Fleiri fréttir Laga þarf eldvarnir „Við teljum að eldvörnum í eldri gripahúsum sé mjög víða ábótavant,“ segir Sigríður Ásgeirsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Sambandið hefur sent umhverfisráðherra bréf þar hvatt er til þess að eftirlit með eldvörnum í gripahúsum verði eflt. 11.8.2006 06:45 Fleiri kennarar með réttindi Kennurum með kennsluréttindi fjölgaði úr 82 prósentum í 87 prósent á árunum 1998-2005, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. 11.8.2006 06:45 Sérsveitir smala brottrækum Yfir tuttugu þúsund ólöglegir innflytjendur hafa verið handteknir og vísað burt úr Bandaríkjunum það sem af er þessu ári og er það gríðarleg aukning frá fyrri árum. Herferðin er hluti af baráttu George W. Bush Bandaríkjaforseta gegn ólöglegum innflytjendum. 11.8.2006 06:45 Loksins leyfð í búðum vestra 11.8.2006 06:45 Hættulegar flísar valda slysum Flísar í útiklefa Salalaugar í Kópavogi hafa valdið óhöppum, þar sem viðnám er ekki nægilegt og þær verða hálar. Stefnt er að því að skipta um flísar á næstu vikum. 11.8.2006 06:30 Ber við vanþekkingu á reglum „Ástæðan fyrir því að ég var þarna á veiðum án veiðikorts var að ég gerði mér ekki grein fyrir að til þessara veiða þyrfti ég veiðikort,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra um lundaveiðar hans í Grímsey í Steingrímsfirði á dögunum. 11.8.2006 06:30 Bréf lækka Hlutabréf í flugfélögum og ferðaskrifstofum hröpuðu í verði í gær, í kjölfar fréttanna af samsæri um hryðjuverk í farþegaflugvélum á milli Lundúna og Bandaríkjanna. Jafnframt lækkaði heimsmarkaðsverð á olíu vegna væntinga um að samdráttur í flugi valdi minni eftirspurn eftir eldsneyti. 11.8.2006 06:30 Árás á stúlku á leið í vinnu Tvær líkamsárásir voru framdar í fyrrakvöld og -nótt. Reynt var að nauðga rúmlega tvítugri stúlku á leið til vinnu í Breiðholti. Fyrr höfðu þrír menn ráðist að öðrum á Hverfisgötu og lamið með bareflum. 11.8.2006 06:15 570 milljónir í hálfsársuppgjöri Hagnaður Sparisjóðs vélstjóra nam rúmum 570 milljónum króna eftir skatta á fyrri helmingi árs. Hagnaður sparisjóðsins jókst um tæp tuttugu og fjögur prósent miðað við sama tímabil í fyrra. 11.8.2006 06:00 Greinilega híbýli höfðingja Fornleifafræðingar hafa komið niður á langhús við Hrísbrú í Mosfellsdal. Húsið er rúmlega tuttugu metra langt og má ráða af stærð þess að þar hafi búið höfðingjar. 11.8.2006 06:00 Borgaraflokkarnir vinna á Þegar rúmur mánuður er til þingkosninga í Svíþjóð mælist kosningabandalag borgaraflokka með meirihlutafylgi í tveimur nýjum skoðanakönnunum. 11.8.2006 06:00 Fann fólkið á leið til leitar Björgunarsveitir fóru í tvö útköll vegna týndra ferðamanna í fyrrakvöld. Fernt, þrír Frakkar og einn Japani, varð viðskila við samferðamenn sína við Heklurætur og voru um tuttugu björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar send til leitar. Björgunarsveitarmaður á leið til leitarinnar ók óvænt fram á fólkið seint um kvöldið, en ekkert amaði að því. 11.8.2006 05:45 Sex milljörðum úthlutað Barnabætur ársins 2005 hækkuðu um nítján prósent frá árinu 2004. Alls var tæpum sex milljörðum króna úthlutað til 55.500 framteljenda. 11.8.2006 05:45 Ellefu skiptinemar hverfa Ellefu nemar á tvítugsaldri frá Egyptalandi hafa horfið sporlaust í Bandaríkjunum, en þeir höfðu skráð sig í mánaðarlangt skiptinám við háskóla í Montana-ríki. 11.8.2006 05:45 Kom saklausri konu í miklar ógöngur 11.8.2006 05:30 Sprenging á Grundartanga Sprenging varð í keri í álveri Norðuráls á Grundartanga á sjötta tímanum í gær. Að sögn Slökkviliðsins á Akranesi skapaðist við það hætta en þó náðust fljótt tök á ástandinu. Engum varð meint af en kerið eyðilagðist og rafmagn fór af skálanum sem það var í. Álið úr kerinu lak í lagnastokka sem eru í kringum kerin. 11.8.2006 05:15 Húsvagnar sífellt vinsælli „Það er alltaf selt meira af húsvögnum en árið áður,“ segir Gunnlaugur Ingibergsson hjá Seglagerðinni Ægi, sem selja tjaldvagna, fellihýsi, pallhýsi, hjólhýsi og húsbíla. „Hjólhýsin hafa verið sérstaklega vinsæl, en áður fyrr voru þetta bara tjaldvagnar og fellihýsi. Við erum bara með samkomutjöld til leigu en seljum engin tjöld. Við hættum því vegna minnkandi eftirspurnar.“ 11.8.2006 05:00 Hundakjöt fyrir húðina Hundakjöt verður sífellt vinsælla meðal norður-kóreskra kvenna, en þessi kóreski þjóðarréttur er talinn vera góður fyrir húðina. Bæði í Suður- og Norður-Kóreu er hundakjöt sagt gott fyrir úthald og auka hreysti og er vinsælt á heitum sumardögum. 11.8.2006 05:00 Yfirvöld virði rétt borgara 11.8.2006 04:45 Kristján tekur við Mannlífi 11.8.2006 04:30 Styrkir uppgröft á Hólum Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að styrkja uppgröft á Hólum í Hjaltadal næstu þrjú árin. Uppgröftur hefur staðið yfir á Hólum í sumar, en þetta er fimmta sumarið sem grafið er þar. Uppgröfturinn hefur fram til þessa verið unnin með styrk frá Kristnihátíðarsjóði. 11.8.2006 04:30 Amnesty International skorar á stjórnvöld Íslandsdeild Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að að Sameinuðu þjóðirnar sendi tafarlaust friðargæslulið til Darfur í Súdan. 10.8.2006 23:08 Ætluðu að granda 10 flugvélum Hryðjuverkamennirnir sem bresk yfirvöld stöðvuðu í dag, höfðu ráðgert að granda 10 flugvélum sem áttu að fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan í kvöld. 10.8.2006 22:14 Brasilískir þingmenn kærðir fyrir fjárdrátt af almannafé Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn um að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. Mikill meirihluti þingmannanna, eða 63 af 72, tilheyra stjórnarflokkunum sem styðja forsetann Luiz Lula da Silva að málum. 10.8.2006 20:30 Skorar á yfirvöld að lengja kennaranám Formaður Kennarasambands Íslands skorar á yfirvöld að lengja kennaranám til samræmis við nágrannalöndin til þess að bæta námsárangur í íslenskum skólum. Þá segir hann samfélagið í heild þurfa að taka á óstýrilæti og agaleysi til þess að ná sömu markmiðum. 10.8.2006 19:45 Ríkisskattstjóri kominn út fyrir sitt valdsvið Ríkisskattsjóri er kominn út fyrir valdsvið sitt þegar hann gefur í skyn að fjármálafyrirtæki hér á landi veiti ráðgjöf um skattsvik. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. 10.8.2006 19:17 Ber við vanþekkingu og fákunnáttu Vanþekking og fákunnátta sjávarútvegsráðherra á veiðireglum leiðir líklega til þess að hann á yfir höfði sér kæru fyrir ólöglegar lundaveiðar fyrr í sumar. Ráðherra segir leiðinlegt að hann hafi ekki farið að reglum og hyggst skýra mál sitt fyrir Umhverfisstofnun. 10.8.2006 18:54 Koma í veg fyrir að lífum sé bjargað Yfirmaður Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna segir Ísrelum og skæruliðum Hizbollah í lófa lagið að aðstoða hjálparsamtök við að koma hjálpargögnum til nauðstaddra í Suður Líbanon. Það geri þeir hins vegar ekki og komi þar með í veg fyrir að lífi fólks verði bjargað 10.8.2006 17:55 21 maður í haldi Bresk stjórnvöld hafa 21 mann í haldi sínu sem grunaðir eru um að hafa ætlað að fremja stórfelld hryðjuverk í allt að tíu flugvélum sem fljúga áttu til Bandaríkjanna. 10.8.2006 17:43 Siv ætlar í formannsslaginn Siv Friðleifsdóttir hefur ákveðið að taka slaginn við Jón Sigurðsson um formannsembættið í Framsóknarflokknum. 10.8.2006 17:31 Vörubíll valt í Kömbunum Vörubíll frá Vegagerðinni valt í Kömbunum ofan við Hveragerði um klukkan þrjú í dag. Vörubíllinn var við vinnu í vegkanti sem gaf sig svo að bíllinn valt. Engan sakaði. 10.8.2006 16:14 Barnabætur hækkuðu um 19% Við álagningu ríkisskattstjóra á einstaklinga kom fram að barnabætur vegna ársins 2005 hækkuðu um 19% frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins. Í ár á að úthluta tæpum 6 milljörðum króna til 55.500 framteljenda 10.8.2006 15:31 Flugvél Icelandair komin í loftið Flugvélum Icelandair hefur verið veitt leyfi til flugs til Bretlands. Fyrsta vélin fór í loftið rétt fyrir klukkan þrjú. Næsta flug er svo áætlað klukkan 16:10. Búist er við að flugumferð komist fljótlega í rétt form. 10.8.2006 15:09 Og vodafone eflir GSM þjónustu á svæðinu Og Vodafone hefur eflt GSM þjónustu sína í Dalvík fyrir fjölskylduhátíðina Fiskidaginn mikla sem fer fram um næstu helgi. Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá GSM notendum þar sem gera má ráð fyrir fjölda gesta á svæðinu yfir helgina. Um 30 þúsund manns lögðu leið sína á hátíðina í fyrra. 10.8.2006 13:23 Glóandi skúlptúr í byggingu Jörgen Hansen, danskur leirlistamaður stendur nú í stórræðum nærri Norrænahúsinu en hann er að byggja glóandi leirskúlptúr. Skúlptúrinn, sem á að byggjast á fjórtán dögum, á að verða þriggja metra hár og mun vega fjögur tonn. 10.8.2006 13:00 Ekki næst enn samkomulag um breytt orðalag svo hægt verði að stilla til friðar í Líbanon Ísraelsher náði í nótt og í morgun þremur þorpum í Suður-Líbanon á sitt vald. Hermenn eiga í hörðum átökum við Hizbollah-skæruliða á svæðinu. Ekki hefur enn tekist að ná samkomulagi um breytt orðalag ályktunar sem miðar að því að stilla til friðar í landinu. 10.8.2006 12:48 James Bond aðdáendur stoppaðir fyrir hraðakstur Radarbyssur sunnlenskra sveitalögreglumanna stöðva eins og ekkert sé, hvern erlenda James Bond aðdáandann á fætur öðrum, sem geysast í pílagrímaferðir austur að Bond Lagoon, eins og þeir kalla Jökulsárlón. 10.8.2006 12:43 Dregur úr íbúðalánum banka Verulega dró úr íbúðalánum bankanna í júlí og námu þau aðeins rúmum þremur og hálfum milljarði króna. Það er lægsta lánsupphæð síðan bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn fyrir rétt um tveimur árum. 10.8.2006 12:36 Öngþveiti á flugvöllum á Englandi Bresk og bandarísk yfirvöld upplýstu í morgun að tekist hefði að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn sprengdu í loft upp farþegavélar á leið milli landanna. Ekki er flogið til Bretlands sem stendur og óvíst hvenær það verður hægt á ný. Algjört öngþveiti ríkir á flugvöllum þar í landi. 10.8.2006 12:17 Hert eftirlit á Keflavíkurflugvelli Eftir fund lögreglu- og flugmálayfirvalda á Keflavíkurflugvelli í morgun var ákveðið að herða eftirlit á vellinum. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, felur það meðal annars í sér að leit á farþegum og í farangri verður ítarlegri en ella en ætti þó ekki að valda miklum töfum. 10.8.2006 11:52 Heavy Industry Profits Uncertain 10.8.2006 11:39 Upplýsingabæklingur fyrir erlenda foreldra Menntasvið Reykjavíkurborgar hefur gefið út upplýsingabækling á átta tungumálum fyrir erlenda foreldra. Í bæklingnum er fjallað um Íslenska leikskóla og eins tvítyngi barna á leikskólastigi. 10.8.2006 11:34 Cate Blanchet Wows Iceland 10.8.2006 11:32 Hlutabréfavísitölur lækka vegna hryðjuverkaógnar Hryðjuverkaógnin í Bretlandi hefur áhrif á markaði víðsvegar um heiminn. Fram kemur á vef Glitnis að allar helstu hlutabréfavísitölur hafi lækkað og þá hlutabréf í evrópskum flugfélögum einna mest. 10.8.2006 11:28 Komið í veg fyrir sprengjutilræði í bandarískum flugvélum Bandarísk stjórnvöld segjast hafa komið í veg fyrir sprengjutilræði í þremur flugvélum bandarískra flugfélaga, United, American og Continental airlines. 10.8.2006 10:29 Sjá næstu 50 fréttir
Laga þarf eldvarnir „Við teljum að eldvörnum í eldri gripahúsum sé mjög víða ábótavant,“ segir Sigríður Ásgeirsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Sambandið hefur sent umhverfisráðherra bréf þar hvatt er til þess að eftirlit með eldvörnum í gripahúsum verði eflt. 11.8.2006 06:45
Fleiri kennarar með réttindi Kennurum með kennsluréttindi fjölgaði úr 82 prósentum í 87 prósent á árunum 1998-2005, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. 11.8.2006 06:45
Sérsveitir smala brottrækum Yfir tuttugu þúsund ólöglegir innflytjendur hafa verið handteknir og vísað burt úr Bandaríkjunum það sem af er þessu ári og er það gríðarleg aukning frá fyrri árum. Herferðin er hluti af baráttu George W. Bush Bandaríkjaforseta gegn ólöglegum innflytjendum. 11.8.2006 06:45
Hættulegar flísar valda slysum Flísar í útiklefa Salalaugar í Kópavogi hafa valdið óhöppum, þar sem viðnám er ekki nægilegt og þær verða hálar. Stefnt er að því að skipta um flísar á næstu vikum. 11.8.2006 06:30
Ber við vanþekkingu á reglum „Ástæðan fyrir því að ég var þarna á veiðum án veiðikorts var að ég gerði mér ekki grein fyrir að til þessara veiða þyrfti ég veiðikort,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra um lundaveiðar hans í Grímsey í Steingrímsfirði á dögunum. 11.8.2006 06:30
Bréf lækka Hlutabréf í flugfélögum og ferðaskrifstofum hröpuðu í verði í gær, í kjölfar fréttanna af samsæri um hryðjuverk í farþegaflugvélum á milli Lundúna og Bandaríkjanna. Jafnframt lækkaði heimsmarkaðsverð á olíu vegna væntinga um að samdráttur í flugi valdi minni eftirspurn eftir eldsneyti. 11.8.2006 06:30
Árás á stúlku á leið í vinnu Tvær líkamsárásir voru framdar í fyrrakvöld og -nótt. Reynt var að nauðga rúmlega tvítugri stúlku á leið til vinnu í Breiðholti. Fyrr höfðu þrír menn ráðist að öðrum á Hverfisgötu og lamið með bareflum. 11.8.2006 06:15
570 milljónir í hálfsársuppgjöri Hagnaður Sparisjóðs vélstjóra nam rúmum 570 milljónum króna eftir skatta á fyrri helmingi árs. Hagnaður sparisjóðsins jókst um tæp tuttugu og fjögur prósent miðað við sama tímabil í fyrra. 11.8.2006 06:00
Greinilega híbýli höfðingja Fornleifafræðingar hafa komið niður á langhús við Hrísbrú í Mosfellsdal. Húsið er rúmlega tuttugu metra langt og má ráða af stærð þess að þar hafi búið höfðingjar. 11.8.2006 06:00
Borgaraflokkarnir vinna á Þegar rúmur mánuður er til þingkosninga í Svíþjóð mælist kosningabandalag borgaraflokka með meirihlutafylgi í tveimur nýjum skoðanakönnunum. 11.8.2006 06:00
Fann fólkið á leið til leitar Björgunarsveitir fóru í tvö útköll vegna týndra ferðamanna í fyrrakvöld. Fernt, þrír Frakkar og einn Japani, varð viðskila við samferðamenn sína við Heklurætur og voru um tuttugu björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar send til leitar. Björgunarsveitarmaður á leið til leitarinnar ók óvænt fram á fólkið seint um kvöldið, en ekkert amaði að því. 11.8.2006 05:45
Sex milljörðum úthlutað Barnabætur ársins 2005 hækkuðu um nítján prósent frá árinu 2004. Alls var tæpum sex milljörðum króna úthlutað til 55.500 framteljenda. 11.8.2006 05:45
Ellefu skiptinemar hverfa Ellefu nemar á tvítugsaldri frá Egyptalandi hafa horfið sporlaust í Bandaríkjunum, en þeir höfðu skráð sig í mánaðarlangt skiptinám við háskóla í Montana-ríki. 11.8.2006 05:45
Sprenging á Grundartanga Sprenging varð í keri í álveri Norðuráls á Grundartanga á sjötta tímanum í gær. Að sögn Slökkviliðsins á Akranesi skapaðist við það hætta en þó náðust fljótt tök á ástandinu. Engum varð meint af en kerið eyðilagðist og rafmagn fór af skálanum sem það var í. Álið úr kerinu lak í lagnastokka sem eru í kringum kerin. 11.8.2006 05:15
Húsvagnar sífellt vinsælli „Það er alltaf selt meira af húsvögnum en árið áður,“ segir Gunnlaugur Ingibergsson hjá Seglagerðinni Ægi, sem selja tjaldvagna, fellihýsi, pallhýsi, hjólhýsi og húsbíla. „Hjólhýsin hafa verið sérstaklega vinsæl, en áður fyrr voru þetta bara tjaldvagnar og fellihýsi. Við erum bara með samkomutjöld til leigu en seljum engin tjöld. Við hættum því vegna minnkandi eftirspurnar.“ 11.8.2006 05:00
Hundakjöt fyrir húðina Hundakjöt verður sífellt vinsælla meðal norður-kóreskra kvenna, en þessi kóreski þjóðarréttur er talinn vera góður fyrir húðina. Bæði í Suður- og Norður-Kóreu er hundakjöt sagt gott fyrir úthald og auka hreysti og er vinsælt á heitum sumardögum. 11.8.2006 05:00
