Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill tryggja að orkufyrirtæki haldist í almannaeigu Vinstrihreyfingin - grænt framboðs vill að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hafi frumkvæði að umræðu á milli ríkis og sveitarfélaga um hvernig megi tryggja að orkufyrirtæki haldist í almannaeigu. 16.7.2007 12:13
Búið að opna fyrir umferð yfir Borgarfjarðabrú eftir umferðarslys Opnað hefur verið fyrir umferð yfir Borgarfjarðarbrú, en henni var lokað um hálf 12 vegna umferðarslyss þar sem tveir bílar lentu í árekstri. Tvennt var flutt á sjúkrahús, en meiðsl munu ekki vera alvarleg. Umferð gengur nú vel að sögn lögreglu. 16.7.2007 12:02
Dómstólaráð Líbíu frestar ákvörðun til fjögur í dag Dómstólaráð Líbíu hefur frestað ákvörðun sinni um örlög heilbrigðisstarfsfólks sem dæmt var til dauða í síðustu viku fyrir að hafa smitað um 430 börn viljandi af HIV veirunni. Fólkið heldur fram sakleysi sínu og segist hafa verið pyntað þangað til það játaði. Úrskurður ráðsins verður kunngjörður klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Engin útskýring hefur verið gefin á frestuninni. 16.7.2007 11:51
Heræfingar bandamanna og sérsveitar í ágúst Þrjú hundruð manns taka þátt í varnaræfingu sem haldin verður á Íslandi dagana 13. - 16. ágúst næstkomandi. Æfingin er sú fyrsta sem fram fer á Íslandi á grundvelli samkomulags íslenskra og bandarískra stjórnvalda frá 11. október, 2006. 16.7.2007 11:44
35 stjórnarandstæðingar dæmdir í lífstíðarfangelsi í Eþíópíu Eþíópískur dómstóll dæmdi í morgun 35 stjórnarandstæðinga í fangelsi fyrir lífstíð fyrir aðild sína að mótmælum tengdum kosningunum árið 2005. Hundruð létu lífið í mótmælunum. Saksóknari hafði farið fram á dauðadóm í málinu en dómarinn tók þá ósk ekki til greina. Átta menn til viðbótar voru dæmdir í fangelsi frá 18 mánuðum til 18 ára. 16.7.2007 11:36
Skólagjöld í þjórfé Tvítug gengilbeina, Jessica Osborne, á Pizza Hut veitingastað í Bandaríkjunum datt í lukkupottinn fyrir stuttu þegar hún fékk töluvert hærra þjórfé en venjulega. Hún fékk tíu þúsund dollara þjórfé til þess að borga fyrir menntun sína. Peningarnir komu frá einstæðri konu og tveimur sonum hennar sem eru fastagestir á veitingastaðnum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá viðtal við stúlkuna. 16.7.2007 10:59
Í farangursgeymslu bíls í laki einu klæða Lögregla stöðvaði ökumann á Snorrabraut á áttunda tímanum í morgun. Í farangursgeymslu bifreiðarinnar var maður í laki einu klæða. Auk ökumanns og þess fáklædda voru fjórir aðrir farþegar í bílnum. 16.7.2007 10:37
Vegavinnuframkvæmdir við Þingvallaveg Í dag og á morgun verður unnið við fræsun og malbiksframkvæmdir á gatnamótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. 16.7.2007 09:47
82 létust í tveimur sprengingum í Kirkuk í Írak í morgun Að minnsta kosti 82 létu lífið í tveimur bílsprengjuárásum í borginni Kirkuk í Írak í morgun. Önnur sprakk á vinsælum markaði og hin á verslunarsvæði í borginni. Að minnsta kosti 136 særðust í árásunum. Kirkuk er norður af Bagdad en þar létust 22 í sjálfsmorðsárás þann 7. júlí síðastliðinn. 16.7.2007 09:31
Ala lömb á hvönn Matvælarannsóknir Íslands (Matís) er byrjað að kanna hvaða áhrif það hefur ala íslensk lömb upp á hvönn. Stefnt er að því að hefja sölu á slíku lambakjöti ef verkefnið skilar jákvæðum niðurstöðum. 16.7.2007 09:29
Mótorhjól og sendiferðabíll skullu saman Mótorhjól og sendiferðabíll skullu saman við Gullinbrú nú í morgun. Lögregla er þegar kominn á staðinn. Sjúkrabílar eru þar einnig. Á þessari stundu er ekki vitað hvort einhver slasaðist. Töluverðar umferðartafir hafa hlotist af slysinu og lögregla biður fólk að sýna þolinmæði. 16.7.2007 08:40
Þung umferð til Reykjavíkur Gríðarmikil umferð er nú til Reykjavíkur. Umferð gengur hægt á Kjalarnesinu og Hvalfjarðargöngunum er sem stendur lokað vegna umferðarþunga. Það er í annað sinn í kvöld sem þeim er lokað vegna umferðarþungans. 15.7.2007 21:00
Slökkvilið Borgarness kallað út vegna elds við Surtshelli Slökkvilið Borgarness var í kvöld sent út að göngustíg við Surtshelli í kvöld til þess að slökkva eld sem þar hafði kviknað í útfrá sígarettum. Gróðurinn á svæðinu er gríðarlega þurr og slökkviliðið vill beina því til fólks að slökkva í sígarettum og ferðagrillum áður en það losar sig við slíka hluti. 15.7.2007 20:51
Slökkviliðið notar dælubíla til að verjast ökuníðingum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur orðið að grípa til þess verklags að senda stóra dælubíla á vettvang umferðarslysa. Það er gert til að verja líf og limi sjúkraflutningamanna fyrir tillitslausum ökuníðingum sem eiga leið hjá. 15.7.2007 20:00
Í lagi að bandaríski herinn fari Forsætisráðherra Íraka reynir að sannfæra umheiminn um að Írakar séu ekki eins háðir herliði Bandaríkjamanna og margir vilja láta. Á sama tíma eykst þrýstingur á bandaríkjaforseta heimafyrir að kalla herliðið sitt heim frá Írak. 15.7.2007 19:25
Bitlaus peningastefna Seðlabankinn bendir á að það dragi hægt og bítandi úr verðbólgu en vill annars ekki svara gagnrýni Jóhönnu Sigurðardórtur, félagsmálaráðherra á bitlausa hávaxtastefnu bankans. Jóhanna gagnrýnir einnig bankana fyrir að haga sér eins og ríki í ríkinu. 15.7.2007 19:15
Ísfirðingar hafa ekki undan að framleiða fluguveiðihjól Fyrirtækið Fossadalur á Ísafirði hefur nú vart undan við að framleiða ný fluguveiðihjól fyrir Íslandsmarkað. WISH fluguhjólin frá fyrirtækinu hafa slegið í gegn á Íslandi og markaðssetning er hafin á erlendum mörkuðum. 15.7.2007 19:09
Álafossbúar reiðir því að ekið sé á frárennslislögn Varmársamtökin gagnrýna harðlega með hvaða hætti verktakar við Helgarfell í Mosfellsbæ beina ökumönnum inn á byggingaland sitt. Íbúar í Álafosskvos segja að ökumenn aki eftir frárennslislögn en ekki vegi því vegur á þessum stað hafi aldrei verið samþykktur. 15.7.2007 19:07
Belgi keypti sögufrægt hús á Þingeyri á 2,500 krónur Ungur Belgi vinnur nú að því að gera upp eitt sögufrægasta húsið á Þingeyri í Dýrafirði en hann keypti húsið af Ísafjarðarbæ fyrir tvö þúsund og fimm hundruð krónur. 15.7.2007 19:04
Umhverfissinnar mótmæla harðræði lögreglunnar Mótmælendur í samtökunum Saving Iceland saka lögregluna um harðræði og tilefnislausar handtökur en fimm voru handteknir í mótmælum umhverfissinna í Reykjavík í gærkvöldi. 15.7.2007 19:02
Tyrkjaránsins minnst í Vestmannaeyjum Þess er nú minnst að þrjúhundruð og áttatíu ár eru liðin frá Tyrkjaráninu mesta sjóráni Íslandssögunnar. Af þessu tilefni var haldið þrælauppboð á þrælamarkaðinum framan við hið nýja Tyrkjaránssetur í Vestmannaeyjum. 15.7.2007 18:54
Slökkvilið Akraness berst við sinueld Slökkviliðið á Akranesi reynir nú að ráða niðurlögum sinuelds nálægt járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Mikinn reyk leggur í átt að Akrafjalli en hann hefur þó ekki áhrif á umferð. Lögreglan segir hvorki mannvirkjum né fólki stafa hættu af sinubrunanum. Þá má geta þess að umferð er orðin afar þung á þessum slóðum og bíll við bíl á Kjalarnesi allt að Hvalfjarðargöngum. 15.7.2007 18:52
Sjómönnum hefur fækkað í kjölfar hruns í rækjuveiðum Sjómönnum hefur fækkað um nokkur hundruð í kjölfar hruns í rækjuveiðum undanfarin misseri. Þá hafa árstekjur fjölmargra sjómanna líka rýrnað, að mati formanns Sjómannasambandsins. 15.7.2007 18:42
Verslunin Sævar Karl seld Erla Þórarinsdóttir og Sævar Karl Ólason klæðskeri hafa selt fataverslun sína, Sævar Karl Bankastræti. Hlutur hjónanna í Bankastræti 7 sem hýst hefur verslun Sævars Karls um árabil fylgir með í kaupunum. Kaupverðið er trúnaðarmál. 15.7.2007 18:24
Fjögurra bíla árekstur á Vesturlandsvegi Fjögurra bíla árekstur varð nú rétt fyrir klukkan sex á Vesturlandsvegi við Þingvallaveg. Minniháttar slys urðu á fólki. Búast má við einhverjum töfum á meðan verið er að koma bílunum í burtu en þeir skemmdust mikið. 15.7.2007 18:22
Pólskar hjúkrunarkonur taka niður tjaldbúðir sínar Hundruð pólskra hjúkrunarkvenna hættu í dag mótmælaaðgerðum sínum við skrifstofu pólska forsætisráðherrans. Þær höfðu sett upp tjaldbúðir fyrir utan skrifstofuna og eru nú að taka þær niður. Lögregla var með töluverðan viðbúnað þar sem hjúkrunarkonurnar áttu það til að stöðva umferð á svæðinu. 15.7.2007 17:23
Peres orðinn forseti Ísraels Shimon Peres tók í dag við embætti sem forseti Ísraels. Embættið er ekki ósvipað því íslenska að því leyti að um heiðursstöðu með takmarkað vald er að ræða. Peres hefur meðal annars fengið Friðarverðlaun Nóbels á löngum ferli sínum sem stjórnmálamaður. 15.7.2007 16:41
Harry Potter og Fönixreglan ráða Bandaríkjunum „Harry Potter og Fönixreglan“ náði toppnum í Bandaríkjunum um helgina og tók alls inn 77,4 milljónir dollara, eða um 4,7 milljarða íslenskra króna. Alls hefur myndin tekið inn, þá fimm daga sem hún hefur verið í sýningu, rúmlega 140 milljónir dollara, eða um 8,5 milljarða íslenskra króna. 15.7.2007 16:27
Alvarlegt umferðarslys varð við Gjábakka í dag Alvarlegt umferðarslys varð á Gjábakkavegi skammt frá Þingvöllum um eittleytið í dag. Kallað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar þar sem óttast var að kona sem í slysinu lenti hefði innvortis blæðingar. Þyrlan fór með hana á Landsspítalann í Fossvogi. Ekki er vitað um ástand hennar að svo stöddu. 15.7.2007 15:59
Sölvi Sveinsson lætur af störfum sem skólameistari Verslunarskólans Sölvi Sveinsson skólameistari Verslunarskólans hefur látið af störfum samkvæmt bréfi sem starfsfólki skólans barst á föstudag. Við af honum tekur Ingi Ólafsson sem verið hefur aðstoðarskólastjóri. 15.7.2007 15:56
Franska lögreglan leitar morðingja sem flúði úr fangelsi Franska lögreglan leitar nú að dæmdum morðingja sem flúði á reyfarakenndan hátt úr fangelsi í suðausturhluta Frakklands seint í gærkvöldi. 15.7.2007 15:18
Sáttaráðstefnu frestað fram á fimmtudag Umfangsmikilli sáttaráðstefnu sem fram átti að fara í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í dag hefur verið frestað fram á fimmtudag. Skipuleggjendur ákváðu að fresta henni þar sem enn vantaði marga fundarmenn. 15.7.2007 14:56
66 handteknir í barnaklámsmáli á Spáni Lögreglan á Spáni skýrði frá því í dag að hún hefði lagt hald á 48 milljónir tölvumynda og myndbanda og handtekið 66 manns í tengslum við rannsókn á barnaklámi. Lögreglan vann með Interpol í málinu og fylgdist með þegar 5 þúsund skrám var hlaðið niður af netþjónum í Þýskalandi. 15.7.2007 14:18
Fóstureyðingar löglegar í Portúgal Lög sem heimila fóstureyðingu tóku gildi í Portúgal í dag. Nú mega konur láta eyða fóstri á fyrstu tíu vikum meðgöngu. Þjóðaratkvæðagreiðsla var haldin um lögin í febrúar síðastliðnum en hún var ógild vegna þess hversu fáir tóku þátt. Engu að síður tóku stjórnvöld tillit til úrslita kosninganna en 59,25% þeirra sem greiddu atkvæði vildu aflétta banninu. 15.7.2007 13:43
Gleymdu börnunum vegna tölvuleikjafíknar Ungt par sem var handtekið fyrir að vanrækja börnin sín tvö sagði tölvuleiki og internetið vera ástæðurnar fyrir vanrækslunni. Börnin, sem eru 22 mánaða strákur og 11 mánaða stúlka, voru alvarlega vannærð og nær dauða en lífi þegar þau voru færð á sjúkrahús. 15.7.2007 13:02
Gagnrýna að fyrrverandi starfsmaður Hafró meti rannsóknir Það orkar tvímælis að sjávarútvegsráðherra hafi fengið einstakling sem starfað hefur hjá Hafró til að stýra nefnd sem meðal annars á að benda á hvaða rannsóknir á þorskstofninum skorti. Þetta segir reynslumikill skipstjóri sem segir ljóst að ráðgjöf stofnunarinnar hafi ekki skilað sér. 15.7.2007 12:53
Ungi maðurinn sem fór út um glugga í Amsterdam kominn heim Nítján ára íslenskur karlmaður sem slasaðist þegar hann fór út um glugga á annarri hæð hótels í Amsterdam er nú kominn heim og liggur á Landspítala-háskólasjúkrahúsi við Hringbraut. 15.7.2007 12:47
Slökkviliðið biður fólk að fara varlega með eld Slökkvilið Borgarness var kallað út tvisvar í nótt vegna sinuelda og tókst í báðum tilvikum að slökkva áður en eldurinn næði útbreiðslu. Allur jarðvegur á svæðinu er mjög þurr og eldfimur og báða sinueldana má rekja til kæruleysis ferðamanna. Slökkviliðið hvetur fólk því til þess að fara varlega með allan eld á svæðinu.Annar eldurinn kviknaði út frá grilli sem skilið var eftir og hinn útfrá sígarettu sem einhver hafði kastað frá sér. 15.7.2007 12:14
Félagsmálaráðherra gagnrýnir hávaxtastefnu Seðlabankans Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra gagnrýnir hávaxtastefnu Seðlabankans og segir að hún gangi ekki til lengdar. Í viðtali við Morgunblaðið í dag segir hún að háir stýrivextir séu íþyngjandi fyrir almenning og smá og meðalastór fyrirtæki. Aftur á móti geti stórfyrirtækin að mestu leyti fjármagnað sig með erlendum lánum og sleppi því við háu vextina. 15.7.2007 12:11
Talibanar í Pakistan rifta friðarsamkomulagi við stjórnvöld Herskáir stuðningsmenn talibana í Waziristan í norðvesturhluta Pakistan sögðu í dag að þeir hefðu rift friðarsamkomulagi sínu við stjórnvöld. Þeir saka stjórnvöld um að hafa brotið skilmála þess með því að gera áhlaup á Rauðu moskuna. Talibanar og al-Kaída njóta mikils stuðnings á svæðinu. 15.7.2007 11:40
Kínversk stjórnvöld passa upp á ástalíf námsmanna Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að breyta skipulagi danskennslu í skólum landsins til þess að koma í veg fyrir að nemendurnir verði ástfangnir og spilli þannig náminu. Dans var gerður að skyldufagi í kínverskum skólum til þess að reyna að stemma stigu við offitu. 15.7.2007 11:28
Líbanski herinn inn í Nahr al-Bared Líbanskar hersveitir fóru í fyrsta sinn inn í flóttamannabúðirnar Nahr al-Bared í morgun. Vitni sögðust hafa séð fána hersins yfir nokkrum sundurskotnum húsum í búðunum. Átökin á milli hersins og uppreisnarmanna í Fatah al-Islam hafa nú staðið í níu vikur. 15.7.2007 10:53
14 láta lífið í sprengjuárás í Pakistan Átök halda áfram að magnast í norðvesturhluta Pakistan en 14 manns létu lífið í fyrirsátri uppreisnarmanna í nótt. 38 hafa því látið lífið í árásum á svæðinu á síðasta sólarhring. Þær virðast vera hluti af hefndaraðgerðum vegna áhlaups hersins á Rauðu moskuna í síðastliðinni viku. 15.7.2007 10:27
Hæstu skaðabætur sem kaþólska kirkjan hefur greitt Kaþólska kirkjan í Los Angales í Bandaríkjunum hefur samið við yfir fimm hundruð meint fórnarlömb kynferðisofbeldis presta um að greiða þeim bætur. Alls greiðir kirkjan yfir fjörtíu milljarða króna í bætur. 15.7.2007 10:12
Flassari á ferð í Víðidal í gærkvöldi Karlmaður var handtekinn í Víðidal í Reykjavík í gærkvöldi eftir að hafa sært blygðunarsemi konu, með því að bera kynfæri sín í þann mund að þau mættust á gangstíg í dalnum. Manninum var sleppt að yfirheyrslum loknum, en verður kærður fyrir blygðunarsemisbrot. 15.7.2007 10:05