Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundi ASÍ og SA lokið án niðurstöðu Fundi samninganefnda Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands lauk upp úr klukkan hálf fjögur. Fundinum lauk án nokkurrar formlegrar niðurstöðu. Frekari fundarhöld hafa ekki verið ákveðin. 24.1.2011 16:23
Tugir létust í sprengingu í Moskvu Að minnsta kosti 31 lét lífið á Domodedovo flugvellinum í Moskvu í mikilli sprengingu í dag. Fleiri en hundrað eru sárir en fyrstu vísbendingar benda til þess að um sjálfsmorðssprengjuárás hafi verið að ræða. FLugvöllurinn er í um 40 kílómetra fjarlægð frá miðbæ Moskvu og er hann fjölfarnasti flugvöllur borgarinnar. Lögreglan í Moskvu hefur í kjölfar sprengingarinnar stóraukið öryggisgæsluna í borginni og á öðrum flugvöllum. 24.1.2011 15:27
Mjólkin hækkar um 4,56% í febrúar Verð á nýmjólk mun hækka um 4,56% þann 1. febrúar n.k. að því er segir í tilkynningu frá landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu. 24.1.2011 15:24
Ný aðstaða til að rannsaka smitsjúkdóma í fiski Ný og fullkomin aðstaða til rannsókna á smitsjúkdómum í fiski var formlega tekin í notkun í Fræðasetrinu í Sandgerði í dag. Samstarfsaðilar verkefnisins eru Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum og Sandgerðisbær. Undirbúningur og framkvæmdir hafa staðið yfir í um það bil eitt ár. 24.1.2011 15:17
Lýst eftir eiganda skartgripa sem fundust á víðavangi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda hlutanna á meðfylgjandi mynd en þeir fundust á víðavangi. Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við lögreglustöðina á Krókhálsi í síma 444-1190 en nánari upplýsingar veitir Árni Pálsson rannsóknarlögreglumaður virka daga frá kl. 8-15. Tekið skal fram að afhending muna fer fram gegn framvísun staðfestingar á eignarhaldi. 24.1.2011 14:30
Hrina vændismála inn á borð lögreglu „Upplýsingar um vændisstarfsemi virðist berast okkur í hrinum og það er eins og ein hrinan standi yfir núna," segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 24.1.2011 14:08
Leikskólastarfsmaður sagðist á Facebook vilja kyrkja barn Ummæli á Facebook hafa orðið til þess að fólk hefur verið rekið úr starfi. Dæmi er um að starfsmaður á leikskóla hafi sagst vilja kyrkja barn og goldið fyrir það með starfinu. Einnig eru dæmi um að konur hafi upplýst um óléttu á Facebook og verið reknar áður en þær tilkynntu vinnuveitanda um það formlega. 24.1.2011 13:15
Greinir misrétti milli barna Misskipting milli íslenskra barna er í minna lagi í samanburði við önnur OECD-lönd að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Unicef, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þar er Ísland í næstefsta hópi ásamt Noregi, Svíþjóð og Írlandi, en í efsta hópnum eru Danmörk, Finnland, Holland og Sviss. 24.1.2011 13:00
Loðnukvótinn verður aukinn um 125.000 tonn Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyfilegur hámarksafli á loðnu á yfirstandandi vertíð verði ákveðinn 325 þúsund tonn. Er þetta 125 þúsund tonna aukning frá upphafskvótanum sem gefinn var út í fyrra. 24.1.2011 12:35
Neyðarfundur vegna stjórnarkreppu í Írlandi Brian Cowen, forsætisráðherra Írlands, hefur boðað til neyðarfundar í dag með forystumönnum stærstu stjórnmálaflokkanna þar í landi. Stjórnarkreppa ríkir á Írlandi eftir að Græningjar sögðu sig frá stjórnarsamstarfinu í gær og óljóst hvort að umdeilt fjárlagafrumvarp verði samþykkt á írska þinginu. Frumvarpið er forsenda þess að Írar fái áttatíu og fimm millljarða evru lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu. Græningjar segjast vera tilbúnir að styðja frumvarpið en með þeim skilyrðum að afgreiðslu þess verði flýtt og boðað til kosninga strax í næsta mánuði. 24.1.2011 12:03
Verkfærum stolið Verkfærum var stolið um helgina úr húsnæði Selásbygginga sem er til húsa að Gagnheiði 37 á Selfossi. Þjófurinn braut sér leið inn í húsið með því að spenna upp hurð. 24.1.2011 11:57
Eftirlit með mengun talið vera óskilvirkt Er stóriðjufyrirtækjum treystandi til að gera eigin mengunarmælingar? Félagið Umhverfisvaktin við Hvalfjörð skorar á Umhverfisstofnun að endurskoða starfsleyfi stóriðjufyrirtækjanna á Grundartanga. „Þetta er með það fyrir augum að færa ábyrgð á framkvæmd mengunarmælinga frá stóriðjufyrirtækjunum til óháðra opinberra aðila,“ segir í yfirlýsingu. Félagið telur að mælingarnar séu ekki trúverðugar „ef hinn mengandi aðili“ sér sjálfur um þær. 24.1.2011 11:00
Illa haldin af Tourette - Bjartsýn á framtíðina „Ég hef ekkert heyrt, en það er ný vika og ég vona að það gerist eitthvað," segir Elva Dögg Gunnarsdóttir vongóð um framtíðina en hún er illa haldin af Tourette-heilkennunum. Raunar er hún svo illa haldin af Touretta að læknirinn hennar hefur ekki séð annað eins. 24.1.2011 10:42
Ljónakjöt á matseðlinum Mexískóskur veitingastaður í Arizonafylki Bandaríkjanna stefnir á að auka við fjölbreytilegan matseðilinn á næstunni en þegar er þar boðið upp á krókódílakjöt, kengúrukjöt og snákakjöt. 24.1.2011 10:33
Mansal í Kína að aukast Mansal færist í aukanna í Kína samkvæmt þarlendum fjölmiðlum en glæpasamtök eru farin að nýta sér neyð og fátækt kínverskra kvenna í meira mæli. Þannig eru kínverska konur úr fátækum héruðum landsins neyddar í vændi í Evrópu, suðaustur Asíu og Afríku. 24.1.2011 08:33
Rússneskur njósnari orðinn þáttakynnir Rússneski njósnarinn og kynbomban Anna Chapman er orðinn þáttastjórnandi í rússneskum ráðgátu-þætti. Anna varð heimsfræg þegar í ljós kom að hún hafði starfað sem rússneskur njósnari í Bandaríkjunum. Í dag er hún heimsfræg, ekki síst fyrir kynþokkann. 24.1.2011 08:29
Sýklalyf geta leitt til asma Börn sem fá sýklalyf áður en þau verða sex ára gömul eru helmingi líklegri til þess að fá asma samkvæmt norska blaðinu Verdens Gange. Rannsókn var framkvæmd í Þrándheimi í Noregi en fjórtán hundruð börnum og mæðrum var fylgt frá óléttu til sex ára aldurs. 24.1.2011 08:25
Misnotaðir aðgerðarsinnar mótmæla Aðgerðarsinnar af kvenkyni ætla að mótmæla fyrir utan Scotland Yard í Bretlandi í dag og krefjast þess að fá nöfn allra lögreglumannanna sem fóru sem flugumenn inn í samtök þeirra. 24.1.2011 08:23
Breskar konur þurfa að hætta að sukka Konur í Bretlandi eru líklegri til þess að fá brjóstakrabbamein meðal annars vegna mikillar áfengisdrykkju. Þetta kemur fram í rannsóknum sem greint var frá í Bretlandi í gær. Alls fá 46 þúsund konur árlega brjóstakrabbamein í Bretlandi. 24.1.2011 08:18
Óttast mafíuhefndir Bandaríska alríkislögreglan óttast blóðbað í New York eftir að 127 mafíósar voru handteknir í borginni. Sérfræðingar telja mafíuna hyggja á hefndir þar sem innvígðir flugumenn hljóðrituðu samtöl þeirra. 24.1.2011 08:16
Flóðin í Hvítá í rénum Flóðin í Hvítá á Suðurlandi eru farin að sjatna ofan til í ánni og er reiknað með að flóðið verði gengið til sjávar síðdegis. þó flæddi enn yfir heimreiðar að nokkrum sveitabæjum snemma í morgun, en eftir því sem næst verður komist hefur hvergi alvarlegt tjón hlotist af, líkt og varð í flóðum árið 2006. 24.1.2011 08:14
Fimm sprengjur í Bagdad Fimm bílasprengjur sprungu nærri Bagdad Í Írak í gær með þeim afleiðingum að sex létust og 29 særðust. Lögreglunni í Írak grunar að bílasprengjurnar tengist og sé samhæfð árás uppreisnarmanna. 24.1.2011 08:10
Söfnuðu braki af bændum og stálu hönnuninni Sérfræðingum í bandaríska hernum brá heldur betur í brún á dögunum þegar kínverski herinn frumsýndi nýja stealth herþotu sem er nær ógjörningur að sjá á flugi. Svo virðist sem hönnun vélarinnar sé stolin. 24.1.2011 08:08
Ók á móti umferð Ökumenn, sem áttu leið um Reykjanesbraut upp úr klukkan níu í gærkvöldi, tilkynntu lögreglu um bíl, sem væri ekið á öfugum vegarhelmingi á móts við Vogaafleggjara, og stefndi hann í átt að Reykjavík. Hann sinnti ekki ljósablikki og flauti ökumannanna, sem komu á móti honum. Lögreglubílar voru sendir til móts við hann frá Reykjavík, en fundu hann ekki. 24.1.2011 08:00
Gamlar raflagnir sennilega orsök eldsvoða í Gufunesi Bryggjan við áburðarverksmiðjuna í Gufunesi í Reykjavík stórskemmdist í eldi í gærkvöldi. Bryggjan er úr viði og logaði í henni á tuga metra kafla þegar slökkviliðið kom á vettvang. 24.1.2011 07:58
Brotist inn í Gerðuberg Tveir karlmenn, báðir innan við tvítugt, voru handteknir í nótt þegar þeir voru að brjótast inn í menningarmiðstöðina Gerðuberg í Breiðholti í Reykjavík. Vegfarandi lét lögreglu vita og náði hún öðrum á vettvangi, en hinn var hlaupinn uppi þegar hann reyndi að komast undan. Þeir gista nú fangageymslur. 24.1.2011 07:52
Barnshafandi konum sagt upp eftir stöðufærslur á Facebook Nokkur dæmi eru um það að konur hafi misst vinnuna eftir að hafa tilkynnt að þær væru barnshafandi á Facebook-síðum sínum áður en þær tilkynntu vinnuveitendum sínum það formlega. Vinnuveitendurnir hafi í kjölfarið sagt þeim upp störfum. 24.1.2011 06:30
Um þriðjungur vill draga umsókn að ESB til baka Tæplega tveir af hverjum þremur sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Fréttablaðsins á miðvikudag vilja ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn. Um þriðjungur vill draga aðildarumsóknina til baka. 24.1.2011 05:00
Tveir af þremur vilja halda ESB-umsóknarferli áfram Könnun Nærri tveir af hverjum þremur landsmönnum vilja að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði lokið og samningur lagður í þjóðaratkvæðagreiðslu, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Rúmur þriðjungur vill að umsóknin verði dregin til baka. 24.1.2011 00:01
Aldrei fleiri sjórán en 2010 Sjórán náðu nýjum hæðum á nýliðnu ári en þá voru 53 skip og áhafnir þeirra tekin yfir af sjóræningjum. Í gögnum Alþjóða siglingamálastofnunarinnar kemur fram að 49 sjórán voru úti fyrir ströndum Sómalíu. Alþjóðlegur floti herskipa kom í veg fyrir að enn fleiri skip væru tekin af sómalískum sjóræningjum sem hafa haldið hafsvæðinu í herkví um árabil. 24.1.2011 12:00
Um 50 björgunarsveitamenn leituðu konu Um 50 björgunarsveitamenn leituðu konu sem villtist á leið sinni upp á Helgafell í kvöld. Konan fannst við topp fjallsins um sjöleytið í kvöld og björgunarmenn eru að fylgja henni niður. Ástæða þess að konan villtist uppi á fjallinu er mikil þoka sem er þar núna. 23.1.2011 19:47
Nota hafnsögubát við slökkvistarfið „Við erum komnir með hafnsögubát með stórar og miklar dælur sem er að sprauta á eldinn. Við erum líka að sprauta frá landi,“ segir slökkviliðsmaður við bryggjuna í Gufunesi í samtali við Vísi. 23.1.2011 19:20
Eldur í bryggjunni í Gufunesi Eldur kviknaði á bryggjunni í Gufunesi nú undir kvöld, tvær stöðvar eru á staðnum og mikinn reyk leggur frá bryggjunni yfir í Grafarvoginn. Íbúar í Grafarvogi mega því eiga von á því að reyk muni leggja yfir hverfið þeirra. Segjum nánar frá þessu síiðar í kvöld. 23.1.2011 18:45
Ríkisstjórn Írlands sprungin Ríkisstjórn Írlands er sprungin, að því er fréttastofa BBC greinir frá. Græningjar ákváðu í dag að draga sig út úr ríkisstjórninni. Því er búist við því að kosið verði í Írlandi í næsta mánuði en áður hafði verið gert ráð fyrir að kosningar færu fram þann 11. mars næstkomandi. 23.1.2011 17:00
Enn alvarlega veik á gjörgæslu vegna svínaflensu Ástand konunnar sem lögð var inn á gjörgæsludeild Landspítalans með svínaflensu fyrir helgi er svipað og það var fyrir helgi, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild. Ástand hennar er stöðugt en hún er ennþá alvarlega veik. 23.1.2011 16:30
Lögreglan leitar ökufants Lögreglan leitar nú ökumanns BMW bifreiðar sem ók utan í vegrið við Arnarnesbrúna laust eftir klukkan ellefu í morgun. Ökumaðurinn yfirgaf vettvang eftir óhappið og ekki er vitað hvað varð um hann. Lögreglan telur sig þó vita hver hann er. 23.1.2011 15:07
Nafn mannsins sem lést Karlmaður sem lést á Eyjafjarðarbraut síðastliðinn fimmtudag hét Gísli Ólafur Ólafsson til heimilis að Vættagili 21 á Akureyri. 23.1.2011 14:46
Græningjar ákveða hvort þeir halda áfram Græningjar á Írlandi ákveða í dag hvort þeir ætli að halda áfram þátttöku í ríkisstjórn landsins. Ef flokkurinn dregur sig í hlé í ríkisstjórnarsamstarfinu munu kosningar verða haldnar í næsta mánuði, en áður hafði verið gert ráð fyrir að þær yrðu þann 11. mars. 23.1.2011 14:16
Varað við vatnavöxtum í Hvítá Veðurstofan varaði í morgun við Vatnavöxtum í Hrunamannahreppi, nánar tiltekið á vatnasviði Hvítár. Hlýtt hefur verið á hálendinu og mikið rigning á suðvesturhluta þess. Rennslið hefur því vaxið töluvert í ánni. 23.1.2011 13:51
Súlubyggðin í Eldey vekur athygli Súlubyggðin í Eldey er nú sýnileg öllum sem vilja fylgjast með henni á Netinu. Myndavélum hefur verið komið fyrir í Eynni og því er hægt að fylgjast með fuglunum dag og nótt. Eldey er um 77 metra hár klettadrangur um 15 kílómetrum suðvestan við Reykjanes. Alfræðivefurinn Wikipedia segir að þar sé ein af stærri súlubyggðum heims, með um 14.000 - 18.000 súlupör sem verpa þar á hverju ári. 23.1.2011 13:25
Hefur efasemdir um stofnun atvinnuvegaráðuneytis Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er efins um að rétt sé að gera frekari breytingar á stjórnsýslunni. Sameining sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis annars vegar og iðnaðarráðuneytis hins vegar hefur verið fyrirhuguð frá því að vinstristjórnin tók við völdum fyrir um tveimur árum síðan. Þegar hafa fjögur ráðuneyti verið sameinuð í velferðarráðuneyti og innanríkisráðuneyti. 23.1.2011 11:02
Passið ykkur á hreindýrunum Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vilja vara vegfarendur sem leið eiga um Austurland við mikilli umferð hreindýra, sérstaklega á Fagradal. Hætta á árekstrum við hreindýr er mest í skammdeginu og þegar hálka og skafrenningur gera aðstæður erfiðar. 23.1.2011 10:00
Segir umræður um njósnatölvuna hjákátlegar Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að hún hafi oft tengt tölvu sína með sama hætti og svokölluð njósnatölva var tengd við netið. Í tilkynningu sem hún setti á vefsíðu sína í morgun segir hún að að sér þyki hjákátlegt að hafa fylgst með fréttum af aðskotatölvunni sem fanst í skriftstofuhúsnæði Alþingis í febrúar í fyrra, á hæð þar sem Hreyfingin og Sjálfstæðisflokkur deila. 23.1.2011 09:54
Enn meiri flóðum spáð Enn meiri flóðum er spáð í Ástralíu á næstunni og segja veðurfræðingar að stórt flóð allt að 90 kílómetra að lengd fari yfir norðurhluta Victoríu fylkis þar í landi innan tíu daga. 23.1.2011 09:45
Hnífamaður gekk laus Fólki í miðborg Reykjavíkur var brugðið þegar að það sá ungan mann sveifla hnífi um eittleytið í nótt. Þegar lögreglan hafði afskipti af manninum reyndi hann að komast undan. Hann var handtekinn í Lækjargötu og hnífurinn fannst þá í annarri buxnaskálminni hans. 23.1.2011 09:37