Styrkir uppgröft á Hólum Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að styrkja uppgröft á Hólum í Hjaltadal næstu þrjú árin. Uppgröftur hefur staðið yfir á Hólum í sumar, en þetta er fimmta sumarið sem grafið er þar. Uppgröfturinn hefur fram til þessa verið unnin með styrk frá Kristnihátíðarsjóði. 11.8.2006 04:30
Amnesty International skorar á stjórnvöld Íslandsdeild Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að að Sameinuðu þjóðirnar sendi tafarlaust friðargæslulið til Darfur í Súdan. 10.8.2006 23:08
Ætluðu að granda 10 flugvélum Hryðjuverkamennirnir sem bresk yfirvöld stöðvuðu í dag, höfðu ráðgert að granda 10 flugvélum sem áttu að fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan í kvöld. 10.8.2006 22:14
Brasilískir þingmenn kærðir fyrir fjárdrátt af almannafé Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn um að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. Mikill meirihluti þingmannanna, eða 63 af 72, tilheyra stjórnarflokkunum sem styðja forsetann Luiz Lula da Silva að málum. 10.8.2006 20:30
Skorar á yfirvöld að lengja kennaranám Formaður Kennarasambands Íslands skorar á yfirvöld að lengja kennaranám til samræmis við nágrannalöndin til þess að bæta námsárangur í íslenskum skólum. Þá segir hann samfélagið í heild þurfa að taka á óstýrilæti og agaleysi til þess að ná sömu markmiðum. 10.8.2006 19:45
Ríkisskattstjóri kominn út fyrir sitt valdsvið Ríkisskattsjóri er kominn út fyrir valdsvið sitt þegar hann gefur í skyn að fjármálafyrirtæki hér á landi veiti ráðgjöf um skattsvik. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. 10.8.2006 19:17
Ber við vanþekkingu og fákunnáttu Vanþekking og fákunnátta sjávarútvegsráðherra á veiðireglum leiðir líklega til þess að hann á yfir höfði sér kæru fyrir ólöglegar lundaveiðar fyrr í sumar. Ráðherra segir leiðinlegt að hann hafi ekki farið að reglum og hyggst skýra mál sitt fyrir Umhverfisstofnun. 10.8.2006 18:54
Koma í veg fyrir að lífum sé bjargað Yfirmaður Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna segir Ísrelum og skæruliðum Hizbollah í lófa lagið að aðstoða hjálparsamtök við að koma hjálpargögnum til nauðstaddra í Suður Líbanon. Það geri þeir hins vegar ekki og komi þar með í veg fyrir að lífi fólks verði bjargað 10.8.2006 17:55
21 maður í haldi Bresk stjórnvöld hafa 21 mann í haldi sínu sem grunaðir eru um að hafa ætlað að fremja stórfelld hryðjuverk í allt að tíu flugvélum sem fljúga áttu til Bandaríkjanna. 10.8.2006 17:43
Siv ætlar í formannsslaginn Siv Friðleifsdóttir hefur ákveðið að taka slaginn við Jón Sigurðsson um formannsembættið í Framsóknarflokknum. 10.8.2006 17:31
Vörubíll valt í Kömbunum Vörubíll frá Vegagerðinni valt í Kömbunum ofan við Hveragerði um klukkan þrjú í dag. Vörubíllinn var við vinnu í vegkanti sem gaf sig svo að bíllinn valt. Engan sakaði. 10.8.2006 16:14
Barnabætur hækkuðu um 19% Við álagningu ríkisskattstjóra á einstaklinga kom fram að barnabætur vegna ársins 2005 hækkuðu um 19% frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins. Í ár á að úthluta tæpum 6 milljörðum króna til 55.500 framteljenda 10.8.2006 15:31
Flugvél Icelandair komin í loftið Flugvélum Icelandair hefur verið veitt leyfi til flugs til Bretlands. Fyrsta vélin fór í loftið rétt fyrir klukkan þrjú. Næsta flug er svo áætlað klukkan 16:10. Búist er við að flugumferð komist fljótlega í rétt form. 10.8.2006 15:09
Og vodafone eflir GSM þjónustu á svæðinu Og Vodafone hefur eflt GSM þjónustu sína í Dalvík fyrir fjölskylduhátíðina Fiskidaginn mikla sem fer fram um næstu helgi. Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá GSM notendum þar sem gera má ráð fyrir fjölda gesta á svæðinu yfir helgina. Um 30 þúsund manns lögðu leið sína á hátíðina í fyrra. 10.8.2006 13:23
Glóandi skúlptúr í byggingu Jörgen Hansen, danskur leirlistamaður stendur nú í stórræðum nærri Norrænahúsinu en hann er að byggja glóandi leirskúlptúr. Skúlptúrinn, sem á að byggjast á fjórtán dögum, á að verða þriggja metra hár og mun vega fjögur tonn. 10.8.2006 13:00
Ekki næst enn samkomulag um breytt orðalag svo hægt verði að stilla til friðar í Líbanon Ísraelsher náði í nótt og í morgun þremur þorpum í Suður-Líbanon á sitt vald. Hermenn eiga í hörðum átökum við Hizbollah-skæruliða á svæðinu. Ekki hefur enn tekist að ná samkomulagi um breytt orðalag ályktunar sem miðar að því að stilla til friðar í landinu. 10.8.2006 12:48
James Bond aðdáendur stoppaðir fyrir hraðakstur Radarbyssur sunnlenskra sveitalögreglumanna stöðva eins og ekkert sé, hvern erlenda James Bond aðdáandann á fætur öðrum, sem geysast í pílagrímaferðir austur að Bond Lagoon, eins og þeir kalla Jökulsárlón. 10.8.2006 12:43
Dregur úr íbúðalánum banka Verulega dró úr íbúðalánum bankanna í júlí og námu þau aðeins rúmum þremur og hálfum milljarði króna. Það er lægsta lánsupphæð síðan bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn fyrir rétt um tveimur árum. 10.8.2006 12:36
Öngþveiti á flugvöllum á Englandi Bresk og bandarísk yfirvöld upplýstu í morgun að tekist hefði að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn sprengdu í loft upp farþegavélar á leið milli landanna. Ekki er flogið til Bretlands sem stendur og óvíst hvenær það verður hægt á ný. Algjört öngþveiti ríkir á flugvöllum þar í landi. 10.8.2006 12:17
Hert eftirlit á Keflavíkurflugvelli Eftir fund lögreglu- og flugmálayfirvalda á Keflavíkurflugvelli í morgun var ákveðið að herða eftirlit á vellinum. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, felur það meðal annars í sér að leit á farþegum og í farangri verður ítarlegri en ella en ætti þó ekki að valda miklum töfum. 10.8.2006 11:52
Upplýsingabæklingur fyrir erlenda foreldra Menntasvið Reykjavíkurborgar hefur gefið út upplýsingabækling á átta tungumálum fyrir erlenda foreldra. Í bæklingnum er fjallað um Íslenska leikskóla og eins tvítyngi barna á leikskólastigi. 10.8.2006 11:34
Hlutabréfavísitölur lækka vegna hryðjuverkaógnar Hryðjuverkaógnin í Bretlandi hefur áhrif á markaði víðsvegar um heiminn. Fram kemur á vef Glitnis að allar helstu hlutabréfavísitölur hafi lækkað og þá hlutabréf í evrópskum flugfélögum einna mest. 10.8.2006 11:28
Komið í veg fyrir sprengjutilræði í bandarískum flugvélum Bandarísk stjórnvöld segjast hafa komið í veg fyrir sprengjutilræði í þremur flugvélum bandarískra flugfélaga, United, American og Continental airlines. 10.8.2006 10:29