórnin hittist á fundi nú fyrir hádegið þar sem farið verður yfir nýjustu tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis að viðbrögðum við kórónuveirufaraldrinum. 5.11.2021 07:43
Þjóðskjalasafn segir þörf á átaki í varðveislu rafrænna gagna hjá Þjóðkirkjunni Um 70 prósent prestakalla skrá ekki niður erindi sem þeim berast og þá er átaks þörf í vörslu rafrænna gagna hjá prestaköllum en ekkert prestakall hefur tilkynnt notkun á rafrænu gagnasafni. 5.11.2021 07:35
Lægð kemur úr suðvestri í nótt með hvassviðri og úrkomu Veðurstofan spáir vestanátt, stöku skúrir vestantil og él fyrir norðan. Eftir hádegi dregur svo úr úrkomu og vindi. 5.11.2021 07:13
MAST varar enn við tínslu og neyslu kræklings í Hvalfirði Matvælastofnun varar áfram við tínslu og neyslu á kræklingi úr Hvalfirði, þar sem DSP þörungaeitur greindist yfir viðmiðunarmörkum í síðustu mælingum. Leiddu þær í ljós að DSP þörungaeitur var 440 µg/kg en fyrir mánuði mældist það 1150 µg/kg. 5.11.2021 07:06
Hyundai með flestar nýskráningar í október Alls voru 122 Hyundai bifreiðar nýskráðar, það voru flestar nýskráningar allra framleiðenda. Toyota var í öðru sæti með 84 eintök nýskráð og Volvo í þriðja sæti með 71 eintak. Alls voru nýskráð 1020 ökutæki í október, þar af 788 fólksbifreiðar, samkvæmt opinberum tölum á vef Samgöngustofu. 5.11.2021 07:00
Evrópa aftur orðin miðpunktur kórónuveirufaraldursins Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að Evrópa sé enn á ný orðinn miðpunktur kórónuveirufaraldursins en smitum fer nú mjög fjölgandi í flestum ríkjum. 5.11.2021 06:54
Stunginn í kjölfar slagsmála Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slagsmál í miðborginni í gærkvöldi eða nótt. Þegar lögregla kom á vettvang voru allir farnir en nokkru seinna var tilkynnt um einstakling sem hafði verið stunginn. 5.11.2021 06:31
Skotvís biðlar til veiðimanna um að hafa rjúpuna í forrétt Skotveiðifélag Íslands hyggst beina þeim tilmælum til veiðimanna að virða tillögur Náttúrufræðistofnunar Íslands um hæfilegar rjúpnaveiðar og veiða rjúpuna í forrétt, frekar en aðalrétt. 5.11.2021 06:21
Biden keikur þrátt fyrir kosningahremmingar demókrata Joe Biden Bandaríkjaforseti segir enga ástæðu til að örvænta þó að samflokksfólk hans í Demókrataflokknum hafi átt misjöfnu gengi að fagna í kosningum sem fóru fram í vikunni. 5.11.2021 06:00
Viðbyggingar og sameiginlegur unglingaskóli meðal hugmynda í skólamálum Laugarnes- og Langholtshverfis Þrjár sviðsmyndir um framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi voru kynntar fyrir borgarráði Reykjavíkur í dag. 4.11.2021 23:37
„Kolefnisþakið“ springur á ellefu árum Haldi mannkynið áfram núverandi losun gróðurhúsalofttegunda tekur það aðeins ellefu ár þar til uppsafnaður styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum veldur meiri en 1,5°C hlýnun á jörðinni. Losun er nú komin nær alveg í fyrra horf eftir mikinn samdrátt í kórónuveiruheimsfaraldrinum. 4.11.2021 23:31
Loka skólum og stofnunum í Suðurnesjabæ vegna Covid-smita Aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar hefur ákveðið að loka skólum og stofnunum vegna Covid-19-smita sem hafa greinst á meðal starfsfólks á leikskóla og nemenda í grunnskólanum. Lokanirnar eiga að koma í veg fyrir frekari dreifingu veirunnar. 4.11.2021 22:21
Telur óbreyttar aðgerðir á landamærum dýrkeypt mistök Ákvörðun stjórnvalda um að halda sóttvarnaaðgerðum á landamærum Íslands óbreyttum áfram eru dýrkeypt mistök efnahagslega, að mati framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir að skimun á landamærunum geti dregið úr eftirspurn eftir ferðum til Íslands um 10-20 prósent. 4.11.2021 21:49
„Ég er ekki tilbúin til að smitast. Ég vil frekar halda jól með fjölskyldunni“ Skagamenn og -konur virðast taka sprengingu í Covid-tilfellum í bænum með stóískri ró og æðruleysi ef marka má bæjarbúa sem fréttastofa hitti á förnum vegi í dag. 4.11.2021 21:30
Neyðarkallinn orðinn að safngrip Forseti Íslands var hífður af þilfari björgunarskips upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar í dag þegar björgunarsveitir hófu formlega sölu neyðarkalls sveitanna með sérstakri sjóbjörgunaræfingu. 4.11.2021 21:01
Færri atvinnulausir og styttri vinnutími en í fyrra Um 8.500 manns voru að meðaltali án atvinnu á þriðja ársfjórðungi þessa árs, samkvæmt tölum frá Hagstofu. Það jafngildir um 4% af heildarvinnuafli 16 til 74 ára. Á sama tíma í fyrra voru um 12.000 einstaklingar atvinnulausir, eða um 5,8%. 4.11.2021 20:30
Lagfæringar á Fossvogsskóla taldar kosta rúma 1,6 milljarða íslenskra króna Áætlað er að kostnaður við lagfæringar og endurbætur á Fossvogsskóla nemi meira en 1.640 milljónum króna. Borgarráð samþykkti heimild til útboðs á framkvæmdunum í dag. 4.11.2021 20:17
Bændur munu taka DNA sýni úr öllum kvígum Kúabændur munu þurfa að taka DNA sýni úr öllum kvígum frá næstu áramótum vegna erfðamengisúrvals í nautgriparækt. Tilgangur verkefnisins er að fá betri mjólkurkýr fyrr í fjósin hjá bændum. Í dag eru um fimm hundruð kúabú í landinu og hefur þeim fækkað mikið síðustu ár. 4.11.2021 20:16
Stjórn Eflingar biður um frið frá fjölmiðlum Agnieszka Ewa Ziółkowska var á stjórnarfundi Eflingar í dag skipuð formaður félagsins til bráðabirgða fram að aðalfundi félagsins næsta vor. Stjórn félagsins er að öðru leyti þögul sem gröfin um næstu skref innan Eflingar og biður fjölmiðla að láta sig í friði. 4.11.2021 19:30
Viðskiptavinir Bónuss hvattir til að nota grímu Framkvæmdastjóri verslanakeðjunnar Bónuss hvetur viðskiptavini til þess að nota grímu í verslunum í ljósi mikilla óvissa vegna fjölgunar kórónuveirusmita í samfélaginu. Sóttvarnalæknir hefur skilað ráðherra minnisblaði um hertar sóttvarnaaðgerðir. 4.11.2021 19:02
Skiljanlegt að einhverjir séu ekki sáttir við breytinguna Breytingar hafa verið tilkynntar á greiðsluskrá Strætó síðar í mánuðinum en bæði er þar um að ræða hækkanir á verði og lækkanir. Framkvæmdastjóri Strætó segist skilja að allir séu ekki á eitt sáttir við breytinguna en segir að breytta gjaldskráin bjóði upp á aukinn sveigjanleika. 4.11.2021 19:00
Umræðan geti haft djúpstæð áhrif á þolendur en líka verið valdeflandi Afleiðingar kynferðisofbeldis geta komið fram eftir opinbera umræðu um ofbeldið. Þetta segir Ragna Björg Guðbrandsdóttir, teymisstjóri Bjarkarhlíðar. Dæmi séu um að þolendur missi einbeitingu, svefn og matarlyst. Umræðan geti engu að síður verið valdeflandi fyrir þolendur. 4.11.2021 18:35
