Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Smári Jökull Jónsson skrifar 30. október 2026 12:10 Daði Már tekur ekki undir orð Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns KÍ, um að tillaga stjórnvalda þýði að verið sé að víkja frá gildandi samningi. Vísir/Vilhelm/Anton Brink Fjármálaráðherra telur ekki að tillaga stjórnvalda til kennara þýði að vikið sé frá gildandi kjarasamningi. Samningar kennara eru í uppnámi vegna túlkunar á ákvæði um gerð virðismats en náist ekki samkomulag gætu samningar kennara losnað í mars.
Kjarasamningur kennara gildir til 31. mars 2028 en þar er fjallað sérstaklega um svokallað virðismat sem felur í sér að lagt er mat á virði ákveðinna verkefna kennara. Fram til 1. október skuldbundu aðilar sig til að vinna saman að verkáætlun undir stjórn ríkissáttasemjara en þá átti að endurskoða forsendur þessarar virðistmatsvegferðar út frá bráðabirgðamati. Í máli Magnúsar Þórs Jónssonar formanns KÍ og Ingu Rúnar Ólafsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í gær kom fram að vinnan hefði tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir. Í áðurnefndum kjarasamningi var hins vegar ákveðinn varnagli og þar er sérstakt ákvæði sem gerir ráð fyrir að hægt sé að fresta endurskoðun um allt að hálft ár. „Ég lít ekki þannig á“ Magnús Þór sagði í samtali við Vísi í gær að KÍ hefði fengið senda hugmynd um að breyta samningi og lengja samkomulagið og samkvæmt heimildum fréttastofu fer tillaga stjórnvalda út fyrir þann ramma sem kjarasamningurinn gerir ráð fyrir. Það væru kennarar ekki tilbúnir að samþykkja. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samkomulagi. „Ég lít ekki þannig á. Það var samið um það að ljúka þessari vegferð til þess að gefa henni ákveðinn tíma. Sá tími hefur reynst ónægur og það er töluverð vinna eftir. Henni mun ekki ljúka á þeim tíma sem gefinn var í samningnum og tillaga ríkisins var einfaldlega að hún yrði kláruð áður en að nokkur skref yrðu stigin,“ sagði Daði Már í viðtali við Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttakonu að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þannig að þið eruð ekki að víkja frá einhvers konar gildandi samkomulagi? „Við teljum ekki að við séum að gera það. Við teljum að þetta sé bara eðlileg tillaga af því að kjarasamningurinn gekk að verulegu leyti út á það einmitt að ljúka þessari vegferð.“ Innleggið hafi átt að vera uppbyggilegt Í samningnum er einnig forsenduákvæði sem hægt er að virkja fyrir 1. nóvember. Verði það virkjað tekur til starfa nefnd sem vinna á að samkomulagi undir stjórn sáttasemjara en kjósi aðilar að segja upp samningi eftir að sú nefnd hefur skilað niðurstöðum verða samningar lausir frá og með 1. mars næstkomandi. Daði segir ómögulegt að segja til um hvort verkföll séu fram undan. „Ég vona auðvitað ekki. Þessir samningar byggðu að verulegu leyti á því að ljúka virðismatsvegferðinni og það að henni sé ekki lokið er auðvitað eitthvað sem við höfum áhyggjur af, við viljum að hún sé kláruð. Það var vilji kennaraforystunnar líka og til þess þá þurfum við þennan tíma. Þannig að þetta átti á allan hátt að vera uppbyggilegt innlegg.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grunnskólar Framhaldsskólar Leikskólar Skóla- og menntamál Kjaramál Vinnumarkaður Sveitarstjórnarmál Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira