Fleiri fréttir

Kemur til greina að greiða fyrir álveri í Helguvík

Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir vel koma til greina að greiða fyrir framkvæmdum við álver í Helguvík. Þá segir hann ekkert því til fyrirstöðu að þrjú álver verði reist á Íslandi á næstu árum.

Skipulagsbreytingar í Seðlabankanum

Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar í Seðlabanka Íslands og tóku þær gildi 1. september. Peningamálasvið sem annaðist innlend viðskipti bankans og alþjóðasvið sem annaðist þau erlendu voru sameinuð undir nýtt svið, alþjóða- og markaðssvið sem Sturla Pálsson mun stýra.

Reynir að synda yfir Ermarsund á morgun

Sjósundkappinn Benedikt Lafleur reynir á morgun að synda yfir Ermarsund en hann hefur undanfarið dvalið í Englandi við æfingar fyrir sundið. Líklegt er að hann leggi af stað frá ströndum Englands um hálfníuleytið í fyrramálið.

Stöðug söluaukning á ostum og viðbiti

Stöðug söluaukning hefur verið í ostu og viðbiti á landinu það sem af er árinu eftir því sem fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Nemur söluaukningin sex komma einu prósenti í viðbiti en tæpum fimm prósentum í ostum.

Allt að 100 prósenta starfsmannavelta í verslunum

Svipuð eftirspurn er eftir starfsfólki í verslanir og síðasta haust eftir því sem fram kemur í fréttabréfi Samtaka verslunar- og þjónustu. Þar segir einnig að algengt sé að starfsmannavelta í dagvöruverslunum sé um hundrað prósent, sem jafngildir því að allir starfsmenn verslunar láti af störfum á hverju ári og nýir séu ráðnir í staðinn.

Tveir í gæsluvarðhald og einangrun

Tveir þeirra sjö sem eru í haldi dönsku lögreglunnar fyrir meinta hryðjuverkaskipulagningu í úthverfi Óðinsvéa í gær voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í einangrun í nótt.

Ríflega helmingi fleiri atkvæði í Rockstar nú en í síðustu viku

Rúmlega helmingi fleiri atkvæði atkvæði bárust í nótt í SMS-kosningu vegna raunveruleikaþáttarins Rockstar:Supernova en í síðustu viku að sögn Björns Sigurðssonar, dagskrárstjóra Skjá eins, sem sýnir þættina. Þess má geta að síðasta vika var algjör metvika.

Tafir á nokkrum stöðum vegna framkvæmda

Milli kl. 9 og 12 í dag mun Orkubú Vestfjarða taka rafmagnið af göngunum um Breiðadals- og Botnsheiði vegna raflínutenginga. Því verða á þessum tíma aðeins neyðarljós við útskot og ökumenn þurfa að gæta ítrustu varúðar við akstur í göngunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Dæmd til dauða fyrir heróínsmygl

Áfrýjunardómstóll í Indónesíu hefur dæmt fjögur áströlsk ungmenni til dauða fyrir tilraun þeirra til að smygla heróíni frá indónesísku ferðamannaeynni Balí til Ástralíu á síðasta ári.

Kiko Japansprinsessa eignast son

Kiko Japansprinsessa eignaðist son í gærkvöldi japönsku þjóðinni til mikillar gleði og keisarafjölskyldunni til talsvers léttis. Sveinbarnið er fyrsti strákurinn sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í 40 ár og slær því á allar áhyggjur um erfingjaskort að keisarakrúnunni en lögum samkvæmt mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina.

Auka álag á sorphirðumenn og bæjarstarfsmenn

Danskir sorphirðumenn eru að kikna undan magni fríblaða sem hefur bæst ofan á það sorp sem fyrir var, síðan farið var að bera fríblöðin Dato og 24/7 út á heimili. Einnig segja bæjarstarfsmenn sem sjá um að halda götum og almenningsgörðum hreinum að starf þeirra hafi aukist til muna með tilkomu fríblaðanna, og þetta ástand versni til muna þegar eitthvað hreyfi vind. Deildarstjóri vega- og garðaþjónustu Árhúsa segist ekki hlakka til þegar þriðja fríblaðið bætist svo í hópinn í októberbyrjun.