Starfsemi Myllubakkaskóla flutt á fjóra staði Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í dag að leggja nítján milljónir króna í að flytja starfsemi Myllubakkaskóla á fjóra staði í bænum tímabundið á meðan unnið er á úttekt á húsnæði hans. Myglu varð fyrst vart í skólanum árið 2019 og hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana síðan. Þær aðgerðir hafa ekki skilað tilætluðum árangri, því enn greindist mygla í skólanum í síðasta mánuði. 4.11.2021 18:20
COVID-19 w Akranes. Pięćdziesiąt nowych zakażeń i zamknięte szkoły W raporcie policji z zachodniej Islandii poinformowano, że wczoraj w Akranes Covid-19 zdiagnozowano u pięćdziesięciu osób. W związku z tym, wszystkie szkoły w mieście będą jutro zamknięte. 4.11.2021 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Allt bendir til að heilbrigðisráðherra grípi til sóttvarnatakmarkana eftir ríkisstjórnarfund á morgun vegna mikillar aukningar á útbreiðslu kórónuveirunnar í þjóðfélaginu. Aldrei hafa fleiri greinst utan sóttkvíar og í gær frá upphafi faraldurins. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 4.11.2021 18:03
Ísfirðingar komast langleiðina að Dynjanda á bundnu slitlagi Nýr vegarkafli í Arnarfirði með bundnu slitlagi var opnaður umferð eftir hádegi í dag. Hann er 4,3 kílómetra langur milli Mjólkárvirkjunar og fossins Dynjanda. Vegurinn um Meðalnes og Mjólkárhlíð færist við þetta úr fjallshlíðinni og niður undir fjöruborð. 4.11.2021 17:45
Można spodziewać się kolejnych obostrzeń Minister zdrowia Svandís Svavarsdóttir oczekuje, że jeszcze dziś otrzyma memorandum od epidemiologa, w sprawie dalszych działań związanych z ograniczeniem rozprzestrzeniania się koronawirusa. 4.11.2021 17:40
Agnieszka tekur við af Sólveigu Önnu Stjórn Eflingar kaus Agnieszku Ewu Ziólkowsku til að taka við embætti formanns stéttarfélagsins af Sólveigu Önnu Jónsdóttur sem sagði af sér á sunnudagskvöld. Formanns- og stjórnarkosningar verða haldnar fyrir lok mars. 4.11.2021 17:23
Poważne dyskusje o kotach w Akureyri Podczas wczorajszego posiedzenia rady miasta w Akureyri omawiano temat swobodnego przemieszczania się kotów na terenie gminy. 4.11.2021 17:20
Átta hjá héraðssaksóknara greindust smitaðir af Covid Átta starfsmenn héraðssaksóknara greindust smitaðir af kórónuveirunni um helgina. Fjöldi starfsmanna hefur verið settur í smitgát og fresta hefur þurft nokkrum dómsmálum vegna stöðunnar. Lágmarksfjöldi starfsmanna stendur nú vaktina á skrifstofu embættisins við Skúlagötu. 4.11.2021 17:01
Lögreglan leitar Gunnars Svans Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gunnari Svani Steindórssyni, 43 ára karlmanni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 4.11.2021 16:25
Handtóku einn af heimildarmönnum Steele-skýrslunnar um Trump Alríkislögregumenn handtóku í dag greinanda sem safnaði gögnum sem notuð voru í að skrifa umdeilda skýrslu um möguleg tengsl Donalds Trump, fyrrverandi forseta, við yfirvöld í Rússlandi. 4.11.2021 16:00