Fleiri fréttir

Jafnaðarmannaflokkurinn vann

Adrian Nastase, forsætisráðherra Rúmeníu, hefur lýst yfir sigri Jafnaðarmannaflokksins í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Útgönguspár benda til þess að flokkurinn hafi unnið meira fylgi en miðflokkur stjórnarandstöðunnar. Rúmenski jafnaðarmannaflokkurinn er arftaki kommúnistaflokks Ceausecu, fyrrverandi forseta landsins.

Maðurinn enn ófundinn

Þrátt fyrir mikla eftirgrennslan er maðurinn sem rændi níu ára stúlku í Kópavogi í síðustu viku ófundinn. Lögreglan hefur fengið margar vísbendingar en engin þeirra hefur enn leitt til handtöku. Stúlkan telur að maðurinn sé um tvítugt, krúnurakaður og með skeggtopp neðan við neðri vör.

Launhált í Reykjavík í morgun

Biðraðir mynduðust um tíma í morgun á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss í Reykjavík vegna hálkuslysa. Að sögn vakthafandi læknis var það að megninu til fólk "á besta aldri" á leið til vinnu og í skóla sem sem áttaði sig ekki á hversu launhált var.

Ferðum Herjólfs fækkað

Bæjarstjórn Vestmannaeyja á í viðræðum við Vegagerðina og Samskip um ferðatíðni Herjólfs þar sem ferðum hans verður fækkað úr ellefu í átta á viku nú um mánaðamótin. Á sama tíma hættir Eimskip strandsiglingum en Mánafoss hefur komið við í Eyjum vikulega.

Tekinn réttindalaus tvisvar í nótt

Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði réttindalausan ökumann tvisvar í nótt með tæplega fimmtán mínútna millibili og var bíllinn þá tekinn af honum. Í fyrra skiptið fékk farþegi með ökuréttindi að aka bílnum áfram en í síðara skiptið var brotlegi ökumaðurinn einn á ferð og þarf nú að leita að einhverjum með réttindi til að leysa bílinn út.

Ríkið borgar fyrir hundafóður

Grænlenskir sleðahundar í bænum Kvannak sitja nú að gnægtaborði í boði grænlensku landsstjórnarinnar því sá óvenjulegi ríkisstyrkur hefur verið tekinn upp að veiðimenn fá nú endurgreiddan kostnað vegna kaupa á hundafóðri.

12 látnir eftir sjálfsmorðsárás

Að minnsta kosti tólf létust og tíu eru særðir eftir sjálfsmorðsárás fyrir utan írakska lögreglustöð í útjaðri Ramadí-borgar í Írak í morgun. Að sögn talsmanns sjúkahússins þangað sem hinir særðu voru fluttir eru um 90% fórnarlambanna lögreglumenn.

40 hafa slasast í hálkunni

Yfir 40 manns hafa þurft að leita á slysadeild í morgun vegna slysa tengdum hálku. Gangandi vegfarendur eru varaðir við því að launhált sé á gangstéttum og götum.

Kosningarnar fyrir Hæstarétti

Hæstiréttur Úkraínu hóf í morgun að fjalla um forsetakosningarnar umdeildu sem fram fóru í landinu fyrir rúmri viku en hann á að úrskurða hvort þær skuli ógildar. Þúsundir stuðningsmanna beggja fylkinga standa með hrópum og köllum við réttinn. Ólga vex enn í landinu með hótunum um aðskilnað og sjálfsstjórn í austurhluta landsins.

Esso hækkar bensínverðið

Olíufélagið Esso hækkaði bensínlítrann í sjálfsafgreiðslu um eina krónu í morgun eins og Skeljungur gerði um hádegisbil á föstudag og Olís um kvöldmatarleytið sama dag. Esso hækkaði líka dísellítrann um 1,50 krónu eins og hin félögin á föstudag. Í síðustu viku hækkaði bensín um 4% á heimsmarkaði en dollarinn lækkaði á móti um 2%.

Nauðbeygð til að hækka álögur

Formaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld nauðbeygja sveitarfélögin til þess að hækka álögur eða skera niður félagslega þjónustu með því að bæta sífellt á þau verkefnum án þess að láta fé fylgja þeim.

Dómari dæmdur fyrir barnaklám

Dómari við viðskiptaréttinn í Danmörku var í morgun dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa dreift barnaklámi á Netinu. Þrír mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir að því tilskildu að maðurinn leiti sér meðferðar vegna hneigðar sinnar til barna.

Ísland ekki af listanum

Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekki vita til þess að ríkisstjórnin ætli að endurskoða stuðning sinn við innrásina í Írak. Hún segir ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins í Silfri Egils í gær hafa komið sér á óvart.

Efnahagskerfi Úkraínu gæti hrunið

Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, segir að efnahagskerfi landsins kunni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins í landinu. Kútsma segir að færi svo yrði hvorki hægt að kenna sér né ríkisstjórn sinni um það, enda sé starfsumhverfi ríkisstjórnarinnar óboðlegt þessa dagana.

