Vonlaust að gagnrýna vini sína Jakob Bjarnar skrifar 1. nóvember 2026 11:02 Ásgrímur Sverrisson fæddist bókstaflega inn í bíó- og sjónvarpsbransann. Faðir hans, Sverrir K. Bjarnason, var einn þeirra sem sendir voru út til Danmarks Radio 1965 til þess að læra tæknina við að búa til sjónvarp. vísir/anton brink Fáir vita eins mikið um kvikmyndageirann og Ásgrímur Sverrisson. Hann er annarrar kynslóðar sjónvarpskarl og sú þriðja, dóttir hans Erna Sóley, hefur tekið við kyndlinum og starfar nú hjá Ríkissjónvarpinu. Er kvikmyndin að deyja eða er von? Og af hverju hefur Ásgrímur ekki gagnrýnt íslenskar kvikmyndir?
Ásgrímur hefur fengist við flest sem við kemur kvikmyndagerð auk þess sem hann hefur sjálfur fjallað um fyrirbærið frá blautu barnsbeini. Til stendur að ræða kvikmyndagerð vítt og breitt, þróun í kvikmyndagerð og stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi. Fáir ef nokkrir Ásgrímur er nánast fæddur inn í bíóið. „Já, bíó og sjónvarp. Fyrir mér þá rennur þetta allt saman í eitt og hefur alltaf gert frá því að ég man eftir mér. Pabbi var einn af þeim, Sverrir K. Bjarnason, en hann er nú nýlátinn. Ég votta þér samúð mína. „Já, takk. Hann var sem sagt einn þeirra sem sendir voru út til Danmarks Radio 1965 til þess að læra tæknina við að búa til sjónvarp. Hann var meðal fyrstu starfsmanna Sjónvarpsins og vann þar alveg til starfsloka 2008, þannig að það voru 43 ár. Klippa: Í bóli Bjarnars - Ásgrímur Sverrisson Já, ég ólst upp við þetta. Og á þessum tíma, sérstaklega þegar ég var krakki, var sjónvarpið í rauninni eini staðurinn þar sem verið var að stunda kvikmyndagerð í einhverjum mæli. Auðvitað voru nokkrir sjálfstæðir kvikmyndagerðarmenn úti á markaðnum, en sjónvarpið var eini stóri staðurinn þar sem flestir unnu við að búa til einhvers konar myndefni.“ Keypti sér kameru fyrir fermingarpeninginn Ásgrímur kom oft í heimsókn í Sjónvarpið og kynntist fólkinu. „Ég heillaðist af þessum heimi og það var kannski líka það að þetta var nýtt og það að þjóðin var rosalega áhugasöm um þetta. Og svo náttúrulega var bíóið að byrja á þessum tíma, þegar ég er unglingur og þá er ég sjálfur byrjaður að gera myndir, þótt ég hafi nú bara verið krakki þá.“ Og þú ert byrjaður að gera bíómyndir strax í barnaskóla? „Ég var ekki orðinn 14 þegar ég var byrjaður að gera myndir. Ég hafði verið ákveðinn í því í svolítinn tíma. Já, og sennilega bara út af þessu öllu. Ásgrímur er einn þeirra sem stundar hinn fræga kaffiklúbb árla dags á Skólavörðustígnum.vísir/anton brink Ég held að til sé skrifleg yfirlýsing þar að lútandi frá því ég var átta ára. Svar við spurningunni: Hvað viltu verða þegar þú ert orðinn stór? Svarið var hellarannsóknarmaður, landafræðingur og kvikmyndagerðarmaður. En þetta er allt sama starfið, athugaðu það.“ Þú ert fæddur 64 og búinn að vera í þessu alla tíð? „Tæplega 50 ár. Jú, það er fínt. Ég keypti mér kameru fyrir fermingarpeningana mína.“ Félagar Ásgríms í Lækjarskóla í Hafnarfirði voru þeir Hallur Helgason athafnamaður og Stefán Hjörleifsson, tónlistarmaður með meiru. „Við gerðum saman slatta af myndum, alltaf nokkrar myndir á ári og svo komum við í Flensborg, Stefán fór reyndar í Verzlunarskólann, og héldum áfram að gera myndir þar. Ég leit aldrei á þetta sem áhugamál.“ Költmynd verður til við skondnar aðstæður Ásgrímur segir að sjónvarp og kvikmyndagerð hafi þannig runnið saman í eitt; fyrir honum var þetta sami heimurinn þótt þetta útheimti að einhverju leyti mismunandi aðferðir við vinnslu. En af hverju er mikilvægt að gera kvikmyndir? „Að sjá sjálfan sig og sína, lífið í þessu landi, í því umhverfi sem maður elst upp við, speglað á hvíta tjaldinu. Þetta er náttúrulega sambærilegt við bókmenntir eða leikhús að því leytinu til að það er verið að spegla einhvers konar líf innra og ytra.“ Ásgrímur segir þetta lykilatriði. „Og þegar ég var að byrja – þá var þetta allt saman líka að byrja. Og merkilegt að sjá eitthvað úr íslenskum veruleika eða fantasíu uppi á tjaldi eða á skjánum, sjá þetta og geta sagt: Já, við erum svona líka. Það er verið að spegla okkur. Ásgrímur fékk kvikmyndagerð og sjónvarpsmennsku í æð, með móðurmjólkinni.vísir/anton brink Þetta voru nýmæli og það dreif mann áfram. Fyrir utan náttúrulega það að maður heillaðist af þessum heimi og öllu sem þessu fylgir. Þessu fylgja vitaskuld eilífar efasemdir; hvað djöfullinn maður sé að gera og svo framvegis, en það er bara hluti af starfinu.