Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðbúnaðarstig á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi Viðbúnaðarstig var sett á Reykjavíkurflugvöll á ellefta tímanum í gærkvöldi þegar flugmenn á lítilli tveggja hreyfla vél , sem voru í aðflugi að vellinum, tilkynntu að ljós gæfu til kynna að hjólin hefðu ekki farið tryggilega niður. 5.4.2011 07:17
Uppreisnarmenn í Líbíu flytja út olíu Von er á olíuflutningaskipinu Equador til hafnar í Tobruk í Líbíu í dag en skipið mun lesta þar olíufarm. Um er að ræða fyrsta útflutning á olíu frá Líbíu á vegum uppreisnarmanna en þeir hafa Tobruk á sínu valdi. 5.4.2011 07:15
A fólk hefur hærri laun en B fólkið Það getur verið dýrkeypt að tilheyra svokölluðum B-hópi fólks. Þeir sem tilheyra A-hópnum hafa að meðaltali 7% hærri laun. 5.4.2011 07:02
Taldir hafa misnotað lítinn dreng gróflega Tveir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi, grunaðir um kynferðislega misnotkun á ungum dreng. Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður ofbeldisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 5.4.2011 07:00
Á þriðja tug kvartana sendar út Flugmálastjórn hefur sent frá sér á þriðja tug ákvarðana á þessu ári vegna kvartana neytenda. Kvartanirnar snúast flestar um ágreining flugfarþega við flugfélög um skaðabótaskyldu vegna seinkunar eða aflýsingar, glataðs eða skemmds farangurs og upplýsingaskyldu flugrekanda til farþega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendasamtökunum. 5.4.2011 07:00
Aukakostnaður við fangelsi 584 milljónir Áætlaður aukakostnaður við staðsetningu nýs fangelsis á Hólmsheiði er 26,2 milljónir króna á ári. Sú fjárhæð samsvarar 584 milljónum króna yfir nýtingartíma fangelsisins, fjörutíu ár, núvirt. Sú fjárhæð hækkar eftir því sem staðsetning fangelsisins fjarlægist höfuðborgarsvæðinu. 5.4.2011 06:00
Vilja afnema tvöfalt kerfi slitastjórna og -nefnda Sex þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram frumvarp um afnán skilanefnda fyrir viðskiptabankana sem fóru í þrot við hrunið. Verkefni skilanefndanna færist til slitastjórna 1. september verði frumvarpið samþykkt. 5.4.2011 06:00
Ætlar að safna milljarði dala Barack Obama og Joe Biden tilkynntu í gær að þeir ætluðu að gefa kost á sér til annars kjörtímabils sem forseti og varaforseti Bandaríkjanna. 5.4.2011 06:00
Segir þrjá kosti í stöðunni eftir skipunina Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skipaði í gær Sigríði J. Friðjónsdóttur, saksóknara Alþingis, í embætti ríkissaksóknara. Sigríður hefur undanfarið verið í leyfi frá starfi sínu sem vararíkissaksóknari. 5.4.2011 05:00
Þokast áleiðis í kjaraviðræðum „Við erum að tala okkur nær hver öðrum. Það er enginn búinn að hafna neinu eða samþykkja neitt,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, um ganginn í kjaraviðræðum SA og ASÍ. 5.4.2011 05:00
Fjórðungur lifir Hlutfall þeirra sem útskrifast af Landspítala eftir hjartaendurlífgun er með því hæsta sem gerist í heiminum. Frá þessu var greint á Vísindaþingi skurð-, svæfingar- og gjörgæslulækna um síðustu helgi. 5.4.2011 05:00
Reynt að ná flakinu upp Allt að mánuður getur liðið þangað til hægt verður að hefja vinnu við að ná flaki franskrar Airbus-farþegaþotu af botni Atlantshafsins, þar sem það hefur legið á 3.900 metra dýpi síðan vélin hrapaði í júní 2009. 5.4.2011 04:00
Vopnað rán í Breiðholti: Hann var með hnífinn á lofti „Hann hefur fengið einhverja hundrað kalla upp úr þessu," segir Gunnar Gunnarsson, eigandi Söluturnins Hraunberg í Breiðholti. Grímuklæddur maður ógnaði starfsfólki með hnífi og heimtaði peninga úr afgreiðslukassa um klukkan sjö í kvöld. 4.4.2011 22:59
Viðbúnaður á Reykjavíkurflugvelli í kvöld Viðbúnaður var Reykjavíkurflugvell í kvöld þegar kviknaði á ljósi í tveggja hreyflaflugvél sem gefur til kynna að bilun sé í hjólabúnaði. 4.4.2011 22:31
Harma að taflborðið hafi verið selt úr landi Skáksamband Íslands harmar að einstakir munir úr einvígi aldarinnar 1972 gangi kaupum og sölum og séu jafnvel seldir úr landi, segir í tilkynningu frá sambandinu. 4.4.2011 21:46
Réttað yfir hryðjuverkamönnum á Kúbu Réttarhöldin yfir Kahlid Sheikh Mohammed, sem hefur viðurkennt að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin í september árið 2001, fara fram í herdómstóli í Guantanamó á Kúbu. 4.4.2011 21:26
Austurstræti verður göngugata - framkvæmdir hafnar Framkvæmdir eru hafnar við að breyta Austurstræti, milli Lækjargötu og Pósthússtrætis, í göngugötu. Ásýnd strætisins breytist nokkuð því grænu stálpollarnir sem liggja eftir endilöngu strætinu við núverandi bílastæði verða fjarlægðir og skapast þar svigrúm fyrir mannlífið í götunni. Trén í götunni verða þar áfram. Við Lækjargötu verður lokað fyrir umferð inn í Austurstræti og járnhliðið sem þar stendur verður fjarlægt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Ný hellulögn ásamt snjóbræðslu kemur fyrir framan endurgerðu húsin Austurstræti 22 og Lækjargötu 2. Þá verður hellulögnin á gatnamótum Austurstrætis og Lækjargötu endurnýjuð, en þar hefur bílaumferð markað djúpar lægðir í götuna. Meðan unnið verður við gatnamótin verður þeim haldið opnum fyrir bílaumferð með einni akrein í hvora átt. Endurnýjun gatnamótanna verður lokið fyrir páska, en verklok verksins í heild er 16. maí. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflun vegna framkvæmdanna, en eru jafnframt beðnir um að sýna aðgát og virða afmörkun vinnusvæða. 4.4.2011 14:18
Borðtennisprestur á pall með syni sínum Feðgarnir séra Hjörtur Magni Jóhannsson 52 ára og Magnús Jóhann Hjartarson 12 ára, státa báðir af Íslandsmeistaratitli í einliðaleik í borðtennis. Magnús Jóhann, nemandi í Fossvogsskóla, varð íslandsmeistari í flokki 12 til 13 ára um síðustu helgi, auk þess sem hann varð í þriðja sæti í tvíliðaleik. Faðir hans, Fríkirkjupresturinn Hjörtur Magni, vann síðan titilinn Íslandsmeistari í flokki karla 50 til 59 ára á laugardaginn, og landaði einnig þriðja sætinu í tvíliðaleik. 4.4.2011 06:00
Sýra fannst í þurrfóðri Ákveðið hefur verið að innkalla Iceland Pet þurrfóður vegna ábendinga frá Matvælastofnun. Í tveimur sýnum af fóðrinu fannst cyanuric sýra í litlu magni. 4.4.2011 20:27
Slitnaði ekki upp úr kjaraviðræðunum - haldið áfram á morgun "Nei, það gerðist ekki. Við ákváðum að halda þræðinum en þetta er allt saman mjög viðkvæmt," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins. 4.4.2011 20:09
Uppreisnarmenn reyndu að brjóta sér leið inn í Brega Bardagar í Líbíu halda áfram að vera ruglingslegir. Uppreisnarmenn reyndu að brjóta sér leið inn í borgina Brega í dag, en liðsmenn Moammars Gaddafis veittu harða mótspyrnu. 4.4.2011 19:53
Bakslag komið í kjaraviðræður Minnstu munaði að slitnaði upp úr viðræðum Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambandsins í dag vegna kröfu ASÍ um 200 þúsund króna lágmarkslaun. SA kom til móts við þessa kröfu síðdegis með því skilyrði að tiltekin hagvaxtaspá gangi eftir og að ríkisstjórnin komi að samningunum með þeim hætti sem aðilar vinnumarkaðarins telja að geti stuðlað að fjölgun starfa. 4.4.2011 19:12
Fíkniefnasalar handteknir Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í austurborginni í gær eftir að lögreglan stöðvaði þar ökutæki. Hjá þeim fundust fíkniefni en mennirnir voru einnig með nokkuð af peningum í fórum sínum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. 4.4.2011 19:00
Ungt fólk trúir því að neysla kannabis sé skaðlaus Kannabisneysla meðal íslenskra ungmenna hefur færst í aukana og þá sérstaklega neysla á marijúana. 4.4.2011 18:53
Íbúar gætu verið bótaskyldir fjúki ruslatunnurnar Íbúar Reykjavíkur sem kjósa að færa ruslatunnur sínar út að götu á sorphirðudegi eiga á hættu að verða bótaskyldir ef tunnurnar fjúka til í roki. Tryggingafélögin segja flækjustigið mikið og óttast að fjöldi slíkra mála berist. 4.4.2011 18:45
Ríkisstjórnin fundar á Ísafirði Ríkisstjórnarfundur verður haldinn á Ísafirði á morgun og verður það í fyrsta skipti sem ríkistjórn Íslands fundar á Vestfjörðum. 4.4.2011 18:19
Þrettán líkamsárásir um helgina Þrettán líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Átta þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags. Líkamsárásirnar voru flestar minniháttar og mestmegnis voru þetta pústrar. 4.4.2011 17:51
Fundu gras og amfetamín Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann amfetamín og marijúana við húsleit í íbúð í Breiðholti á föstudag. Einnig var lagt hald á ýmsa muni sem grunur leikur á að séu þýfi. Tveir karlar og ein kona voru handtekin í þágu rannsóknarinnar en fólkið er allt á þrítugsaldri. 4.4.2011 17:26
Sigríður skipuð ríkissaksóknari Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefur skipað Sigríði J. Friðjónsdóttur vararíkissaksóknara í embætti ríkissaksóknara. Hún tekur við embættinu af Valtý Sigurðssyni. 4.4.2011 17:23
Fékk greiddar fjórar milljónir fyrir mistök Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann til að endurgreiða 4 milljónir króna sem voru greiddar fyrir mistök inn á reikning hans í Kaupþingi um miðjan desember 2008. 4.4.2011 17:00
Engin lausn að velja óumdeildan mann Stefán Einar Stefánsson, guðfræðingur, mun taka við starfi formanns VR, eins öflugasta verkalýðsfélags landsins, seinna í mánuðinum. Hann varð hlutskarpastur sjö frambjóðanda í formannskjöri félagsins en úrslit voru kynnt í síðustu viku. 4.4.2011 16:30
Tíu fórust í flugslysi Að minnsta kosti tíu fórust þegar flugvél hrapaði við flugvöllinn í Kinshasa í Kongó í dag. Vélin var á vegum Sameinuðu þjóðanna og brotnaði hún í tvennt þegar hún brotlenti á flugbrautinni að því er vitni segja í samtali við BBC. Vélin mun hafa verið að koma frá norðausturhluta landsins en óljóst er enn hvað olli slysinu. Að minnsta kosti 16 slösuðust að því er fram kemur hjá Reuters. 4.4.2011 16:22
Fyrrverandi ráðherrum hótað Rannsóknarlögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu rannsaka nú hótunarbréf sem barst á ritstjórnarskrifstofur DV. Í bréfinu er fyrrverandi stjórnmálamönnum, sem flestir eiga það sameiginlegt að hafa tjáð sig á jákvæðum nótum um Icesave samningana, hótað með þeim hætti að þeim er ráðlagt að fá sér lífverði. 4.4.2011 15:54
Allir gegnumlýstir en engir vindsokkar Helstu áhættuþættir í flugi á Íslandi eru tengdar hinu opinbera, að mati fráfarandi formanns Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Í fréttabréfi FÍA segir Kári Kárason flugstjóri frá því sem hann kallar miskunnarlausan niðurskurð í flugmálum. 4.4.2011 15:50
Harmleikur hjá fjölskyldu Bubba Bubbi Morthens tónlistarmaður greinir frá því að Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, eiginkona hans, hafi fætt andvana barn á dögunum. Þau komust að því þegar að þau fóru í 20 vikna sónar að barnið væri látið. Þegar þau fóru í tólf vikna sónar blasti lítið kríli við. Gleðin og þakklætið var mikið og þau hjónin pældu í nafni. 4.4.2011 15:04
Undirbúa viðbrögð við stórslysi Viðbrögð við rútuslysi verða æfð næsta laugardag þegar stórslysaæfing læknanema verður haldin við slökkviliðstöðina í Hafnarfirði. Þar verður sett á svið slys þar sem hvert námsár hefur sitt hlutverk. 4.4.2011 14:49
Kynningarbæklingurinn borinn út Íslandspóstur hóf í morgun að bera út kynningarbækling Lagastofnunar Háskóla Íslands vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana á laugardaginn. Gert er ráð fyrir að bæklingurinn berist inn á meira en helming heimila landsins í dag og að verkinu ljúki á morgun. 4.4.2011 14:13
Svanur varð fyrir flugvél Dash-flugvél frá Flugfélagi Íslands hæfði svan á flugi við flugtak frá Ísafjarðarflugvelli í gærmorgun með þeim afleiðingum að svanurinn féll særður til jarðar. Fram kemur á fréttavef Bæjarins besta að svanurinn var dauður þegar starfsmenn Ísafjarðarflugvallar komu að honum. Flugvélin skemmdist ekki og hélt áfram ferð sinni til Reykjavíkur. Að sögn starfsmanns Flugfélags Íslands á Ísafirði er það sem betur fer afar sjaldan að svo stórir fuglar rekist á flugvélar. 4.4.2011 14:01
Konur sópa að sér bókmenntaverðlaunum Konur eru handhafar allra helstu bókmenntaverðlauna landsins fyrir fagurbókmenntir auk bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ragnheiður Gestsdóttir var sú sjötta í röð skrifandi kvenna til að hljóta verðlaun og fagnar því hvað konur eru sterkar á ritvellinum. 4.4.2011 13:21
Gunnar fær 300 þúsund krónur vegna meiðyrða Þórarinn Hjörtur Ævarsson hefur verið dæmdur til að greiða Gunnari I. Birgissyni 300 þúsund krónur í bætur vegna ummæla í grein sem hann skrifaði í Morgunblaðíð þann 14. júní 2009. Yfirskrift greinarinnar var "Áskorun til Gunnars Birgissonar frá sjálfstæðismanni." Gunnar taldi að ummæli í greininni hafi verið til þess fallin að sverta ímynd sína og valda honum verulegum mannorðshnekki. Hann krafðist því einnar milljónar króna í bætur og að tiltekin ummæli yrðu dæmd dauð og ómerk. 4.4.2011 12:58
Norðmenn halda til sjóræningjaveiða Norðmenn ætla að blanda sér í baráttuna við sjóræningja undan ströndum Sómalíu með afgerandi hætti. Þeir ætla að senda fjögurra hreyfla Orion eftirlitsflugvél til Afríku en það eru fullkomnustu eftirlitsvélar sem völ er á. 4.4.2011 12:33
Sparkaði í höfuð lögreglumanns Karlmaður sparkaði í höfuð lögreglumanns þegar að verið var að handtaka hann í Hveragerði aðfaranótt sunnudagsins. Það var rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt sunnudags að óskað var eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna átaka tveggja ölvaðra manna á heimili í Hveragerði. 4.4.2011 12:14
Vonast eftir samningum áður en vikan er liðin Aðilar vinnumarkaðarins munu í dag eða á morgun kynna stjórnvöldum breytingartillögur við útspili stjórnvalda frá því fyrir helgi. Vonast er til að nýr kjarasamningur til þriggja ára liggi fyrir áður en vikan er liðin, þar sem almennar launahækkanir verði yfir átta prósent á samningstímanum. 4.4.2011 11:58
Helmingur þjóðarinnar ánægður með Ólaf Ragnar Helmingur landsmanna er ánægður með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, samkvæmt nýrri viðhorfskönnum.Tæpur þriðjungur er hvorki ánægður né óánægður með störf forsetans. Í könnun MMR á ánægju almennings með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, kom í ljós að 17,0% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar voru mjög ánægðir með störf hans og 33,0% aðspurðra voru frekar ánægðir. Tæplega þriðjungur aðspurða sögðust hvorki ánægðir né óánægðir með störf forsetans. 11,7% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðust frekar óánægðir og 8,1% voru mjög óánægðir með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Mikill munur var á afstöðu eftir aldri, búsetu, stjórnmálaskoðun og stuðning við ríkisstjórnina. Ánægja með störf forsetans minnkar með hækkandi aldri. Þannig voru 59,2% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar í aldurshópnum 18-29 ára ánægðir með störf forsetans borið saman við 50,8% á aldrinum 30-49 ára og 40,4% á aldrinum 50-67 ára. Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar og búa á landsbyggðinni sögðust 54,2% ánægðir með störf forsetans borið saman við 47,5% sem búa á höfuðborgasvæðinu. Þá voru 75,1% þeirra sem sögðust kjósa Framsóknaflokkinn, ef kosið yrði nú, ánægðir með störf forsetans samanborið við 54,1% sjálfstæðismanna, 39,2% sem sögðust kjósa Vinstri græna og 24,3% stuðningsfólks Samfylkingarinnar. Af þeim sem styðja ríkisstjórnina sögðust 32,7% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar ánægðir með störf forsetans borið saman við 58,0% sem ekki styðja ríkisstjórnina. Sjá nánar á vef MMR. 4.4.2011 11:53
Þakhluti rifnaði af Boeing þotu Skelfing greip um sig meðal farþega í Boeing 737-300 þotu í Bandaríkjunum um helgina þegar hluti af þaki hennar rifnaði af. Vélin var á leið frá Phoenix til Sakramento með 123 farþega innanborðs. Farþegarnir sem voru næst gatinu segjast hafa séð í bláan himininn. 4.4.2011 11:07