Fleiri fréttir Segir skilyrðin engu breyta Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, um að setja samruna Dagsbrúnar og Securitas ákveðin skilyrði, breytir engu um starfsemi Securitas eða Dagsbrúnar, segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar. 26.7.2006 07:00 Breytir miklu fyrir farsímanotendur Ákveðið hefur verið að skylda farsímafélögin til þess að lækka lúkningargjöld. Miklar hagsbætur fyrir neytendur, segir Hrafnkell Gíslason. Fögnum breytingunni, segir fulltrúi Símans. Óþarfa inngrip, segir forstjóri Og Vodafone. 26.7.2006 07:00 Féll marga metra af gaffli lyftara og lést Banaslys varð við Hellisheiðarvirkjun í gær þegar maður sem stóð á vörubretti á gaffli lyftara féll marga metra til jarðar. Forstjóri Vinnueftirlitsins segir að öryggisráðstöfunum hafi ekki verið fylgt og hefur vinna við verkið verið stöðvuð. 26.7.2006 07:00 Ísraelsher tryggir sér svæði Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir að Ísraelar ætli sér upp á eigin spýtur að ákvarða "öryggissvæði" syðst í Líbanon á landræmu meðfram landamærum Ísraels. Þeir ætla sér að verja þetta svæði þangað til annað hvort alþjóðlegar gæslusveitir verða sendar þangað eða samið verður um að skæruliðar Hizbollah-hreyfingarinnar fari frá ísraelsku landamærunum. 26.7.2006 07:00 Nýr spítali haldi áætlun Áríðandi er að undirbúningur við byggingu nýs spítala haldi áætlun, segir í ályktun frá stjórn hjúkrunarráðs Landspítalans. Stjórnin segir frestun á framkvæmdum geta haft alvarlegar afleiðingar þar sem húsnæðisskortur sé nú þegar óviðunandi. Með nýrri byggingu muni þjónusta við sjúklinga batna, hagkvæmni í rekstri aukast og aðstaða starfsmanna og nemenda verða betri. 26.7.2006 06:45 Verulega dregur úr nýskráningum bíla Sala nýrra bíla það sem af er þessu ári er umtalsvert meiri en fyrir ári síðan en tæplega þúsund fleiri bílar hafa verið seldir nú en þá sem þó var algjört metár hvað sölu á nýjum bílum snerti. 26.7.2006 06:45 Haldið sofandi á gjörgæslu Jonathan Motzfeldt, formanni grænlenska landsþingsins, er enn haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum en hann var fluttur þangað frá Grænlandi á fimmtudag. Motzfeldt hefur verið greindur með lungnabólgu og nýrnabilun vegna bakteríusýkingar. 26.7.2006 06:45 Síminn og Atlassími ná sáttum í deilu Síminn hf. og Atlassími hafa náð sáttum í deilu félaganna um færslu á númerum úr almennri símaþjónustu í netsímaþjónustu. Póst- og fjarskiptastofnun mun ekki hafa frekari afskipti af málinu en undrast stjórnsýslukæru í málinu. 26.7.2006 06:45 Fimm þúsund bílar sukku Tuttugu og þriggja manna áhöfn var í gær bjargað um borð í þyrlur af sökkvandi flutningaskipi skammt frá Aleuteyjum, suður af Alaska. Um borð í skipinu eru fimm þúsund nýjar bifreiðar sem átti að flytja frá Japan til Kanada. 26.7.2006 06:45 Farþegarnir blandast áfram Eftir að breytingum á Flugstöð Leifs Eiríkssonar lýkur í vor eiga komu- og brottfararfarþegar enn eftir að blandast. 26.7.2006 06:30 Fimm Rússar handteknir
Reindeerburgers: A Raving Success 25.7.2006 12:00 Mikil mengun vegna slyssins Lögreglan á Húsavík og Akureyri lokaði margra ferkílómetra svæði af í Ljósavatnsskarði laust fyrir klukkan níu í morgun vegna sprengihættu, sem skapaðist eftir að fulllestaður bensínflutningabíll valt á þjóðveginum og þúsundir lítra af bensíni runnu úr geymum hans. 25.7.2006 12:00 Framkvæmdum frestað á tónlistar og ráðstefnuhúsi Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hægja á framkvæmdum við tónlistar og ráðstefnuhús í samkomulagi við Reykjavíkurborg og Portus. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að þetta væru skýr skilaboð frá ríkisstjórninni um að hún vildi viðhalda stöðugleikanum. Viðræður verða við Portus á næstu dögum og þá verður endanlega rætt um hvernig staðið verður að framkvæmdunum. 25.7.2006 11:47 Stefnt að því að ljúka framkæmkvæmdum næsta vor Framkvæmdum við stækkun og breytingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar miðar vel áfram. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdunum fyrir tuttugu ára vígsluafmæli flugstöðvarinnar næsta vor. Lokaáfangi verksins er nú að hejast með enn frekari breytingum á 2. hæð flugstöðvarinnar og verulegri stækkun og breytingu á innritunar- og komusal stöðvarinnar. 25.7.2006 11:22 Icelandic lamb to the White House 25.7.2006 11:15 Free Falling 25.7.2006 11:06 Óskar eftir samvinnu við almenningi Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir samvinnu við almenning varðandi upplýsingar um fíkniefni. Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að fíkniefni séu oft fylgifiskur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum. Það sé því samfélagsleg skylda hvers og eins og því beinir lögreglan því til almennings að koma upplýsingum til lögreglu varðandi hugsanlegan flutning fíkniefna til Vestmannaeyja. Fullri nafnleynd er heitið en hægt er að hafa beint samband við lögregluna í síma 4811665 eða fíkniefnasíma Ríkislögreglustjóra 800-5005. 25.7.2006 11:05 Eiður Smári with Barcelona in Denmark 25.7.2006 10:59 Með 30.000 lítra af bensíni Bensínflutningabíll með tengivagni með 30 þúsund lítra af bensíni, valt á veginum um Ljósavatnsskarð á milli Akureyrar og Húsavík laust fyrir klukkan níu í morgun. Bílstjórinn er ekki talinn vera alvarlega slasaður, en hann er töluvert lemstraður eftir veltuna, en hann var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Í tilkynningu frá Olíudreifingu segir að verulegt magn af bensíni hafi leikið úr tengivagninum en minna úr tanki bílsins. 25.7.2006 10:51 Bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn girt af Bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn var girt af í morgun eftir að danska lögreglan handtók mann með bakpoka sem í var grunsamlegur pakki. Öryggisverðir sendiráðsins veittu manninum athygli fyrir utan bygginguna en hann virtist ringlaður. 25.7.2006 10:45 Sjá næstu 50 fréttir
Segir skilyrðin engu breyta Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, um að setja samruna Dagsbrúnar og Securitas ákveðin skilyrði, breytir engu um starfsemi Securitas eða Dagsbrúnar, segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar. 26.7.2006 07:00
Breytir miklu fyrir farsímanotendur Ákveðið hefur verið að skylda farsímafélögin til þess að lækka lúkningargjöld. Miklar hagsbætur fyrir neytendur, segir Hrafnkell Gíslason. Fögnum breytingunni, segir fulltrúi Símans. Óþarfa inngrip, segir forstjóri Og Vodafone. 26.7.2006 07:00
Féll marga metra af gaffli lyftara og lést Banaslys varð við Hellisheiðarvirkjun í gær þegar maður sem stóð á vörubretti á gaffli lyftara féll marga metra til jarðar. Forstjóri Vinnueftirlitsins segir að öryggisráðstöfunum hafi ekki verið fylgt og hefur vinna við verkið verið stöðvuð. 26.7.2006 07:00
Ísraelsher tryggir sér svæði Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir að Ísraelar ætli sér upp á eigin spýtur að ákvarða "öryggissvæði" syðst í Líbanon á landræmu meðfram landamærum Ísraels. Þeir ætla sér að verja þetta svæði þangað til annað hvort alþjóðlegar gæslusveitir verða sendar þangað eða samið verður um að skæruliðar Hizbollah-hreyfingarinnar fari frá ísraelsku landamærunum. 26.7.2006 07:00
Nýr spítali haldi áætlun Áríðandi er að undirbúningur við byggingu nýs spítala haldi áætlun, segir í ályktun frá stjórn hjúkrunarráðs Landspítalans. Stjórnin segir frestun á framkvæmdum geta haft alvarlegar afleiðingar þar sem húsnæðisskortur sé nú þegar óviðunandi. Með nýrri byggingu muni þjónusta við sjúklinga batna, hagkvæmni í rekstri aukast og aðstaða starfsmanna og nemenda verða betri. 26.7.2006 06:45
Verulega dregur úr nýskráningum bíla Sala nýrra bíla það sem af er þessu ári er umtalsvert meiri en fyrir ári síðan en tæplega þúsund fleiri bílar hafa verið seldir nú en þá sem þó var algjört metár hvað sölu á nýjum bílum snerti. 26.7.2006 06:45
Haldið sofandi á gjörgæslu Jonathan Motzfeldt, formanni grænlenska landsþingsins, er enn haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum en hann var fluttur þangað frá Grænlandi á fimmtudag. Motzfeldt hefur verið greindur með lungnabólgu og nýrnabilun vegna bakteríusýkingar. 26.7.2006 06:45
Síminn og Atlassími ná sáttum í deilu Síminn hf. og Atlassími hafa náð sáttum í deilu félaganna um færslu á númerum úr almennri símaþjónustu í netsímaþjónustu. Póst- og fjarskiptastofnun mun ekki hafa frekari afskipti af málinu en undrast stjórnsýslukæru í málinu. 26.7.2006 06:45
Fimm þúsund bílar sukku Tuttugu og þriggja manna áhöfn var í gær bjargað um borð í þyrlur af sökkvandi flutningaskipi skammt frá Aleuteyjum, suður af Alaska. Um borð í skipinu eru fimm þúsund nýjar bifreiðar sem átti að flytja frá Japan til Kanada. 26.7.2006 06:45
Farþegarnir blandast áfram Eftir að breytingum á Flugstöð Leifs Eiríkssonar lýkur í vor eiga komu- og brottfararfarþegar enn eftir að blandast. 26.7.2006 06:30
Kostirnir eru króna eða ESB Aðeins tveir raunhæfir kostir eru varðandi framtíðarskipan gengismála á Íslandi. Annaðhvort núverandi staða með flotgengisstefnu krónunnar eða upptaka evru með inngöngu í myntbandalagið og Evrópusambandið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Viðskiptaráðs sem kemur út í dag. 26.7.2006 06:30
Enn ein bílvelta á Hólssandi Erlendur ferðamaður velti bílaleigubíl sínum á Hólssandi í fyrrakvöld. Hann var einn í bílnum og sakaði ekki. Varðstjóri lögreglunnar á Húsavík segir þennan veg sérstaklega varasaman. Það sem af er sumri hafi orðið þar einar átta bílveltur. 26.7.2006 06:15
Hafa reynslu af vinnu erlendis Íslenska orkufyrirtækið Enex, sem vinnur að rannsóknum á jarðvarma í þremur sveitarfélögum í austanverðri Slóvakíu, hefur tekið þátt í meira en fimm verkefnum á erlendri grundu. Meðal annars hefur fyrirtækið tekið þátt í stórum verkefnum í El Salvador, Ungverjalandi, Póllandi og Slóvakíu. 26.7.2006 06:15
Danir vilja hluta gróðans Danir og Grænlendingar deila nú um það hvort tekjur af olíu, sem hugsanlega finnst út af ströndum Grænlands, eigi að falla Grænlendingum óskiptar í skaut eða dragast frá árlegum greiðslum frá Danmörku til grænlensku landstjórnarinnar. 26.7.2006 06:15
Seðlarnir komnir á netið Fólk getur nú nálgast álagningarseðla sína rafrænt á þjónustusíðu ríkisskattstjóra, www.rsk.is, með veflykli sínum. Opnað var fyrir þessa þjónustu klukkan fjögur í gærdag. 26.7.2006 06:00
Milljónir trjáa þarf til að binda mengunina Bílafloti Íslendinga blæs út um 700 þúsund tonnum af koltvísýringi á hverju ári. Það þyrfti að gróðursetja um það bil 350 milljónir trjáa til að binda mengun flotans. 25.7.2006 22:26
Engin varanleg mengun Heilbrigðiseftirlit Norðurlands telur varanlega mengun vegna bensínslyssins í Ljósavatnsskarði í dag vera litla sem enga. Valdimar Brynjólfsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands segir mest af bensíninu hafa lent á veginum og vegkantinum en vegurinn er mikið upphækkaður á þessum stað. 25.7.2006 22:06
Fæðingamet í júní Íslendingum fjölgar hratt. Nýtt fæðingarmet var slegið í júnímánuði. Og aldrei fyrr hafa eins margir erlendir ríkisborgarar sest að hér á landi og undanfarin misseri. 25.7.2006 21:54
Bækur fundust í gröf Sá merkilegi atburður gerði í dag að bækur fundust í fyrsta sinn við fornleifauppgröft hér á landi á Skriðuklaustri í dag. Bækurnar lágu í kistum tveggja manna sem eru líklega munkar úr klaustrinu. Því er talið að bækurnar séu sálmabækur. Uppgröfturinn hefur leitt í ljós marga fagra hluti. Enn bíða grafir rannsóknir í klausturkirkjunni að Skriðu og því líklegt að uppgröfturinn leiði fleira óvænt í ljós. 25.7.2006 21:50
Framtíð friðargæslu í Líbanon óljós Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði bak við luktar dyr í dag til að ræða um framtíð alþjóðlegs friðargæsluliðs í Líbanon sem gæta bláu línunnar sem skilur Líbanon og Ísrael. 25.7.2006 21:47
Óperuhúsi ekki frestað Kópavogsbær hyggur á niðurskurð sem nemur um hálfum milljarði króna til að stemma stigu við þenslu í efnahagslífinu. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að byggingu óperuhúss verði ekki frestað þrátt fyrir bæjarstjórn hafi ákveðið á dögunum að skera niður um hálfan milljarð króna vegna þenslu. 25.7.2006 21:35
Lítil mengun vegna olíuslyssins Hreinsunaraðgerðum er nú lokið í Ljósavatnsskarði, eftir að 10 þúsund lítrar af bensíni láku úr olíuflutningabíl og tengivagni sem hann dró valt á hliðina til móts við Stóru-Tjarnir í morgun. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands telur varanlega mengun vegna slyssins vera litla sem enga. 25.7.2006 18:54
Banaslys við Hellisheiðarvirkjun Tæplega fimmtugur franskur maður lést í vinnuslysi á svæði Hellisheiðarvirkjunar í morgun. Maðurinn féll úr sjö til níu metra hæð þegar lyftari með kranabómu valt. 25.7.2006 18:30
Gefur lítið fyrir rök ríkisstjórnarinnar Dagur B. Eggertsson gefur lítið fyrir rökstuðning ríkisstjórnarinnar um að hægja þurfi á framkvæmdum á væntanlegu tónlistar- og ráðstefnuhúsi í Reykjavík til að slá á þenslu í efnahagslífinu og segir að svo virðist sem allt eigi að víkja fyrir stóriðjustefnu stjórnvalda. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hægja á framkvæmdum við tónlistar og ráðstefnuhús í samkomulagi við Reykjavíkurborg og Portus. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að þetta væru skýr skilaboð frá ríkisstjórninni um að hún vildi viðhalda stöðugleikanum. Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir þau rök þó í versta falli nothæf sem skemmtiatriði á árshátíð hagfræðinga. Þó hann fagni því að húsið sé að rísa segir hann óheppilegt að Reykvíkingar þurfi að sætta sig við að hafa stóra holu í hjarta miðbæjarins fjórum mánuðum lengur en gert var ráð fyrir. Dagur segir jafnframt að skortur sé á yfirsýn þegar reynt væri að koma böndum á þensluna og nefnir hann sem dæmi að fyrirhugaðar framkvæmdir á Geldinganesi séu mun líklegri til að þensla í efnahagslífinu aukist enn frekar. 25.7.2006 17:21
Rauði kross Íslands sendir neyðaraðstoð til Líbanons Rauði kross Íslands hefur ákveðið að leggja tvær milljónir króna til hjálparstarfs í Líbanon eftir að alþjóða Rauði krossinn sendi út neyðarbeiðni til aðildarsamtaka víða um heim. Rauði kross Íslands kallar ennfremur eftir framlögum frá Íslendingum þar sem reynt verður að senda frekari aðstoð á næstu dögum. 25.7.2006 17:00
Netsími bundinn í jarðlínu Róbert Bragason, stjórnarformaður Atlassíma, vill koma því á framfæri að notast er við jarðlínur í netsímtölum fyrirtækisins. Í frétt hér á Vísi fyrr í dag var sagt að "ólíkt símkerfi Símans eru símar Atlassíma ekki bundnir við jarðlínur heldur er hringt í gegnum tölvur." Yfirmenn lögreglu og Neyðarlínu vilja að beðið verði með að heimila flutning símanúmera úr talsímakerfinu í netsímakerfi Atlassíma. Þeir óttast að flutningurinn dragi úr öryggi og geti hamlað lögreglurannsóknum. 25.7.2006 15:33
Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins lýsir yfir stuðningi við Sigurstein Másson Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við formann bandalagsins, Sigurstein Másson, í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér í dag. 25.7.2006 14:49
British airways taka upp nýja þjónustu Flugfélagið British airways hefur opnað nýja þjónustu á heimasíðu sinni en nú geta viðskiptavinir félagsins innritað sig á síðu þeirra allt að 24 tímum fyrir brottför. Allt að sex manns geta nú innritað sig í einu, valið fæti í flugvélinni og einnig er hægt að velja barnamáltíð ef börn eru með í ferð. 25.7.2006 14:46
Icelandair íhugar að krefja ríkið um skaðabætur Icelandair er að skoða rétt sinn til að krefja ríkið um skaðabætur vegna kostnaðar , sem félagið hefur orðið fyrir vegna mikilla veikinda flugumferðarstjóra. 25.7.2006 14:06
Stefán Jón Hafstein mótmælir frestun á byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss Stefán Jón Hafstein, fulltrúi Samfylkingarinnar í menningarmálaráði, segir ríkisstjórnina ekki geta einhliða gengið gegn samningum, um byggingu tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík, sem fjórir ráðherrar skrifuðu undir fyrir örfáum mánuðum. 25.7.2006 13:39
Franskur maður lést í vinnuslysi Franskur maður á fimmtugsaldri lést og annar slasaðist lítillega í vinnuslysi við Hellisheiðarvirkjun um klukkan hálf níu í morgun. Á heimasíðu lögreglunnar segir að mennirnir hafi verið að vinna við tengivirki á virkjanasvæðinu. Annar stóð á vörubretti framan á gafli lyftara í um sjö til níu metra hæð. 25.7.2006 13:30
Nokkur ölvun í Eyjum um liðna helgi Lögreglan í Vestmannaeyjum þurfti að hafa nokkur afskipti af skemmtanahaldi liðinnar helgi sökum ölvunar á fólki. Lögreglan fékk þrjár tilynningar um slagsmál fyrir utan skemmtistaði bæjarins en í öllum tilvikum voru þau afstaðin þegar lögregla kom á staðinn. Engir eftirmálar virðast hafa orðið af slagsmálunum. 25.7.2006 12:46
Fundað í Róm á morgun um ástandið í Líbanon Háttsettir sendifulltrúar frá Bandaríkjunum, Evrópulöndum og ríkjum Mið-Austurlanda koma saman til fundar í Róm á morgun til að ræða ástandið í Líbanon. Fulltrúar Rauða krossins þar segja sjúkraflutningamenn á þeirra vegum ekki óhulta fyrir árásum Ísraelshers. Þeir fullyrða að níu hafi særst þegar sprengjum var varpað á sjúkrabíla á þeirra vegum í Suður-Líbanon á sunnudag. 25.7.2006 12:45
Skattgreiðendur geta nálgast Skattgreiðendur, sem töldu fram til skatts á Netinu, geta nálgast álagningarseðla frá Ríkisskattstjóra rafrænt á þjónustusíðu ríkisskattstjóra; www.rsk.is með veflykli sínum eftir klukkan fjögur í dag. Aðrir munu fá álagningarseðla senda til sín í pósti á föstudaginn kemur og í byrjun næstu viku. Sama dag verður lögð fram skrá með álagningu opinberra gjalda árið 2006. 25.7.2006 12:08
Mikil mengun vegna slyssins Lögreglan á Húsavík og Akureyri lokaði margra ferkílómetra svæði af í Ljósavatnsskarði laust fyrir klukkan níu í morgun vegna sprengihættu, sem skapaðist eftir að fulllestaður bensínflutningabíll valt á þjóðveginum og þúsundir lítra af bensíni runnu úr geymum hans. 25.7.2006 12:00
Framkvæmdum frestað á tónlistar og ráðstefnuhúsi Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hægja á framkvæmdum við tónlistar og ráðstefnuhús í samkomulagi við Reykjavíkurborg og Portus. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að þetta væru skýr skilaboð frá ríkisstjórninni um að hún vildi viðhalda stöðugleikanum. Viðræður verða við Portus á næstu dögum og þá verður endanlega rætt um hvernig staðið verður að framkvæmdunum. 25.7.2006 11:47
Stefnt að því að ljúka framkæmkvæmdum næsta vor Framkvæmdum við stækkun og breytingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar miðar vel áfram. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdunum fyrir tuttugu ára vígsluafmæli flugstöðvarinnar næsta vor. Lokaáfangi verksins er nú að hejast með enn frekari breytingum á 2. hæð flugstöðvarinnar og verulegri stækkun og breytingu á innritunar- og komusal stöðvarinnar. 25.7.2006 11:22
Óskar eftir samvinnu við almenningi Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir samvinnu við almenning varðandi upplýsingar um fíkniefni. Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að fíkniefni séu oft fylgifiskur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum. Það sé því samfélagsleg skylda hvers og eins og því beinir lögreglan því til almennings að koma upplýsingum til lögreglu varðandi hugsanlegan flutning fíkniefna til Vestmannaeyja. Fullri nafnleynd er heitið en hægt er að hafa beint samband við lögregluna í síma 4811665 eða fíkniefnasíma Ríkislögreglustjóra 800-5005. 25.7.2006 11:05
Með 30.000 lítra af bensíni Bensínflutningabíll með tengivagni með 30 þúsund lítra af bensíni, valt á veginum um Ljósavatnsskarð á milli Akureyrar og Húsavík laust fyrir klukkan níu í morgun. Bílstjórinn er ekki talinn vera alvarlega slasaður, en hann er töluvert lemstraður eftir veltuna, en hann var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Í tilkynningu frá Olíudreifingu segir að verulegt magn af bensíni hafi leikið úr tengivagninum en minna úr tanki bílsins. 25.7.2006 10:51
Bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn girt af Bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn var girt af í morgun eftir að danska lögreglan handtók mann með bakpoka sem í var grunsamlegur pakki. Öryggisverðir sendiráðsins veittu manninum athygli fyrir utan bygginguna en hann virtist ringlaður. 25.7.2006 10:45