Gagnrýna ákvörðun meirihlutans í leikskólamálum

Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri-grænna og Frjálslyndra mótmæla ákvörðun meirihlutans að kljúfa leikskólamál frá öðrum menntamálum í borginni og lögðu fram bókun þess efnis á borgarráðsfundi í gær. Í fréttatilkynningu frá Vinstri-grænum segir að borgarráði hafi borist yfir 700 undirskriftir starfsfólks leikskólanna, þar sem ákvörðuninni er mótmælt. Því skorar minnihlutinn á meirihlutann að málefnið verði rætt ofan í kjölinn og ákvarðanir verði teknar í sátt við hagsmunaaðila líkt og frekast er unnt.

Nálgunarbann ekki nógu skilvirkt tæki

Fagfólk er tekur á heimilisofbeldi er sammála um að breyta verði löggjöfinni um nálgunarbann. Ekki nógu gott hjálpartæki fyrir lögreglu, segir Andrés Ragnarsson. Ágúst Ólafur vill sérstakt lagaákvæði um heimilisofbeldi.

Dýrari símtöl í símaskrána

Gjaldskrá fyrir upplýsinganúmerin 118 og 1818 og talsamband við útlönd hækkar 1. september. Ástæðan er gjaldskrárbreytingar hjá fyrirtækinu Já sem rekur þessa þjónustu.

Ritari Þjóðarflokksins vissi um innbrot flokksmanna

Leiðtogi sænska Þjóðarflokksins, Lars Leijonborg, viðurkenndi í gærkvöld að hafa vitað af því á sunnudag að ritari flokksins hefði verið meðvitaður um innbrot flokksmanna inn á lokað netsvæði stjórnarflokks sósíaldemókratanna.

Danir yfir í hálfleik

Nú er búið að flauta til leikhlés í viðureign Íslendinga og Dana á Laugardalsvelli í undankeppni EM í knattspyrnu. Skemmst er frá því að segja að Danir hafa verið miklu betri í fyrri hálfleiknum og leiða verðskuldað 2-0. Það voru Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson sem skoruðu mörk danska liðsins á 5. og 33. mínútu.

Dauðastríð krókódílafangarans til á myndbandi

Dauðastríð ástralska krókódílamannsins Steve Irwin var kvikmyndað og er spólan nú í höndum yfirvald í Queensland þar sem hann lést við köfun en skata stakk hann´i hjartastað þar sem verið var að taka upp þátt um hættulegustu dýr í heimi.

Blair sagður hætta næsta sumar

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, mun segja af sér embætti næsta sumar að sögn heimildarmanna breska götublaðsins The Sun. Að sögn blaðsins mun Blair hætta sem formaður Verkamannaflokksins 31. maí á næsta ári og segja af sér sem forsætisráðherra tæpum tveimur mánuðum síðar eða 26. júlí.

Tyrkir senda hermenn til Líbanons

Tyrkneska þingið samþykkti í dag að senda nokkur hundruð hermenn til Líbanons til liðs við friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna þar. Múslimar í Tyrklandi eru þessu andvígir og óttast að liðið þjóni aðeins hagsmunum Ísraela og Bandaríkjamanna.

Mannskæðar árásir á Gaza

Óttast er að nokkuð mannfall hafi orðið þegar bílsprengja sprakk á Gaza-svæðinu í kvöld. Ekki liggur fyrir hve margir féllu í árásinni.

Calderon réttkjörinn forseti Mexíkó

Sérskipaður dómstóll í Mexíkó úrskurðaðið í dag að Felipe Calderon, frambjóðandi hægrimanna, væri réttkjörinn forseti landsins. Ætla má að vinstrimenn sætti sig ekki við þessa niðurstöðu enda hefur frambjóðandi þeirra sagt kosningasvik hafa tryggt Calderon sigur.

Barnasáttmáli S.þ. lögum ofar

Börnum af erlendum uppruna er umsvifalaust hleypt inn í Austurbæjarskóla þó svo þau hafi ekki fengið kennitölu enda telur skólastjórinn fráleitt að brjóta gegn barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Á meðan fá utangarðsbörn af pólskum uppruna ekki að fara í skóla á Ísafirði vegna þess að dvalarleyfisumsóknir foreldra þeirra eru til meðhöndlunar í kerfinu.

Níu grunaðir hryðjuverkamenn handteknir í Danmörku

Danska lögreglan handtók í nótt níu menn, grunaða um skipulagningu hryðjuverka. Sjö þeirra búa í Vollsmose, einu úthverfa Óðinsvéa, þar sem meirihluti íbúanna er af erlendum uppruna. Flestir hinna handteknu eru þó danskir ríkisborgarar.

