Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telur meirihluta hlynntan virkjunum Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps telur að meirihluti heimamanna sé hlynntur fyrirhuguðum virkjunum í Þjórsá. Hann segir utansveitarfólk hafa verið í meirihluta á fjölmennum fundi í félagsheimilinu Árnesi um síðustu helgi. 14.2.2007 12:30
Unglingaofbeldi viðgekkst í Kópavogi Gróft ofbeldi gegn unglingum viðgekkst á unglingaheimilinu í Kópavogi á áttunda áratugnum. Þetta segir fyrrverandi starfsmaður, sem segir að fara verði ítarlega yfir starfsemina þar á árum áður. Hann nefnir meðal annars dæmi af dreng sem vistaður var á heimilinu í lengri tíma og mátti þola ítrekað ofbeldi. Nánar verður fjallað um málið í Íslandi í dag. 14.2.2007 12:12
Gríðarlegar skemmdir á bílum í Hafnarfirði Gríðarleg skemmdarverk voru unnin á tugum og jafnvel hundruðum bíla í Hafnarfirði í nótt og enn streyma tilkynningar til lögreglu um ný og ný tilvik. Nú þegar er talið að tjónið nemi tugum milljóna króna. 14.2.2007 12:03
Tvær áhafnir á þremur skipum Vinnslustöðin í Eyjum ætlar á næstu dögum að gera út þrjú skip með tveimur áhöfnum. Þá munu tvö skip verða að veiðum á meðan landað er úr því þriðja. Haft er eftir Guðna Ingvari Guðnasyni útgerðarstjóra á vefnum eyjar.net að þetta gerist helst meðan verið er að vinna hrogn úr loðnunni. 14.2.2007 11:35
Engum eldflaugum beint gegn Rússum Forseti Tékklands sagði í dag að ef Tékkar tækju þátt í eldflaugavörnum Bandaríkjanna, væri þeim flaugum ekki beint gegn Rússlandi. Rússar hafa brugðist ókvæða við beiðni Bandaríkjanna um að fá að setja upp ratsjárstöðvar og eldflaugar í Tékklandi og Póllandi. Bandaríkjamenn segja að tilgangurinn sé að verjast eldflaugaárásum frá Íran og Norður-Kóreu. 14.2.2007 11:31
Minni hljóðmengun af tengivegi við Álafosskvísl Tengibrautin við Helgafellshverfi í Mosfellsbæ verður lækkuð um tvo metra næst Álafosskvosinni og færð fjær Varmá. Mosfellsbær hefur lagt sérstaka áherslu á að takmarka hljóðmengun frá veginum. Í fréttatilkynningu frá bænum segir að strangari reglum verði fylgt en lög kveði á um. 14.2.2007 11:09
Ný frímerki Íslandspóstur gefur á morgun út ný frímerki í með myndum af fyrsta togara sem smíðaður var fyrir Íslendinga, í tilefni 100 ára afmælis Kvenréttindafélags Íslands og smáörk í tilefni af Alþjóðlega heimskautaárinu. Þá verður kynnt sameiginleg útgáfa Íslands, Grænlands og Færeyja vegna heimskautaárs. 14.2.2007 10:58
Meiningarlausar spurningar saksóknara Deilt var á Sigurð Tómas Magnússon settan saksóknara í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að fylgja ekki eftir áætlun um yfirheyrslu vitna í Baugsmálinu. Jakob Möller lögmaður Tryggva Jónssonar sagði um mikil afglöp að ræða hjá settum saksóknara og að menn þyrftu að sitja undir; “sumpart meiningarlausum spurningum.” 14.2.2007 10:58
Evrópuþingmenn rífast um fangaflug Evrópskir þingmenn tókust á um það, í dag, hvort þeir hefðu nægar sannanir til þess að saka ríkisstjórnir landa sinna um að hafa átt samstarf við bandarísku leyniþjónustuna CIA um fangaflug til aðildarríkja Evrópusambandsins. Leyniþjónustan er sökuð um að hafa geymt meinta hryðjuverkamenn í leynifangelsum í Evrópu, og flogið með þá til landa þar sem þeir voru pyntaðir. 14.2.2007 10:53
Of heitt í kælum Hitastig er að jafnaði um fjórðungi of hátt í kælum matvöruverslana á höfuðborgarsvæðinu og meira en helmingi of hátt að jafnaði í frystum. Þetta kemur fram í könnun starfsmanna Neytendasamtakanna á hitastigi í kælum og frystum í matvöruverslunum. 14.2.2007 10:47
Tveggja ára stúlka ætlaði ein til Egyptalands Tveggja ára stúlka sem hljóp frá foreldrum sínum á flugvelli í Þýskalandi tókst að koma sér um borð í flugvél á leið til Egyptalands. Foreldrar stúlkunnar létu vita um leið og þeir tóku eftir því að hún væri horfin en þau voru þá að fara um borð í flugvél á leið til Túnis. 13.2.2007 23:38