“ Ég er hér með lista yfir afrek þín og staldra strax við költ-myndina Hinir ómótstæðilegu frá 1988. Leikið sjónvarpsefni. Hvernig kom þetta verkefni til? „Þetta var náttúrulega meinfyndið. Ég var að vinna í sjónvarpinu sem upptökustjóri. Hafði verið að gera hitt og þetta. Einn góðan veðurdag, þetta var á fimmtudegi, kemur Baldur Hermannsson, þáverandi aðstoðardagskrárstjóri, til mín og segir: „Ási, það er ekkert að gera fyrir crewið í næstu viku.“ Þetta var að vori og vetrardagskráin búin. „Ertu með eitthvað?“ Ég sagði: Augnablik og hringi í Hall. Ég vissi að Kátir piltar voru að fara að gefa út plötu. „Þið skrifið handrit yfir helgina, við erum að fara í tökur á mánudag eða þriðjudag, við höfum fjóra daga.“ Ásgrímur segist hafa vitað að þetta, sem að öllu eðlilegu hefði verið ómögulegt, væri gerlegt því flestir í Kátum piltum voru þá að vinna hjá sjónvarpinu og vissu hvernig sjónvarp virkaði. Hvað þurfti. Það veit undirritaður enda einn af meðlimum sveitarinnar. „Úlfur Grönvold, félagi okkar og nú leikmyndahönnuður ríkisins, var líka að vinna hjá Sjónvarpinu þannig að ég vissi að þetta væri gerlegt. Handritið yrði klárað og skrifað yfir helgina, sem varð. Hallur, Davíð Þór Jónsson og Atli Geir Grétarsson settust niður og skrifuðu það út. Við vorum tilbúnir í tökur, ég held við höfum byrjað á þriðjudegi og vorum út vikuna.“ Tröllasaga staðfest Mig langar til að bera undir þig eina tröllasögu sem hefur verið lengi uppi varðandi þetta verkefni, sem gengur út á að Hrafn Gunnlaugsson, sá litríki maður, hafi verið dagskrárstjóri á þeim tíma og hann hafi í raun skemmt myndina. Hann hafi komið inn í klippiherbergi þar sem þú varst að störfum og skipað svo fyrir um að byrjunaratriðið yrði klippt út. Ásgrímur lenti í skrúfunni hjá Hrafni Gunnlaugssyni dagskrárstjóra Sjónvarps með stuttmyndina Hinir ómótstæðilegu, sem hefur öðlast einskonar költstatus með tímanum.vísir/anton brink Hann var með eindregna stefnu, að ekki heyrðist enska meðan hann væri dagskrárstjóri. Og þarna var undir lag sem hét „Are You Bitter in My Garden“ eftir Stein Ármann, sem var í sama stíl og „Bjossi on the milk car?“ sem hljómsveitin Randver söng á knosaðri ensk/íslensku. Paródían á einmitt íslensku hafi þar farið fyrir lítið? „Já, já, þetta er satt. Ég fór til hans með eintak og sýndi honum og hann sagði: „Já, við verðum að klippa þetta út.“ Þá ríkti einhver stefna þar sem mikil áhersla var lögð á íslenska tungu. Sjálfsögð og mjög góð stefna, í sjálfu sér. Jú, ég reyndi að koma honum í skilning um þetta. Svona gerist. En þetta var bara kalt mat. Ég held að ég eigi ekki þessa töku neins staðar, því miður. Þetta var frábært atriði. Við vorum búin að klippa alla senuna. Nei, ég held ég hafi ekki haft vit á því. Við skutum þetta niður á Lækjartorgi. Allavega, myndin er til og hún er á YouTube. Þú verður að horfa á hana þar.“ Þú fæst við heimildamyndir, eitt og annað og tíminn líður þar til þín fyrsta leikna mynd lítur dagsins ljós, sem er Reykjavík 2016. Hefðirðu viljað gera fleiri leiknar myndir? „Ó-já.“ Af hverju eru þær ekki fleiri? „Það er mjög góð spurning. Það eru margar skýringar á því. Maður reyndi oft að sækja um – reyndi að fá fjármagn. Ég komst mörgum sinnum langleiðina, nokkrum sinnum langleiðina með fjármögnun en þá steytti á skeri. Í staðinn var maður að vinna ýmislegt annað líka, eins og til dæmis að innviðum bransans, sem oft reyndist meiri vinna en maður bjóst við. Eins og til dæmis bara það að halda úti einhvers konar málgagni eða blaði um kvikmyndagreinina. Ég tók síðan þátt í að stofna kvikmyndaverðlaunin, Edduna. Þar var ég framkvæmdastjóri fyrstu þrjú árin og sat síðan í stjórn í mörg ár. Og aftur núna nýlega. Síðan var ég náttúrulega einn þeirra sem höfðu forgöngu um stofnun Bíó Paradísar á sínum tíma.“ Ekki síður fjallað um en búið til bíó Ásgrímur segir þetta hafa verið um 2010 og það hafi ekki verið neitt minna en kraftaverk að það tókst að koma Bíó Paradís á. „Það var stórkostlegt. Núna er eins og þetta hafi alltaf verið til en þetta var náttúrulega alveg rosalegt átak að koma þessu á koppinn. Svo hef ég einnig verið að vinna mikið í að gera alls konar efni fyrir sjónvarp og þar á meðal þessari stóru seríu núna nýlega sem fjallar um íslenska kvikmyndasögu.“ Og svo hefur Ásgrímur haldið úti Klapptrénu, sérriti um kvikmyndagerð, frá 2013. „Sem er framhald af því sem ég hafði verið að gera nokkuð reglulega bara alveg síðan ég var polli. Ég gef út mitt fyrsta kvikmyndablað þegar ég er 14 ára. Það er sama ár og ég byrjaði að gera kvikmyndir á átta millimetra vél. Því blaði dreifði ég um allt land, 2000 eintökum. Það hét Fókus.