Rúmlega 70 manns á slysadeildina

Fólk er enn að týnast inn á slysadeild vegna slysa af völdum hálkunnar sem verið hefur úti í dag. Kristín Sigurðardóttir, læknir á slysadeildinni, segir að alls hafi komið rúmlega 70 manns á slysadeildina í morgun og þorri þeirra vegna slysa af völdum hálkunnar.

Laug ekki að þjóðinni

Jose Maria Aznar, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, segist ekki hafa logið vísvitandi að spænsku þjóðinni eftir hryðjuverkin í Madrid í mars þegar hann lýsti því yfir að hryðjuverkasamtök ETA bæru ábyrgð á verknaðinum.

Viðræðum lýkur eftir árið 2014

Evrópusambandið getur ekki lokið aðildarviðræðum við Tyrki fyrr en eftir árið 2014. Fyrst þarf að skipuleggja fjármál sambandsins eftir þann tíma og ekki fyrr en að því loknu verður hægt að klára viðræðurnar.

Hátt í 20 þúsund borgarar látnir

1237 bandarískir hermenn hafa látist í Írak síðan stríðið þar hófst í mars á síðasta ári, þar af 1098 síðan George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri „að mestu leyti“ lokið þann 1. maí í fyrra. Nákvæmar tölur yfir fall írakskra borgara liggur ekki fyrir en áætlað er að þeir séu á bilinu 14.500-18.000 að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Davíð fór mikinn á þinginu

Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði að yrðu Íslendingar teknir af lista stuðningsþjóða innrásarinnar í Írak nú jafngilti það því að hann færi upp á Landspítalann og segði að hann tæki til baka samþykki sitt fyrir krabbameinsaðgerðinni sem framkvæmd var í sumar. Um afstöðu Samfylkingarinnar í Íraksmálinu sagði Davíð að flokkurinn væri „afturhaldskommatittsflokkur“.

Samþykkir nýjar kosningar

Viktor Janúkovítsj, forsætisráðherra Úkraínu, segist munu samþykkja nýjar forsetakosningar ef sýnt þyki að brögðum hafi verið beitt. Ástandið í Úkraínu er vægast sagt eldfimt þessa dagana og það var ekki á það bætandi þegar Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, lýsti því yfir í dag að efnahagskerfi landsins kynni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins.

Sinfó hefur ekki samþykkt

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur ekki samþykkt að taka þátt í fyrirhuguðum tónleikum söngvarans Placido Domingo hér á landi í mars á næsta ári, eins og ranglega hefur komið fram í umfjöllun um tónleikana. Í yfirlýsingu frá Sinfóníuhljómsveitinni segir að fréttir þess efnis að hljómsveitin muni leika undir á tónleikum söngvarans í Egilshöll eigi ekki við rök að styðjast.

Kísilgúrvinnslu við Mývatn lokið

38 ára sögu Kísiliðjunnar í Mývatnssveit lýkur í dag þegar verksmiðjunni verður lokað fyrir fullt og allt. Hún var undirstaða atvinnu- og mannlífs og sumir vörðu nánast allri sinni starfsævi við hana. Óvissa ríkir í Mývatnssveit. </font /></b />

Þrjátíu án atvinnu

46 starfsmenn Kísiliðjunnar í Mývatnssveit missa vinnuna við verksmiðjuna í dag þegar skellt verður í lás í síðasta sinn. Í gær var öll vinnsla stöðvuð og síðustu kísilgúrsekkirnir fluttir til Húsavíkur þaðan sem þeim er siglt út í heim. </font /></b />

Framkvæmdum frestað

Í fjárlagafrumvarpi 2005 er gert ráð fyrir tveggja milljarða króna frestun framkvæmda og eins milljarðs króna lækkun annarra útgjalda ríkissjóðs.

Kennarar skulda stórar fjárhæðir

Kennarar skulda sveitarfélögunum upp undir 540 milljónir króna eða allt að 50-60 prósent af mánaðarlaunum vegna ofgreiddra launa í september og nóvember.

Dalsmynni kærir til umboðsmanns

Hundaræktin í Dalsmynni hefur sent kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna meðferðar Umhverfisstofnunar á málefnum búsins.

Skrítin skilaboð

Ósennilegt er að grunnskólanum takist að vinna upp átta vikna verkfall í tíunda bekk og mörgum skólamönnum þykir undarlegt að Námsmatsstofnun skuli ekki ætla að breyta samræmdu prófunum til samræmis við það.

Eimir eftir af áráttuhegðun

Jón Þór Jóhannesson, sex ára einhverfur drengur, glímir enn við eftirhreytur kennaraverkfallsins þótt hann sé byrjaður í skólanum á nýjan leik eftir það.

Lengist um eina önn hjá sumum

Vinna við samræmdu prófin í tíunda bekk er mjög langt komin og segir Sigurgrímur Skúlason, sviðsstjóri yfir samræmdum prófum hjá Námsmatsstofnun, að ekki liggi í loftinu að breyta þeim vegna kennaraverkfallsins.

Ríkið hætti verslunarrekstrinum

Ríkið á að draga sig úr verslunarrekstri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og einnig að hætta sölu tollfrjálsra vara til komufarþega til landsins. Þessar kröfur setja Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) fram í yfirlýsingu sem birt var í dag.

Mislæg gatnamót sem fyrst

Umferðarþing samþykkti fyrir helgi ályktun um að skora á borgaryfirvöld að beita sér fyrir því að ráðast sem fyrst í byggingu mislægra gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.

Uppgjör bóta 42.000 lífeyrisþega

Endurreikningur Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum nær til um 42 þúsund lífeyrisþega. Hann varðar heildargreiðslu bótanna fyrir árið 2003, en þær námu þá samtals ríflega 25 milljörðum króna.

Ekki mislæg gatnamót

Reykjavíkurlistinn ætlar ekki að leggja til að sett verði upp mislæg gatnamót á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar, þrátt fyrir áskorun frá Umferðarþingi um að sett verði á fót mislæg gatnamót. Í ályktun Umferðarþings segir að hægt sé að fækka slysum á gatnamótunum um 80-90 prósent með vel hönnuðum mislægum gatnamótum.

Einn látinn af alnæmi á árinu

Það sem af er þessu ári hafa fimm manns greinst með HIV-smit hér á landi, fjórir karlmenn og ein kona. Þá hafa þrír sjúklingar greinst með alnæmi og einn þeirra látist af völdum sjúkdómsins.

Synjun gjafsóknar í bága við lög

Afgreiðsla gjafsóknarnefndar og þar með dóms- og kirkjumálaráðuneytisins á gjafsóknarmáli byggðist ekki á lögmætum og málefnalegum forsendum, að áliti Umboðsmanns Alþingis.

Egyptar stuðli að friðarviðræðum

Stjórnvöld í Egyptalandi segjast vera reiðubúin að reyna að miðla málum í átt til friðar milli Ísraels og og Sýrlands að sögn talsmanns Hosnis Mubaraks, forseta Egyptalands. Mubarak mun hitta forseta Sýrlands, Bashar al-Assad, í Egyptalandi á morgun og mun hann að sögn viðra umrædda hugmynd við al-Assad á fundinum.

Tveir Íslendingar í Írak

Tveir Íslendingar fóru til Íraks fyrir mánuði til að sinna friðargæslustörfum á vegum bresks fyrirtækis. Báðir hafa starfað sem lögreglumenn og var annar þeirra nýlega sakfelldur fyrir brot í starfi. Utanríkisráðuneytið hefur engar upplýsingar um veru mannanna í Írak eða hvað þeir eru að gera.

Vill leggja hegningarhúsið niður

Fangelsismálastofnun leggur til að hegningarhúsið við Skólavörðustíg og kvennafangelsið í Kópavogi verði lagt niður. Eins er talið brýnt að nýtt fangelsi með 55 til 60 klefum rísi á Hólmsheiði. Kemur þetta fram í markmiðum í fangelsismálum sem Fangelsismálastofnun gerði fyrir vinnuhóp dómsmálaráðuneytisins.

Rætt við á annan tug manna

Rætt hefur verið við á annan tug manna sem lýsing níu ára stúlku, sem rænt var í Kópavogi á miðvikudaginn í síðustu viku, getur átt við. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, segir á þriðja tug ábendinga hafa borist lögreglunni en engin þeirra hafi leitt til handtöku.

Lá á miðjum veginum

Maðurinn, sem lést þegar ekið var yfir hann á Eyrarvegi á Selfossi um helgina, lá nánast á miðju vegarins þegar slysið varð. Maðurinn var dökkklæddur og rann klæðnaðurinn saman við svart og blautt malbikið en slagveðurs rigning og myrkur var þegar slysið varð.

140 námumenn taldir af

Líklegt er talið að 140 námamenn sem sitja fastir inni í kolanámu í Norður-Kína séu allir látnir. Gríðarleg gassprenging varð í námunni í gær þar sem 300 manns unnu. Eitrað gas og reykur hefur hamlað björgunarstörfum og hafa björgunarmenn lagt mesta áherslu á að koma loftræstingu í gang.

Byggja þyrfti nýja flugstöð

Byggja þyrfti nýja flugstöðvarbyggingu á Keflavíkurflugvelli ef nýta ætti völlinn undir innanlandsflug. Skipulagsáætlanir vallarins gera ráð fyrir slíkri byggingu, sem jafnvel gæti tengst járnbraut ef af yrði.

Þróunarsjóður gagnist Íslendingum

Stjórnvöld hvetja íslensk fyrirtæki til að hefja samstarf við fyrirtæki í nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins. Með því móti eiga íslensk fyrirtæki möguleika á að ná til sín hluta þess fjár sem Ísland greiðir í þróunarsjóð sambandsins. </font /></b />

Biðraðir á slysadeild

Biðraðir mynduðust um tíma á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykjavík í gærmorgun vegna hálkuslysa. Að sögn Kristínar Sigurðardóttur, vakthafandi læknis, var það að megninu til fólk "á besta aldri" á leið til vinnu og í skóla sem áttaði sig ekki á því hversu launhált var.

Sjá næstu 50 fréttir