Fleiri fréttir

Opnuðu Disneyland í Kína

Mikki mús hefur hafið innreið sína í Kína en Disneyland-skemmtigarður var opnaður í Hong Kong í morgun. Eigendurnir gera sér vonir um að íbúar þessa fjölmennasta ríkis heims streymi í garðinn. Það var Zeng Kinghong, varaforseti Kína, sem opnaði garðinn formlega ásamt Donald Tsang, leiðtoga Hong Kong, en viðstaddir voru bandarískir yfirmenn Disney-fyrirtækisins.

Handtóku 70 vegna fíkniefnaneyslu

Lögreglan í Singapúr réðst inn á nokkra af fínustu börum borgarinnar í gær og handtók 70 manns fyrir fíkniefnamisnotkun. Fíkniefnalöggjöfin í Singapúr er með þeim ströngustu í heimi þar sem þeir sem eru gripnir með meira en fimmtán grömm af heróíni, 30 grömm af kókaíni, hálft kíló af kannabisefnum eða 250 grömm af amfetamíni eru dæmdir til hengingar.

Níu látnir í flóðum í Víetnam

Að minnsta kosti níu hafa látist, þar af sjö börn, í flóðum í ánni Mekong í suðurhluta Víetnams að undanförnu. Nú þegar hafa 32 þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna og hættu á aurskriðum. Óttast er að fleiri kunni að látast þar sem flóðin hafa ekki enn náð hámarki sínu, en vatnsborðið er nú þegar orðið hærra en það var hæst í fyrra.

Samið á Suðurnesjum

Starfsmannafélag Suðurnesja og Launanefnd sveitarfélaga undirrituðu á föstudaginn nýjan kjarasamning sem gildir til 30. nóvember 2008. Samningurinn nær til um 450 starfsmanna sveitarfélaga og stofnana á Suðurnesjum. Á heimasíðu BSRB kemur fram að fyrir utan beinar launahækkanir sé tekið upp allt að tveggja prósenta mótframlag launagreiðenda vegna séreignarlífeyrissparnaðar launþega.

Vilja yfirráð yfir landamærum

Síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu Gasaströndina í morgun. Palestínumenn fagna þessum áfanga mjög en krefjast einnig yfirráða yfir landamærum og lofthelgi.

Leita þar sem báturinn sökk

Leit að manninum sem saknað er eftir sjóslysið við Skarfaklett stendur enn yfir. Áherslan núna er á að leita neðansjávar þar sem báturinn sökk.

Mál í biðstöðu vegna dómaraskipta

Mál ákæruvaldsins vegna banaslyssins við Kárahnjúka í mars á síðasta ári er í biðstöðu vegna dómaraskipta. Ákæra í málinu var gefin út um miðjan apríl á þessu ári og hafa allir ákærðu komið fyrir Héraðsdóm Austurlands við þingfestingu málsins, en þeir eru yfirmenn hjá Arnarfelli, Impregilo og VIJV.

Verðbólgumörk Seðlabankans rofin

Verðbólgumörk Seðlabankans hafa verið rofin með áberandi hætti að mati greiningardeildar Íslandsbanka. Verðbólgan á landinu er 7,6 prósent miðað við vísitöluhækkun síðustu þriggja mánaða, en 4,8 prósent miðað við síðustu tólf mánuði.

50 lögreglumenn sárir í Belfast

Óeirðir héldu áfram í Belfast í gærkvöldi og í morgun, þriðja daginn í röð. Tæpur áratugur er síðan annað eins ástand hefur skapast þar, en 50 lögreglumenn liggja sárir eftir átök helgarinnar.

Sættir sig við takmarkað rými

Foreldraráð í Korpuskóla hefur sætt sig við að nýi skólinn rúmi ekki öll börnin í hverfinu en þrír efstu árgangarnir þurfa að vera í þar til gerðum skúrum sem komið hefur verið fyrir við skólann. Foreldraráðið treystir á að formaður fræðsluráðs og skólastjórinn muni sjá til þess að betri skúrar verði fengnir í stað þeirra sem nú eru.

Davíð skoðaði Heimssýningu í Japan

Davíð Oddsson utanríkisráðherra skoðaði í dag Heimssýninguna í Aichi í Japan. Hann fór meðal annars í norræna sýningarskálann og þann japanska. Á morgun mun utanríkisráðherra eiga fund með Nobutaka Machimura, utanríkisráðherra Japans. Á miðvikudaginn tekur utanríkisráðherra þátt í viðskiptaráðstefnu þar sem íslensk fyrirtæki munu kynna starfsemi sína.

eBay kaupir Skype

Uppboðssíðan eBay hefur keypt netsímafyrirtækið Skype fyrir um 160 milljarða króna.

Mikil spenna í kosningum í Noregi

Mikil spenna ríkir í Noregi vegna þingkosninganna þar í dag. Stjórnar- og stjórnarandstöðuflokkarnir eru hnífjafnir í skoðanakönnunum og enginn treystir sér til að spá fyrir um úrslitin.

Ástandið verst í Kópavogi

Staða starfsmannamála í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu hefur heldur lagast frá síðustu mánaðamótum þó enn vanti talsvert upp á að skólarnir séu fullmannaðir. Ástandið er sýnu verst í Kópavogi þar sem vantar fólk í hátt í tuttugu stöðugildi en upplýsingar um ástandið í Reykjavík fengust ekki þar sem þær liggja ekki fyrir.

Fellibylsleifar við suðurströndina

Leifar af fellibylnum Maríu eru nú við suðurströnd landsins. Veðrið mun ná hámarki nú í hádeginu. Fólki er ráðlagt að gera ráðstafanir og binda niður lausa hluti á svæðum sem eru opin fyrir vindi.

Lést í sjóslysi á Viðeyjarsundi

Konan sem lést þegar bátur steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi, aðfaranótt laugardags, hét Matthildur Harðardóttir, 51 árs að aldri. Matthildur var til heimilis að Hjallabrekku í Kópavogi. Hún lætur eftir sig tvo syni. Sambýlismanns Matthildar er enn saknað. Hann heitir Friðrik Ásgeir Hermannsson, 33 ára. Friðrik á barnungan son.

Unglingspiltar fundust látnir

Lögregla í bænum Wokingham í Berkshire í Bretlandi hefur handtekið tvo 18 ára pilta í tenglsum við morð á tveimur öðrum piltum á fimmtánda og sautjánda ári í gærkvöld. Talið er að báðir drengirnir hafi verið stungnir til bana, en líkin af þeim fundust í vinsælum almenningsgarði í bænum.

Vilja flugið til Keflavíkur

Rúmlega hundrað hafa gerst stofnfélagar í þverpólitískum samtökum sem ætla að beita sér fyrir því að flytja innanlandsflug til Keflavíkur. Stofnfundur verður haldinn 6. október.

Palestínumaður skotinn til bana

Palestínumaður var skotinn til bana á landamærum Gasastrandarinnar og Egyptalands í dag, sama dag og Ísraelar drógu sig algerlega út af Gasaströndinni. <em>Reuters</em>-fréttastofan hefur eftir vitnum á staðnum að fjölmargir Palestínumenn og Egyptar hafi streymt í báðar áttir yfir landamærin til þess að fagna brotthvarfi Ísraelshers þaðan, en egypskum landamæravörðum var falið að gæta þess að vopnum yrði ekki smyglað frá Egyptalandi til Gasastrandarinnar eftir brottför Ísraelshers.

Guðný Hildur í 3. til 6. sæti

Guðný Hildur Magnúsdóttir félagsráðgjafi hefur ákveðið að gefa kost á sér í þriðja til sjötta sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar.

Hafi tapað miklu á lánabreytingum

ASÍ segir hjón á verkamannalaunum með dæmigert íbúðarlán frá Byggingasjóði verkamanna hafa tapað eitt hundrað þúsund krónum frá breytingunum á lánamarkaðnum í fyrra. Segir ASÍ að greiðslubyrgði þeirra væri um fimm þúsund krónum minni á mánuði ef engar breytingar hefðu orðið á lánamarkaðnum.

Lágu í leigðum kojum í Herjólfi

Kojur sem farþegar Herjólfs höfðu pantað fyrsta laugardag í september voru margar uppteknar af starfsfólki Samskipa þegar farþegarnir komu um borð. Þetta kemur fram á <em>eyjafrettir.is</em>. Allt leit eðlilega út þegar farþegarnir komu að afgreiðslunni og engin fyrirstaða að koma bílum inn. Þeir sem áttu pantaðan klefa en fengu ekki segja starfsfólk Herjólfs hafa verið vandræðalegt og borið fyrir sig tvíbókunum.

Koma að hreinsistöð í Pétursborg

Norræni fjárfestingarbankinn og umhverfisfjármögnunarfyrirtækið NEFCO eru meðal stærstu þátttakenda í umhverfisverkefni í Pétursborg í Rússlandi. Þar er hreinsistöð fyrir hartnær eina milljón íbúa nú tilbúin til notkunar. Talið er að hreinsistöðin muni hafa mikil áhrif á vatnsgæði í Finnskaflóa sem og annars staðar í Eystrasaltinu.

Leikskólabörn brögðuðu á dópi

Sjö dönsk leikskólabörn voru lögð inn á spítala eftir að þau höfðu bragðað á eiturlyfjum sem þau fundu í skógi við Frederikssund í Danmörku í dag. Börnin, sem eru á leikskóla í Farum, voru ásamt kennurum sínum í skógarferð þegar nokkur þeirra fundu nokkra poka með hvítu dufti í. Þau náðu að bragða á efninu, sem lögregla telur vera kókaín, áður en starfsmenn leikskólans komu að þeim og voru í kjölfarið flutt á sjúkrahús til rannsóknar.

Verðbólga ekki meiri í 40 mánuði

Verðbólga hefur ekki meiri í 40 mánuði að því er fram kemur í vef Alþýðusambands Íslands. Verðbólga mælist 4,8 prósent nú í september og er komin langt yfir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Við þessar aðstæður ber bankanum að gera ríkisstjórninni opinberlega grein fyrir ástæðum verðbólgunnar og leiðum til úrbóta.

Vísitala úthafsrækju hækkar aðeins

Lokið er árlegri stofnmælingu Hafrannsóknastofnunarinnar á úthafsrækju fyrir norðan og austan land. Vísitala stofnstærðar samkvæmt fyrstu útreikningum er aðeins hærri í ár miðað við árið 2004 ef litið er á svæðið í heild, en er þó enn þá 27 prósentum lægri en árið 1999 sem var lakasta árið á tíunda áratugnum.

Mikill áhugi fyrir samtökum

Fjölmargir hafa skráð sig sem stofnfélaga í samtök sem berjast fyrir því að fá miðstöð innanlandsflugs til Keflavíkurflugvallar samhliða samgöngutengingu milli Straumsvíkur og Vatnsmýrarinnar í Reykjavík. <em>Víkurfréttir</em> segja frá því að það kosti 1500 krónur að skrá sig á skráningarsíðu samtakanna og hefur komið fram gagnrýni á gjaldtökuna.

Má ekki dreifa Enska boltanum einn

Íslenska sjónvarpsfélagið braut gegn ákvörðun samkeppnisráðs frá því í vor með því að neita að afhenda Íslandsmiðli og Tengi hf. sjónvarpsmerki Enska boltans samkvæmt bráðabrigðaniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Landssíminn hefur því ekki einkarétt til þess að dreifa Enska boltanum í fjarskiptakerfum fyrirtækisins.

Ekki seinagangur vegna litarháttar

George Bush Bandaríkjaforseti hafnaði því í dag að stjórnvöld hefðu brugðist seint við hamförunum í suðurríkjum Bandaríkjanna vegna þess að flest fórnarlambanna hefðu verið blökkumenn og sagði fáránlegt að halda því fram að ekki hefði verið til nægur mannafli til björgunarstarfa vegna Íraksstríðsins. Þessi orð lét forsetinn falla eftir að hafa ekið um New Orleans í dag og kynnt sér aðstæður þar í borg, en hluti borgarinnar er enn á kafi eftir flóðin.

200 sagðir látnir í Tal Afar

Írakski herinn hefur nú drepið nærri 200 uppreisnarmenn og handtekið tæplega 300 í áhlaupi sínu á borgina Tal Afar nærri landamærum Sýrlands. Aðgerðin hófst á laugardag með stuðningi Bandaríkjahers, en talið var að á bilinu 350-500 uppreisnarmenn hefðust við í borginni. Að sögn háttsettra manna innan Írakshers er búist við að átökin standi áfram en að þeim verði lokið fyrir fimmtudag.

Lambakjötið í langþráðu jafnvægi

Í fyrsta sinn í áratugi eru ekki til byrgðir af eldra lambakjöti í upphafi sláturtíðar. Bændur eru bjartsýnni en áður á framtíð greinarinnar og huga sumir hverjir að framleiðsluaukningu. Þar spilar einnig inn í niðurskurður vegna riðu og brotthvarf úr greininni.

Ósakhæfur áfrýjar

Tekin hefur verið ákvörðun um að áfrýja til Hæstaréttar nýföllnum dómi þar sem maður var fundinn ósakhæfur og sendur á Sogn, eftir að hafa ráðist á prófessor í réttarlæknisfræði í vor.

Kjarasamningar séu í uppnámi

Kjarasamningar eru í uppnámi að mati ASÍ vegna gríðarlegrar verðbólgu og hækkunar á vísitölu neysluverðs. Verðbólgan hefur ekki verið meiri í 40 mánuði.

Hafi bjargað lífi foreldra sinna

Svo virðist sem snarræði tíu ára drengs hafi bjargað lífi foreldra hans í sjóslysinu við Skarfaklett aðfaranótt laugardags. Björgunarsveitarmenn leita enn manns sem er saknað eftir slysið en sambýliskona hans fórst þegar báturinn sökk.

Stjórnin fallin skv. útgönguspám

Nú rétt í þessu var verið að loka kjörstöðum í Noregi og samkvæmt útgönguspám virðist sem ríkisstjórn Kjells Magnes Bondeviks sé á leið út og að rauðgræna bandalagið svokallaða vinni sigur, en með litlum mun þó. Samkvæmt útgönguspá TV2 fá vinstriflokkarnir 86 sæti af 169 sætum og munurinn er enn minni í útgönguspá norska ríkisútvarpsins en þar fá vinstriflokkarnir samtals 85 sæti.

Endalok hernáms á Gasaströndinni

Tímamót urðu fyrir botni Miðjarðarhafs í morgun þegar síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu Gasaströndina. Palestínumönnum hafa verið afhent yfirráð yfir svæðinu, en það er hér í veröldinni, liggur að Egyptalandi, Ísrael og Miðjarðarhafinu. Endalok hernámsins eru tvímælalaust stórt skref í friðarferlinu en þetta umtalaða landsvæði er þó ekki nema um 360 ferkílómetrar.

Bjóða út næsta áfanga í mánuðinum

Næsti áfangi tvöföldunar Reykjanesbrautar, kaflinn milli Strandarheiðar og Njarðvíkur, verður boðinn út síðar í þessum mánuði. Miðað er við að framkvæmdir hefjist í vetur.

Ástandið ekki verra í áratug

Óeirðir héldu áfram í Belfast í gærkvöldi og í morgun, þriðja daginn í röð. Tæpur áratugur er síðan annað eins ástand hefur skapast þar, en fimmtíu lögreglumenn liggja sárir eftir átök helgarinnar.

Kosið um sameiningu eftir um mánuð

Þriðjungi kosningabærra manna í landinu býðst að kjósa um sameiningu sveitarfélaga eftir fjórar vikur. Kosið verður meðal annars um að gera Eyjafjarðarsvæðið að einu sveitarfélagi, Árnessýslu að tveimur og um sameiningu Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrandar.

Tymosjenkó spáir sér sigri

Júlía Tymosjenko, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, sagði í gær að Viktor Jústsjenkó forseti hefði verið farinn að óttast vaxandi vinsældir hennar er hann tók í síðustu viku ákvörðun um að reka ríkisstjórnina sem hún fór fyrir. Hún spáir því að sú stjórnmálafylking sem hún fer fyrir í þingkosningum í mars muni vinna sannfærandi sigur.

Koizumi hyggst hraða umbótum

Eftir yfirburða kosningasigur í þingkosningunum á sunnudag hét Junichiro Koizumi forsætisráðherra því í gær að fylgja eftir áætlun um að skipta upp og einkavæða póst- og lífeyrissparnaðarkerfi landsmanna, og hraða öðrum efnahagsumbótum.

Landafræðin kom að góðum notum

Það getur komið sér vel að hafa athyglina í lagi í landafræðitímum. Það reyndist hinni ellefu ára gömlu Tilly Smith beinlínis lífsnauðsynlegt.

Hyggst hrinda umbótum í framkvæmd

Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, hyggst nota stóraukinn þingmeirihluta sinn eftir þingkosningar um helgina til að hrinda umbótastefnu sinni í framkvæmd.

Öllu flugi aflýst vegna veðurs

Öllu flugi til og frá Reykjavíkurflugvelli var aflýst eftir hádegi í dag vegna veðurs. Búist er við mikilli ísingu í þeim hæðum sem flogið er í. Um klukkan átta má búast við upplýsingum um hvort flogið verði á Akureyrar og Egilsstaði síðar í kvöld.

Yfirmaður almannavarna hættur

Michael Brown, yfirmaður almannavarna í Bandaríkjunum, sagði af sér í gær. Ákvörðun Browns kemur ekki á óvart. Hann hefur sætt harðri gagnrýni fyrir lélegt skipulag hjálparstarfs á flóðasvæðunum í suðurhluta landsins og á föstudaginn var hann látinn hætta sem yfirmaður aðgerða á vettvangi.

Sjá næstu 50 fréttir