“ Ásgrímur segir að reyndar hafi aðeins eitt tölublað af Fókusi komið út en nokkrum árum síðar gaf hann út annað blað sem átti eftir að endast í nokkur ár og hét það Myndmál. „Það var tímarit sem kom út nokkrum sinnum á ári milli 83 og 85 eða eitthvað svoleiðis. Ásgrímur nam leikstjórn í National Film and Television School (NFTS) á Englandi og útskrifaðist þaðan árið 1994.vísir/anton brink Þegar ég svo kem heim úr námi tók ég þátt í að stofna blað sem heitir Land og synir, kvikmyndarit sem upphaflega var rekið á vegum Félags kvikmyndagerðarmanna. Þar var ég ritstjóri ásamt Bjarka sem þá var formaður Félags kvikmyndagerðarmanna. Hann fékk mig í þetta og við unnum saman í að koma ritinu út til að byrja með. Svo komu fleiri inn í þetta á ritstjórn og svo framvegis. Þetta rak ég í mörg ár. Svo reyndi ég að kúpla mig út úr því og gerði það í nokkur ár, sem var svona í kringum 2008.“ Allir mættu á íslenskar kvikmyndir Bíó Paradísar-ævintýrið tekur við en Ásgrímur tekur eftir því að engin umfjöllun um kvikmyndir er í boði. Honum rennur blóðið til skyldunnar. „Þetta er eins og svona samfélagsþjónusta. Maður reynir að þjóna þessari grein sem maður vinnur í, halda utan um fréttir, upplýsingar og svoleiðis.“ Þegar ég lít yfir feril þinn og reyndar íslenska kvikmyndagerð almennt þá er helsta einkenni eilífðarinnar fjármálaströggl? „Já.“ Hvað er það? „Já,“ segir Ásgrímur og dæsir. „Þetta byrjaði allt saman á þessari baráttu fyrir því að Kvikmyndasjóður yrði yfirleitt til, sem gerðist loksins undir lok áttunda áratugarins. Það var mikil barátta bara fyrir því að koma honum á koppinn, að þetta yrði til, þetta yrði viðurkennt, að þetta yrði viðurkennt sem listgrein og hana bæri að fjármagna. Og ríkið ætti að koma inn í það. Af hverju á ríkið að koma inn í þetta, er kannski hægt að spyrja? Það er vegna þess að Ísland er lítið land, pínulítið land, að það að fjármagna heila kvikmynd með og byggja á til dæmis aðsókn er afskaplega erfitt. Það var merkilegt nokk hægt fyrstu árin upp að vissu marki vegna þess að fólk var til í að taka mikla áhættu, veðsetja húsin sín, leggja launin sín að veði gegn því að það komi áhorfendur. Og það komu áhorfendur á mjög margar af þessum fyrstu myndum.“ Fyrstu árin? „Já. En það voru líka flopp inn á milli þar sem menn fóru mjög illa út úr. Og síðar stækkar sjóðurinn. Hann byrjar alveg pínu, pínulítill og hann leggur bara fram pínulítið fjármagn í hverja mynd. Og þá bara örfáar myndir. En það var nóg til þess að fólk hugsaði: Já, heyrðu, það er einhver með mér í baráttunni. Ég ætla að fara af stað og taka mikla sénsa. Og þannig að þetta er í rauninni mikið einkaframtak.“ Bitist um hverja krónu Ásgrímur segir að sé svarið við spurningunni hvort við viljum íslenska kvikmyndagerð já, þá þurfi stuðning frá almannafé. „Það er ekki hægt að byggja kvikmyndagerð á því að það komi tekjur af dreifingu og aðsókn. Þetta á ekkert bara við um Ísland, þetta á við um Evrópu alla. Ameríka og Hollywood eru hins vegar á alheimsskala þannig að auðveldara er fyrir þá að halda þessu gangandi. Ásgrímur segir vonlaust verk að ætla sér að fjármagna kvikmyndir sem byggja á aðsókn innanlands eingöngu.vísir/anton brink En raunveruleikinn í evrópskri kvikmyndagerð er sá að peningurinn kemur fyrst og fremst í gegnum framleiðsluna, það er að segja í gegnum sjóði og oft samframleiðslur, evrópska sjóðinn, norræna sjóði, íslenska sjóðinn að sjálfsögðu, sem er algjör burðarstoð og svo framvegis. Þetta er mjög erfitt öðruvísi þó að alltaf sé ein og ein mynd sem hægt er að gera án stuðnings en það eru þá frekar ódýrari myndir sem njóta jafnframt mjög mikilla vinsælda.“ Og þetta þýðir þá auðvitað það að hart er barist um hverja krónu. Nú hef ég fjallað um kvikmyndagerð sem blaðamaður af og til í öll þessi ár og ég hef alltaf á tilfinningunni að maður heyri ekki nema bara brot, toppinn á ísjakanum, af kraumandi óánægju kvikmyndagerðarmanna sem komast ekki að. „Þú getur rétt ímyndað þér.“ Ásgrímur segir þetta allt hluta leiksins. „Þegar þetta byrjaði voru frekar fáir í þessu en það var samt hörð samkeppni vegna þess að peningarnir voru svo litlir. Síðan fer það að gerast að vegur kvikmyndagerðar fer vaxandi. Menn fara að vekja athygli og þá vilja fleiri bætast í leikinn. Hægt og rólega verður aukning í kvikmyndagerðinni. Það sem svo gerist er að peningar til dæmis frá Kvikmyndasjóði voru sama upphæðin árum saman. Það er ekki fyrr en upp úr aldamótum sem tekin er ákvörðun af stjórnvöldum um að bæta aðeins í þetta.“ Ísland verður spennandi kvikmyndaland Ásgrímur rekur að þetta hafi gerst í áföngum, hægt og rólega með samningum. „Þetta gengur nokkuð vel fram svona næstu 20 ár eða svo. Auðvitað kemur hrunið inn í þetta og þá varð náttúrulega hrun líka í bransanum. Hann var skorinn meira niður en nokkur önnur listgrein.“ Samhliða því að greinin stækkar fara Íslendingar jafnframt að framleiða leiknar sjónvarpsþáttaraðir sem taka lengri tíma í tökum og útheimta meiri mannskap. „Greinin stækkar gríðarlega hratt. Mikið af nýju fólki kemur inn og hyggst náttúrulega gera þetta að ævistarfi. Þetta er náttúrulega að mörgu leyti mjög spennandi og skemmtilegt starf og fjölbreytt.“ Íslenskar sjónvarpsþáttaraðir og kvikmyndir fara víða. „Sumar þeirra eru seldar í bíó og þá sýndar í svona „arthouse-bíóum“ eins og evrópsk kvikmyndagerð er yfirleitt, bíóum eins og Bíó Paradís er, út um allan heim. Sumar þeirra hafa fengið alveg milljónir áhorfenda. Hrútar, til dæmis, og teiknimyndir eins og Lói og Hetjur Valhallar – Þór … þetta eru milljónir áhorfenda og ýmsar fleiri hafa náð mjög góðum árangri.“ Og myndirnar ná einnig góðum árangri á stórum hátíðum. En það tók langan tíma að ryðja þá braut. „Það voru kannski menn eins og Friðrik Þór og síðan Baltasar Kormákur og fleiri sem ruddu þá braut. Áður var sagt: Ísland, bíddu, hvað þetta aftur, já, Ísland þarna uppi í norðrinu, já, já. Og gerið þið kvikmyndir, segið þið? Já, já, það er bara alveg stórmerkilegt, ég skal segja ykkur það. En verið nú samt úti, krakkar mínir. En núna hins vegar: Hvað ætli sé að koma frá Íslandi í ár? segir fólkið á kvikmyndahátíðunum og víðar. Ísland er orðið spennandi kvikmyndaland og hefur verið lengi. Þetta er svolítið allt önnur staða.“ Endurgreiðslan beggja handa járn Íslensk stjórnvöld tóku þá ákvörðun að endurgreiða hluta kostnaðar við kvikmyndaverkefni sem tekin eru hér á landi. En það er eitt og svo stuðningur við íslenska kvikmyndagerð út af fyrir sig. Mér virðist sem íslenskir kvikmyndagerðarmenn séu ekkert mikið að fagna þessu fyrirkomulagi? „Þetta er flókið. Endurgreiðslan kemur að gagni fyrir íslenska kvikmyndagerð að verulegu leyti meðal annars vegna þess að íslenskir kvikmyndagerðarmenn geta líka fengið endurgreiðslu. Þeir geta hins vegar ekki sótt um endurgreiðslu til dæmis af þeim peningum sem Kvikmyndamiðstöð eða Kvikmyndasjóður lætur þá hafa. Ásgrímur vill ekki undir neinum kringumstæðum tala endurgreiðslukerfið niður en hinu sé ekki að leyna að tilgangur með íslenskri kvikmyndagerð sé að varpa ljósi á líf okkar og þrár, þeirra sem hér lifa.vísir/anton brink En af öðru fjármagni geta þeir sótt um endurgreiðslu. Og þetta hefur kannski verið 10-15 prósenta viðbótarstyrkur. Þetta er bara til þess að styðja við kvikmyndagerð í landinu en þetta er allt annað heldur en Kvikmyndasjóður og framlag Kvikmyndasjóðs. Þannig séð koma peningarnir til þannig að fyrst eyðirðu þeim og skilar í rauninni uppgjöri.“ Þetta er allt bókað og stimplað í bak og fyrir. „Þú þarft að eyða peningunum áður en til endurgreiðslu kemur. En Kvikmyndasjóður kemur hins vegar inn með fjármagn áður en framleiðslan hefst eða bara um leið og framleiðslan hefst. Og, jú, jú, oft líka að styðja við þróun og þess háttar. Þannig að það er allt annað fjármagn. Ákvörðun um að gera þetta eins og mörg lönd gera, að byrja að endurgreiða hérna kostnað sem fellur til vegna kvikmynda, var tekin til þess að laða að stór erlend verkefni. Og vissulega hefur það tekist alveg ágætlega.“ Ásgrímur nefnir að hingað hafi komið mikil erlend verkefni, helst frá Hollywood, sem hafa útheimt það að íslenskt starfsfólk er oft ráðið í þau verkefni. „Og það nýtur mikillar virðingar fyrir sitt framlag hjá þessum stóru erlendu Hollywood-aðilum.“ Íslendingarnir stóðu sig svo vel að um tíma gátu hinir erlendu aðilar leyft sér að treysta á innlent starfslið. Núna er það orðið minna en þó er allur gangur á því samt. „Þetta var hægt því ákveðin reynsla og þjálfun er til staðar. Þannig að þetta nýtist í því að búa til bæði starfsgrundvöll fyrir fólk í bransanum en auðvitað ekki leikstjórana eða handritshöfundana.