Fleiri fréttir Atlantsolía lækkar eldsneytisverð Atlantsolía hefur ákveðið að lækka verð á bensínlítranum um eina krónu og lítrann af dísilolíu um fimmtíu aura. Eftir lækkunina kostar bensínlítrinn 123,2 krónur og 122,2 fyrir dælulyklahafa. Dísillítrinn kostar hins vegar 120,5 krónur og 119,5 krónur fyrir dælulyklahafa. 5.9.2006 10:39 Vináttuhlaupinu lýkur hér á landi World Harmony Vináttuhlaupinu lýkur formlega nú fyrir hádegi þegar hlauparar Vináttuhlaupsins ásamt krökkum úr Austurbæjarskóla hlaupa frá Hallgrímskirkju niður í Ráðhús Reykjavíkur. 5.9.2006 10:16 Magnús to Excel Airways Group 5.9.2006 10:08
Metan Gas Cars 4.9.2006 15:14 Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum hryðjuverkamönnum Dómstóll í Bretlandi hefur framlengt gæSluvarðhald yfir átta breskum múslímum sem grunaðir eru um að hafa ætlaÐ að sprengja flugvélar á leið yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna í loft upp. Verða þeir í gæsluvarðhaldi í að minnsta kosti tvær vikur til viðbótar. 4.9.2006 15:00 Vill auknar heimildir til að uppræta fíkniefnasölu Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, telur að vel skipulagður litháískur glæpahringur standi fyrir umfangsmiklum innflutningi, dreifingu og sölu fíkniefna hér á landi. Hann segir mikilvægt í þessu ljósi að lögregla og tollgæsla fái auknar heimildir og fjármagn til að uppræta sölu- og dreifingarkerfi glæpahópsins. 4.9.2006 14:30 Þokast í viðræðum um lausn hermannsins Nokkuð hefur þokast í viðræðum ísraelskra stjórnvalda og Hamas-samtakanna um lausn ísraelska hermannsins sem rænt var við landamæri Gaza-svæðisins í júní síðastliðnum. Þetta sagði Ismal Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, á ríkisstjórnarfundi í morgun. 4.9.2006 14:15 Katarar senda lið til Líbanons Katar varð í dag fyrsta arabaríkið til að senda hermenn til friðargæslu í Líbanon í kjölfar átaka Ísraela og Hizbolla-samtakanna í júlí og ágúst. 4.9.2006 14:00 Vilja fjölga nemendum um 500 á næstu fimm árum Forsvarsmenn Háskólans á Bifröst stefna að því að fjölga nemendum þar um 500 á næstu fimm árum þannig að þeir verði 1200 árið 2011. Í undirbúningi er stofnun kennaradeildar við skólann. 4.9.2006 13:30 Þinglýstum kaupsamningum fækkar mikið milli ára Þinglýstum kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um ríflega 46 prósent í ágúst síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Fasteignamats ríkisins. 4.9.2006 13:00 Meðlimur ungliðahreyfingarinnar játar á sig tölvuinnbrotin Ungur meðlimur Þjóðarflokksins í Svíþjóð hefur viðurkennt að hafa ítrekað brotist inn á lokað netsvæði Sósíaldemókrataflokksins þar í landi. Sósíaldemókratar hafa kært Þjóðarflokkinn fyrir athæfið. 4.9.2006 12:45 Stunginn í hjartastað Ástralski "krókódílamaðurinn" Steve Irwin lést við köfun undan ströndum Ástralíu í dag. Skata stakk hann í hjartastað. 4.9.2006 12:30 Gagnrýni á sjóræningjaveiðar tvískinnungur Gagnrýni útgerðarmanna á svokallaðar sjóræningjaveiðar á Reykjaneshrygg helgast af tvískinnungi að mati Grétars Mar Jónssonar, Frjálslynda flokknum, en hann er jafnframt fyrrverandi formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins. Grétar telur að menn ættu að líta sér nær því enginn munur væri á Smuguveiðum Íslendinga og veiða nefndra sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg. 4.9.2006 12:15 Sjá næstu 50 fréttir
Atlantsolía lækkar eldsneytisverð Atlantsolía hefur ákveðið að lækka verð á bensínlítranum um eina krónu og lítrann af dísilolíu um fimmtíu aura. Eftir lækkunina kostar bensínlítrinn 123,2 krónur og 122,2 fyrir dælulyklahafa. Dísillítrinn kostar hins vegar 120,5 krónur og 119,5 krónur fyrir dælulyklahafa. 5.9.2006 10:39
Vináttuhlaupinu lýkur hér á landi World Harmony Vináttuhlaupinu lýkur formlega nú fyrir hádegi þegar hlauparar Vináttuhlaupsins ásamt krökkum úr Austurbæjarskóla hlaupa frá Hallgrímskirkju niður í Ráðhús Reykjavíkur. 5.9.2006 10:16
Gistinóttum fjölgar um 11 prósent milli ára Gistinóttum á hótelum í júlí fjölgaði um 11 prósent í júlí síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Þær voru tæplega 176 þúsund í þarsíðasta mánuði en 158.000 í sama mánuði árið 2005. 5.9.2006 10:00
Magnús verður stjórnarformaður Excel Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, tekur á næstunni við stjórnarformennsku í breska leiguflugfélaginu Excel Airways Group, sem er í eigu Avion Hann tekur við af Eamonn Mullaney sem hefur tilkynnt um starfslok sín 31. október en hann er einn af stofnendum Excel. 5.9.2006 09:45
Níu handteknir í Óðinsvéum vegna hryðjuverkaundirbúnings Lögreglan í Óðinsvéum í Danmörku handtók í nótt níu karla sem grunaðir eru um að leggja á ráðin um hryðjuverk. Mennirnir eru á aldrinum átján til þrjátíu og þriggja ára, bæði danskir að uppruna og innflytjendur. 5.9.2006 09:21
Grass kynnir æviminningar sínar Þýski Nóbelsverðlaunahafinn í bókmenntum, Gunther Grass, kynnti nýjustu bók sína, sem eru æviminningar höfundarins, í Berlín í gær. Í bókinni greinir Grass meðal annars frá því að hann hafi starfað tilneyddur innan SS-sveita nazista síðustu mánuði síðari heimsstyrjaldar, þá 17 ára gamall. 5.9.2006 09:15
Fimm grunaðir um fíkniefnamisferli Lögregla hafði afskipti af fimm mönnum í Reykjavík um helgina sem grunaðir voru um fíkniefnamisferli, og hitti hún á þá við misjafnar aðstæður. Tveir voru stöðvaðir í bílum sínum við reglubundið eftirlit, einn var gripinn á förnum vegi og annar þegar hann var fluttur á slysadeild eftir áflog. 5.9.2006 09:00
Fjórir á slysadeild eftir árekstur Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur þriggja bíla á mótum Norðurfells og Vesturbergs um níuleytið í gærkvöldi en meiðsl allra reyndust minniháttar. 5.9.2006 08:45
Magn koltvísýrings í andrúmslofti aldrei meira Borkjarnar úr íshellu Suðurskautslandsins staðfesta tilgátur vísindamanna um að magn koltvísýrings í andrúmslofti hafi aldrei verið meira, að minnsta kosti ekki síðustu 800 þúsund árin. 5.9.2006 08:34
Atlantis líklega í loftið á morgun Líklegt er talið að NASA, Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, geti skotið geimferjunni Atlantis á loft frá Flórída á morgun. Upphaflega átti geimskotið að fara fram þann 27. ágúst síðastliðinn en fresta þurfti skotinu þá eftir að eldingu laust niður í skotpallinn skömmu áður. 5.9.2006 08:30
Stal sex páskaeggjum úr búð Tuttugu og sex ára karlmaður var í gær ákærður fyrir þjófnað og fjársvik. Maðurinn er ákærður fyrir að stela fartölvu í Verzlunarskólanum í febrúar síðastliðnum. Í apríl gerði maðurinn sér svo lítið fyrir og stal sex páskaeggjum úr verslun 11/11 að verðmæti tæplega átta þúsund krónur. 5.9.2006 08:15
17,5 prósentustiga aukning á fé til vegaframkvæmda Fjármagn sem ríkið eyðir í vegaframkvæmdir hefur aukist um 17,5 prósentustig frá árinu 1998 til yfirstandandi fjárlagaárs eftir því sem segir í vefriti fjármálaráðuneytisins. 5.9.2006 08:15
Tryggingasvikin skipta þúsundum Lögreglan fær aðeins brotabrot af öllum tryggingasvikum á sitt borð á ári, eða þrjú til fjögur. Útilokað er að þau séu svona fá, að mati framkvæmdastjóra hjá Sjóvá. Þau séu frekar um tvö þúsund á ári. Sjóvá fer í átak gegn svikunum. 5.9.2006 08:00
Hafa náð tíu kílóum af fíkniefnum í ár Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á um tíu kíló af fíkniefnum það sem af er ári. Það er jafn mikið magn og allt árið í fyrra. Helmingur magnsins er kókaín. Meðalaldur lögbrjótanna er tæplega 25 ár, sá yngsti var 17 ára. 5.9.2006 08:00
Tveimur flatskjám stolið í austurborginni Tveimur flatskjám var stolið úr raftækjaverslun í austurborginni um hálfþrjúleytið í nótt. Verðmæti þeirra er samtals á áttunda hundrað þúsunda. Þjófarnir brutu stóra rúðu til að komast inn í verslunina en þeir komust undan og er þeirra nú leitað. 5.9.2006 08:00
Meðalaldur starfsmanna stórmarkaða lækkar um 7 ár Meðalaldur félagsmanna VR sem vinna í stórmörkuðum hefur lækkað um heil sjö ár síðan árið 2000 og segir á heimasíðu VR að félagið hafi heyrt dæmi þess að ungmenni á aldrinum 13 til 14 ára vinni langtum meira en kveðið er á um í reglugerð um vinnu ungmenna. 5.9.2006 08:00
Byssumaður myrðir ferðamann í Jórdaníu Erlendir ferðamenn í Jórdaníu eru felmtri slegnir eftir að byssumaður varð einum ferðamanni að bana og særði fimm þegar skotið var á hóp ferðalanga í höfuðborginni, Amman í dag. Árásamaðurinn var þegar handtekinn en hann lét til skarar skríða fyrir utan hringleikahús sem ferðamenn sækja í hópum á sumri hverju. 4.9.2006 22:45
Gíslataka í rússnesku fangelsi Rússneskum sérsveitarmönnum tókst í dag að frelsa menn sem gæsluvarðhaldsfangar í fangelsi í Moskvu tóku í gíslingu. Engan mun hafa sakað í atganginum en heyra mátti skothríð og sprengingar úr nokkurri fjarlægð. 4.9.2006 22:30
Þriggja bíla árekstur í Breiðholtinu Lögregla og slökkvilið var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna áreksturs þriggja bíla á mótum Norðurfells og Vesturbergs í Breiðholti í Reykjavík. Einn var fluttur á slysadeild. 4.9.2006 22:06
Steve Irwin allur Ástralski "krókódílamaðurinn" Steve Irwin lést við köfun undan ströndum Ástralíu í dag. Skata stakk hann í hjartastað. Irwin var heimsfrægur fyrir vinsæla dýralífsþætti sína þar sem hann lagði líf sitt oftar en ekki hættu í samskiptum sínum við krókódíla og önnur hættuleg dýr. Steve Irwin var sjónvarpsáhorfendum um allan heim að góðu kunnur. Hann lét sig ekki muna um að fóðra krókódíl með annari hendi og barnið sitt í hinni. Það gerði hann fyrir framan sjónvarpsáhorfendur og hlaut bágt fyrir. Irwin var mikill áhugamaður um náttúruvernd og óþreytandi talsmaður krókódíla. Stundum þótti hann full glæfralegur framkomu við villidýrin. Hann meðhöndlaði krókódíla, hættulegar köngulær og snáka af virðingu en með hæfilegum gáska. Irwin var í dag að kafa við Batt rifið undan ströndu Queensland í norðaustur Ástralíu og var að taka upp sjónvarpsþátt um hættulegustu dýr í heimi. Hann synti of nálægt einni skötunni og hún stakk hann í hjartastað með hala sínum. John Howard forsætisráðherra Ástralíu sagði um Irwin að hann hefði verið einstakur maður og verið hjartfólginn bæði Áströlum og fólki um allan heim. Blóm og kransar streymdu í dag til dýragarðsins í Queensland í Ástralíu til minningar um Steve Irwin. Ökumenn þeyttu bílflautur til heiðurs honum er þeir óku þar hjá. Irwin lætur eftir sig eiginkonu og tvö ung börn. 4.9.2006 21:06
Ekki í skóla nema að landslög séu brotin Fjöldi nýbúabarna hefur ekki getað byrjað í skóla í haust þar sem þau hafa enn ekki fengið kennitölu. Margra vikna bið er eftir kennitölum hjá þjóðskrá og á meðan geta skólayfirvöld ekki leyft þeim að fara í skólann nema brjóta landslög. 4.9.2006 21:02
Gagnrýna sameiningu spítalanna Læknafélags Íslands gagnrýnir mjög sameiningu spítalanna og segir nauðsynlegt að draga úr þeirri einokun sem þegar ríki í spítalamálum. Sömuleiðis varar félagið við alræðisvaldi sem heilbrigðisráðherra og forstjórum heilbrigðisstofnanna er veitt samkvæmt frumvarpi ráðherra sjálfs. 4.9.2006 20:59
Ógnar hlutleysi Seðlabankans Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, segir mikinn miskilning að Davíð Oddsson sé hættur í pólitík. Spurningin nú sé hvort það sé líka misskilningur að Geir H. Harde sé leiðtogi Sjálfstæðisflokksins. Formaður Samfylkingarinnar segir ljóst að Davíð treysti ekki forystu Geirs H. Haarde. Davíð Oddsson tjáði sig ítarlega um helstu pólitísku ágreiningsmálin á Morgunvakt Ríkisútvarpsins fyrir helgi og í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær. Stjórnarandstaðan segir þetta ógna hlutleysi Seðlabankans. 4.9.2006 20:55
Annan semji um lausn gísla Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir Ísraela og Líbana hafa þekkst boð sitt um að semja um lausn tveggja ísraelskra hermanna sem skæruliðar Hizbollah rændu í júlí. Varð það kveikjan að átökum Ísraela og Hizbollah-liða í Líbanon. 4.9.2006 20:51
Segir framkvæmdir við álver í Helguvík í hættu Áform um uppbygging álvers í Helguvík eru í hættu ef ekki fást rannsóknarleyfi á jarðhitasvæðum á Reykjanesskaga. Undirstofnanir ráðuneyta tefja vísvitandi fyrir veitingu leyfanna, segir forstjóri Hitaveitu Suðurnesja. 4.9.2006 18:44
Býðst til að semja um lausn hermanna Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur boðist til að reyna að semja um lausn tveggja ísraelskra hermanna sem skæruliðar Hizbollah rændu í júlí. Mannránin urðu kveikjan að átökum Ísraela og Hizbollah-liða í Líbanon. 4.9.2006 17:45
Vilja kanna kosti einkasjúkrahúss í Fossvogi Læknafélag Íslands vill að skoðað verði hvort hægt verði að reka áfram sjúkrahús í Fossvogi, jafnvel í einkarekstri, eftir uppbyggingu við Hringbaut. Með því eigi læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn kost á öðrum vinnustað en Landspítalanum. Þetta kom fram í máli Sigurbjarnar Sveinssonar, formanns Læknafélags Íslands, í viðtali á NFS í morgun. 4.9.2006 17:33
Segir tafir á veitingu rannsóknarleyfa Tafir á afgreiðslu rannsóknarleyfa á jarðhitasvæðum á Reykjanesi geta tafið uppbyggingu álvers í Helguvík að mati forstjóra Hitaveitu Suðurnesja. Hann sakar undirsstofnanir ráðuneyta um að tefja vísivitandi veitingu rannsókanrleyfa vegna jarðvarmavirkjana á Reykjanesskaga. 4.9.2006 17:25
Gripið til aðgerða í kjölfar fjölda banaslysa Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hyggst grípa til ýmissa aðgerða á næstunni til þess að reyna að auka umferðaröryggi í landinu. 4.9.2006 17:04
Taka höndum saman til stuðnings Magna Keppinautarnir Síminn og Og Vodafone hafa tekið höndum saman og hvetja stuðningsmenn Magna Ásgeirssonar að taka þátt í SMS-kosningunni vegna undanúrslitaþáttar RockStar Supernova aðfaranótt miðvikudagsins. 4.9.2006 16:17
Vilja eldfjallafriðland á Reykjanesi Vinstri hreyfingin grænt framboð í Reykjavík mun leggja fram tillögu um stofnun eldfjallafriðlands frá Þingvöllum að Reykjanestá og aðra um hlutlausa úttekt á Kárahnjúkavirkjun ásamt frestun fyllingu Hálslóns á fundi Borgarstjórnar á morgun. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem hreyfingin hélt í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrr í dag. 4.9.2006 16:11
Gæsluvarðhald vegna árásar á sambýliskonu Tæplega þrítugur karlmaður var úrskurðaður í gæsluvarðhald um helgina vegna árásar á sambýliskonu sína. Árásin átti sér stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Maðurinn rispaði konuna meðal annars með hnífi á hálsi og skrokki, en engin stungusár voru að finna á konunni, að sögn lögreglunnar. 4.9.2006 15:45
Bryndís ráðin aðstoðarrektor á Bifröst Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið ráðin aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst í stað Magnúsar Árna Magnússonar sem lét af störfum fyrir helgi. 4.9.2006 15:27
Stærsta farþegaflugvél heims í fyrsta farþegaflug Stærsta farþegaþota heims, af gerðinni Airbus A380, fór í dag í sitt fyrsta farþegaflug með 474 farþega innanborðs. Þar voru starfsmenn Airbus á ferð en þeir höfðu boðið sig fram í ferðina sem er tilraunaflug með farþega. Þotan er tveggja hæða og með fjórum hreyflum. 4.9.2006 15:15
Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum hryðjuverkamönnum Dómstóll í Bretlandi hefur framlengt gæSluvarðhald yfir átta breskum múslímum sem grunaðir eru um að hafa ætlaÐ að sprengja flugvélar á leið yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna í loft upp. Verða þeir í gæsluvarðhaldi í að minnsta kosti tvær vikur til viðbótar. 4.9.2006 15:00
Vill auknar heimildir til að uppræta fíkniefnasölu Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, telur að vel skipulagður litháískur glæpahringur standi fyrir umfangsmiklum innflutningi, dreifingu og sölu fíkniefna hér á landi. Hann segir mikilvægt í þessu ljósi að lögregla og tollgæsla fái auknar heimildir og fjármagn til að uppræta sölu- og dreifingarkerfi glæpahópsins. 4.9.2006 14:30
Þokast í viðræðum um lausn hermannsins Nokkuð hefur þokast í viðræðum ísraelskra stjórnvalda og Hamas-samtakanna um lausn ísraelska hermannsins sem rænt var við landamæri Gaza-svæðisins í júní síðastliðnum. Þetta sagði Ismal Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, á ríkisstjórnarfundi í morgun. 4.9.2006 14:15
Katarar senda lið til Líbanons Katar varð í dag fyrsta arabaríkið til að senda hermenn til friðargæslu í Líbanon í kjölfar átaka Ísraela og Hizbolla-samtakanna í júlí og ágúst. 4.9.2006 14:00
Vilja fjölga nemendum um 500 á næstu fimm árum Forsvarsmenn Háskólans á Bifröst stefna að því að fjölga nemendum þar um 500 á næstu fimm árum þannig að þeir verði 1200 árið 2011. Í undirbúningi er stofnun kennaradeildar við skólann. 4.9.2006 13:30
Þinglýstum kaupsamningum fækkar mikið milli ára Þinglýstum kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um ríflega 46 prósent í ágúst síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Fasteignamats ríkisins. 4.9.2006 13:00
Meðlimur ungliðahreyfingarinnar játar á sig tölvuinnbrotin Ungur meðlimur Þjóðarflokksins í Svíþjóð hefur viðurkennt að hafa ítrekað brotist inn á lokað netsvæði Sósíaldemókrataflokksins þar í landi. Sósíaldemókratar hafa kært Þjóðarflokkinn fyrir athæfið. 4.9.2006 12:45
Stunginn í hjartastað Ástralski "krókódílamaðurinn" Steve Irwin lést við köfun undan ströndum Ástralíu í dag. Skata stakk hann í hjartastað. 4.9.2006 12:30
Gagnrýni á sjóræningjaveiðar tvískinnungur Gagnrýni útgerðarmanna á svokallaðar sjóræningjaveiðar á Reykjaneshrygg helgast af tvískinnungi að mati Grétars Mar Jónssonar, Frjálslynda flokknum, en hann er jafnframt fyrrverandi formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins. Grétar telur að menn ættu að líta sér nær því enginn munur væri á Smuguveiðum Íslendinga og veiða nefndra sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg. 4.9.2006 12:15
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent