Fleiri fréttir

Mikið af ferðamönnum til Hornstranda

Mikill fjöldi ferðamanna hefur farið á Hornstrandafriðlandið frá Norðurfirði í sumar. Fréttavefurinn Strandir punktur is greinir frá því að hundruðir gesta hafi siglt með bátnum Sædísi sem flytur fólk til Hornstranda. Ferðir eru farnar þrisvar í viku en vegna mikils áhuga ferðamanna á svæðinu þá hefur þurft að bæta við nokkuð af aukaferðum í sumar.

Von er á 21 skemmtiferðaskipi til Ísafjarðar í sumar

Von er á ríflega tvö þúsund ferðamönnum til Ísafjarðar með skemmtiferðaskipum í vikunni og tæplega þrjú þúsund í vikunni þar á eftir. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að komur skemmtiferðaskipa standa nú sem hæst en von er á fjórum skipum til Ísafjarðar í vikunni.

Leiðtogar Serba og Albana funda í Vín

Viðræður milli serbneskra og albanskra leiðtoga um framtíð Kosovo báru lítinn árangur á fundi leiðtoganna í Vín í Austurríki í gær. Fundurinn var haldinn fyrir tilstillan Sameinuðu þjóðanna og miðast viðræðurnar við að leysa framtíð Kosovo héraðs fyrir lok ársins.

Fyllti fis flugvél sína af bensíni á bensínstöð

Lögreglan á Ísafirði veltir nú fyrir sér hvort eða hvaða umferðarlög flugmaðurinn braut, sem lenti fis flugvél sinni á þjóðveginum við Flateyri í gær. Hann ók henni síðan á bensínstöð fyrir bíla, fyllti geyminn, ók henni yfir veginn á ný og út á tún, þar sem flugið var tekið á ný. Fis vélar eru mjög léttar og lúta ekki sömu skráningarákvæðum og venjulegar flugvélar, hvað þá bílar eða bifhjól.

Lögreglan hraðamælir í íbúðargötum

Einn ökumaður missir ökuréttindi í þrjá mánuði, tveir í tvo mánuði og sautján til viðbótar fá fjársektir, eftir hraðamælingar lögreglunnar í Reykjavík í nokkrum íbúðargötum í gær. Þar er hámarkshraðinn aðeins 30 kílómetrar á klukkustund, enda geta börn verið að leik á þessum götum. Í ljósi þess hversu margir voru bortlegir, ætlar lögregla að halda viðlíka mælingum áfram til að reyna að ná hraðanum niður.

Egeland vill koma á vopnahléi milli Ísrael og Líbanon

Jan Egeland, yfirmaður neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir nauðsynlegt að koma á vopnahléi milli Ísraela og Líbanon. Hann kom til Ísrael í dag í þeim tilgangi að reyna að leita leiða til að koma hjálparaðstoð til þeirra líbanskra borgara sem eru fastir mitt átökunum á milli hersveita Ísraela og Hizbollah.

Flugumferðarstjórar deila við ríkið um vaktafyrirkomulag

Icelandair er að skoða rétt sinn til að krefja ríkið um skaðabætur vegna kostnaðar, sem félagið hefur orðið fyrir vegna mikilla veikinda flugumferðarstjóra. Talsmaður félagsins segir í viðtali við Morgunblaðið að veikindin hafi valdið töfum og þar að auki hafi vélar félagsins ekki fengið að fljúga í hagkvæmustu flughæðum.

Kærði sjálfan sig til lögreglu

Tvítugur norskur ökumaður tók upp á því aðfaranótt sunnudags að hringja í lögreglu og tilkynna að hann æki undir áhrifum áfengis. Að því loknu beið hann í bílnum eftir lögreglu. Maðurinn var einnig með útrunnið ökuskírteini og á óskráðum bíl.

Tuttugu og tveir látast vegna hitabylgju

Tuttugu og tveir hafa látist í hitabylgju í Frakklandi. Fólk hefur einnig látist af völdum hita í öðrum Evrópulöndum síðustu daga en flestir í Frakklandi.

Stýrir fundi ríkisstjórnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, stýrir ríkisstjórnarfundi í dag. Eftir því sem næst verður komist er það í fyrsta sinn sem kona situr í forsæti ríkisstjórnar Íslands.

Hótaði afsögn á fundinum

Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, hótaði uppsögn á aðalstjórnarfundi ef ráðningarsamningur nýs framkvæmdastjóra yrði ekki samþykktur. Margir sátu hjá í atkvæðagreiðslunni.

Litlar líkur á samkomulagi

Forystumenn Serbíu og albanskra íbúa í Kosovo hittust í gær í Vínarborg í Austurríki til þess að finna lausn á ágreiningi þeirra um framtíð Kosovo. Líkur á samkomulagi þykja þó litlar.

Tengsl milli námsárangurs og þyngdar

Tengsl eru á milli námsárangurs og þyngdar nemenda í grunnskóla, samkvæmt rannsókn sem Heilsugæslan á Akureyri, Ráðgjafastofan Reynir og Háskólinn á Akureyri hafa gert og greint er frá í Morgunblaðinu. Fram kemur að of þungum nemendum gengur lakar i námi en krökkum í kjörþyngd þótt ekkert bendi til að þeir hafi minni námshæfileika. Þetta vriðist eiga nokkuð jafnt við pilta og stúlkur.

Rice fundar með Olmert í dag

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú komin til Ísraels en hún hóf ferð sína um Mið-Austurlönd í gær í Beirút, höfuðborg Líbanons. Óvíst er hver árangurinn af ferð hennar verður en ljóst er að stjórnvöld í Washington gera ekki kröfu um vopnahlé strax.

Þörf á fleiri úrræðum

Tómas Zoega, yfirlæknir geðdeilar Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH), segir að starfsemi geðdeildarinnar þurfi stöðuga umræðu og mikilvægt sé að fjölbreytt meðferðarúrræði standi sjúklingum til boða bæði innan og utan geðdeildar.

Dorrit verður Íslendingur

Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, verður íslenskur ríkisborgari næstkomandi mánudag, hinn 31. júlí. Umsókn hennar hefur verið afgreidd úr dómsmálaráðuneytinu og mun taka gildi á mánudaginn. Þetta staðfestir Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Verða feitari og óheilbrigðari

Norðurlandabúar verða sífellt feitari og óheilbrigðari en samkvæmt nýlegri skýrslu er fimmta hvert barn of þungt og rúmlega fjörutíu prósent fullorðinna glíma við sama vandamál.

Guðjón segir lögbrot hafa verið nauðsyn

Guðjón Hjörleifsson segir að það hafi verið nauðsynlegt að brjóta hlutafélagalög til þess að Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja gæti keypt Íslenskar matvörur, sem rak félagið nánast í þrot. Lögmenn segja brotið geta falið í sér refsiábyrgð.

Kynlíf veldur vandræðum

Sífellt fleiri dönsk pör kjósa að flytja kynlífið úr svefnherberginu út á sólarstrendur landsins yfir sumartímann en sífellt fjölgar kvörtunum sem lögregla fær vegna fólks er stundar kynlíf á almenningsströndum fyrir allra sjónum.

Rice á stormasömum fundi

Condoleezza Rice kynnti ráðamönnum í Líbanon í gær tillögur um að líbanskar og alþjóðlegar hersveitir gæti friðar eftir að vopnahlé kemst á. Hizbollah sýnir hugmyndum um vopnahlé engan áhuga.

Metár í utanlandsferðum

Það er ekki logið á ferðagleði landans, eins og kemur skýrast fram hjá íslenskum ferðaskrifstofum þessa dagana. Uppselt er í flestar ferðir til sólarlanda næstu þrjár vikurnar. Þegar allt er talið eru seld hundruð þúsunda sæta á hverju ári í sólina, skíðaferðir, borgarferðir og sérferðir margs konar. Athygli vekur að mikið er spurt um sólarlandaferðir þegar veður er gott hér á landi.

Kísilblanda borin á vegkanta

Styrkja ætti vegkanta á þjóðvegum landsins með því að bera á þá blöndu úr sandi, sementi og kísilryki. Þetta segir Steingrímur Sigurjónsson, byggingarfræðingur, hópferðabílstjóri og hugvitsmaður, sem lætur sér ekkert óviðkomandi þegar öryggi mannvirkja er annars vegar, hvort heldur það eru vegir eða byggingar.

Önnin kostar 236 þúsund

Viðskiptaháskólinn á Bifröst er einn þeirra háskóla sem hafa hækkað skólagjöld sín. Aðstoðarrektor segir hækkanir tilkomnar vegna aukinnar þjónustu við nemendur og að málið sé unnið í fullri sátt.

Tilkynnt um fljótandi lík

Lögregla bjargaði manni á floti rétt fyrir utan Grafarvog um þrjú leytið í gærnótt. Tilkynnt var að sést hefði lík á floti en þegar lögregla kom á staðinn, á litlum gúmmíbát, var maðurinn á lífi.

Mati á eignum RÚV að ljúka

Mati á eignum Ríkisútvarpsins lýkur um miðjan ágúst en nefnd fjögurra manna, undir forystu Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda, hefur unnið að matinu.

Vegagerðin hafnar vegaskiltum á ensku

Sjóvá-Almennar hefur lagt til við Vegagerðina að settar verði merkingar á ensku á þeim stöðum þar sem malarslitlag tekur við af bundnu slitlagi, en malarvegir reynast mörgum erlendum ferðamönnum skeinuhættir. Vegagerðin telur ekki ástæðu til að setja upp merkingar á ensku.

Byggja 200 þjónustuíbúðir

„Við ræddum undir­búning á byggingu um það bil 200 þjónustuíbúða og fórum svo vítt og breitt yfir allt sem viðkemur þjónustu við þennan hóp,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem sat fyrsta fund samráðsnefndar Reykjavíkurborgar um málefni eldri borgara sem haldinn var í gærdag.

Hundruð mót-mælenda áreitt

Meira en 500 manns, sem mótmæltu leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims í Pétursborg í síðasta mánuði, urðu fyrir margvíslegu áreiti af hálfu rússnesku lögreglunnar.

Uppbygging á Vestfjörðum

Ferðamálastofa hefur undirritað undir samning vegna verkefna í uppbyggingu og úrbótum á ferðamannastöðum á Vestfjörðum. Þeir sem koma að samningnum eru klasafyrirtækið Sjávarþorpið Suðureyri og Ísafjarðarbær. Sjávarþorpið Suðureyri fær styrk til uppbyggingar á upplýsingamiðlunartorgi sem staðsett er við innkeyrsluna í bæinn, og Ísafjarðarbær fær styrk til úrbóta á aðstöðu fyrir ferðafólk á Hornströndum.

Íslendingar aldrei fleiri

Íbúum landsins hefur fjölgað um fjögur þúsund það sem af er árinu en það er mesta fjölgun síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Að sögn Ólafar Garðarsdóttur hjá Hagstofunni er rúmur helmingur fjölgunarinnar til kominn vegna fólks sem flyst til landsins en flestir flytjast frá Póllandi.

Segir forsvarsmenn Neyðarlínu rjúfa sátt

Stjórnarformaður Atlassíma telur framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar rjúfa sátt með kæru, sem vísað hefur verið frá. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar neitar því. Yfirlýsing milli Atlassíma og Neyðarlínunnar var undirrituð 25. nóvember.

Fleiri banaslys í dreifbýli

Tveir létu lífið í umferðinni um helgina og eru banaslysin því orðin ellefu það sem af er ári. Sex slysanna ellefu hafa orðið í dreifbýli og fimm í þéttbýli, en í fyrra urðu einnig áberandi flest umferðarslys í dreifbýli. Þrír hafa látist í bifhjólaslysum.

Vill ekki eyða ellinni í golfi

Stjórn British Petroleum, BP, hefur þrýst á forstjóra félagsins, Browne lávarð, að hann láti sjálfviljugur af störfum árið 2008 þegar hann verður sextugur. Í reglum félagsins er kveðið á um að lykilstjórnendur eigi að láta af störfum við sextugsaldur en það sama gildir ekki um stjórnarmenn eða almenna starfsmenn.

Skemmdarverk í Sólbrekkuskógi

Fólk sem hafði verið með gleðskap í Sólbrekkuskógi við Seltjörn skildi eftir sig sviðna jörð og var aðkoman ekki fögur þegar umsjónarmenn útivistarsvæðisins sneru aftur til vinnu í gærmorgun. Margvísleg spjöll höfðu verið unnin á eignum og gróðri.

Haglabyssan enn ófundin

Haglabyssan sem notuð var við skotárás á raðhús við Burknavelli í Hafnarfirði í síðasta mánuði er enn ófundin, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar þar í bæ.

Kýpur óskar eftir hjálp

Utanríkisráðherra Kýpur hefur óskað eftir hjálp Evrópusambandsins við móttöku flóttamanna frá Líbanon, en um 25 þúsund manns hafa flúið frá landinu til Kýpur og búist er við að sú tala þrefaldist. Evrópusambandið mun senda hjálparteymi til Kýpur til að flýta fyrir flutningi erlendra ríkisborgara til síns heima, en fólksfjöldinn hefur aukið álag á hótel og flugvöllinn í Nicosiu til muna.

Verða sendir í endurhæfingu

Vopnaðir íslamistar handtóku tuttugu manns í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í síðustu viku fyrir að horfa á klámmyndband. Þetta er eitt af mörgum málum sem hafa komið upp í kjölfar valdatöku íslamskra bókstafstrúarmanna, sem vilja bæta siði landsmanna.

Skilyrði Bandaríkjamanna óásættanlega

Yfirmaður viðskiptamála hjá Evrópusambandinu segir Bandaríkjamenn ábyrga fyrir því að Doha-samningaviðræðurnar skuli hafa runnið út í sandinn enn á ný. Hann segir skilyrði sem Bandaríkjamenn settu fyrir því að lækka innflutningstolla á landbúnaðarafurðum vera algjörlega óásættanleg. Framkvæmdastjóri Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar segir nú fullvíst að samningalotan muni ekki klárast í ár eins og flestir höfðu vonast til.

Neytendasamtökin óánægð

Neytendasamtökin eru óánægð með viðbrögð ráðherra við hugmyndum matvælaverðsnefndar. Þau segja fulla ástæðu til að velta fyrir sér til hvers þessi nefnd hafi yfir höfuð verið skipuð og telja landbúnaðarráðherra standa í vegi fyrir aðgerðum til lækkunar á matvælaverði.

Hitabylgja veldur dauða

Tuttugu og tveir hafa látist í hitabylgju í Frakklandi. Fólk hefur einnig látist af völdum hita í öðrum Evrópulöndum síðustu daga en flestir í Frakklandi.

Milljónatjón af völdum veggjakrots

Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári.

Myspace lá niðri

Bandaríska heimasíðan Myspace lá niðri og var óaðgengileg í hálfan sólarhring í dag eftir að rafmagnslaust varð í höfuðstöðvum netfyrirtækisins vegna mikillar hitabylgju í Kaliforníu.

Sjá næstu 50 fréttir