“ Leikarar gera garðinn frægan á alheimssviðinu Og varla leikara nema að litlu leyti? „Íslenskir leikarar hafa að vísu farið mikið erlendis og leikið þar í ýmsum sjónvarpsmyndum. Ég nefni til dæmis Óla Darra og Jóhann Hauk, Ingvar Sigurðsson, Vivian Ólafsdóttir, Ingvar Sigurðsson, Jóhann G. og fleiri og fleiri. Ég man ekki nöfnin. Þannig að íslenskir leikarar eru með í þessari alþjóðlegu púllíu sem er svolítið gerð út frá Bretlandi vegna þess að Bretland er líka svo mikil miðstöð Hollywood-kvikmyndagerðar. Við erum innan þeirra sjóndeildarhrings.“ En menn eru uggandi. „Mjög stór Hollywood-verkefni geta komið hérna inn og tekið allt yfir. Og þá allt í einu sjá menn, eða sá möguleiki er fyrir hendi, bíddu, eigum við að vera í þessu? Er þetta framtíðin? Þessi erlendu verkefni eru bara þjónusta.“ Sú tíð er löngu liðin að það eitt að kvikmynd sé íslensk tryggi henni aðsókn.vísir/anton brink Ásgrímur segir erfitt að ræða þetta því hann vilji á engan hátt gera lítið úr þessu fyrirkomulagi. Það sé jákvætt að erlend verkefni skaffi verkefni, þar fá íslenskir kvikmyndagerðarmenn starfsreynslu og kynnast hérna vinnubrögðum á svona alþjóðlegum skala. „Það er bara hið besta mál að mörgu leyti. En auðvitað snýst þetta fyrst og fremst um það aðalatriði sem er að íslenskar kvikmyndir fái brautargengi. Að við séum að tjá okkur um okkur sjálf. Og það er aðalatriðið.“ Að fjallað sé um íslenskt fólk í íslenskum aðstæðum er og verður lykilatriði þegar rætt er um íslenska kvikmyndagerð. Í árdaga íslenska kvikmyndavorsins sem svo er nefnt þyrptist fólk unnvörpum í bíó. Nú er svo komið að fólk er ekkert endilega að sýna kvikmynd áhuga bara fyrir það eitt að hún sé íslensk? „Nei, það var kannski bara fyrstu fimm árin. Svo fór fólk að velja meira. En það er samt ákveðin velvild í garð íslenskrar kvikmyndagerðar.“ Ekki lengur nóg að myndin sé íslensk Erum við þá að framleiða of mikið eða hvernig stendur á þessu? Ég verð bara að viðurkenna að ef ég horfi í eigin barm þá er ég orðinn harla fákunnandi um þær myndir sem verið að framleiða á Íslandi? Fjölmargar hafa farið fram hjá mér. „Það segir kannski ákveðna sögu um markaðssetningu. Og hún mætti vera betri í mörgum tilvikum,“ segir Ásgrímur og veltir þessu fyrir sér. Hefur einhver áhuga á að sjá mynd bara af því að hún er íslensk? „Jú, það er ákveðinn faktor. Hún er um okkur, hún er okkar kúltúr. Það lifir alveg ennþá. En það er ekki svona: Já, ég verð að mæta á þessa mynd vegna þess að hún er íslensk. Það er löngu búið. Þó ýmsar breytingar hafi átt sér stað í kvikmyndagerð er stærsta breytan eflaust endalaus samkeppni um tíma fólks og þar spila samfélagsmiðlarnir stórt hlutverk.vísir/anton brink En svo er náttúrulega annað sem hefur gerst sem er kannski stærsta málið í þessu öllu sem er að samkeppnin um tíma fólks hefur orðið sko margfalt, margfalt harðari á þessum 40 árum plús sem íslensk kvikmyndagerð hefur verið í reglulegri framleiðslu. Kvikmyndagerðin í heild sinni lenti í gríðarlegu stoppi í Covid. En aðsókn var þá þegar á niðurleið, löngu áður; hæg niðurleið. Þá er ég að tala um bara alþjóðlega.“ Þetta þýðir ekki endilega að fólk sé hætt að horfa á kvikmyndir, það horfir hins vegar miklu meira á streymi. Þar er orðið gríðarlegt framboð af efni. Þetta hefur hins vegar þá hættu í för með sér að hlutirnir geti haft tilhneigingu til að fletjast út. „Þá ætti að skapast dýrmætt tækifæri til að sjá eitthvað mjög sérstakt. Það er ákveðinn hvati til að fara og sjá slíkar myndir. En núna er það mikið af efni, alls konar efni, og kannski er fólk bara á TikTok eða Facebook eða eitthvað.“ Heimsmeistarar í að mæta í kvikmyndahús Sem leiðir hugann að stöðu kvikmyndahúsanna? „Þar hefur aðsókn minnkað.“ Ásgrímur segir, hvað sem heimaskjáir séu orðnir almennir, það aldrei geta komið í staðinn fyrir að sjá kvikmyndir í kvikmyndahúsi. En þar hafi menn engu að síður þurft að draga saman seglin. „Þau eru að aðlaga sig að nýjum aðstæðum. Alþjóðlega hefur þeim fækkað, sölum hefur fækkað. Við sjáum það líka hér. Það hefur fækkað aðeins. Við vorum náttúrulega alveg gríðarleg kvikmyndaþjóð. Við fórum manna oftast í bíó í heiminum. Ef við vorum ekki í efsta sæti þá vorum við Bandaríkjamenn að skiptast á toppsætinu með um fimm heimsóknir á mann á ári. Þannig var þetta áratugum saman. Núna er þetta komið niður í 3,1 en Ameríkanar eru þar líka.“ Þó ekki minna og enn erum við í efstu sætum á heimsvísu ef horft er til aðsóknar í kvikmyndahús. „Þetta hefur dregist saman en við erum að koma úr rosalega mikilli hæð. Við erum með miklu, miklu meiri kvikmyndaaðsókn en til dæmis öll Norðurlöndin og öll Evrópa. Kannski helst að Frakkland komist eitthvað nálægt okkur. Það að fara í bíó hefur verið rosalega stór hluti af því hvernig fólk eyðir tómstundum sínum hérna á Íslandi. Kannski vegna þess að framan af þá var kannski ekkert mikið annað í boði.“ Merkileg sókn Norðmanna Fá blessað fásinnið. Ég er að velta fyrir mér Norðmönnum sem hafa verið að gera sig gildandi á sviði kvikmyndagerðar undanfarin ár. Og þeir eru reyndar ótrúlegir þessir Norðmenn. Þeir eru bara komnir í fremstu röð í öllum íþróttagreinum. Eru þetta bara peningarnir eða hvað er að gerast? „Já. Sko, af hverju heldurðu að íslenskir kvikmyndagerðarmenn séu stöðugt vælandi út af peningaleysi? Vegna þess að þeir vita það að ef við fáum einhverja peninga þá gerum við svo rosalega mikið úr þeim. Uppgangur Norðmanna á reyndar öllum sviðum er athyglisverður.vísir/anton brink Norðmenn tóku ákvörðun um að bæði leggja mikið í menntun og að leggja meiri peninga í að styrkja kvikmyndagerð og sjónvarpsvinnu einnig. Þeir hafa náð mjög góðum árangri á undanförnum árum í því. Þeir voru svolítið, hvernig á ég að orða þetta, ekki að gera mjög margt spennandi hérna á árum áður.“ Sko, fyrir bara 20 árum þóttu Norðmenn bara hreint ekki spennandi þjóð, yfirleitt. „Ók. En sem sagt, þeir hafa tekið markvissa ákvörðun, alveg eins og Danir tóku markvissa ákvörðun um að fara að leggja mikla áherslu á til dæmis sjónvarpsþætti upp úr 1990 og afraksturinn var heil skriða af rosalega flottu sjónvarpsefni sem þeir gerðu á seinni hluta tíunda áratugarins og vel fram á tuttugustu og fyrstu öldina. Þeir hafa dalað aðeins en vonandi rísa þeir upp aftur. Norðmenn hafa tekið við þessu merki.“ Heldur betur. „Og Svíar eru náttúrulega, þeir eru miklu stærri þjóð, öflugri og hafa alltaf haft öfluga kvikmyndagerð og líka sjónvarpsgerð. Þeir sigla sinn sjó og eru að gera ýmislegt áhugavert. En það er rétt, það er ákveðin í Noregi núna. En sem sagt, þetta var bara markviss ákvörðun sem tekin var af stjórnvöldum um að búa til stefnu, fylgja henni eftir með peningum og uppbyggingu og kvikmyndagerðarmenn sýna það að þeir geta staðið undir því.“ Af hverju ættum við að styrkja kvikmyndagerð? Ásgrímur segir sömu sögu hafa mátt segja á Íslandi, peningar í kvikmyndagerð hafi verið auknir og að miklu leyti til hafi verið stöðug aukning frá aldamótum, þó með dældum og lægðum þangað til um 2022 – síðan hafi verið látlaus niðurskurður. En verðum við ekki að horfast í augu við það að við erum bara 400 þúsund manna þjóð? Við getum ekki verið að grauta í öllu og gera það með rassgatinu? Verðum við ekki bara að velja og hafna? Leggja áherslu á tónlist og sleppa þá bíóinu, eða öfugt? „Þetta er gilt sjónarmið sem ég hef fullan skilning á.“ Þetta er lítið málsvæði. Ég hef alltaf verið svolítið skeptískur á þessa kenningu sem ég held að Ágúst Einarsson hafi sett fram, að fyrir hverja eina krónu sem sett er í menningu skili þrjár sér til baka. Bíddu, af hverju förum við, þá hendum við þá ekki bara öllu í menninguna? „Já, það er náttúrulega að tala um svona hagræna hagfræði og uppstillingu hjá honum,“ segir Ásgrímur og ljóst að honum þykir spyrillinn vera farinn að færa sig um of upp á skaftið. „Það er náttúrulega útúrsnúningur að segja ef hverju hendum við ekki öllum peningunum í þetta og græðum grilljónir. Menn eru bara að skemmta sér þarna.“ Jújú. „En það eru ákveðin takmörk fyrir því hvað er hægt að benda á sem hagkvæmt. Þetta eru frekar litlir peningar en hvað verður mikið úr þeim? Þetta snýst um það. Til dæmis var sú hugmyndin sem lá að baki því að fara að setja meiri peninga í kvikmyndagerðina um og upp úr aldamótum. Ásgrímur segir það gilda spurningu að velta fyrir sér því hvers vegna íslenskur almenningur ætti að styrkja kvikmyndagerð. Þó sjálfur velkist hann ekki í vafa um hvert svarið við þeirri spurningu er.vísir/anton brink Björn Bjarnason, sem þá var menntamálaráðherra, sagði við kvikmyndagerðarmenn: Við þurfum að skilgreina hérna hvað margar myndir á ári eiga þetta að vera. Niðurstaðan var held ég þá fjórar. En afleiðingin varð hins vegar sú að við fórum að gera mun fleiri myndir. Þess vegna eru kvikmyndagerðarmenn stöðugt kvartandi, tilhneigingin hefur verið að reyna að ýta eins mörgum úr vör og hægt er. Sex í stað fjögurra. Og þá fá allir aðeins minni peninga.“ Framboðið á stundum rýrt á Eddunni Og þar hefjast vandræðin. Hvar á að finna það sem út af stendur? Eiga kvikmyndagerðarmenn að vinna fyrir minni laun? Eiga þeir að snúa upp á hendina á einhverjum? „Hvað á ég að gera? Því kostirnir við fjármögnun eru takmarkaðir. Það er svo erfitt að leita til einkafjárfesta, þó að það hafi vissulega oft verið gert í íslenskri kvikmyndagerð, og segja við þá: „Heyrðu, ertu til í að setja nokkrar milljónir í þessa kvikmyndagerð? Þú færð þetta nú líklega ekki til baka eða það er nú frekar ólíklegt.“ Og það er vitaskuld allur gangur á því hvernig það fer. Þá er þetta spurningin um hvort viðkomandi auðmaður hafi gaman af viðkomandi eða einhverju við verkefnið. En þetta er snúið. Tengt þessu, Eddan, sem þú hefur nú verið að koma að alveg frá upphafi. Þið eruð svolítið að taka nótis af Óskarnum, er það ekki? „Jú, jú. Strúktúrlega séð en kannski ekki skala.“ Oft virðist manni, þegar fimm eru tilnefndir og það eru bara sex sem koma til greina í raun, það geta verið býsna neyðarlegt fyrir þann sjötta. Eiginlega bara alveg hrikalegt. Skortir ekki framboðið til að standa undir þessu öllu? „Uhhh, sko, þegar við byrjuðum þá var miðað við að hafa þrjár tilnefningar í hverjum flokki og flokkarnir voru frekar fáir. Það var samt alveg þannig að það var stundum bara um þrjár myndir að ræða þarna á upphafsárunum. En svo fór þeim að fjölga. Þá varð þetta nú aðeins gáfulegra. Þegar ég var farinn út úr stjórn þá fóru menn að hækka þetta upp í fimm tilnefningar á flokk. Ég sagði bara: Hvaða rugl er það? Þó að við höfum stækkað mikið þá höfum við ekki stækkað nægilega mikið til þess að standa undir þessu.“ Kvikmyndagerðarmenn vilja fá gagnrýni Ásgrímur segir að tekið hafi verið mark á því sjónarmiði og þessu hafi verið breytt aftur í þrjár tilnefningar. „En það sem hefur gerst er að bransinn hefur stækkað alveg gríðarlega og þess vegna meðal annars var tekin sú ákvörðun að fara í gegnum ítarlegt ferli þar sem allir voru spurðir, að skipta þessu upp í sjónvarps- og kvikmyndaverðlaun. Þetta var orðið svo mikið að það þurfti að skipta þessu upp.“ Niðurstaðan varð sú að meirihlutinn vildi haga því svo. „Vissulega kemur oft upp að það eru allt of fáir sem eru í ákveðnum flokki og þá verður þetta pínulítið asnalegt. En oft er nóg framboð, mjög oft. En þetta er náttúrulega hugsað til þess að vekja athygli á bransanum og gefa fólki kost á að fá viðurkenningar fyrir vel unnin störf. Þetta eru ekki boðorðin tíu, sem Móse kemur með niður af fjallinu.“ Nei, nei, þetta er partí. En hvað með gagnrýni? Íslenskir kvikmyndagerðarmenn sem og aðrir listamenn vilja náttúrulega fá viðbrögð. Þeir vilja fá gagnrýni, þó að þeir skilji kannski ekki endilega alltaf gagnrýni þá vilja þeir fá hana. Gagnrýni er sem sagt fyrir lesendur, ekki fyrir listamennina sjálfa, bara ef það skyldi eitthvað fara á milli mála. „Nákvæmlega.“ En hún hefur kannski verið af skornum skammti upp á síðkastið. Kannski má rekja það einmitt til þess að fjölmiðlar hafa þurft að rifa seglin samhliða öllu þessu. „Jú, mig grunar það. Ég skynja það af þeim samtölum sem ég hef átt við fjölmiðlamenn að það vanti ekki beinlínis viljann. Þetta er spurning um svigrúm. En vissulega reyna þeir og skrifa gagnrýni. Það er gott. Það sem vantar kannski er að hérna fjalla um sjónvarpsseríurnar leiknu. Ásgrím langar til að að skamma fjölmiðla fyrir skort á umfjöllun um til að mynda íslenska sjónvarpsgerð, en hann veit sem er að það er ekki alveg sanngjarnt.vísir/anton brink Nú er farið að gera mjög mikið af þeim. Þær eru kannski orðnar upp undir tíu á ári og það eru kannski bara tvær, þrjár, fjórar sem fá einhverja umfjöllun eða gagnrýni. Hinar vilja hverfa út í móðuna. Ég heyri hvergi né sé neina umræðu um þessi verk. Þarna hefur saman kominn hópur af fólki sem hefur eytt miklum peningum og mikilli fyrirhöfn í að búa eitthvað til. Hvað finnst gagnrýnanda um þetta gagnvart lesendum? Mér finnst bara eðlilegt að upplýsa lesendur um það. Er þetta eitthvað sem ég á að tékka á? Gæti þetta verið eitthvað spennandi? Er þetta ekki nógu gott?“ Vanhæfur til að fjalla um vini sína og kunningja Ásgrímur segist ekki vilja skamma fjölmiðla fyrir að fjalla ekki nógu mikið um þetta, hann viti að viljinn er fyrir hendi. „Það væri óskandi ef það væri hægt að hafa þá stefnu að fjalla um þetta eftir því sem þetta kemur út. Já, það er það sem maður vildi mjög gjarnan sjá og ég veit að mjög margir kvikmyndagerðarmenn vildu það líka. Að fjalla meira um það efni sem er gert í sjónvarpi vegna þess að þetta eru allt hérna skapandi greinar. Þó sitthvað hafi gengið á og ekki er það allt jákvætt er of snemmt að afskrifa kvikmyndagerðina.vísir/anton brink Þarna býr oft mikið hugmyndaflug að baki, sköpunarþörf og er stór hluti af lífi okkar. Af hverju eyðum við okkar tíma í þetta? Á hvað á ég að horfa og hvað er skemmtilegt? Hvernig er þetta verk að ávarpa tímana sem við lifum og svo framvegis og svo framvegis, sem er svolítið undirrótin að allri gagnrýni. Þannig að, já, það er svolítið mikilvægt mál.“ En þú hefur ekki viljað leggja þetta fyrir þig sjálfur? „Ég hef náttúrulega margoft verið gagnrýnandi en ég hef aldrei verið gagnrýnandi á íslenskt verk. Ekki nema ég hafi af og til fjallað um einhverjar heimildarmyndir. En það hefur verið í mýflugumynd. Í gamla daga var ég gagnrýnandi bæði fyrir sjónvarpið og líka fyrir DV. En mér hefur alltaf þótt mjög erfitt að fjalla um íslensk verk þó að ég myndi gjarnan vilja það. Það er bara af því að þetta er allt meira og minna sko vinir og kunningjar.“ Ásgrímur lýsir þröngri stöðu í þeim efnum. „Ef ég er eitthvað jákvæður í garð verks þá er sagt: Já, já, þú ert í liði með þessum, þetta er vinur þinn. Og ef ég er eitthvað neikvæður þá fæ ég skriðuna yfir mig; hvernig vogar þú þér? Þetta er vonlaust verk. En þetta er líka sama saga og margir íslenskir kvikmyndagerðarmenn sem hafa verið gagnrýnendur hafa að segja.“ Menn eru náttúrlega bullandi vanhæfir? „Já.“ Ísland er lítið en maður hefur oft hlegið að þessu, til dæmis þegar rithöfundar hafa verið að fást við gagnrýni, verið að dæma bækur kolleganna. Galið. Tónlistarmenn í dagskrárgerð í útvarpi? Þetta er bullandi vanhæfni. Ef menn sem telja sig geta gagnrýnt vanhæfni á öðrum póstum vilja ekki líta í spegil er prinsippið farið. „Já, já, þú átt helst ekkert að vera að gera þetta. Þetta er mjög grátt svæði. Já, þetta er eiginlega algjört, „no, no“. En samt, þér sem lesanda er alveg sama. Það eina sem þú vilt er að sjá er að lesa góðan texta sem er upplýsandi, um eitthvað sem er gaman. Þarna er eitthvað sjónarhorn. Það er í rauninni það sem lesandinn er að biðja um, ef við horfum á þetta bara frá sjónarhorni lesandans. En ég er svo sem alveg sammála því sem þú segir.“ Upp upp mín sál og allt mitt geð Þetta hefur verið hálfgerður bölmóður í tali okkar, Ásgrímur. Það verður að játast. Mig langaði til að bera undir þig kenningu sem hún dóttir mín heillin var að nefna í mín eyru bara núna í vikunni sem er eitthvað á þá leið að meðal ungs fólks sé að myndast andóf gegn þessari tæknihyggju sem hefur verið að flengríða hér öllu. Nú er komin antithesa – afturhvarf eða einskonar nostalgía þar sem henni er hafnað. Ýmis nýleg dæmi eru um að fólk sé nú óvænt farið að flykkjast í bíó. Ódysseifur, annað dæmi gæti verið mynd Nathan Fielders „You Can See Everything“. Erum við nú um stundir ef til vill ekki að horfa upp á hnignun heldur endurreisn bíósins? „Það getur bara meira en vel verið,“ segir Ásgrímur og hýrnar nú yfir honum. „Af hverju heldur þú að þetta unga fólk sé í einhverri svona uppreisn gegn tæknihyggju? Hún er einfaldlega leiðinleg. Hvað vill fólk? Í raun og veru aðgengi að einhverju sem auðgar ímyndunaraflið og stækkar heiminn. Og það er það sem kvikmyndirnar snúast um. Það hýrnar yfir okkar manni þegar fitjað er upp á viðhorfsbreytingu ungs fólks gagnvart tæknibylgjunni sem hefur hér allt viljað gleypa með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.vísir/anton brink Kvikmyndir eða aðrar listgreinar skipta líf þitt máli. Þar býr krafturinn og þær eiga erindi við þig og við almenning. Þannig að allt þetta tal um bölmóð, og vissulega er hann margur bölmóðurinn, kallar á andóf. Hvað býr að baki þeim draumi um að búa til list af þessu tagi og sköpun af þessu tagi? Allir sem eru í kvikmyndagerð eða einhverju öðru, tónlist, bókum, myndlist og öðru, eru að búa til eitthvað sem hefur einhver áhrif á almenning.“ Ásgrímur er kominn á flug. „Og þegar vel til tekst, sem gerist stundum, þá er það stórkostleg upplifun. Við lifum öll fyrir þetta andartak og þess vegna erum við að þessu. Það býr oft mikil þjáning að baki sköpun, því að búa þetta til. En við erum alltaf að leita að þessari stóru kraftbirtingu sem við getum bæði fengið sjálf og sýnt öðrum og deilt með öðrum. Það er stóra málið í þessu öllu saman.“ Þannig að þetta er ekki allt að fara til andskotans? „Nei, nei, nei. Ég meina, þetta er bara barátta. En það sagði enginn að þetta ætti að vera auðvelt.“ Nei, það sagði enginn að lífið ætti að vera auðvelt.
Í bóli Bjarnars Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Fjölmiðlar Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið