Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Víglína þvert yfir eldhúsborðið Svilfólkið Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir háir sitt fyrsta einvígi í formannskosningu Samfylkingarinnar í kvöld á Akureyri. Mikill ótti er við átök í flokknum enda ekki aðeins fjölskyldur formannsefnanna sem er klofin. </font /></b /> 29.1.2005 00:01
Týr með Dettifoss í togi Varðskipið Týr lónar nú um 18 sjómílur austur af Papey með bilaðan Dettifoss í togi og kemst hvorki lönd né strönd vegna veðurs. Stýrið í Dettifossi bilaði í gærkvöldi þegar skipið var statt út af Lóni, austan við Hornafjörð. Engin hætta var talin á ferðum þar sem skipið rak frá landi en óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. 29.1.2005 00:01
Fimm óbreyttir borgarar drepnir Átta fórust í sjálfsmorðssprengjuárás í norðausturhluta Bagdad-borgar í morgun. Sjálfsvígsmaðurinn sprengdi sig í loft upp utan við herstöð Bandaríkja- og Íraksherja. Fimm þeirra sem fórust voru óbreyttir borgarar. 29.1.2005 00:01
Fischer þjáist af áfengisskorti Heilsa Bobby Fischers er sögð slæm þar sem hann situr í fangelsi útlendingaeftirlitsins í Japan. Nú segja japanskir fjölmiðlar að sjálfur telji hann eina megin ástæðuna þá að hann fái ekkert áfengt að drekka í haldi. 29.1.2005 00:01
Skýli yfir rúllubaggastæður Rúllubaggar eru sjónmengun og skemma ásýnd landsins - því ætti að styrkja bændur til að byggja skýli yfir rúllubaggastæður sínar. Þetta er skoðun formanns Samtaka sauðfjárbænda. Fréttamaður Stöðvar 2 heimsótti bónda sem þótti ekki mikið til hugmyndarinnar koma - en hann vandar sig við að raða böggunum og segir staflana búmannlega. 29.1.2005 00:01
Flutningabíll fauk út af Flutningabíll fauk út af vegi í Hörgárbyggð norðan við Akureyri um klukkan hálf átta í morgun. Ökumaður var fluttur á slysadeild. Að sögn lögreglu er oft og tíðum mikill vindstrengur á þessum slóðum. Þess má geta að hálka, hálkublettir og éljagangur er á fjallvegum landsins. 29.1.2005 00:01
Handtekinn með fíkniefni Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af einum góðkunningja lögreglunnar í gærkvöld þar sem hann var á gangi í bænum. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglu en hún náði að hlaupa hann uppi og handsama. Þegar lögreglumenn handsömuðu manninn náði hann að kasta frá sér tveimur litlum bögglum sem reyndust innihalda fíkniefni. 29.1.2005 00:01
Ræða atvinnumál á Stöðvarfirði Byggðarráð Austurbyggðar hefur óskað eftir fundi með þingmönnum Norðausturkjördæmis til að ræða atvinnumál á Stöðvarfirði. Samherji íhugar að hætta allri landvinnslu á Stöðvarfirði sem myndi þýða að um 35 manns misstu vinnuna. 29.1.2005 00:01
Hundruð við útför Ziyangs Hundruð voru í morgun við útför Zhaos Ziyangs sem var formaður kínverska Kommúnistaflokksins þegar atburðirnir á Torgi hins himneska friðar urðu árið 1989. Fólkið lét ekki lögreglueftirlit hræða sig en ráðamenn óttuðust að útförin yrði tilefni til mótmæla og rósturs. 29.1.2005 00:01
Skíðasvæðið við Tindastól opið Skíðasvæðið við Tindastól verður opið frá 12-17, færi gott og nægur snjór, vestan sex metrar og él. 29.1.2005 00:01
Konur yfirgefa Jafnaðarmenn Konur eru yfir níutíu prósent þeirra kjósenda sem danski Jafnaðarmannnaflokkurinn hefur misst frá því að kosningabaráttan hófst fyrir tæpum hálfum mánuði. Innan flokksins eru uppi raddir um að formaðurinn, Mogens Lykketoft, hætti ef spár rætast um sögulega útreið flokksins í þingkosningum eftir tíu daga. Sighvatur Jónsson, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Danmörku. 29.1.2005 00:01
Össur og Ingibjörg takast á Formannsframbjóðendur Samfylkingarinnar takast á á opnum fundi í dag í fyrsta sinn síðan formannsslagur flokksins hófst. Össur Skarphéðinssonm, formaður Samfylkingarinnar, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður munu mætast á almennum, opnum stjórnmálafundi sem hefst á Akureyri klukkan hálffjögur. 29.1.2005 00:01
Hryðjuverkaárás óumflýjanleg Hryðjuverkaárás á Bandaríkin er óumflýjanleg. Þetta segir Tom Ridge, fráfarandi heimavarnarráðherra Bandaríkjanna. 29.1.2005 00:01
Framsóknarkonur á rökstólum Konur í Landssambandi framsóknarkvenna, með Siv Friðleifsdóttur, ritara Framsóknarflokksins, fremsta í flokki, sitja nú á fundi til að ræða meðal annars nýjustu hræringar innan flokksins. 29.1.2005 00:01
Írak leikur á reiðiskjálfi Írak leikur á reiðiskjálfi í aðdraganda frjálsra þingkosninga þar á morgun. Árásir dynja yfir og trúarleiðtogar æsa stuðningsmenn sína upp, ýmist í von um að þeir kjósi eða sniðgangi kosningarnar. 29.1.2005 00:01
Ægir kominn á staðinn Varðskipið Týr lónar enn um 18 sjómílur austur af Papey með bilaðan Dettifoss í togi og kemst hvorki lönd né strönd vegna veðurs. Varðskipið Ægir er komið á vettvang en beðið er eftir að veðrinu sloti og aðstæður batni. 29.1.2005 00:01
Tímamót hjá fjandvinum Tímamót urðu í samskiptum Taívans og Kína í morgun þegar farþegaflugvél flaug beint á milli áfangastaða þar í fyrsta sinn í fimmtíu og fimm ár. Kínverjar líta á Taívan sem hluta Kína en Taívanar segja landið sjálfstætt. 29.1.2005 00:01
Kvöldverður sem hjálparstarf Yfir hundrað íslensk veitingahús taka þátt í allsérstæðu verkefni þessa helgina til stuðnings fólki á hamfarasvæðunum í Asíu. Þeir veitingastaðir sem taka þátt gefa hlutdeild af hverjum greiddum reiningi í söfnunina. Fólk getur því slegið tvær flugur í einu höggi þessa helgi: farið út að borða og rétt fólki á hamfarasvæðunum hjálparhönd. 29.1.2005 00:01
Minnihluti Íraka mun kjósa Forseti Íraks, Ghazi al-Yawar, segir að minnihluti þjóðarinnar muni greiða atkvæði í kosningunum á morgun. Hann kveðst vona að sem flestir Írakar kjósi en vegna óaldarinnar í landinu og tíðra árása uppreisnarmanna á kjörstaði muni fáir Írakar þora að nýta atkvæðisrétt sinn. 29.1.2005 00:01
Leikskólakennarar samþykktu Nýr kjarasamningur Félags leikskólakennara var samþykktur með allsherjaratkvæðagreiðslu í dag. Atkvæði greiddu 1.365; 880 sögðu „já“, eða 64,5%, en 443 sögðu „nei“, eða 32,5%. Auðir seðlar og ógildir voru 42, eða 3,0%. 1.491 var á kjörskrá og þátttaka því 91,5%. 29.1.2005 00:01
Dettifoss á leið í land Varðskipið Týr er á leið í land með Dettifoss eftir að hluti stýrisins brotnaði af í gærkvöldi þegar það var statt út af Lóni, austan við Hornafjörð. Um það bil 25 mílur eru í land og að sögn Landhelgisgæslunnar verða skipin komin að landi seint í kvöld, ef allt gengur að óskum. 29.1.2005 00:01
Dettifoss: Taugin slitnaði Taugin á milli varðskipsins Týs og Dettifoss slitnaði um fjögurleytið í dag þegar þau voru stödd um 22 sjómílur frá Reyðarfirði. Verið er að reyna að koma nýrri taug yfir í Dettifoss en að sögn Landhelgisgæslunnar er mjög hvasst á svæðinu. 29.1.2005 00:01
Bíll lenti á ljósastaur Bíll lenti af töluverðu afli á ljósastaur á Reykjanesbrautinni, nærri Hafnarfirði, á fimmta tímanum að sögn vegfaranda. Ekki er vitað nánar um slysið að svo stöddu. 29.1.2005 00:01
Stríðsandstæðingar bæta í Mikið andstaða er enn í Danmörku við stríðið í Írak líkt og hér á landi. Í <em>Politiken</em> í dag birtist auglýsing þar sem hundruð þekktra Dana krefjast þess að þeir fimm hundruð hermenn danska hersins sem eru í Írak verði kallaðir heim hið fyrsta. Greinilegt er að andstæðingar stríðsins ætla að láta vel í sér heyra nú í aðdraganda kosninganna sem munu fara fram í Danmörku eftir tíu daga. 29.1.2005 00:01
Ólgan innan Íslandsbanka Á annan tug háttsettra starfsmanna hjá Íslandsbanka hefur horfið frá störfum á síðustu mánuðum og hefur þriðjungur þeirra ráðið sig hjá KB banka. Ólga er innan bankans vegna valdabaráttu. 29.1.2005 00:01
Innanlandsflug hefur legið niðri Innanlandsflug hefur að mestu legið niðri í dag. Mörg hundruð manns bíða eftir flugi til allra áfangastaða Flugfélags Íslands og hafa sumir beðið síðan í gær. Ástæðan er vont veður í háloftunum en veður hefur einnig verið að versna á flestum áfangastöðum eftir því sem liðið hefur á daginn. 29.1.2005 00:01
Flutningabíll fauk af veginum Gámaflutningabíll fauk út af veginum norðan við Akureyri í gærmorgun. Ökumaðurinn slasaðist á andliti og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl en meiðslin voru þó ekki mikilsháttar. 29.1.2005 00:01
Fundu amfetamín Lögreglan í Borganesi hafði í nótt afskipti af ökumanni við hefðbundið umferðareftirlit. 29.1.2005 00:01
Ísland ekki í hættu Evrópskir vísindamenn staðfestu á dögunum að Creutzfeldt-Jakob sjúkdómurinn (kúariða) hefði í fyrsta sinn greinst í geit. Áður var talið að sjúkdómurinn legðist aðeins á kýr. Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir telur hættuna þó ekki mikla hérlendis. 29.1.2005 00:01
Reyndi að stinga af Lögreglumenn á Akranesi höfðu afskipti af grunsamlegum manni á föstudagskvöld. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglumennina en þeir náðu þó að hlaupa hann uppi og handsama. 29.1.2005 00:01
Síðustu stundirnar blóði drifnar Síðustu stundirnar fyrir fyrstu frjálsu kosningarnar í Írak eru blóði drifnar. Barist er á götum úti og um traust kjósenda sem óttast er að þori ekki á kjörstaði á morgun. 29.1.2005 00:01
Framsóknarmenn ræna kvenfélögum Framsóknarkonur saka hver aðra um baktjaldamakk og karlar innan flokksins eru sagðir ræna kvenfélögum í valdabrölti sínu. Það vantar upp á að flokksforystan styðji við bakið á konum, segir jafnréttisfulltrúi flokksins. 29.1.2005 00:01
Stýrið brotnaði af Dettifossi. Stýrisblað á Dettifossi, flutningaskipi Eimskipafélagsins, brotnaði af skipinu í fyrrakvöld austur af landinu. Varðskipið Týr kom til aðstoðar seint í fyrrakvöld og tók Dettifoss í tog. Aðstæður voru mjög erfiðar á þessum slóðum vegna hvassviðris og sjógangs. Dráttartaug milli skipanna slitnaði í fyrrakvöld og aftur í gærdag. 29.1.2005 00:01
Eins og minkar í hænsnabúi Heitar umræður urðu um átök í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi, á fundi Landssambands framsóknarkvenna í gær. Á aðalfundi Freyju í liðinni viku gengu 43 konur í félagið og felldu Unu Maríu Óskarsdóttur, varaformann félagsins, úr stjórninni. 29.1.2005 00:01
Skærur milli flugfélaga Starfsmaður Icelandair klippti auglýsingar Iceland Express úr bæklingum Ferðamálaráðs á ferðakaupstefnu á Spáni á miðvikudag. Ólafur Hauksson, talsmaður Iceland Express, segir að það sé dýrt að kaupa auglýsingar í bæklingnum. 29.1.2005 00:01
Lykketoft valtur í sessi Níu af hverjum tíu sem hafa yfirgefið danska Jafnaðarmannaflokkinn í kosningabaráttunni eru konur og formaðurinn, Mogens Lykketoft, er valtur í sessi. Sighvatur Jónsson, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, skýrir stöðu mála og fer yfir kosningaloforð dönsku flokkanna. 29.1.2005 00:01
Leikskólakennarar samþykktu Leikskólakennarar hafa samþykkt nýjan kjarasamning til tveggja ára. Forsvarsmenn Félags leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga undirrituðu samninginn 22. desember síðastliðinn. 29.1.2005 00:01
Mikilvægum gögnum stolið Brotist var inn á heimili Sveins Rúnars Haukssonar, læknis og formanns Félagsins Ísland-Palestína, á föstudaginn. Sveinn Rúnar segir að fartölvu mikilvægum gögnum sem snerta Félagið Ísland-Palestína hafi verið stolið. 29.1.2005 00:01
Ofsótti fyrrverandi kærustu Maður var dæmdur í sextán mánaða fangelsi í Kaliforníu fyrir að ofsækja fyrrverandi kærustu sína. Maðurinn var sár og svekktur eftir að konan sleit sambandinu við hann. Reyndi hann hvað hann gat til að vinna aftur ástir konunnar en lítið gekk. 29.1.2005 00:01
75 ára skotin með rafbyssu Lögreglukona hefur fengið viðvörun eftir að hafa notað fimmtíu þúsund volta rafbyssu gegn 75 ára gamalli konu á hjúkrunarheimili. 29.1.2005 00:01
Kosið í Írak í skugga ofbeldis Kjörstaðir opnuðu í Írak klukkan fjögur í nótt. Óöld ríkir í landinu og var flugskeyti skotið á bandaríska sendiráðið í Bagdad í gær. Forseti Bandaríkjanna segir að kosningarnar muni ekki binda enda á hryðjuverkaárásir. Þær séu hins vegar upphafið að nýjum tímum í landinu. 29.1.2005 00:01
Abbas og Sharon funda bráðlega Búist er við því að Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fundi innan tveggja vikna. Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, og Mohammed Dahlan, yfirmaður öryggismála í Palestínu, hittust síðdegis í gær til að undirbúa fund Abbas og Sharons. 29.1.2005 00:01
Vegamálastjóri er ekki í neinum vafa um að kostnaðaráætlun Vegagerðinnar vegna jarðganga til Eyja sé raunhæf. Hún er helmingi hærri en áætlun sænska fyrirtækisins NCC. Hann segir muninn geta falist í því að NCC miði við aðstæður í Færeyjum en ekki á Íslandi. 29.1.2005 00:01
Kynferðislegar pyntingar notaðar Kynferðislegar pyntingar eru sagðar notaðar til að þvinga fanga við yfirheyrslur í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu. Mannréttindafrömuðir segja föngum þar ennþá neitað um grundvallarréttindi, þrátt fyrir úrskurð bandarísks dómstóls. 29.1.2005 00:01
Össur lét klappa fyrir Ingibjörgu Ekkert varð af sameiginlegum fundi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar á Akureyri í gær eins og auglýst hafði verið. Í tilkynningu frá Ingibjörgu, sem lesin var upp á fundinum, sagðist hún vera veðurteppt í Reykjavík en ekki var flogið á milli Akureyrar og Reykjavíkur í gær. 29.1.2005 00:01
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent