Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 1. nóvember 2026 09:06 Erla losaði sig við nánast allar eigur sínar og lagði ein af stað í heimsreisu á sendiferðabíl. Aðsend Þegar Erla Schiöth Baldursdóttir ákvað að binda enda á rúmlega þrjátíu ára hjónaband breytti hún fyrirhuguðu ferðalagi um grísku eyjarnar í „skilnaðarferð“. Hún fór með þáverandi eiginmanni sínum og sex ára barni, þau gerðu upp sambandið og töluðu saman um allt frá A til Ö. Heim komu þau sátt og með „closure“.
Nú, nokkrum árum síðar, er Erla sextug, þriggja barna móðir og amma. Hún hefur starfað sem fangavörður, dyravörður, dagmóðir og leikskólakennari en er í dag heimsflakkari. Hún hefur sagt upp leiguíbúð á Selfossi, losað sig við nánast allar eigur sínar og lagt af stað ein á sendiferðabíl til að láta bernskudraum rætast: að heimsækja öll lönd í heiminum. Erla ræðir við Vísi um tilboð sem faðir hennar fékk í Erlu sem hljóðaði upp á sex úlfalda, bílavesen á heimsflakki sínu, nýjum vinum á víðavangi og hvers vegna maður er „aldrei of gamall“ til að leita að hamingjunni. Ákvörðunin að leggja ein af stað í heimsreisu á sendiferðabíl vakti áhyggjur margra, ekki síst barna hennar sem töldu móður sína orðna of gamla fyrir slíkt ævintýri. En Erla var staðráðin í að láta ekkert stöðva sig. „Fyrst til að byrja með ætluðu börnin mín ekkert að leyfa mér að fara í svona ferð. Ég sagði við þau: „Þetta er mitt líf. Ég hef rétt til að gera það sem ég vil við mitt líf. Þið megið fylgjast með mér en þið verðið bara að sætta ykkur við það,“ segir Erla í samtali við Vísi. Sex ára til Lúxemborgar Erla ólst upp í Reykjavík og á Akranesi ásamt fjórum systkinum. „Pabbi minn var alveg ofboðslega mikill ævintýramaður. Ég ólst upp við hvatningu frá pabba: „Klifraðu hærra, farðu lengra, gerðu þetta.“ Þegar hún var sex ára flutti fjölskyldan til Lúxemborgar eftir að faðir hennar ákvað að fylgja tveimur vinum sínum þangað út. Þeir höfðu fengið vinnu hjá flugfélaginu Cargolux. Foreldrarnir leigðu út íbúðina á Íslandi og tóku þrjár dætur með sér. „Þarna fékk maður aðra sýn á hlutina. Það leið ekki nema svona hálft ár þangað til við systurnar vorum farnar að geta gert okkur skiljanlegar á bæði þýsku og lúxemborgsku. Þetta hafði allavega góð áhrif á mig og í dag tala ég fjögur tungumál fyrir utan íslensku.“ Fjölskyldan bjó í Lúxemborg á fyrri hluta áttunda áratugarins og ferðaðist mikið um Evrópu, gjarnan með tjald í skottinu. Þau fluttu síðar heim en ævintýrin voru hvergi nærri búin. Sex úlfaldar fyrir systurnar Árið 1977 réð faðir Erlu sig sem annan vélstjóra á flutningaskip í millilandasiglingum. Sumarið eftir fékk Erla, þá tólf ára, að fara með í mánaðarlanga siglingu um Miðjarðarhafið ásamt systur sinni. Ferðin hófst í Marseille í Frakklandi og þaðan sigldi skipið meðal annars til Alsír og Sýrlands. Erla man sérstaklega vel eftir dvölinni í hafnarborginni Latakia í Sýrlandi. Þegar konurnar í ferðahópnum fóru í sólbað á ströndinni safnaðist hópur karlmanna í kringum þær. Ljóst hár systranna vakti einnig mikla athygli og að sögn Erlu reyndi fólk jafnvel að toga í það til að fá að snerta það. Einn daginn kom svo aldraður maður að skipinu og fékk leyfi til að ræða við skipstjórann. Þegar maðurinn fór frá borði var hann æfur af reiði og fljótlega kom í ljós hvers vegna. „Fólk spurði hvað hann hefði viljað. Þá kom í ljós að hann hafði viljað kaupa okkur stelpurnar!“ Maðurinn hafði boðið sex úlfalda fyrir systurnar en skipstjórinn hafnað tilboðinu. Erla hlær þegar hún rifjar upp atvikið og segir föður sinn síðar hafa haft gaman af því að minna dætur sínar á tilboðið þegar þær voru honum erfiðar. Ævintýrunum lauk ekki þar. Þegar skipið var aftur komið til Marseille var verið að ferma það skriðdrekum. Systurnar laumuðust niður í lestina til að skoða þá og komust meira að segja inn í einn skriðdrekann. „Þegar við vorum að laumast út aftur sá maður okkur uppi á þilfari og varð alveg brjálaður. Þetta var eins og í teiknimynd: Hann stökk upp í loftið á báðum fótum og rauk af stað til að reyna að ná okkur.“ Þótt Erla vildi ólm halda áfram siglingunni til Indlands fékk hún það ekki. Þegar hún kom heim hafði hún hins vegar heimsótt sautján lönd. Og þarna setti hún sér markmið. Ég ákvað þarna að ég ætlaði að heimsækja öll lönd í heiminum. Mér fannst þetta svo skemmtilegt og þetta hafði svo mikil áhrif á mig. Frá dyravörslu í fangelsin Á næstu árum tók hversdagslífið við. Erla eignaðist elstu dóttur sína ung og var einstæð móðir í um sex ár. Hún hafði áhuga á námi en ekki tök á að fara í framhaldsskóla og þurfti að sjá fyrir sér og barninu. Hún vann því ýmis störf, meðal annars sem dyravörður á skemmtistöðum, nokkuð sem var síður en svo sjálfgefið fyrir konu á þeim tíma. Það var einmitt í dyravörslunni sem hún kynntist konu sem bauð henni sumarvinnu í fangelsi. Erla hafði raunar fremur séð fyrir sér að gerast lögreglumaður en þáði boðið og starfaði sem fangavörður á árunum 1990 til 1993, meðal annars í Síðumúlafangelsinu og kvennafangelsinu í Kópavogi. Erla hefur komið víða við í gegnum ævina.Aðsend Hún vann jafnframt um árabil sem dagmóðir og sinnti ýmsum hlutastörfum. „Það er nú mikið búið að gera grín að mér þegar ég var að fylla út skattskýrsluna mína. Það var verið að tala um að það þyrfti að búa til aukablað bara fyrir mig,“ segir hún glettnislega. Um aldamótin komst hún inn í nám fyrir aðstoðarleikskólakennara við Kennaraháskólann, þar sem aðeins um 45 nemendur fengu inngöngu. Það varð upphafið að langþráðri skólagöngu. „Ég var eina manneskjan sem hafði enga reynslu af því að vinna á leikskóla sem komst inn. Og ég var rosalega glöð. Þarna byrjaði í rauninni mitt námshlaup. Ég var í náminu ásamt því að vera að vinna fulla vinnu sem dagmamma og með fullt heimili. Þetta var vitundarvakning fyrir mig. Allt í einu var ég komin að gera eitthvað sem mig hafði alltaf langað til að gera, að læra. Og þetta gekk vel.“ Erla menntaði sig síðar sem leikskólakennari og bætti við sig námi í sérkennslu. Árið 2008 hóf hún aftur störf við fangavörslu, nú á Litla-Hrauni, þar sem hún vann fram á haust 2012. Eftir það fór hún um tíma til Svíþjóðar með hugmyndir um frekara nám en sneri aftur og starfaði síðar á leikskólum á Selfossi og Laugarvatni. Þriggja vikna skilnaðarferð Erla kynntist fyrrverandi eiginmanni sínum árið 1992. Þau eignuðust tvö börn saman en hún átti eina dóttur fyrir. Sambandið stóð í 31 ár. Hún hafði þó lengi hugleitt skilnað og gert nokkrar tilraunir til að slíta sambandinu. Að hennar sögn var það ekki alltaf dans á rósum og hún þurfti stundum að fara lengri leiðina til að ná fram eigin markmiðum. Þegar þau ákváðu loks að skilja var þriggja vikna ferðalag um grísku eyjarnar þegar á dagskrá. Þau hættu ekki við heldur breyttu ferðinni einfaldlega í það sem Erla kallar „skilnaðarferð“. „Við höfðum verið búin að skipuleggja ferðalagið og svo gerðist þetta eiginlega allt í einu. Ég ákvað að þetta væri rétti tíminn og við breyttum ferðinni í skilnaðarferð. Við fórum með sex ára barn í bakpoka í þriggja vikna ferð. Á ferðinni gerðum við upp sambandið okkar, töluðum um allt frá A til Ö og fórum í gegnum allt ferlið. Ég held að við höfum aldrei talað jafn mikið saman og þá.“ Ferðin reyndist þeim mikilvæg og þótt þau væru ekki endilega sammála um allt gátu þau rætt málin og fundið leið til að ljúka sambandinu á góðum nótum. „Þetta gaf okkur „closure“. Þetta kláraði ferlið hjá okkur báðum. Þarna gátum við nýtt tímann til að peppa hvort annað upp og finna lausnir, af því að þó svo að við séum skilin þá eigum við alltaf börnin okkar saman. Við náum aldrei að skilja alveg, en við getum alveg verið félagar eða vinir.“ Í sambandi við sjálfa sig eftir þrjátíu ár Eftir skilnaðinn settist Erla að í leiguíbúð á Selfossi og ákvað að leita til pararáðgjafa. Það hljómar kannski sérkennilega í ljósi þess að hún var nýskilin, en skýringin var einföld. Ég sagði bara við hana: „Ég kem hérna sem par, af því að ég er í sambandi við sjálfa mig. Erla fór í ráðgjöf einu sinni í mánuði fyrsta árið og nýtti tímann til að átta sig á eigin þörfum og því hvernig hún vildi haga lífi sínu eftir skilnaðinn. „Ég hafði ekki verið í sambandi við sjálfa mig í þrjátíu ár og svo allt í einu er ég komin þarna og stend í þessum sporum. Mig langaði bara til að læra að bera virðingu fyrir sjálfri mér og læra að elska sjálfa mig og finna í rauninni þennan takt sem ég gæti komið mér í.“ Á þessum tíma voru barnabörnin komin til sögunnar og Erla fann fyrir ákveðinni ábyrgð gagnvart þeim. Hún vildi vera til staðar fyrir fjölskylduna en áttaði sig jafnframt á því að það þýddi ekki að hún þyrfti að hætta að lifa eigin lífi. Fékk nóg af grámyglunni Það var vorið 2025 sem Erla fékk hugmyndina um að nú væri komið að þessu, að láta bernskudrauminn rætast. Hún hafði verið á ferðalagi í Póllandi og heimsótt vinkonu sína á Tenerife. „Þegar ég kom heim og var bara komin aftur í íbúðina á Selfossi, í þennan grámyglulega hversdagsleika snemma vors, þá þyrmdi einhvern veginn yfir mig. Ég fékk svona væga kulnun fyrir þessu íslenska samfélagi. Og ég hugsaði með mér: Er þetta bara það sem ég ætla að gera?“ Draumurinn um að heimsækja allan heiminn hafði fylgt henni frá barnæsku en lengst af hafði hún talið sig þurfa að sinna öðru fyrst. Nú voru börnin orðin fullorðin, hjónabandinu lokið og fátt sem hélt aftur af henni. Hún var heldur ekki lengi að taka næsta skref. „Það leið einn mánuður og þá var ég búin að kaupa sendibílinn og segja upp íbúðinni. Allt í einu var þetta bara: „Heyrðu, ókei, þetta er núna, þetta er bara að fara að gerast!“ Við tók um tíu mánaða undirbúningur þar sem bíllinn var útbúinn fyrir langferð. Framkvæmdir á fullu í bílnum.Aðsend Allt dótið komið inn í bílinn Erla sagði upp íbúðinni á Selfossi og losaði sig við nánast alla búslóðina. Hún geymdi aðeins nokkra muni sem höfðu sérstakt gildi fyrir hana. Afgangurinn fór og öllu sem hún þurfti á að halda var komið fyrir í sendiferðabílnum. „Ég upplifði algjöra frelsistilfinningu þegar ég var búin að losa mig við alla búslóðina mína. Ég var ekki föst á einum stað út af rúmi og sófa og svona, heldur var þetta allt komið inn í bílinn minn og það var alveg sama hvert ég fór á bílnum. Ég var alltaf með allt dótið mitt með mér.“ Erla er gagnrýnin á lífsgæðakapphlaupið á Íslandi, þar sem fólk leggur að hennar mati stundum of mikla áherslu á að eiga sífellt fleiri hluti og fasteignir. „Fólk ætlar að fara niður til Spánar og njóta þess að vera þar og þá þarf það að kaupa sér hús eða íbúð þar. Af hverju? Af hverju ekki bara að leigja og vera þar í einhvern tíma? Svo kannski færðu leið á þessum stað og vilt flytja eða fara til annars lands.“ „Maður er aldrei of gamall“ Ákvörðunin um að leggja ein af stað í heimsreisu vakti eðlilega spurningar hjá fjölskyldunni. Börnin hennar höfðu ýmsar áhyggjur en Erla hafði tekið ákvörðun og ætlaði að leggja af stað, hvort sem öðrum leist á hugmyndina eða ekki. „Ég sagði þeim að það væri alls ekki rétt að ég væri orðin of gömul til þess. En ég þurfti líka að ræða við þau um hvað gæti gerst ef eitthvað kæmi fyrir mig og ég kæmi ekki aftur. Þeim þótti þetta óþægilegt. Þau fóru smám saman að sætta sig við þetta þegar ég lofaði að keyra ekki ein inn í Indland. Ég lofaði líka að ef aðstæður væru ekki góðar til að gista úti myndi ég einfaldlega leigja mér hótelherbergi. Ég yrði í öruggum aðstæðum.“ Erla rifjar upp þegar hún hitti konu á hundasvæði, en sú kona hafði verið gift í 45 ár. Konan spurði Erlu hvers vegna í ósköpunum hún væri að skilja núna „orðin svona gömul.“ Ég sagði henni að mér fyndist maður aldrei of gamall til þess að fara að leita að hamingjunni. Erla lagði af stað með Norrænu 2. apríl. Upphaflega hafði hún ætlað að sækja heimsmeistaramót í íshokkí í Stokkhólmi þar sem dóttir hennar átti að keppa en dóttirin fótbrotnaði. Erla hélt sig samt við brottfarardaginn. Það hefur ýmislegt komið upp á síðan, sérstaklega í tengslum við bílinn. „Bíllinn er búinn að bila aftur og aftur, hver bilunin á fætur annarri. Ég er búin að greiða um milljón krónur í rekstrarkostnað síðan ég lagði af stað, þar af 500 þúsund í viðgerð í Noregi sem þurfti síðan að laga aftur í Portúgal.“ Erla notar Park4Night-appið til að finna gististaði og reynir að forðast að keyra í myrkri. Börnin geta fylgst með staðsetningu hennar í gegnum síma og hún er með AirTag í bílnum. „Ef krakkarnir hefðu fengið að ráða hefðu þau látið græða í mig staðsetningarbúnað, bara til að vita hvar ég væri!“ Nýir vinir og landamæraverðir Þegar blaðamaður Vísis ræddi við Erlu var hún stödd í Portúgal, búin að ferðast um átján lönd og með miklu lengri leið fyrir höndum. Eitt af því sem Erla nýtur mest er að kynnast fólki á ferðinni. Í Austurríki hitti hún til dæmis mann frá Marokkó sem hafði yfirgefið hefðbundið skrifstofulíf og ferðast í bíl sínum í um 20 ár. Í Noregi kynntist hún manni frá Abu Dhabi sem hafði hætt störfum í hernum og farið á eftirlaun. Þau lögðu bílum sínum við sama fjörð, hófu samræður og ferðuðust síðan saman í tvær vikur, meðal annars til Nordkapp. Erla hefur eignast góða vini á ferðum sínum.Aðsend „Ég hafði bara lagt bílnum á túni við fjörð og hann kom þangað líka. Við fórum að spjalla og á endanum bauð hann mér að borða. Það var mjög skemmtilegt að vera með honum og ferðast um. Ég talaði við marga vini hans, suma oftar en einu sinni. Hann kynnti mig fyrir ýmsum arabískum réttum og sagði mér mikið frá menningu og lífsháttum. Þetta opnaði fyrir mér alveg nýja hlið á arabískri menningu.“ Ekki hafa öll kynni á ferðinni verið jafn afslöppuð. Við landamæri Eistlands og Rússlands ók hún óvart inn á svæði þar sem hún mátti ekki vera. „Ég hafði séð fólk með ferðatöskur í biðröð við landamærin, svo mig grunaði hvar ég væri. Ég lagði bílnum og var niðursokkin í að skoða mig um þegar bankað var á rúðuna. Þar stóð maður og spurði hvað ég væri að gera. Hann sagði að ég væri komin á svæði þar sem ég mætti ekki vera og krafðist þess að fá að sjá alla pappírana mína.“ Landamæraverðirnir skoðuðu skjölin og bílinn og eftir um hálftíma fékk Erla leyfi til að halda áfram. Hún kannast við að fá viðvaranir frá fólki sem telur einstök lönd hættuleg, en kýs að kanna aðstæður sjálf frekar en að láta sögusagnir ráða ferðinni. Hún skoðar ferðaviðvaranir og upplýsingar um öryggi áður en hún fer inn í nýtt land. „Ég vil ganga út frá því að að megninu til sé allt fólk í heiminum gott að upplagi.“ Myndböndin slógu í gegn Erla heldur úti Facebook-síðunni My Icelandic Passport, þar sem hún birtir myndir og myndbönd af ferðalaginu. Upphaflega var síðan hugsuð fyrir vini og ættingja en svo fór þetta að vinda upp á sig. „Þetta byrjaði eiginlega þannig að ég fór að prófa mig áfram með að setja myndbönd á „Reels“. Þá fór þetta allt í einu á flug. Ég fór að fá fullt af fylgjendum og hugsaði: Hvað er að gerast?“ Síðan hefur fengið um 1.700 fylgjendur og fyrstu myndböndin fóru að sögn Erlu upp í um 200 þúsund áhorf. Viðbrögðin gleðja hana, sérstaklega frá konum á hennar aldri sem hafa sjálfar dreymt um að gera eitthvað óvenjulegt. „Þær segja: „Mig langar svo að gera þetta, en ég þori ekki.“ Og ég segi: „Þú þarft bara að finna kjarkinn.“ Á ferðalaginu hefur Erla meðal annars heimsótt Stachelberg – kjarnorkubyrgi í Tékklandi sem byrjað var að byggja árið 1938 en aldrei lokið við.Aðsend Ekkert Excel-skjal fyrir næstu fimm árin Erla ætlar að ljúka ferðinni um Evrópu áður en hún heldur lengra austur. Frá Portúgal stefnir hún aftur til Spánar og síðan til eyja á borð við Korsíku, Sardiníu, Sikiley og Möltu. Þaðan vill hún halda til Albaníu, Grikklands og Tyrklands og síðar áfram til Asíu. Hún hefur einnig áhuga á að starfa um tíma sem sjálfboðaliði með flóttafólki á grísku eyjunni Lesbos. „Mig hefur alltaf langað til að fara í hjálparstarf erlendis en ég lagði aldrei mikið upp úr því af því að mér fannst ég þurfa að vera hjá fjölskyldunni minni. Ég hefði auðvitað getað gert þetta. Ég þurfti bara að læra það. Þó svo að það væru komin þarna tvö barnabörn sem mér fannst ég verða að styðja og gera allt fyrir, þá varð ég svolítið að fara þessa leið, að setja mig í fyrsta sæti.“ Síðar á ferðinni langar hana að skoða Kína, Kóreu, Japan, Ástralíu, Nýja-Sjáland, Kanada og Bandaríkin, öll fylki Bandaríkjanna. Afríka og Suður-Ameríka eru sömuleiðis á listanum, þótt ekki sé ákveðið hvort hún ferðist þar á bílnum eða með bakpoka. „Ég tók ákvörðun um að þetta yrðu kannski fimm ár sem ég tæki í þetta ferðalag. En ef ég stefni á að vera sex mánuði að skoða Ástralíu og eitt ár að skoða Kína, þá veit ég alveg að þetta mun taka tíma.“ Kósý stund í bílnum.Aðsend Þótt Erla sé langt að heiman hefur hún ekki sagt skilið við fjölskyldulífið. Hún er í reglulegu sambandi við börnin og sendir barnabörnunum póstkort frá hverju landi sem hún heimsækir, bæði til að gleðja þau og kenna þeim svolitla landafræði. Hvernig allt þetta endar veit hún ekki, enda vill hún helst ekki skipuleggja ferðalagið of nákvæmlega. Hún hefur alla tíð verið vön að fá hugmynd og framkvæma hana, hvort sem um er að ræða nýtt starf, nám, útilegu með börnunum eða heimsreisu á sendiferðabíl. „Spontant, það er rétta orðið. Mér líður ekki vel við tilhugsunina um að lifa eftir einhverju Excel-skjali. Maður gæti misst af skemmtilegum hlutum ef allt er skrifað í stein.“ Erla tekur einn heimshluta fyrir í einu og staldrar við þegar hún sér eitthvað áhugavert. „Ég þarf ekkert að flýta mér. Stundum keyri ég á hverjum degi og stundum tek ég mér dagspásu á milli. Stundum keyri ég hundrað eða tvö hundruð kílómetra og stundum þrjú hundruð. Ef ég sé eitthvað skemmtilegt eða það er eitthvað skemmtilegt í kringum mig þá vel ég að skoða það. Ég skoða yfirleitt hvað er merkilegt að sjá áður en ég fer inn í landið og bý til eitthvað plan út frá því en annars leyfi ég því bara að ráðast.“
Ferðalög Helgarviðtal Íslendingar erlendis Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið