Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ÞSSÍ og RKÍ vinna áfram saman í Mósambík Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Rauði kross Íslands skrifuðu í dag undir nýjan samstarfssamning um verkefni á sviði heilbrigðismála í Mósambík. Samtökin hafa starfað saman þar í landi frá árinu 1999 þegar ráðist var í byggingu heilsugæslustöðvar í Hindane í Maputo-héraði en hún þjónar nú 5 þúsund íbúum á svæðinu. 20.9.2006 15:30
Ófært um Emstruleið inn á Fjallabaksleið syðri Ófært er úr Fljótshlíðinni um Emstruleið inn á Fjallabaksleið syðri vegna vatnavaxta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar er einnig minnt á að vegna vinnu í Hvalfjarðargöngum verða göngin lokuð yfir nóttina þessa viku, frá miðnætti til kl. 6 að morgni, fram á föstudag. 20.9.2006 15:15
Bakkaði yfir hóp framhaldsskólanema Sautján ára piltur lést og fjórir slösuðust alvarlega þegar rútu var bakkað inn í biðskýli á umferðarmiðstöðinni í Svendborg í Danmörku. Haft er eftir lögreglu á fréttavef Politiken að rútan hafi verið að leggja af stað en bílstjórinn óvart verið með hana í bakkgír og því ekið yfir hóp framhaldsskólanema frá Kaupmannahöfn sem þar var staddur ásamt kennara sínum, en hann slasaðist mikið í óhappinu. 20.9.2006 15:02
Telur sprengingu í Gautaborg vera morðtilræði Lögreglan Gautaborg telur að sprenging í bíl sem varð við Vasatorgið í borginni um hádegisbilið í dag hafi verið morðtilræði. Tveir vegfarendur slösuðust lítils háttar í sprengingunni og sex aðrir bílar brunnu til kaldra kola eftir að eldurinn úr sprengingunni læsti sig í þá. 20.9.2006 14:45
Söfnuðu 300 þúsund fyrir Þroskahjálp á Suðurnesjum Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Fríhöfnin ehf. og Golfklúbbur Suðurnesja hafa safnað 300 þúsund krónum fyrir Þroskahjálp á Suðurnesjum. 20.9.2006 14:30
Þrettán létust í námuslysi í Úkraínu Þrettán námuverkamenn létust og þrjátíu og sex særðust þegar sprenging varð í kolanámu í austurhluta Úkraínu í morgun. Fjögur hundruð voru að störfum í námunum þegar sprengingin varð og þurfti að rýma námurnar. 20.9.2006 14:15
Pendúlhreyfing tók stjórnina af ökumanni Svonefnd pendúlhreyfing á hjólhýsi, sem jepplingur dró á eftir sér á Þrengslavegi í nótt, tók stjórnina af ökumanni jepplingsins og munaði minnstu að stórslys hlytist af. Margir ökumenn virðast hafa upplifað svipaða reynslu. 20.9.2006 14:00
Bilið á milli hinna launahæstu og launalægstu eykst Bilið á milli launahæstu og launalægstu félagsmanna VR hefur aukist á síðustu árum og engin breyting hefur orðið á launamun kynjanna í fjögur ár. Þetta sýnir ný launakönnun VR sem greint er frá á vef félagsins. 20.9.2006 13:45
Actavis orðað við yfirtöku á áströlsku lyfjafyrirtæki Actavis er orðað við yfirtöku á ástralska samheitalyfjafyrirtækinu Mayne Pharma í frétt Dow Jones. Viðskipti með hlutabréf í ástralska fyrirtækinu voru stöðvuð í gær vegna hugsanlegs 140 milljarða króna yfirtökutilboðs en ekki liggur fyrir frá hverjum. 20.9.2006 13:30
Á fimmta hundrað eiga von á sektum 420 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að virða ekki 60 kílómetra leyfilegan hámarkshraða á Hringbrautinni um síðustu helgi. Brot þeirra náðust á löggæslumyndavél lögreglunnar í Reykjavík. Sektir geta numið allt að 60 þúsund krónum en þeir sem óku á 110 kílómetra hraða á klukkustund og þar yfir, fá að auki punkta í ökuferilsskrá. 20.9.2006 13:26
Telja utanríkisstefnu Japana verða herskárri Shinzo Abe verður næsti forsætisráðherra Japans en hann mun taka við stjórnartaumunum af Junichiro Koizumi í næstu viku. Búist er við að Abe muni reka herskárri utanríkisstefnu en forveri sinn. 20.9.2006 13:15
Karl gefur kost á sér í forystusæti í Norðvesturkjördæmi Karl V. Matthíasson, prestur og fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta til annað sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. 20.9.2006 13:00
Ábyrgðin hjá fjármálaráðuneytinu „Fjármálaráðuneytið verður að hysja upp um sig buxurnar,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Hún segir sjúkraliða á Landspítalanum-háskólasjúkrahúsi vera langþreytta á álagi og manneklu á sjúkrahúsinu. 20.9.2006 12:45
Ofbeldismenn verði fjarlægðir tafarlaust af heimilum Frumvörp um nálgunarbann og meðferð sakamála sem dómsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í gær ganga ekki nógu langt að mati Vinstri-grænna og talsmanna Samtaka um Kvennaathvarfs. Þeir vilja meðal annars að ofbeldismenn verði fjarlægðir tafarlaust af heimilum 20.9.2006 12:34
Nýr forsætisráðherra verði skipaður innan tveggja vikna Leiðtogar herforingjanna í Taílandi segja að nýr forsætisráðherra verði skipaður innan tveggja vikna. Þeir segja aftur á móti að í það minnsta ár muni líða þar til kosningar verði haldnar í landinu. 20.9.2006 12:15
Pólverjar flykkjast til vinnu á Vesturlöndum Dæmi eru um að pólskar mæður skilji börn sín eftir á munaðarleysingjahælum áður en þær halda til Vesturlanda í atvinnuleit. Margvísleg þjóðfélagsvandamál steðja að pólsku þjóðinni vegna útrásar vinnuafls þaðan til Vesturlanda. 20.9.2006 12:00
Íslendingar kusu Magna fyrir þrjár milljónir Íslendingar sendu SMS-skilaboð í símakosningum úrslitaþáttar Rockstar: Supernova fyrir tæplega þrjár millljónir króna, en eins og kunnugt er var Magni Ásgeirsson þar meðal keppenda. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. 20.9.2006 11:48
Önnur bílsprengingin í Gautaborg á tveimur dögum Vegfarandi slasaðist þegar öflug sprenging varð í bíl sem stóð við Vasatorg í Gautaborg í Svíþjóð í morgun. Í kjölfarið kviknaði í að minnsta kosti tveimur öðrum bílum og lagði mikinnn reyk yfir svæðið. 20.9.2006 11:41
Shinawatra á leið til Taílands Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra Taílands, hefur leigt rússneska flugvél og er nú á leið til síns heima eftir að herforingjar rændu völdum í landinu í gær. 20.9.2006 11:15
Öflug sprenging í Gautaborg Öflug sprenging varð í bíl sem stóð við Vasatorg í Gautaborg í Svíþjóð nú fyrir stundu. Í kjölfarið kviknaði í fjórum bílum og leggur því mikinn reyk yfir svæðið. Að sögn Aftonbladet var maður inni í bílnum sem sprakk en enn er óljóst af hvaða völdum sprengining var. 20.9.2006 10:59
Slys undirstriki mikilvægi Sundabrautar Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir umferðartafir sem urðu í gær vegna þess að vörubíll með tengivagn valt í Ártúnsbrekkunni, undirstika mikilvægi þess að Sundabraut komi án tafar og Öskjuhliðargöng verði forgangsverkefni fremur en mislæg gatnamót á Kringlumýrarbraut og Miklubraut. 20.9.2006 10:45
Meiðsl reyndust vera minniháttar Ekið var á unga stúlku á Háaleitisbraut nálægt Fellsmúla um klukkan átta í morgun. Stúlkan var flutt á slysadeild Landspítalans en meiðsl hennar reyndust vera miniháttar. 20.9.2006 10:23
SHÍ og FSHA starfa saman Stúdentaráð Háskóla Íslands og Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning. Meginmarkmið með honum er að sýna samstöðu innan háskólanna þegar unnið er að stórum málum er varða nemendur beggja háskólanna eftir því sem segir í tilkynningu frá félögunum. 20.9.2006 10:15
Nýtt afl og Frjálslyndir sameinast Forystumenn Nýs afls og Frjálslynda flokksins hafa komist að samkomulagi um að sameina flokkana. Hefur forysta Nýs afls ákveðið að samtökunum verði breytt úr stjórnmálaflokki og hvetur stjórnin félagsmenn í Nýju afli til að ganga í Frjálslynda flokkinn. 20.9.2006 10:00
Námuverkamanna saknað eftir sprengingu í Kasakstan Fjörtíu og þriggja námuverkmanna er saknað eftir sprengingu í námu í Kasakstan í morgun. Rússneska fréttastofan Interfax segir þá alla látna en eigendur námunnar, Mittal Steel hafa ekki viljað staðfesta það. Talið er að um metangassprengingu hafi verið að ræða en það hefur ekki fengist staðfest. 20.9.2006 09:42
Máli á hendur Zuma vísað frá Dómari í Suður-Afríku hefur vísað frá ákærum á hendur Jacob Zuma, fyrrverandi aðstoðarforseta landsins, vegna meintrar spillingar í embætti. 20.9.2006 09:34
Gefur kost á sér í sjötta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjötta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Kolbrún var í níunda sæti á framboðslista sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir síðustu alþingiskosningar. 20.9.2006 09:12
Kosningar líklega ekki fyrr en eftir ár Leiðtogar hersins í Taílandi segja ólíklegt að hægt verði að halda lýðræðislegar kosningar í landinu fyrr en í september á næsta ári. Ástæðan sé sú að mikinn tíma tekur að gera breytingar á stjórnarskránni. 20.9.2006 08:46
Krefjast þess að kjör verði í samræmi við nýja samninga Trúnaðarmenn sjúkraliða við Landspítalann- háskólasjúkrahús krefjast þess að gerður verði nýr stofnanasamningur við sjúkraliða LSH. Trúnaðarmennirnir funduðu í gær og krefjast þess jafnframt að kjör sjúkraliða hjá LSH verði í samræmi við nýja samninga við aðrar starfsgreinar í félags- og heilbrigðisgeiranum. 20.9.2006 08:45
Skaut kött nágrannans Karlmaður á Egilsstöðum hefur verið kærður til lögreglu fyrir að skjóta heimiliskött nágranna síns í bakgarði eigandans í vor. 20.9.2006 08:30
Búið að finna silfurberg til að húða Þjóðleikhúsið að utan Búið er að finna silfurberg til að húða Þjóðleikhúsið að utan en viðgerðir hafa staðið yfir á leikhúsinu um skeið. Bergtegundin var notuð þegar húsið var byggt en vegna þess hversu vandfundin hún er, var jafnvel talið að notast þyrfti við önnur úrræði. Samningar hafa tekist um kaup á fimm tonnum af silfurbergi af Braga Björnssyni, landeigand en silfurbergið verður sótt í Suðurfjall í Breiðdalnum. Það verður ekki átakalaust að ná silfurbergið því það er í talsverðri hæð og flytja þarf vélar upp í fjallið svo hægt sé að ná silfurberginu úr námunni. 20.9.2006 08:30
Abe væntanlegur forsætisráðherra Japans Shinxo Abe verður næsti forsætisráðherra Japans. Abe var nýlega kjörinn formaður flokks frjálslyndra demókrata og tekur hann við af Junichiro Koizumi. 20.9.2006 08:27
Ekið á unga stúlku Ekið var á unga stúlku á Háaleitisbraut nálægt Fellsmúla um klukkan átta í morgun. Lögregla og sjúkrabíll eru komin á staðinn. Ekki er vitað um meiðsl stúlkunnar að svo stöddu en hún er með meðvitund. 20.9.2006 08:18
Margir á minningarathöfn um Steve Irwin Hollywood stjörnur og stjórnmálamenn voru meðal gesta á minningarathöfn um sjónvarpsmanninn og krókódílasérfræðinginn Steve Irwin, sem haldin var í ástralska dýragarðinum í bænum Beerwah á austurströnd Ástralíu í gær. 20.9.2006 08:15
Sakar Bandaríkjamenn um að misnota öryggisráðið Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sakaði í nótt Bandaríkjamenn og Breta um að misnota öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. 20.9.2006 08:13
Herforingjastjórnin tekin að styrkja völd sín Leiðtogar hersins í Taílandi hófu í morgun að styrkja völd sín eftir að Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra Taílands, var steypt af stóli í herforingjabyltingu í gær. 20.9.2006 08:10
Helmingur ráðherra konur Fredrik Reinfeldt, verðandi forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður Hægriflokksins, fékk í gær formlega í hendur umboð til stjórnarmyndunar. Lýsti hann því yfir að hann myndi mynda samsteypustjórn borgaralegu flokkanna fjögurra, sem gengu til kosninga með sameiginlega stefnuskrá og yfirlýstan vilja til stjórnarsamstarfs. 20.9.2006 08:00
Refsivert að auglýsa vændi Refsing fyrir að stunda vændi fellur niður en í staðinn gert refsivert að auglýsa vændi. Þá verður refsing fyrir samræði og önnur kynferðismök við barn yngra en fjórtán ára þyngd, samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra. 20.9.2006 08:00
Hjólhýsi snéri jeppling í hálf hring Ökumaður jepplings lenti í vandræðum á Þrengslavegi seint í nótt þegar hjólhýsi, sem hann dró, fór að slást til beggja hliða og sveiflan óx þar til hún snéri jepplingnum í hálf hring á veginum. Í sama mund bar að fólksbíl á móti, en ökumanni hans tókst ekki að koma í veg fyrir árekstur, þótt hann beindi bílnum í ofboði út af veginum. Skullu bílanrir haraklega saman og stór skemmdust, en ökumennirnir sluppu ómeiddir. Að sögn lögreglu eru fordæmi fyrir því að svona skjálftar, eða sveiflur komi á hjólhýsi og leiði til vandræða. 20.9.2006 08:00
Reinfeldt fær stjórnarmyndunarumboð Fredrik Reinfeldt, sigurvegara sænsku þingkosninganna, hefur verið falið að mynda ríkisstjórn fjögurra hægri flokka í Svíþjóð. Hann fór á fund Björns von Sydow, þingforseta, í dag. Þetta verður fyrsta meirihlutastjórn í Svíþjóð í rúma tvo áratugi. 19.9.2006 23:00
Ekki binda refsiaðgerðir við tiltekinn frest Chirac, Frakklandsforseti, sagðist í dag vera andvígur því að binda refisaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar Írana við tiltekinn frest. Hann sagði sig og Bush Bandaríkjaforseta á sömu skoðun um forsendur viðræðna við stjórnvöld í Teheran. 19.9.2006 22:45
Segja lýðræði komið aftur á hið fyrsta Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra Taílands, var steypt af stóli í herforingjabyltingu í dag. Leiðtogar úr klofningshópi hersins standa að baki valdaráninu og hafa lýst yfir stuðningi við konung landsins. Thaksin segist enn halda völdum og ætlar að snúa heim frá Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York hið fyrsta. 19.9.2006 22:30
Vill sjötta sætið í prófkjöri xD Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjötta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Kolbrún var í níunda sæti á framboðslista sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir síðustu alþingiskosningar. Nái hún sjötta sætinu hækkar hún sig töluvert: upp í þriðja sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. 19.9.2006 21:45
Athugun á gjaldfríum grunnskóla vísað til menntaráðs Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa vinstri grænna um skoðun möguleika á gjaldfríum grunnskóla verði vísað til menntaráðs. Flestir þeir sem tjáðu sig um málið í borgarstjórn í dag töldu hugmyndina ekki enn tímabæra en vildu samt umræðu um málið. 19.9.2006 21:30
Krefjast nýs samnings við sjúkraliða Trúnaðarmenn sjúkraliða við Landspítalann Háskólasjúkrahús krefjast þess að gerður verði nýr stofnanasamningur við sjúkraliða LSH. Trúnaðarmennirnir funduðu í dag og krefjast þess jafnframt að kjör sjúkraliða hjá LSH verði í samræmi við nýja samninga við aðrar starfsgreinar í félags- og heilbrigðisgeiranum. 19.9.2006 21:16