Bein íslenskra folalda notuð í vaxtahvetjandi lyf

Bein íslenskra folalda eru notuð sem hráefni í vaxtahvetjandi lyf sem framleitt er í Þýskalandi. Bændur hér á landi njóta góðs af verkefninu þar sem þeir fá hærra verð greitt fyrir folöld sem notuð eru við lyfjaframleiðsluna.

Stjórnarandstaða lýsi yfir samstarfsvilja

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, telur að stjórnarandstöðuflokkarnir eigi að lýsa því yfir að þeir muni mynda velferðarríkisstjórn ef þeir fái fylgi til þess í komandi þingkosningum. Hann telur ekki aðeins mögulegt heldur líklegt að þeir nái saman ef þeir haldi rétt á spilunum.

Enn barist á Srí Lanka

Enn kom til átaka mili stjórnarhermanna og uppreisnarmanna Tamíltígra í austurhluta Srí Lanka í dag. Að minnsta kosti einn hermaður féll og þrettán særðust.

Hálfs árs fangelsi fyrir 30 brot

Tuttugu og sex ára karlmaður var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg hegningarlagabrot frá desember í fyrra til febrúar í ár. Um var að ræða alls þrjátíu brot á fíkniefnalögum, umferðarlögum og hegningarlögum en maðurinn á að baki langan sakaferil.

Hefur afsalað sér þingmennsku

Halldór Ásgrímsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, afsalaði sér þingmennsku með bréfi til forseta Alþingis í dag. Halldór hefur setið á þingi frá árinu 1974 til þessa dags, ef undan er skilið tímabilið nóvember til desember 1978 en þá var hann varaþingmaður Austrulandskjördæmis Sæunn Stefánsdóttir, nýkjörinn ritari Framsóknarflokksins tekur sæti Halldórs Ásgrímssonar á Alþingi.

Telur Breta verða farna frá Írak í lok árs 2007

Jalal Talabani, forseti Íraks, telur að allir breskir hermenn verði farnir heim frá Írak í lok næsta árs. Þessu lýsti hann yfir eftir fund með Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands, í dag.

Hraðakstursbrotum fjölgar mikið í V-Skaftafellssýslu

Sjötíu prósentum fleiri ökumenn hafa verið teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Vík í Mýrdal á fyrstu átta mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Nærri helmingur þeirra sem teknir hafa verið eru erlendir ökumenn.

Unglingsstúlkur hótuðu lögreglu öllu illu

Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tveimur unglingsstúlkum, 12 og 13 ára, sem létu mjög ófriðlega í fjölbýlishúsi í borginni í gærkvöld. Hvorug þeirra býr á umræddum stað en íbúar hússins kvörtuðu sáran undan framferði þeirra.

Fjórir létust í sprengjutilræði í Líbanon

Fjórir létust þegar vegsprengja sprakk nærri bifreið eins af yfirmönnum líbönsku leyniþjónustunnar í smábænum Remeile í Suður-Líbanon í morgun. Mennirnir sem létust voru allir lífverðir yfirmannsins sem heitir Samir Shehadeh, en hann særðist í tilræðinu ásamt þremur öðrum.

Fyrrverandi lögreglumaður sektaður fyrir munntóbakssmygl

Fyrrverandi lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli hefur verið dæmdur til 7.500 króna sektargreiðslu fyrir ólöglegan innflutning á munntóbaki. Maðurin var ákærður fyrir að misnota stöðu sína sem lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli og tekið á móti 30 dósum af munntóbaki úr hendi karlmanns, sem kom með flugi frá Stokkhólmi.

Ósætti með að tillaga var ekki rædd í menntaráði

Samfylkingin segir meirihlutann í borgarstjórn hafa beitt fljótfærnislegum vinnubrögðum þegar tillaga um að borgin hefji undirbúning á rekstri framhaldsskóla í tilraunaskyni var felld í menntaráði í gær, án umræðu.

Esso og Atlantsolía lækka eldsneytisverð

Atlantsolía hefur ákveðið að lækka verð á bensínlítranum um eina krónu og sextíu aura og lítrann af dísilolíu um ena krónu og tíu aura. Eftir lækkunina kostar bensínlítrinn 122 krónur og sextíu aura en dísillítrinn kostar hins vegar 119 krónur og níutíu aura.

Sjá næstu 50 fréttir