Fleiri fréttir

Dæmt hefur verið í 105 málum

Dæmt hefur verið í 105 málum í héraði af þeim málum sem sérstakur saksóknari hefur ákært í frá því að embættið var stofnað í byrjun árs 2009.

Gasmengun um allt norðanvert landið

Gasmengunar frá gosinu getur orðið vart um allt norðanvert landið, eða allt frá Austfjörðum vestur á firði og inn á Breiðafjörðinn.

Kafbáturinn enn ófundinn

Sænski herinn leitar enn að mögulegum kafbát í skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm en nú eru sex dagar liðnir frá því leitin hófst.

Sömu mistök og gerð voru fyrir hrunið

Horfur í íslensku efnahagslífi eru bjartari en þær hafa verið mjög lengi að mati hagdeildar ASÍ. Stjórnvöld séu þó að gera sömu mistökin og gerð voru fyrir hrun.

Situr beggja vegna borðs í skiptum við Gámaþjónustu

Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Ölfuss, á hlut í fyrirtækinu Gámaþjónustunni. Ölfus neitaði að afhenda gögn í útboði sem Gámaþjónustan fékk. "Afar óheppilegt,“ segir lögfræðingur Sambands sveitarfélaga.

Styrktarkeppni fyrir Brynju Hlíf

Vélhjólaíþróttafélagið VÍK hefur ákveðið að setja á laggirnar styrktarkeppni fyrir Brynju Hlíf sem slasaðist alvarlega í mótorkrossslysi í Noregi á þriðjudaginn í seinustu viku.

Aðeins sex eftir í heiminum

Aðeins sex hvítir nashyrningar frá norðurhluta Afríku eru eftir í heiminum eftir að Suni, 34 ára karldýr í Kenía, drapst í vikunni.

Alger óvissa ríkir um framtíð neyðarbrautarinnar

Alger óvissa ríkir um framtíð norðaustur, suðvestur flugbrautar Reykjavíkurflugvallar sem til stóð að loka um síðustu áramót. Ekki er samstaða í ríkisstjórn um framtíð flugbrautarinnar og hagsmunir innanlandsflugsins og byggingarfélagsins Valsmanna togast á.

Óttast aukinn kostnað við nám

Mikilvægt er að aldurinn komi ekki í veg fyrir að fólk komist í framhaldsskóla. Þetta segir þrjátíu og þriggja ára framhaldsskólanemi sem efast um að hafa efni á námi verði aðgengi þeirra sem eldri eru að skólunum takmarkað.

Kafbátar í íslenskri landhelgi yrðu að vera sýnilegir ofansjávar

Kafbátar verða að sigla ofansjávar og hafa fána sinn uppi þegar þeir sigla í landhelgi annarra ríkja. Sérfræðingur í hafrétti segir að sænsk stjórnvöld geti beitt kafbát í landhelgi Svíþjóðar vopnavaldi, sinni hann ekki tilmælum um að fara úr landhelginni.

Fimm dauðsföll vegna MDMA

Hægt er að rekja dauðsföll fimm íslenskra ungmenna til eiturlyfsins MDMA frá aldamótum, en efnið er vinsælt í íslensku skemmtanalífi um þessar mundir. Rúmlega hundrað sjúklingar lögðust inn á Vog vegna MDMA-fíknar á síðasta ári.

Dýrkeypt djamm Verzlinga

Pöntuðu sér Hummer-limmósínu áður en þeir héldu út til Ítalíu í listaferð.

Segir Hraunið algjöra lágkúru

Friðrik Erlingsson rithöfundur segir RÚV hafa svikið hverja kynslóðina á fætur annarri um almennilegt sjónvarpsefni.

Hrekkjavakan innandyra vegna ísbjarna

„Ímyndið ykkur tólfhundruð börn að ganga á milli húsa og ísbirnir allt um kring," segir maður í bæjarstjórn kanadísks bæjar, sem er sagður umsetinn af ísbjörnum.

Vara við glerhálku

Veðurfræðingur segir að víða á sunnan og vestanverðu landinu muni frysta við jörð undir kvöld.

Reknir úr Verzló fyrir áfengisneyslu

Sextán piltum á fjórða ári í Verzlunarskóla Íslands var í morgun vísað úr Verzlunarskóla Íslands fyrir að hafa neytt áfengis í skólabyggingunni.

Sjá næstu 50 fréttir