Fleiri fréttir

40 prósent óánægðir með hvalveiðar

Samkvæmt skoðanakönnun Capacent Gallup segjast 40 prósent óánægð með ákvörðun sjávarútvegsráðherra að leyfa hvalveiðar í hagnaðarskyni. Átján prósent taka ekki afstöðu, en 42 prósent segjast ánægð með ákvörðunina. Munur á fylkingunum er innan skekkjumarka.

Chirac lýsir yfir stuðningi við Sarkozy

Jacques Chirac, forseti Frakklands lýsti í dag yfir stuðningi við Nocolas Sarkozy, frambjóðanda hægrimanna fyrir forsetakosningarnar í vor. Þeir hafa ekki verið miklir vinir til þessa en talið er að stuðningsyfirlýsing Chirac muni hjálpa Sarkozy mikið í baráttunni. Þá sagði Chirac að Sarkozy mun láta af starfi innanríkisráðherra eftir helgi og muni þaðan af helga sig kosningabaráttunni. Fyrri umferð frönsku forsetakosninganna fer fram 22. apríl.

Uppreisnarmenn beita börnum fyrir sig

Talsmaður bandaríska hersins sagði í dag að uppreisnarmenn í Írak hefðu notað börn í sprengjuárás. Hershöfðinginn Michael Barbero sagði að bíl hefði verið hleypt í gegnum öryggishlið þar sem tvö börn sátu í aftursætunum. Bíllinn var síðan sprengdur í loft upp.

Betur má ef duga skal í Afganistan

Fulltrúar frá Afganistan og öðrum þjóðum mæltu viðvörunarorð vegna ástandsins í Afganistan á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Hver á fætur öðrum steig í pontu og bentu allir á að ofbeldi í landinu væri enn að aukast, fíkniefnastarfsemi hvers konar blómstraði og hægt gengi að byggja upp stofnanir í landinu.

Gáfu út 10.000 vegabréf til svikahrappa

Þúsundum manna, og þar á meðal tveimur sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverkaárásir, tókst að verða sér út um vegabréf hjá breska innanríkisráðuneytinu á fölskum forsendum á síðastliðnu ári. Allt í allt er talið að um tíu þúsund vegabréf sé um að ræða.

Sólborgin að bryggju um ellefuleytið

Vel gengur að koma dragnótarbátnum Sólborgu RE-270 til hafnar en líklega verður hún dregin í vesturhöfnina í Reykjavík um ellefuleytið í kvöld. Að sögn aðalvarðstjóra Landhelgisgæslunnar hefur ferðin sóst vel. Eftir að komið var í garðsjóinn og inn í Faxaflóann róaðist um og vindáttin hafði minni áhrif á ferðina. Sem stendur eru Týr og Sólborg stödd norður af Gróttu.

Segir demókrötum að taka tilboðinu

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í kvöld að demókratar ættu að taka tilboði hans um að leyfa tveimur háttsettum aðstoðarmönnum hans að ræða við þingnefnd á þeirra vegum. Bush hefur neitað því að leyfa demókrötum að yfirheyra aðstoðarmenn sína eiðsvarna. Aðstoðarmennirnir sem um ræðir eru Karl Rove og Harriet Miers.

Hóta að draga úr valdi FBI

Þingmenn í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa hótað því að afnema þær lagaheimildir sem Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur til þess að rannsaka hugsanlega hryðjuverkamenn. Á þetta við um bæði demókrata og repúblikana.

Þriðjungur írösku lögreglunnar spilltur

Háttsettur lögregluforingi í írösku lögreglunni sagði í dag að hann gæti ekki treyst þriðjungi lögreglumanna sinna þar sem hollusta þeirra væri hjá ólöglegum vígahópum. Lögregluforinginn, Abdul Hussein Al Saffe, sagði enn fremur að hann gæti ekki rekið þá þar sem þeir nytu verndar stjórnmálamanna.

Kristinn í 2. sæti á lista Frjálslyndra í NV-kjördæmi

Frjálslyndi flokkurinn tilkynnti nú í kvöld hvernig framboðslisti þeirra í Norðvesturkjördæmi verður skipaður fyrir alþingiskosningarnar í maí. Efstur á lista er Guðjón A. Kristjánsson en annað sætið fær Kristinn H. Gunnarsson sem nýlega gekk til liðs við flokkinn eftir að hafa gengið úr röðum Framsóknarmanna.

Átök blossa upp í Pakistan

Fleiri en 50 manns hafa látið lífið í átökum stuðningsmanna al-Kaída og talibana í norðvesturhluta Pakistan. Yfirvöld í Pakistan skýrðu frá þessu í dag. Átökin hafa geisað á svæðinu síðan á mánudaginn.

Varað við snjóflóðahættu í Skutulsfirði og við Óshlíð

Vegagerðin varar við snjóflóðahættu á Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði og við Óshlíð og eru vegfarendur beðnir um að vera ekki að ferðast þar að nauðsynjalausu. Á Vestfjörðum er annars víða hálka. Þá er Eyrarfjall ófært.

Nýtt félag stofnað um rekstur fjarskiptanets Símans

Skipti hf. sem á og rekur Símann hefur stofnað nýtt fyrirtæki, Mílu, um rekstur, uppbyggingu og viðhald fjarskiptanets Símans. Í tilkynningu um nýja félagið segir, að aðskilnaður fjarskiptanetsins frá annarri starfsemi Símans sé liður í þeirri stefnu eigenda Skipta hf. að bæði fyrirtækin geti enn betur sinnt þjónustuhlutverki sínu.

Neyddist til lendingar á Keflavíkurflugvelli

Bandarísk Herkúles herflugvél þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli í kvöld vegna bilunar í vökvakerfi vélarinnar. Vélin lenti heilu og höldnu á flugvellinum rétt fyrir hálfsjö í kvöld.

Ástandið í Írak veldur vonbrigðum

Utanríkisráðherra segir að ástandið í Írak valdi vissulega vonbrigðum en það sé áfram stefna íslensku ríkisstjórnarinnar að styðja írösku þjóðina eftir megni. Fjögur ár eru í dag frá upphafi átaka í landinu og endurreisn landsins heldur áfram í skugga ofbeldis.

Lögreglan rannsakar innflutning á tugum kvenna

Lögreglan rannsakar innflutning á tugum kvenna frá Austur-Evrópu, sem fluttar voru til Íslands sem listamenn, en Vinnumálastofnun segir þær vera selskapsdömur sem selji kampavín án atvinnu- og dvalarleyfis. Eigandi veitingastaðar, sem flytur stúlkurnar til landsins, segir að þær séu listamenn sem dansi fyrir gesti staðarins.

Heilsan á að njóta vafans

Heilsan á að njóta vafans þegar menn taka ákvörðun um stækkun álversins, segir Finnbogi Óskarsson efnafræðingur á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Hann segir langtímaáhrif mengunar á íbúa ekki þekkt og því borgi sig ekki að taka þá áhættu að tvö- til þrefalda mengun frá álverinu.

Morfínfíklum fækkað um helming

Morfínfíklum sem leita til SÁÁ hefur fækkað um helming eftir að lyfjagagnagrunnur Landlæknisembættisins var tekinn í notkun fyrir tveimur árum. Læknar hafa verið varaðir við nokkrum tugum manna og kvenna sem fara lækna á milli í leit að ávanalyfjum. Sú kræfasta hefur leitað til fjölda heilsugæslustöðva undir að minnsta kosti fimm nöfnum.

Lentu í deilum við konu á Hebron

Íslenskur karlmaður um tvítugt var færður til yfirheyrslu hjá ísrelsku lögreglunni í Hebron á Vesturbakkanum í fyrradag. Ísraelsk kona sem þau lentu í útistöðu við hafði þá kært danska vinkonu hans fyrir líkamsárás. Atvikið náðist allt á myndband.

Stytta af Jaka í Breiðholti

Lagt hefur verið til að reist verði stytta af verkalýðsleiðtoganum Guðmundi J. Guðmundssyni, - Gvendi Jaka - í Breiðholti. Með staðsetningunni er vísað til þess að hann var einn þeirra manna sem stuðlaði að þeim miklu umbótum í húsnæðismálum sem fólust í uppbyggingu Breiðholtsins.

Borgin kynnir þriggja ára áætlun

Borgarstjórnarmeirihlutinn stefnir að því að stórauka tekjur borgarinnar á næstu árum með íbúafjölgun og hagræðingu. Kynnt voru í dag áform í rekstri borgarinnar á næstu þremur árum en lykillinn að fjölgun er stóraukið lóðaframboð.

Gæsluvarðhald framlengt

Hæstiréttur staðfesti í dag framlengingu á gæsluvarðhaldi til ellefta maí yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um aðild að smygli á nærri fjórum kílóum af kókaíni. Mennirnir hafa verið í haldi síðan áttunda febrúar. Fíkniefnin voru falin í bifreið sem flutt var frá Þýskalandi en tollgæsla fann þau áður en þeirra var vitjað og skipti þeim út fyrir gerviefni.

Ingibjörg ítrekar framburð sinn

Ingibjörg S. Pálmadóttir, sambýliskona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hún ítrekar að Jón Steinar Gunnlaugsson hafi sagt henni að ýmsir aðilar hafi þrýst á sig að taka að sér mál Jóns Geralds. Jón Steinar hafði í gær sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði fullyrðingar Ingibjargar við yfirheyrslu í Hæstarétti ekki sannar.

Handtóku 171 í aðgerðum gegn mafíunni

Ítalska lögreglan handtók í dag vel á annað hundrað manns í aðgerðum gegn mafíunni í Napólí. Heilu fjölskyldurnar voru þá sendar í steininn en alls var um 171 manns að ræða. Þúsund lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum. Eiturlyfjahringur var leystur upp og afhjúpuð ýmis glæpastarfsemi sem mun að sögn lögreglu hafa skilað jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna króna í tekjur á mánuði.

Varðskip með Sólborgu í togi

Varðskip Landhelgisgæslunnar nú á leið til Reykjavíkur með Sólborgu RE-270, 115 tonna dragnótarbát, í togi. Báturinn varð vélarvana á Sandvík við Reykjanes um tvöleytið í dag. Ekki er búist við að komið verði til Reykjavíkur fyrr en seint í kvöld.

Sektaður fyrir að skafa ekki bílrúðu

Lögregla stöðvaði ökumann í dag vegna þess að hann hirti ekki um að skafa af bílrúðunum. Útsýni mannsins var mjög takmarkað og setti hann sjálfan sig og aðra í hættu, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Hann var sektaður um fimm þúsund krónur samkvæmt reglugerð um hélaðar rúður á ökutækjum. Þrjátíu og eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt.

Laganemar aðstoða innflytjendur

Innflytjendur fá ókeypis lögfræðiþjónustu hjá laganemum Háskólans í Reykjavík frá og með morgundeginum. Þjónustan fer fram á efstu hæð Alþjóðahússins við Hverfisgötu. Að henni munu starfa laganemar á þriðja til fimmta námsári. Markmiðið er að veita aðstoð á hvaða réttarsviði sem er.

Lögreglan stöðvaði líkfylgd

Lögregla í Hollandi hefur verið gagnrýnd fyrir að stöðva líkfylgd til að taka öndunarpróf af ökumönnum. Syrgjendurnir voru nýlagðir af stað frá kirkju í Enschede á leið til kirkjugarðsins Usselo. Lögreglan leyfði líkbílnum og fjórum næstu bílum að halda ferðinni áfram. Tíu bifreiðum fjölskyldumeðlima og vina var hins vegar vikið til hliðar.

Uppnám í Evróvision

Mikið uppnám varð í Evróvision söngvakeppninni, í gær, þegar í ljós kom að bresku þáttakendurnir höfðu leynilega liðsmenn. Í söngbandinu Scooch eru tvær stúlkur og tveir piltar. Í keppninni í gær kom í ljós að þau höfðu tvær stúlkur baksviðs, sem sungu með. Hinir þáttakendurnir urðu öskureiðir og sökuðu Scooch um svindl og svínarí. Um að hafa leikið að þau væru að syngja.

Sýn tryggir sér Formúluna

Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn á Formúlu 1 kappakstrinum. Sýningarrétturinn er til þriggja ára. Sýn byrjar útsendingar á Formúlunni með mótaröðinni sem hefst í ársbyrjun 2008 og stendur til loka ársins 2010.

Ísraelar hunsa Norðmann

Ísraelar hafa aflýst öllum fundum með Raymond Johansen, ráðuneytisstjóra norska utanríkisráðuneytisins. Johansen er í Miðausturlöndum og átti í gær fund með Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Hamas í þjóðstjórn Palestínumanna. Hann átti að hitta ísraelska ráðamenn í dag, en þeim fundum var aflýst.

Nokkuð um minniháttar slys í gær

Þrjár konur á níræðisaldri voru fluttar undir læknishendur í Reykjavík í gær. Tvær þeirra duttu í hálku og voru fluttar á slysadeild. Sú þriðja datt í Kringlunni. Þá skarst maður á tíræðisaldri á höfði þegar hann féll í Austurveri og þurfti læknisaðstoð. Fimm ára drengur rann á tré á skíðum í Fossvogi í gær. Hann var með hjálm en fékk stóra kúlu á ennið.

Lélegur brandari

Tuttugu og níu ára gamall Kaupmannahafnarbúi hefur verið dæmdur í tíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að segja að hann væri með skammbyssu. Það þótti lélegur brandari á Kastrup flugvelli, þar sem maðurinn var að fara um borð í flugvél til útlanda.

Varðskip á leið til bjargar fiskiskipi

Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú á leið suður fyrir Reykjanessskaga til að draga vélarvana fiskiskip í land. Gæslunni var tilkynnt um skipið út af Reykjanesi á þriðja tímanum í dag. Skipið er 70 tonna snurvoðabátur með fimm manna áhöfn. Það bilaði upp úr hádegi og liggur fyrir akkerum stutt frá landi.

Hætta á niðurföll stíflist

Búast má við miklu vatnsveðri þegar líður á daginn samfara hlýindum. Hætta er á að niðurföll stíflist en þau eru mörg hver eru full af ís eftir kuldakastið síðustu daga.

Fangelsi fyrir ofbeldi gegn lögreglumönnum

Kona á þrítugsaldri var í dag dæmd í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur lögreglumönnum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur og er skilorðsbundinn til fimm ára. Ákæra gegn karlmanni sem lést 11. þessa mánaðar var felld niður.

Íslendingar fara yngstir í klámið

Börn og unglingar á Norðurlöndunum eru stórfelldir klámneytendur og íslensk börn byrja langfyrst að skoða það. Samnorræn könnun náði til ungmenna á aldrinum 12-20 ára og þriðjungur þeirra skoðar klám nánast á hverjum einasta degi. Könnunin var gerð á vegum samtakanna NIKK sem er "Nordisk institut for kvinde- og könsforskning." Drengir skoða klám meira en stúlkur. Þeir eru oftast einir og helsti tilgangur þeirra að fróa sér. Stúlkur skoða aðallega klám vegna þess að þær eru forvitnar, eða bara sér til gamans

Rúta með 30 unglingum fauk útaf

Rúta með um þrjátíu unglinga innanborðs fauk útaf Suðurlandsvegi vestan Markafljót skömmu fyrir hádegi. Engan sakaði. Um borð í rútunni voru erlendir nemar á leið frá Reykjavík á Vík í Mýrdal.

Yfirbygging fauk af flutningabíl

Yfirbygging fauk af flutningabíl á tvo fólksbíla á Reykjanesbrautinni við Ásvelli í Hafnarfirði á öðrum tímanum. Ekki er talið að nein alvarleg slys hafi orðið á fólki. Miklar umferðatafir eru á Reykjanesbrautinni í átt til vesturs vegna óhappsins.

Kinnbeinin orsökuðu hrakfarir

Kínverskur maður lét minnnka kinnbeinin í lýtaaðgerð til að eiginkonan myndi lifa lengur. Spákonur sögðu Lang Qiang að konan myndi deyja á undan honum, vegna kinnbeinanna. Lang var sannfærður um að það væri rétt þar sem konan var einstaklega óheppin, en hann ekki.

Suðurlandsvegur opinn á ný - Ekkert ferðaveður enn

Suðurlandsvegur hefur verið opnaður aftur. Honum var lokað á tólfta tímanum vegna ófærðar. Björgunarsveitarmenn hafa þurft að aðstoða ökumenn sem lent hafa í vandræðum vegna veðursins. Vonskuveður er víða á Vesturlandi og Norðurlandi vestra, ekki ferðaveður og versnandi færð, segir Vegagerðin.

Strætó fauk út af á Kjalanesi

Fimmtíu manna rúta með sjö manns innanborðs fauk út af á Kjalarnesi á ellefta tímanum í morgun. Atvikið átti sér stað rétt ofan við Hvalfjarðargöngin í snarpri vindhviðu. Farþega og ökumann sakaði ekki og engar skemmdir urðu á bifreiðinni, sem er í eigu Teits Jónassonar. Fyrirtækið sér um áætlunarferðir á Kjalarnesi fyrir Strætó bs.

Sjá næstu 50 fréttir