Dauðvona maður vann milljón dollara Wayne Schenk, 51 árs, finnst hann ekki vera mjög heppinn maður þrátt fyrir að hafa unnið milljón dollara, eða um 68 milljónir íslenskra króna, í skafmiðahappadrætti New York ríkis. Hann greindist nefnilega með banvænt krabbamein aðeins fimm vikum áður. 13.2.2007 23:13
Olíufyrirtæki borgar 13,5 milljarða í skaðabætur Hollenska olíufyrirtækið Trafigura náði í dag samkomulagi um að borga stjórnvöldum í Fílabeinsströndinni 198 milljónir dollara, eða um 13,5 milljarða íslenskra króna, vegna mengunar sem fyrirtækið varð valdur að. Þúsundir veiktust vegna mengunarinnar. Fyrirtækið sendi skip þangað til þess að losa úrgang og reyndist hann vera eitraður. 13.2.2007 22:44
Demókratar á móti fjölgun hermanna í Írak Demókratar í fulltrúadeild bandaríska þingsins hófu í dag umræður um fjölgun hermanna í Írak. Þeir segja að almenningur í Bandaríkjunum hafi misst trúna á stríðið á meðan repúblikanar vara við því að grafa undan stríðinu gegn hryðjuverkum. Umræðurnar verða í þrjá daga og snúast þær um tillögu sem gagnrýnir harðlega fjölgun hermanna í Írak. 13.2.2007 22:31
Stjórnvöld í Suður-Afríku skila landi Stjórnvöld í Suður-Afríku hafa ákveðið að herða róðurinn til þess að bæta efnahag svarta hluta þjóðarinnar. Hluti af þeim áætlunum snýst um að skila landi í eigu hvítra til svartra. 13.2.2007 21:49
Lifði af 3.600 metra fall Fallhlífastökkvari sem féll 3.600 metra til jarðar og lifði það af setti nýverið myndband af atvikinu á internetið. Á myndbandinu sést hvernig hann hrapar nær stjórnlaust til jarðar, og að því er virðist, dauða. 13.2.2007 21:38
Correa fær að halda stjórnarskrárþing Forseti Ekvador, Rafael Correa, vann í dag mikinn sigur á andstæðingum sínum í þinginu. Þingið samþykkti loks beiðni hans um að fá leyfi til þess að endurskrifa stjórnarskrá landsins. Þingið hafði ávallt verið á móti þeim hugmyndum Correa en hann hefur ekki eiginlegan þingflokk á bak við sig. Hann biðlaði þess í stað til almennings sem mótmæli afstöðu þingmanna og í dag samþykkti þingið loks tillögu Correa. 13.2.2007 21:08
Írakar nýta sér tæknina til að komast af Almenningur í Írak er farinn að nota forritið Google Earth til þess að komast hjá ofbeldi í Bagdad. Sumir hafa meira að segja sett upp vefsíður þar sem bent er á hættuleg svæði. 13.2.2007 20:49
Ný stjórn skipuð hjá Ríkisútvarpinu ohf. Ný stjórn Ríkisútvarpsins ohf, hefur verið skipuð. Í henni sitja Kristín Edwald, Páll Magnússon og Ómar Benediktsson, Svanhildur Kaaber og Jón Ásgeir Sigurðsson. Allir flokkar á Alþingi komu að því að skipa í stjórnina, sem er kosin til eins árs. 13.2.2007 20:15
Hof skal húsið heita Menningarhúsið sem nú er í smíðum á Akureyri hefur fengið nafn. Hof skal það heita. Efnt var til opinnar samkeppni um hvað húsið skyldi heita. Í dag var niðurstaðan kunngörð. Þau Aðalbjörg Sigmarsdóttir og Heimir Kristinsson skiluðu bæði inn sama nafni og fengu að launum ársmiða á viðburði hússins. 13.2.2007 20:15
Meistarinn lætur gott af sér leiða Fern samtök fengu í dag afhenta tæpa milljón króna sem safnað var í tveimur þáttum af Meistaranum. Undanfarin fimmtudagskvöld hefur sjónvarpsþátturinn Meistarinn verið með öðru sniði, með liðakeppni og greitt sérstaklega fyrir stig. Með þessu móti safnaðist tæp milljón króna og í dag fengu fern samtök að njóta góðs af því. 13.2.2007 20:00
Lausn í kjarnorkudeilu Norður-Kóreumanna Langvinnri deilu um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumenn virðist nú lokið með fyrsta skrefi stjórnvalda í Pyongyang að kjarnorkuvopnalausum Kóreuskaga. Samkvæmt nýju samkomulagi verður áætlunin lögð á hilluna í skiptum fyrir eldsneyti. 13.2.2007 19:45
Áfallateymi stofnað fyrir fórnarlömb Byrgisins Enn fjölgar kærum á hendur Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins. Sex stúlkur hafa nú lagt fram kæru vegna kynferðislegrar misnotkunar og áreitis. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að komið yrði á fót áfallateymi á Landspítalanum sem liðsinni og leiðbeini fyrrverandi skjólstæðingum Byrgisins. ,,Trúi því þegar ég sé það" segir ein þeirra stúlkna sem kært hefur Guðmund. 13.2.2007 19:45
Rannsóknarnefnd skipuð Það á einnig að greiða aðgengi þeirra manna sem vistaðir voru í Breiðavík sem börn að sálfræðiþjónustu. Þetta tilkynnti forsætisráðherra í morgun og einnig að skipa eigi nefnd til að rannsaka þau barnaheimili sem rekin voru á árum áður. 13.2.2007 19:45
Hvíldarbelgir vinsælir í Bandaríkjunum Það er ekki amalegt að geta tekið sér miðdegislúr í vinnunni til að hlaða batteríin fyrir átök síðdegisins. Fyrirtæki í Bandaríkjunum hefur hannað sérstaka hvíldarbelgi sem nú eru kynntir hjá hverju stórfyrirtækinu á eftir öðru þar í landi. 13.2.2007 19:30
Utanríkiráðuneytið styrkir verkefni gegn barnahermennsku Utanríksráðherra hefur ákveðið að styrkja verkefni Rauða krossins vegna baráttunnar gegn barnahermennsku í Síerra Leóne um 10,6 m.kr. Framlagið rennur að hluta til byggingar endurhæfingarathvarfa þar sem börn og ungmenni fá bæði kennslu og sálræna aðstoð vegna afleiðinga borgarastyrjaldarinnar. Sérstök athvörf verða byggð fyrir ungar mæður þar sem þær fá aðstöðu fyrir börn sín meðan þær stunda nám. 13.2.2007 19:30
Ætlar að deyja með reisn Þrítug bresk kona berst nú fyrir því að læknar í Bretlandi veiti henni meðferð sem mun draga hana til dauða. Hún þjáist af tveimur alvarlegum sjúkdómum og læknar segja hana ekki lifa út árið. Sjálf segist hún vilja ráða brottfarartíma sínum og deyja með reisn. 13.2.2007 19:15
Hvalaverndarsinnar mættu ekki Nær helmingur aðildarþjóða Alþjóðahvalveiðiráðsins situr ekki aukafund þess í Japan. Þar á að reyna að bæta ákvarðanatökuferli innan ráðsins. Á sama tíma harðna átök verndarsinna og japanska flotans í Suður-Íshafi. 13.2.2007 19:00
Vill að Alþingi fresti breytingum á samkeppnislögum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins vill að Alþingi fresti fram á haust afgreiðslu á frumvarpi til breytinga á samkeppnislögum, sem hann segir ráðast af refsigleði. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra vill ekki fresta málinu en útilokar ekki breytingar á frumvarpinu í meðförum þingsins. 13.2.2007 18:30
Deilum um sölu Íslenskra aðalverktaka vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá dómi kröfu eigenda Trésmiðju Snorra Hjaltasonar og JB byggingafélags um að viðurkennt yrði að útboð vegna sölu á tæplega fjörutíu prósenta hlut ríkisins í íslenskum aðalverktökum væri ólögmætt. Þá var íslenska ríkið sýknað af kröfu stefnenda um skaðabætur. 13.2.2007 18:30
Þögul mótmælastaða kennara Svekktir og sárir kennarar efndu til þögullar mótmælastöðu á Lækjartorgi í dag. Kennarar hugleiða uppsögn samninga eftir nítján fundi með launanefnd sveitarfélaga sem engu hafa skilað, segir formaður Félags grunnskólakennara. 13.2.2007 18:30
Romney tilkynnir um framboð til forseta Bandaríkjanna Mitt Romney hefur lýst því yfir að hann ætli að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Hann er fyrsti frambjóðandi repúblikana til þess að staðfesta framboð sitt. 13.2.2007 18:24
Frá afturvirkri stefnubreytingu í stóriðjumálum til framvirkrar þjóðarsáttar Iðnaðarráðherra var sakaður um að misnota orðið þjóðarsátt í kynningu á frumvarpi um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Ráðherrann mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í morgun. Vinstri grænir óskuðu eftir tvöföldum ræðutíma við fyrstu umræðu málsins vegna mikilvægis þess. 13.2.2007 18:15
Yfirheyrslum enn ólokið Nú er ljóst yfirheyrslum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, lýkur ekki á morgun eins og til stóð. Saksóknari á enn eftir að spyrja út í nokkra ákæruliði og segist þurfa lengri tíma. Eftir hádegi í dag var þriðji kafli ákærunnar til umfjöllunar, nánar tiltekið ákæruliðir 10 til 13. Þeir snúa að meintum bókhaldsbrotum Jóns Ásgeirs og að hluta til Tryggva Jónssonar, fyrrum aðstoðarforstjóra Baugs. 13.2.2007 17:12
Fæðingarorlofsgreiðslur leiðréttar Reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks hefur verið breytt. Horfið hefur verið frá því að greiðslur úr sjóðnum vegna fyrra fæðingarorlofs verði lagðar til grundvallar við útreikning greiðslna úr sjóðnum í síðara fæðingarorlofi. 13.2.2007 16:46
al-Kaída að verki í Alsír Hryðjuverkahópur tengdur al-Kaída hefur lýst ábyrgð á sprengingum í Alsír í dag á hendur sér. Alls sprungu sjö sprengjur í námunda við fjórar lögreglustöðvar. Talið er að sex manns hafi látist og 13 slasast í sprengingunum. Sprengjurnar sprungu samtímis. Sjónvarpsstöðin al-JAzeera skýrði frá þessu í dag. 13.2.2007 16:26
Bifreið hafnaði á vegg Litlu munaði þegar þrítug kona missti stjórn á jepplingi í austurborginni síðdegis í dag. Bíllinn fór upp nokkrar tröppur og stöðvaðist á vegg við hliðina á inngang í verslun. Engan sakaði en bíllinn er þó nokkuð skemmdur. 13.2.2007 16:23
Ólöglegir innflytjendur geta fengið kreditkort Bank of America er byrjaður að bjóða kreditkort til viðskiptavina sinna sem hafa ekki kennitölu. Undanfarin ár hafa bankar boðið reikninga og jafnvel lán til fólks sem ekki hefur kennitölu . En kreditkort hefur það ekki getað fengið fyrr en nú. 13.2.2007 16:12
Vestfirðingar fagna jarðgöngum Bæjarstjórnir Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkurkaupstaðar fögnuðu í dag ákvörðun samgönguráðherra að ráðast í gerð jarðganga milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar um svonefnda Skarfaskersleið, frá Ósi við Bolungarvík að Skarfaskeri í Hnífsdal. 13.2.2007 16:04
Kennarar mótmæla launum Mótmæli á sjötta tug grunnskólakennara fóru friðsamlega fram í miðbæ Reykjavíkur í dag. Kennarar í Fellaskóla efndu til mótmælanna en þeir leggja áherslu á launakjör. Fylkingin gekk frá Lækjartorgi að Austurvelli og Ráðhúsinu. 13.2.2007 15:54
Írak lokar landamærum sínum Írakar ætla að loka landamærum sínum við Sýrland og Íran til þess að reyna að koma í veg fyrir þá öldu ofbeldis sem gengið hefur yfir landið að undanförnu. Einnig á að lengja útivistarbann sem hefur ríkt í höfuðborginni á kvöldin. Báðar aðgerðirnar eru hluti af nýju skipulagi Íraka og Bandaríkjamanna sem á að binda endi á ofbeldið í landinu. 13.2.2007 15:46
Tvö risafyrirtæki hafa áhuga á Alcoa Breska dagblaðið the Times segir að risafyrirtækin BH Billiton og Rio Tinto séu hvort í sínu lagi að skoða yfirtöku á Alcoa, og talað um kaupverðið í kringum fjörutíu milljarða dollara. Áhugi fyrirtækjanna tveggja skapast af metverði sem nú fæst fyrir ál. 13.2.2007 15:38
Þjóðin getur tekið í stóriðjubremsuna Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu voru til umræðu á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna sagðist vona að málið kæmi til kasta í kosningum: "Þjóðin getur tekið í bremsuna í maí." Steingrímur talaði hart gegn stóriðjuáformum ríkisstjórnarinnar og sagði að þjóðin myndi rísa upp gegn ofnotkun á landinu; "Það þarf ekki að færa þessar fórnir." 13.2.2007 15:31
Ekki hægt að stöðva Írana Íranar eiga eftir að geta auðgað nóg af úrani til þess að nota í kjarnorkusprengju og það er lítið hægt að gera til þess að koma í veg fyrir það. Þetta kemur fram í innanhússkýrslu Evrópusambandsins. Financial Times sagði frá þessu á vefsíðu sinni í dag. 13.2.2007 15:17
Spurningum Gests frestað Dómari í Baugsmálinu ákvað að fresta spurningum Gests Jónssonar til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vegna 17. ákæruliðar í Baugsmálinu. Sá liður felur í sér meiri háttar bókhaldsbrot Baugs vegna Kaupþings í Luxemborg á árinu 1999. Þótti Arngrími Ísberg dómara eðlilegt að taka þær spurningar samhliða öðrum ákæruliðum síðar. 13.2.2007 15:07