Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu fjöldagröf í Írak Fjöldagröf með 1500 líkum hefur fundist í suðurhluta Íraks. Talið er að líkamsleifarnar séu af Kúrdum sem voru hraktir frá heimilum sínum seint á níunda áratug síðustu aldar. Flest fórnarlambanna voru konur og börn sem var stillt upp á grafarbakkanum og skotin með AK-47 hríðskotariflum. 30.4.2005 00:01
Ungmenni gripin með kannabisefni Þrjú ungmenni á tvítugsaldri voru tekin með lítið magn af kanabisefni í Hveragerði um miðnætti í nótt. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi var fólkið flutt í fangageymslur lögreglunnar þar sem það gisti. Skýrsla verður tekin af því nú í morgunsárið og mun rannsókna á málinu fara fram í dag. 30.4.2005 00:01
Á 180 km hraða á Kringlumýrarbraut Maður var stöðvaður á mótorhjóli sínu á 180 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut í Reykjavík um tvöleytið í nótt en hámarkshraði á þeirri götu er aðeins 80 kílómetrar á klukkustund. Maðurinn var sviptur ökuréttindum á staðnum og segir lögreglan manninn verða ákærðan og að hann fái að öllum líkindum háa sekt, en hversu há hún verður fer eftir ferli mannsins í umferðinni til þessa. 30.4.2005 00:01
Þing greiði atkvæði um stríðsaðild Þingið en ekki forsætisráðherra ætti að taka af skarið um hvort að Bretland tekur þátt í stríðsrekstri, segir Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, í viðtali sem birtist í morgun. Hann kveðst þar styðja að framvegis verði stuðst við fordæmi sem sett var fyrir Íraksstríðið þar sem þingheimur fékk að greiða atkvæði um hvort fara ætti í stríð. 30.4.2005 00:01
Beindi flugvél inn á lokaða braut Litlu munaði að illa færi á alþjóðaflugvellinum við Tókýó í morgun þegar að flugumferðarstjóri sagði flugmönnum farþegavélar að lenda á flugbraut sem lokað hafði verið vegna viðhalds. Vélin lenti á brautinni en svo vel vildi til að engar vinnuvélar eða annar búnaður var á brautinni á því augnabliki. 30.4.2005 00:01
Stjórnvöld endurskoði afstöðu sína Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun um málefni Mannréttindaskrifstofu Íslands, en henni var synjað um fjárstuðning frá utanríkisráðuneytinu í vikunni. Í ályktuninni hvetur stjórn BRSB stjórnvöld til að endurskoða afstöðu sína um fjárstuðning við Mannréttindaskrifstofuna og tryggja henni traustan starfsgrundvöll. 30.4.2005 00:01
Slösuðust í sprengingu í Tyrklandi Fimm tyrkneskir lögreglumenn slösuðust í sprengingu í ferðamannabænum Kusadasi í vesturhluta Tyrklands í morgun. Lögreglumennirnir höfðu verið kallaðaðir að styttu í bænum til þess að rannsaka grunsamlegan pakka sem var þar og voru að girða svæðið af þegar sprengjan sprakk. Einn lögreglumannanna missti handlegg í sprengingunni en allir fimm voru fluttir á sjúkrahús. Ekki er ljóst hver stóð á bak við tilræðið. 30.4.2005 00:01
Kynna íslenska eldhúsið ytra Er íslenska eldhúsið næsta útflutningsafurð Íslendinga? Íslenskir matreiðslumenn vinna nú að verkefni sem ber þetta nafn og gengur út á að hefja íslenskt eldhús til vegs og virðingar. Markmiðið er að nota gott hráefni og eftir atvikum hráefni úr villtri náttúru og viðhafa vandaða matreiðslu en rík áhersla er lögð á hreinleika afurða. 30.4.2005 00:01
Flest líkin af konum og börnum Fjöldagröf með 1500 líkum hefur fundist í suðurhluta Írak. Flest eru líkin af börnum og konum. Alls hafa um 300 slíkar grafir fundist frá því að Saddam Hussein var komið frá völdum í landinu. 30.4.2005 00:01
Deila um lát leyniþjónustumanns Harðar deilur eru sprottnar á milli Ítala og Bandaríkjamanna um rannsókn á dauða ítalsks leyniþjónustumanns í Írak. Ítalar hafa í kjölfarið skipað ríkissaksóknara landsins að hraða sinni rannsókn. 30.4.2005 00:01
Andstæðingum stjórnarskrár fækkar Andstæðingar stjórnarskrár Evrópusambandsins í Frakklandi eru nú færri en stuðningsmennirnir, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þetta er í fyrsta sinn síðan í mars sem könnun bendir til þessa. Dagblaðið <em>Le Monde</em> birti nýjustu könnunina í morgun og samkvæmt henni eru 52 prósent aðspurðra fylgjandi stjórnarskránni en 48 prósent á móti henni. 30.4.2005 00:01
Taldi þjóðsögur verk Shakespears Hvaða eyland í Norður-Atlantshafi er tengt sögum og þjóðsögum frá 13. öld? Flestir Íslendingar gætu líkast til getið sér til um það en ekki landafræðispekingarnir ungu sem tóku þátt í landafræðikeppni <em>National Geographic</em> í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Hetjan Jared Martin frá bænum Lititz var viss um að þarna væri átt við Stóra-Bretland og taldi víst að þjóðsögurnar sem um ræddi væru verk Shakespears. 30.4.2005 00:01
Áform FL Group hafi mikla þýðingu Það hefði gríðarlega þýðingu fyrir atvinnustarfsemi á Suðurnesjum og framtíð alþjóðaflugvallarins í Keflavík ef FL Group lætur verða af áformum um eigin innflutning á flugvélaeldsneyti, segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. 30.4.2005 00:01
Hvít jörð á Húsavík Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru komnir á fullt í vorverkunum enda er þetta tíminn sem starfsmenn borgar og bæja hirða poka með garðaúrgangi sem fólk setur út fyrir lóðamörk. Í Reykjavík var farið að bjóða þessa þjónustu í gær og verður hún í boði til 7. maí. Á Húsavík bíða menn hins vegar með vorverkin því þar var jörð hvít þegar menn vöknuðu í morgun. 30.4.2005 00:01
Einn lést í sprengingu í Kaíró Einn lést og sjö særðust í sprengingu nærri þjóðminjasafninu í Kaíró í Egyptalandi í dag. Hinn látni var Egypti og það voru þrír hinna slösuðu líka en hinir fjórir voru ferðamenn, tveir þeirra frá Ísrael og hinir frá Ítalíu og Rússlandi. Í fyrstu var talið að sá sem lést væri sjálfsmorðsárásarmaður en Reuters-fréttstofan hefur eftir heimildarmönnum sínum að sprengjunni hafi verið kastað af brú nærri þjóðminjasafninu. 30.4.2005 00:01
Funda um ofbeldi á þriðjudag Akureyringar ætla ekki að láta mótmæli gegn ofbeldi og fíkniefnum í bænum í gær nægja því boðað hefur verið til borgarafundar í Ketilshúsinu á þriðjudaginn kemur þar sem ræða á hvernig hægt sé að draga út eða stöðva það ofbeldi og þann vímuefnavanda sem fréttir hafa borist af að undanförnu. 30.4.2005 00:01
Vatnið verði í eigu þjóðarinnar Stjórn BSRB ætlar að leggja til við stjórnarskrárnefnd að það verði bundið í stjórnarskrá lýðveldisins að vatnið í landinu verði í eigu þjóðarinnar og að aðgangur að drykkjarvatni verði talinn mannréttindi. Stjórnin hefur sent stjórnarskrárnefndinni tillögu að stjórnarskrárbreytingu þar sem kveðið er á um þetta. 30.4.2005 00:01
Fjórir borgarar drepnir í Írak Fjórir óbreyttir borgarar hafa látist og sextán særst í þremur bílsprengjuárásum á hermenn í Bagdad í Írak í dag. Uppreisnarmenn sprengdu sprengju nærri hópi írakskra og bandarískra hermanna í Austur-Bagdad og þar létust tveir óbreyttir borgarar, annar þeirra barn, og tíu særðust. Þá létust einnig tveir óbreyttir borgarar og sex særðust í árás á bandaríska hermenn í eftirlitsleiðangri í borginni. 30.4.2005 00:01
Huga aftur að auðgun úrans Íranar greindu frá því í dag að þeir myndu hugsanlega hefja aftur auðgun á úrani í næstu viku, en þeir hafa ekki náð samkomulagi við fulltrúa Evrópusambandsins um framtíð kjarnorkuáætlunnar sinnar. Íranar hafa um nokkurt skeið deilt við Bandaríkjamenn um markmið áætlunarinnar og hafa Bandaríkjamenn sakað þá um að reyna að koma sér upp kjarnavopnum en Íranar segast aðeins ætla að nýta kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. 30.4.2005 00:01
Skutu á rútu með ferðamönnum Tvær konur skutu í dag á rútu með ferðamönnum í suðurhluta Kaíróborgar í Egyptalandi án þess þó að drepa eða særa nokkurn. Haft er eftir lögreglu að í kjölfarið hafi önnur þeirra skotið hina og svo sjálfa sig og særðist hún nokkuð við það. Lögregla telur að önnur kvennanna hafi verið eiginkona manns sem eftirlýstur er í tengslum við sprengjuárás á ferðamenn í miðborg Kaíró í upphafi mánaðarins, en þar létust þrír ferðamenn auk sjálfsmorðsárásarmanns. 30.4.2005 00:01
Má ekki fara í fóstureyðingu Dómstóll í Flórída í Bandaríkjunum hefur meinað þrettán ára gamalli stúlku að fara í fóstureyðingu á þeim grundvelli að hana skorti þroska til að taka slíka ákvörðun. Stúlkan er komin þrjá mánuði á leið og hugðist láta eyða fóstrinu á þriðjudaginn var en barnaverndaryfirvöld fóru með málið fyrir dómstóla og héldu því fram að stúlkan, sem er á framfæri ríkisins, væri of ung og óþroskuð til þess að taka upplýsta ákvörðun í málinu. 30.4.2005 00:01
Sjö létust í lestarslysi í Marokkó Sjö létust og fjórir slösuðust í Marokkó í dag þegar lest og rúta skullu saman. Rútan keyrði fyrir lestina en bílstjóri rútunnar sinnti ekki viðvörunarljósum um að lestin væri að koma og keyrði út á teinana með fyrrgreindum afleiðingum. 30.4.2005 00:01
Felldu þrjá borgara í Afganistan Sjö létust, þar af þrír óbreyttir borgarar, í loftárásum Bandaríkjahers á búðir uppreisnarmanna í gær. Frá þessu greindu Bandaríkjamenn í dag. Búðirnar eru í Uruzgan-héraði þar sem uppreisnarmenn úr röðum talibana hafa haldið uppi árásum á bandarískar og afganskar hersveitir. 30.4.2005 00:01
Meiddist lítillega í veltu Jeppi ók út af við Ingólfshvoll í Ölfusi um fjögurleytið í dag og valt í kjölfarið. Einn maður var í bílnum og samkvæmt lögreglunni á Selfossi var hann fluttur á slysadeild með minni háttar meiðsl. 30.4.2005 00:01
Verstu flóð í Rúmeníu í 50 ár 3700 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gríðarlegra flóða í þorpum í vesturhluta Rúmeníu. Úrhelli hefur verið á svæðinu undanfarna daga og herþyrlur og bátar hafa verið notuð til að bjarga fólki í neyð á flóðasvæðunum, en þetta eru verstu flóð í landinu í hálfa öld. Tæplega tvö þúsund manns hefur verið komið fyrir í neyðarskýlum sem komið hefur verið upp á hálendi í nágrenninu. 30.4.2005 00:01
Vilja ekki styttingu hjá Blönduósi Austur-Húnvetningar hafa synjað Vegagerðinni um að stytta hringveginn um fimmtán kílómetra fram hjá Blönduósi. Ástæðan er sú að þeir telja farsælast fyrir héraðið að vegfarendur aki áfram um Blönduós. Umhverfisráðherra mun hins vegar eiga lokaorðið. 30.4.2005 00:01
Ráðist á ferðamenn í Egyptalandi Röð árása á ferðamenn í Egyptalandi kostaði þrjá lífið í dag. Sjö særðust. Mildi þykir að ekki skyldu fleiri týna lífi. 30.4.2005 00:01
Ríkið standi aðeins að Rás 1 Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og fyrrverandi menntamálaráðherra, kemst ansi nálægt því að taka undir með þeim félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum sem vilja selja Ríkisútvarpið í pistli á heimasíðu sinni í dag. „Þróunin á fjölmiðlamarkaði og sérstaklega innan ríkisútvarpsins er smátt og smátt að sannfæra mig um, að ríkið eigi í mesta lagi að láta við það eitt sitja að standa fjárhagslega (með framlagi á fjárlögum) að baki rás 1.“ 30.4.2005 00:01
Erla bæjarstjóri í Stykkishólmi Óli Jón Gunnarsson hættir sem bæjarstjóri í Stykkishólmi 1. ágúst. Stefnt er að því að Erla Friðriksdóttir, markaðsstjóri Smáralindar, taki við starfinu. 30.4.2005 00:01
Reykskynjari bjargaði Dalvíkingi Reykskynjari bjargaði lífi tæplega þrítugs karlmanns þegar eldur kom upp á heimili hans á Dalvík í nótt. Nágranni hans tilkynnti lögreglunni um eldinn og þegar lögreglan kom á staðinn var íbúinn, sem var einn í húsinu, að stökkva út um glugga á annarri hæð. Slölkkvilið var fljótt á staðinn og gekk slökkvistarf vel, en húsið er mikið skemmt. 30.4.2005 00:01
Keypti íbúð á Reyðarfirði Karl Heimir Búason seldi íbúðina sína á Eskifirði í haust og hefur nú keypt þriggja herbergja 90 fermetra íbúð á sjöundu hæð í blokk á Reyðarfirði fyrir 14 milljónir króna. Hann fær íbúðina afhenta um miðjan júní. 30.4.2005 00:01
Bjartsýn og opna tískuverslun Jóna Björg Óskarsdóttir og maður hennar, Víglundur Jón Gunnarsson, hafa opnað tískuverslunina Pex í Molanum á Reyðarfirði. Þau hafa rekið aðra tískuverslun í Neskaupstað í 15 ár. 30.4.2005 00:01
Í Molanum í annað sinn Árni Magnússon gerði sér ferð frá Eskifirði til að versla í Krónunni á Reyðarfirði fyrir helgina. Þetta var í annað sinn sem hann kom í Molann en hann var í hópi þeirra sem komu fyrir rúmlega viku síðan þegar verslunarmiðstöðin var opnuð. Árna leist mjög vel á verslun Krónunnar í Molanum, fyrst og fremst vöruúrvalið og verðið. 30.4.2005 00:01
Steypuvinnan að hefjast Prufusteypa á einingum í byggingu álverksmiðjunnar fyrir austan stóð yfir í einingaverksmiðju BM Vallár á Reyðarfirði í síðustu viku og hefst steypuvinnan á fullu í næstu viku. 30.4.2005 00:01
Hitaveita á Eskifirði Verið er að leggja hitaveitu á Eskifirði og verða fyrstu húsin tengd í júní. 30.4.2005 00:01
Kantbitar steyptir í Reyðarfirði Búið er að negla niður 380 metra stálþil í nýju höfninni í Reyðarfirði. Verið er að steypa kantbitana á það og á því verki að vera lokið 1. júlí. 30.4.2005 00:01
Fyrsti malbikunaráfangi kominn Fyrsti malbikunaráfanganum í göngunum milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar var lokið í síðustu viku. Þar með hafa 40 prósent af göngunum verið malbikuð frá endanum Fáskrúðsfjarðar megin. 30.4.2005 00:01
Meningókokkum C útrýmt Tekist hefur að útrýma meningókokkum C á Íslandi hjá fólki undir tvítugu en bakterían veldur meðal annars heilahimnubólgu og hefur kostað fjölda mannslífa. Þetta er árangur bólusetningar sem hófst fyrir tveimur og hálfu ári. Með bólusetningunni hefur tekist að bjarga fjölda mannslífa. 30.4.2005 00:01
Íbúar andvígir háhýsi í Túnum Íbúar við Sóltún, Mánatún og Borgartún í Reykjavík eru ekki sáttir við fyrirhugaða byggingu 12 hæða íbúðarhúsnæðis í hverfinu, sem þeir segja stinga í stúf við aðrar byggingar þar. 30.4.2005 00:01
Sjóbrotsmaður klárar túrinn "Ég er hvergi banginn þótt illa hafi farið síðast," segir Kjartan Jakob Hauksson sem hyggst nú klára siglingu sína umhverfis landið. Fyrir tveimur árum gerði hann síðustu tilraun en henni lauk með brotlendingu í Rekavík norður af Bolungarvík en þá hafði hann siglt frá Reykjavík 30.4.2005 00:01
Urðað fyrir utan Sorpu "Við erum að finna allt mögulegt fyrir utan stöðina þegar við komum í vinnuna," segir Andrés Garðarsson starfsmaður Sorpustöðvarinnar í Seljahverfi. Þegar hann kom til vinnu sinnar í fyrradag beið hans þrjúhundruð fermetra teppi sem óprúttnir menn höfðu skilið þar eftir til að komast hjá útgjöldum. 30.4.2005 00:01
Tekinn á 180 Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í fyrrinótt ökumann á bifhjóli þar sem hann ók á 180 kílómetra hraða eftir Kringlumýrarbraut en þar er leyfilegur hámarkshraði 80 kílómetrar á klukkustund. Hann má búast við ökuleyfissviptingu og háum sektum. 30.4.2005 00:01
Heppinn að vera á lífi "Ég vaknaði við reykskynjarann en þar sem hann hafði kvöldið áður vakið mig af tilefnislausu ætlaði ég bara að slökkva á honum," segir Teitur Haraldsson íbúi hússins á Dalvík sem brann í fyrrinótt. "Svo gat ég bara ekki dregið að mér andan og þá var mér ljóst hvernig var." 30.4.2005 00:01
Þrír eiga hlutabréf Þingmenn Vinstri-grænna hafa birt lista yfir eignir sínar á heimasíðu sinni. Þrír þeirra eiga hlutabréf. 30.4.2005 00:01
Minntust loka Víetnamstríðs Þrjátíu ár eru liðin frá lokum Víetnamstríðsins og þess var minnst í dag. Fjöldi bandarískra hermanna er af því tilefni í Víetnam. 30.4.2005 00:01