Fleiri fréttir

Menn Gaddafis vinna á - stefna á Benghazi

Hermenn hliðhollir Gaddafi einræðisherra í Líbíu hafa síðustu daga unnið á gegn uppreisnarmönnum í austurhluta landsins og segja fréttamenn á staðnum að borgin Zawya vestur af höfuðborginni Trípólí sé nú fallin í hendur þeirra, eftir margra daga loftárásir.

Löggan stöðvaði bjórkvöld hjá menntskælingum í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði veitingastað í Kópavogi upp úr miðnætti, þar sem hátt í 80 ungmenni voru að skemmta sér og var töluverð ölvun, að sögn lögreglu. Sumir gestanna voru allt niður í 16 ára, en 18 ára og yngri mega ekki vera á veitingastöðum eftir klukkan tíu á kvöldin.

Ferðalögin kosta 217 þúsund krónur á dag

Kostnaður skattgreiðenda við hvern dag sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var erlendis í fyrra var um 217 þúsund krónur samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins. Árið áður var meðaltalskostnaðurinn 163 þúsund fyrir hvern dag.

Skotárás í Kaupmannahöfn: Einn látinn og tveir slasaðir

Nítján ára gamall maður var skotinn til bana og tveir eru sárir eftir skotárás í Husum, úthverfi Kaupmannahafnar í gærkvöldi. Að sögn lögreglu keyrði svartur lúxusbíll, sennilega af Audi gerð, upp að fjórum ungum mönnum stem stóðu á gangstétt. Skyndilega stöðvaði bíllinn og farþegarnir hefja skothríð á mennina fjóra með sjálfvirkum byssum.

Tíu metra flóðbylgja skall á hafnarbæ

Tíu metra há flóðbylgja skall á hafnarbænum Sendai á norðausturströnd Japans í kjölfar hins öfluga skjálfta sem reið yfir í morgun undan ströndum Japans. Fréttamyndir sýna að bylgjan hefur hrifið með sér bíla og hús og miklir eldar loga í olíubirgðastöð við höfnina. Fyrstu fregnir hermdu að skjálftinn væri um 7,9 stig en nú hefur verið staðfest að hann mældist 8,9 stig. Engar fregnir hafa borist af manntjóni en nokkrir slösuðust í Tókíu þegar þak á skólabyggingu gaf sig.

ESB-ríki ákveða sjálf kvóta í staðbundnum fiskistofnum

Aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) geta ákvarðað einhliða hámarksafla úr stofnum sem eru alfarið nýttir af viðkomandi ríki, í stað þess að tekin sé sameiginleg ákvörðun í ráðherraráðinu eins og átt hefur við hingað til. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð ESB um sameiginlega fiskveiðistjórnun og gæti haft áhrif á stöðu Íslands, komi til aðildar að sambandinu.

Öflugur skjálfti undan ströndum Japans - flóðbylgjuviðvörun gefin

Öflugur jarðskjálfti, 8,8 á richter-kvarðanum, reið yfir norðausturströnd Japans í morgun.Byggingar í höfuðborginni Tókíó skulfu í nokkrar mínútur og fólk þusti út á götur borgarinnar en engar fregnir hafa borist af manntjóni. Flóðbylgjuviðvörun var gefin út fyrir stórt svæði og gæti bylgjan orðið allt að sex metra há en viðvörunin gildir fyrir Japan, Rússland, Guam, Tæwan og Fillipseyjar. Einnig hefur viðvörun verið gefin út fyrir Indónesíu og Hawaí.

Óeðlilega lítill tími til stefnu

Þeir sem koma að fyrirhuguðum breytingum á skólastarfi í Reykjavík eiga að skila inn umsögnum vegna tillagna fyrir 25. mars næstkomandi.

Ætla ekki að vinna með ESB

Bændasamtökin ætla ekki að taka fulltrúa sinn úr samningahópi um landbúnaðarmál í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, ESB. Þetta segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna.

Vilja afnema hverfisskiptinguna

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra tók í gær við undirskriftalista frá tíundu bekkingum þar sem skorað er á hana að afnema hverfaskiptingu í framhaldsskólum. Rakel Ýr Birgisdóttir, nemandi í 10. bekk í Laugalækjarskóla, safnaði ásamt félögum sínum um þúsund undirskriftum meðal jafnaldra þeirra. Það er um fjórðungur árgangsins.

Gæfa landsins hvað við erum fá

Þegar talið berst að leiðum til að komast út úr kreppunni og búa til störf eru umhverfissjónarmið gjarnan látin mæta afgangi. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lítur á það sem sitt hlutverk að standa vörð um umhverfismálin. Hún hefur staðið í ströngu frá því hún tók við embættinu árið 2009.

Yfirheyrslum fram haldið hér heima

Yfirheyrslur héldu áfram í gær yfir tveimur fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings sem fyrst voru handteknir hér á miðvikudag vegna rannsóknar Serious Fraud Office í Bretlandi á bankanum.

Telja Vaðlaheiðargöng ekki standa undir sér

„Fullyrðingar um að vegatollar standi undir gerð Vaðlaheiðarganga er í besta falli óskhyggja,“ segir í nýútkomnu blaði Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). „Í versta falli eru áhugamenn um gerð ganganna vísvitandi að blekkja stjórnvöld, vitandi að galtómur ríkissjóður mun þurfa að taka á sig verulegan hluta af kostnaðinum,“ segir áfram í blaði FÍB. Þar er ítarlega farið í saumana á áætlunum um kostnað, umferð og tekjur vegna Vaðlaheiðarganga.

Auknar kvaðir gætu verðfellt bújarðir

Magnús Leopoldsson fasteignasali deilir ekki þeirri skoðun með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að gildandi jarðalög séu ógn við matvælaöryggi í landinu og aftri nýliðun í bændastétt.

Hnífamaður tekinn í miðborginni

Karlmaður um fimmtugt ógnaði fólki með hnífi í miðborg Reykjavíkur kvöld. Lögreglan fékk tilkynningu um málið um áttaleytið. Þegar lögreglan kom á staðinn hafði maðurinn yfirgefið vettvang en hann náðist í nágrenninu. Lögreglan handtók manninn, sem var mjög ölvaður. Hann mun gista fangageymslur í nótt og verður yfirheyrður í fyrramálið. Lögreglan hefur áður haft afskipti af þessum sama manni.

Andlát í World Class: Lét starfsfólk vita af manninum

Gestur líkamsræktarstöðvarinnar World Class lét starfsfólk stöðvarinnar vita rétt fyrir lokun hennar, að enn væri maður eftir inni. Morguninn eftir fannst maðurinn látinn í gufuklefa stöðvarinnar. Öryggisreglur World Class hafa verið yfirfarnar.

Um 10% hafa komið á Vog

Tæplega 10% núlifandi karlmanna hafa komið á sjúkrahúsið Vog, samkvæmt frétt á vef SÁÁ. Þar kemur fram að í árslok 2009 höfðu 20.579 einstaklingar, þar af 5903 konur og 14.676 karlarinnritast á Vog. Þetta jafngildir því að 9,8% núlifandi karla og 4,1% kvenna sem eru 15 ára og eldri hafi komið á Vog.

Týr kom með stálpramma í togi

Týr, varðskip Landhelgisgæslunnar, kom til Reykjavíkur klukkan sex í kvöld með stálpramma í togi sem Landhelgisgæslan hefur svipast eftir um nokkurt skeið. Áhöfn varðskipsins tókst að snara prammann síðdegis í gær eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF fann prammann að nýju.

Sjálfstæðismenn vilja vera með á fundi

Sjálfstæðismenn í borgarráði eru ósáttir við fyrirkomulag funda sem borgarfulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar hafa boðað með foreldrum leik- og grunnskóla. Sjálfstæðismenn segja að til fundarins sé boðað vegna umdeildra tillagna um sameiningu skóla og breytinga á skólastarfi. Fundarboð sem dreif hafi verið í Grafarvogi verði ekk skilið öðruvísi en svo að ekki sé ætlast til þess að borgarfulltrúar annarra flokka sitji fundinn.

Sheen vill 12 milljarða frá Warner Bros

Charlie Sheen hefur stefnt Warner Bros, fyrrverandi vinnuveitanda sínum og Chuck Lorre, framleiðanda Two and a Half Men. Hann krefst 100 milljóna bandaríkjadala í bætur, en Sheen var rekinn úr þáttunum fyrr í vikunni.

Áform um risahöfn við Langanes

Sveitarfélögin á Norðausturlandi hafa kynnt áform um risahöfn á Langanesi, þá langstærstu á Íslandi, til að þjóna siglingum yfir Norðuríshafið. Á hafnarsvæðinu verður boðið upp á lóðir undir olíu- og gasvinnslustöðvar.

Jóhanna vill lækka handhafalaunin

Forsætisráðherra hefur óskað eftir því við Fjársýsluna að greiðslur til hennar sem handhafa forsetavalds verði lækkaðar til samræmis við launalækkun forsetans. Kjararáð hafnaði ósk forsetans á sínum tíma um launalækkun sem síðar samdi við þáverandi fjármálaráðherra um launalækkun.

Látnir lausir gegn tryggingu en fagna í Cannes

Fréttir af handtökum og húsleitum Serious Fraud Office hafa vakið mikla athygli í Bretlandi. Tchenguiz bræður eru stjörnur í samkvæmislífinu og tilkynnti Vincent Tjengí í dag að hann myndi ekki hætta við veislu í snekkju sinni í Cannes - þrátt fyrir að hafa verið handtekinn daginn áður.

Borgarráð framlengi ekki veitingaleyfi

Stjórn Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur styður kröfu nágranna við veitingastaðina Monaco og Monte Carlo á Laugavegi og skorar á borgarráð að mæla ekki með framlengingu veitingaleyfa staðanna.

Stjórnvöld auki ekki á óvissuna

Stjórnvöld verða að hætta að tala og gefa yfirlýsingar sem auka alla óvssi í efnahagslífinu, sagði Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins á iðnþingi í dag.

Dæmdar bætur vegna andláts konu

Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða eiginmanni og tveimur börnum konum sem lést vegna meðgöngueitrunar árið 2001 bætur vegna mistaka sem voru gerð þegar konan fór í glasafrjóvgun og vegna ófullnægjandi meðferðar við meðgöngueitrun sem konan fékk á meðgöngu.

Heathrow-flugvöllur rýmdur

Flugstöðvarbyggingu fimm var lokað á Heathrowflugvelli í dag eftir að grunsamlegur hlutur fannst í byggingunni. Byggingin var rýmd á meðan hluturinn var rannsakaður og voru farþegar spurðir spurninga af lögreglu.

Stór æfing hjá neyðarstjórn Landsnet

Í dag verður neyðarstjórn Landsnets með stóra raunæfingu. Æfðar eru aðstæður þegar alvarlegar truflanir verða á raforkukerfinu bæði á Suðurlandi og á Austurlandi í mjög slæmu veðri.

Rima apótek oftast ódýrast

Rima apótek í Langarima býður oftast lægsta verðið, samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ sem kannaði nýverið verð á ýmsum vörum sem seldar eru í apótekum, svosem snyrtivörum, smokkum og fæðubótarefnum.

Efast um réttmæti sorphirðugjalds

Skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að fá faglegt álit á því hvort heimilt er að krefja fólk um að færa ruslatunnur sínar fyrir losunardag ef þær eru almennt geymdar lengra en fimmtán metrum frá sorphirðubíl. Samkvæmt nýju fyrirkomulagi hjá borginni þarf fólk að greiða 4800 krónur í sorphirðugjald ef ruslatunnur eru lengra í burtu en þessu nemur.

Spaugstofan og Páll Óskar aðstoða Flugfélag Íslands

Fyrirtæki innan Icelandair Group keðjunnar leggja mikið á sig til að vinna keppni sem fer fram á árshátíð félagsins þann 19. mars næstkomandi. Fyrirtækin hafa á undanförnum vikum búið til myndbönd en það myndband sem fær mesta áhorfið vinnur keppnina á árshátíðinni.

Mottumars: Búið að safna á áttundu milljón

„Aðsóknin hefur verið hreint ótrúleg og fyrstu vikuna komu um 100 þúsund manns inn á síðuna. Frá upphafi átaksins í ár hefur síðunni verið flett yfir 1,5 milljón sinnum, enda skemmtilegt að vafra um síðuna og skoða myndir af hressum mottuköppum," segir Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsstjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Nýsköpun rædd á Iðnþingi

Samtök iðnaðarins standa fyrir Iðnþingi 2011 á Grand Hótel Reykjavík í dag. Þar verður fjallað um nýsköpun sem leið til endurreisnar í íslensku atvinnulífi. Til máls á fundinum taka Helgi Magnússon, formaður samtaka iðnaðarins og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra auk fjölda aðila úr atvinnulífinu. Fjallað verður meðal annars um nýsköpun á breiðum grunni út frá þörfum og þjónustu atvinnulífs annars vegar og menntakerfis hins vegar. Þingið hefst klukkan eitt og er opið öllum.

Mjög góður fundur, segir Alcoa

Talsmaður Alcoa á Íslandi segir að fundur stjórnenda Alcoa og Landsvirkjunar í New York í gær um álver á Húsavík hafi verið mjög góður. Engar ákvarðanir hafi þó verið teknar.

Lærðu fljótt að hjálpast að

„Fílarnir hjálpast að við að leysa úr vanda,“ segir Joshua M. Plotnik, breskur sálfræðingur sem stjórnaði rannsókn á fílum. „Þeir virðast tilfinningalega tengdir, svo maður býst við að sjá einhverja samvinnu.“

Hvaða eiginleikum búa leiðtogarnir yfir?

Markaðsrannsóknafyrirtækið MMR hefur kannað álit almennings til persónueiginleika nokkurra stjórnmálaleiðtoga. Svarendur voru beðnir um að meta hvort nokkur persónueinkenni ættu við viðkomandi eða ekki.

Magnað myndband af ljósagangi í háloftunum á Reykjanesi

„Það var helvíti magnað að sjá þetta, þetta var mjög flott," segir Einar Sindrason sem var á leið til vinnu klukkan átta í morgun þegar hann sá eitthvað sem líktist loftsteini birtast á himinhvolfinu. Hann var að keyra á Reykjanesbrautinni og ákvað að stoppa til að taka myndband af fyrirbærinu.

Páll Óskar endurgreiðir unglingunum: Enginn glæpamaður

Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður ákvað á síðustu stundu að aflýsa stóru unglingaballi sem hann ætlaði að halda á skemmtistaðnum NASA í gær. Páll tók þessa ákvörðun eftir að hann fékk bréf frá verkefnisstjóra Heimilis og skóla sem sagði ÍTR, Velferðarráð Reykjavíkurborgar og barnaverndarnefnd hafi ályktað gegn böllum sem þessum. "Ástæðan fyrir því að ég slaufaði ballinu er að ég vil ekki hafa á tilfinningunni að ég sé einhver glæpamaður," segir Páll Óskar.

Flett ofan af vinkonum í málinu gegn Assange

Sænski rannsóknarstjórinn í kynferðisbrotamálinu gegn Julian Assange er náin vinkona annarrar konunnar sem hefur kært hann. Hún hefur farið háðuglegum orðum um Assange á Facebook síðu sinni.

Milljónir sardína drápust í smábátahöfn

Milljónir sardína drápust í smábátahöfn í Kalíforníu á dögunum. Talið er að óveður sem geisaði á þessum slóðum hafi rekið fiskinn inn í höfnina og að þar hafi hann kafnað sökum þrengsla. Ekkert bendir til þess að olíuleki eða önnur mengun hafi orðið þessa valdandi en málið er þó í rannsókn. Nú hamast menn við að hreinsa fiskinn upp úr höfninni því ekki þarf langur tími að líða uns fleiri tonn af dauðum sardínum fara að lykta heldur illa. Ekki hefur verið ákveðið hvað gera skal við þennan óvænta afla.

Fékk styttuna í hendurnar tveimur árum síðar

Brjóstmyndin sem hefur verið í óskilum hjá lögreglunni á Akureyri er komin til skila en eigandi brjóstmyndarinnar gaf sig fram við lögreglu í morgun. Lögreglan auglýsti eftir eigandanum í fjölmiðlum í vikunni en íbúi fann styttuna á gangstétt í Giljahverfinu á Akureyri.

Árekstur lokaði Miklubraut um tíma

Tilkynnt var um umferðarslys á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar um klukkan hálf tíu í morgun. Umferðartafir urðu vestur Miklubraut vegna þess, aðeins strætó akreinin var opin vörðu tafir í um klukkutíma. Nú er hinsvegar búið að opna fyrir umferð að nýju. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu liggja ekki fyrir upplýsingar um eðli eða alvarleika slyssins.

Sjá næstu 50 fréttir